Lögberg - 06.09.1934, Qupperneq 1
47. ARG4NGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 6. SEPTEMBER 1934
NÚMER 36
FRÁ ÍSLANDI
Landhelgisbrot. — Varðbáturinn
Skúli fógeti tók um seinustu helgi
tvo litla vélbáta, annan frá Flatevri,
en hinn frá Reykjavík, aÖ dragnóta-
veiðum í landhelgi. Varðbáturinn
kom meS bátana hingaS, og voru
próf haldin í málinu. Dómur hefir
ekki veriÖ kveSinn upp ennþá, en
málsskjölin munu hafa verið send
stjórnarráðinu. Sagt er ,aS prent-
villa í sjómanna-almanakinu hafi
valdiS þvi, aS formennirnir á bát-
unum héldu sig hafa leyfi til drag-
nótaveiða um þetta leyti árs, ein-
mitt á þessum slóSum, sem þeir
héldu sig, er þeir voru teknir. —
Skutull 27. júlí.
* * *
Kópasker 10. ágúst.—í gærkvöldi
kviknaÖi i vélarhúsi vélbátsins Fálk-
ans á Raufarhöfn, og vélamaðurinn,
Þorsteinn Gestsson, sem var aS
koma vélinni af staS brendist mjög
á andliti og höndum. í nótt var
hann fluttur til Þórshafnar og lagð-
ur þar í sjúkrahús. Eldurinn var
slöktur áSur en verulegar skemdir
yrfiu á bátnum.—Vísir.
Bandalag íslcnckra listamanna hefir
nýlega gert rá'ðstafnir til þess, að
“Kirkjuráð hinnar íslenzku þjóð-
kirkju,” gem gaf út bókina “Við-
bætir við sálmabók,” og nefnd sú,
sem sá um útgáfuna, verði látin sæta
ábyrgð að lögum fyrir meðferð sína
á ljóðum, sem tekin voru í bókina.
Höfundar þessara sálma hafa skor-
að á Bandalag íslenzkra listamanna
að gera ráðst-afanir til þess að bókin
verði gerð upptæk. Ryggja þeir
kröfur sínar á eftirfarandi atriðum:
1) Sálmar hafa verið teknir í við-
bætinn án vitundar og leyfis höf-
undanna. 2)nefndin hefir viða felt
úr sálmunum og réttri röð erinda
hefir verið raskað. 3)Nefndin hefir
gert stórkostlegar brevtingar á sum-
um þessara sálma án vitundar og
leyfis höfunda. Hafa “Bandalaginu
þegar borist áskoranir frá átta hlut-
aðeigendum. En það eru Steingrím-
ur Matthiasson vegna föður síns,
Davíð Stefánsson, Hulda, Kjartan
Ólafsson, Ólína Andrésdóítir, Bryn-
jólfur Dagsson vegna Brynjólfs frá
Minna-Núpi, .Tón Magnússon og
Ólína Þorsteinsdóttir, ekkja Guðm.
Guðmundssonar skólaskálds. — N.
dagbl. 12. ágúst.
* * *
Jón Þorláksson hefir dvalið við
böðin í Nauheim í Þýskalandi und-
anfarnar vikur sér til heilsubótað, en
er nú kominn til London, og fer
þaðan væntanlega innan skamms
heimleiðis.—Vísir.
* * *
Húsavík 9. ágúst.—í gær lágu
fimtíu skip við síldveikar á Skjálf-
andaflóa. Nokkur þeirra tóku síld-
ina rétt framan við Húsavíkurhöfn.
Mikil sild er talin i flóanum, og
sömuleiðis á Grímseyjarsundi.
Brúarfoss kom í nótt hingað til
Húsavikur með efni til hafnar-
bryggjunnar hér á Húsavík.
* * *
Vopnafirfíi g. ágúst.—úr Vopna-
firði símar fréttaritari útvarpsins, að
þar séu daglega þokur og rigningar
og að töður liggi undir skemdum.
Grasvöxtur er góður. Á Héraði
eru rigningar minni.
Sild hefir verið töluverð á Vopna-
firði undanfarið og allmikil síld er i
frvstingu þar í þorpinu. Fiskafli er
dágóður. Aflahæstu bátar hafa nú
40—50 skippund.
Jarðvinslumaður vinnur í Vopna-
firði með Rudolfs-herfi, sem geng-
ur fvrir vélarafli. Mælst hefir ver-
ið til að unnar yrðu um 70 dagslátt-
ur.—Vísir.
Siglnfirði io. ágúst.—Síldarsam-
lagið hér á Siglufirði hefir ráðið
Sophus Blöndal konsúl fyrir skrif-
stofustjóra.
Allmikil bræðslusíld berst nú
hingað til Siglufjarðar og verk-
smiðjuþrærnar fyllast óðum. Síld
vestanað er mjög stór og jöfn, en
austanað blönduð smásíld. Alls
hafði verið saltað í landinu i gær
rúmlega 104 þúsund tunnur, en tæp-
lega 135 þúsund tunnur um sama
leyti í fyrra.
Gufuskipið Kolumbus frá Reykja-
vík, sem Þorsteinn Þorsteinsson í
Reykjavík og fleiri eru eigendurað,
kom hingað til Siglufjarðar fyrstu
ferð í gærkvöldi með tunnufarm.
Skipið er 1200 smálestir. Skipstjóri
Árni Gunnlaugsson úr Reykjavík.
Talstöðin hér á Siglufirði er tek-
in til starfa og afgreiðir viðtöl við
skip frá kl. 7.50 til kl. 23.
* * *
Óþurkar. Töður stórskemdar.—
Utan til á Langanesi hafa verið sí-
feldir óþurkar í alt sumar, og töður
eru þar óhirtar og stórskemdar.
* * *
Sildz'eiðar. Heyskapur. — Næg
síld er spgð á Þistilfirði'. Verk-
smiðjan á Raufarhöfn hefir tekið á
móti um 37,000 hektólítrum síldar.
Síldarsöltun hófst í gær á Raufar-
höfn og voru þá saltaðar 300 tunn-
ur. Heyskapur gengur stirðlega
sökum óþurka.—Vísir 10. ágúst.
* * *
Síðan Bálfararfélag fslands var
stofnað í febrúarmánuði s. 1. hafa
um fimm hundruð manns gcrst fé-
lagar. Markmið félagsstjórnarinn-
ar er að flýta því sem mest, að bál-
stofa verði reist i höfuðstaðnum og
annarsstaðar hér á landi, þar sem
nægur áhugi er á bálfararmálinu.
Borgarstjóra Reykjavíkur barst
nýlega uppdráttur að bálstofu í
Reykjavík, frá útlendum húsameist-
ara, sem hafði verið falið það verk.
Ræjarráðið hefir ályktað að fela
bæjarverkfræðingnum að leita ráða
og samvinnu við stjórn Bálfararfé-
lags íslands út af þessum tillögu-
uppdrætti, svo og um endanlegt fyr-
irkomulag á væntanlegri bálstofu og
hvar hún skuli sett í borginni,—Vísir.
* * *
H craðsmót Ungmcnnasambands
Dalamanna. — Nýlega var haldið í
Búðardal héraðsmót Ungmennasam-
bands Dalamanna. Fóru þar fram
ýmsar íþróttir, hlaup, stökk, kapp-
glíma og reipdráttur. Þar var sýnd-
ur kappsláttur á 200 fermetra reit-
um. Þátttakendur voru 6. Fljót-
astur varð Sveinbjörn Kristjánsson
úr ungmennafél. Unni djúpúðgu.
Sló hann reitinn á n mín. Einnig
þóti hann skara fram.'úr um sláttu-
gæði. Næstur varð Sigmundur ól-
afsson úr sama félagi. Sló hann
reit sinn á 11 mín. 30 sek. Svein-
birni var dæmdur sláttuskjöldur
Ungmennasambands Dalamanna í
annað sinn.—Vísir 13. ágúst.
* * *
Kaupgjald í opinberri vinnu. —
Ríkisstjórnin og Alþýðusambandið
hafa gert með sér samning.um kaup
í opinberri vinnu. \^r samningur-
inn undirritaður í gær. — Sam-
kvæmt honum á lágmarkskaup al-
mennra verkamanna að vera 90 aur-
ar á klst. um land alt. Lágmarks-
kaup vörubifreiða á að samræma
um land alt og “hækki það hlut-
fallslega við kaup verkamanna
(miðað við kaupið fyrir 1. júní) í
kr. 4.00 á klst.” Vinnutími verður
10 klst. á dag og kaffihlé 30 mín.
á dag án kaupfrádráttar fyrir verka-
menn og bifreiðarstjóra 0. s. frv.—
Vísir 8. ágúst.
Guðmundur K. Breckman
dáinn
Hann dó á sjúkrahúsinu í Minne-
dosa, Man., 30. ágúst s. 1. af meiðsl-
um, er hann varð fyrir 17. ágúst,
eins og getið var um hér i blaðinu í
vikunni sem leið.
Guðmundur Kristján Breckmari
fæddist 17. júní 1866 í Klungur-
brekku i Snæfellsnessýslu á. fslandi.
Foreldrar hans voru þau hjónin
Guðlaugur Guðmundsson og Karitas
Guðmundsdóttir frá Klungurbrekku.
Af sjö börnum þeirra. eru fjögur
dáin, Jóhanna, Guðrún, Kristián og
nú síðast Guðmundur. Þessi eru á
lífi: Þórarinn, búsettur að Lundar,
Mrs. V. Stefánsson og Mrs. S.
ITnappdal, báðar i Winnipeg.
Guðmundur fluttist til Artieriku
árið 1884. Fyrstu tvö árin var hann
i Bandaríkjunum, siðan fluttist hann
til Winnipeg og dvaldi þar í 14 ár.
Hann giftist eftirlifandi ekkju sinni,
Takobinu ísleifs, árið 1896. Hún
var dóttir þeirra Guðjóns og Sig-
ríðar ísleifs.
Þau Rreckmans hjónin fluttu til
Lundar, Man., árið 1900, og hafa
dvalið þar síðan.
Þau eignuðust 11 börn, mistu tvö
i æsku, en þessi eru á lífi: Mrs. A.
Stefánsson, Vivian, Man.; Walter
Fredrick, Lundar, Man.; Gúðmund-
ur Kristján, Oak Point: Guðjón
George, Fort William, Ont.; Mrs.
T,. Ingimundsson, Lundar, Man.;
Sigurlaug Helga, Winnipeg; Guð-
laugur Ágúst, Lundar, Man.; Maria
Emily, Winnipeg og Margrét Guð-
rún, Lundar, Man. *
Fösturbörn þeirra eru: Guðmund-
ur Jóhann og Thelma Þórhalla Ey-
ford, bæði .að Lundar.
Guðmundur heitinn var i mörg
ár einn af atkvæðamestu mönnum
T.undarbygðar. Hanniók mikinn og
góðan þátt í málum sveitarinnar og
lúterska safnaðarins þar í bæ. Hann
far lengi forstjóri rjómabúsins á
Tætndar og keypti það fvrir nokkr-
um árum, í félagi við fósturson sinn,
G. Jóhann.
Guðmundur var jarðsunginn frá
Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg
á mánudaginn 3. sept. að viðstöddu
fjölmenni. Þrír prestar voru við-
staddir og fluttu ræður. Það voru
þeir séra Björn B. Jónsson, D.D.,
séra Jóhann Fredriksson, I.undar og
séra Guðmundur P. Johnson, Foam
T.ake, Sask.
Hjálpræðisherinn kýs
sér foringja
Tæiðtogar Hjálpræðishersins, 47
að tölu, frá 22 löndum, komu sam-
an i Lundúnum fvrir skömmu, til
þess að kjósa eftirmann General
Edvvard J. Higgins, sem sagt hefir
af sér.
Eftir miklar og snarpar umræð-
ur var Evangeline Booth, foringi
Hersins í Norður-Ameriku, kosin i
þessa ábyrgðarmiklu stöðu.
Evangeline Booth, sem er 68 ára
að aldri, er dóttir General William
Booth, þess er stofnaði Herinn ár-
ið 1867. og hafði forystu hans með
höndum í fjöldamörg ár. Bramwell
sonur hans var einnig i mörg ár for-
ingi hersins, þar til honum var vik-
ið frá embætti árið 1929, þrátt fyrir
öfluga mótstöðu Booth fjölskyld-
unnar. T>á varð sv'o mikil óánægja
að við lá að Bandaríkjadeildin segði
sig úr Hernum. Ekki varð þó af því,
enda dó Bramwell Booth skömmu
seinna.
Sem yfirforingi Hjálpræðishers-
ins fær Evangeline Booth um $2,250
í árslaun, en þar að auk fær hún
allan ferðakostnað goldinn og vand-
aða íbúð í Lundúnum.
Frá Auálurríki
Þessa dagana ber lítið til tíðinda
í Austurríki. Schuschnigg kanzlara
hefir tekist að koma á friði í land-
inu og nazista-flokkurinn er svo
latnaður, að af honum stafar lítil
hætta fyrst um sinn.
1 Styríu, þar sem uppreisnarmenn
höfðu mest fylgi, er hið fræga Erz-
berg' fjall. í því fjalli eru auðugar
járnnámur, um 800 miljón tonn af
járni eru sögð í fjallinu. Eigendur
þess er hið austurríska Alpine Mon-
tan G€sellschaft, sem er stjórnað af
stálhringnum þýska, en formaður
hans er Fritz Thyssen, vinur Hitlers
og stuðningsmaður hans. Fyrir
nokkru sendi austurríska stjórnin
hermenn til forstjóra Alpine Montan
og færðu þeir honum skipun frá
dómsmálaráðuneytinu um að gjalda
$40,000 fyrir skemdir, sem nazistar
gerðu í Styríu, og $30,000 til að
mæta kostnaði við að bæla niður
Vtppreisnina. Forstjórinn, Herr
Anton Apold, þorði ekki annað en
að hlýða.
Austurrríska stjórnin þykist hafa
sönnun fyrir því að Apold þessum
hafi verið ætluð staða í ráðuneytinu,
ef að uppreisnin hefði heppnast.
Einnig er sagt að Anton Rintelen
hafi verið í vitorði með nazistum.
Rintelen reyndi að drepa sig á dög-
unum i fangelsinu, en tókst það
ekki. IJans er nú Vandlega gætt af
lögreglunni, því nazistar munu hafa
gert tilraun til þess að ná honum
i sinar hendur.
Frá Tyrklandi
^ Miklar framfarir liafa orðið á
Tyrklandi siðan Mustafa Kemal tók
þar við forráðum. Ætlun hans er
að gera landið sem óháðast öðrum
þjóðum, með þvi að koma upp iðn-
aði er fullnægt geti þörfum lands-
ins.
Nýlega opnaði Kemal geysimikla
bómullarverksmiðju, eina af ntörg-
um, sem komið verður upp á næstu
árum.
Allar vélar i þessari verksmiðju
komu frá Rússlandi. Stalin hafði
sent þær með þeim orðum að þær
væru “lán án vaxta,” sem goldið
yrði með vörum innan 20 ára.
Að þessu afstöðnu fór Kemal i
annan landshluta og var viðstaddur
þegar pappírsmylna ný tók til starfa.
Mylna þessi framleiðir 35 lonn af
pappír á dag og er það helmingur
þess, sem alt landið þarfnast, nú sem
stendur.
Sér til hjálpar, við byggingu þess-
ara iðnaðarstofnana, hefir Kemal
útlenda sérfræðinga.
Ráðátefna Gyðinga í
Geneva
Gyðingar frá öllum löndum heims-
ins komu saman í Geneva um dag-
inn, til þess að ræða sín vandamál.
Á þinginu kvað mest að hinum
fræga rabbi Stephen Samuel Wise,
frá New York. Hann sagði meðal
annars: “Við Gyðingar stöndum nú
i fremstu skotgröfum. Við erum
‘Blelgia’ þessa síðasta stríðs Þjóð-
verja á hendur mannkyninu. Á bak
við okkur stendur hin öflugi her
kristninnar og menningarinnar.”
Á þingi þessu voru ýmsir merkir
Gyðingar, sem flæmdir hafa verið
úr Þýskalandi. öllum kom saman
um það að Gyðingar yrðu að sam-
einastftil að geta sem bezt mætt
þeim ofsóknum, sem þeir hafa orðið
fyrir i seinni tið.
Fundir fóru fram leynilega, en sá
orðrómur barst út að helzt væri í
ráði að mynda nokkurs konar yfir-
stjórn eða leynisamband Gyðinga i
ýmsum löndum.
Þegar þetta fréttist urðu undir-
tektir mjög misjafnar á meðal Gyð-
inga hér í álfu. Öflugur félagsskap-
KIRKJAN
Næsta sunnudag, 9. sept., hefst alt starf að nýju í Fyrstu
lútersku kirkju:
Hádegisntessa (á ensku) kl. 11 f. h.
Síðdegismessa (á íslenzku) kl. 7 e. h.
Sunnudagsskóli kl. 12:15 e. h. .
Menn taki sérstaklega eftir, að sd. skólirin byrjar kl. 12115,
en ekki kl: 10, eins og var nokkura sunnudaga í vor. Allir kenn-
arar séu til staðar.
Fólk e'r ámint um að fjölmenna við messur bæði skiftin,
og stuðla að því, að hin nýja starfstíð safnaðarins byrji þegar
með miklu fjöri og gleði.
Alvarleg efni tekin til umræðu og góður söngur í Fyrstu
lútersku kirkju næsta sunnudag.
ur hér í landi, American Jewish
Committee, lýsti því yfir að ekkert
gæti frekar orðið til þess að vekja
alment Gyðingahatur en einmitt
þetta, að’setja á stofn leynisamband
líkt og þingið í Geneva gerði ráð
fyrir. Málgögn annara Gyðinga-
félaga tóku i sama streng.
Þrátt fyrir þessa viðvörun fóru
erindrekar Geneva-þingsins sínu
fram og létu þess getið að efnt yrði
til “kosninga” meðal Gyðinga, til
þess að kjósa menn á fyrirhugað
þing, er svo skyldi koma saman í
Geneva næstu ár. Einnig hvöttu
þeir þjóðbræður sína til þess að
neita að verzla með þýskan varning.
Þá var ákveðið að fá ýmsa leiðandi
menn til að flytja fyrirlestra um
málefni Gyðinga í Ameríku. Einn
af þessum mönnum verður Pierre
Dreyfus, kafteinn, sonur “pialar-
vottarins” franska, er allir kannast
við.
American Liberty League
Félag með þessu nafni var stofn-
að i Bandaríkjunum fyrir skömmu.
Markmið félags þessa er að berj-
ast fyrir einstaklingsfrelsi og að
sporna við því að réttindi þau, sem
stjórnarskráin tryggir bandarískum
borgurum sé fótum troðinn.
Margur myndi ætla að stofnend-
ur þessa félags væru einhverjir
auðnuleysingjar, sem fyndist lögin
þannig túlkuð, að erfitt væri að ná
rétti sínum. Svo er þó ekki. Þessir
eru stofnendur: John William Davis,
frambjóðandi demokrata í forseta-
kosningunum/1924, frægur lögmað-
ur og auðugur, hefir oft farið með
tnál Morgans og hans félaga í yfir-
rétti landsins.
Jouctt Shouse, háítsettur í flokki
demokrata, um eitt skeið fortnaður
framkvæmdarráðs flokksins ; fræg-
astur fyrir afskifti sín af því að fá
bannlögin afnumin.
Alfrcd Emmanuel Smith, nafn-
kunnur stjójnmálamaður og forseta-
efni demokrata 1928. Hann tapaði
fyrir Hoover sama ár, náði ekki út-
nefningu árið 1932 og hefir síðan
dregið sig í hlé. Hann er talinn and-
vígur Roosevelt, þótt þeir v-æru áður
beztu vinir.
James Wolcott Wadsworth, fræg-
ur republicani, senator i sextán ár,
var kosinn þingmaður neðri mál-
stofunnar í fyrra og er nú talinn
einn færasti rnaður á þingi í flokki
republicana.
Nathan Lezvis Miller, rikisstjóri
i New York frá 1021-23, sterkur
republicani, gegnir nú lagastörfum
fyrir stálhringinn volduga, United
States Steel Corporation.
Ircnée du Pont, fyrrum republi-
cani, snerist með Smith 1928 og
fylgdi Roosevelt 1932. Hann er af
du Pont ættinni frægu, vellauðugur
maður.
Þó að félagskapur þessi eigi að
nafninu til að vera óháður i stjórn-
málum, þá dylst engum að hann
muni beita sér eindregið á móti
Roosevelt og hans stefnu og getur
hann orðið forsetanum skeinuhætt-
ur, þvi að forkólfarnir eru allir ein-
beittir og áhrifamiklir menn.og má
telja víst að allir, sem óánægðir eru
með Roosevelt, fylki sér um merki
þeirra.
Límt yfir nöfn svikaranna
Nazistar í Þýskalandi hafa gefið
út stóra bók með nöfnum og æfi-
ágripum helztu meðlima flokksins.
Þegar bókin kom út, tóku menn
eftir því að vandlega hafði verið
límt yfir æfiágrip Ernst Roehm og
annara foringja, sem drepnir voru
í sumar. í formálanum stendur að
nólitískir viðburðir hefðu orsakað
miklar breytingar á bókinni, en hún
hefði verið búin til prentunar áður
en þeir viðburðir skeðu.
Til þess að fólk þyrði að kaupa
bókina var prentað með feitu letri
á kápu/na að miðstjórn flokksins
hefði ekkert á móti því að hún
(bókin) væri lesin.
Verzlun Þjóðverja og
nýjar uppfyndingar
Þýska stjórnin hefir lagt bann
við innflutningi margs útlends
varnings, til þess að fá verslunar
jöfnuð sér í vil.
, Afleiðingin varð sú að þýskir
visindamenn tóku til starfa eins og
á stríðsárunum, til þess að fram-
leiða sem flest til heimaþarfa í sín-
um eigin verksmiðjum. Sérstaklega
er það vefnaðarvara alls konar og
málmar, sem ónóg er af.
Efnarannsóknarstofum þeirra hef-
ir nú tekist að framleiða þrenslags
tegundir vefnaðar, þar sem garnið
er unnið úr við í stað ullar eða silkis.
Þráðtegundir þessar eru nefndar
“vistra,” “wollstra” og “silvestra.”
“Vistra” þráður er búinn til ein-
göngu úr við og er hann jafn fínn
og léttur, eins og silkigarn, og íult
eins traustur, þar sem allir þættirnir
eru jafnlangir. Ekki þolir samt
klæði úr þessu efni eins vel raka, og
eitthvað er það dýrara en bómullar-
dúkar.
“Wollstra” fæst með því að
spinna saman “vistra” þráð og ull,
en ef silki er notað í stað ullar fæst
“silvestra” þráður.
Ekki verður eins auðvelt að fá
nægar birgðir af málmi. Sagt er að
farið sé að bræða niður kirkjuklukk-
ur, dyrakólfa, götulampa og hvað
annað. Náttúrlega hrekkur slíkt
ekki til, en frestar því í lengsta lagi
um nokkrar vikur, að málma þurfi
að kaupa.
Innflutningshöftin hljóta að skaða
þjóðina þegar til lengdar lætur, enda
þendir margt til þess að hún eigi
erfiða daga fvrir höndum.