Lögberg - 21.12.1933, Page 6

Lögberg - 21.12.1933, Page 6
r> LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. DESEMBER, 1933 Hallgerður Höskulds- dóttir Otvarpserindi eftir séra Ólaf Ólafs- son, fyrverandi fríkirkjuprest. Öllum er kunnugt að þessar kon- ur fara eftir siðalögmáli sinnar tíð- ar og eftir því eru þær dæmdar, og fá línkind í dómi. Hví má ekki Hallgerður dæmast hinum sama dómi ? Það er í dómum um konurn- ar, sem eg nefndi, grafist eftir hvöt- unum, sem stýrðu athöfnum þeirra. En hjá Hallgerði er það ekki gert, hvorki af höfundi Njálu né seinni tíma mönnum. Fyrir svipaðar at- hafnir eru þær taldar höfðingjar og hetjur; en Hallgerður “skass” eða “forað.” Með siðalögmál blóðhefnd- arinnar í hjartanu og með hinar stór brotnu lyndiseikunnir og skaphörku feðra sinna gengur Hallgeröur út í lífið, og henni er á hálfgerðum barnsaldri hiundið inn á þá braut, sem henni er þvernauðugt að ganga. Hún virðist aldrei hafa eignast verulegan vin alla æfi sína, nema ef telja skyldi Þjóstólf, sem var ó- fyrirleitinn ofstopamaður; og hún virðist ganga ein og óstudd alla sína æfibraut, og eins og oft er háttur geðmikilla manna, að harðna við hveria pláguna. Iiún eignast þrjá eiginmenn, og þeir reyndust henni allir illa, Gunnar á Hlíðarenda líka. —Hún lagar sig ekki eftir þeim, og þeir laga sig ekki eftir henni. Vinir Gunnars sýna henni f jandskap þegar hún kemur í Rangárþing. Það voru ekkert óeðlileg orö eftir því, sem á undan var gengið, er hún sagði við Gunnar: “Tröll hafi þína vini.” — Þrátt fyrir mikla kosti, ættgöfgi og fríðleik, verður alt líf hennar ömurlegt, gœfusnautt og gleðilaust; það verður hjá henni, sem fleirum “annað gæfa og annað gjörfuleiki.” Hvernig var ekki t. d. um hetjurnar Grettir Ásmundsson og Gísla Súrsson? Við skulum líta frekar á æfiferii Hallgerðar. — Hún var fædd 940. Þegar hún er 15 vetra, þá biður hennar Þorvaldur Ósvífsson undir Felli á Meðalfellsströnd; þaö heitir nú Staðarfell. — Hann hafði fátt sér til ágætis annað en auðlegðina. Höskuldur faðir Hallgerðar rekur hana nauðuga til að eiga þenna mann. — Þá sagði Hailgerður, þó ung væri, þessi viturlegu orð við föður sinn: “Mikill er metnaður yövarra frænda, ok er þat eigi und- arlegt, at ek hafi nokkvarn.”—Hún fann þá að sér mundi kippa í kynið, og sú varð raunin á. — Hallgerður fer þá, nauðug þó, til bús með manni þessum. En hún er þá barn að aldri og vizku, og húsmóðurstörfin fara henni ekki sem bezt úr hendi; og þykir mér sem virða hefði mátt það til vorkunar og færa á betri veg; en höfundi Njálu hefir fundist annað. —Það verður búsvelta á þessu mauraheimili; þá verður Þorvaldur illur og ber Hallgerði, svo aö stór- sér á henni. Þá tekur Þjóstólfur ÚPP þykkjuna fyrir Hallgerði, og vegur Þorvald. 16 ára kemur Hallgerður heim í föðurhúsin aftur, orðin ekkja. En áður en hún fór frá Felli, lauk hún upp kistum sínum og gaf öllum heimilismönnum gjafir; Hörmuðu þeir hana allir,” segir Njála; en þarna kom fram höfðingslund Hall- gerðar. — Höskuldur faðir hennar játaði, að þetta hefði alt farið að vonum.—Ekkert bendir til í Njálu, og því síður sannar, að Hallgerður hafi látið drepa Þorvald. Þjóstólfur tók það upp hjá sjálfum sér, eins og fleira. En þegar Hallgerður kemur austur í Rangárþing, þá fylgja henni, eða þó líklega öllu fremur myndast þar þegar um hana þvætt- ingssögur um, að Hallgerður hafi ráðið Þorvaldi manni sínum bana, og að móðurfrændur hennar norð- ur á Hornströndum séu þeir römm- ustu galdramenn, sem enginn fái yfirstigið.—Þessar illgjörnu þvætt- ingssögur, Hallgerði til ósóma, fær- ir höfundur Njálu í letur, og ó- hróðurinn um Hallgerði rennur eins og nýmjólk eða brætt smér ofan í hverja kynslóðina eftir aðra.—Þeir eru ekki kröfuharðir um sönnunar- gögnin og sannleikann, sem taka og fleira þessu líkt i garð Ilallgerð- ar fyrir góða og gilda vöru. Þorvaldur, fyrsti maður Hallgerð- ar, var veginn 955. Siðan líða 4 ár ; þá biður hennar mætur maður, Glúmur, sonur Óleifs hjalta á Varmalæk í Borgarfirði. — Þess- um manni tekur Hallgerður sjálf, og þenna mann elskar hún og hjú- skapur þeirra fer yfirleitt vel. Miss- irin, sem hún var með Glúmi, eru líka einu sólskinsblettirnir í lífi Hall- gerðar, eftir bernskuárin í .föður- húsum. En svo kemur ólánið, sem einlægt eltir hana í einhverri mynd. Þau hjónin deila út af Þjóstólfi. Glúmur rekur henni kinnhest og fer síðan burt, en Hallgerður er eftir grátandi. “Hón unni honum mik- it,” segir Njála, “mátti eigi stilla sig og grét hástöfum.” — Þá kem- ur Þjóstólfur enn til sögunnar; en Hallgerðuf biður hann að láta þetta mál afskiftalaust. — En Þjóstólfur fer sínu fram og vegur Glúm. En THIS IS THE “Success College” 1933-34 STAFF ONE EFFICIENT COLLEGE AN ACCREDITED SCHOOL The “Success” has been ac- crédited by the Business Educators’ Association of Canada. “The Success” is best known for its thoroughness. We operate one efficient college; we have no branches. J. C. WAY, Penmanship Dept. G. H. LAUGHTOX. Assistant Principal H V FERfíURON, Prpsident and Principal M. W. THTERRY, M A. S#*crf>tar1al Dcpt. C. L. NEWTON, Accountancy Dept This Success Col- lece group of day School students was photographed dur- ing the morning ses- sion of Friday. Nov 24th. 1933 This group of Success College students, photographed on Friday, Nov. 24, 1933, is the largest body of students in actual attendance in any Business College in Canada. They are assembled in the Auditorium of the College, enjoying a lecture delivered by Mr. H. C. M. Jenkins, an official of the Winnipeg Post Office. This group includes young men and women from Ontario, Saskatchewan, Alberta, Manitoba and U.S.A. LOA EYRIKSON, Typewritlng Dept. RITA GOOD, B. A P.C.T.. Shorthand Dcpt. When Employment is a Consideration —The Success College Leads In our office is a list of 237 “Success” young men and women who accepted positions in offices since July 1, 1933. We do not claim to have directly placed all of these, but all were trained at the Success College, practically all were registered in our Employment Department since June 30, 1933, and all have secured either permanent or temporary employment since July 1, 1933. We ask you, “Is any other Business College in VVinnipeg, doing for its graduates, what the Success College is doing for its graduates—in locating positions?” We sincereiy work for the employment interests of our Graduates—and this, combined with the general preference for “Success-trained” office help, means much to "Success” students. OLIVE G. ST.ATER, B.Sc. English Dept. MABEL ANDERSON, B.A., Shorthand Dept. New Term, Tuesday, January 2nd TUITION RATES ENROLL EARLY Full I>ay Scssions S 15.00 per Month. Half-Day Sessions 810.00 per Month. Less than half-day sessions may be arranged. Evening Sessdons $5.00 per Month. Our office will be open every day diiring Christmas week he- tween 8.30 a.m. and 6 p.m. En- roll early for the Ncw Year term. Phone 25 843 for an appoint- ment. Visitors welcome. MARY RAE, Shorthand Dept. ELLEN BRADLEY, Typewrlting Dept. J. G. GRANT, C.A Higher Accountancv Dept. ELFIE EYRIKSON Shorthand T>**pt. R. G. FERGUSON, Employment Dept. >N BLOCK 385 PORTAGE AVENUE Cor. Edmonton St. and Portage Ave. (Opposite Boyd Block) Vér óskum öllum vorum íslenzlm vinum Gleðilegra Jóla og Farsæls Nýárs PHONE 23 455 The Sargent Pharmacy Ltd. Prescription Specialists K. G. HARMAN R. L. HARMAN Cor. Sargent & Toronto, Winnipeg, Man. I þá sendir Hallgerður Þjóstólf í dauðann. — Á þessum sorglegu at- burðum virðist Hallgerður enga sök éiga; var það satt, sem Höskuldur sagði við Þórarinn, bróður Glúms, enda kannaðist Þórarinn drengilega við það: “Eigi drap ek bróður þinn, og eigi réð dóttir mín honum bana.” —Vorið eftir virðist Hallgerður hafa farið að Laugarnesi, en ekki heim til föður síns. Geta iná nærri, að ekki hafa þess- ir atburðir í lífi Hallgerðar haft bætandi eða mýkjandi áhrif á lund- arfar hennar og skapsmuni. Eina dóttur eignaðist Hallgerður með Glúmi, hét hún Þorgerður; hún var fædd 960 og ólst upp hjá móður sinni. Fara nú engar sögur af Hall- gerði, þangað til mærin er um það bil 14 vetra, sumarið 974. Þá hefst nýr og um leið viðburða- ríkasti kaflinn í lífi Hallgerðar. Það sumar kemur Gunnar Há- mundarson á Hliðarenda úr utanför sinni, og það snemma, að hann ríður til þings. Gunnar hefir farið hina mestu frægðarför, hlotið bæði fé og frama, og er manna glæsilegastur i allri framgöngu. — Hallgerður er líka á þessu þingi, og auðséð, að hún hefir verið engu óglæsilegri en Gunnar. Hún er þá hálf fertug, en hann er þrítugur; hafa þau að lík- indum verið allra glæsilegasta “par- ið,” er þá var á Alþingi. — Einn daginn hittast þau af hendingu, og var það örlagarík stund í lífi þeirra beggja. Njála lýsir þeim báðum rækilega að þessu sinni og segir ljós- lega frá fundi þeirra. Gunnar verð- ur þegar ástfanginn í Hallgerði og mælir þegar til samfara við hana. En hún er það hreinskilin, að hún fremur varar Gunnar við, að leggja hug á hana. “Er þat ekki margra at hætta á þat,” segir hún; mannvönd kveðst hún líka vera; en að öðru leyti vísar hún þessum málum til föður sins; það er síður en svo, að hún troði sér upp á Gunnar, og hún er hreinskilin í öllum svörum sínum við Gunnar. En Gunnar lét ekki letjast. Hann gekk þegar til búða Dalamanna; hittir hann þar þegar bræðurna Hrút og Höskuld og ber þegar upp bónorðið. Þeir bræður eru jafn hreinlyndir og segja Gunnari ófregit bæði kost og löst á Hallgerði. Verður það samt úr, að Gunnar fastnar sér Hallgerði og skal boð vera að Hlíðarenda. Þeg- ar af þingi kemur, segir Gunnar Njáli vini sínum af þessum fyrir- hugaða ráðahag: en Njáll verður fár við og spáir Gunnari og vinum hans mestu hrakspám af völdum Hallgerðar. En auðvitað verða orð Njáls til að veikja elsku og traust Gunnars á konuefni hans og læða inn í huga hans þeirri hugsun,, að eins megi búast við, að líklega sé nú konuefnið allra mesti gallagripur, þrátt fyrir töfravald fríðleikans. Njála her þess engan vott, að Gunn- ar hafi reynst Hallgerði góður eig- inmaður. Vvert á móti ; við hvert einasta tækifæri gengur hann í flokk andstæðinga hennar. , Eftir brúðkaupsveizluna á Hlíð- arenda tekur Hallgerður við bús- forráðum á Hlíðarenda; segir Njála, að hún hafi verið “fengsöm ok at- kvæðamikil.” Sagan mundi ekki draga fjöður yfir það, ef húsmóð- urstörfin hefðu farið HallgerSi illa úr hendi. Þegar Hallgerður er komin austur í Rangárþing, þá er einu orði að segja eins og allir snúist móti henni. Rannveig Sigmundsdóttir, móðir Gunnars, er henni frá upphafi afar þung í skauti; þær eru auðvitað of lyndislíkar til þess, að þeim geti lynt saman. Kjaftakerlingar héraðsins gera sér þegar mikinn mat úr þessari nýkomnu konu; hún var hvalreki á þeirra fjöru. Svo kemur þetta óheilla heimboð á Bergþórshvoli, og þar brýtur 'Bergþóra á Hallgerði allar sjálf- sagðar kurteisisregiur, og sjálfsagða mannasiði þátíðarinnar, eins og eg henti á í upphafi. — Þær veröa upp úr því grimmustu óvinir, og átti Bergþóra á því alla sökina, en Hall- gerður ekki. En hún var svo skapi farin, að hún vildi ekki vera horn- kerling eða hornreka fyrir neinum; en svo var um flest stórmenni i forn- öld, og sæta þau venjulega engum lastmælum fyrir. Hví má ekki Hall- gerður koma fyrir hinn sama dóm? Það er fljótt yfir sögu að fara, að ]>egar Hallgerður er komin austur á Rangárþing, þá er hún ein á móti öllum, og hún er hvergi hrædd. Báðir mennirnir, sem hún átti áð- ur. höfðu barið hana; Gunnar gerði það líka. En skapsmunir Hallgerð- ar, eins stórbrotinnar konu, hlutu að æsast við alla þessa baráttu, sem hörðust var austur í Rangárþingi. —Njáll spáði þegar illgjörnum hrak- spám í garð Hallgerðar; hún myndi austur þar miklu illu af stað koma. En Njáll spááði engu um hitt, að Bergþóra, hans eigin kona, mundi I verða upphafsmaðurinn að Hjaðn- ingavígunum miklu, milli Bergþórs- hvols og Hlíðarenda, sem hann þótt- ist sjá í anda bak við skuggatjöld framtíðarinnar; ef hann hefir þá nokkru sinni um nokkuð af þessu spáð. Það er sem sé auðsjáanlegt, að margt af spádómum Njáls í Njálu er ekkert annað en þjóðsagnir, sem myndast hafa þar austur frá eftir daga Njáls, eða eru tilbúningur af söguritaranum sjálfum, Njáli til lofs og dýrðar. En höfundur Njálu er í mínum augum hlutdrægari eii söguritara en leyfilegt að vera, og er það mikill galli á eins merkilegri bók eins og njála er. En hún verður að þola það, að hún sé gagnrýnd, sem hver önnur saga. Framsetning og málfar Njálu er afbragð; fyrir það er hún bókmentagimsteinn; en sagan sjálf er með götum og glomp- um, og það svo, að sumt er lítt skilj- anlegt. Hefir því fyrir löngu myndast sú skoðun, að Njála sé sam- steypa tveggja sagna og vanti þó inn i frumorsakirnar að sumum við- burðunum. Framh. Oss þætti gaman að vita, ef þér vissuð um betri mjólk eða framleiðslu en hjá MODERN MJÓLK, RJÓMI OG SMJÖR Eftir hinni vaxandi tölu viðskiftavina vorra, þá erum vér vissir um að það er ekki Sími 201 101 Modern Dalries Limited Þér getið þeytt rjómann en hvergi fengið betri mjólk

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.