Lögberg


Lögberg - 26.10.1933, Qupperneq 8

Lögberg - 26.10.1933, Qupperneq 8
Bls. 8 LOGBERjG, FIMTUDAGINN 26. OKTÓBER, 1933. Ur bœnum og grendinni G. T. sjiil og dans á hverjum þriÖju- og föstudegi í I.O.G.T. húsinu, Saigent Ave. Byrjar stund- víslega kl. 8.30 að kvöldinu. $20.00 og $23.00 i verÖlaun. Gowler’s Or- chestra. Séra Jóhann Bjarnason býst við að messa i Piney, sunnudaginn þ. 5. nóv., kí 2 e. h. Fólk þar í bygð er beðið að láta fregn þessa berast um bygðina og að fjölmenna við messuna. Messur í Gimli prestakalli, næsta sunnudag, þ. 29. október, eru fyrir- hugaðar þannig, að morgunmessa , verður í gamalmennaheimilinu Betel kl. 9.30 f. h., síðdegismessa í kirkju Árnessafnaðar kl. 2 e. h., og kvöld- messa í kirkju Gimlihafnaðar kl. 7. Um þetta hefir áður verið getið. Fólk er beðið að veita þessu athygli og að fjölmenna við messurnar. — Það borgar sig fyrir ykkur að finna Halldór Svvan á vinnustofu sinni áður en þið setjið ytri glugg- ana á hús ykkar. Heklufundur í kvöld, fimtudag. Gefin saman í hjónaband, af sr. Sigurði Ólafssyni í Árborg, Man., þann 18. þ. m., Einar B. Einarsson, frá Selkirk, Man., og Ingibjörg Júlíana Sigurdur, frá Winnipeg. Brúðurin er dóttir Mr. og Mrs. Thorsteinn J. Sigurdur í Höfn, við Camp Morton, Man., en brúðgum- inn er sonur Báröar Einarssonar, er fyr bjó í Árnes-bygð norðan- verðri, eii'nú er búsettur í Selkirk, Man., og Guðrúnar Þorleifsdóttur, eiginkonu hans, sem nú er löngu látin. Framtíðarheimili ungu hjón- anna verður við Camp Morton, Man. Mr. Fred Friðgeirsson frá Los Angeles, Cal., var staddur í borg- inni í vikunni sem leið. Er hann sonur Mr. og Mrs. Ásgeir FriS- geirsson, er alllengi hafa verið bú- sett þar syðra. Islendingar í Norður-Dakota eru beðnir að muna eftir samsöng Karla- kórs íslendinga í Winnipeg, undir stjórn Brynjólfs Þorlákssonar að Mountain, N. Dak., sunnudaginn 29 okt., næstkomandi, kl. 3 e. h. Á þessari samkomu gefst Norður- Dakota búum tækifæri að kveðja hinn ágæta söngstjóra Karlakórsins, Brynjólf Þorláksson, áður en hann leggur á stað til Islands upp úr næstu mánaðarmótum. Á samkomu þessari skemtir einn- ig P. S. Pálsson með gamanvísum. Til almennings Eins og áður var auglýst, heldur kvenfél. Fyrsta lút. safnaðar sam- komu í dag, fimtudaginn 26. þ. m. í fundarsal kirkjunnar til arðs fyrir söfnuðinn. Félagið hefir þar margt ágæti til sölu, svo íem kaffi og heimatilbúinn mat, rúllupylsu, lifr- arpylsu og alls konar kökur og brauð, sætt og ósætt. Allskonar sæt- indi (candy) fyrir unglingana. Einn- j ig verða þar ýmsir munir seldir við J mjög vægu verði. I mörg undanfar- | in ár hefir þetta félag haft um þetta leyti á haustin “Bazaar” og hefir fólk alment hlakkað til þeirrar stundar. Það er æfinlega ánægja að koma á slíka staði, því þar á maður Guðsþjónusta boðast í kirkju Konkordíu safnaðar sunnudaginn þ. 5. nóvember á vanalegum tíma dags. víst að hitta kunningja sína. Þessi samkoma verður nú haldin í stað- inn fyrir hinn árlega haust “Bazaar” og verður í líku formi. Það verður reynt að láta fólk, sem kemur, ekki verða fyrir vonbrigðum. Skemtanir af ýmsu tægi fara þar fram, eftir kl. 4 seinni part dagsins, og eftir kl. 9 að kveldinu. Byrjað verður að taka á móti gestum kl. 3 eftir há- degi og kl. 8 að kveldinu. Komið allir og fáið kaffi og hlýtt handtak og skemtið ykkur. Dr. A. V. Johnson verður stadd- ur í Riverton á þriðjudaginn þann 31- >• m. Notið Swan súgræmur. Skák og Bridge Þriðjudagskvöldið þann 17. þessa mánaðar var ánægjulega fjölment i Jóns Bjarnasonar skóla. Yfir fjöru- tíu taflmenn voru mættir þar til að skemta sér við skák. Áður en sezt var niður að tefla, voru skákþrautir settar upp fyrir skákmennina að glíma við og var það góð tilbreytni og ágæt skemtun. Skólinn verður opinn til skák-iðkana á hverju þriðjudagskvöldi í allan vetur, og þeir, sem 'hafa ánægju af skák og vilja verja tímanum vel, ættu ekki að gleyma þessu kvöldi. Allir vel- komnir, hvort sem þeir kunna mik- ið eða lítið. Á fimtudagskvöldum verður spilað “contract bridge.” Gleymið ekki! Komið og skemtið ykkur við “bridge” og skák; þeirri stund er vel varið. Mr. og Mrs. J. J. Bíldfell, Mrs. J. McRae og sonur hennar, lögðu af stað suður til Detroit síðastliðinn mánudag, og dvelja þar vetrarlangt. Yngri deild kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar efnir til spila- kvelds, Bridge, í Goodtemplarahús- inu aðra vikuna í nóvembermánuði næstkomandi. Nánar auglýst í næsta blaði. -------- Mrs. C. O. L. Chiswell frá Gimli, var stödd í borginni í vikunni sem leið. ------- Síðastliðinn fimtudag kom Mr. A. S. Bardal útfararstjóri heim úr Norðurálfuför. Sat hann hástúku- þing Goodtemplara, er háð var í Hollandi. Þaðan fór hann til Is- lands og dvaldi heima um hríð, fór í fjallgöngur í sínu forna bygðar- lagi og heimsótti fjölda vina. Mr. Bardal lét hið bezta af förinni. Dr. Tweed verður í Árborg á fimtudaginn þann 2. nóvember næstkomandi, en á Gimli þann 3. Mrs. Ása Kristjánson frá Wyn- yard, Sask., var stödd í borginni fyrri part yfirstandandi viku. Kom hún sunnan frá Chicago, þar sem hún hafði dvalið um hríð hjá syni sínum. Dr. B. J. Brandson, kom heim sunnan frá Chicago síðari part vik- unnar sem leið, ásamt frú sinni. Hafði Dr. Brandson setið fjölment læknaþing, er háð var þar í borg- inni. Erindi það, “íslenzkt þjóðlíf— eins og það kom mér fyrir sjónir,” er Dr. Björn B. Jónsson flutti í Fyrstu lútersku kirkju síðastliðið þriðjudagskveld var snildarlega samið og þrungið af margskonar fróðleik. Var þvi skift í fjóra kafla: Hinn fyrsti um íslenzkt stjórnarfar, annar um f járhag þjóð- arinnar, þriðji um menning hennar og sá fjórði um andlegt líf hennar. Vel bar Dr. Björn þjóðinni söguna, án þess þó að draga f jöður yfir það, er honum þótti ábótavant. Væntir Lögberg þess að geta birt erindi þetta við fyrstu hentugleika. Með söng og hljóðfæraslætti skemtu þeir Mr. Paul Bardal og Mr. Frank Thorolfson. Mr. Fred Bjarnason þakkaði Dr. Birni fyrir hönd karlaklúbbs safnaðarins þetta ágæta erindi. ------ Gjafir til Betel Gudmund S. Peterson, Minne- ota, Minn...................$5-°° Mrs. Gus. Anderson, Pikes Peak.................. 3.00 Innilega þakkað, /. Jóhannesson, féh. 675 McDermot Ave., Wpg. Fimtudaginn þ. 19. þ. m. lést að heimili sonar síns, séra S. S. Christo- pherssonar, konan Helga J. Christo- phersson. Likið verður flutt til Argylebygðar til greftrunar. Sparið peninga með því að nota Lignite Coal Dominion Lump ...$6.25 Dominion Cobble..$6.25 McCurdy Supply Company Limited 49 NOTRE DAME E. Phones: 94 309—94 300 Leikflokkur, er samanstendur af fólki úr Framnesbygð, hefir nýlega leikið þar “Dóttir Fangans” við góð- an orðstír, og hefir góðfúslega gef- ið kost á sér að sýna nefndan leik, til arðs fyrir Árdalssöfnuð í Ár- borg, þann 27. okt. í Goodtemplara- húsinu þar. “Sjálfsvernd er ýmsum í brjóst lagin, er ekki verðskulda hana.” Firth Bros. Yflrhafnir, nýjar f Winnipeg, $19.50, $21.50 og yíir hver um sig frá 45.00 til $10.00 meira virði. Kostar ekkert að skoða þær. ósótt föt og yfij-hafnir $2 5.00 til $35.00 vjrðj fyrir $15.00 Reynið Firth Bros. handsaumuð Budget alfatnaði á $18.50 Firth Bros. Ltd. ROY TOBEY, Manager 417 % PORTAGE AVE. Sími 22 282 Akjósanlegt eldsneyti í kvaða veðri sem er MONOGRAM COAL Lump or Cobble $5.50 Stove...............$4.75 Ekkert aukreytis fyrir kol þó þau sé í pokum WOOD’S COAL COMPANY, LTD. 590 Pembina Highway 45 262 - PHONE - 49 192 West End Order Office: W. Morris, 679 Sargent Avenue PHONE 29 277 KOL 0G VIÐUR Allar tegundir af kolum og við. Beztu tegundir hugsanlegar, og hvergi betra verð. Margra ára reynsla hefir fært fólki heim sanninn um gæðin. HALLIDAY BROS., LIMITED 342 PORTAGE AVE.—PHONE 25 337 JOHN OLAFSSON, umboðsmaður Heimili: 250 Garfield St.—Sími 31 783 Swan Weatherstrip fyrir hurðir og glugga Swan Manufacturing Co. 637 SARGENT Ave., Vinnustofa 579 ELLICE AVE. Phone: 80 667 Kveðjuhljómleikar Brynjólfs Þorlákssonar í Fyrstu lútersku kirkju MIÐVIKUDAGINN 1. NÓVEMBER, 1933 Klukkan 8.15 e. h. 1. O Canada Ó Guð vors lands 2. Ávarp frá vestur-íslenzkri æsku.....E. P. Johnson flutt af Lilju Johnson 3. Kvennakór— (a) Hið blíða vor .....................Schulz (b) Þegar blómin brosa.........Luise Reichardt (c) Sofðu vært mín væna............Wetterling (d) Evening Shadows.....................Ricchi 4. Violin Solo— Lament from Esther ..............Handel-Flesch Scherzo Tarantelle..................Wieniawski Miss Pearl Palmason 5. Karlakór— (a) Þú álfu vorrar yngsta land....S. Einarsson (b) Flyt mig heim (sóló og kór).....F. Backer (c) Tárið..............................R. Bay (d) Landsýn (sóló og kór) ............E. Grieg Sólórnar syiigur Mr. P. Bardal 6. Vocal Solo— (a) “One Fine Day”—From Madame Butterfly. ... ...............................Puccini (b) All Soul’s Day ...................Strauss (c) Dedication ......................Schumann Mrs. B. H. Olson 7- Instrumental Quintette— Quintette (ist movement) — Ant. Dvorák, op. 81 for piano, 2 violins, viola and violoncello. s Snjólaug Sigurdson, Pálmi Pálmason, Pearl Pálmason Michael Batenchuch, Henri Benoist. 8. Blandaður kór— (a) Ó fögur er vor fósturjörð (b) Morgunsöngur ....................... Gade Aðgangur 40C fyrir fullorðna, 25C fyrir börn. ELDGAMLA ÍSAFOLD GOD S4VE THE KING EF VIÐ BREGÐ UMST ÞEIM Hvað tekur þá við ? Gleymið ekki grímudansinum í G. T. húsinu á “Halloween,” þriðju- daginn 31. þ. m.—Sérstök peninga- verðlaun veitt fyrir búninga, auk venjulegra spilaverðlauna. Fyrirtaks skemtun! Sunnudaginn 29. október messar séra H. Sigmar í Péturskirkju kl. 11 f. h. Mr. og Mrs. M. M. Jónasson og Miss Ingveldur Kristjánsson frá Árborg, voru stödd i borginni á þriðjudaginn. HEMSTITCHING leyst af hendi flótt og vel. Pant- anir utan af landi afgreiddar með mjög litlum fyrirvara. 5c | yardið Helga Goodman 809 ST. PAUL AVE., Winnipeg (áður við Rose Hemstitching) CARL THORLAKSON úrsmiður Peningar fyrir gamla gull- og silfurmuni, sendir með pósti um hæl. 699 Sargent Ave., Winnipeg Heimaslmi 24 141 Steini Vigfússon STE. 14 ALLOWAY COURT Annast um alt, er að aðgerðum á Radios lltur. Airials komið upp fyrir $2.50. Vandað verk. Sann- gjant verð. Slmi 39 526. Jakob F ■ Bj arnason TRANSFER Annast greiðlega um alt, sem að flutningum lýtur, smáum eða atór- um. Hvergi sanngjarnara verð. Heimili: 762 VICTOR STREET Slmi: 24 500 Distinguishcd Citizens Judges, Former Mayors, Noted Educattonists, Editors, Leading La-.cyers, Doctors, and many I'rominent Men of Affairs—send their 8ons and Daughters to the DOMINION BUSINESS COLLEGE When men and womén of keen discernment and sound judgement, after 'full and painstaking énquiry and investigation, select the Dominion Business College as the school in which their own sons and daughters are to receive their trai.ning for a businehs career, it can be taken for granted that they considered the many ad- vantages offered by the Dominion were too important to be over- looked. ' The DOMINION BUSINESS COLLEGE today offers you the best business courses money can buy, and that at a cost that brings it easily within your reach. An ordinary business course no longer fills one’s requirements. It is the extra measure of skill and knowledge conferred by a Do- minion Training that singles one out for promotion in any modern business office. It has always been a good investment to secure a Dominion Train- ing—but today, more than ever, it is important that you secure the best obtainable in order to compete worthily in the years to come. Oar Schools are Located 1. ON TIIE MAiiD. 2. ST. JAMES—Corner Coilege and Portage. 3. ST. JOHNS—1308 Main St. 4. ELMWOOD—Comer Kelvin and Mclntosh. JOIN NOW Day and Evening Classes You May Enroll at Any One of Our Four Schools With Perfect Confidence.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.