Lögberg - 21.12.1933, Side 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. DESEMBER, 1933
3
«
*
Sólskin
Sérstök deild í blaðinu
Fyrir börn og unglinga
<(©&©©©S»&S«‘©«©©$í«e©^e©«^©©««í*©©««*-V-SisVl»,S*
Til Bethlehem, til barns-
ins vil eg fara
Jólahugleiðingar eftir séra Bjarna Jónsson,
dómkirkjuprest.
Nú er jólum fagnað um allan kristinn
heim. En hugurinn leitar ávalt til minna
fyrstu jó'la, er fjárhirðarnir tóku á móti jóla-
boðskapnum, og þeir trúðu því, sem við þá
var talað, og sögðu: “Vér skulum fara rak-
leiðis til Bethlehem og sjá þennan atburð,
sem orðinn er og Drottinn hefir kunngjört
oss.” Þeir ,sáu þá sjón, sem þeir vegsömuðu
Guð fyrir. Þeir sáu, að “fátæk móðir vafði’
hinn blíða helgri í sælu að hjarta sér.” Hirð-
arnir eru hinir fyrstu, sem koma á þann stað,
þar sem frelsarinn fæddist. En á eftir þeim
koma miljónir manna úr öllum áttum heims.
1 Bethlehem er elsta kirkja kristninnar.
Konstantínus keisari og Helena móðir lians
lét byggja hana. Allar kirkjur frá þeim tím-
um (í byrjun 4. aldar) eru horfnar, en kirkj-
an í Bethlehem hefir staðist stormana. Oft
hefir litið svo út, að nú væru dagar hennar
taldir, en alt af hefir henni verið bjargað, þó
að henni hafi verið búið tjón og hótað ger-
eyðingu. Á 7. öld fóru Persar herskildi um
landið helga, rændu og brendu kirkjur. Mörg
hundruð kirkjur eyddust, en fæðingarkirkj-
unni í Betlilehem var hlíft. Sagan segir, að
þegar ræningjarnir persnesku komu að kirkj-
unni, hafi þeir yfir dyrunum séð mynd af
vitringunum frá Austurlöndum, en vitring-
arnir voru í persneskum búningum. Þá hættu
Persar við áform sitt. Þeir vildu ekki brenna
það hús, þar sem persneskir menn voru látnir
gæta dyranna.
Sama ár sem kristni var lög*tekin á Is-
landi, gaf kalífinn E!1 Hakim þá skipun, að
allar kristnar kirkjur í ríki hans skyldu eyði-
leggjast. En kirkjan í Bethlehem komst und-
an eyðingunni. Á krossferðartímunum lögðu
Arabar fjölda margar kirkjur í rústir, og
höfðu ákveðið, að Bethlehemskirkjuna skyldi
rífa niður. En þá leituðu íbúar Bethlehem á
náðir Glotfreds frá Bouillon, og hann sendi
Tanered riddara og með honum hersveit
kirkjunni tli verndar. Kirkjunni var bjarg-
að. Fáni Tancreds blakti yfir kirkjunni,
munkarnir sungu lofsönginn (Te deum), og
fögnuður var meðal bæjarbúa.
Margar öldur hafa skollið á kirkjunni,
en hún stendur enn í dag. Þar hafa margir
komið, fagpiandi og grátandi. Þar hefir
mörghátíðin verið haldin. Árið 1101, á sjálfri
jólahátíðinni, var Baldvin, einn hinna merk-
ustu krossfarenda, krýndur konungur yfir
Jerúsalem. Fór sú athöfn fram í fæðingar-
kirkjunni.
Það geymast margar sögur, er segja frá
árásum á þessa kirkju, en nú í dag fyllist hún
af lofsyngjandi söfnuði. Þar eru nú haldnar *
jólaguðsþjónustur, og margir ganga nú niður
í hellinn undir háaltarinu, og þar má í einu
horninu líta silfurstjörnu, sem fest er við
gólfið, og þar sézt áletranin: ‘ ‘ Hic de virgine
Maria Jesus Christus natus est.” — “Hér
fæddi María mey Jesúm Krist.”
Þeir eru margir pílagrímarnir, sem kom-
ið ihafa á þennan stað og í auðmýkt og með
þakklætji hugsað um (fagnaðarboðskap jól-
anna: “ Yður er í dag frelsari fæddur.” Lít-
um á þennan fjölda, sem kom til þess að
beygja sig í lotningu fyrir barninu. En barn-
ið óx, og sagan um hann, sem fæddist í
Betlehem, breiddist út um heiminn, eins og
dagsbirtan frá austri til vesturs. Á heilagri
jólanótt er sem eg heyri fótatak kynslóðanna.
Fyrst ganga hirðarnir, og á eftir þeim hinir
fátæku og ríku, margir brosandi, margir með
tár í augum, mæður með börn í fanginu, öld-
ungar og röskir sveinar, sorgbitnar ekkjur og
fagnandi yngismeyjar. Eg heyri fótatakið,
og eg heyri heilaga hljóma, liver kynslóðin á
eftir annari tekur undir englasönginn og á
mörgum tungumálum, einnig á íslenzku er
sunginn jólalofsöngurinn.
Kynslóðir koma,
kynslóðir fara,
allar sömu æfigöng.
Gleymist þó aldrei
eilífa lagið
við pílagrímsins gleðisöng.
Kirkjan í Betlehem sézt enn í sinni feg-
urð. Eú margar aðrar hafa bæst við. Nú eru
jólin haldin í hinum veglegustu musterum,
þar sem tugir þúsunda kirkjugesta geta kom-
ist inn, og jólin eru haldin í litlu kirkjunni,
þar sem geta setið 100 manns, og jólasálm-'
arnir eru sungnir þar sem hátt er til lofts-
ins og ríkmannlegt um að litast, en þeir eru
einnig sunghir í litla herberginu, þar sem lágt
er undir loftið, og jólasagan heyrist í upp-
ljómuðum kirkjum, en hún er einnig lesin
fvrir sjúklinginn í fátæklegu herberginu.
Hún vekur gleði hjá þeim, sem þrá fögnuð og
frið. og hún er dýrmæt gjöf særðu lijarta.
Hátíðin er komin, og ómurinn af jólalag-
inu berst land úr landi. Eg minnist á jóla-
lagið. P’,á sönglög eiga meiri töframátt.
Skólakennari í Tyrol bjó lagið til á jólunum
1818, og nú er það sungið um allan heim, og
vér syngjum það í kirkjunni og heimahús-
um: “Heims um ból, helg eru jól.” Veittu
börnunum eftirtekt, er þau syngja, og taktu
eftir því valdi, sem hinir heilögu hljómar eiga
yfi rhjörtum vorum. Eg liugsa um það, sem
skáldið segár:
Yetrarnótt geta í vormorgun brevtt
vöggubarnanna draumar.
Eins geta hugann til himins leitt
hreinu tónanna straumar.
Hinir hreinu jólatónar leiða hugann til
himins, en þeir leiða einmg hugann til ástvina
vorra, sem fvrst sögðu oss frá jólunum. Vér
vorum börn heima, er vér fyrst sáum jóla-
ljósið, og endurminningarnar um jólin eru ná-
tengdar minningum um kærleika elskandi
vina. Eg sé þetta alt eins og það væri að ger-
ast nú. Það var hægt að finna, að jólin voru
að koma, og það var heiiagur friður í Reykja-
vík á jólanótt. Eg man svo vel eftir hinni liá-
tíðlegu gleði. Þegar eg hugsa um heilög jól,
þá sé eg birtuna frá hinum eilífa lampa.
Þeir, sem fyrst töluðu við mig um jólin,
eru farnir liéðan, og svo mega margir segja,
sem nú halda jól. En eitt er eftir. Eg held
á nýja testamentinu í liendi mér, og les hið
heilaga jólaguðspjall, og enn er hin sama
gleðifregn flutt, enn í dag heyrum vér jóla-
prédikun engilsins: “Óttist ekki, því sjá, eg
boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun
öllum lýðnum; því að yður er í dag frelsari
fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Da-
víðs. ’ ’ Þessi boðskapur berst víða um löndin.
Það er víða hringt klukkum á heilögum jólum.
En mér finst eg heyra silfurskæra klukku, sem
liringir, og eg veit, að það er verið að kalla á
mig. Það eru ekki aðeins jól handa f jöldanum,
það er jólagleði boðin hverri einstakri sál.
Hér er sá boðskapur, sem nær til fjöldans, og
hér er sá boðskapur, sem ætlaður er hinum
eina.
Eg hefi minst á sögu frá liðnum tímum,
bent oss öllum á hina elstu kirkju. Eg hefi
bent oss á, hvernig jólasagan og jólalagið
berst víða um lieiminn, og hvemig liið hrein-
asta og helgasta í hjörtum vorum er í ætt við
bjartar jólaminningar.
En nú koma jólin til þín.
Fjárhirðum fluttu
fyrst þann söng Guðs englar,
unaðssöng, er aldrei þver;
friður á foldu,
fagna >ú maður,
frelsari lxeimsins fæddur er.
Nú er sagt við þig og mig: “Fagna þú
maður. ” — Þetta er sagt við þá, sem nú
gleðjast, við þá er sagt: Gleðjist í Drotni.—
Eitt ber öllum saman um: Jólin eru komin.
En sú er tilætlunin með heilögum jólaboðskap,
að þetta sé gleði vor: Drottinn kemur.
Jólin koma til þeirra, sem brosa. En þau
koma einnig til þeirra, sem gráta. Þeir eru
margir, sem nú em áhyggjufullir, með sorg
0g kvíða í hjarta. En hugsum um hin fyrstu
jól. Hverjum var fregnin flutt ? Hirðunum,
sem um nóttina gættu hjarðar sinnar. Hjá
þeim stóð engillinn og dýrð Drottins ljómaði
• í kringum þá. Enn í dag eru jólin send til
þeirra, sem þekkja erfiði næturvökunnar.
Jólin hverfa eftir nokkrar stundir. En hin
sönnu jól verða eftir, Drottinn sjálfur verður
eftir ihjá oss, og þá tölum vér við hann um alt
hið erfiða, biðjum fyrir hinum mörgu, sem
bágt eiga, biðjum, að aftur megi birta og lít-
um á það sem heilagt jólastarf, að bera birt-
una til þeirra.
Nú er skammdegi, og myrkur grúfir yfir
þjóðunum. En jólin koma, og þá fer aftur að
birta. Höldum jól með því að biðja, að brátt
megi birta yfir landi og Þjóð, yfir atvinnuveg-
um, yfir heimilum, yfir öllum landsins börn-
um. Treystum Drotni, vel þá fer. Geymum
því jólagleðina í hjarta xoru. Það er svo
margt, sem vill taka frá oss kjark og gleði
En munum eftir því, hvernig næturdimman
breytist í dýrðarbirtu. Treystum því, að svo
muni enn verða. Tökum á móti honum, sem
fæddist á lieilagri jólanótt, horfum á ung-
barnið reifað og liggjandi í jötu. Hlustum á
lofsöng hinna liimnesku hersveita og segjum:
Vér undir tökum englasöng,
og nú finst oss ein nóttin löng.
Guð gefi öllum, er þetta lesa eða heyra
gleðileg jól. — Amen.
—Vísir.
Ó, talc oss alveg að þér nú;
lijá englum þínum vist oss bú.
Þú vinur manna allra ert,
þótt engir þakki sem er vert.
Lát veröld ei fá vald á oss
svo víkjum burt frá þínum kross.
Nei, lát oss alla ætíð þrá,
í engla þinna dýrð að ná.
Vor leið má verða bráð sem löng;
vor bæn, að fáum þér, með söng,
að flytja ástar-óð og prís,
á engla vísu’ í Paradís.
Vér stöndum hér, í hóp og röð,
vor hjörtu til þín vona glöð,
að síðar frammi fyrir þér
í friði’ og gleði söfnumst vér.
Páll Jónsson.
KONUNGUR JÓLANNA
JÓLA-SALMUR FYRIR BÖRN
Eigið lag eða: Ó, guð þér hrós og heiður ber.
Hér koma bljúgu börnin smá,
sinn bróður litla’ í jötu’ að sjá.
Ó, fræddu svo, hvers sál og sinn,
að sjái veginn til þín inn.
Vér komum fram með kæti og þor,
og krjúpum við þín helgu spor.
Ó, blessuð kvöldstund, guðs um geim,
er góða barnið kom í heim.
Þú komst frá háum himnasal,
í heimsins lága táradal.—
Þar sem þín ekki annað beið
en auður stallur, kross og neyð.
Ó, guð, hve fáir að því gá,
og ekki vilja skilja, sjá,
þá kærleiks-fórn að koma hér
að kenna’ og reyna’ að bjarga mér.
Þín hátíð, Kristur, er lialdin enn,
þótt lieimur í sárum flaki.
Og við erum kallaðir kristnir menn,
þótt kvíði og þjáning vaki
með heiðninnar tungutaki.
En að því kemur, að sál hver sér,
að sorgin að fullu’ ei víkur
fyrir tilbeiðslu á þér,—að ónýtt er
alt, nema að verða ríkur
af vizku, — og verða þér líkur.
Við -vandaspurningum vitrust svör
þú veitir, og þeim skal sinna,
ef mannkynið á að flýta för
til framtíðarlanda þinna,
og hamingju’ og frið að finna.
En fáir kjósa til fylgdar þig
og fjallvegu þína kanna
miklu færri en signa sig
og syngja þér “hósíanna,”
þú Meistari engla og manna.
Grétar Fells.
PROfESSIONAL CARDS
DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834 —Ofíice timar 2-3 Heimili 214 WAVERLET ST. Phone 403 288 Wlnnipeg, Manitoba Drs. H. R. & H. W. TWEED TannUeknar 4 06 TORONTO GKNERAL TRUST BUILDING ' Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 546 WINNIPEO H. A. BERGMAN, K.C. tslenxkur lögfrœOingur Skrlfstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 062 og 39 043
DR. T. GREENBERG Dentist Hours 10 a.m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 51 455 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg Dr. A. B. Ingimundson Tannkeknir 602 MEDICAL ARTS. BLDO. Slmi 22 296 Helmllia 46 064 DR. A. V. JOHNSON tslenekur Tannlœkntr 212 CURRY BLDG., WINNIPEO Gegnt pðsthúsinu Simi 96 210 Heimllis 33 338
DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Arta Bldg.
Cor. Or&ham og Kennedy 8t*.
Phone 21 834—Office tímar 4.30-6
Helmlll: 6 8T. JAME8 PLACH
Winnipeg, Manitoba
DR. J. STEFANSSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Oraham og Kennedy Sts.
Talsími 26 688
Stundar augna, eyrna, nef og
kverka sjúkdóma.—Kr aC hitta
kl. 2.30 til 5.30 e. h.
Heimili: 638 McMILLAN AVK.
Talslml 42 691
Dr. P. H. T. Thorlakson
206 Medical Arts Bldg.
Cor. Qraham og Kennedy Sts.
Phones 21 213—21 144
Res. 114 GRENFELL BLVD.
Phone 62 200
DR. A. BLONDAL
602 Medical Arts Building
Stundar sérstaklega kvenna og
barna sjúkdóma. Kr aC hitta
frá. kl. 10-12 f. h. og 3-6 e. h.
Office Phone 22 296
Heimili: 806 VICTOR 8T.
Simi 28 180
Dr. S. J. Johannesson
ViCtalstimi 3—6 e. h.
532 SHKRBURN ST.--81ml 30 177
Send Your
Printing Orders
to
Columbia Press Ltd.
First Class Work
Reasonable Prices
A. S. BARDAL
848 SHKRBROOKK ST.
Selur likkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaOur sá bezti.
Knnfremur selur hann allskonar
minnisvarCa og legsteina.
Skrifstofu talslml: 86 607
Heimilis talsimi 501 562
A. C. JOHNSON
907 Confederation Life Bldg.
Winnipeg
Annast um fasteignir manna.
Tekur a6 sér a6 ávaxta sparlfé
fðlks. Selur elds&byrgð og blf-
rei8a ábyrgðir. Skriflegum fyrir-
spurnum svara8 samstundis.
Skrifst.8. 96 757—Heimas. 38 838
G. W. MAGNUSSON
Nuddlœkntr
41 FURBT STRKET
Phone 36 137
81mi6 og semjlC um aamtalHtima
J. T. THORSON, K.C.
ttlcntkur löofrœOlngur
801 Great West Perm. Bld*.
Phone 92 765
J. RAGNAR JOHNSON
B.A., LL.B., LL.M. (H&rr).
itlenzkur IðgmaOur
405 DEVON COURT
Phone 21 459
G. S. THORVALDSON
BA, LL.B.
LögfrœOlngur
Skrifst.: 702 CONFEDKRATION
LIFE BUILDINO
Maln St., gegnt City Hall
Phone 97 024
E. G. Baldwinson, LL.B.
ttientkur lögfrœOimgur
Residence Phorie 24 296
729 SHERBROOKE ST.
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
601 PARIS BLDQ., WINNIPBO
Fasteignasalar. Leigja hús. Ot-
vega peningal&n og eldeftbyrgfl af
. ’Mlu tagl.
i jone 94 321 f