Lögberg - 28.09.1933, Blaðsíða 8
Bls. 8
L,ÖGBERX3. FIMTUDAGINN 28. SEPTEMBER, 1933
... —
Úr bœnum og grendinni
G. T. spil og dans á hverjum
þriðju- og laugardegi í I.O.G.T.
húsinu, Sargent Ave. Byrjar stund-
víslega kl. 8.30 aÖ kvöldinu. $16.00
og $20.00 í verÖlaun. Gowler’s Or-
chestra.
Fimtudaginn þann 5. október
næstkomandi, efnir kvenfélag Fyrsta
lúterska safnaðar (eldri deildin) til
samkomu í fundarsal kirkjunnar, kl.
3 síðdegis. Mrs. B. B. Jónsson,
sem nýlega er heimkomin úr íslands-
för, segir þar frá hinu og þessu, er
fyrir augu og eyru bar á þessu
skemtilega ferðalagi. Má þess ó-
hætt vænta, að frúin hafi frá mörgu
fróðlegu og skemtilegu að segja.
I sambandi við mót þetta verður
“Silver Tea” og eru allar íslenzkar
konur boðnar og velkomnar þang-
að.
Sunnudaginn 1. október messar
séra Sigurður Ólafsson í Árborg, kl.
2 e. h.—Ensk messa í Riverton, kl.
8 að kveldi þess sama dags.
Heklufundur i kvöld, fimtudag.
H. A. Bergman, K.C., leggur af
stað austur til Ottawa á laugardag-
inn kemur, til þess að flytja mál
fyrir hæsta rétti Canada. Mun hann
ekki verða nema nokkra daga að
heiman.
Mr. Kristinn Abrahamson frá
Sinclair, Man., dvelur í borginni um
þessar mundir.
Mr. Dori Einarsson útgerðar-
maSur, sem dvalið hefir um hrið í
Sinclair bygðinni, kom til borgar-
innar í vikunni, sem leið.
Mr. Gunnar Guðmundsson frá
Wýnyard, Sask., var staddur í borg-
inni í fyrri viku.
Fundnir peningar eru það vafa-
laust fyrir alla, er senda gamla gull-
bauga, nælur og brotasilfur til C.
Thorlakson, 699 Sargent Ave. Pen-
inga ávísanir sendar um hæl með
pósti.
Við kaupum og seljum allar teg-
undir af saumavélum. Skrifið til 300
Notre Dame, Winnipeg. Ph. 22498.
Séra Jóhann Friðriksson messar
í Lúterssöfnuði sunnudaginn þ. 8.
október kl. 11 f. h. og á Lundar
e. h. sama dag.
Vegna þess að séra H. Sigmar
gat ekki messað í Brown, Man.,
sunnudaginn 24. sept., eins og áð-
ur var auglýst, ráðgjörir hann aö
messa þar sunnudaginn 1. október
kl. 2 e. h. Sama dag verður líka ís-
lenzk messa í kirkjunni á Mountain
kl. 8 að kveldinu. Fólk á Gardar
og í Péturssöfnuði er beðið að at-
huga, að messum þeim, sem þar áttu
að vera 1. okt. hefir verið frestað
til sunnudagsins 8. október. Þá
messar séra Haraldur á Gardar kl.
11 og í Péturskirkju kl. 2 e. h.
Messan í Péturskirkju verður á
ensku og helguð ungdóminutn. Fólk
er beðið að athuga vel þetta messu-
boð.
Mr. O. G. Björnson, starfsmað-
ur Royal Bank of Canada, hefir ver-
ið kosinn forseti í Hockey félags-
skap bankamanna hér i borginni.
Gefin voru saman í hjónaband
síðastl. föstudag, að heimili Mrs.
S. Kristjánsson, austan við bæinn
Wynyard, Sask., þau Miss K. A. B.
Kristjánson og Mr. Jacob Guðna-
son frá Glenboro, Man. — Rev. T.
Currant, prestur við Wynyard
United Church, framkvæmdi hjóna-
vigsluna.
Junior Ladies’ Aid Fyrstu lút-
ersku kirkju, efnir til kveldverðar í
samkomusal kirkjunnar á miðviku-
dagskveldið þann 11. október næst-
komandi. Frá tilhögun verður frek-
ar skýrt í næsta blaði.
Meðlimir Jóns Sigurðssonar fé-
lagsins I.O.D.E., eru beðnir að mæta
á heimili Mrs. J. B. Skaptason, 378
Maryland St., 3. okt. kl. 8 e. h.
Mr. Böðvar Johnson frá Lang-
ruth, Man., var staddur í borginni
um miðja fyrri viku.
Mr. C. Eyvindson frá Westbourne
Man., kom til borgarinnar snöggva
ferð í vikunni sem leið.
Mr. Freemann Helgason frá
Langruth hefir dvalið í borginni
nokkra undanfarna daga.
Þeir séra Haraldur Sigmar, Har-
ald sonur hans, Gilsi Halldórsson,
Stefán Hallgrímsson og Steinþór
Hermann frá Mountain, N. Dak.,
voru staddir i borginni fyrir síðustu
helgi.
Séra E. H. Fáfnis, frá Glenboro,
kom til borgarinnar seinni part fyrri
viku.
Hr. Halldór Johnson fasteigna-
sali og Margrét frú hans héðan úr
borg, eru nýverið komin heim úr ís-
landsför. Fóru þau til íslands i
síðastliðnum maímánuði.
EXTRA!!
Fatnaðir, Kjólar,
Yfirhafnir
hreinsaðir og pressaðír
60c
Sótt 0g flutt heim
Smá-aðgerðir ókeypis
Sími 42 368
FORT ROUCE
CLEANERS
_______
Mr. og Mrs. S. B. Olson og Mr.
Guðni Thorleifson frá Langruth,
Man., voru stödd í borginni í byrj-
un vikunnar.
Leikhúsbúnaður til sölu, svo sem
búningar leiktjöld, hárkollur, leikrit
og margt fleira. Frekari upplýsing-
ar veitir Ásbjörn Eggertsson, 614
Toronto St., talsimi 86 828, Winni-
Peg-
Kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar heldur fund á fimtudaginn
þann 28. þ. m., kl. 3 síðdegis, i fund-
arsal kirkjunnar.
Miss Maria Hermann flytur þar
erindi. Vænst er eftir góðri aðsókn.
Mr. Andrés Skagfeld, innheimtu-
maður Lögbergs frá Oak Point,
Man., kom til borgarinnar síðastlið-
inn þriðjudag.
Thorsteinn G. Ingimundsson og
Sigrún Árna Árnason, bæði frá
Langruth, Man., voru gefin saman
í hjónaband af séra Birni B. Jóns-
syni, mánudagskvöldið 25. sept.
Kárlakór íslendinga í Winnipeg
skorar hér með á alla meðlimi sína,
sem og meðlimi kvennakórsins, að
mæta á fundi í Sambandskirkjunni
á sunnudaginn kemur kl. 3 síðdegis.
Afar mikilsvarðandi mál liggur fyr-
ir fundinum, og þar af leiðandi velt-
ur mikið á að meðlimir flokkanna
mæti allir, og það stundvislega.
Félagsskapur. sá, er Kiwanis Club
nefnist, stofnar til eplasölu (Apple
Day) á laugardaginn kemur þann
30. þ. m. Öllum ágóðanum af fyrir-
tæki þessu, verður varið til líknar-
þarfa.
Á þriðjudagsmorguninn þann 26.
þ. m. lézt á Almenna sjúkrahúsinu
hér í borginni David Ingvar Thor-
leifur Johnson, 20 ára að aldri, eftir
hálfsmánaðarlegu í taugaveiki.
Hann var sonur Margrétar og Sig-
urðar Johnson að Stony Hill, Man.
Auk foreldra sinna lætur þessi frá-
fallni ungi sveinn eftir sig eina syst-
ur og þrjá bræður. Líkið var flutt
til Stony Hill á miðvikudaginn frá
útfararstofu A. S. Bardals.
Mr. S. D. B. Stephenson, kaup-
maður á Ericksdale, Man., kom til
borgarinnar síðastliðinn þriðjudag.
Dr. Tweed verður á Gimli á fimtu-
daginn þann 5. október næstkom-
andi, og verður að hitta á heimili
B. Thordarson.
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega á þessum stöðum í Gimli
pretsakalli næsta sunnudag, þ. 1.
okt., og á þeim tíma dags, er hér
segir: I gamalmennaheimilinu Betel
kl. 9.30 f. h., og í Minerva Hall kl.
3 e. h.—Til þess er mælst að fólk
fjölmenni.—
Til leigu 10 herbergja hús að 724
Beverley St., $30 um mánuðinn.
Rúmgott. Eldhúsvír á miðlofti;
bakstigi úr eldhúsi. Þægilegt fyrir 2
eða 3 f jölskyldur.—S. Sigurjónsson,
738 Banning St.
Mussolini hefir látið byrja á að
grafa upp hið fræga hof í Sýra-
kúsa, sem reist var Appollo til dýrð-
ar. Sýrakúsa var stærsta borg
Hellen, stofnuð 834 árum fyrir
Krist.
Samkoma sú, er fulltrúar Fyrsta
lúterska safnaðar stofnuðu til og
haldin var í samkomusal kirkjunnar,
síðastliðið þriðjudags kvöld, var á-
gætlega sótt, og að öllu leyti hin á-
nægjulegasta.
Tilgangur samkvæmisins var sá,
að bjóða presthjónin, þau Dr. Björn
B. Jónsson og frú hans, velkomin
heim úr íslandsför, sem og að veita
fólki kost á að mætast eftir sumar-
fríið. Þakkaði Dr. Jónson hlýhug
yann í garð þeirra hjóna, er manna-
mót þetta bæri vott um.
Walter J. Lindal, K.C., hefir ver-
ið kosinn forseti spilafélags þess,
er Manitoba Bridge Association
nefnist.
Ring Lardner
eitt nafnkunnasta kýmnisskáld
Bandaríkjanna á hinum siðari árum,
er nýlátinn. Hann var aðeins f jöru-
tíu og átta ára að aldri.
Lofthernaður
í þýskum tímaritum eru nú prent-
uð landabréf, sem jafnframt sýna
hve margar þúsundir flugvéla ná-
grannaþjóðir Þjóðverja eiga, og
með strykum er sýnt hve langt þær
lcomast í einum áfanga, og benda
u öll inn að hjarta Þýskalands.
í Munchen fór nýlega fram æf-
ing um að verjast loftárásum. Og
skömmu seinna fór samkonar æf-
ing fram í Tokio. Á borgina var
“ráðist af óvini,” sem var við suð-
usturströnd Japans. Flugherferðir
voru farnar bæði að degi og nóttu.
Á daginn voru send reykský yfir
borgina til að hylja hana. Á nótt-
unni voru öll ljós slökt. íbúunum
voru fegnar gasgrímur. Sérstakar
varðliðssveitir, hj úkrunarliðssveitir
og slökkviliðssveitir voru æfðar
hver í sínu starfi.
Að nokkru leyti er þetta gert til
:ss að vekja athygli. í Þýskalandi
er það gert til þess að vekja athygli
á því hvað þjóðin er varnarlaus gegn
hinum al-hervæddu þjóðum sem um-
kringja hana og hafa yfir að ráða
hinum hættulegustu vopnum. Það
er enn fremur gert til þess að styðja
kröfur þýsku stjórnarinnar um
jafnrétti í herbúnaði.
I Japan, þar sem hernaður og á-
sælnisandinn ríkir, er þetta gert til
þess að sanna þjóðinni að hún verði
að leggja á sig enn þyngri byrðar
til hernaðarþarfa.
KOL - COKE - VIÐUR
Ef það brennur—böfum við það
Midland Drumheller — Pembina PeeHess
Jasper Hard Coal
CITY COAL COMPANY
OOK. ANNABELLA og SUTHERLAND
Phone 57 341 H. B. IRVING, Manager Phone 57 341
En það er annað eftirtektarvert,
sem kemur til greina um þessar æf-
ingar, og það er að þær þjóðir, sem
hægt er að ráðast á i loftinu, búast
við miskunnarlausum árásum á frið-
sama borgara. Það er ekki aðeins í
Munchen, sem er alveg varnarlaus,
að menn hafa áhyggjur út af þessu,
heldur einnig í Tokio, sem þó er
stranglega varin af herskipum og
stórum loftflota, og er auk þess að-
skilin óvinaþjóð af úthafi, sem er
þúsundir mílna á breidd.
Þetta sýnir að öflugustu hervarn-
ir eru ófullnægjandi gegn flugvéla-
árásum. I sjóorustu, þar sem jafn
mörg herskip eru á hvora hlið, vinn-
ur sigur sá flotinn, sem traustari skip
á. En í lofthernaði er öðru máli að
gegna. Það hefir enga þýðingu þótt
einhver þjóð eigi miklu fleiri hern-
aðarflugvélar en önnur, borgir henn-
ar geta orðið fyrir árásum úr lofti
fyrir því. Lofthernaður verður
kepni um það hvort geti gert öðrum
meira tjón, og þar munu báðir vinna
stórsigra jöfnum höndum. Sigrandi
þjóð og sigruð þjóð munu leggja
eins mikið í auðn hvor fyrir annari
eins og þær geta, og kalla að það sé
gert til að koma á friði.
Eitthvað á þessa leið farast “Man-
chester Guardian” orð nýlega í rit-
stjórnargrein. Er það ekki glæsileg
mynd af “heimsfriðnum,” sem hér
er brugðið upp í fáum dráttum?
Mbl. 5. sept.
Skandinaviski þjóð-
flokkurinn
í enska blaðinu “The Listener”
ritar E. E. Kelett í ritdómi um bók
eftir Charles Marshall “Our North-
ern Ancestors,” á þessa leið: “Einn
sá merkilegasti þjóðflokkur, sem
sem uppi hefir verið, er hinn skandi-
naviski þjóðflokkur, sá þjóðflokkur
sem á rúmri öld stofnaði nýlendur á
íslandi og Grænlandi, fann Ame-
ríku, stofnaði konungsríki í Rúss-
landi, írlandi og Sikiley, og hertoga-
dæmi í Normandi, hjálpaði til að
reka Tyrki úr Konstantínópel, og
fór krossferðir um Miðjarðarhafs-
löndin, svo að sjóræningjar urðu að
hafa sig á brott þaðan.
Á sumrin fóru kapparnir í vík-
ing. Og þeir létu sér ekki nægja
að marka spor í söguna, þeir færðu
hana og i letur. Hin löngu vetrar-
kvöld styttu menn sér stundir við
að rifja upp og segja frá því, er á
dagana hafði drifið á sumrin. Þess-
ar frásagnir urðu síðar að dýrmæt-
um fjársjóði, fornsögunum.
Þessir kappar, eru þó forfeður
vorir. Hversvegna eru svo margir
sem láta sig það engu máli skifta?
Við ættum að vera stoltir af Leifi
heppna, eins og af Drake, af Eddu,
engu síður en Shakespeare, af Njáls-
sögu, engu síður en “Hinni horfnu
Paradís. ’’
Á seinni árum hefir þó áhuginn
fyrir fornsögunum farið vaxandi, og
flestar hafa þær verið þýddar á
ensku og margar lesnar í skólum.”
Að lokum fer Kelett mjög lof-
samlegum orðum um bókina og
væntir hann þess, að sem flestir lesi
hana. Segir hann, að mönnum gef-
ist þarna ágætt tækifri til þess að
kynnast fornsögunum, frá dögum
Ragnars Loðbrókar til enda Víkinga
aldarinnar.
Mbl. 3. sept.
Kaflar úr sögu
Eftir Birkirein.
Framh.
Þuríður, yngsta bóndadóttirin á
bænum varð uppáhald Borghildar.
Hún var aðeins ellefu ára. Hún var
bráðþroska, dugleg og aðlaðandi.
Þær Borghildur fóru eftir hestunum
á laugardaginn á undan fyrirhugaðri
kirkjuferð. Elín hafði beðið hús-
freyjuna á Eyri um söðul og reið-
föt handa Borghildi með hestinum,
og húsfreyjan varð við þeirri bón og
setti ekkert fyrir. Drengur átti að
sækja hestana á sunnudagsmorgun-
inn, svo Borghildur hafði engar á-
hyggjur út af hestláninu eða öðru,
er hana vanhagaði til ferðarinnar,
nema því að hún gat ekki borgað
sextíu auraná að fullú.
Það var alt af að gægjast upp í
huga hennar einhver sársauki út af
tíu aurunum sem eftir voru. Það
var eitthvað svo hræðilega aumingja-
legt að geta ekki borgað þessa tíu
aura. Það var ennþá dýpri sárs-
auki heldur en yfir því, að fötin
hennar, sparifötin, voru alls ekki
eins falleg og hún óskaði. Svo van-
hagaði hana um nokkuð af fatnaði,
sem ungar stúlkur telja nauðsyn-
legt og Borghildi fanst erfitt að
vera án. En nú var hún langt frá
kaupstað. Þangað var ekki farið
frá Nesi nema tvisvar á ári, um það
leyti sem Borghildur og annað
sumar-vinnufólk kom í þá vinnu og
fór úr henni.
Og þó aukaferð hefði fallið, þá
var Borghildur fémunalaus til þess
að eignast þessa hluti, því eins og
hún sagði vinstúlku sinni í bréfinu,
fékk hún ekkert af sumarkaupi sinu,
en árskaupið var henni goldið
heimafyrir.
Alt þetta vissi Borghildur vel, en
samt var fataleysið henni hugraun,
en skorturinn á tíeyringnum til hest-
gjaldsins var henni þó enn meiri
raun.
Þær ungu stúlkurnar tifuðu fram
dalinn, leiddust og töluðu. Þuriður
hélt á uppgerðum snærisspotta í
hendinni.
“Og þú þorir að taka hestana
svona úti á víðavangi,” sagði Borg-
hildur og leit spyrjandi á Þuríði.
“Já, því ekki það?”
Það fór geigur um Borghildi.
Brúnka, Kúfa, Gils-Bleik, Tyrfings-
Bleikur og Ara-Gráni stigu fram í
huga hennar, frá barnsárunum, bít-
andi og berjandi.
“Eru þeir ekki slægir, þessir hest-
ar?” spurði hún Þuríði og horfði á
stóðið í dalnum.
“Sumir,” sagði Þuríður, og virtist
kæra sig kollótta.
Pianokensla
Mrs. Ragnar Gíslason (átiur Blma
Árnason, er nú byrjuð á piano-
kenslu að heimili sínu, 763 Mc-
Gee Street hér I borg—og æskir
íslenzkra viðskifta.
“Og bíta?” inti Borghildur.
“Sumir gera það nú líka,” svaraði
Þuríður, jafn stóisk og áður.
Borghildur leit aðdáunar augum
á ellefu ára telpuna, með tindrandi,
dökkbrún augu og hrafnsvart, þykt
hár, og rjótt, hraustlegt og broshýrt
andlit, sem lífsgleðin og öryggið
skein út úr.
“Ertu hrædd við hesta?” spurði
hún Borghildi.
“Mér er ekkert um að ganga í
stóð og taka hesta þar,” ansaði
Borghildur brosandi.
“Þú stóðst þig svo vel í æfintýr-
inu, sem þú komst í á Öldu hans
Árna í vor,” sagði Þuríður.
“Það var alt annað,” anzaði
Borghildur.
“Eg get riðið söðluðum hesti full-
vel, býst eg við.”
Framh.
Albert Stephensen
" A.T.C.M.—L.A.B. (Pract.)
Piano-kennarl
Nemandi Eva Clare
Heimili—417 FERRY RD.
Sfmi 62 337
CARL THORLAKSON
úrsmiður
Peningar fyrir gamla gull- og
silfurmuni, sendir með pðsti um
hæl.
699 Sargent Ave., Winnipeg
Heimasími 24 141
Steini Vigfússon
STE. 14 ALLOWAT COURT
Annast um alt, er að aðgerðum
á Radios lttur. Airials komið upp
fyrir $2.60. Vandað verk. Sann-
gjant verð. Sími 39 526.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um aJt, lem a8
flutningum lýtur, sm&um eða atðr- I
um. Hvergi sanngjarnara verð.
Heimili: 762 VICTOR STREET I
Sími 22 780
Distinguished Citizens
Judgea, Former Mayora, Noted Educationiata, Editora, Leading
Lawyera, Doctors, and many l'rominent Men o1 Affaira—send their
Sons and Daughters to the
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
When men and women of keen discernment and sound judgement,
after fuli and painstaking enquiry and investigation, select the
Dominion Business College as the schooi in which their own sons
and daughters are to receive their training for a business career,
it can be taken for granted that they considered the many ad-
vantages offered by the Dominion were too important to be over-
looked.
The DOMINION BUSINBSS COLLEGE
today offers you the best business courses money can buy, and that
at a cost that brings it easily within your reach.
An ordinary business course no longer fills one’s requirements. It
is the extra measure of skill and knowledge conferred by a Do-
minion Training that singles one out for promotion in any modern
business office.
It has always been a good investment to secure a Dominion Train-
ing—but today, more than ever, it is important that you secure
the best obtainable in order to compete worthily in the years to
come.
Onr Schools arc Located
1. ON THE MAIjIv.
2. ST. JAMES—Corner
College and Portage.
3. ST. JOHNS—1308 Main St.
4. ELMWOOD—Comer
Kelvin and Mclntosh.
JOIN NOW
Day and Evening Classes
You May Enroll at Any One of Our Four Schools With Perfect
Confidence.