Lögberg - 09.08.1934, Page 1

Lögberg - 09.08.1934, Page 1
PHONE 86 311 Seven Lines a u«étca For Service and Satisfaction PHONE 86 311 Seven Lines R'J’S (Ot a U's: \X _ ,v^VVV For Better Dry Cleaning and Laundrj 47. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIM'TUDAGINN 9. ÁGÚST 1934 NÚMER 32 FRÁ ÍSLANDI MAÐUR HVERFUR SiÖastliðinn þriÖjudag, io^ júli, hvarf Bjarni Björnsson bóndi á Eystra-Geldingalæk í Rangárvalla- sýslu og hefir ekkert til hans spurst síðan. Hann hvarf kl. 8 að morgni en eftir 2 klst. v^r hans leitað og síðan alla daga vikunnar, en árang- urslaust. Húfa hans fanst á vegin- um fast við Rangá, og er talið víst, að hann hafi druknað í ánni. Bjarni var yfir sjötugt.—Mbl. 17. júlí. FRA NORÐFIRÐI 16. lÚIJ Stjórn Síldarverksmiðjunnar bauð í dag bæjarstjórn og fleiri gestum að skoða hina nýju síldarverksmiðju og sjá hana starfa. Páll Þormar konsúll, formaður stjórnarinnar sýndi gestunum vél- arnar og útskýrði vinnubrögð þeirra, frá því að sildin kemur i þrærnar og þar til hún er orðin að mjöli og lýsi. Síldarverksmiðja þessi er bygð í sambandi við fóðurmjölsverksmiðju þá, sem bærinn keypti af dr. Paul. Hún getur unnið úr um 300 síldar- málum á dag. Þrærnar rúma 3,000 mál. Verksmiðjan mun kosta full- gerð um 75—80 þús. krónur.—Mbl. JÓN LEIFS kom hingað til bæjarins frá Þýska- landi með “íslandi” siðast og hygt að dvelja hér á landi fram eftir sumri. Hafa allmargar tónsmíðar éftir hann komið út síðasta árið, og hlotið loflega dóma i tónlistarblöð- um og margar þeirra verið leiknar í útvarp víðsvegar um álfuna, sér staklega í Mið-Evrópu og á Norð- urlöndum, þ. á. m. hvað eftir annað til endurvarps frá öllum þýskum útvarpsstöðvum.—Mbl. 17. júlí. ÚR STRANDASÝSL U er skrifað 10. júlí: Tíðarfar er nú hlýtt og gott. Vorið var fremur kalt fram yfir hvítasunnu, en eftir það fór að hlýna og hefir verið besta tíð síðan. Grasspretta er orð- in góð á túnum og lítur vel út á engjum. Sláttur er alment byrjað- ur. Fiskafli hefir verið tregur,—Mbl. SKÝRSLA LANDSBÓKA- SAFNSINS fyrir árið 1933 er nýlega komin út. Við árslok var bókaeign safnsins alls 133,308 bindi, en handrit 8,304. Á árinu eignaðist safnið 2,248 bindi af prentuðum bókum og 13 handrit. Á lestrarsal safnsins komu 17,949 lesendur á árinu og frá útlánssal voru lánaðar 8,300 bækur. —N. dagbl. 13. júlí. LOFTSKEYTASTÖÐIN 1 REYKJAVÍK Nýlega hafa farið fram margvís- legar endurbætur á Joftskeytastöð- inni í Reykjavík. • Viðtöku og sendisalur stöðvarinnar hefir verið stækkaður talsvert og þar settir upp tveir nýir sendarar, stuttbylgjusend- lr og sameinaður milli- og lang- bylgjusendir. Orka beggja sendar- anna 0.5 kw. í loftneti. Með stutt- bylgjusendaranum hefir náðst sam- hand við flestar stuttbylgju stöðvar í Evrópu (þeirra, er annast send- ingar til skipa) og til nokkurra stöðva í Ameríku. — Stöðin hefir haft samband við fjölda skipa út um allan heim og sýnir þessi reynslu- tími að stuttbylgjusendarinn ætlar að reynast vel og koma að tilætluð- um notum. Öll skeytaviðskifti milli íslands og Grænlands fara nú fram á stuttbylgjum. Hinn sendarinn er fyrst og fremst ætlaður til við- skifta- og, talstöðvar, en þeim fjölg- ar nú óðum í íslenzkum og erlend- um skipum. Má nú segja að loft- skeytastöðin í Reykjavík sé svo vel út búin að hún standi mjög framar- lega í röð nýtísku landátöðva. —Mbl. 15. júlí. VIDSKIFTAMAL ISLENDINGA OG ÞJÓÐVERJA Eins og skýrt hefir verið frá hér í blaðinu, fór Jóhann Þ. Jósefsson alþm. utan snemma í vor á vegum ríkisstjórnarinnar, til þess að leita samninga við þýsku stjórnina um ýms viðskiftamál þjóðanna. Jóhann dvaldi all-lengi í Þýska- landi og ræddi viðskiftamálin við þýsk stjórnarvöld. Var þá lagður grundvöllurinn að samningum í ýms- um málum, en endanlegir samning- ar skyldi gerðir siðar. Þannig hafði Jóhann lagt samkomulagsgrundvöll um sölu á ísfiski héðan til Þýska- lands, þótt ekki væru samningar undirskrifaðir áður en hann fór heim í sumar. En samkvæmt sím- skeyti, sem ríkisstjórninni barst i gær, eru nú allar líkur á að þýska stjórnin fallist á þenna samkomu- lagsgrundvöll, en hann er sá, að við fáum að selja ísfisk í Þýskalandi fyrir 200 þúsund ríkismörk á mán- uði, yfir mánuðina ágúst, september, október og nóvember á þessu ári. Þessir samningar geta haft mikla þýðingu fyrir togaraflota okkar, svo framarlega sem ró kemst á í Þýska- landi og aðrar ástæður ekki valdi því, að ótrygt þyki að selja fisk þangað. Jóhann Jósefsson fór aftur utan með Lyru í gær, einnig á vegum* ríkisstjórnarinnar. Fer hann enn til Þýskalands til þess að halda áfram samningum um önnur viðskiftamál þjóðanna. Væri óskandi að þeir samningar mættu vel takast. —Mbl.'13. júlí. SÆNSKUR LEIKFIMISFLOKKUR Reykjavík 15. júlí. Hingað kom með “íslandinu” síð- ast 16. manna leikfimissveit frá Svíþjóð. Fimleikastjórinn og for- ingi fararinnar er Jan Ottoson, leik- fimiskennari við lýðháskólann í Tárna í Svíþjóð. Ottoson var hér á ferðalagi fvrir 10 árum, sá hann þá íslenzka glímu, leist vel á hana og fekk því mann héðan til Tárna til þess að kenna þar glímu dálítinn tíma, sem hefir svo öðru hvoru verið iðkuð þar síð- an." Til Tárna hafa fleiri íslendingar farið en glimumenn. Þangað hafa margir aðrir farið og m. a. stúlkur til þess að læra þar matre;iðslu síld- ar o. fl. Siðustu 10 árin hafa verið um 50 íslendingar á Tárna við nám. Leikfimiskennarinn, Jan Otto- son er einn af þektustu leikfimis- kennurum Svíþjóðar. Sérstaklega hefir hann barist fyrir byggingu gufubaðstofu af finskri gerð á sveitabæjum, og hefir orðið svo vel ágengt, að flestir bæir í því léni, þar sem hann er búsettur, hafa nú gufu- baðstofur. Næsta haust hygst Ottoson að setja á stofn sinn eigin leikfimis- lýðháskóla, sem verður sá fvrsti i Svíþjóð. Til þessa skóla hefir hann fengið stóran herragarð að gjöf, sem er 250 þús. kr. virði, og auk þess sjóð, sem gefur honum árlega 10 þús. kr. í tekjur. Þetta gefur nokkra hugmynd um dugnað Otto- sons og hvers trausts hann nýtur í föðurlandi leikfiminnar. Sá flokkur, sem Ottoson er með hér, eru nemendur hans úr lýðhá- skólanum. Það eru menn, sem til- tölulega stuttan tíma hafa stundað leikfimi og flestir ungir, á aldrin- um 16—20 ára. Það sætif því undrum hve ágætir leikfimismenn þeir eru. í flokknum er meðal annara einn íslendingur Jónas Jónsson frá Brekknakoti í Reykjahverfi. —N. dagbl. Uppskeruhorfur slæmar Uppskeruhorfur í ýmsum bygðum Islendinga hér vestra eru nú mjög slæmar. f kringum Minneota er nú byrjað að þreskja og er upp- skeran mjög rýr—3 til 4 mælar af ekrunni—eftir því sem Minneota Mascot segir. í Norður Dakota hafa verið mikl- ir þurkar og ofsahitar. Uppskera í íslenzku bygðunum í kringum Mountain verður fremur litil og heyskapur næstum enginn. Sama er að segja um Mouse River hérað- ið. Vestur í Argyle er kornslætti að mestu lokið. Víðast hvar þar um slóðir verður uppskeran talsvert neðan við meðallag. Fóðurskortur verður þar einnig sumstaðar. í Vatnabygðum og norður i kring- um Churchbridge er útlit fyrir sæmi- lega og máske góða uppskeru. Norðurhlulti Manijtoba og Sas- katchewan fylkja hafa í sumar feng- ið nóg regn og útlitið þar miklu betra en suður frá. Skeyti frá íslandi Reykjavík 3 945P Ásmundur Jóhannson, 910 Palmerston Ave., Winnipeg, I tilefni af sextíu ára minningar- hátíð íslendingafélagsins Vísir i Milwaukee, sendir ríkisstjórn Is- lands og íslenzka þjóðin Þjóðræknis- félagi Vestur-íslendinga innilegar heillaóskir með gæfuríkt starf Is- lendingaf élagsins. Forsætisráðh. Hermann Jónasson. Ámi Frederickson Leikkona deyr Á laugardaginn 29. júlí dó úr krabbameini, leikkonan fræga Marie Dressler, á sjúkrahúsi í Santa Barbara, Calif. Hún var 62 ára að aldri. Marie Dressler fæddist í Cobourg, Ont. Ung að aldri byrjaði hún að gefa sig við leiklistinni og varð brátt fræg, enda var hún sérstökum hæfi- leikum gædd á því sviði. Árið 1914 tók hún að leika i skop- myndum Mack Sennetts, en hætti því fljótlega og gaf sig aftur að leiksviðinu. Þá kom stríðið og Marie Dressler ferðaðist um öll Bandaríkin og seldi Victory Bonds. Að stríðinu loknu varð hún aftur að gefa sig við kvikmvndun, þvi hún var þá félaus með öllu. Náði hún brátt miklum vinsældutn, og það þó sérstaklega eftir að talmynd- irnar komu. Einna frægust varð hún fyrir hlutverk sitt í myndinni “Min and Bill.” Þetta skeyti, sem sent var hr. Ás- mundi Jóhannssyni, kom ekki hing- að fyr en að J. J. Bíldfell, forseti Þjóðræknisfélagsins var farinn suð- ur til Milwaukee, sem fulltrúi fé- lagsins á hátíðina, sem þar var hald- inn á sunnudaginn var. Skeytið var því sent til hans og lesið á hátíðinni. Einnig var það lesið á íslendinga- deginum að Gimli á mánudaginn. Öllum Islendingum hér vestra þykir eflaust vænt um þann hlý- hug til okkar, sem þetta skeyti ber vott um. Einnig fekk maður með þessu skeyti fyrstu ábyggilegu frétt- ina um það hver hinn nýi stjórnar- formaður er. Hermann Jónasson lögreglustjóri í Reykjavík og j)ipg- maður fyrir Strandas^slu er for- sætisráðherra íslands. Hverjir hin- ir ráðherrarnir eru vitum vér ekki, enn sem komið er. Winnipeg sýningin I tilefni af því að Winnipegborg er nú orðin 60 ára, var ákveðið að stofna til mikillar sýningar á þessu sumri. Sýning þessi byrjaði á laug- ardaginn var og stendur yfir í viku. Hún er haldin í River Park. Margt til skemtunar og jafnvel til fróðleiks hefir verið sett á sýning- una. Einn stærsti þátturinn eru veðreiðarnar og leikir “kúreka,” þeirra beztu, er nú eru uppi hér í álfu. Aðsókn hefir verið mjög góð hingað til. Á mánudaginn sóttu um 33 þúsund manns sýninguna. Sidney Smith kominn Sidney E. Smith, hinn nýi for- seti Manitoba háskólans, kom til Winnipeg á þriðjudagsmorguninn, til þess að taka við starfi sínu. Með honum var kona hans og dætur þeirra tvær, báðar á unga aldri. D. C. Coleman, formaður háskóla- ráðsins, J. W. Dafoe, kanzlari há- skólans og aðrir velþektir borgarar, mættu þeim hjónum á járnbrautar- stöðinni. Sidney Smith er yngsti maður, sem gegnir forsetaembætti við nokk- urn háskóla hér í landi. Hann kem- ur frá Halifax, þar sem hann hefir veitt lagadeild Dalhousie háskólans forstöðu undanfarið. Skeyti hefir borist um það, að andast hafi í borginni Vancouver, 1. þ. m., öldungurinn alkunni Árni kaupmaður Frederickson, eftir langt og erfitt sjúkdómsstríð. Er þar á bak að sjá einum þeirra manna, er fremstir stóðu í fylkingu íslenzkra fyrirliða á landnámstíð og lengi ruddu brautir í íslenzku félagslífi. Árni var um langt skeið kaupmað- ur hér í Winnipeg og fyrstur allra íslendinga hlaut hann sæti í stjórn borgarinnar. Hann var einn stofn- enda Fyrsta lúterska safnaðar og kirkjufélagsins. Hann var og einn af stofnendum “Lögbergs.” Æfi- saga þessa merka Vestur-Islendings verður óefað ítarlega sögð á sínum tíma. íslendingadagurinn í Hnausa Þessi þjóðhátíðardagur íslend- inga við Winnipegvatn var haldinn fimtudaginn 2. ágúst á Iðavöllum við Hnausa. Fjöldi manns viðsvegar frá Nýja íslands bygðum var samankominn, og nutu allir hinnar heztu skemtunar við ræðuhöld og íþróttir. Ræðurnar fluttu þeir séra Björn B. Jónsson, séra Eyjólfur Melan og Dr. S. E. Björnson. Ræða séra B;jörns er prentuð hér í blaðinu. Einnig tóku til máls nokkrir gestir, sem forseti dagsins, Sveinn Thor- valdsson, bauð upp á ræðupallinn. Meðal þeirra voru þeir Joseph T. Thorson, K.C., og Walter Lindal, K.C. Margar íþróttir voru sýndar um daginn, og fóru þær vel fram. íslendingadagur þessi var í alla staði hinn ánægjulegasti. Tillög lækkuð Stjórnarformenn hinna ýmsu fylkja i Canada, fóru austur til Ottawa á dögunum, til þess að ræða við Bennett forsætisráðherra um til- lög sambandsstjórnarinnar til fram- færslu atvinnulausra. Bennett tók þó afstöðu, að þar sem nú væri meira um vinnu en ver- ið hefði, þá sýndist stjórninni ekki nauðsynlegt að greiða eins stórar fjárupphæðir til fylkis- og sveita- stjórna og áður. Vildi hann að fylkin tækju að sér að sjá fyrir sér og sínum, eftir því sem helst væru möguleikar til. Hon. Thascherau frá Quebec og Hon. Mitchell Hep- burn frá Ontario mótmæltu þessu og neituðu að taka á sig aukna ábyrgð. Þegar samkomulag náðist ekki, þá gengu þeir af fundi. Hinir stjórnarformennirnii; fóru gætilegar í sakirnar og reyndu að sýna Bennett fram á það, að fylkin væru þegar alt að því gjaldþrota og myndi þeim ókleift að sjá fyrir styrk til atvinnulausra manna. Bennett var i fyrstu til með að greiða til Manitobafylkis eina $100,000 á mánuði í stað $200,000, eins og ver- íð hefir síðastliðið ár. Loks varð það að samningum, að þetta fylki fengi $135,000 úr ríkis- sjóði mánaðarlega. Enn vantar þó mikið til að þetta hrökkvi, og verður því að draga úr meðlaginu með hinu atvinnulausa fólki, ellegar að fylkið verður að taka ný lán. Hvorttveggja má heita ógerningur og mun þetta óefað valda hinum mestu vandræðum, hvor leiðin sem tekin verður. Hveiti hækkar í verði Á þriðjudaginn fór hveitiverðið upp í einn dollar mælirinn i korn- söluhöllinni í Winnipeg. Ekki stóð þetta þó lengi, því verðið féll strax aftur um eitt eða tvö cent, og hélst þar. Um miðjan júlímánuð í fyrra náði hveitið þessu verði, þótt ekki stæði það lengi. Margt bendir til þess að verðið geti haldist eitthvað svipað og það er nú, því útlit er fyrir mjög rýra uppskeru bæði í Bandaríkjunum og hér í Canada. Liverpool markaður inn er nú mun hærri en verið hefir Verðið farið upp um 20 cents síðast liðinn mánuð. Verkföll í Bandaríkjunum Síðustu mánuðina hefir verið mikið um verkföll í Bandaríkjun- um. Oft hefir horft til stórvand- ræða og í sumuml tilfellum hefir orðið að kalla út herlið til að varna skemdum og gæta réttar og laga. All margir menn hafa verið drepnir úr hópi verkamanna í San Francisco, Minneapolis, Toledo og víðar. í San Francisco hafa verið óeirðir og barda!gar af og til síð- ustu vikur. Þar var hafið als- herjar verkfall á dögunum í þeirri von að hægt væri að knýja vinnu- veitendur til þess að ganga að kröfum uppskipunarmanna þar við höfnina, en þeir urðu fyrstir til að leggja niður vinnu. Eftir fá- eina daga lauk alsherjarverkfall- inu, oíg hinu mun nú lokið einnig. 'j Allstaðar berjast verkamenn fyrir því sama. Þeir vilja fá vinnu- veitendur til þess að viðurkenna rétt verkamanna félaganna til þess að semja um kaupgjald 0g vinnukjðr. Einnig vilja þeir að meðlimir verkamannafélalga sitji fyrir allri vinnu. í Minneapolis hófu ökumenn vöruflutningabílanna verkfall fyrir einum þrem vikum, og síðan hafa nokkur^ önnur verkamannafélög gengið í lið með þeim. Þar í borg er nú alt í uppnámi og götu bar- dagar á hverjum degi. Ríkisstjórinn Floyd B. Olson lét kalla út ríkisherinn á dögunum og lýsti Minneapolis í hernaðar á- standi. Síðan hafa vopnaðir menn gengið í fylkingum um götur borg- Hindenburg deyr—Hitler verður forseti Paul von Hindenburg dó á fimtu- dagsmorguninn 2. ágúst s. 1., á bú- garði sinum í Neudeck í Austur- Prússlandi. Hann var 86 ára að aldri. Hitler tók við forseta embættinu um leið og fréttin um lát Hinden- burgs kom til Blerlín. Það voru lög Þýskalandi að yfirdómari hæsta- réttar skyldi gegna forseta embætti, >ar til lögmætar kosningar gætu fariS fram. Þessum lögum hafði Hitler látið breyta á stjórnarráðs- fundi kveldið áður en Hindenburg dó, og er því nú bæði kanzlari og forseti Þýskalands. Hindenburg var lagður til hvíld- ar í Tannenberg, (þar sem hann ann hinn fræga sigur á Rússum um haustiS 1914), þótt hann hefði mælst til þess að vera grafinn í Neudeck. Hindenburg á langa og viðburða- ríka sögu að baki. Hann var full- tiða orðinn þegar Þjóðverjar börð- ust við Frakka árið 1870. I því stríði fekk hann orð á sig sem ágæt- ur hermaður. Hann smá hækkaði í tigninni, þar til hann varð hershöfð- ingi. Þegar stríðið mikla byrjaði 1914, var Hindenburg að mestu leyti hættur að fást við hernaðar- mál, enda lítill vinskapur með hon- um og Vilhjálmi keisara. En þeg- ar Rússar óðu inn í Austur-Prúss- land, seinnipart sumars 1914. °g Þjóðverjar fengu ekkert viðnám veitt, þá var skorað á Hindenburg að taka við forystu hersins á þeim slóðum. Eftir nokkrar vikur hafði honum tekist að koma rússneska hernum inn í Masurian flóana, en þar fórust tugir þúsunda af Rúss- um, og biðu þeir hinn mesta ósigur fyrir Þjóðverjum. Eftir stór- orustuna við Tannenberg varð Hindenburg þjóðhetja og hélzt frægð hans óskert til hins síðasta. Þó að Hindenburg reyndist nýt- ur hershöfðingi á meðan á stríðinu stóð, þá sýndi hann kjark sinn og þrek iniklu betur, þegar hann, að loknum ófriði leiddi hinar sigruðu hersveitir aftur til Þýskalands, eftir flótta keisarans. Hindenburg var það að þakka að lýðveldið komst á fót, því að hinn aldni hershöfðingi bauð aðstoð sina til þess að koma á friði og stjórn í landinu. Að þessu starfi loknu dró Hind- enburg sig aftur í hlé. Sundrung og flokkadráttur héldu stöðugt á- fram að aukast og hver hendin var upp á móti annari. Árið 1925 var hann beðinn að gefa kost á sér til forseta. Það gerði hann og var kosinn með miklum atkvæðamun fram yfir alla andstæðinga. Eftir að Hindenburg varð forseti vann hann að því að sameina þjóÖina, þótt árangurslaust yrði. Seinni árin sá hann fylgi Hitlers aukast sí og æ, og þannig fór að lokum, að forset- inn veitti honum kanzlara-embætt- ið þegar nazistar höfðu fengið meirihluta í ríkisþinginu. Eftir að Hitler tók við og gerðist einráÖur, fór minna að bera á Hindenburg, enda var hann orÖinn fjörgamall og ekki fær um að standa í stórræðum. Samt var álit- ið að hann hefði eitthvað taumhald á nazista foringjunum, og víst er um það, að nú eru menn mun smeykari við Hitler og stjórn hans, en á meðan Hindenburgs naut við. Þrek, trúfesti og hreinskilni ein- kendu Hindenburg og gerðu hann að átrúnaðargoði hinnar þýsku þjóðar. Honum verður eflaust, er tímar líða, skipað á bekk með Bis- marck, sem einum af landsins mestu mönnum, jafnvel þó hæfileikar hins látna forseta væru hvergi nærri eins miklir og hæfileikar kanzlarans. arinnar og reynt að afstýra vand- ræðum, en íálsverðar ryskingíar hafa þó verið þar síðustu daga.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.