Lögberg - 22.08.1935, Síða 2
2
LÖGrBERGr, FIMTUDAGINN 22. AGÚST 1935.
Hcgtjerg
GefitS út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba.
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 605 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and published by The Columbia
Press, Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba.
PHONE 86 327
Áfengi og slys
Blaðið Toronto Mail and Empire, flutti
fyrir skemstu eftirfarandi greinargerð um
slys á Bretlandi, er rót sína ættu að rekja til
áfengisnautnar; er hér um mál að ræða, sem
aldrei verður of vandlega skýrt fyrir al-
menningi, ef vera mætti að það leiddi til auk-
innar varúðar meðal þeirra, er stjóma bílum
og flutningatækjuip vfirleitt. Blaðið kemst
meðal annars þannig að orði:
“Rannsóknir hafa leitt það í ljós, að
jafnvel hæfustu bílstjórar ættu ekki að tefla
á tvajr hættur viðvíkjandi áfengi.
Síðasta skýrsla, sem um vandamál þetta
fjallar, og komið hefir fyrir almenningssjón-
ir, er frá fimtán manna nefnd úr læknafélag-
inu brezka, sem haft hefir rannsókn málsins
með höndum að tilhlutan samgöngmmála-
ráðuneytisins. Nefnd þessi vekur athygli á
því, að hún hafi öllu öðru fremur, gert sér
far um að kynnast ásigkomulagi bílstjóra, er
minna áfengis neyttu en svo, að þeir mætti
ölvaðir kallast; lítur hún svo á, að jafnvel
örlítil áfengisneyzla geti leitt til þess, að bíl-
stjóri tefli í tvísvnu, eða láti fremur vaða á
súðum, en hann ella myndi hafa gert, með því
að öryggis vitund hans virðist glæðast í
augnablikinu.
Samkvæmt skýrslu þessarar fimtán
manna nefndar, voru 2,016 bílstjórar á Bret-
landi, samkvæmt læknisskoðun, fundnir sekir
um að hafa ölvaðir ekið fartækjum sínum árið
sem leið. Eins og gefur að skilja, voru þeir
þó vafalaust margfalt fleiri, er líkt var ástatt
með, þó hjá því slyppi að falla að einhverju
leyti í hendur lögreglunnar og yfirvaldanna.
Nefndin leggur sérstaka áherzlu á það, að
jafnvel hin minsta nautn áfengis, geti riðið
einum bílstjóra að fullu, þó annan saki ekki;
þess vegna ætti engum þeim að líðast að aka
bíl, er áfengis neytti, í hvaða mynd sem væri.
Eins og þegar hefir verið getið, bendir
fimtán manna nefndin oftar en einu sinni á
það, að sú skynvilla nái iðulega haldi í bíl-
stjórum undir áhrifum víns, að kjarkur
þeirra og karlmenska hafi aukist til muna, og
þess vegna tefli þeir oft af þeirri röngu í-
myndun, á fremsta hlunn", þannig að hlys
hljótist af. Látið er þess jafnframt getið, að
bílstjórum sé hættara við að komast í þess-
konar ásigkomulag, ef þeir neyti áfengis á
fastandi maga.”
I>au hin sorglegu og tíðu slys, sem verið
hafa svo að segja daglega að gerast víðsveg-
ar um þjóðvegu þessa lands í sumar, ættu að
opna svo augu almennings í þessu vandamáli,
að þeir menn, sem sekir gerast um það að
aka bílum undir áhrifum áfengis, þurfi hvergi
griðlands að vænta.
Hvat manna es þat ?
Menn eru enn að spyrja sjálfa sig og
aðra þessarar spurningar í sambandi við
moldviðri það, er Mr. Stevens er að þyrla upp
um þessar mundir. Spurningunni er ekki
vandsvarað. Mr. Stevens hefir verið aftur-
haldsmaður alla sína æfi og mun því allsendis
ástæðulaust að ætla að hann sé það ekki enn;
liann hefir verið, og mun vafalaust vera í
hjarta sínu enn, ákveðinn hátollamaður, þó
hann af einhverjum dulrænum ástæðum, telji
sig um þessar mundir ekki ófáanlegan til ein-
hverra smávægilegra tilslakana á þessu sviði.
Mr. Stevens var eindreginn jábróðir Mr.
Bennetts í öllum atriðum, fram í lok síðast-
liðins desember mánaðar, og sagði fram að
þeim tíma já og amen við öllum einræðishug-
sjónum hans. Mr. Stevens hröklaðist út úr
ráðuneytinu og þá kemur samstundis annað
hljóð í strokkinn.
Mr. Stevens hefir verið all-lengi við
opinber mál riðinn og setið leíigi á þingi; var
hann lengst af fulltrúi Mið-Vaneouver kjör-
dæmisins. Það undur gerðist þó, þrátt fyrir
afturhaldsölduna miklu, sem illu heilli skall
yfir þjóðina 1930, að Mr. Stevens beið ósigur
í Vancouver, og varð því til þess knúður að
leita sér þingsætis í öðru kjördæmi, því Mr.
Bennett gat þá undir engum kringumstæðum
án hans verið, og þeir líklegast hvorugur án
annars. Mr. Stevens var gerður að verzlun-
arráðgjafa, og því embætti gegndi hann fram
til þess tíma, er áður hefir verið getið.
1 útvarpsræðunum sex, lýsir Mr. Bennett
vantrausti á ýmsum megin stoðum núgild-
andi viðskifta og fjárhags fyrirkomulags og
heitir margvíslegum umbótum. Hverjar efnd-
irnar urðu á því sviði, lýsir saga síðasta
þings. Nú gerist Mr. Stevens málsvari sams-
konar umbóta ákvæða, og gengur að minsta
kosti ekki feti framar. Er hann líklegri til
þess að fylgja þeim fram þegar á hólminn er
komið, en Mr. Bennett?
1 insta eðli eru þeir Mr. Stevens og Mr.
Bennett alveg sammála. Því viðurkenna þeir
þetta ekki hreinskilnislega og helga. aftur-
haldinu sameiginlega óskifta krafta sína eins
og þeir gerðu fram að síðustu áramótum?
Landnámsmanna minnisvarð-
inn á Gimli
Langt er síðan að sú tilfinning hreyfði
sér á meðal Islendinga í þessari álfu, að
minnast landnámsmannanna og landnáms-
kvennanna íslenzku, er fyrst hófu varanlega
bygð hér í Vestur-Canada, á viðeigandi og
varanlegan hátt, bæði vegna sögulegrar þýð-
ingar þess viðburðar, og svo í hluttekningar
og virðingarskyni fyrir hið mikla verk, sem
þetta fólk vann og fyrir þrengingarnar og
erfiðleikana, sem það lagði á sig til að ryðja
veginn fyrir þá, sem á eftir komu.
Framkvæmdirnar á að koma þessu í
verk, hafa, eins og öllum er kunnugt, dregist.
Eikki þó af neinum ófúsleik almennings, held-
ur fyrir skort á framtakssemi og forystu í
málinu.
1 síðustu blöðunum íslenzku hér vestra
er skýrt frá því, að verkið sé nú hafið og
grunnurinn reistur og er það satt, svo frá því
þarf ekki að segja aftur. En frá öðru þarf
að skýra og það er, að þegar ve*kið var hafið,
af tilstilli Þjóðræknisfélags Islendinga í
Vesturheimi í samráði við mæta menn utan
þess félags, þá var það gert í því trausti, að
Islendingar alment mundu láta sig málið
varða og að þeir mundu styrkja það. Það
þarf líka að skýra frá því, að þegar verkið
var hafið, var ekkert fé fyrir hendi annað en
$93.90, sem safnast hafði fyrir nokkrum ár-
um til væntanlegrar minnisvarðabyggingar á
Gimli í sama augnamiði, og það þarf að segja
frá, að til þess að ljúka minnisvarðabygging-
unni sómasamlega og prýða reitinn umhverf-
is varðann, þarf peninga, svo hægt sé að
ganga vel frá verkinu.
Islendingar! Vér vitum að það er til
mikils mælst að biðja yður að hlaupa hér
undir bagga, ekki sízt í eins óhagstæðu ár-
ferði og nú er. Við vitum einnig að þið getið
sagt: Hvað kemur oss þetta við; þig byr juð-
uð verkið; sjáið þið sjálfir fyrir því. En við
vitum einnig að þið gerið það ekki,—vitum
að yður er það eins ljóst og okkur, að ef þetta
verk er ekki framkvæmt, og það einmitt nú,
áður en atburðurinn, sem um er að ræða fyrn-
ist meira og þær minningar, sem við hann eru
bundnar, þá verður það aldrei gert.
Við treystum því, að velvild yðar til
þessa fyrirtækis yfirstígi alla erfiðleika, sem
í vegi kunna að vera og að þér finnið veg til
þess, hver og einn, sem minningu landnáms-
mannanna og kvennanna metið, að láta af
hendi rakna stærri eða smærri upphæð til
þess að varða hana um ókomnar aldaraðir.
Þeir, sem við ósk þessari vilja verða, og
við treystum því að þeir verði margir, sem
á þann hátt vilja gerast þátttakendur í þessu
þarfa verki, geri svo vel að senda tillög sín
til íslenzku blaðanna, Heimskringlu og Lög
bergs, sem góðfúslega hafa lofað að veita
öllum tillögum móttöku og kvitta fyrir þau.
J. J. Bíldfell,
Dr. Ágúst Blöndál,
Bergþór Emil Johnson.
(Minnisvarðanefndin).
# * #
Avarp það, frá nefndinni í minnisvarða-
málinu, sem birt er hér að ofan, mælir í raun-
inni með sér sjálft. Saga hinna íslenzku
frumbyggja í þessu landi er slík, að hún verð-
skuldar fulla varðveitslu frá glötun. Sú hin
augljósa samúð viðvíkjandi minnisvarðahug-
myndinni, er fram kom við grunnsteinslagn-
inguna á Gimli þann 5. yfirstandandi mán-
aðar, var svo innileg, að fullyrða má, að sú
tiltölulega litla fjárupphæð, sem nefndin
þarfnast til þess að sjá málinu farborða í
tæka tíð, náist saman á skömmum tíma. Nú
er farið að líða á sumar og minnisvarðinn
þarf að afhjúpast á sextugasta afmælisdag
landnámsins, sem er ,21. október næstkom-
andi. Þessvegna veltur alt á því, að tillög
þau, sem nefndin fer fram á, 'berist henni í
hendur sem allra fyrst. Islendingar vestan
hafs hafa oft velt þyngra hlassi en þessu.
Við jörðu
Þokan fylti gersamlega loftið, og
hvern krók og kima á jörðunni.
Vindurinn reis með morgninum
og tók að lemja vatninu og kuldan-
um um alt er fyrir varð.
Við vorum átta. Vegurinn var
illur og ógreiðfær til heiðarbrekkn-
anna, þá tók við snarbratti. Fæstir
hestarnir voru fótfráir, höfðu tap-
að þeirri list að öllu í erfiði lífsins,
en sumir reiðmanna héldu helzt hita
á sér, með því að berja þá áfram.
Þeir fóru svo sem ekkert hraðara
fyrir það.
Maður gæti hugsað sér, að ef
hestarnir hefðu skynjað baráttu
Bjarna amtmanns Thorarensen fyr-
ir betri vegum, og andúðina og úlf-
úðina, sem á hann lagði, frá sam-
tiðarhöfðingjunum sunnanlands, út
af því máli, þá hefðu þeir borið
fram eitthvað þessu líka bæn:
“Drottinn, gerðu þessa andúðar-
höfðingja að útlifuðum húðarklár-
um, sem barðir séu svo áfram til
reiðar og áburðar i þessumrvegleys-
um. Það bítur ekki á þá, að með-
bræður þeirra i mannsmynd sökkva
kvikir í vegleysur og verða úti á ó-
vörðuðum heiðum, svo reynandi
væri, herra, að svifta þá málinu og
mannsvitinu, en láta þá verða eins
og okkur, með alla skynjun og til-
finningu á sársauka, æfilangt þræla
í misjafnra höndum. Og gefðu þeim
það í uppbót, Drottinn, að þeir
muni eftir sér í fyrri tilverunni.
Reyndu það, herra, reyndu það.”
Eg hugsa mér að eitthvað í þessa
átt hafi mörg andvörpin verið, er
stigið hafi fram fyrir almættið, frá
hinum undirokuðu á þessum slóð-
um og víðar, af samskonar orsök-
um.
Vegir eru nú sagðir mikið bættir
á landi voru, brýr bygðar og bifað
yfir fjöll. Hitt grunar mig, að á
þessum sérstaka bletti jarðar vorrar,
er hér um ræðir, séu hestarnir biðj.
andi enn. En höldum nú upp á
heiðina.—Hér var snarbrött brekka,
sundurskorin af grýttum lækjum,
lækjunum, sem mynda fenin fyrir
neðan, en þau voru líka grýtt og
grýtt á milli þeirra.
Hér gerir brattinn og vatnið og
grjótið veginn að klungrum. En
klárarnir tilfa og strita. Einn gæð-
ingur er með í ferðinni. Hann er
fimastur og fær engin högg. En
vindurinn lemur vatninu og kuldan.
um um mennina og skepnurnar og
virðist til með að kæla merg og
blóð, fái hann völdin að fullu.
Loks komum við upp á heiðar-
brúnina. Hamingjunni sé lof! Heið-
in er slétt þó hún sé löng. Það
verður betra undir fæti fyrir klár-
ana og ólíkt meiri þægindi fyrir þá
sem á þeim sitja.
Grár gríðarstór þokubakki demb-
ist yfir heiðina, í námunda og gerir
tvær ofurlitlar hálfhrundar vörðu-
kúrur, að tröllum. Þokan á heið-
inni! Það var nú það sem mér hafði
alt af staðið stuggur af; það var
hún, sem öllum stóð stuggur af, þó
þeir létu það misjafnlega mikið
uppi.
Pilturinn á gæðingnum réði ferð.
inni. Hann var uppalinn þarna í
sveitinni, svo var flest hitt fólkið.
“Ætli við rötum nú?”
Pilturinn á gæðingnum varð
hnakkakertur. “Það er engin hætta
á öðru.”
“Hvað heldurðu að maður villist
um sumardag, í ekki verra veðri en
þessu ?”
Eg steinþagði. Eg sá að eg hafði
gert aulastryk. Fyrir stuttu kom
átján ára stúlka ein síns liðs yfir
heiðina, í fyrsta sinn, í þreifandi
þoku. Viltist ekkert.
Það fréttist um alla sveit og þótti
vel gert. Nú hafði eg gert minna úr
gildum karlmannsvitsmununum en
átján ára gamallar stúlku. Það var
falleg stúlka líka.
Bezt að þegja.
Eg rýndi í þokuna. Vörðurnar
tröllauknu voru að fara fram hjá.
Þær voru í rauninni smáar og
hrundar í dyngju. Einhver talaði
um vísur, sem menn styngju oft í
þær. “Beinakerlingarvísur.” Alstað-
ar þurfa íslendingar að yrkja. Eg
get ekki varist þeirri hugsun nú, að
NÝ — þægileg bók
í vasa
SJÁLFVIRK
— EITT BLAÐ 1 EINU —
Pægilegri og betri bók I vasann.
HundraO blöð fyrir fimm cent.
Zig-Zag cigarettu-blöð eru búin
til úr bezta efni. Neitið öllum
eftirlíkingum.
ZICZAG
meiri menningarbragður hefði ver-
ið á því, að hlaða nokkrum steinum
vel í vörðu, en skilja eftir sumar
vísurnar, sem þar hafa fundist. En
þannig er lifið á norðurslóðum. Það
þarf mikið fyrir sér að vinna og
verður sterkt til skapnaðar aftur,
gengur svo nærri moldinni að
dreggjar hennar blandast þvi í blóð.
Keskni er það, kuldi, harka, grimd.
“Beinakerlingarvísurnar” hafa oft
sýnt þetta alt.
Heiðin, þessi melauðn, með fjöll-
in að umhverfi, dalir og klettabelti,
með ótal endaleysur völundarhúsa,
svo hægt er að snúast í kringum
sjálfan sig lengi og ganga fram af
hömrum.
Menn höfðu týnst á þessari heiði,
—margir menn.—
Fullorðin kona í ferðirtni vildi á
á heiðinni. Pilturinn á gæðingnum
var ekki meir en svo áfram um það.
Það varð þó úr.
Hestunum var slept á grastórnar
hér og þar, því of langt var upp
undir fjallið til góðrar beitar.
Ferðafólkið fékk sér lítinn bita.
Illviðrinu mesta hafði nú slotað, en
svalinn og úðinn minti mann á
hressingu náttúrunnar, sem var úti-
látin i svo ómældu um morguninn,
þegar við fórum á stað, og entist
fram eftir deginum. Fjallafaðmur-
inn lét finna til friðar síns og yndis
ámeðan við snæddum bita og hvild-
um klárana, þrátt fyrir eftirstöðvar
óveðursins. Menn töluðu um veðrið,
hve vel hefði gengið að rata, hve
snemma yrði komið til bygða, og þar
fram eftir götum. Eftir stutta dvöl
var enn haldið á stað. Hér var
engin varða. Gata og götuslitur sá-
ust í melnum, en sumstaðar hurfu
þau líka. Grastó sást varla hér, fyr
en nær kom f jallsrótunum, og víða
var þar ekki heldur nema urð og
stórgrýti.
Landslagið breyttist á hverjum
klukkutíma, stundum á hverri eykt,
en víðast hvar var heiðin sjálf slétt.
Þegar við vorum komin * nærri I
heiðarbrúninni aftur, þornaði alveg 1
í veðri og birti í lofti. Loks hall-!
aði undan fæti og iðilmjúkt beitiland |
gamals höfðingjaseturs, sem enn
átti þvi lani að fagna að vera vel j
setið, tók við. Hér skyldi þó ekki \
gist, heldur að öðru bóndabýli, líka
fornfrægu og nú vel setnu.—
Við létum lötra; jafnvelý)ilturinn
á gæðingnum, sem ekki hafði haft
tækifæri til þess að láta verulega j
spretta úr spori, af því hestur hans
átti sér ekki jafnoka hér.
Kvöldið var að ryðja af sér álög-
um dagsins. Kólgan hrúgaðist í
bakka, en meginloftið var bjart og
sól skein af og til.
Höfðingjasetrið fyrsta og forn-
fræga var að baki okkur. Hitt setr-
ið tók við. Búsmalinn siðlaði heim
túnið. Drengur á að gizka níu ára
gamall (var tólf) tölti á eftir fénu,
með matarílát í hendi. Alla heiða-
menn setti hljóða er þeir sáu dreng-
inn, smalann á stórbýlinu, sem hafði
setið yfir fénu allan daginn, í slíku
veðri.
Mér er það minnisstæðast, er eg
hugsa um drenginn, að hann leit út
tilsýndar eins og flekkótt skepna,
svo mjög skein í nærfötin hans eða
máske hann sjálfan. Hann var lík_
astur hrafnafælu, þar sem hann
labbaði heim túnið og larfarnir á
fötunum hans vissu í allar áttir.
Það var einhver eymdarbragur á
göngulaginu eins og illviðrið, þok-
an og rifnu fötin hefðu reiðingast
svo yfir sál hans og líkama, að hvor.
ugt gæti verulega tekið á móti geisl-
unum, sem sólin helti yfir hann, við
og við, á heimleiðinni.—
B’ærinn var stór og reisulegur,
göngin breið og björt. 1 dyrunum
stóð kona, fríð sýnum og væn á
vöxt. Margar stórar, ljósar fléttur
nældar upp í húfuna. Fötin úr góðu
efni og fóru vel.
Vinnumaður kom heim hlaðið,
með matarilát í hendinni. Auðsjá-
anlega kom hann af engjum.
“Komið þér sælar,” sagði hann
við húsfreyjuna.
“Gott kvöld,” anzaði húsfreyjan.
“Hvernig hefir ykkur liðið i
dag?”
“Ó, svona. Það var leiðinlegt
veðrið.”
Hún snéri inn. Já, eg vissi að
hún var fríðleikskona, en einhver
ruggandi ró gerði hana síður aðlað.
andi en skyldi.
Já,—regn—hey—vindur—
Fáein orð duttu af vörum þeirra,
vinnumanns og hennar, á leiðinni
inn í búrið, þar sem hann setti frá
sér ílátið og fór svo út. Svo kom
húsbóndinn, ríðandi af engjunum,
og um sama leyti hópur af öðru
fólki, ungu fólki, hlæjandi og tal-
andi, eins og regn og þoka hefði
aldrei verið til.
Sjóferð allan daginn á morgun.
—Eg verð veik.—Það gerir ekkert.
Bezt að geyma það morgundeginum
að hugsa um það.—Var það í rauri.
inni svona, ekkert hugsað um þá,
sem voru næst jörðunni. Þetta var
margra alda gamalt höfðingjasetur.
Bóndinn, sem nú bjó þar, var í
höfðingjaröð. Börn hans á æðstu
skólum landsins.
Hann var nýlega kvæntur aftur
ungri og fríðri heimasætu, sem var
spariklædd hversdags, og vinnuhjú-
in þéruðu. — Hvað um drenginn á
túninu, sem passaði féð. Hann vann
allan daginn, á meðan húsfreyjan
ruggaði sparibúin um bæinn.
Einhver kona hafði borið hann
með þjáningum inn í heiminn, lik-
Fyllið út
Seðilinn!
eða sendið oss bréfspjald beina
leið, og fáið ðkeypis eintak af '
EATON’S
RADI0
Verðskrá
NÚ TILBÚIN
Troðfull spjaldanna á milli
af mikilvægum verðmætum 1
Radios, þar aí lútandi útbún-
aði og hljððfærum—kjörkaup,
sem þér megið ekki án vera.
Sérstök viðbðtarskrá yfir
kjörkaup fylgir nokkrum
fyrstu þúsundum af megin-
verðskránni.
SKRIFIÐ NÚ PEGAR!
z
o
0.
D
O
o
Q
H
H
(—( •
s J
31
. G
ó £
o «
£ bc
2 S
< s
w
X
h
3
W
O
cí
o
Q
X
§ I
* i
■o
co
E £
©
£
ctf
T3
•O
EATON’S