Lögberg - 06.09.1934, Blaðsíða 4

Lögberg - 06.09.1934, Blaðsíða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. SEPTMMBER 1934 Högtierg O-eflB öt hvern fimtudag aí TBK COLUMBIA PRE88 LIMITED 69 5 Sarerent Avenue Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritatjðrans. BDITOR LÖOBERG, 69 5 SARGENT AVE WINNTPEG. MAN. VerO »041 u m árid—Borptit f]/rirfram The "Lögberg” is printed and published by The Colum- bia Press, Limited, 695 Sargent Ave., Wnnipeg, Manitoba PIIOXK S6 327 Ritstjðri: HEIMIR THORGRÍMSSON Ósanngirni Til eru menn, þótt þeim fækki nú óðum, sem hafa þá trú á Bennett, aS þeim finst alt gott, sem hann gerir. Til eru einnig þan hlöS, sem ávalt eru reiÖuhúin að verja gerðir hans, hversu óréttlátar eða heimskulegar sem þær kunna að vera. Atakanlegt tlæmi um þetta er ritstjórn- argrein í ‘ ‘ Heimskringlu, ” þ. 29. ágúst s. 1. með fvrirsögninni “Féleysi.” 1 grein þessari er leitast við að réttlæta hækkunina ó tillagi sambandsstjórnarinnar til fylkisins, og um leið svnjun stjórnarláns til Winnipegltorgar, sem sótt var um, úr atvinnu- bóta-sjóði. Éf að blaðið gæti leitt rök að því að fjár- hagnr Manitobafylkis og Winnipegborgar sé svo góður að þau þurfi engrar hjálpar við, þá væri það sök sér. En því er ekki að fagna. t stað þess er reynt að gefa það í skyn að mikill hluti þess fjár, sem ætlað er til fram- færslu atvinnulausra, gangi til háttlaunaðra embættismanna, er styrknum eiga að úthluta. Nú liggur í augum uppi að nokkur kostnaður hlýtur að vera»því samfara að sjá um útbýt- ing atvinnulausrastyrks, en enginn hefir enn getað bent á óráðvendni eða óhæfilega eyðslu- semi af hálfu fylkisstjómar eða bæjarráðs \* þessu efni, og getur því tæpast talist rétt að dylgja um slíkt, nema sannanir séu fyrir hendi. Þeir munu fáir, sem trúa því að “tvær eða þrjár fingrafimar stúlkur” geti annast úthlutan “náðarbrauðanna,” og alt það, sem því fylgir. Blaðið fer jafnvel lengra en þetta. I stað þess að viðurkenna hreinskilnislega að öllum fylkjunum og sveitarfélögunum sé það ofvaxið að framfleyta þeim, sem atvinnulaus- ir eru, án hjálpar frá sambandsstjóminni, þá er látið í veðri vaka að öll vandræðin í fylki þes.su stafi af ófullkomnu eftirliti fylkis- stjórnarinnar með fjármálunum. Þetta nær vitanlega engri átt, jafnvel þó stjórnin bæri ábvrgð á því, að talsvert fé hvarf úr f járhirzl- unni fyrir nokkrum árum. Manitoba hefir ekki farið fram á meiri hjálp en hin fvlkin, tiltölulega, og er því mælgi um það efni út í bláinn. Mergur þessa máls er sá, að sambands- stjórnin hefir hvað eftir annað neitað að verða við réttmætum kröfum fylkjanna og sveitafélaganna, með þeim árangri að mörg- um þeirra liggur xúð gjaldþroti; en samt á að lækka skerfinn enn að mun, og lofa þeim þá að svelta, sem ekkert hafa. Það hefir verið siður áminsts blaðs und- anfarið að kalla það sníkjur og betl að fylkin hafa leitað hjálpar ríkisstjómar í örðugleik- um sínum. Stjórnarformenn þeirra eru nefnd- ir “sníkjudýr. ” Allir ættu þeir að hafa næga peninga með höndum, til þess að geta séð atvinnulausum farborða, ef ekki væru þeir eyðslusamir og óráðvandir. Allir hafa þeir féflett alþýðu, en ausið fé til gæðinga sinna. En Bennett-er öðruvísi. Hann ver ríkishirzl- una fyrir hinum áleitnu “sníkjudýrum, ” og stendur á verði fyrir hagsmunum alþýðunn- ar; hennar hagsmuni ber hann einn fyrir brjósti. Þessvegna lækkaði hann tillag sam- bandsstjórnarinnar til framfærslu atvinnu- lausra og allslausra manna. Þessvegna neit- aði hann Winnipegborg um lán, sem orðið gat til þess að veita fjölda fólks atvinnu. Hitt og þetta TirSSLANDI BOÐIÐ I ÞJÓÐA- BANDALAGIÐ Fréttir frá Bvrópu herma að líkindi séu til þess að Rússar gangi í Alþjóðabandalagið í haust. Gera þeir það að beiðni stórveldanna, Englands, Frakklands og Italíu. Hér er stórt spor stigið í rétta átt, því ekki verða vandamál álfunnar til lykta leidd nema með aðstoð hinna voldugri þjóða, og ein sú voldugasta er Rússland. Aíikið hnekti það áliti bandalagsins, þeg- ar Japanar virtu tillögur þess að vettugi og gengu síðan úr því. Nokkru seinna gerðu Þjóðverjar hið sama. Mátti þá heita að Frakkar og Englendingar réðu þar lögum og lofum. Með inngöngu Rússa ætti vald banda- lagsins að aukast, og máttur þess til að af- stýraófriði að sama skapi. Þá verða Japanar og Þjóðverjar einangraðir og gæti það orðið til þess að þeir lækkuðu seglin og létu sér segjast. Nú, þegar hernaðarandinn er aftur far- inn að láta á sér bæra, hlýtur Þjóðabanda- lagið að láta til sín taka, enda er það eina trygging friðarins í heiminum. Eftir því sem fleiri þjóðir taka höndum saman, til þess að vinna að sameiginlegum málum, þess meiri líkindi eru til þess að hægt verði að afstýra ófriði. Velþektur, enskur blaðamaður lét svo um- mælt nýlega, að framkoma Japana og Þýska- lands gagnvart Þjóðabandalaginu hefði orð- ið til þess að styrkja það, fremur en hið gagn- I stæða. Á meðan þessar þjóðir voru meðlimir þess, þá voru stöðugar erjur og óánægja og samkomulagið slæmt. Eftir að þær fóru varð samvinnan léttari og auðfengnari. Þar sem Rússland á nú einnig að fá sæti í framkvæmdarráðinu (council) má gera ráð fyrir því að áhrifa þess gæti ailmikið og verð- ur þeim óefað beitt þannig að Þjóðabandalag- inu hlotnist gott af. UPTON SINCLAIR ÚTNEFNDUR TIL RÍKISSTJÓRAEMBÆTTIS Rithöfundurinn frægi, Upton Sinclair, hefir hlotið útnefningu demokrata-flokksins í California, til ríkisstjóraembættis, með mikl- um meirihluta atkvæða fram \Tir keppinauta sína. Þetta mega teljast markverð tíðindi. Sinclair, sem er svæsinn jafnaðarmaður, hefir hvað eftir annað lent í vadræðum fyrir ræð- ur og rit, er frá honum hafa komið, um auð- valdsskipulagið í Bandaríkjunum. Nú hefir hann gengið í flokk demokrata og hvggst, ef hann nær kosningu, að koma fram áhugamál- um sínum með fylgi þess flokks. Slagorð hans í útnefningarbaráttunni voru þessi: “Útrým- ið fátæktinni úr California.” (Etnd Poverty in California). Til að koma þessn í fram- kvæmd á ríkið að taka í sínar hendur öll verk- .stæði, sem nú eru ekki starfrækt, einnig allar bújarðir, sem standa auðar. Með þessu móti á að gefa öllum atvinnu. Þá á að hækka tekju- skattinn og jafna útsvörunum þannig, að þeir ríkari beri þyngstar byrðarnar. Sinclair fer ekki dult með það, að fyrir honum vaki að að taka upp þjóðnýtingu fram- leiðslutækja, þar sem því verði við komið. Enn er eftir að vita hvort að löggjafarþingið yrði til með að fylgja honum að málum, ef svo færi að hann næði kosningu. Fróðlegt verður að vita hvort að rót- tækum umbótamanni sem Sinclair tekst að koma áhugamálum sínum á framfæri með að- stoð demokrata, sem alt til þessa hafa verið mjög andvígir stefnu sósíalista. Víst er um það að flokkaskiftingin gamla í Bandaríkjunum er að miklu leyti úr sög- unni og sannast það bezt á því að LTpton Sinclair skyldi ná þessari útnefningu. ÍÐUNN XVII. ÁRGANGUR, 4. IIEFTI Síðasta hefti Iðunnar er nýkomið hingað vestur. Svo sem verið hefir undanfarandi ár, þá er manni það sérstök ánægja að lesa ritið. Nokkrir af ritfærustu mönnum heima- þjóðarinnar eiga greinar eða sögur í hefti þessu, svo sem þeir Sigurður Einarsson, Hall- dór Kiljan Laxness og Ragnar E. Kvaran. Maður saknar þó Þorbergs Þórðarsonar. Fremst í þessu hefti er kvæði eftir Jó- hannes úr Kötlum og'heitir “Villidýr,” euda er hálfgerður villidýrsbragur á því. En ef til- lit er tekið til efnisins og þeirrar hugmynd- ar, er til grundvallar liggur, verður ekki ann- að sagt en að vel fari á því. Halldór Kiljan Laxness nær góðum tök- um á efninu í smásögunni “ Vetrarmorgun.” Lýsingar hans á draumalífi og heilabrotum ungs drengs eru meistaralegar. “Farið heilar, fornu dvgðir” er fyrir- sögnin á langri ritgerð eftir Sigurð Einars- son. Uppistaðan er að líkindum fengin lír greininni “Our Pernicious Virtues,” sem, ef minnið ekki svíkur birtist í Harpers Magazine í haust sem leið. Þó hefir Sigurður bætt ýmsu við frá eigin brjósti. Greinin er þess verð að henni sé gaumur gefinn og felur í sér mikinn sannleika. Mikla athygli vekur hún eflaust, og ekki ólíklegt að einhver verði til þess að andmæla. þeim skoðunum, er þar koma fram. Ragnar E. Kvaran ritar fróðlega grein, er hann nefnir “Framvindan og Sagan.” Hann gerir tilraun til að lýsa þeim skilningi, er spekingarir hafa lagt í mannkynssöguna. ITm það efni eru mjög skiftar skoðanir, og er því gaman að kvnnast því máli, enda nauð- synlegl, ef maður á að geta gert sér grein fvr- ir rás viðburðanna og þýðingu þeirra. Eins og liöfundurinn segir, er grein hans fremur ætluð til þess að vekja áhuga manna á sögu- vísindunum, en til þess að skera úr því hver hinn rétti skilningur á þeim kunni að vera. í meir en þriðju nt? aklar hafa Dodd’s Kidney Pills verið viðurkendar rétta meðalið við bakverk, grigt, þvagteppu 0£ mörgum öðrum sjúkdómum. Fást hjá öllum lyfsölum, fyrir 50c askjan, eða sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The Dodd’s Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylpir. “Minning,” heitir fallegt kvæði eftir Stein Steinarr. Hallgrímur Jónasson skrifar um ‘ ‘ Uppeldismál og sparnað. ’ ’ Höf. finst að laun kennara séu alt of lág, ef þess er gætt, hve þýðingarmikið starf þeirra sé. Þetta sama mun eiga sér stað í flestum löndum, og er tsland því engin undantekning, hvað réttmætar sem kröfur kennara til hærri launa, kunna að vera. Luplau Janssen skrifar um ‘ ‘ Geimgeisla. ’ ’ Grein sú er vís- indalegs efnis og fróðleg. “Dauði maðurinn” er nafn á smásögu eftir góðskáldið enska .Tohn Galsworthy. Þá kemur bálkurinn “Orðið er laust.” Þar eru birt tvö bréf frá Vestur-íslendingur. Hið fyrra er eftir Magnús Peterson, og er hörð ádeila á grein Þórbergs Þórðarsonar, “Á guðsríkisbraut. ’ ’ Sú .grein birtist í 1- og 2. hefti Tðunn- ar, þessa árs. Höf. bréfsins setur lit á rithátt Þórbergs; finst hann dónalegur. Einnig finst honum “Iðunn” taka of mikið málstað Bolshevika, og segir hann stjórn þeirra á Rússlandi liörmulega í fvlsta máta. Hitt bréfið ritar Guðmundur E. Eyford, og fer hann lofsam- legum orðum um þessa sömu ritsmíði Þórbergs og einnig um ^skrif Sigurðar Einarssonar. Aftast í ritinu eru ritdómar um nýútkomnar bækur. Uppí í sveit fvrir 35 árum Eg var kominn á þann aldur, að annaðhvort yrði eg að fara upp í sveit fyrir sumarið eða að verða mér til skammar og fólki mínu til mink- unar—svo maður sleppi því að eg yrði öðrum til ergelsis að slæpast á mölinni á Akurevri alt sumarið og þvælast fyrir fólki, sem var a8 vinna. Mamma var vandlát í því sem ööru að koma mér fyrir, og árang- urinn af vandlæti hennar varð sá, að mér var komið fyrir á Drafla- stöSum i Dalsmynni í Fnjóskadaln- um—ekkert dóna heimili! Mamma bjó mig út með nesti og nýja skó, eins og segir í sögunum, og alt var mjög fyrirhafnarmikið i rriínum augum, og auðvitað datt mér ekki dúr á auga af ferðahug alla nóttina. DraflastaSamenn voru í bænum; höfSu þeir skiliS hesta sina eftir á SvalbarSseyri og komiS á bát til Akureyrar og var báturinn hlaSinn upp aS borSstokk, eins og siSur var í þá daga, liklega helzt þó hjá sveita- mönnum. Dálítil hafgola var þegar viS lögSum á staS, en brátt snerist þessi gola i reglulegan norSanbelg- ing, og leist tnér ekki sem bezt á blikuna, því enginn sjómaSur var eg í þá daga—þótti víst aS þaS væri næst því aS talca niSur fyrir mig aS fást viS sjósókn! Tók eg eftir því aS sveitamenn voru aS, skjóta til mín hornauga; fanst þeim víst eg ekki vera búinn út sem vinnumaSur í sveit, og hafSi þetta áhrif á mínar næmu tilfinn- ingar og varð eg hálf önugur í skapi. Létti þó af mér þegar eg hafSi aftur jörS undir fótunum og sá blessaSa hestana. Alt gekk slysalaust heim til DraflastaSa, þó ekki litist mér vel á Faxafell, sem einn náunginn hafSi gaman af aS segja mér frá hvaS margir hestar og menn hefSu lent fram af þeim kletti, enda heyrSi eg hjartaS í mér slá! ÓSalsbóndinn SigurSur var dáinn, en merkin mátti sjá eftir hann hvar sem litiS var. Frú Helga stjórnaSi búinu meS hjálp sona sinna þriggja. Var Siguröur þá í Noregi, en Karl var bústjórinn, fallegur maSur, kát- ur og f jörugur—og góSur. Og þaS sama átti viS Ingimar og Jóhann. Var gaman aS sjá Ingimar höndla orfiS, enda mun hann hafa veriS einhver bezti sláttumaSur þar um slóSir. En þarna var fyrir gamall skólabróSir og kunningi, Gunnlaug- ur Tryggvi. Var hann smalinn á bænum og fann vel til þess aS eg væri þarna kominn til þess aS vera kúarektor—og ekkert meira! En Tryggvi var góSur smali—-fram eft- ir sumrinu, þó aS hundaólárt hefSi hann mikiö, og meS hundaóláni meina eg aS hundarnir vildu ekki gelta fyrir hann og varS hann því aS gera þaS sjálfur! Hundinn tók Tryggvi í bandi upp eftir hlíSinni, en vanalega setti hann skottiS á milli fótanna og hundsk- aSist heim án þess svo mikiS sem aS opna á sér kjaftinn, og varS því Tryggvi aS hóa og öskra alt sem af tók, og var hann því bæSi rámur og hás þegar eg sá hann. Þegar leiS á sumariS og þokur og rigningar voru tíSari, dofnaði yfir smalamensku Tryggva og hann fór fram á þaS aS eg kæmi meS sér og gelti fyrir sig. Tók eg þetta meS þökkum, því mér þótti, satt aS segja, ekki mikill heiSur í því aS vera ekkert nema kúarektor. Voru mér gefnir nýir hrossleSursskór, og lagSi eg á staS meS nafna í mína fyrstu smalaferS. Tryggvi hefir nú arlt af veriS einum tveimur árum eldri en eg, og aS því skapi vitrari, en þennan dag lét guS rigna hundum og köttum! Brettum viS samt upp sokkunum og girtum okkur og meS hundinn í eftirdragi IögSum viS af staS og er skamt frá þvi aS segja, aS eg byrjaSi aS gelta strax og eg var kominn út fyrir tún- iS, og ekki lét Surtur heldur á sér standa aS skunda heim strax og hann losnaSi viS bandiS. Hann skildi þaS, hund-greyiö, aS þaS væri ónauSsyn- legt fyrir hanti aS gelta í dag. I þessum mínum fyrsta smalatúr vantaSi 13 ær. “Þrettán ær, þrettán ær,” sagSi Gunnlaugur Tryggvi— og sagSi þaS svo fljótt aS þaS var líkast .því aS um 130 ær vantaSi. SagSist Tryggvi hafa höfuSverk— mest af geltinu úr mér, og þóttist hann ekki geta fariS aS leita aS ánum. “Hvínandi, kolsvartan höf- uSverk,” sagöi Tryggvi. Nú fór aS syrta fyrir mínum augum. Átti eg aS fara aS leita aS ánum? Var eg ábvrgSarfullur fyrir þessum 13 kláðagemlingum ? HvaSa mismun gerSi þaS þó aS 13 horaSar ær kæmu ekki í kvöld ? “Ærnar verSiS þiS aS finna,” sagöi 250 punda Finna—já. hún GuSfinna, og þurfti eg ekki aS líta á hana nema einu sinni til þess aS sjá hvaS hún meinti. Hér var nú annaShvort aS revn- ast góSur smali og verSugur stöS- unni, eSa aS gefast upp. Gunnlaug- ur Tryggvi var kófsveittur anpaS slagiS, en meS hroll þess á milli, og mátti sjá aS honum var alvara aS fara ekki aS leita aS ánum. LagSi eg því á staS hálfhræddur viS huldufólk og útilegumenn, og ekki í neinum vafa um þaS, aS væru draug- ar nokkrir til, þá væri þetta rétta veSriÖ fyrir þá—rigning og myrk- ur! Sá eg á Karli og öSrum á heim- ilinu aS þeirn stæSi nokkurnveginn á sama um þessa 13 horgemlinga, en þeir höfSu víst gaman af aS virSa fyrir sér andlitiÖ á mér, og biSu eftir því aÖ eg léti til mín heyra. En svo varS þó ekki. Eg lagSi á staS. Hálfa IeiÖ upp hlíÖina var orSiS óstætt á hrossleSursskónum á blautri jörSinni, og seinna slitnaði varpbandiS í öSrum skónum, svo nú var eg á öSrum sokknum. ÞaS rigndi og rigndi. Eg sá hvorki ær né annað, en rjúp- urnar gerSu mér bylt viS í hvert skifti sem eg var aS því koriiinn aS stiga á þær og þær þutu upp meS fjaSraþyt—en engum söng. Aum- legar hafði mér aldrei liSiS, og eg hét því aS fara til Ameriku, kæmist eg lifandi heirn. í Ameríku værit hvort sem er engir smalar. ÞaS leiS á kvöldiS; fólkiS var orSiÖ hrætt um mig; myrkur og kalsarigning. F.g'sá tómar ofsjónir; allar draugasögur og útilegumanna- sögur, sem eg kunni, spunnust i hausnum á mér, og eg hataSi alla veröldina. Sokkarnir höfSu skor- ist á steinunum og dreyrrautt var hvert spor, þó ekki fyndi eg til verkjar í fætinum. Og þaS var þá sem eg ákvaS aS verSa aldrei bóndi á íslandi. Jú, auðvitað hefSu þeir alt af einhverja asna til aS smala fyrir sig—já, svona var þaS að vera í sveit! Já, hvaS skyldi mamma halda, ef hún vissi hvernig mér liSi? HvaS ætli önnur foreldri hugsi, þeg- ar þau vilja drífa börn sín upp i syeit. Nei, eg fer til Ameríku! Eg skal komast í búS og ganga á dönsk- um skóm, en engum f jandans hross- leSurskóm um dagana—og í þessu svifinu skrensaSi eg niSur einhverja stóra þúfu—eða fja.ll, flatmagandi i forinni. Og hvaS haldið þiS aS eg hafi séS? Hvorki minna né mjórra en ellefu fallegar ær;—allar ekta DraflastaSa-ær. Eg bölvaði fyrst á sjö tungumálum. Voru þær þá þarna? ESa er eg aS sjá ofsjónir, —er eg orðinn vitlaus? Nei, þarna voru 11 ær, hvaS oft sem eg taldi þær! Jæja, kanske er þaS ekki svo bölvað aS vera smali! Þetta hefSi Gunnlaugur Tryggvi ekki getað. Hann hefSi aldrei fundiS þessar ær! Eftir þetta ætti eg aS vera smalinn á DraflastöSum. Ellefu ær! Eg skal finna þær allar, þrettán—eSa kanske hinar séu komnar heim á ból. Ójá, tvær horaSar ær höfSu slæpst heim meSan eg var aS skrensa í forinni um fjöll og fyrnindi, innan um drauga og púka. Og þegar aum- ingja Finna — öll 250 pundin af henni — kom auga á mig þá hélt eg hún ætlaöi aS éta mig. F.n eg var of stoltur til aS gera mikiS úr þessu ; var ánægður meS aS bera stolt mitt í mínu eigin brjósti,—lét þaS aS- eins í veSri vaka að þaS tæki meiri mann en Gunnlaug Tryggva aS finna allar ærnar í svona veSri, en hávaSa hafSi eg engan. Ó-nei, eg var ekki montinn! Nei, sussu nei! En, vitandi að Tryggvi væri þarna fvr- ir lifstíð, lét eg þaS aðeins í ljós. aS smali yrði eg næsta sumar, e.Sa aS öðrum kosti myndi laugin fheit laug) frjósa í fimm hundruS ár! Já, og smali varS eg, smali á Hjálmsstöðum í EyjafirSi, hjá Samúel, sem var sá víSlesnasti maS- ur, sem eg hafði séS um mína daga, og sem talaði allra manna bezt mál. Sumir sögðu þaÖ—svona undir rós —aS Samúel væri meira fyrir bæk- urnar en vinnu, og satt má þaS hafa veriÖ. En hann var líka auSugur aS fróSleik, sem margir aSrir höfðu ekki, og góður var hann mér. Aklrei hefi eg veriS ánægðari og stoltari, og aldrei fundist—fyr eSa Organized To Serve You Better TAXI LIMITED PHONE 95 111

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.