Lögberg - 24.05.1934, Blaðsíða 1

Lögberg - 24.05.1934, Blaðsíða 1
47. ARGANGUR || WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 24. MAl 1934 ' | NÚMER 21 FRA, ISLANÐI . Hér eru birtar myndir af nokkrum íslenzkum námsmönnum, sem útskrifuðust frá háskóla Manitoba fylkis í vor. Myndir þessar voru góðfúslega lánaðar af mönnum þeim, sem umsjón höfðu með árbók háskólans þetta ár. Þvi miður gat blaðið ekki flutt aðrar myndir en þær, sem þar birtust. Blaðið vill þakka þeim Mr. Norman Bergman og Mr. Kára B jerring fyrir þá hjálp sem þeir létu blaðinu í té viðvíkjandi þessum myndum. Myndirnar frá vinstri til hægri—efri röð : Roy H. Ruth, B.A.; Stanley H. Samson, B.Sc.; María S. Jónsson, B.A.; Tryggvi J. Oleson, B.A.; Kári H. Bjerring, B.Sc. Neðri röð (frá vinstri til hægri) : Norman St. Bergman, B.A.; Percival Johnson, M. D.; Tryggvi Ingaldson, Diploma in Agriculture; Helen E. Johnson, B.Sc.; Myrtle Th. Thorvaldson, B.A. Bretar hlutlausir ÍSLENZKA VIKAN Akureyri 27. apríl. Hún hófst á sunnudaginn. Ýmsar verzlanir höfðu um nóttina útbúið sérstakar gluggasýningar fyrir ís- lenzkan varning og snemma morg- uns voru fánar dregnir á stengur víðsvegar um bæinn. - Klukkan 2 hóf Lúðrasveit Reykjavikur hljómleika á Austur- velli og hafði fjöldi fólks safnast þar saman. Klukkan 2.15 kom Þor- steinn Briem atvinnumálaráðherra fram á svalir Alþingishússins og á- varpaði mannfjöldann með ræðu. Þeirri ræðu var útvarpað, og á síma- stöðinni voru tvö gjallarhorn. Hann talaði um íslenzkan iðnað og íslenzka sjálfsbjörg, rakti hvern- ig þjóðin hefði fyr á öldum lært að búa sem mest af sínu, hvernig þetta breyttist á undanförnum áratugum með breyttum atvinnuskilyrðum og lifnaðarháttum, og hvernig þetta yrði nú að færast í hið fyrra horf, þjóðin að læra að nýju hið gamla spakmæli: “Holt er heima hvað.” Að því loknu lék Lúðrasveitin aftur nokkra stund. Um sama leyti gengu skátar í langri fylkingu um bæinn. Báru þeir með stuttu millibili stangir og var stór stafur á hverri. Þegar horft var á hlið fylkingarinnar mynduðu þessir staf ir: “Kaupið íslenzkar vör- ur.” Fylking þessi fór víða um bæ- inn og var þetta tákn þess, að skátar vilja leggja íslenzku vikunni lið sitt. —Mbl. 24. apríl. MAÐUR DRUKNAR HJA VESTMANNAEYIUM í fyrrakvöld seint voru 2 eða 3 trilubátar ekki komnir að landi. Maður að nafni James White (ís- lendingur) vildi þá fá vélbáta til þess að fara út að leita að þeim, því að bróðir hans var á einum bátnum. En einhvern veginn fórst það fyrir að leitað yrði, mun formönnum ekki hafa þótt þess þörf, því að veður var sæmilega gott, en dálítil snjó- mugga. Mun James hafa sárnað þetta. Hann átti sjálfur lítinn vél- bát, yfirbygðan að hálfu, og hafði notað þann bát *til ferða milli skipa og lands, aðallega til þess að flytja lækni um borð í skip. Hann tók nú þennan bát sinn og lagði á stað til þess að leita að bróður sínum. En þegar hann kemur fyrir klettinn á Heimaey, kom vélbáturinn “Veiga” þar á móti honum. Sá hvorugur annan fyr en þeir mættust þarna og rákust saman. Bátur James sökk samstundis og druknaði maðurinn. “Veiga” fór út til veiða í fyrri- nótt aftur og var ekki komin úr róðri þegar blaðið talaði við Vest- mannaeyjar í gær. Var því ekki hafin rannsókn í málinu. En heyrst hafði eftir bátverjum á “Veigu,” að James hefði stýrt öfugt þegar hann sá til þeirra, og þess vegna hefði áreksturinn orðið.—Mbl. 24. apríl. VERKAMANNABOSTAÐIR 7 HAFNARFIRÐI Á fundi, sem bæjarfulltrúar sjálf- sr.æðismanna boðuðu til síðastliðinn sunnudag, var stofnað Byggingar- félag verkamanna í Hafnarfirði. Stofnendur voru 30. Á fundinum voru samþykt lög fyrir félagið og kosin bráðabirgðastjórn. Skipa hana Loftur Bjarnason bæjarfull- trúi, Þorleifur Jónsson ritstjóri og Ólafur Bíjörnsson bifreiðarstjóri. Tilgangur félagsins er, að koma upp góðum og hentugum íbúðarhús- um fyrir verkamenn og sjómenn og aðra þá, er uppfylla þau skilyrði, sem sett eru í lögunum um verka- mannabústaði frá 1931, enda er fé- lagið stofnað og því ætlað að starfa samkvæmt þeim lögum.—Vísir 27. apríl. SJOKRAHOSBYGGING A HOSAVIK Húsavík 20. apríl. Sjö félög hér á Húsavík hafa í vetur beitt sér fyrir fjársöfnun til sjúkrahúsbyggingar hér á Húsavík. Var fyrst haldin hlutavelta, síðan var komið af stað krónuveltu, og hefir þannig safnast allmikið fé. Nokkrar gjafir hefir spítalasjóður fengið. Þar á meðal hefir Kaupfé- lag Þingeyinga heitið 1000 krónum. Spítalanefndin hefir ákveðið að halda aðra krónuveltu á næsta hausti. Ennfremur er ráðgert að halda skemtisamkomur 17. júlí, til arðs fyrir spítalann. Formaður Spítalanefndar er séra Friðrik Friðriksson.—Vísir. SNJÓR I SIGLUFIRÐI Frá Siglufirði er símað að þar sé óvenju mikill snjór um þetta leyti árs, og eru mannhæðar háir skaflar á götunum.—Mbl. 24. apríl. SJOKRAHOSIÐ / STY KKISHÓLMl Nýlega er hafin vinna við bygg- ingu sjúkrahússins, og hafa Meul- enberg biskup og Sigurður Guð- mundsson húsameistari verið á ferð í Stykkishólmi, til eftirlits.—Góðar horfur eru með atvinnu hér í Stykk- ishólmi í sumar og fram á haust, við þessar byggingar, auk annara. —Visir 2i. apríl. SKIPUN VARALÖGREGLU Fjörutíu menn hafa verið skipað- ir í varalögreglu og telst skipun þeirra frá 25. þ. m. Varalögreglan var sl.ipuð á síðasta bæjarráðsfundi. —Erlingur Pálsson fulltrúi hefir á hendi stjórn varalögreglunnar, auk þess sem hann hefir á hendi stjórn bæjarlögreglunnar.—Vísir 27. apríl. MAÐUR VERÐUR BRAÐKVADDUR Akureyri 27. apríl. Þegar Nóva fór frá Akureyri í gærkvöldi, var meðal farþega þaðan Ingólfur Kristjánsson skipstjóri frá Framnesi, Norðurgötu 19. Ætlaði hann til Noregs, til að sækja skip. Þegar Nova kom út hjá Hjalteyri, ætlaði Ingólfur að hátta, en í því hann ætlaði upp í rekkjuna, féll hann út af, og var þegar örendur. Nova sneri þegar við og skilaði líkinu i land. Ingólfur var um sextugt, vel met- inn maður, og þótti afbragðs sjó- maður. Hann hafði verið skipstjóri á ýmsum veiðiskipum frá Akureyri og var lengi stýrimaður á flóabátn- um Unni, og á Drangey. Ingólfur lætur eftir sig konu og fimm börn. MAÐUR HVERFUR Björn Björnson, Suðurgötu 16 á Siglufirði, ættaður frá Svarfaðar- dal, var horfinn úr rúmi sínu kl. 5 í gærmorgun. Hans var leitað allan daginn í gær og i nótt, meðfram öllum bryggjum á Siglufirði, en árangurslaust. SKIPASMIÐASTÖÐ OG DRATTARBRAUT Gunnar Jónsson, bátasmiður, á Akureyri, hefir keypt dráttarbraut- ina og hafnarbryggjuna af Ragnars- bræðrum, og reisir þar stóra skipa- smíðastöð og leggur dráttarbraut. Byrjað er á byggingu hússins. —Vísir 28. april. LANDSBANKANEFNDIN hélt futíd i gær. Þar voru kosnir tveir menn í bankaráð, Jóhannes Jó- hannesson fyrv. bæjatfógeti (end- urkosinn) og Helgi Bergs framkvst. i staðinn fyrir Héðinn Valdintars- son. Endurskoðendttr voru kosnir: Jón Kjartansson ritsti. (endurk.) og Pálmi Einarsson ráðunautur, en áður var Jörundur Brynjólfsson endurskoðandi.—Mbl. 28. apríl. Eldur í Chicago Á laugardaginn var kom upp eld- ur i sláturhúsahverfum í Chicago, i og varð hann ekki slöktur fyr en á | sunnudagskveld. Eldurinn hafði þá gert afarmikið tjón og lá nærri að hann færi unt alla borgina. Öll slökkvitæki borgarinnar voru send á eldstöðvarnar samstundis og eldur- inn kviknaði. Eftir \]/2 klukku- stund tókst að einangra svæðið, svo að borgin ekki eyðilegðist. Það var gert með þvi að sprengja upp bygg- ingar hér og þar og dæla vatni á næstu húsin. Eldinn í sláturhús- unum og gripakvíunum var ekki við- lit að slökkva og brann alt til kaldra kola á fermílu svæði. Fleiri hundr- uð gripir og svin brunnu þar. Þurkar ntiklir höfðu gengið und- anfarandi vikur og breiddist eldur- inn út með geysihraða. Annars ber það við svo að segja daglega að eld- ur komi upp á þessu svæði, en út- búnaður allur er svo góður að í f lest- um tilfellum er eldurinn slöktur næstum því samstundis. Skaðinn af þessum eldi er metinn á milli 5 til 10 miljón dollara. Tólf hundruð manns eru heimilislausir. Þvi hefir verið fleygt fyrir að verkamenn . hafi kveikt í viljandi. Einhver vandræði hafa verið í slát- urhúsunum á milli verkamanna og sláturhúsfélaganna, en enn eru eng- ar sannanir fyrir því að hér hafi verið um glæp að ræða. A sunnudaginn kom fólk í bílum frá nærliggjandi ríkjum, og er talið að um 150 þúsund manns hafi safn- ast saman til að horfa á rústirnar. Ef að slökkvivélar allar væru nú ekki miklu fullkomnari en þær voru fyrir nokkrum áratugum, er talið víst að eldur þessi hefði orðið eins skaðulegur og sá, sem geisaði í Chi- cago árið 1871. Háskólaprófin I lista þeim, sem birtur var í síð^ asta blaði, yfir þá íslendinga, sem útskrifuðust frá Manitoba háskól- anum í vor, féll úr nafn STANLEY HERBERT SAMSON. Hann hlaut nafnbótina Bachelor of Science. Stanley er sonur Mr. Jón Samson, lögregluþjóns í Winnipeg. NORMAN RICHARD JOHN- STONE, sem er íslenzkur i aðra ætt, hlaut nafnbótina Bachelor of Science, (miðað við 11. október, 1933)- Isbister Scholarship, að upphæð $40, hlaut Margrét Björnsson, dótt- ir Dr. Ólafs Björnssonar í Winni-, peg. Hún er í þriðja bekk háskól-1 ans. Isbister Scholarship að upphæð $60, hlaut Grace S. Stanley, i fyrsta bekk. Móðir hennar er íslenzk, Mrs. Jas. Stewart, í Winnipeg. SIGURÐUR SKAGFIELD Þessi ágæti söngmaður, sem nú er á förum til Evrópu, heldur kveðju- hljómleika í Sambandskirkjunni á fimtudaginn 31. maí. Hann syngur meðal annars þessi lög: Sverrir konungur, When Celia Sings og Óðins sjóferð. Stúlkubarni átolið í vikunni, sem leið tapaðist lítil stúlka frá heimili sínu við Moose- horn, Man. Hún var dóttir Mr. og Mrs. Carl Wolfrum þar í sveit. Stúlkan, sem er fjögra ára að aldri, var með föður sínum dálítinn spöl frá heimili þeirra hjóna. Maðurinn hafði verið að vinna á akri og bjó um stúlkuna í kerru, sem stóð við skógarrunna n^lægt akrinum. Móð- irin var að heiman. Seinna um daginn tók bóndinn eftir því að barnið var ekki í kerr- unni, enda gat hann ekki séð til þess nema af og til, eftir því hvar hann var staddur í akrinum. Hann tók strax hestana frá verkfærunum og fór að leita. Hvernig sem hann kallaði, fékk hann ekkert svar, og hvergi sá hann 'spor eftir barnið. Móðirin kom heim um kveldið og gerðu þau hjónin þá nágrönnunum aðvart um hvarf stúlkunnar. í fjóra daga leitaði stór hópur manna að stúlkunni, undir forustu lögreglumanna þar norður frá. Þegar stúlkan fanst ekki fóru menn að geta sér til að hún hefði verið numin á brott af einhverjum sem þannig vildi hefna sín á for- eldrum hennar. Þeir, sem til þekkja telja það vel mögulegt, þar sem ó- vinskapur hefði verið á milli manna þar í bygðinni. Sniám saman fest- ust menn í þessari trú, og kom til tals að gera aðsúg að þeim, sem grunaðir voru. Þessu varð þó af- stýrt. Á sunnudaginn, klukkan 2 e. h. fanst litla stúlkan, um tvær milur vegar frá heimili sínu. Hún var þá á leið heim til sín og virtist ómeidd. Auðséð var að hún hafði fengið nóg að borða og sætt góðri meðferð. Þetta virðist sanna það að einhver hafi stolið barninu, en ekki þorað að halda því lengur, og því slept því aftur. Fylkiskosningar í tveinmr fylkjum, Ontario og Saskatchewan, verður gengið til kosninga 19. júní n. k. Blöðin segja að Henry stjórnarformaður í On- tario og Anderson stjórnarformað- ur í Saskatchewan hafi komið sér saman um að láta kosningar fara fram sama dag í báðum fylkjunum. Það mun hafa verið gert til þess að úrslitin í öðru fylkinu, ef illa skyldi fara, yrðu ekki til þess að skemma fyrir stjórninni í hinu. Stjórnin í Ontario hefir áreiðan- lega tapað fylgi síðustu árin, en hvort óánægjan er orðin nógu mikil til þess að steypa henni frá völdum, er auðvitað óvíst, þar sem það fylki hefir til margra ára verið öflugasta vígi íhaldsflokksins hér i landi. I Saskatchewan hefir frjálslyndi flokkurinn jafnan verið mjög sterk- ur, og því líklegt að hann kornist aftur til valda, þó ihaldsmenn hafi þar góðan leiðtoga og C.C.F. flokk- urinn sé orðinn þar all-f jölmennur. Uppreisn í Búlgaríu Á laugardaginn var gerði herinn í Búlgaríu uppreisn og rak stjórnina frá völdum. Álitið er að Bioris kon- ungur hafi verið í vitorði með upp- reisnarmönnum og notað sér óá- nægju þeirra til að losna við stjórn og þing. Víst er það að konungur samþykti gerðir þeirra og lýsti því yfir að þing væri rofið. Svo var uppreisn þessi vel undir- búin að fæstir vissu hvað til stóð, fyr en alt var afstaðið. Herinn tók í sínar hendur samtímis allar stjórn- arbyggingar, herskála og vopnabúr. Ráðgjafarnir voru allir handteknir og settir í varðhald, en ný stjórn mynduð samdægurs. Hinn nýi stjórnarformaður er Kimon Georgi- eff. Stjórn hans verður einræðis- stjórn og þingræði afnumið. í höfuðborginni Sofia var skift- unum vel tekið og er þess ekki get- ið að nokkur mótspyrna hafi verið sýnd. Hin nýja stjórn hefir þegar gert grein fyrir afstöðu sinni gagnvart helstu nauðsynjamálum þjóðarinn- ar. Hugmyndin mun vera að sarrt- eina því sem næst alt vald í mið- stjórninni. Borgarstjórar allir í landinu verða hér eftir útnefndir af miðstjórninni og löggæsla verður einnig algerlega í hennar höndum. Þá ætlar stjórnin sér að styrkja að- stöðu ríkisins út á við með samn- ingum við nágrannalöndin, þar á meðal Rússland. En stjórn þess lands ætlar Búlgaría að viðurkenna formlega. Með stjórnarmyndun þessari bæt- ist enn við tölu þeirra þjóða, sem nú búa við einræði í Evrópu. Sem stendur er Búlgaría talin í hernaðar ástandi, en ef engar óspektir verða næstu daga má búast við að hern- aðarlögin verði numin úr gildi bráð- lega. Á þriðjudaginn var vildi það slys til í Chicago að stór vatnsgeymir, með 40 þúsund gallónum af vatni, féll í gegnum þak á sjö hæða hárri byggingu og alla leið niður á annað gólf. Varð svo mikill hristingur af fallinu að byggingin lék á reiði- skjálfi. Menn ætla að fjórir menn hafi dáið af þessu slysi. Sir John Simon, utanríkismálaráð- herra Breta lýsti því yfir á laugar- daginn var að brezka stjórnin álíti sig ekki skuldbundna til að vernda Kínverja gegn yfirgangi Japana, nema því aðeins að þær átta þjóðir aðrar, sem skrifuðu undir níu velda samninginn 1922, gerðu hið sama. Þessari fregn var illa tekið í Kína og segja stjórnmálamenn þar, að nú sé auðséð að Rretar ætli sér að halda vinfengi Japana og muni það stafa af því að Bandarikin og Rúss- land séu að vingast hvort við annað. Þetta sama er haft eftir rithöfund- inum George Bernard Shaw. Hann er nýkominn heirn úr ferðalagi sínu um Austurlönd. Varar hann Breta við því að sýna Japönum vináttu, því það verði aðeins til þess að styggja Bandaríkin og draga þau nær Rúss- landi. Verkfall í Minneapolis Verkfall mikið hefir staðið yfir í Minneapolis undanfarandi daga. Það byrjaði með því að ökumenn á flutningabílum þar í borg lögðu nið- ur vinnu. Nokkru seinna gerðu smiðir einnig verkfall og munu nú vera um 45 þúsund manns, sem hætt hafa vinnu. lívað eftir annað hef- ir slegið í bardaga milli lögreglunn- ar og verkfallsmanna og hafa nokkr- ir menn verið drepnir og margir meiddir. Ökumenn gerðu verkfall þegar flutningsfélögin neituðu að viðurkenna rétt þeirra til að stofna “union,” og semja um kaup og vinnutíma í samlögum. Það er siður við kennaraskólann (Normal School) hér í borginni, að haldin sé ein samkoma á ári, þar sem nemendum er skift i flokka eftir þjóðerni og verður hver flokkur að sjá um einhvern hluta skemtiskrár- innar. Vanalega hafa íslendingar tekið einhvern þátt í þessu, og þá helst með því að syngja íslenzka söngva og með því að klæðast ís- lenzkum búningum. í vetur voru ekki nema fáir ís- lenzkir nemendur við kennaraskól- ann, og þvi erfitt fyrir þá að taka mikinn þátt í þessari árssamkomu, sem fór fram í síðustu viku. Samt skýrðu dagblöðin frá því að einn íslenzkur nemandi, Eirikur Björns- son, frá Lundar, Man., hefði flutt skörulegt og mjög fróðlegt erindi um ísland og íslenzka menningu. Eiríkur er ungur maður og vel gef- inn. Hann á þökk skilið fvrir góða framkomu við þetta tækifæri.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.