Lögberg - 29.03.1934, Page 8

Lögberg - 29.03.1934, Page 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. MARZ 1934 •jr,...,, iiit \r ... . . ... »1 - ~— — —----—— — — Ur bœnum og grendinni «------- - - -—- - -——- ———-—- —♦ G. T. spil og dans, verður hald- ið á föstudaginn í þessari viku og þriðjudaginn í næstu viku í I.O.G.T. húsinu á Sargent Ave. Byrjar stundvíslega kl. 8.30 að kvöldinu. 1. verðlaun $15.00 og átta verð- laun veitt, þar að auki. Ágætir hljóðfæraflokkar leika fyrir dans- inum.—Lofthreinsunartæki af allra nýjustu gerð eru í byggingunni. — Inngangur 25C.—Allir velkomnir. Heklufundur í kvöld, fimtudag. Mr. B. S. Thorvardsson frá Akra, N. D., er staddur í borginni þessa dagana. TIL LEIGU—þrjú herbergi í góðu húsi, 631 Victor St. Herberg- in fást meÖ öllum húsbúnaði, ef þess er óskað, einnig með gas-stó og heitu vatni.—Mrs. Louisa Benson. Góð stúlka óskast til húsverka.— Mrs. E. S. Gíslason, Ste. 41 Thelmo Mansions, phone 33 755. Sérstaklega hefir verið vandað til söngs við páska-guðsþjónustur Eyrstu lútersku kirkju. Mrs. S. K. Hall syngur einsöngva bæði við morgun- og kvöld-messurnar. John J. Arklie, R.O., augnlæknir verður staddur i Baldur Hotel á föstudaginn 6. apríl, að Árborg Hotel á þriðjudaginn 10. apríl og að Lundar Hotel á föstudaginn 13. apríl. Kvenfélag Eyrsta lúterska safn- aðar, deildir Nr. 3 og 4, halda sölu á heimatilbúnum mat, einnig svunt- um og húskjólum, í búðinni á mót- um Sargent og McGee St., laugar- daginn 31. marz (næsta laugardag), frá kl. 3 til 10 e. h. Mr. A. S. Bardal verður staddúr að Mountain, N. D., með hljómplöt- ur sínar og myndir 2. apríl. Söfn- uðurinn að Mountain stendur fyrir samkomu þessari, sem haldin verð- ur í samkomuhúsi bæjarins. Að- gangur 30C fyrir fullorðna og 15C fvrir börn; veitingar ioc. Ársfundur íþróttafélagsins Fálk- inn verður haldinn í Goodtemplara- húsinu miðvikudaginn 4. apríl, kl. 8 e. h. Kantatan “Þitt ríki komi,” eftir Björgvin Guðmundsson, verður sungin af söngflokki Fyrsta lúterska safnaðar við hátíðarguðsþjónustuna á föstudaginn langa. Þessi áhrifamikla og fagra kan- tata er að þessu sinni tekin fram yfir verk nafnkunnra, enskra tón- skálda, sem áður hafa verið sungin við þetta tækifæri. Fyrir einum átta árum síðan var kantata Björgvins sungin hér í borg, og fékk þá almennings lof. Einsöngva og tvísöngva syngja að þessu sinni þau Mrs. Lincoln Johnson, Miss Emily Bardal, Dr. B. H. Olson, Mr. G, A. Stefansson og Mr. George Sigmar. “Snurður hjónabandsins,” gaman- leikur í þremur þáttum, verður sýndur 6. apríl í I.O.G.T. Hall, Lundar, Man., Leikurinn byrjar kl. 9 e. h. Inngangseyrir 25C. Jónas Oliver, Baldur, Man., kom til borgarinnar á mánudaginn, frá Reykjavík, P.O., þar sem hann hef- ir dvalið í vetur. Liðan manna segir hann góða þar vestan við vatnið. Mr. Grímur Grímss.on, dómari, frá Rugby, North Dakota, kom til borgarinnar á laugardaginn, og dvaldi hér nokkra daga. Mrs. R. R. Phipps, 255 Morley Ave., Winnipeg, lagði á stað til Los Angeles á miðvikudaginn, í heim- sókn til bróður síns, sem þar býr. MEN’S CLUB Þriðjudagskvöld, 3. apríl, verður haldinn fundur í fundarsal kirkj- unnar kl. 8 e. h. Á þessum fundi verður aðal ræðumaður séra Rún- ólfur Marteinsson; ætlar hann að gefa yfirlit af æfisögu Jóns Sig- urðssonar. Meðlimir eru beðnir að fjölmenna nú sem áður. Mönnum Selkirk safnaðar hefir verið boðið á þennan fund. Veitingar verða tjj sölu á eftir fyrirlestrinum. Mannalát Á sunnudaginn 3. des. 1933, and- aðist á South Bend General Hospital, Kristján Atlason, eftir nokkuð langvarandi sjúkdómsstríð. Kristján Atlason var fæddur í Ey í Land- eyjum í Rangárvallasýslu á íslandi 20. maí 1866. Foreldrar hans voru Atli Jónsson og Guðrún .Halldórs- dóttir. Hann fór frá Islandi árið 1893. Kom til Quebec 22. júlí. Fór þaðan til Pembina, N. D., þar sem hann bjó um 8 ár. Flutti árið 1901 til South Bend, Wash., þar sem hann hefir átt heima siðan. Kristján Atlason tilheyrði tveimur félögum, “Fraternal Order of Eagles” og Modern Woodman of America” og var góður félagsmaður og vinsæll. Hann var skyldurækjnn faðir og ástrikur eiginmaður. Hann var gift- ur Guðfinnu Magnúsdóttur frá Hemlu, sem lifir nú mann sinn á- samt 4 börnum þeirra hjóna: Magnús, kvæntur og býr í Santa Monica, Calif.; Allan, kvæntur og býr í LaFayette, Ind.; Albert og Rose heima hjá móður sinni. Út- förin fór fram á miðvikudaginn 6. j des. 1933 frá útfararstofu LeRoy | Chambers í South Bend, að við- stöddum félagsbræðrum hins látna, vinum og vandamönnum. Rev. Theodore Gulhaugen, norskur lút- erskur prestur, flutti líkræðuna. Blessuð sé minning hins látna. R. A. HJÓN AVÍGSLUR Þriðjudaginn 20. marz voru gefin saman í hjónaband Karl A. O. Grahn og Josephina Christene Aust- fjörð, bæði frá Hecla, Manitoba. Athöfnina framkvæmdi séra Björn B. Jónsson og fór hún fram að 774 Victor St. Gefin voru saman í hjónaband, þriðjudaginn 20. marz, Viggo M. Thomsen og Marbjörg Rosie Doll frá Hecla, Man. Hjónavígslan fór fram að 774 Victor St. Séra Björn B. Jónsson gifti. Oscar Josephson frá Glenboro og Lára Vilhelmina Björnsson frá Cypress River voru gefin saman í hjónaband mánudagskvöldið 26. rnarz. Fór sú athöfn fram að heimili Mrs. G. Jóhannesson, 739 Alverstone St. Dr. Björn B. Jóns- son framkvæmdi vígsluna. Þann 17. marz voru gefin saman í hjónaband Fred R. Blacksmith, verzlunarmaður í San Diego og Miss Margaret L. Scheving, skóla- kennari í sömu borg. Brúðguminn er af þýskum ættum, en brúðurin er dóttir Einars og Sigríðar Schev- ing í San Diego. Heimili ungu hjón- anna er 2444 Howard St., San Diego, California. Heiðurssamsæti það, sem haldið var í Marlborough Hotel á mánu- dagskvöldið var, fyrir íslenzku “Curler”-ana, tókst hið bezta. For- seti var Dr. Ágúst Blöndal, og stjórnaði hann samsætinu af mestu lipurð. Mr. Wjalter Lindal, K.C., forseti Falcon Athletic Association, mælti fyrir minni sigurvegaranna, en Leo Johnson svaraði fyrir þeirra hönd. Hann sagði að viðtökur þar eystra hefðu verið hinar beztu og ferðin í allastaði hin skemtilegasta. Þakk- aði hann einnig þann heiður, sem sér og mönnum sínum væri sýndur með samsæti þessu. Aðrir ræðumenn voru þeir Mr. J. G. Johannsson, kennari, er mælti fyrir minni íslendinga hér (Our Icelandic Community), og Dr. B. J. Brandson, er svaraði. Þeir Frank Thorolfson, Niel Bar- dal og Jimmie Snare skemtu með hljóðfæraslætti, og karlakór skemti með söng. Þessir voru í kórinu: Jón Marteinsson, Victor Bardal, Halli Bardal, Ásgeir Bardal, Arnor Ingjaldson, Larus Melsted, Magnus Paulson og Jón Bjarnason. Nefndin, sem stóð fyrir undirbún- ingi þessa samsætis á þökk skilið fyrir dugnað sinn og áhuga. Dr. Tweed, tannlæknir, verður að hitta á Gimli föstudaginn 6. apríl. Messuboð HATÍÐA-MESSUR 1 Fyrstu lútersku kirkju Skírdag: Kl. 8 e. h.—Altarisgöngu-guðs- þjónusta (íslenzk). Föstudaginn langa: Kl. 7 e. h.—Guðsþjónusta og Cantata, “Komi ríki þitt” eftir Björgvin Guðmundsson. Páskadag : Kl. n f. h.—Ensk hátíðarguðs- þjónusta (yngri söngflokkurinn). Kl. 7 e. h.—íslenzk hátiðarguðs- þjónusta (eldri söngflokkurinn). Séra Jóhann Bjarnason messar væntanlega í kirkju Mikleyjarsafn- aðar á páskadaginn, þ. 1. apríl, kl. 2 e. h.—Fólk í Mikley er beðið að láta fregn þessa berast um eyna og að fjölmenna við messuna.— Séra Jóhann Fredriksson messar i Lúters söfnuði á föstudaginn langa kl. 2 e. h. og á Lundar á páskadaginn kl. 2.30 e. h. Áætlaðar messur um páskaleytið í prestakalli séra Sigurðar Ólafsson- ar: föstudaginn langa í Geysir, kl. 2 síðd. (ársfundur); Föstud. langa, Árborg, kl. 7 síðd.; Páskadag, Riverton kl. 2 síðd. Á páskadaginn verða messur sem fylgir í prestakalli séra H. Sigmar: Vídalíns kirkju kl. 11 f. h.; Gardar kl. 3 e. h.; Mountain kl. 8 e. h. Hátíðamessa boðast hér með í kirkju Konkordía safnaðar á páska- daginn kl. 1 e. h. Þess er óskað að allir, sem mögulega geta, hjálpist að að gera athöfn þessa sem uppbyggi- legasta.—S. S. C. Páskamessur í Argyle Baldur kl. 9 að morgni Grund, kl. 11 fyrir hádegi Brú, kl. 2 eftir hádegi. Glenboro, kl. 7 að kvöldi. BÓKASAFN “FRÓNS” Nú er prentuð bókaskrá til út- býtingar fyrir meðlimi safnsins. Listar þessir eru eign safnsins og til láns aðeins til meðlima. Ákveðið hefir \erið, til hægðar- auka fyrir fólk, að hafa safnið opið fyrst um sinn, á sunnudögum frá kl. 2 til 4 og á miðvikudags- kvöldum frá kl. 7 til gl/2. Ef einhverjir finna hvöt hjá sér til að gefa safninu bækur, hvað fá- ar sem þær eru, þá verður það þakk- samlega þegið. Það er ósk og von nefndarinnar að sem flestir noti safnið, og hjálpi eftir möguleikum að efla það og auka. Deild Nr. 5 í kvenfélagi Fyrsta lúterska safnaðar, heldur Silver Tea á heimili Mrs. Jón Blöndal, 909 Winnipeg Ave., föstudaginn 6. apríl eftir miðdag og að kveldinu. Góð skemtun. Hockey samkepnin um hinn fall- ega bikar Þjóðræknisfélagsins, hefst í kveld (fimtud.) kl. 7.30 í Olympic skautaskálanum. Leikið verður á fimtudags og laugardágskveld. Fimm flokkar taka þátt í sam- kepninni: Fálkarnir, sigurvegararn- ir í fyrra; Pla-Mors, einnig frá Winnipeg; Glenboro, einn af beztu hockey-flokkum þessa fylkis, utan Winnipeg; Gimli og Golden Eagles, hockey-flokkur úr norður-bænum. Þetta ætti að verða ágæt sam- kepni, sérstaklega, vegna þess að Glenboro mun verða Winnipeg- drengjunum skæður keppinautur, og verður gaman að sjá viðureign þeirra. FRA LUNDAR Vertiðinni er lokið. Allir fiski- menn eru búnir að draga upp net sín og flestir eru komnir heim af vatninu. Bærinn úir og grúir af brúnum, veðurbörðum, karlmannlegum fiski- mönnum, sem eru að gera upp ver- tíðarreikninga sína. Sumir eru unglingar á tvítugsaldri, þó með myndarlegt alskegg, hraustlegir og æfintýralegir. Vertíðin hefir leikið stóran hóp AKTÝGI AF NfJUSTU OG BEZTU GERÐ Vönduð hringa-beizli, aktaumar, þumlungs breiðir o'g vel sterkir, kragar og brjóstólar úr góðu leðri ll/2 þumlungur á breidd. Kviðgjörðin úr tvöföldu leðri tvístungin. Hrygg- gjörðin 3% þml. á beidd, fóðruð með þykkum, bláum flóka. Sprotar og hringjur H/2 þml. á breidd. Klafarnir úr stáli með 1 þml. sprotum. Dráttarólarnar úr tvöföldu, sterku leðri, 2 þmLá breidd. Þessi aktýgi, meS ölluim útbúnaði, kosta aðeins $26.85 Múlar úr svörtu, vönduðu. leðri, með sex hringjum. Leðrið tvöfalt, 1J4 þml. á breidd saumað með sterku hör- garni. Vigta um 21/, pd. hver. Verð, einn fyrír....$1.10 Hringa-beizli, k j á 1 ka-ólar 7/8 þml., 1 1-8 yfir hnakk- ann. Augnhlífar tvöfald- ar og tvísaumaðar. Vigt um 21/, pd. Verð.$1.50 Sútað leður, vigt 17 til 20 pd. Verð, pundið .....36c Aktaugar (traces), tvöfald- ar með sterkum hringjum, 7 hæl-hlekkir, leðrið þre- falt frá klafa til kvi^Sgjarð- ar. Vigt um 17 pd. Parið $8.50 Aktaugar úr tvöföldu leðri, 2 þml. á breidd, sterkir hringir, þrefaldar frá klafa til kviðlgjarðar, 7 hæl- .hlekkir. Vigt um 20 pund. Verð, parið..'............$11.00 Vandaðir kragar, annaðhvort leður fóðraðir eða með klæðisfóðri. Þyngd um 8 pund. Verð, einn á............$2.85 Hryggjarbönd, 3% þml. á breidd, fóðruð með góðum flóka, sprotarnir tvöfaldir, ll/2 þml. á breidd. Þyngd 13/4, pund. Verð, eitt fyrir...........................95c Klafaólar (Breast straps), 11/, þml. á breidd, járn- varðar. Þyngd um % pund. Verð, hver.....................45c Brjóstólar (martingales) 11/, þml. á breidd, með sterk- um leður hólkum. Þyngd um % pund. Verð, hver...........50c K. A. KNIGHT CO. LTD. Manufacturers and Wholesale Jobbers in Hamess, Horse Collars, Riding Saddles, Cream Separators, Stoves, Ranges and Furniture 579 to 595 McDERMOT AVE., WINNIPEG Phone 86 075 “Yðar gamla veröld er horfin og lcemur ei aftur. Reynið að sœtta yður við þá nýju, sem þér verðið að dvelja í.” STÓRKOSTLEG KJÖRKAUP! Prátt fyrir hækkandi verS, bjóð- um vér fjölbreytt úrval, 117 mis- munandi tegundir vorklæðnaðar, bæði úr alull og ullar kendum dúkum. Alfatnaðir og yfirhafnir sniðn- ar eftir máli. petta verð getur ekki iengi haldist! pað getur hækkað án fyrirvara! Kaupið nú. $10 CA Verð ........ Fáið yður 'nýjar buxur, tilsniðn- ar, við gamla jakkann og vestið. Verð $5.50 og hærra. Ágæt föt—vel sniðin $17.50 og þar yfir Firth Bros. Ltd. 41 7j/2 portage ave. Gegnt Power Bidg. ROY TOBEY, Manager. Talslmi 22 282 “The Road to the City” A Comedy Drama (under direction of Miss Dora Henrickson) Will be Presented by the J. B. A. Alumni Association at the Good Templars Hall Cor. Sargent and McGee Wednesday and Thursday APRIL llth and 12th at 8 o’clock p.m. Tickets obtainable from members or at Box Office, 50 cents misjafnt; sumir hafa fiskað vel og aðrir miður. Sumir hafa hagnast vel en aðrir tapað. Brautirnar hafa verið þaktar sleð- um, með alls konar skrani, plönk- um, tómum kössum, netjum, fata- drasli o. s. frv. Allir eru að flytja sig og eru fegnir að komast heim. Við óskum þessar hetjur okkar velkomnar heim til sín.—F. Dr. A. V. Johnson verður stadd- ur í Riverton á þriðjudaginn 3. apríl. ÆTTATÖLUR peir menn og konur, sem af ís- lenzku bergi eru brotnir geta fengið samda ættartölu sína gegn sanngjörnum ómakslaunum með þvf að leita til mln um það. aUNNAR POR8TEIN88ON P.O. Box 608 Reykjavik, Iceland. AUÐVITAÐ ERU giftinga leyfisbréf, hringir og gimsteinar farsælastir 1 gull og úrsmlða verzlun CARL TH0RLAKS0N 699 SARGENT AVE., WPG. Sími 25 406 Heimas. 24 141 224 NOTRE DAME AVE. Winnipeg, Man. Phone 96 647 MEYERS STUDI0S LIMITED Largest Photographic Organiza- tion in Canada. STUDIO PORTRAITS C0MMERCIAL PH0T0S Pamily Groups and Children a Specialty Open Evenings by Appointment LAFAYETTE H0LLYW00D Studios Stndios 189 PORTAGE Av. SASKATOON Winnipeg, Man. Sask. We SpeciaUze in Amateur Developing and Printing Murphy’s 715|/2 Ellice Ave. PHONE 37 655 SPECIALIZING IN Fish and Chips per Order 15c Fish per Order 5c Chile Con Carne per Order 16c Salishury Snacks lge. lOc small 5c Orders Delivered Anywhere 11. a. m. to 12.30 a.m. CURB SERVICE Open Sundays from 4 p,m.—1 a.m. Visit the New Modern BEAUTY SAL0N (George Batchelor) Assisted by fully experienced Operators Only FEATURING Guaranteed Croq., Push Up $1.50 OPENING SPECIALS Finger Wave or Marcel.35c With Shampoo .......60c Other Waves at $250—$7.50 COQUETTE BEAUTY SAL0N 285 EDMONTON ST. First Door North of Portage MISS L. BACKMAN MISS A. PETERSON Formerly with the New York Hairdressing Parlor. Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annast grelðlega um alt, sem aS flutnlngum lýtur, imlum eða atór- um. Hvergi sanngjarnara verð Heimill: 762 VICTOR STRBET Slml: 24 500 Distinguished Citizens Judges, Former Mayors, Noted Educationists, Editors, Leading Laicyers, Doctors, and many Prominent Men of Affalrs—send their Sons and Daughters to the DOMINION BUSINESS COLLEGE When men and women of keen discernment and sound judgement, after fuU and painstaking enquiry and investigation, select the Dominion Business College as the school in which their own sons and daughters are to receive their training for a business career, it can be taken for granted that they considered the many ad- vantages offered by the Dominion were too important to be over- looked. The DOMINION BUSINESS GOLLEGE today offers you the best business courses money can buy, and that at a cost that brings it easily wlthin your reach. An ordinary business course no longer fills one’s requirements. It is the extra measure of skill and knowledge conferred by a Do- minion Training that singles on J out for promotion in any modern business office. It has always been a good investment to secure a Dominion Train- ing—but today, more than ever, it is important that you secure the best obtainable in order to eompete worthlly in the years to come. Onr Schools are Located 1. ON THE MALL. 3. st. JOHNS—1308 Main St. 2. ST. JAMES—Corner 4. ELMWOOD—Corner College and Portage. Kelvin and Mclntosh. JOIN NOW Day and Evening Classes You May Enroll at Any One of Our Four Schools With Perfect

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.