Lögberg - 02.05.1935, Blaðsíða 7

Lögberg - 02.05.1935, Blaðsíða 7
LÖGBEHG, FIMTDDAGINN 2. MAl, 1935. 7 Guðmundur Anderson ára gamall. BanameiniS var hjarta- bilun. Miðvikudagsmorguninn — annan í jólum—kendi hann fyrst lasleika eSa svima og lagSi sig fyr- ir, eftir aS hafa kveikt upp eldinn aS vanda, en leiS í ómegin litlu síS- ar. Var þá símaS eftir lækni, en er hann kom, var GuSmundur aftur sæmilega hress. Áleit læknirinn aS engin hætta væri á ferSum, en bann- aSi honum þó aS hafa fótavist fyrir eina eSa tvær vikur. Virtist honum líSa vel þennan dag, en tvö eSa þrjú aSsvif fékk hann eftir þaS, um nótt- ina og daginn eftir, og andaSist eins og áSur er getiS fimtudagskvöldiS hinn 27. HafSi hann þá fulla rænu og meSvitund alt til hins síSasta. í föSurætt var GuSmundur heit- inn EyfirSingur, kominn af hinni merku afarfjölmennu Kjarna-ætt í beinan karllegg. Hann var fæddur 30. nóvember 1860 á Ærlækjarseli í Kvelduhverfi í Þingeyjarsýslu, og voru foreldrar hans Björn Árnason og GuSrún kona hans, sem þá bjuggu þar, en fluttu síSar aS Árna- nesi í sömu sveit. Var Árni afi GuSmundar sonur ÞórSar Pálsson- ar á Kjarna í EyjafirSi. En frá ÞórSi á Kjarna er margt ágætra manna komiS, og má þar til nefna þá séra FriSrik FriSriksson í Reykjavík og DavíS skáld Stefáns- son frá Fagraskógi i EyjafirSi; og voru þeir GuSmundur heitinn og DaviS 3. og 4. ættliSur frá ÞórSi. En móSir GuSmundar var dóttir GuSmundar Þorsteinssonar prests á SkinnastaS í AxarfirSi. En amma GuSmundar og kona Árna ÞórSar- sonar var Jóhanna Gunnarsdóttir, alsystir séra SigurSar á Hallorms- staS og Gunnars á Brekku í Fljóts- dal, föSur Gunnar á LjótsstöSum i VopnafirSi föSur Gunnars skálds Gunnarssonar í Kaupmannahöfn. Hafa þeir því veriS þrímenningar, Gunnar skáld og GuSmundur heit- inn. Margt ágætra manna er nú á ís- landi af nánum ættingjum GuS- mundar heitins, en hér er eigi rúm til aS telja þá upp, og hefir enga þýSingu: þó er rétt aS geta þess, aS svo virSist, sem framúrskarandi hæfileikar, bæSi til sálar og líkama séu mjög algengir í báSum aSalætt- utn GuSmundar heitins, Kjarnaætt- inni og sömuleiSis í Gunnars-ætt- inni, en svo er hún alment kölluS á íslandi nú, ef til vill af því, aS Gunnar skáld er 5. ættliSurinn í beinan karlegg, sem ber þaS nafn. Ekki er mér kunnugt um aS syst- kini GuSmundar heitins hafi veriS fleiri en þau þrjú, er vestur fluttust. Mun Árni hafa veriS þeirra elztur, bjó hann í Nýja íslandi, en nú dáinn fyrir allmörgum árum; þá Jóhanna, Mrs. Murrel, nú ekkja, til heimilis í Winnipeg, og Stefán. trésmiSur í Winnipeg eSa grendinni. GuSmundur heitinn var tvíkvænt- ur, var fyrri kona hans Ingibjörg Jóhannsdóttir Jóhannssonar og konu hans Kri^tinar Jóhannesdóttur; bjuggu þau í Katadal á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu. MeS lienni eign- aSist hann 6 börn, dóu tvö þeirra í æsku, en 4 eru álífi: Victor Björn, bæjarráSsmaSur í Winnipeg, kvæntur Dagbjörtu Hall- dórsdóttur, ættaSri af Akranesi. Emily GuSrún, gift Hafstein Júlíus Thorson fasteignamiSlara, Stefánsson Thorarensen af Akur- eyri, húsett i Vancouver, B. C. Orville. prentari í Milwaukee í Wisconsin í Bandaríkjunum. Aurora, gift Jóhanni Jóhannson, SigurSsson Jóhannssonar skálds. Eru þau búsett í Burnaby nálægt New Westminster í B. C., þar sem hann á og starfrækir járnþynnu iSnstofu. SíSari kona GuSmundar er Þor- björg Stevens, GuSmundsdóttir Stefánssonarog konu hans GuSnýjar Högnadóttur frá Kjólsvik viS Borg- arSfjörS eystra. Lifir hún mann sinn ásamt 8 efnilegum börnum þeirra, og eru þau þessi: GuSný Dagmar, gift Daniel Krist- mannson, eru þau búsett i Prince Rupert, B.C., þar sem hann starfar 1 þjónustu Iperial olíufélagsins. Ingibjörg FriSrikka, gift William McLeod verzlunarmanni í Van- couver. Alice, gift John Ewart, verzlun- armanni í Vancouver, B.C. Anna GySa, ógift, vinnur á verzl- unar skrifstofu David Spencer í Vancouver. Bauldwin, ókvæntur, hljómleik- ari i Vancouver. GuSrún Muriel, ógift, í þjónustu David Spencer verzlunarfélagsins. Þorbjörg Thelma og Norma, báS- ar á alþýSuskóla. Fimm hin síSast- töldu eru öll heima hjá móSur sinni. Þó GuSmundur heitinn væri kom- inn á háan aldur—nær hálf-áttræS- ur— og því eSlilegt aS kalliS kæmi hvenær sem væri, er hiS snöggega fráfall hans eigi aS síSur djúpt hrygSarefni ástvinum hans, ættingj- um og vinum, því hann var ástríkur eiginmaSur, umhyggjusamur faSir og tryggur vinur, auk þess sem hann var hiS mesta prúSmenni í dagfari öllu og umgengni viS hvern sem i hlut átti, og var þaS sízt ofmælt, er séra Albert Kristjánsson sagSi viS likbörur hans: “aS hann væri einn af þeim fáu, er hann hefSi engan heyrt hafa neitt misjafnt eSa miSur gott um aS segja.” Því miSur verS- ur þaS ekki meS sanni sagt um marga af okkur Vestur-íslending- um. ÞjóShátíSaráriS 1874, fluttist GuSmundur heitinn vestur um haf meS foreldrum sínum, þá óharSnaS- ur unglingur um fermingaraldur. StaSnæmdist hann fyrst í Kinmont í Ontario-fylki í Canada, og vann þar hjá bændum þar til rúmu ári síSar, aS hann fluttist vestur til Nýja íslands, og nokkrum árum siS- ar til Akra í North Dakota í Banda- ríkjunum og nam þar land á svo- nefndum SandhæSum áriS 1883 og bjó þar um 6 ára skeiS, til ársins 1889. HafSi hann þá gegnt friS- dómara-embætti AkrabygSar meSan hann bjó þar. ÁriS eftir aS hann hætti búskap fluttist hann aftur norSur yfir landamærin og scttist aS í Winnipeg. StundaSi hann eftir þaS aSallega trésmíSi, meSan kraft- ar leyfSu. Frá Winnipeg tók hann sig svo upp aftur eftir 17 ára dvöl samfleytt og flutti til Vancouver i British Columbia áriS 1907,—þaS var síSasti áfanginn: þar átti hann | heima eftir þaS til dánardags. Sex árum eftir aS hann kom til ! Winnipeg, misti hann fyrri konu sína (1896) og tók Kristín stjúp- dóttir hans—síSar Mrs. McLean, og nú dáin fyrir nokkrum árum— ! viS hússtjórninni, og gekk börnun- I um, sem þá voru flest ung í móSur. staS. Þótt hún sjálf væri tæplega j fullþroskuS þá leysti hún þaS vanda- j sama starf af hendi meS dæmafárri j alúS og samvizkusemi, enda minn- ! ast börn GuSmundar heitins af fyrra hjónabandi, hennar jafnan meS j djúpri virSingu og hlýleik, meira ef j til vill sem móSur en systur. SíSari j konu sinni kvæntist hann í Winni- ] peg áriS 1904, og þrem árum síSar j flutti hann alfarinn vestur aS j Kyrrahafi, sem fyr er getiS. Eins og aS líkindum lætur um mann, sem lifir eingöngu af hand- ! iSn sinni, og elur upp jafnstóran barnahóp, var GuSmundur heitinn jafnan félítill, en hann hafSi nægju- semi, lífsgleSi og rólyndi i svo rik- um mæli, aS þess gætti aldrei, og máttu margir þeir, er meira höfSu handa á milli öfunda hann af heim- ilishagnum, þar sem ávalt ríkti ró- leg glaSværS, gestrisni og ánægja. Enda var kona hans honum jafnvíg í því, aS láta eigi hinar ytri kring- umstæSur lífsins lama andann, eSa skyggja á sól hamingjunnar. Munu fáir ef nokkrir hafa komiS svo á heimili þeirra hjóna, og þeir voru margir, er þar komu, aS þeir færi ekki aftur endurhrestir, oftast bæSi á sál og likama. Ekki naut GuSmundur heitinn mikillar mentunar í æsku. Auk kversins hafSi hann lært skrift og reikning, og lítilsháttar aS lesa dönsku, en þaS var ekki meir en alment gerSist um unglinga í Þing- eyjarsýslu á þeim tímum. En hann hafSi meSfædda mentaþrá samfara góSum náttúrugáfum, enda hafSi hann tiltölulega snemma æfinnar aflaS sér svo haldgóSrar þekkingar á öllum almennum mentasviSuni; aS »Skemtisnekkja konungs. Mynd þessi er af skemtisnekkju konungs, "Britannia”, er verið er aS búa út fyrir þátttöku í kappsiglingu í tilefni af ríkísstjðrnar afmæli konungs. þeir, sem “lærSir” voru kallaSir, máttu margir hverjir hafa sig alla viS aS standa honum jafnfætis. Hann var silesandi, hvenær sem stund gafst frá daglegum störfum, alt til hins síSasta. Og hann las sér til gagns; valdi ábyggilega höfunda og heimildarrit, og myndaSi sér aldrei ákveSna skoSun eSa niSur- stöSu í neinu máli fyr en hann hafSi kynt sér alt er kostur var á, efninu til skýringar, bæSi meS og móti. Af þessu leiddi, aS þekking hans varS víStækari og heilbrigSari en alment gerist um sjálfmentaSa menn, er oft hættir viS einhæfni i ályktunum og skoSunum. Hann var vel máli far- inn jafnt á íslenzka sem enska tungu, rökfimur, hnyttinn og sann- færandi. Var þaS því eigi aS ófyr- irsynju, aS oft var til hans leitaS, er um samkvæmi, hátíSahöld eSa hvaS annaS, er mikils þótti viS þurfa, var aS ræSa; og þeir munu fáir, Vestur-íslendingarnir, er annars geta talist því nafni, sem ekki hafa oftar en einu sinni heyrt hann og séS á ræSupalli. Þar, sem annars- staSar, kom hann jafnan fram sjálf- um sér og þjóS sinni til sóma. Þó GuSmundur heitinn mætti meS réttu teljast alvörumaSur, var hann þó fremur glaSsinna og sérlega fé- lagslyndur. Mun þaS hafa veriS aSal orsökin til þess, aS framan af æfinni, eSa um fyrri hluta miS-æf- innar, hneigSist hann allmjög til vínnautnar. Var þá brennivins öld í landi hér, og ýmsum hinna félags- Íyndari og fróSari manna—þeim, er hann eSlilega fann mesta nautn í aS umgangast — þótti sopinn góSur. Enginn vafi leikur á því, aS viS þaS leiS hann mikinn hnekki, þvi þó hann slyppi andlega og líkamlega ó- meiddur úr þeirri ekfraun, þá orkar þaS eigi tvímælis aS manni, meS hans fjölbreyttu hæfileikum og þekkingu, bar á því tækifæranna tímabili—feitari biti aS borSi lífs- ins, en hlutskifti daglaunamannsins. Litlu eftir aS Goodtemplara reglan komst á fót í Winnipeg, gerSist hann meSlimur hennar, og þó aS þaS eitt, aS ganga í regluna, geri ekki alla aS bindindismönnum fyrirhafnarlaust, þá unnu þó vitsmunir hans og mann, dómur sigur, svo aS hann varS ör- uggur og áhugasamur bindindis- maSur. Koniu þá, sem endrarnær, hinir lipru starfshæfileikar hans aS góSum notum, enda naut hann bæSi trausts og virSingar í því starfi, jafnt innan reglunnar sem utan. Hann var um langt skeiS æSsti em- bættismaSur reglunnar í Manitoba, og NorSvesturlandinu, og má óhætt fullyrSa, aS þaS tímabil hafi veriS blómaöld bindindishreyfingarinnar; lágu til þess ýmsar orsakir, og ein af þeim var óefaS áhugi hans, lipurS og einlægni, sem Stórtemplar. Taldi GuSmundur sig jafnan í þakklætis- skuld viS regluna; og eigi þykir mér ólíklegt aS meSal einlægi'a bindinis- manna og kvenna ríki sú tilfinning aS reglan eigi honum ailmikiS upp I aS unna.. , GuSmundur heitinn var mjög hneigSur til hljómlistar, og spilaSi ] sérlega vel á fíólín. HafSi hann afl- aS sér sæmilegrar þekkingar á því sviSi, og stjórnaSi um margra ára skeiS hljómsveit í Winnipeg, er viS hann var kend: “Anderson's Or- chestra.” í stjórnmálum aShyltist hann jafnaSarstefnuna, og í trúmálum fylti hann flokk hinna frjálslynd- ari hreyfinga. En þar, sem annars- staSar var hann mjög gætinn. MeS- an hann var í Akra-bygSinni í Dak- ota tilheyrSi hann lúterska söfnuS- inum þar, en þaS mun hafa veriS fremur vegna félagslyndis hans en hins, aS hann fyndi sig eiga þar andlega heima; og sem fulltrúi sat hann hiS fyrsta ársþing kirkjufé- lags lúterska 1885. En er hann flutti til Winnipeg, fylkti hann sér brátt undir merki hinnar frjálsu hreyfingar þar. Hann hafSi heil- brigSan áhuga fyrir andlegum mál- um, og áleit verkefni kirkjunnar mjög þýSingarmikiS, en hann fann sárt til vanmáttar hennar gagnvart vísindunum og veruleika lífsins, og áleit aS trúarbrögSin þyrftu aS verSa annaS og meira en eins og þoku- kendur draumur, ef þau ættu aS verSa þess megnug aS leiSa menn- ina á GuSs vegum. Þegar spiritista-hreyfingin reis upp á íslandi, litlu eftir aldamótin, veitti hann henni brátt athygli. LagSi hann lítinn trúnaS á þær “drauga- sögur” er aS heiman bárust þá i blöSum og ritlingum, en svo voru fyrirbrigSin þá alment kölluS. Þetta varS þó til þess, aS hann fór aS kynna sér máliS til hlítar. Komst hann brátt yfir flestar þær bækur, er kostur var á um þessi efni, á hér. lendu máli á þeim árum, og fylgdist frá þvi alt til æfiloka meS öllu því, er gerSist á sviSi sálarrannsóknanna, og til varS náS. Hann var meSlimur ameriska sálarrannsóknarfélagsins, og tvímælalaust langfróSasti íslend- ingur vestan hafs, um þau efni. Seint á árinu 1907 byrjaÖi hann á rannsóknum fyrirbrigSanna, eSa tilraunum, og hélt þeim stöSugt uppi i átta ár. Tel eg vafalítiS, aS utan Sálarrannsóknarfélags íslands hafi íslendingar hvergi unniS aS slíkum rannsóknum af jafnmikilli ná- kvæmni, alúS og þekkingu, enda var þaulkunnugur aSferöum vís- indamannanna viS þann starfa. En þaS var ekki fyr en eftir aS þessu rannsóknartjmabili var lokiS, aS hann komst aS ákveSinni niSurstöSu í málinu. Sýnir þetta máske betur en margt annaS, hve varfærinn hann var og vandur aS skoöunum. Taldi hann þessar rannsóknir merkasta þáttinn í æfistarfi sínu. “Og nú, þegar deginum er fariÖ aS halla.” sagSi hann viS mig fáum mánuÖum fyrir andlátiS, “finn eg þaS alt af betur og betur, hve mikils virSi þaS er, aS hafa þekkingarlega vissu um eilífÖarmálin.” Oft heyrSi eg þá, er þóttust þekkja hann vel, finna honum þaS til foráttu aS hann léti of lítiö til sin taka um almenn mál. og þó sér- staklega áhugamál íslendinga. Sjálf- sagt höfSu þeir mikiS til síns máls, því óefaS hefSi hann getaS miklu á- orkaS í þá átt. aS greiSa úr flækj- um dægurþrassins, meS lipurS sinni, vitsmunum og góSgirni. En hann kaus heldur aS vinna aS sínum á- hugamálum í kyrþey. Hann var eng- inn bardagamaSur, og ekki fyrir aS láta meira á sér bera en nauÖsynlegt var, og honum ofbauS moldrykiS, sem röksemclafærslan þyrlaSi al- menningi i augu, og hafSi andstygS á saurnum, sem skoSanamunurinn kastaÖi á andstæSinginn. ‘ FjarlægSin gerir fjöllin blá, og mennina mikla,” lætur Jóhann Sig- urjónsson Fjalla-Eyvind segja. Þetta er eitt af spakmælum þess djúpvitra rithöfundar og sígildur sannleikur. GuSmundur Anderson var undantekning frá þeirri reglu. Ilann varS því meiri, sem hann færSist nær. En þaS voru ekki aSrir en þeir, er áttu því láni aS fagna aS ná vináttu hans, er áttu þess kost, aS sjá hann í fullri stærS, og þó því aSeins, aS þeir kæmu heim til hans, og sætu hjá honum, viS hans eigin arinn og ræddu viS liann um hinar óráSnu gátur lífsins. Þá opnaSi hann einatt djúp sálar sinnar, og þar brann sá eldur, sem gerir mennina mikla. Hinsvegar mun sú almenna virSing, er hann naut, jafnan skipa honum i fremstu röS frumherjanna íslenzku, og yfir minningu hans verSur alt af bjart. Bjarni Lyngholt. Fjarlœgðir himintungla Framhald frá bls. 3 839,600 mílur aS lengd, heldur hin sívaxandi framrás sólkerfis vors. MeS því aS bera saman staSi stjarna, nákvæmlega athuguSum af frægustu stjörnufræSingum frá því um miSja átjándu öld, hefir sannast aS þótt breyting himinhvolfsins, hvaS afstöSu stjarnanna snertir, sé hæg- fara, á hún sér engu aS siSur staS. Þessi stöSuga staSbreyting stjarn- anna getur sumpart stafaS af staS- breytingu vors eigin sólkerfis. ÞaS er þessi hægfara rás stjarnanna, sem nefnist eiginleg hreyfing þeirra. Þeim er ávalt lýst í bogamálssekúnd- um. Er þá getiS um liversu mikil hreyfingin sé á einu ári, eSa jafn- vel heilli öld. Fáar fara frarn úr hundraÖ sekúndum á einni öld og' þaöan ofan i ekki neitt. Yfir höfuS aS tala má segja a'S hinum eiginlegu hreyfingum þvrp- inganna sé þannig fariS, aS sérstök stjörnumerki virSast stækka og víkka á einhvern hátt ár frá ári, þar sem önnur stjörnumerki i gagn- stæSri átt sýnast minka og stjörn- ur þeirra nálgast hver aSra. LeiSir því af sjálfu sér, aS sólkerfi vort er aS færast nær þeim fyrri, en f jær hinum síSari. ÞaS er eins og vér berumst meS straumi, og aS straum- stefnan, sem nefnist hvirfill hreyf- ingarinnar, sé ekki langt frá \ egu í Hercules stjörnumerkinu, og aS hraSinn sé um tólf milur á sekúnd- unni. borinn saman viS hinar bjart- ari stjörnur í stjörnukerfi þvi, er sólkerfi vort hevrir til: vetrarbraut- in er einnig meSlimur þess. Sann- reyndir þessar hafa komiS í ljós viS ítarlega rannsókn á litrófsmyndum stjarnanna, þar sem fjarlægS og hreyfing verSa auSséSar. ÞaS er sérs.taklega þessi rannsóknargrein, sem öllum fremur hefir leitt i ljós meS hinni mestu nákvæmni hinar undraverSu “eiginlegu hreyfingar” sólar vorrar og stjarnanna. ÞaS var lögmál geislunarhraSanna (rad- ial velocities), sem gerSi þessar uppgötvanir mögulegar og sem ranti- sóknum þessum liggur til grundvall- ar. Flestir munu hafa tekiS eftir hinni síbreytingu tónhæS hraSlestarblístr- unnar þegar lestin nálgast eSur f jarlægist. ' Orsökin er auSskilin. TónhæSin er komin undir lengd hljóSöldunnar. Þegar hraSlestin nálgast, styttist hljóSaldan, en leng- ist þegar hún fjarlægist. VerSur því hljóSiS æ hvellara og hvellara eftir því sem lestin færist nær, en lækkar aS sama skapi eftir því sem fjarlægS hennar eykst. HraSinn þrýstir hljóSöldunum saman í fyrra tilfellinu, en teygir úr þeim—lengir þær í hinu síSara. HöfuSatriSi þetta heimfærist einn ig til ljósaldanna. Litrófslínur stjörnuljóssins færist ofurlítiS aS öSrum hvorum enda litrófsins eftir þvi hvort stjarnan er aS fjarlægj- ast oss, eSa nálgast. ÞaS er geisl- unarhraSinn, sem þessu veldur. Fjarlægist stjartnan, lengist öldu- lengd litrófslínanna og línurnar (Frounhofers línurnar) færast aS rauSa enda litrófsins; en eigi hiS gagnstæSa sér staS, færast þær aS fjólubláa endanum. Þótt litrófslin- urnar færist aS eins lítiS eitt, eru staSbreytingar þeirra engu aS síSur mælanlegar. MeS þessari aÖferÖ hef- ir ekki einungis stefna hinnar “eig- inlegu hreyfingar” sólkerfis vors veriS ákveSin, heldur og einnig hraSi hreyfingarinnar sjálfrar, miÖaÖ viS heildarkerfi stjarnanna. Hreyfing þessi, 86,400 mílur á sólarhringnum, flytur oss og kerfi vort á hundraÖ árum meira en f jögur hundruS sinn- um lengra en fjarlægö sólar frá jörSu. Er hér því fengin firSmæl- ingagrunnlína, sem lengist án af- láts eftir því sem árin HÖa. A tutt- ugu árum jafnast lengd hennar á viS fjörutíu jarSbrautar þvermál (400-4-5 = 80 jaröbrautargeisla). MeS þessari aSferS hafa nú þegar veriS ákvarSaSar fjarlægSir margra stjarna, svona nokkum veginn rétt, sem láu langt fyrir utan takmörk þeirra aSferSa, er áSur þektust. MeSal hinna mikilvægari stjarn- fræSilegra uppgötvaæa, er geröar hafa veriS í seinni tíS. er uppgötv- un Dr. Adams. Þótt Harvards lit- flokkarnir B, A, E, G, K, M, og undirdeildir þeirra lýsi svona nokk- urn veginn hinum réttu sérkennum litrófsmynda þeirra, þá er greini- legur munur á sumum litrófslínun- um (Fraunhofer lines) á ljósbands- myndum stjarna af sama flokki.— StjörnufræSisdeild Harvard háskól- ans hefir skipaS litrófsmyndum stjarnanna eftir lit þeirra í flokka; hver flokkur er táknaSur meS bók- staf, en undirdeildir hvers flokks tölustöfum. ASalflokkarnir eru þessir: B, bláar stjörnur; A, hvít- ar; E, bleikgular; G, gular; K, rauS- leitar og M, rauSar. Sólin heyrir til B flokknum.—ÞaS var Adams, sem fyrstur allra tók eftir þessum mismun. Þegar hann bar þenna mismun saman viS hinn “sanna skærleik’’ stjarnanna, sem auSvelt var aS reikna út frá hinum mörgu ársskekkjum. sem nú var búiS aS ákveSa, þá varS hann brátt þess vis, aS mismunarstig litrófslínanna gáfu til kynna hinn “sanna skærleik” eSa “algjörSu stærS” stjarnaiina.—Al- giörS stærS (absolute magnitude) hefSu, væri þær allar í slikri fjar- læg’Ö, aS úrsskekkja þeirra væri 1/10 úr bogamálssekúndu.—Adams tókst nú vonurn bráSar. meS aSstoS Kohl- schutters, aS ákvarSa stjörnum af öllum flokkum, ef vel skírar litrófs- myndir fengust. þeirra algjörSu stærS. Þegar þessi fullvissa var fengin, og sýnileg stærS stjörnunn- ar ákveöin, var fjarlægS hennar þar meS fundin. Ef stjarnan er þess eSlis, aS unt sé aS ljósmynda litróf liennar, og hin sýnilega stærS henn- ar þekt, er auövelt aS ákveöa, inn- an vissra takmarka, fjarlægS hverr- ar stjörnu sem er. VerÖur því auö- sætt hve víStæk og þýSingarmikiI þessi uppgötvun er. Hún hefir aukiS þekking vora á stjarnfirSum og vikkaS aS miklum mun víSáttu geimsins. Framh.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.