Lögberg


Lögberg - 12.07.1934, Qupperneq 5

Lögberg - 12.07.1934, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. JÚLl 1934 5 og pínd til sagnar. Endalok málsiná urðu þau, a<5 elskhugi konunnar réði sig af dögum í varðhaldinu, eftir að hafa sætt ógurlegum pyndingum, en sjálf var hún látin laus, enda hafði hún, þrátt fyrir pyndingarnar, þverneitað að hafa verið nokkuð við þennan glæp riðin. Nokkru síðar voru haldnar trúar- vakningarsamkomur á kristniboðs- stöðinni þar í nágrenninu. Kona þessi kom þangað, af einskærri for- vitni, en varð fyrir þeim áhrifum að hún sannfærðist um nálægð lif- anda Guðs og sá nú sínar mörgu syndir í því ljósi. Hún varð ekki knúin til sagna með pyndingum. En nú varð hún að hlýta dómi Guðs orðs og samvizkunnar, og fór sjálf- viljug en sundurkramin rakleitt til tengdamóður sinnar og játaði á sig glæpinn. Þetta þótti tengdamóður hennar svo óskiljanlegt að í staðinn fyrir að sfiúa sér til lögreglunnar fór hún samdægurs til kristniboð- stöðvarinnar, til þess að grenslast eftir hvernig á því gat staðið að tengdadóttur hennar hafði snúist svo gersamlega hugur. Og svo fór að hún trúði einnig boðskapnum um synd og frelsi. En þegar þær báð- ar höfðu látið sættast við Guð, var ekkert framar því til fyrirstöðu að þær sættust innbyrðis. Vakningasamkomur eru venjulega haldnar nokkra daga í röð, og er þá segin saga að á fyrstu samkomun- um er áberandi' og afskaplega mikil mótspyrna. “Lögmálið verkar reiði, —er þoðorðið kom lifnaði syndin við.” Það var eitt sinn sem oftar, að nokkrir kínverskir trúboðar voru á meðal þeirra, sem löstuðu kenning- una leynt og ljóst. Einn þeira gat loks ekki á sér setið, en kvað upp úr með það á fjölmennri samkomu að þessi lögmálaprédikun væri ekki aðeins ólútersk, heldur einnig algjör- lega andstæð anda og kenningu nýja testamentisins. Honum var ekki svarað öðru en þvi, að ‘lögmálið er tyftari vor til Krists,—fyrir lögmál kemur þekking syndar.” í lok sam- komunnar sannfærðist hann loks um að til þessa hefði hann skort þá þekkingu. Hann bað um fvrirbæn og kannaðist þá meðal annars við það, að hann hefði, áður en hann varð kristinn, kviksett einkabarn, litla stúlku; hún hafði veikst, en hann vildi hana feiga. Sálarangist hans og tárum fá ekki orð lýst. 9- Eg hefi skrifað kristniboðsvin- um að jafnaði einu sinni á hverjum mánuði, en þó hefi eg sjaldan sagt frá trúarvakningunni. Það ber að skilja á þann veg, að eg vildi ganga úr skugga um áhrif og varanleik vakningarinnar. Nú hefi eg að stað- aldri haft tækifæri til að kynnast þeim áhrifum á undanförnum þrem- ur árum, bæði í lífi fjölmargra ein- staklinga og heilla safnaða. Af einstaklingum, sem álitið er að hefðu snúist, hafa mjög fáir fall- ið frá algjörlega. En' sumir hafa dregist aftur úr og standa nú í sömu sporum og áður. Fjölmargir ein- staklingar, sem hafa frelsast frá syndum sínum og orðið nýir menn, er dýrlegur ávöxtur vakningarinn- ar. Á þeim hefir orðið sú gjör- breyting að um það verður ekki deilt fremur en afturhvarf Páls postula. Mér dettur afturhvarfssaga sumra þessara manna í hug, hin langa og harða sálarbarátta áður en þeir vörp- uðu sér sem glötuðum syndurum i faðm Frelsarans, og þáðu frelsið fyrir náð einbera eins og ræninginn á krossinum. Jafnframt því að kannast við yfirtroðslur sínar fyrir Guði, gerðu þeir sitt ítrasta til að bæta fyrir brot sín eftir því er í þeirra valdi stóð. Þeir skrifuðu oft og ferðuðust langar leiðir til að biðja fólk fyrirgefningar, hefðu þeir gert á hluta þess. Menn, sem sner- ust á vakningasamkomunum í Pek- ing í vetur, endurgreiddu alls yfir 3o þúsund krónur, sem þeir höfðu ýmist stolið eða haft út með svik- samlegum hætti. Mér er kunnugt um mann, sem seldi jörðina sina upp í “svikagjöld.” Og hann hafði sagt það eftir á að þess iðraði hann ekki, því hann vildi þúsundfalt heldur vera beiningamaður og frelsa líf og sál, en selja sig glötuninni fyrir rangfengna pehinga. Sbr. vitnis- burð Davíðs konungs: “Heldur vil eg standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns, en dvelja í tjöldum ó- guðlegra.” Eg hefi áður minst á kínversku vakninga prédikarana, sem nú ferð- ast margir landshornanna á milli og eru einn hinna mörgu ávaxta vakn- ingarinnar. Þá hafa og innbornir samverkamenn “kristniboðanna end- urnýjast; sumir þeirra hafa tekið þeim stakkaskiftum að þeir eru naumast þekkjanlegir. Mér er ekki betur kunnugt en að vakningunni haldi þar alstaðar á- fram, sem hún einu sinni hefir byrj- að. Þar sem áður réði helkuldi kæru- leysisins er nú blómstrandi safnað- arlíf. Safnaðarmeðlimum fjölgar örar en nokkru sinni fyr. Um 90 manns fullorðinna, hafa tekið skirn og gengið inn í söfnuðina, sem eg þjóna, síðustu mánuðina þrjá. Sjálfboðastarf hefir aukist að miklum mun, en er þó ekki skipu- lagsbundið, nema að nokkru leyti. Þannig hafa verið myndaðir ótal trúboðsflokkar, sem halda samkom- ur og útbreiðslufundi á meðal heið- inna manna einkanlega. Það ræt- ist nú vor á meðal, sem sagt var um meðlimi frumsafnaðarins: ‘En þeir fóru viðsvegar og boðuðu orð fagn- aðarerindisins.” 10. Eg vil líkja trúarvakningunni í Kina við vorleysingar á íslandi. Trúarvakning er líkt og vorleys- ing mikil Guðs gjöf, já, blátt áfram lífsnauðsyn. En trúarvakning er einnig lík vorleysing að þvi leyti, að hún er umrót, bylting, sem mikl- ar áhættur fylgja, en einnig miklir möguleikar. ólafur Ólafsson. Oxford hreyfingin STARF OG STEFNA. Þessum andlegu samtökum eykst svo mikið fylgi meðal lærðra og leika i flestum löndum heimsins; en af því að þessi hreyfing er lítt þekt meðal vor, þá finst mér að íslend- ingar ættu að gefa þesSum kristi- legu samtökum meiri gaum. Og þvi fara hér á eftir upplýsingar um þessi samtök, þýddar úr nýlega út- gefinni bók “What is the Oxford Movement.” B. J. J. “Og það skal ske að síðustu, segir Drottinn, að eg mun blása mínum anda i alla lýði, og synir yðar og dætur munu spá, æskumenn sjá sýnir og öldungum yðar vitranir birtast i draumum.” Postul. Gjörn- ingar 2, 17. Þú getur ekki sameinast þvi, sem nefnt er nafninu “Oxford Group,” með þvi að engin meðlimaskrá er til, engin félagstillög, reglugerð né samastaður fyrir þau samtök. Það er nafn á fólki af öllum stéttum, störfum og viðskiftasviðum, í mörg- um löndum, sem hafa falið æfi sína Guði, og eru að reyna að lifa hinu andlega lími með leiðbeiningu Heil-, ags anda. Þetta eru ekki trúarbrögð; hefir ekki klerkastétt, ekki kirkjur, engar fasteignir; þeir, sem að því vinna fá ekki kaup og enga ráðasetning nema Guðs ráðagerð; öll lönd eru þeirra ættjörð, allir menn þræður þeirra. Þeir eru Heilagir Pílagrímar i nútíð- ar gerfi, klæddir andlegri harneskju. Þeirra markmið er: “Ný skipun ver- aldar fyrir konunginn Krist.” Mjög mörgum er ókunnugt um, að hin svokallaða “Oxford Group” og “Oxford Movement eru sitt hvað. Af hendingu, fremur en ráði, er svo kallað, að athöfnum hins fyr- nefnda á Englandi sé stjórnað frá Oxford, og þær miða til þess að fá menn til á ný, að breyta eftir sann- indum einfaldrar kristni; hið síðar- nefnda er katólsk endurnýjunar- vinna í ríkiskirkju Englands. Þessi stefna, sem nú er kend við Oxford Group starfar í öllum kirkj- um, hverjar sem þeirra kreddur eru, að því að koma þeim í kviarnar, sem utan þeirra eru og að vekja þá, sem inni fyrir eru til kristilegrar íhug- unar. Sú stefna heldur engu fram, nema því, sem er undirstaða allra kristilegra trúarbragða, og lætur all- an ágreining um afbrigði í kirkju- legum efnum afskiftalausan. Hún sækir til þess að oss notist að trú vorri, sem bezt, sjálfum oss og öll- um öðrum. En þetta merkir það, að lifa, með Guðs hjálp, sem líkast því lifi, sem hann hefir vísað oás á. Þegar vér hverfum af þvi ráði, sem Guð hefir gert fyrir oss, þá getum vér horfið að ráði hans aftur, með því að gefa honum líf vort, og með kristilegri viðleitni til að liía sem líkast Krists jarðneska lífi, og með Guðs tilvísun hvernig bezt er að fara að þvi, má oss takast að halda Guðs ráði og koma því til ávaxtar. Kraftaverkum líkastar eru þær líkamsbreytingar, sem stafa frá görpum þessarar andlegu stefnu. Eins og líkamleg mein geta drepið líkamann, þannig getur syndin vald- ið, ekki aðeins sálarmorði, heldur eytt til fullnustu hugarins kröftum, 'gáfum og farsæld, og karlmenn og kvenfólk, sem var ókunnugt um þetta, hafa þreifað á að með þvi að gefast upp fyrir Guði, með því að láta hann ráða athöfnum ekki siður en orðum og ráðum, hafa þau öðl- ast nýtt líf, samfara meiri gleði, far- sæld og frama en þau kunnu sér áð- Jur í luig að gera. Þau hafa öðlast nýtt lif í veröldinni, ekki síður en nýtt lif í Guði. Þeim hefir veist alt, sem þeim þótti bezt og merkilegast í lífinu, störfum og viðskiftum við aðra; lífi þeirra voru engin takmörk sett, hvorki á vídd né hæð né dýpt., sem ólikast kirkjandi prísund synd- ar. Þeim finst Kristur ekki framar vera fígúra i trúarbrögðum, heldur verða sannur, er sækja má til ótæm- ' andi vit um það, sem er að gerast, skilningshvöss og hjálpfús nærvera, þeim næsta nærri í öllu sem þeir hugsa, gjöra og tala. Nú vita þeir launung sannrar farsældar i jörðu; vita hinn andlega gróða af réttu við- horfi; kunna rétt skil á mætum lífs- ins og hlutföllum andlegra og ver- aldlegra efna. Ná þvi, ef segja skal eins og er, að verða með réttu ráði. Tákn og stórmerki hafa gerst af starfi þeirra, sem kendir eru við Oxford Group, eins og lesa má í mörgum nýjum bókum, og lýst hefir verið í heyranda hljóði af leikum og lærðum á þeirn fundum, sem haldnir eru víða um lönd og nefnast “House Parties.” Mjög margar þúsundir manna hafa borið vitni um það opinberlega, hvernig Oxford Group hefir breytt högum þeirra og hugarfari. Vitnisberar eru fúsir til að fara hvert sem er, hvenær sem er, til að hjálpa hverjum sem orðið hefir syndabyrði úr lífi sínu, og munu liðsinna þeirri mann- eskju, þar til sú er laus við vanda, og hefir skilið Krist og lífið til fulln- ustu. Engin sál er svo djúpt sokkin, enginn andlegrar lækningar þurfi svo langt leiddur, að þeir vilji ekki láta það til sín taka. Þessir menn valda auðnubrigðum og þurfa ekki annað til að skerast í, heldur en að vita hve mikið okkur liggur á að breyta um hugarfar og háttalag. Þeir vita fyrir vist, að enn gerast Krists kraftaverk meðal vor, og eru viljug verkfæri með Guðs aufúsu til að láta þau gerast. Með atbeina þessara manna hafa heimili verið varin sundrung, hjóna- bönd haldist, er ella hefðu slitnað, eiginmönnum og konum hjálpað til að skilja og elska hvort annað að nýju, einmana fólki kent að sjá, að margir eru til, sem mundu taka um- gengni og vináttu þeirra fúslega og með þökkum, og þykja sómi að, syndurum sýnt, sem eru þungt haldnir af syndum sínum, að þeir geta lausir orðið við þann þunga og fæðst á ný til andlegs frjálsræðis, bæði karlar og konur, sem hvggja á að farga sér, hætta við, og lifa gagn- sömu og farsælu lífi; ungt fólk verð- ur vart við að framtíð þess er ekki tómleg og leið, heldur full með ó- væntum atburðum og merkilegum markmiðum, sem eru þess verð að keppa að, og þeir, sem komnir eru á gamals aldur læra það, að þeir skulu njóta til fulls hvers dags, sem þeim er veitt að lifa óg að öll fánýt eftirsjá og iðrun umliðinnar æfi þeirra er álíka gagnslaus og vind- hviða, sem hefir rokið hjá. (Framh. á bls. 7) Ekkert er ánægjulegra til eignar en GODUR BATUR til að flytja mann burt frá öllum áhyggjum dagsins Einn snúningur vélarinnar, eða nokkur hraustleg áratog og þú ert kominn langt burt frá öllum áhyggjum. Góður bátur þarf ekki að kosta mikið. Það eru ótal tegundir til, að mæta öllum þörfum og allra kaupgetu til sýnis í Eaton Annex, — stórir bátar, litlir þátar; hraðskreiðir bát- ar og skemtifleytur. Bátar sem hægt er að setja vélar í The “Lakeside Special” —er nýjasta viðbótin við Petersborough flotann. Fallegur bátur, þrisætaður—má nota með “out-board” vél. Bygður úr cedar plönkum með kopartengslum—oliuborinn að utan. Tvö sæt- in með baki. Tekur alt að 12 hest afla vél; einnig góður til róðrar. Með tveimur árum. Verð $115.00 The “Lakeside Standard” Sterkur bátur, ágætur til fiskiveiða eða skemtiróðra. Má nota með 4 hestafla vél, og er auð- veldlega róið. Sedrus-plánkar-—kopartengsli—viðurinn með náttúrlegum litum. Verð— $108.00 The Peterborough Speedster Sjáið þennan bát þjóta eftir vatninu! Stærri bátur, sem tekur 22 hestafla vél. Viðarverkið af beztu gerð. Sætin með baki, sem hægt er að taka niður. Með öllum útbúnaði og tveimur árum. Verð, hver—$145.00 The Gadabout Öruggur bátur fyrir alla fjölskylduna, með striga-þaki. Útbúinn með Spoinson loft-klefum, sem varna bátnum að sökkva eða hvolfast. Jafn hentugur fyrir “out-board” vél eða árar. Með öllum útbúnaði og tveimur árum. Verð—$145.00 CANOES Petersborough og Chestnut lystibátar EgI!jlKf,'TfPritn'!'!!H!í1'1^ -þaktir með seglcþik. Útbúnir með rimla-þóftum. Með tveimur árum. Verð—$69.00 “Safety First” Sponson —með innibyrgðum loftklefum. 16 fet á lengd. Þak úr segldúk. Með tveimur árum. Verð $115.00 Komiát sem fyrát af átað með Viking mótorunum Þessi ábyggilega 4 hestafla vél getur knúið bátinn þinn á fleygiferð, þegarVþú vilt taka þér hvild eftir hita og þunga dagsins. Takið eftir þyngdinni—aðeins 39 pund—samt hefir hún nóg- an kraft til að knýja vanalegan bát og getur einnig dregið flutningabáta. Carburetor útbúinn þannig að ekkert vatn kemst að honum. Kælitæki ágæt, “Exhaust” pípan undir vatnsborði. \’erð—$1J 9.50 Main Floor Annex <*T. EATON C°„,T„ WINNIPEG - CANADA

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.