Lögberg - 29.03.1934, Síða 1

Lögberg - 29.03.1934, Síða 1
47. ARGANGUR WINNIPEG* MAN., FIMTUDAGINN 29. MARZ 1934 NÚMER 13 FRA ISLANDI Roosevelt íorseti býður ósigur í neðri málstofunni FRÖNSK KVEDJA TIL ISLANDS Franska skáldið Romain Rolland, sem hlaut Nobelsverðlaun á árun- um, er einriig kunnur tónlistarfræÖ- ingur og hefir skrifa?5 margar bækur um tónlist, meðal annars æfisögur Reethovens, Hándels og annara tón- snillinga, enda var Romain Rolland um eitt skeið prófessor í tónlist við Sorbonne-háskólann í París og Nobelsverðlaunin hlaut hann fyrir skáldsöguna “Jean Christophe’’ sem lýsir æfi tónskálds og heimsfræg Varð. Nýlega skrifaði hann eftir- farandi bréf: Villenuve (Vaud), i. des. 1933. Kæri herra Jón Leifs, Eg þakka yður hjartanlega lögin fyrir söng og píanó, sem þér voruð svo góður að láta forleggjara yðar senda mér og eg samfagna yður vegna þeirra. Þau sýna karlmann- legan frumleik (mále originalité) ; fallandinn og hljómarnir eru hvort- tveggja í senn mjög gamlir og mjög nýir, það er stundum hægt að segja: miðaldalegir og framtíðarlegir — með undirtónum úthafsins. Þetta er algerlega norræn tónlist,—eins og hún á að vera. Eg heilsa hinni miklu eyju, sem endurhljómar í yðar list. Yðar einlægur, Romain Rolland. SAMVINNUB YGGINGARNAR Daglega er nú unnið við sam- vinnuhúsin, eru um 40 menn, sem vinna þar við gröft kjallaranna og steypu. Byrjað er að steypa kjall- araveggi nokkurra húsanna. N. Dagbl. 3. marz. FRA HAFNARFIRÐI Nýlega voru þeir Ásgeir G. Stef- ánsson framkvæmdarstjóri bæjar- útgerðarinnar í Hafnarfirði og Gísli Jónsson skipaeftirlitsmaður í Reykjavík sendir til útlanda, til þess að litast um eftir hagkvæmu skipi handa bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Þeir hafa nú fest kaup á botnvörp- ungnum Ingólfi Arnarsyni, er var hér við land fyrir nokkrum árum. Kaupverð skipsins er 575 stpd. Skip- ið er smíðað árið 1920 og er af sömu gerð og botnvörpungurinn Tryggvi gamli. Skipstjóri skipsins verður Þorsteinn Eyjólfsson, áður 1. stýrimaður á Maí og fór hann út með Gullfossi síðast, ásamt x. vél- stjóra, til Englands til að sækja skipið. Bæjarstjórnin samþykti kaupin á fundi sínum síðastliðinn þriðjudag. Skipið hefir nú verið skirt upp og hejtir Júní, og er vænt- anlegt hingað eftir miðjan þennan mánuð, og ve'rður þá gert út á salt- fiskveiðar. Botnvörpungurinn Maí er farinn á veiðar og eru allir botn- vörpungarnir úr Hafnarfirði þar með farnir á veiðar. —N. Dagbl. 3. marz. BJÖRGUNARSKIP A VBSTFJÖRÐUM Á síðastliðnu ári var stofnaður björgunarskútusjóður fyrir Vest- firði. Fyrstu tillög voru gjöf frá skipverjum á togurunum “Leikni” °g “Gylfa” á Patreksfirði, að upp- hæð kr. 650.00 og gjöf frá kvenfé- laginu “Hugrún” í Haukadal, og eigendum linuveiðarns “Fjölnis” á Þingeyri, að upphæð kr. 418.00, sem voru ágóði af skemtiferð, sem kven- félagið fór til Norðdals í Arnar- firði síðastliðið vor á nefncfu skipi, er eigendurnir lánuðu ókeypis. Al- mennur áhugi er nú vaknaður á Vestf jörðum fyrir því, að koma upp björgunarskútu fyrir fjórðunginn. Málið hefir verið rætt í blöðöm vesturlands og í fiskifélags- og slysavarnadeildunum þar.—N. Dgb. OR VESTMANNABYJUM Þar liggja tvö saltskip, og er ann- að þeirra með salt til Gunnars Ól- afssonar og Co., og kaupfélagsins Fram, en Kveldúlfur og Óskar Sig- urðsson eiga farminn í hinu skipinu. Bátar hafa róið alment í Eyjum undanfarna daga og aflað frá 500 upp i 2,200 fiska á bát. 2—3 bátar hafa ekki getað róið sökum þess að sjómenn tantar.—Kvöldskóla iðn- aðarmanna í Vestmannaeyjum er nýlokið eftir M/2 mánaðar starf. Skólinn var hvorttveggja í senn: iðnskóli og almennur kvöldskóli, og þótti það gefast vel. 25 nemendur sóttu skólann. Tekið var próf í þessurn námsgreinum: íslenzku, stærðfræði, teiknun, bókfærslu, dönsku, ensku og handavinnu. For- stöðumaður skólans var Halldór Guðjónsson kennari. Skólanum lauk með samsæti; sem nemendur héldu kennurum sínum, prófdómendum, skólanefnd og fleirum. Skólinn er rekinn með tillagi nemenda og styrk úr ríkissjóði. Hæstu einkunn við próf hlaut Björn Guðmundsson, 9.2 í aðaleinkunn.—N. Dgb. 3. marz. LISTAMANNASTYRKURINN Mentamálaráðið hefir úthlutað fé því, sem á fjárlögum 1934 er veitt til skálda og listamanna. Þessir fengu styrk: Þórarinn Jónson tón- skáld 800 kr., Tómas Guðmunds- son skáld 700 kr., Axel Atnfjörð tónlistarnemi 500 kr., frú Gunnfríð- ur Jónsdóttir myndhöggvari 500 kr., Höskuldur Björnsson málari 500 kr., Jón Engilberts málari 500 kr. Karl Runólfsson tónskáld 500 kr., María Markan söngkona 500 kr., Þorvald- ur Skúlason málari 500 kr. —N. Dagbl. 2. marz. AÐALFUNDUR MJÓLKURBOS FLÓAMANNA var haldinn 1. marz á Skeggja- stöðum Til búsins voru fluttir um 2 miljón lítrar af mjólk, og var það svipað og árið áður. Bændur fengu útborgað 16.6 aura fyriF mjólkina að meðaltali. En verð mjólkurinnar er miðað við fitumagn hennar. Með- alfita var 3.64% og er það lítið eitt meira en árið áður. Úr stjórn bús- ins gengu Ágvist Helgason í Birt- ingaholti, Sigurgrímur Jónsson í Holti og Þorgeir Bjarnason á Hær- ingsstöðum. Voru þeir allir endur- lcosnir. — N. Dagbl. 12,000 KRÓNUM STOLID Upp komst í gær, 2. rnarz, að 12 þús. krónum hefði verið stolið af seðlaforða útibús Landsbankans við Klapparstíg. I fyrrakvöld flutti Tngvar Sigurðsson seðlaforða úti- búsins, 145,600 kr., niður í Lands- banka, svo sem venja er að gera á kvöldin. Setti hann peningana, sem voru í tösku, inn í einn af peninga- skápum bankans. Hann sótti pen- ingana aftur í bankann í gærdag, en þegar hann fór að telja pening- ana í útibúinu, vantaði eitt búnt með kr. 12,000,00. Þannig vildi til að í því búntinu, sem horfið var, voru gamlir og næsturn ónýtir seðlar, sem átti að eyðileggja. Mál þetta var þegar kært og er nú í rannsókn.—N. Dagbl. 3. marz. LÆKNISHÉRADIÐ A BLÖNDUÓSI. Um það hafa sótt: Magnús Ágústsson Kleppjárnsreykjum, Guðmundur Guðmundsson Reyk- hólalæknishéraði, Páll Kolka Vest- mannaeyjum, Lárus Jónsson Siglu- firði, Haraldur Jónsson Breiðumýri og Einar Guttormsson kandídat, sem nú er í Kaupmannahöfn.—N. Dgb. KOMMUNISTAR I WASHINGTON Fregnir frá Washington herrna að rannsókn verði bráðlega hafin til að komast að raun um hvort Komm- únistar séu í ráðum með forseta, honum óafvitandi. Upphaf málsins er það, að Dr. W. A. Wirt, yfirmaður barnaskóla í Gary, Indiana, sendi bréf til rteðri málstofu þingsins, þar sem hann segir að nokkrir Kommúnistar eigi nú sæti í meðráðanefnd forsetans, og séu þeir viljandi að tefja fyrir öllum nauðsynlegum umbótum í þeirri von að stjórnin taki allan iðn- að og alla verzlun í sínar hendur. Ekki munu þeir margir, er nokk- uð mark taka á þessum staðhæfing- um, en rétt þykir að rannsaka málið, þar sem mikiíj umtal hefir orðið út af þessu. Hvort að sérstök þing- nefnd verður skipum, eða dóms- málaráðuneytinu verður falin rann- sóknin, er enn óvíst. Það er haft eftir Thornas Schall, senator frá Minnesota, að dauða- dómur væri hæfileg refsing á þá, sem sekir yrðu fundnir. Eins og kunnugt er hafa margir ætlað að ýmsir af prófessorum þeim, sem forsetinn hefir sér til stuðnings, séu mjög róttækir um- bótamenn. Þessu hefir margsinnis verið neitað, en þrátt fyrir það virð- ast menn óánægðir með prófessor- ana, sem alt til þessa hafa verið á- litnir að vera færari um að grúska í bókum, en að fást við opinber mál. Hvað svo sem uppvíst verður, er líklegt að stjórnin verði fyrir ó- þægindum af rógburði þessum. FRÁ SAMBANDSÞINGINL{ Hon. W. L. Mckenzie King fór fram á það i sambandsþinginu að betra eftirlit væri haft með útbýt- ingu þeirra peninga úr rikissjóði, er ætlaðir væru til styrks atvinnu- lausra manna. Mr. King segir að bæði fylki og sveitarfélög hafi, síðustu ár, dregið sér stórfé með því að gefa ófullkomnar skýrslur yfir notkun þess fjár, sem þeim var ætlað til hjálpar atvinnulausum mönnum. Þá sagði Mr. King að stjórnin misbrúkaði það vald, sem hún hefði tekið sér samkvæmt þeirri bráða- birgðarráðstöfun, sem gerð var um f járveitingar til atvinnulausra. Með þeirri ráðstöfun var stjórninni veitt leyfi til að eyða þeim peningum eins og henni sýndist að þinginu óspurðu. Foringi frjálslynda flokksins mót- mælti einnig þeirri stefnu stjórnar- innar að ganga í ábyrgð fyrir ýms stórfélög, gagnvart bönkunum. Nefndi hann í því sambandi 60 mil- jón dollara ábyrgð, sem stjórnin gekk í fyrir Canada Kyrrahafsbraut- ina. Á bóndabýli einu, skamt frá Bowsman þorpinu í Manitoba, kom upp eldur í fyrradag og brunnu þar inni kona og sex börn hennar, það elzta 13 en hið yngsta 2 ára. Heimilisfaðirinn, Mr. Gillespie að nafni, og elsti sonur hans, voru að kveikja upp eldinn að morgni dags, og komst hann í steinolíu-geymi, sem þegar sprakk og skvettist olían yfir mennina báða. Föt drengsins stóðu þegar í björtu báli, en föður hans tókst að kasta honum út um glugga og í snjóskafl, er þar var fyrir utan. Samt logaði enn í föt- um drengsins og hljóp þá faðirinn eftir ábreiðu til að slökkvá logann. Þetta tókst, en á meðan hafði kviknað í húsinu og stóð það nú í björtu báli. í þessu bar þarna að nokkra ferðamenn, sem um brautina fóru, VERKFALLI AFSTÝRT í síðustu viku var útlit fyrir að j stórkostlegt verkfall yrði hafið af ! starfsmönnum bíla-iðnaðarins. Þeirri hættu mun nú afstýrt í bráð og munu vinnuveitendur hafa slakað allmikið til, eftir ósk Roose- velts forseta. Baráttan, að þessu sinni, var á milli hins öfluga verkamannasam- bands, American Federation of Labor og forstöðumanna bíla-iðn- aðarins, sem alt til þessa hafa neit- að að viðurkenna rétt verkamanna- félaganna. Bæði Ford og General Motors, sem sterkust eru á þessu sviði, hafa ætíð samið við starfs- menn sína án tilhlutunar verka- mannafélaga (unions). Gegn þessu hefir verkamannasambandið barist í mörg ár, árangurslaust. Snemma á þessu ári var sýnilegt að bíla framleiðsla myndi aukast til muna á komandi sumri, og því meiri hagnaðarvon fyrir félögin. Afstaða verkamanna var því sérstaklega góð, þar sem verkfall myndi að likindum stöðva alla framleiðslu þegar verst •gegndi. Félögin aftur.á móti sáu að nú var um að gera að slaka ekki til svo að þeir rnistu ekki yfirráðin i hendur verkamannasamtakanna. Báðir málsaðilar voru harðsnúnir og hefðu eflaust látið til skarar skríða, hefðu þeir verið einráðir. Þegar hér var komið skarst Bandaríkjastjórnin í leikinn. Nefnd var skipuð til að rannsaka öll deilu- málin og var Robert Wagner, sena- tor frá New York, gerður að for- manni hennar. Wagner er talinn maður einbeittur og réttsýnn, og tókst honum að afstýra vandræðum með hjálp General Hugh Johnsons, yfirmanns viðreisnarráðsins. 'Samkomulag fékst með því, að stórfélögin viðurkenna nú rétt verkamannafélaga að semja um kaup innan hverrar verksmiðju sér- staklega. Aftur á móti neita þau að semja við verkamannasamband- ið, eða viðurkenna rétt þess til af- skifta um iðnaðarmál. RIDDARARNIR FRÁ MALTA Riddararnir frá Malta (Knights of Malta) héldu allsherjar mót í Rómaborg fyrir viku síðan. Það var fyrsta allsherjarmót, sem regla þessi hefir haft siðan 1788. Mörgum í Róm varð starsýnt á þessa skrautlegu riddara. Þeir voru klæddir svörtum silkiskikkjum með hvítum krossum, en yfir þeim voru þeir í skósíðum, svörtum hempum. Riddararnir höfðu komið til Róm til að heilsa upp á páfann og Musso- lini og Victor Emmanuel, konung, og um leið að fara pilagrímsför til kirknanna í Róm, áður en árið helga (Holy Year) væri liðið. Það endar á mánudaginn eftir páska. og komu þeir strax til hjálpar. Mr. Gillespie, áem vissi af konu og börn- urn í eldinum gerði margar tilraunir til að þjóta inn í eldinn, en var varn- að þess af aðkomumönnum, þar sem föt hans voru rennblaut af olíu, og því bráður bani vis að leita inn- göngu. Konan og börnin komust hvérgi út og dóu í eldinum. Nú var þegar simað eftir lækni, frá næsta heimili og kom hann von bráðar. Hann bjó um brQnasár drengsins og föður hans í snatri og var hinn fyrnefndi síðan fluttur á spítalann í Swan River, sem er um tíu mílur frá Bowsman. Læknar hafa von um að drengurinn lifi; er hann þó mikið brendur. Faðir hans er ekki hættulega meiddur. Bowsman er lítið þorp vestur undir landamærum Saskatchewan, um 250 rnílur norðvestur af Winni- peg. Fyrir nokkru siðan samþykti neðri málstofa Bandaríkja þingsins að auka eftirlaun til hermanna og kaup allra þeirta, er stjórnarstörfum gegndu. Þegar frumvarp þetta var lagt fyrir forsetann, neitaði hann því staðfestingar og sendi það aftur til þingsins. Á þriðjudaginn kom það til þingsins aftur, en þingmenn gerðu sér hægt um hönd og samþyktu frumvarpið á ný með miklum meiri- hluta atkvæða eða 310 á móti 72. Forsetinn bar því við að með auknum útgjöldum á þessum svið- um myndi ómögulegt að fylgja á- ætluðum fjárlögum og kæmi það ruglingi á ráðstafanir stjórnarinn- ar. Þegar sendiboð forseta voru lesin í þinginu varð dauðaþögn og varð brátt sýnilegt að þingmenn undu því illa að forsetinn skyldi neita um Þessi fræga regla var stofnuð á krossfara-tímabilinu, og á bæði langa og merkilega sögu. Einu sinni var þetta spítala-regla, síðan hermanna- regla, og um eitt skeið stjórnaði hún eyjunni Malta. Allir meðlimir reglunnar eiga að vera af aðalsættum, kaþólskir í trú sinni, og með óskemt mannorð. Yfirmaður reglunnar er nú ítalsk- ur prinz, Loduvico Chigi Albani. Yfirmaður hennar í Bandarikjun- urn er Morgan Joseph O’Brien, um eitt skeið háyfirdómari í New York. MERKUR FORNLEIFA- FUNDUR Frægastur allra fornminjafræð- inga í Bandaríkjunum er Dr. James Henry Breasted, sem er formaður Austurlanda deildar háskólans í Chicago. Hann hefir siðari ár haft allmarga af mönnum sínum við rannsóknir í Litlu-Asíu og Arabíu. í fyrra fundu þeir gamlar vatns- leiðsluþrór (aqueducts), sem Sen- nacherib á að hafa látið byggja. Enn merkari fundur er þó leir- tafla ein lítil með allskonar línum, sem helst líkjast hrafnasparki. En þeir, sem rúnirnar geta ráðið segja, að á þessari smátöflu sé að finna nöfn og ártöl 95 assýriskra konunga. Taflan fanst undir sorphaug i hallarrústum Saragon II, föður Sennacheribs. Þeir feðgar ríktu um 700 árum fyrir Krists burð. Áður vissu menn lítið um konunga þessa mikla ríkis. Ef til vill hefir Sennacherib gleymt töflu þessari þegar hann flutti til Nineva eftir dauða föður síns. Þegar búið er að skoða töfluna vandlega og mynda hana, verður hún send til eigandans aftur, sem er stjórnin i Iraq. STJÖRNARLÁN TIL RUSSA Sænska stjómin hefir ákveðið að veita Rússum lán, sem nemi 100 miljónum króna, með 5)/2% vöxt- um. Þetta er í fyrsta sinn að nokk- ur stjórn hefir veitt lán til Rúss- lands, beinlínis, síðan Kommúnistar komust þar til valda. Peninga þessa nota Rússar til að kaupa vörur af Svíum, svo sem stál, járn, rafmagnsvélar af ýmsu tægi, o. fl. Blaðinu barst nýlega bréf frá Mr. G. Goodman, sem lengi hefir dvalið í Honolulu-borg á Hawaii eyjunni. Hann segir að eyjarskeggjum þar líði nú allvel og njóti þeir góðs af stjórn Roosevelts forseta. Þurka segir hann svo mikla á eyjunni, að til vandræða horfi. Fróðlegt væri að heyra oftar frá þeim Islending- urn, sem svo afskektir búa, eins og þessi maður. staðfestinguna. Þá var gengið til atkvæða og fór atkvæðagreiðslan fram með hávaða og hlátri, þegar sýnt var að frumvarpið yrði sam- þykt í annað sinn. Nú er eftir að vita hvað efri mál- stofan gerir í þessu máli. Ef að nógu mikill meirihluti fæst í senat- inu, verður frumvarpið að lögum, þrátt fyrir gerðir forsetans. Enn er óvíst hvað senatið kann að gera, en margir álíta að það fylgi for- setanum að þessu sinni. Kosningar til þings fara fram í haust og mun það hafa ráðið nokkru um gerðir þingsins, þar sem talið er að lög þessi nái beinlínis og óbeinlínis til 10 nriljón manna. Það er nokkur styrkur að svo stórum hóp, er til kosninga kemur. Það er nú komið á daginn, að þingið ætlar sér ekki að láta forset- ann einráðann úr þessu. SEXTIU ARA ÁÆTLUN Mussolini hefir nýlega gert hag- stæða samninga við Austurríki og Ungverjaland, og þannig bætt af- stöðu sína allmikið, svo framarlega að ekki verði snögg stjómarskifti í þessum löndum. Að þessu loknu lýsti Mussolini því yfir að hann hefði í hyggju að auka enn meir hag lands síns. í ræðu sinni sagði hann meðal annars: “Nú á dögum eru allar þjóðir að gera áætlanir fyrir fram- tíðina. Eg vil leggja fyrir yður eina slíka áætlun, ekki til fimm ára eða tíu, heldur til sextíu ára. Þegar henni er lokið, verða Italir orðnir voldugasta þjóð heimsins.” “Til norðurs og vesturs er lítið fyrir oss að gera. Framtið vor ligg- ur í austrinu og suðrinu, í Asíu og Afríku. Italía liggur nær þessum álfum en nokkuð annað stórveldi. .” “Vér erum í vináttu við Austur- ríki og Ungverjaland. Samkomu- lagið við Jugoslavíu er þolanlegt, en hreint ekki meira. Afstaða vor gagnvart Frökkum er heldur betri en verið hefir.” “Það er heimska að ímynda sér að hægt sé að liggja á Þjóðverjum til lengdar. Það er hættuspil að reyna það.” SKIP BRENNUR Bándaríska herskipið Fulton, (eitt af smæstu skipum flotans) með 187 manns um borð, eyðilagðist af eldi í vikunni sem leið; var það á sigl- ingu við strendur Kína. Kviknað hafði út frá olíuvélum skipsins og stóð miðbik þess í björtu báli á skammri stundu. Þó tókst að senda neyðarskeyti áður en út- varpstækin brunnu. Nokkrum sjúk- lingum varð komið í björgunarbáta, en allir aðrir hörfuðu undan eld- inum fram í stefni skipsins. Þetta var um klukkan 6.35 e. h. Fáein skip voru á ferð á þessum slóðum og sneri flutningaskipið Tsinan og breska beitiskipið Wis- hart til hjálpar. Herskipið, sem var miklu hrað- skreiðara, komst til Fulton um kl. 8 e. h., og var þá mikið farið að rökkva. Sarnt tókst, með af- burða sjómensku, að leggja Wishart upp að stefni Fulton og stukku þá skipverjar yfir á björgunarskipið. Undir morgunn var hver einasta sála, að meðtöldum skips-ketti, kom- in úr hættu. Nokkrir af mönnun- um meiddust lítillega, en enginn hættulega. Þykir björgun þessi hið mesta af- reksverk. Kona og sex börn farast í eldi

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.