Lögberg - 02.05.1935, Page 2
o
LÖGBKRG, FIMTUDAGINN 2. MAI, 1935.
KAUPIÐ ÁVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
HENRY AVENUE AND ARGYLE STREET
WINNIPEG, MAN. PHONE 95 551
Frá afmæli K.N.
1441—gth Street South,
Fargo, North Dakota,
APr'l 5. 1935-
Mr. K. N. Julius,
Mountain, North Dakota.
Dear friend K. N.:
from myself and all my people on
your seventy-fifth birthday.
As one who was reared in your
neighborhood; who has always ad-
mired your ability and who has
listened to your poetry on many
occasions, I shall applaud every
praise and good wish that will be
heaped upon you so deservedly on
this great occasion—the 75th birth-
day of a poet and a true and honest
man.
May your future years be happy
and your humor last forever.
Sincerely yours,
T. W. Thordarson.
Winnipeg, 6. apríl, 1935.
Mr. K. N. Júlíus,
Mountain, N.D.
Kæri vin:—
Þakka fyrir ljóðin þín,’ sem fyr
og síðar hafa veitt mér mikla gleði,
og eg þakka fyrir skemtilega og á-
gæta viðkynningu. Óska til ham-
ingju og vona að f jórði aldarf jórð-
: tingur æfi þinnar verði þér ekki
lakari, helst betri, heldur en þeir
þrír, sem liðnir eru.
Vinsamlegast,
Finnur Johnson.
Riverton, Manitoba.
í tilefni af 75 ára afmæli K. N.
Júlíúsar fyndnasta skglds Jslendinga
að fornu og nýju, þakka eg honum
óteljandi ónægjustundir, innilega og
góða vináttu og óska honum allrar
hamingju um ókomna tíð.
Eg fann mig ekki færan til að
yrkja viðunandi kvæði. En nú, um
leið og eg ætla að loka bréfinu kem-
ur þetta í handlegginn á mér:
Aldar fennið efst í lær
Er þér senn að baki,
Þó ertu’ enn til ferða fær,
Fjögra kvenna maki.
Guttormur J. Guttormsson.
Regina, Sask., 28. marz, 1935.
K. N. JúHus, Esq.,
Mountain, N. D.
Kæri vinur:—
Vegna vanheilsu er mér bægt frá
að vera með í hópi vina þinna, er
mæta þér á afmælsidegi þínum, þeim
sjötugasta og fimta, til að bera þér
lukkuóskir og sýna þér virðingar og
vináttu merki. Þar hefði eg gjarn-
an viljað vera með, því kunnings-
skapur okkar og vinátta slagar víst
nokkuð upp í margra hinna, að
minsta kosti að lengdinni til. En
nú verð eg að láta mér nægja að
senda þér, úr langri f jarlægð, þakk.
ir fyrir hið liðna, og blessunaróskir
fyrir hið ókomna.
Eg held þeir séu, ef til vill, ekki
I margir, sem betur en eg hafa notið
þess, er þú hefir látið af hendi rakna
við samtiðina, og hefi eg þvi þeim
mun meira fyrir að þakka.
Til þín hugsa eg oft, sem gæfu-
mannsins, með lundarlagið það, að
vilja gleðja aðra en engan móðga.
Þér hefir verið veitt gáfa mikil og
hentug til að þjóna þinni lund. Þetta
kalla eg gæfu, þótt ekki verði á
landsvísu mæld. Eg hefi víða farið
þar sem íslendingar búa, bæði
“heima og hér” og veit um livað eg
tala. Margir minnast þín. Allir
með hlýjum hug og brosi á vörum.
Hér hætti eg nú, vinur minn.
Vildi gjarnan hafa haft þessa kveðju
myndarlegri, en eg geng ekki heill
til skógar, sem stendur. Veit líka
að betra er að hafa eitthvað van-
sagt en ofsagt. Og reikning þarf
maður ekki að standa af orðum sem
ótöluð eru. Óska eg þér nú, af
heilum hug áframhaldandi heilsu og
hamingju, handleiðslu Guðs og hylli
góðra manna um langan ófarinn veg.
Megi æfikvöldið verða þér friðsælt
og unaðsríkt og sólarlagið fagurt.
Þinn emlægur gamli vinur,
W. H. Paulson.
Box 149, Wynyard, Sask.
3-*4-> 1935-
Heill og sæll Kristján N. Júlíus !
Beztu þökk fyrir gamalt og nýtt,
og síðast, sem eg tel frá júlí og
ágúst, 1920, þegar St. G. var með
okkur i “tjaldbúðinni” hérna í Wyn-
yard, til sællar minningar. Þó við
hefðum þá minna saman að sælda,
en átt hefði að vera, þá er þessi við-
kynning við þig ekki gleymd. Ekki
þarf að taka það fram Kr., að eg
var góður kunningi þinn, frá þeim
tíma að eg hafði aldur og vit til að
lesa íslenzk Ijóð, og ávalt síðan. Það
var nokkru fyrir jólin s. 1., að eg
fór að leita í Þjóðræknisritinu og
í f. b. bl. eftir afmælisdegi þínum—
að minsta kosti vonaðist eg til að
finna visuna, sem þú ortir um árið,
þegar Roosevelt forseti hélt upp á
afmælið þitt. Ætlaði eg svo að átta
mig á vísunni og formálanum fyrir
“Kviðlingum” um aldur þinn. —
Ekki svo að skilja að mér kæmi það
neitt við, enda fann eg ekki vísuna,
og ekkert um það, að þú hefðir ver-
ið gerður að( heiðurs'forsöta, eða
doktor í þjóðrækni.—Nú var mig
farið að gruna, að þú værir nálega
75 ára, ef þú værir enn á lífi, sem
eg vonaði þó; mér fanst býsna langt
liðið frá því eg hefði séð vísu eftir
þig í blöðunum. Þú botnar, ekkert
í þessu, Kristján! sem ekki er von,
—en nú fer eg að komast að efninu :
Sem sé; upp af þessum hugleiðing-
um spratt vísa, sem hugsuð var til
V. í. þjóðrækni, með fyrirsögn:
/ framtíðitini
Verður þulin þessi frétt á þjóðar-
skjáinn:
Hvort er mál að nasa í náinn.
Nú er gamli K. N. dáinn?.
Nú, svo að þessar þrjár línur
hefðu ekki um of melankolisk áhrif
á ritstjórana, (því eg sendi báðum
í senn þetta afbrigði) þá lét eg
fylgja nokkrar hendingar, sem eg
nefndi “Skammdegis erindi,” og er
það eitthvað á þessa leið:
Þau mættust ung og ein í fyrsta sinn
Svo engin býsn, að með þeim svona
færi.
“Eg vil ei skilja við þig, góði minn,
Mig vantar helzt að lúra hjá þér,
kæri.”
Svo stysti dagur lá hjá lengstu nótt,
Hann lengdist við það ofurlitla pinu.
En hvað um það, því hjá ’onum svaf
’ún rótt,
Hún hafði aðeins lítið mist af sínu.
Nú fer eg að hlakka til að sjá
jólablöðin “Kringlu” og “Berg.”
Verð fyrir vonbrigðum, en hugsa
sem svo: Þeir ætla að skreyta ný-
ársblöðin með þessu ágæti! Bíð eg
nú rólegur um stund, En þegar
ekkert bólar á vísunum í nýársblöð-
unum þá fer eg nú fyrst að hugsa
fast og lengi. Hver fjandinn skyldi
nú vera á seyði ? Eg fer að leita að
uppkastinu, — les það hvað eftir
annað. Get hvergi fundið neinar
skammir um þig, og ekkert óbærilegt
fyrir þjóðræknina. Eg brýt heil-
ann og kemst að þeirri niðurstöðu
að þú rnunir vera veikur; vísan hafi
verið skilin sem skammir um þig,
og það eigi að forða þér frá þessu
fári. Nú líður og bíður, og ekki sé
eg látið þitt í blöðunum, og ekki
kemur skammdegisvísan! Hún hefði
þó mátt koma; ekki voru neinar
skammir þar. Mér þótti verst hvað
það dróst lengi að láta vísuna í, þó
ekki væri nema annað blaðið. Dag-
inn var óðum að lengja, og ef þessu
færi fram enn um hríð, mundi vís-
an verða næstum ónýt, þá loksins er
hún kæmist á prent. Eg las upp-
kastið enn á ný: “Eg vil ei skilja
við þig góði minn’y o. s. frv. Ekki
var þetta ljótt: “Og styzti dagur lá
hjá lengstu nótt,—hann lengdist við
það ofurlitla pínu.” Ekki var hægt
að misskiljja þetta? Já, eg legg
þetta undir þinn dóm, Kr., og treysti
þér bezt til að dæma þar um, og
rétta hluta minn?
Nú er “Kringla” nýkomin (7.
marz) og nokkuð framhlaðin af
vísnaflokkum þinum, Ekki ætla eg
að hæla þér í þetta sinn. Áttu þó
skilin skáldalaun fyrir frammistöð-
una. Sumt af þessu hefi eg áður
séð, að mig minnir, þar á meðal er
“D. Spurning” þín “til viturra
manna,” og þó að eg teljist ekki þar
í flokki, þá ætla eg samt að svara
spurningunni, frá mínu sjónarmiði,
hvenær og hvar sem kirkjuþingið
verður háð:
“Heimskringla” 6.-3. ’35-
D. spurningu K. N. svarað.
“Af því eg veit hann er og var
andlegum krafti gæddur,
segðu mér lágsmaður, hvernig og
hvar
og hvenær var djöfullinn fæddur.”
Eyjafirði fæddur var,
Flestum efnilegri þar;
Ekki var hann eingetinn
Útlitsgóði drengurinn.
í ýmsu var hann orðinn stór
Er hann burt af landi fór;
Til Vesturheims hann flutti far
Fályndum til skemtunar.
Aldur hans i áratal
Ekki mikinn segja skal:
Sjötíu og fimm er sjálfsagt nóg
—Sumir eldri telja’ ’ann þó.—
Afmælið'’ans upp á hélt
Ú. S. -inga Roo-sé-velt,
Forseti, sem forðum Þór
Fylti horn og veitti bjór.
Stjórnarskrána þyrfti því
Þjóðræknin að líta i,
Ef hún seinna ártalið
Afmælið hans setti við.
7--3-> 1935-
Nú hefi eg í nokkra daga verið
að velta því fyrir mér hvað eg ætti
að gera við þetta svar mitt; fyrst
datt mér i hug að sjálfsagt væri að
koma því á prent einhverntíma fyr-
ir næsta kirkjuþing, svo þú hefðir
ekki upp á neitt að klaga ? En hvert
átti eg að snúa mér? Setja það í
ensku blöðin, eða hvað ? Ekki var
til neins að senda þetta íslenzku
blöðunum í Winnipeg. Mér var ekki
úr minni liðin meðferðin á skamm-
degisvísunni og hinni. Eg var rétt
að því kominn að leggja árar í bát:
hætta alveg að yrkja sjálfur, og lesa
ekki framar skáldskap, hvorki eftir
þig eða neinn annan. í þessum hug-
leiðingum var eg 14. marz, þegar
“Kringla” kom eins og engill af
himnum,* og flutti þær gleðifréttir
að íslendingar i Norður Dakota
ætluðu að halda heilagan 6. apríl
n. k. til minnis um það, að þú yrðir
þá 75 ára. Nú hefði verið gaman
að vera laus og liðugur. Bregða sér
suður í veizluna og lesa sjálfur
svarið við D. spurningunni á sam-
komunni, og fá lófaklapp hjá kven-
fólkinu. En úr því að ekki gat af
þessu orðið, þá var hægt að senda
svarið til séra Sigmars eða hr.
Myres, og láta þá fá lófaklappið.
Eftir fáeinar hugleiðingar, komst
eg að þeirri niðurstöðu að bezt væri
að senda svarið beina leið til K. N.,
hvort sem hann fengi nokkurt lófa-
klapp — eða ekki. Hann gæti þá
stungið þessu sjálfur undir stól, svo
það yrði hvorki honum eða mér til
skammar í framtíðinni?
Jæja, góði Kr. minn, nú er þetta
bréf orðið eins efnislaust og langt,
eins og sögurnar eru í íslenzku blöð-
unum, sem kvenfólkinu þykir þó
gaman að lesa. Eg finn það á sjálf-
um mér, að þú ert orðinn þreyttur,
og vil eg nú að endingu óska þér til
hamingju í “Framtíðinni” og með
þeirri fyrirsögn :
Hvað sem verður þar til þrifa:
Þá mun gamli K. N. lifa.—
Um það vil eg skrifa og skrafa
Skrattinn verður það að hafa.
Skilaðu kveðju frá mér, Kristján,
verðir þú var við nokkurn í þínu
bygðarlagi, sem hana vill þiggja.
Forláttu svo þetta klór, og hitt sem
ekkert er. Með vinsemd og ham-
ingjuóskum, þinn
Jak. J. Nortnan.
Seattle, Wash. 1. apríl, y935.
9161/,—3rd Ave.
Kæri vinur:
Mér var sagt frá því í gærkvöldi
við kirkju, að þú væri 75 ára og af
því viðurðum samferða hingað til
lands, finst mér að það hvíla á mér
siðferðisleg skylda gagnvart þéi, og
þessvegna ræðst eg i að senda þér
fáeinar linur við þetta hátiðlega
tækifæri. Síðan hingað kom hefir
æfi okkar verið líkari en í fljótu
bragði kann að virðast, við höfum
báðir unnið og eljað baki brotnu og
haft lítið upp úr, og út af þeirri
hugsun datt mér í hug að bæta við
hendingar, sem þú kastaðir fram
við mig fyrir mörgum árum síðan.
Þú sagðir:
“Við sigldum yfir svalan sæ
á sama skipi báðir,”
Við það vil eg bæta:
sveittir stritum sí og æ,
samt erum enn lítt fjáðir.
Eg náttúrlega keypti kvæðabók-
ina þína um árið og get með sanni
sagt að hún hefir oft gert mér glatt
í lund. Þú minnist þar oft á hvað
þér þyki vínið gott, en eg er kominn
að þeirri niðurstöðu, að það sé bara
uppgerð og fyrirsláttur. Það er
svo eðlilegt að það þarf eingrar
sönnunar við, að skáld yrkja bezt
um það, sem þeim er kærast, en
drykkjuvísurnar þínar eru allar
fremur léttvægar, og það sama má
segja um ástarvísurnar; það er eng-
inn þróttur i þeim, sem ekki er við
að búast. Snild þín nær hámarki
sínu í mjólkurntannabragnum, og
það sannar óhrekjanlega, að þó þú
talir ekki mikið um það, þá þykir
þér mjólkin bezt. Þessvegna vil eg
enda þessar línur með þeirri ein-
lægu óska, að þú megir enn njóta
langrar og ánægjulegrar æfi og að
þig “bresti aldrei neitt af neinu,
nema skort á mjólkurleysi.”
Vinsamlegast,
Guðni Goodman.
Red Wing, Minn.,
April 3, 1935.
K. N. Julius,
Mountain, N. D.
Dear Friend:
To write poetry' is a gift that few
possess. Almost equally rare is a
keen sense of humor. The man who
combines both qualities is a God-
send in this vale of tears for he
relieves the tension of life’s sober
realities by teaching us to laugh at
our own follies. With this thought
in mind, I send you greetings on
your seventy-fifth anniversary and
express the hope that you will con-
tinue as young in body as I know
you are in spirit, for many years to
come. To make people laugh is not
only an accomplishment but a ser-
vice to humanity.
Sincerely,
M. A. Thorfinnson.
Herra J. J. Myres,
Mountain, N. Dak.
Kæri vinur:—
Mikið hefði okkur langað til að
vera með ykkur þann 6. apríl til
þess að heiðra okkar góða vin,
skáldið K. N. Júlíus á 75 ára afmæli
hans, en ástæður leyfa það ekki.
Viljum við því biðja þig að færa
honum hamingjuóskir okkar, hrein-
ar og einlægar, á hinum þýðingar-
mikla áfanga á æfibraut hans. Við
þökkum persónulega fyrir vinsemd
hans og gleði þá, sem hann hefir
kveikt með fjölbreyttum tónum frá
hörpu sinni á liðnum árurn. Við
óskum honum blessunar á æfibraut-
inni fram undan. Vonum að árin
verði mörg og blessunarrík enn þá
vor á nieðal, kvöldfriðurinn sólrík-
ur og sólsetrið dýrðlegt og fagurt.
Virðingarfylst.
Mr. og Mrs. G. J. Oleson.
Minneapolis, Minn., Aprilq, 1945-
Prof. Richard Beck,
Grand Forks, N. D.
K. N.! Thank you well done
work. Keep on shovelling prefer-
ably for another seventy-five yéars,
and dishing out the good stuff for
the good of all of us and our long-
evity. We need you now more than
ever. Congratulations!
G. T. Athelstan and family.
Trehern, Manitoba,
April 4, 1935.
Dear K. N.:—
Just a word of felicitation on your
feat of standing off the Grim
Reaper for five whole years beyond
the allotted span. May you live for
another seventy-five and your spirits
never flag!
Greetings and good wishes to you
sí-
GEFINS
Blóma og matjurta frœ
ÚTVEGIÐ EINN NÝJAN KAUPANDA AÐ BLAÐ-
INU, EÐA BOBGIÐ YÐAR EIGIÐ ASKRIFTAR-
GJALD FYRIRFRAM.
Fræið er nákvœmlega rannsákað og áhyrgst að öllu leyti
TAKIÐ ÞESSU KOSTABOÐI!
Hver gamall kaupandl, sem borgar blaðið fyrirfram, $3.00 áskrift-
argjald til 1. janúar, 1936, fær að velja 2 söfnin af þremur númerum,
1., 2. og 3 (í hverju safni eru útal tegundir af fræi eins og auglýsingin
ber með sér).
Hver, sem sendir tvö endurnýjuð áskriftargjöld, $6.00 borgaða
fyrirfram, getur valið tvö söfnin af þremur, nr. 1., 2, og 3, og fær nr. 4
þar að auki.
Hver, sepa útvegar einn nýjan kaupanda og sendir áskriftargjald
hans, $3.00, fær að velja tvö söfnin úr nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4 þar
að auki. Hinn nýi kaupandi fær einnig að velja tvö söfnin nr. 1., 2. og
3., og fær nr. 4. þar að auki.
Allir pakkar sendir múttakanda að kostnaðarlausu.
No. 1 COLLECTION—Vegetables, 15 Packets
BEETS, Detroit Dark Red. The best all round Beet. Sufficient
seed for 20 feet of row.
CABBAGE, Enkhuizen. Good all round variety. Packet will grow
1,000 lbs. of cabbage.
CARROTS, Half Long Chantenay. The best all round Carrot.
Enough seed for 40 to 50 feet of row.
CUCVMBEIt, Early Fortune. Pickles, sweet or sour, add zest to
any meal. This packet will sow 10 to 12 hills.
LETTUCE, Grand Rapids. Loose Leaf variety. Cool, crisp, green
lettuce. This packet will sow 20 to 25 feet of row.
LETTUCE, Hanson, Head. Ready after the Leaf Lettuce.
OXION, Yeilow Giohe Danvers. A splendid winter keeper.
ONIOX, YVliite Portugal. A popular white onion for cooking or
pickles. Packet will sow 15 to 20 feet of drill.
PAR.SXIP, Half Long Guernsey. Suffipient to sow 40 to 50 feet of
drill.
PUMPKIN, Sugar. Packet will sow 10 to 15 hills.
RADISH, French Breakfast. Cool, crisp, quick-growing variety.
This packet will sow 25 to 30 feet of drill.
TOMATO, Earliana. The standard early variety. This packet will
produce 75 to 100 plants.
TURNIP, YVliite Summer Table. Early, quick-growing. Packet
will sow 25 to 30 feet of drill,
FLOYYER GARDEN, Surprise Flower Mivture. Easily grown
annual flowers blended for a succession of bloom.
SPAGHETTI, Malabar Melon or Angel’s Hair. Boil and cut off the
top and the edible contents resemble spaghetti.
No. 2 COLLECTION
SPENCER SWEET PEA COLLECTION
8 — REGULAR FI LL SIZE PACKETS — 8
AVALANCHE, Clear White. AUSTEN FREDERICK,
WHAT JOY, Cream.
ROSIE, Deep Pink
BARBARA, Salmon.
CHARITY, Crimson. AMETHYST, Blue.
Lavender.
YY’ARRIOR, Maroon.
No. 3 COLLECTION-
EDGING BORDER MIXTURE.
ASTERS, Queen of the Market,
the earliest bloomers.
BACHELOR’S BUTTON. Many
new shades.
CALENDULA. New Art Shades.
CALIFORNIA POPPY. New
Prize Hybrids.
CLARKIA. Novelty Mixture.
CLIMBERS. Flowering climb-
ing vines mixed.
COSMOS. New Early Crowned
and Crested.
EVERLASTINGS. Newest shades
mixed.
-Flowers, 15 Packets
MATHIOIjA. Evening scented
stocks.
jMIGNONETTE. YVell balanced
mixtured of the old favorite.
N ASTURTITJM. Dwarf Tom
Thumb. You can never have
too many Nasturtiums.
PETUNIA. Choice Mixed Hy-
brids.
POPPY. Shirley. Delicate New
Art Shades.
ZINNIA. Giant Dahlia Flowered.
Newest Shades.
No. 4—ROOT CROP COLLECTION
Note The Ten Big Oversize Packets
BEETS. Half Ijong Biood (Large
Packet)
CABBAGE, Enkhuizen (Large
Packet)
CARROT, Chantenay Half Long
(Large Packet)
ONION, Yellow Globe Danvers,
(Large Packet)
LETTUCE, Grand Rapids. This
packet will sow 20 to 25 feet
of row.
PARSNIPS, Eariy Short Round
(Large Packet)
RADISH, ....French ... Breakfast
(Large Packet)
TURNIP, Purple Top Strap
Leaf. (Large Packet). The
early white summer table
turnip.
TURNIP, Swede Canndian Gem
(Large Packet)
ONION, YYTiite Pickiing (Large
Packet)
Sendið áskriftargjald yðar í dag
(Notið þennan seðil)
To THE COLUMBIA PRESS, LIMITED, Winnipeg:, Man.
Sendi hér með $............sem ( ) ára áskriftar-
gjald fyrir “Lögberg.” Sendið póst frítt söfnin Nos.:
Nafn .......................................................
Heimilisfang ...............................................
Fylki .......................................................