Lögberg - 26.10.1933, Blaðsíða 4

Lögberg - 26.10.1933, Blaðsíða 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN .26. OKTÓBER, 1933. BJs. 4 íogberg OeflB út hvern fimtudag aí THB OOLVMBIA PREBB LIMITED 69 5 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba. Utanáskrift ritstjórans: BDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVK. WINNIPEG, MAN. Terrð IS.00 tt m áriS—Borgitt fvrirfram rhe "Lögberg" is printed and published by The Columbia jPress, Lámited, 695 Sargent Avs., Winnipeg. Manttoba. PHONE8 80 327—80 328 I Ásbyrgi Sæll er sá er situr í skjóli hins hæsta, sá er gisfir t skugga hvns Almáttka, sá er segir við Drottin: Hæli mitt og háborg, Guð minn, er eg trúi á! Sálm. 91, 1-2. Trúarvitund manns og trúarsæla fá ef til vill ekki sannari Ibúning í nokkuru fremur en í táknmyndum skjóls og skýlis. Þær mynd- ir minna á vernd þá og varSveizlu, þann óhultleika, sem trúin á almáttugan Gruð veitir manni. Svo sem öllum er kunnugt notaði Kristur öllum lærimeisturum fremur líkingar úr nátt- úrunni og hversdagslegu lífi til þess að gera kenningu sína ljósa. Þeim, sem í hans nafni kenna enn í dag, ætti því ekki einungis að vera heimilt, heldur og skyldugt, að nota þá aðferÖ, svo sem þeir hafa þekkingu til, með aðstoð þess heilaga anda, sem öllum þeim er fyrirheitinn, sem þjóna vilja Jesú Kristi og elska sannleikann eins og hann er frá Kristi kominn. Hafi maður opin augu, þá eru ótal myndir í lífinu og nátúrunni, sem túlka fyrir manni Guð og eiginleika hans; ekki sízt þá mynd hans og eiginleika, sem lýst er í skáldlegu máli þess fagra texta, sem vér böfum fyrir oss nú, myndina af skjólinu og skugganum, þ. e. af vernd og varðveizlu, hins eilífa Guðs. Ein sú mynd skjóls og skugga og ímynd guðlegrar verndar og varðveizlu, bar fyrir augu mín í sumar heima á ættjörð vorri. Að sumu leyti fanst mér það einkennilegasti og merkilegasti staðurinn, sem eg sá á Islandi. Það var Ásbyrgi í Kelduhverfi í Norður- Þingeyjarsýslu. Eg hafði hugsað gott til að koma á þann þjóðkunna stað. Þó reyndist liann mér enn tilkomumeiri, en eg hafði gert mér í hugarlund, enda var veður gott þann dag, en náttúrudýrð Islands á alt sitt jafnan undir veðrinu. Upp frá hafinu í Axarfirði liggur lítil slétta upp að hárri hæð. Þar inn í hæðina gengur byrgið. Það er opið að framan á tvo vegu beint af jafnsléttunni, en milli opanna tveggja er hamar, breiður og í lagi sem tunga, og gengur nær alla leið inn í byrgið, og skerst þar nokkuð í odda inst. Er því ekki unt að komast í byrgiÖ nema í opunum beggja vegna þessarar hamar-tungu. Byrgið sjálft er afarstórt, svo það er um þriggja klukku- stunda ganga með fram veggjum þess að inn- an, en byrgið er í lagi sem skeifa. Veggirnir eru þráðbeinir upp eins og húsveggir og afar háir. Fróður maður á Islandi sagði mér, að eftir mælingu Þorvalds Thoroddsens væru veggirnir sex hundruð feta háir, en veggir tungunnar, eða eyjarinnar, sem liggur inn í byrgiÖ, 450 feta háir. Svo er lögun byrgisins reglubundin, að ætla mætti að það væri gert eftir nákvæmri teikningu. Jarðarflöturinn inni í byrginu er grasivaxinn og með blettum vaxinn lágum en þykkum skógi. Inst í byrg- inu er lítil vatnstjöm. Eitt af því, sem mað- ur undrast yfir í Ásbyrgi, er bergmáliÖ. Við skemtum okkur við að tala og kalla og láta hamrana bera hljóðið um alt byrgið og skila okkur því svo aftur að augnabliki liðnu með margföldum krafti. Það var áreiðanlega eitthvað í því byrgi, sem heyrði alt, sem við hugsuðum og sögðum, að mér fanst. Ekki síður fanst manni mikið til þess koma, hvílíkt skjói var í byrginu, og hvílík vemd fyrir öll- um voða. Þangað gátu engir stormar komist, hve hvast sem úti var; og manni datt í hug hvílíkt vígi þetta byrgi gæti veriÖ. Þúsundir manna gætu hafst við í byrginu og fáeinir menn gætu varið vígið í opur.um að framan beggja megin tungunnar. Það er ekki að furða þó skáldleg þjóðtrú Islendinga hafi g>ert sér mikið efni úr þessu landsins einu mesta furðuverki. Frá aldaöðli hefir þjóðin séð eitthvað guðdómlegt við Ás- byrgi. Fyrir því varð þá til sú úrlausn á myndun byrgisins þegar í forneskju, að hinn æðsti guð, Óðinn, hefði farið loftförum yfir landið, ríðandi hestinum Sleipni, og er hann bar þar yfir hæðina, þá hafi Sleipnir spyrnt einum fæti í byrgið og sé Ásbyrgi hófspor Sleipnis, enda verður byrginu ekki við annað betur líkt en hestshóf, að því er lögun þess snertir, en svo djúpt spor sézt ekki nema þar sem guðdómurinn sjálfur hefir farið um. Þessa snjöllu þjóðsögn tekur Einar skáld Benediktsson upp í sitt tröllaukna, ágæta kvæði um Ásbýrgi. Margt fleira hafa skáld og listamenn les- ið út úr Ásbyrgi. Enda hefir einn hinna yngstu listmálara íslenzkra, ásamt konu sinni danskri, sem og er listmálari, nú gert sér bæ rétt fyrir utan mynnið á Ásbyrgi. Þar hafa þau verkstöð sína, með Ásbyrgi fyrir augum hvern sólskinsdag, og mála þar myndir sínar af handaverkum Guðs eins og þau sýna sig víða í íslenzkri náttúru. Þá má heldur ekki gleyma “Bergkonunni í Ásbyrgi,” sem Knútur Arngrímsson hefir nýlega gert ódauðlega með listfengri ritgerð um hana. Það er upp á hamarsbrún á einum stað, að í berginu myndast líkneski, sem af konu, er krýpur á bæn, fórnar höndum upp til himjins og lofar Drottiin. Segir höfundur þeirrar fögru ritsmíðar, að þar hafi hún kropið frá aldaöðli og beðið fyrir börnum landsins, og þó allar tungur þagni og í engri kirkju verði lofsungið Guði, þá muni berg- konan í Ásbyrgi halda áfram meðan heimur stendur, að lofa Drottin skapara og föður alls sem er. Eg hefi þegar vikið aÖ því, að þetta hið einkennilega byrgi, sem náttúran hefir tilbú- ið á norðanverðu Islandi, geti verið manni ímynd trúarinnar á almáttugan Guð. Trúin er ef til vill um fram alt byrgi, andlegt skjól og skýli. Trúin er meðvitund um það, að til séu háir og óvinnanlegir verndarmúrar um- hverfis mann á alla vegu; að guðdómlegur máttur og guðdómleg náð byrgi mann alt um kring. Við sjáum ekki þessa bergveggi guð- legrar verndar með augum líkamaas, því köll- um við það trú, en ekki sjón. Trúin er þó sjón sálarinnar, augu andans. Því miður er sjón andans, trúin, döpur mjög hjá mörgum, svo þeir sjá ekki vemdarmúra þá, er Drottinn hefir gera látið kring um alla menn. Um það má finna dæmi í GyÖinga-sögunni, í einu rit- inu í gamla testamentinu, (II. Kon. 6). Það var á dögum spámannsins Elísa. Þá herjuðu Sýrlendingar á Israelsmenn. Fyrirsátr Sýr- lendinga fór forgörðum fyrir þá sök, að guðs- maÖurinn Elíza sá alla ráðagerð Sýrlendinga og gerði ísraels konungi aÖvart, svo hann fékk jafnan um flúið fyrirsát óvinanna. AS þessu komst Sýrlands konungur og sendi her- sveit mikla til þorpsins, þar sem Elíza hafðist við, til þess að handtaka hann og ráða af dögum. Hafði herlnn slegið hring um þorp- ið, með hestum og vögnum, er Elíza kom út um morguninn. Ekki var annað manna með Elíza, en þjónustusveinn hans einn saman. Varð sveinninn afar-hræddur, er hann sá alt það óvinalið og sagði við spámanninn: “Ó, herra minn! hvað eigum við nú til bragðs að taka?” Elíza svaraði rólegur: “Óttast þú ekki, því fleiri eru þeir, sem með okkur eru, en þeir, sem með þeim eru.” Og Elíza gerði bæn sína til Drottins og bað: “Drottinn, opna þú augu sveinsins.” Sá sveinninn þá, að fjallið var alþakið hestum og eldlegum vögnum hringinn í kring um Elíza.—Enda fengu ekki óvinirnir sótt hann. Þetta er rétt og sönn dæmisaga um ósýni- lega varðveizlu Guðs, þó vér, sjóndaprir, ekki ætíð sjáum hana. Munum vér ekki margir vera í sporum hins sjóndapra sveins, og öllum vera þess þörf, að helgir andar og spámenn Guðs biðji fyrir oss, að augu vor opnist og vér sjáum þær varnir, sem Guð hefir hlaðið hringinn í kring um oss? Þegar eg var staddur í Ásbyrgi fór sú fjarstæða um huga minn, að eg óskaði, að allir Islendingar væri komnir til mín þar í byrgiÖ og eg mætti blessa þar yfir þá ofan af hamrinum. E|n þetta var hvorki villa né fjar- stæða. Guð hefir t. d. safnað oss hér í miklu veglegra og traustara byrgi en- Ásbyrgi- Kirkjan okkar er ennþá dýrlegra byrgi. Hún er ekki hóffar hestsins Sleipnis, heldur handa- verk Jesú Krists. Kirkjan okkar er byrgi trúarinnar á Drottins náð. Það víkur nú mörgu við á þá leið, að fáir streystast til að vera úti um þessar mundir án skjóls eða skýlis. Það er farið að verða næðingasamt tíðarfarið um þessar mundir. Vér verðum að leita skjóls í stormum, sem nú ganga. Guð hefir gefið oss skjól, byrgi trú- arinnar, til að hafast við í, og við ættum nú að geta metið byrgið og verið þakklát fyrir það. Eg mintist á, hve vel heyrðist í Asbyrgi og bergmálið væri dásamlegt þar. Þó heyrist miklu betur hér í byrgi trúarinnar og hér fær andvarp sérhvers hjarta bergmál. Guð heyrir alt sem sagt er og Guð bænheyrir oss í byrg- inu. Það ætti sannarlega að vera þá um fram alt, þegar vinir Jesú safnast saman í byrgi heilagrar kirkju hans, að þau orð um Guð himnanna reynast sönn: “Hann heyrir stormsins hörpuslátt, hann heyrir barnsins andardrátt, hann heyrir sínum himni frá hvert hjartaslag þitt jörðu á.” Er sá nokkur hlutur, sem vér þörfnumst jafn mjög, nú þegar haustar, á margan hátt haustar, eins og að flytja oss í anda inn í byrgi— inn í byrgi lifandi trúar á náð og aðstoð hins eilifa Guðs? Trúin er Ásbyrgi Guðs. Drottinn vor Jesús Kristúr flutti oftar en einu sinni ræðu um byrgið. Einu sinni mintist hann sérstaklega á byrgið sem sauðabyrgi. Hann hugsaði sér alla 'njörð sína saman- komna í eitt og sama skjól, eitt og sama byrgi, þar sem ekkert grandaði henni að eilífu. Og byrgið það var “Faðir vor, þú sem ert á himnum, helgist þitt nafn, tilkomi þitt ríki, verði þinn vilji.” Hann gat þess um leið, að dyrnar að þessu örugga og unaðsríka byrgi trúarinnar væri sjálfur hann. Hann hefir gert anda sinn að opnum dyrum að byrgi hins eilífa hjálpræðis. Einungis í Jesú nafni fáum vér gengið inn í byrgið. Guð hefir af náð sinni, þrátt fyr- ir syndir okkar, safnað okkur í byrgi kirkju sinnar. Vort byrgi er ekki eina byrgið. Kristur segir: “Eg á aðra sauði, sem ekki eru af þessu sauðabyrgi, þá ber mér og að leiða.” Og um síðir mun (á himnum) verða ein hjörð og einn hirðir. Það er þakkarefni mikið, að vér svo mörg megum hafast við í þessu byrgi hvert með öðru; í sameigin- legri trú njóta hér verndar og bless- unar Drottins og hvert meS öðru í lífi og dauða huggast og styrkjast af orði Guðs og sakramentum. í þess- ari kirkju skulum vér láta bænir vorar berast út um byrgið og berg- mála upp í himin Guðs. Sérstak- lega ættum vér öllað kosta kapps um það, meðan vér dveljum hér í jarð- nesku sauðabyrgi guðlegrar náðar- innar, að við verðum aldrei hvert öðru til ama eða óyndis, heldur leit- umst við í öllu að aðstoða hvert ann- að og vera hvert öðru til gleði, eins 'Og við erum öll skirð sömu skírn til lifandi vonar fyrir upprisu Krists frá dauðum, og til trúar á einn Guð og föður, sem er yfir öllu, um alt, og í öllum. Vér skulum þá öll á ný halda, í sönnum anda Drottins Jesú, heim- komu-hátíð í voru kæra safnaðar- byrgi, koma með nýjum eSa aukn- um fögnuði, mitt 1 erfiðleikum vor- um og stríði, inn í byrgi barnslegrar trúar á vernd Guðs og varðveizlu. Vitandi það, að Drottinn er hæli vort og háborg, skulum vér hvila hér sæl í skjóli hins hæsta og skugga hins almáttka, og í byrginu því bera fram allar vorar óskir og bænir eins og barn við föðurkné. Það heyrist svo vel í byrginu. “Bjargið alda, borgin mín, byrg þú mig í skjóli þín.” —B. B. J. Systkina-myndir í blaðinu “Kveldroði” sem gefið hefir verið út í stúkunni “Skuld” hafa birst tíu (io) ritgerðir með þessafi yfirskrift. Er þaS lýsing á nokkrum stúkusystkinum. Hér birtist dálítill partur úr einni rit- gerðinni: þeirri sem lýsir Gunnlaugi Jóhannssyni. Bróðir Gunnlaugur Jóhannsson Þegar eg kom frá íslandi—siðan eru 34 ár,—þá hélt eg fyrst til á Ross Ave., hjá Erlendi Gíslasyni og konu hans. Fyrsta morguninn, sem eg var þar, sá eg hvar maður kom á hjóli að dyrunum. Hann steig nið- ur af hjólinu og reisti það upp við girðinguna; síðan gekk hann rak- leiðis inn í hús og beint inn í eldhús- ið til húsfreyjunnar: “Komdu blessuð, góða!” sagði hann: “Hvað get eg gert fyrir þig i morgun?” Og um leiö og hann sagði þetta tók hann bók upp úr vasa sínum og ritblý, sem hann geymdi á bak við eyrað: “Svo þij geymir þarna blýantinn !” sagði Erlendur; hann var líka í eld- húsinu. “Já, eg hefi venjuíega eitthvað á bak við eyrað þegar eg kem að finna húsmóðurina hérna!” svaraði maðurinn: “Jæja, hvað vantar þig nú í morgun, heillin. góð?” Svo hélt hann áfram og svaraði sjálfum sér með því að geta til: “Þig vant- ar sápu, brauð, sykur, kaffi, grjón?” Eg sat á stól í næsta herbergi, dyrnar voru opnar og eg horfði og hlustaði á manninn. Mér fanst hann eitthvað einkennilegur: óvenjulega mikið sólskin í andlitinu; einkenni- leg gletni í augunum. Svo gekk eg inn í eldhúsið og liús- móðirin kynti mig þessum manni. Hann hét Gunnlaugur Jóhannsson og vann við það að fara hús úr húsi til þess að finna allar húsmæður á hverjum degi og fá hjá þeim pant- anir fyrir matvælum og öðrum nauð- synjum. “Þú ert nýkominn frá íslandi, góði?” sagði maðurinn við mig.— Eg játti því. “Eg heyri sagt að þú hafir verið í Goodtemplarafélaginu heima. Við Iiöfum Goomtemplarafélagsskap hérna. Það er fundur á morgun, eg skal bera þig upp.” “Hvað heitir stúkan hérna?” spurði eg. “Hún heitir Skuld. Eg skal bera þig upp; þú heldur til hérna, ekki satt? Eg skal sækja þig og vísa þér leiðina. Þú ert ókunnugur. Það er nú reyndar önnur stúka hérna líka, hún heitir Hekla, en mín stúka heitir Skuld, og eg vona að þú kom- ir i hana.” “Getur vel skeð,” svaraði eg. Svo kvaddi maðurinn. Hann tók svo þétt í hendina á mér að hann dauðmeiddi mig og horfði svo fast framan i mig, að eg varð feiminn. “Vertu blessaður á meðan,” sagði hann. Eg kem og tek þig með mér annað kveld; það er afgert!”—Og svo fór hann út, snaraði sér upp á hjólhestinn og þaut af stað. Hann var skrítinn, þessi maður: lágur og gildur, hálsstuttur og herða- mikill, gullhærður og dálítið gys- hærður með gult yfirvararskegg all- mikið. Hörundið var hreint og lit- fagurt, eins og á ungri stúlku; enn- ið rnikiö og kollvikin stór, tennurn- ar hvítar eins og íílabein, nefið hátt og fremur stórt; augun blágrá og gletnisleg. Eg virti manninn fyrir mér í hug- anum eftir að hann var farinn. Mér fanst það alveg áreiðanlegt að hann hlyti að geta dáleitt konurnar til þess að panta hjá sér vörur, hvort sem þær þyrftu þeirra eða ekki, tvo tungumjúkur var hann og talliðug- ur. Eg mintist þess að eg hafði ein- hversstaðar lesið það aö engill kom til jarðarinnar um hávetur og þíddi alt með brosi hvar sem hann fór. Þannig fanst mér þessi maður vera. Og Gunnlaugur kom næsta kvöld eins og hann hafði sagt og sótti mig. Eg gekk inn í stúkuna og hefi verið þar síðan. Þrjátíu og f jögur ár! Það er langur tími. Á þeim tíma hefir margt skeð og margt breyzt. Gleði- gyðjan hefir stundum leitt inn í stúkuna heila hópa nýrra systkina, sem miklum fögnuði hafa valdið. Og áreiöanlega hefir enginn borið upp fleiri en bróðir Jóhannsson. Stundum hefir, á þessum tíma, bróð- ir eða systir fallið í valinn, eftir langa og dygga starfstíð. Stund- um hafa menn brugðist heitum sín- um og gengið í her óvinanna. Stund- um hefir í félaginu ríkt friður og eining; stundum styrjöld og stríð. En eitt er það, sem aldrei hefir breyzt: það er stefna, starf og á- hugi Gunnlaugs Jóhannssonar í stúkunni Skuld. Þar er ekkert em- bætti til, sem hann hefir ekki skip- að. Þar hefir aldrei verið mál til umræðu, sem hann hefir ekki tekið þátt í. Gunnlaugur Jóhannsson er áreiö- anlega einkennilegasti maður, sem íslendingar eiga hér í álfu að ýmsu leyti. Þegar maður horfir á hann áður en maður þekkir hann, hlýtur manni að detta í hug óráðið veður. Ómöuglegt að láta sér detta í hug hvernig hann sé í raun og veru. Andlega birtan, sem breiðist yfir ásjónu hans. Þessi einkar-vingjarn- legi málrómur minnir mann á verm- andi vor og sólbjart sumar ; en at- rennurnar þegar hann hamast bind- indismálinu til stuðnings bregður upp mynd hins norræna Þórs í ham- förum. Þetta kont bezt fram þegar byrjað var á byggingu Goodtempl- arahússins. Þá fór hann margar | ferðir á hjólinu sínu til fjársöfn- unar. Þegar hann kom einhversstaðar í þeim erindum að fá pantanir fyrir vörur, endaði hann æfinlega með því að draga skjal upp úr vasa sín- umogsegja: “Hefir þú séð þetta? Kannske einhver hafi sýnt þér það? ef ekki þá væri eins gott fyrir þig að setja nafnið þitt hérna—þó það væri ekki nema fyrir $2 eða $3, þá er hjálp að því. Kornið fyllir mælir- inn og eg sé marga.” Og það var ekki ofsögum sagt; hann sá marga og gleymdi aldrei að sýna skjalið. Hann safnaði afar- miklu fé fyrir húsbygginguna. Starf Gunnlaugs í Goodtemplara- félaginu hefir verið stöðugt og mik- ið; hann hefir helgað því mikla krafta; stúkan Skuld á honum mik. ið að þakka. En svo er nú líka þess að gæta að hann hefir fengið starfið býsna vel borgað. Eins og þið vitið er hann kvæntur. Hér í fyrri daga þegar eg þekti hann var hann konu- laus, en Skuld launaði honum starf- iö og staðfestuna með því að gefa honum dóttur sína—og ekki þá lök- ustu.—Guðrún Jóhannsson er ein hinna allra trúustu meðal systranna. Gunnlaugur fór ekki að eins og margir aðrir, sem staðf esta ráð sitt; sumir þeirra sýndust hafa komið þangað aðeins til þess að fá sér konuefni, farið svo burt með þær, og komið aldrei aftur—þau hjónin sitja svo að segja hvern einasta fund. Hefði Gunnlaugur Jóhannsson aldrei veriö í félaginu hefði saga þess verið alt önnur en hún er; þar hefðu þá verið færri fjörkippirnir. Þessar stökur voru einu sinni gerð- ar um hann: lnn í sál og anda manns eins og neistar flóu, ótal fyndin orðin hans, allir skellihlógu. Inn í salinn birtu bar —býsna glettinn stundum; ef hann kæmi aldrei þar yrði dauft á fundum. Sig. Júl. Jóhannesson. Bókaútgáfa Eevin og Munksgaards I ár gefur E. Munksgaard í Kaup- mannahöfn út bækur á eigi færri en tíu tungumálum: dönsku, íslenzku, noviölsku, ensku, frönsku, þýsku, latinu, fornfrönsku, grisku og he- bresku. Af íslenzku bókunum má nefna Ijósmyndaútgáfu af Guðspjallabók Ólafs biskups Hjaltasonar. Sér dr. Sigurður prófessor Nordal um út- gáfuna, en dr. Halldór Hermanns- son ritar formála að henni. Þá kem- ur ljósmyndaútgáfa af handriti Möðruvallabókar og ritar dr. Einar Ólafur Sveinsson formála fyrir henni á ensku. Þá er ný íslenzk bókmentasaga eftir dr. Jón prófessor Helgason. Og svo kemur útgáfa af Flora of Iceland and the Færoes, sem prófessor C. E. H. Ostenfeld hafði ritað. Sér magister Johs. Gröntved um þá útgáfu. Ennfrem- ur gefur Munksgaard út nokkur hefti með myndum af íslenzkum út- saum ( kross-saum ). 30.000 Gyðingar hafa yfirgcfið Þýskaland. Á Gyðingafundi þeim, er hald- inn var í Prag, kom það í Jjós, að um 30,000 Gyðingar heföu farið frá Þýskalandi. Af þeim hafa 2,500 flúið til Belgíu, 700—800 til Dan- merkur, 2,500 til Englands, 5,000 til Frakklands, 3,000 til Hollands, 100 til Italíu, 5,000 til Luxemburg, 750 til Austurríkis, 4,000 til Pól- lands, 1,000 til Tjekkóslóvakíu. Drengur í Stokkhólmi hefir búið til fiðlu úr eldspýtum, sem hann límdi saman. Hann notaði 3,966 eldspýtur í fiðluna og var hálfan annan mánuð að búa hana til. Fiðl- an kvað hafa hreinan og fallegan tón.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.