Lögberg - 23.04.1936, Side 1
49. ÁB/G-ANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTIIDAGINN 23. APRIL, 1936
NÚMER 17
Frá Islandi
ELZTI MAÐUR
LANDSINS LATINN
Ólafur Árnason, Akurey í Land-
eyjum, andaÖist 22. þ. m. á öðru ári
yfir tírætt. Ilann var fæddur 17.
ágúst 1934 og mun hafa verið elzti
maður á landinu.
Ólafur var fjörmaður og karl-
menni. Hann gekk að búskap ní-
ræður og las á bók þangað til hann
var 98 ára gamall. Fótavist hafði
hann þar til hann var rúmlega 100
ára gamall.
Ólafur stundaði búskap og bjó
góðu búi, þar til hann misti konu
sína 1891. Síðan hefir hann dvalið
hjá börnum sínum.
—Nýja dagbl. 24. marz.
# # #
HEY TIL BJARGAR
Esja flutti til Vopnafjarðar í síð-
ustu ferð sinni um 450 hesta af heyi
frá Hvanneyri, til bjargar búpen-
ingi á harðindasvæðinu. Meira hey
hefir verið flutt úr héraðinu niður í
Borgarnes til flutnings austur, ef
harðindi haldast.—Mbl. 26. marz-
# # *
SIMASLIT VIÐA
UM LAND
Snjóflóð hafa fallið víða um land
og sumstaðar valdið allmiklum
skemdum.
Hafa snjóflóð og ísing sumstaðar
valdið símaslitum á Vesturlandi.
Sunnan við Þrastastaði hefir snjó-
flóð fallið og brotið niður 3 sin'a-
staura.
í Súðavík hefir rekið 8 brotna
SÍmastaura og er talið að snjóflóð
hafi brotið þá niður á Snæfjallalín-
unni, milli Æðeyjar og Sandeyrar.
Á Laxárdalseyri hafa símalín-
ur slitnað og flækst vegna ísingar.
Þar hefir ekki verið hægt að gera
við símann vegna óveðurs.
—Mbl. 24. marz.
# # #
EJARSKAÐAR I
JÖICULDAL
Bændur á Eiríksstöðum í Jökul-
dal urðu fyrir tilfinnanlegum fjár-
skaða í síðara hluta febrúarmánað-
ar.
Bændurnir beittu fé sínu austur
yfir Jökulsá og upp á heiðina austan
megin árinnar. Skall á hríðarveður
og hröktust 80 kindur víðsvegar um
heiðina, sumar alla leið austur í
Fljótsdal, og aðrar suður undir Snæ-
fell. Um 40 kindur voru ófundnar
þegar siðast f réttist.—Mbl. 20. marz.
# # #
FÓÐURBIRGÐIR /
ÞINGEYJARSÝSLU
Veturinn hefir verið harðari hér í
sýslu, en í undanfarin mörg ár
Heybirgðir eru því að verða af
skornum skamti víðast hvar í út-
sveitum. Er talið að víða um sveit.
ir endist fóður handa sauðfé ekki
lengur en til sumarmála.
Mývetningar munu vera r.okkru
birgari með hey.
Vegna fannkyngi er mjög erfitt
að koma kornvöru um sveitirnar
Útlitið er afar isyggilegt, iafnvel
þó sæmilega vori. — Mbl. 20. ntarz.
# # #
REIKNINGAR
SEYÐISFJARÐARKA UPST.
Reikningar Seyðisf jarðarkaup-
voru lagðir fyrir bæjarstjórnarfund
i fyrrakvöld og samþyktir.
Reikningslegur tekjuhalli reyndist.
vera 5,864.30 krónur.
Á gjaldaliðnum eru m. a. tal.’ar
5,864.40 kr., sem lagðar hafa verið
í nýja vatnsleiðslu í bænum, sem þó
er enn ófullgerð.
Ennfremur kr. 9,691.38 afskrif-
aðar af útistandandi skuldum.
Fátækraframfærsla var á árinu
kr- 30,714.59. — Mbl. 20. marz.
AFRIKUSTRÍÐIÐ OG
ÞJÓÐBANDALAGIÐ
Sínxað er frá Geneva á þriðju-
daginn þann 21. þ. m., að tilraunir
þjóðbandalagsins í þá átt að binda
enda á styrjöldina milli Itala og
Ethiópíumanna, hafi gersamlega
farið út um þúfur. Telur Mussolini
allar friðarumleitanir með öllu ó-
hugsanlegar á þessu stigi málsins.
enda sé það einungis tímaspursmál
þar, til hinar ítölsku hersveitir hafi
unnið fullnaðarsigur og lagt undir
sig alt landið. Símfregnir herma að
ítalskar flugvélar hafi verið á sveimi
yfir Addis Ababa, kastað þangað
niður sprengjum og gert með því
allmikil spjöll. Hafði þessum ó-
vinafagnaði verið beint að keisara-
höllinni, en marks þó verið mist í
það skiftið.
IIÆZTU FJARLÖG I
ÞINGSÖGU BRETA
Síðastliðinn þriðjudag lagði fjár_
málaráðgjafinn, Rt. Hon. Neville
Chamberlain, fram f járlagafrum.
varp stjórnarinnar í brezka þinginu.
Er ]>ar gert ráð fyrir útgjöldum, er
nemi freklega átta hundruð miljón-
um sterlingspunda. Stendur út-
gjaldahækkunin einvörðungu í sam.
bandi við auknar vígvarnir.
ÞINGKOSNINGAR A
FRAKKLANDI
Almennar þingkosningar fara þar
fram á sunnudaginn kemur, þann 26.
þ. m. Úr ærnu er þar að velja þing-
mannaefnum viðvíkjandi, því tala
frambjóðenda er dálítið á fimta
þúsund.
SJÖTIU OG FIMM ÞÚSUND
DALA TEKJU AFGANGUR
Hon. E. A. McPherson, f jármála.
ráðgjafi Manitobafylkis, flutti íbú-
um fylkisins þau góðu tíðindi síðast-
liðinn mánudag, að við lok nýliðins
fjárhagsárs hafi stjórnin sjötíu og
fimm þúsund dala tekjuafgang í
stað rúmlega þrjátíu þúsund dala
tekjuhalla, er f járhagsáætlunin gerði
ráð fyrir. Tekjur stjórnarinnar á
árinu af vínsölunni, bílaleyfum og
ýmsum fleiri tekjustofnum, höfðu
aukist til muna.
BLÓÐSÚTHELLINGAR
1 SYRIU
Símað er frá Beirut í Syríu þann
21. þ. m., að undangengna tvo daga
hafi alvarlegt uppþot átt sér stað
milli Gyðinga og Araba í borginni
Tel Aviv of Jaffa. Er mælt að milh
tuttugu og þrjátíu manns hafi látið
þar lif sitt, auk þess sem f jöldi fól.ks
hafi sætt meiri og minni meiðslum.
Landstjórinn, Sir Arthur Vanchope,
kvaddi þegar herlið á vettvang tii
þess að skakka leikinn.
HEIMSÓKN FYRIRIIUGUD
Símað er frá Washington, D.C.,
þann 20. þ. m., að nokkrar líkur
muni á því, að forseti Bandaríkj-
anna, Franklin D. Roosevelt, muni
heimsækja Canada áður en langt urn
líður. Lætur símfregnin þess getið,
að Mr. Fhaosevelt komi sennilega til
Ottavva þa.in 9. eða 10. júní og heilsi
þá upp á landstjórann, Tweedsmuir
lávarð.
GÓDAR GJAFIR TIL
HASKÓLANS
Háskóla Manitobafylkis hafa um
þessar mundir borist ágætar gjafir
frá ýmsum mætum mönnum, er fyr.
ir brjósti bera hag þessarar æðstu
mentastofnunar fylkisins. Má þar
til nefna $1,000 gjöf frá Mr. Her-
bert Sellers, er skift skal niður í tíu
námsstyrk, hundrað dollara hvern.
Sambandsþingið
Á mánudaginn var kom sam-
bandsþingið aftur saman eftir tólf
daga páskahlé; snerust hinar fyrstu
umræður þann dag mestmegnis um
atvinnumálin og skipun hinnar fyr-
irhuguðu alþjóðarnefndar, er skip-
uð skal stjórninni til aðstoðar við '
úrlausn atvinnuleysisins. Forsætis-
ráðgjafinn, Mr. King, tilkynti þing.
heimi það, að forseti þeirrar nefnd-
ar yrði Arthur B. Purvis í Montreal,
framkvæmdarstjóri þess verksmiðju
félags, er Canadian Industries, Ltd.,
nefnist. Mr. PurVis er fæddur í
Lundúnum þann 31. marzmánaðar,
árið 1890. Kom hann hingað til
lands 1925, og hefir verið viðrið-
inn mörg og margvísleg stóriðju
fyrirtæki; hefir hann orð á sér fyrir
skarpskygni í sérhverju því, er að
iðnaðar- og atvinnumálum lýtur.
Alls skulu 7 manns eiga sæti í nefnd
þessari, er komi fram sem fulltrúar
eða umboðsmenn landbúnaðarins,
stóriðjunnar og verkamannastéttar-
innar. Fullyrt er að kona verði
skipuð í nefndina.
Þingnefnd sú, er skipuð var
skömmu fyrir páskahléið til þess að
rannsaka hveitisölumálið, er þegar
tekin til starfa, og má þess vænta
að rannsóknin verði næsta ítarleg.
Forseti nefndarinnar er Hon. W. D.
Euler, verzlunarráðgjafi.
GRAFNIR LIFANDI
Svo vildi til hinn 12. þ. m., að
þrír Toronto-menn, Dr. D. E. Rob-
ertson, Alfred Scadding og Herman
Magill, urðu lokaðir inni í Moose
River gullnámunni í Nova Scotia;
hrundi náman saman þar sem þeir
voru staddir og gróf þá lifandi. Einn
maðurinn, Hermann Magill, er lát-
inn fyrir þremur dögum, en hinir
tveir eru á lífi, er síðast fréttist, þótt
þjakaðir séu mjög og aðfram korin-
ir. Fyrir nokkru tókst björgunar-
mönnum, er verið hafa að verki frá
því er slysið henti, að setja sig í
samband við Dr. Robertson og Mr.
Scadding, með því að koma til þeirra
smásímatæki niður um borunar
holu; báru þessir nýju Hellismenn
sig vel, er síðast heyrðist til þeirra,
og gerðu sér góðar vonir um björg_
un.
Námaráðgjafi fylkistjórnarinnar í
Nova Scotia hefir beitt sér dreugi-
lega fyrir björunartilraunum. auk
þess sem sjálfboðar úr flokki námu-
manna hafa óspart boðið fram át-
stoð.
Símfregnir frá Moose River, N.S.
á miðvixudagsmorguninn telja lík-
legt, að mönnum þessum verði
bjargað þá og þegar.
ARINBJÖRN S. BARDAL
SJÖTUGUR
í gær átti hr. Arinbjörn S. Bar-
dal, útfararstjóri, sjötugsafmæli.
Ber hann svo vel aldur sinn, að elli.
merkja gætir litt, þó leitað væri með
logandi ljósi. Arinbjörn er einn
hinn mesti gleðimaður í hópi íslend-
inga vestan hafs, og leikur jafngðar-
legast við hvern sinn fingur. Vinir
hans, og þeir eru margir, árna hon-
um allra heilla i tilefni af afmælis-
deginum.
FLÓÐIN / MANITOBA
Miklir og stöðugir næturkuldar
hafa talsvert lækkað I Rauðánni og
Assiniboine ánni og dregið úr hættu
þeirri, sem yfir hefir vofað í Mani-
toba af völdum flóða. Er mælt að
mesta flóðhættan á Portage sléttun.
um sé nú um garð gengin, þó enn
séu ískyggilegar horfur hér og þar,
einkum þó á svæðunum kringum
Virden.
AFMÆLI HITLERS
Á mánudaginn þann 20. þ. m.,
átti Adolf Hitler ríkiskanzlari og
alræðismaður Þjóðverja 47 ára af-
mæli; bárust honum við það tæki-
færi ógrynnin öll af heillaóskaskeyt-
um og afmælisgjöfum. Sumar voru
gjafirnar næsta frábrugðnar þvi,
sem viðgengst, er líkt stendur á.
Meðal' annars voru honum send 68
þús. pör af sokkum handa hernum,
tólf barnavagnar handa þeim börn-
um, sem fæddust á afmælisdag hans,
og myndir af þeim Bismarck og
Richard Wagner.
KINVERSKIR REFSIDÓMAR.
Kínverjar eru, sem kunnugt er,
fastheldnir á fornar venjur, og kem_
ur það ekki sízt fram i hegningar-
löggjöf þeirra. Á sama tíma sem
vestrænar þjóðir hafa gerbreytt
hegningarlöggjöf sinni og gert hana
skvnsamlegri og mannúðlegri, hefir
-dt setið í sama horfi hjá Kinverju n
og víða er þar enn í dag dæmt eftii
aldagömlum lögum.
1 Kína gildir sama reglan og sagt
er að sé venjulegust í öðrum lönd-
um, að smáþjófunum er hegnt, en
þeir stóru látnir sleppa. Þó að stórt
málverk, er sýnir guð réttlætisins.
Kuan-Ti, hangi yfir sæti dómarans,
og undir myndinni standi skýrum
stöfum, að réttlæti dómarans sé
skært sem mánaskin, er ekki að sjá,
að þeir veigri sér-við að fylgja fyr-
nefndri reg|lu, er þeir dæma af-
brotamennina.
Algengt er að hegna þeim, er gera
sig seka um smávægilegan þjófnað,
með tvö til þrjú hundruð stafshögg-
um. Er þá alt undir því komið fyr.
| ir hinn seka, að vinir hans eða ætt-
| ingjar séu þess umkomnir að múta
j böðlinum, svo að hann berji vægi-
lega. Sá, er slíka hegningu hefir
hlotið, vel úti látna, ber þess þung-
ar menjar alla æfi, því bambusstaf-
irnir, sem notaðir eru við barsmíð-
arnar, eru klofnir í endann, svo þeir
rista holdið í tætlur.
Fimmtíu hamarshögg á fótlegg-
inn, sem einnig er algeng hegning,
gera það að verkum, að afbrotamað-
urinn verður að styðjast við hækj-
ur, það sem eftir er æfinnar, þvi
leggurinn brotnar í smáflísar við
refsinguna.
En ekki er látið þar við sitja.
Um háls sökudólginum er settur
fjalaklafi með járngöddum, sem
gerir það að verkum, að sá, er hann
ber, fær hvorki notið svefns né
hvíldar. Reyni hann að halla sér
út af, þá stingast gaddarnir inn í
hálsinn. Þannig verður hann að
sitja sólarhringum saman, hlekkjað-
ur á almannafæri, öðrum til athlæg-
is, þvi Kínverjar virðast vera
sneyddir allri meðaumkun með þeim,
er þjást á þennan hátt.
AUSTURLENZK AUÐÆFI.
Ríkasti fursti Indlands, og um
leið ríkasti maður jarðarinnar er
sagður vera Ali Khan af Hydera-
bad. Hann á 2j4 biljón króna i
hreinu gulli og 10 biljónir króna
i gimsteinum.
FROSIÐ BRAUÐ
Hver húsmóðir veit, að brauð
þolir fremur illa geymslu. Hollend-
ingar hafa nýlega tekið upp á því
að frysta brauðvörur, og geta þær
þannig geymzt óskemdar um lengri
tíma.
KROSSAR FYRIR BARN-
EIGNIR.
Franska stjórnin sæmir hverja þá
konu koparorðu, sem á fimm börn
í hjónabandi. Ef börnin eru átta,
er orðan úr silfri, og ef þau eru tíu
eða fleiri, er hún úr gulli.
ATLANTSHAFSFLUG-
LEIÐIN VERÐUR UM
ISLAND
Thor Solberg flugmaður, sem
flaug í fyrrasumar frá Ameríku til
Noregs, um Grænland og ísland,
hefir nú stofnað sitt eigið flugfélag.
Heitir það “Thor Solberg Aviation
Corporation” og hefir aðalskrifstofu
sína í New York, en útibú í Bergen.
Síðan Solberg kom heim til Ame-
ríku eftir hið frækilega flug sitt,
hefir hann haldið þar marga fyrir-
lestra, og segir harm svo sjálfur frá
i bréfi, að hann hafi sérstaklega
undirstrykað það í þessum fyrir-
lestrum, hve mikla þýðingu það
hefði fyrir Bandaríkin að geta not-
að ísland sem lendingarstöð í fram.
tíðinni þegar fastar flugferðir hefj-
ist milli Bandaríkjana" og Norður-
álfu. Hann segir ennfremur:
“Það gleður mig að meðal þeirra
manna, sem eg hefi sérstaklega tal-
að við um þetta mál, hefir áhuginn
fyrir því aukist stórkostlega sein-
ustu mánuðina.
Og nú virðist svo sem það verði
endantega ákveðið, að flugleiðin
liggl*um ísland.
Það er óþarfi að geta þess hve
geysimikla þýðingu þetta hefir fyrir
ísland í mörgum greinum.”
Mbl. 26. marz.
BJARGAD ÚR HEL-
GREIPUM
Samkvæmt símskeyti frá
Moose River, N-S.' um hádegi á
miðvikudaginn, hefir þeim Dr.
Robertson og Mr. Scadding
verið bjargað úr lífsháska þeim
sem þeir hafa verið í síðan 12.
apríl.
NÆTURVERK.
15%, eða 500,000 manns af íbú-
um New York vinna á nóttunni.
RADIUM.
Radium er meðal annars notað til
þess að finna veilur í stálbitum og
súlutn af alt að 20 cm. þykt. Það er
einnig stundum notað til þess að
finna leiðslupípur í steinveggjum
gamalla húsa.
DÝRT FRIMERKI.
Blátt tveggja centa frímerki, gef.
ið út fyrir Hawaiieyjar árið 1851,
er í dag 90,000 kr. virði. Af því
eru aðeins til 40 eintök, svo vitað sé.
—Dvöl.
MANITOBA MUSICAL
FESTIVAL
Biggest in the world—1325 Entries
with 67 Sessions — Lasting Two
IVeeks, April 20th — May 2nd.
Called to sit in kindly judgment
of Winnipeg’s soloists, choirs and
orchestras, three musicians from
Great Britain. They are Harold
Samuel, pianist of note and con-
sidered supreme as a Bach inter-
preter; Arthur Cranmer, noted bass-
baritone, who sang in the* recent
Winnipeg Two-Choirs festival, and
D. Yacamini, choral conductor of
Perth.
Mr. Cranmer said that his recent
Winnipeg appearance had given him
the highest opinion of music in the
Manitoba capital. The singing of
the Philharmonic choir had been
magnificent and he remembered
singing with them with the keenest
pleasure. Dr. Cranmer was a busi-
ness man in Birmington, England,
and took up music as a profession
shortly after the Great War.
He has since sung with the lead-
ing choral and orchestral organiza-
tions, in grand opera and on the
radio.
Or borg og bygð
Mr. GuÖmundur Fjeldsted, fyrr-
um þingmaður Gimli kjördæmis,
kom til borgarinnar síðastliðinn
mánudag, í viðskiftaerindum.
A laugardaginn 18. apríl voru gef-
in saman í hjónaband hér í borginni
George Alliston og Olavia Halldór.
son. Brúðguminn er af hérlendum
ættum, en brúðurin er dóttir Mr. og
Mrs. Jón Halldórson að Lundar,
Man.; framtíðarheimilið verður í
Winnipeg.
14. apríl s.l. voru gefin saman i
hjónaband að heimili Mr. og Mrs.
J. Baldvinson, Glenboro, Man., hr.
Reginald Johnson frá Reykjavík,
Man., og ungfrú Halldóra Sigrún
Guðmundsson frá Hayland, Man.
Brúðguminn er sonur Mrs. Bald-
vinson af fyrra hjónabandi, en brúð-
urin er dóttir Hávarðar Guðmunds.
sonar bónda við Hayland, Man. Sr.
E. H. Fáfnis framkvæmdi hjófla-
vígsluna. Framtíðarheimili þeirra
verður við Reykjavík, Man.
Gefin saman í hjónaband þann 28.
marz á heimili Mrs. Júlíönu John-
son, Víðir, Man., Jóhann Tímóteus
Björnson, Riverton, Man., og Björg
Benson, Viðir, Man. Viðstaddir
voru nokkrir af nánustu ættingjum,
nágrönnum og vinum. Framtíðar-
heimilið verður í Riverton. Sókn-
arprestur gifti.
Á þriðjudaginn þann 14. þ. m.,
voru gefin saman í hjónaband þau
ungfrú Cecelia Halldórson frá Hay.
land og hr. Davíð Eggertson frá
Siglunesi. Dr. Björn B. Jónsson
framkvæmdi hjónavígsluna að heim-
ili sínu, 774 Victor Street hér í
borginni. Framtíðarheimili ungu
hjónanna verður að Siglunes.
Unglingspiltur, Allan Halderson,
sonur þeirra Mr. og Mrs. Wm.
Halderson, 738 Banning Street hér í
borginni fékk hæztu einkunn af 79
keppendum, er þátt tóku í Junior
Piano (Solo Class) í hljómlistar-
samkepni Manitobafylkis, er um
þessar mundir stendur yfir. Fór
aðalprófdómandinn afar lofsamleg-
um orðum um skilning og tækni
þessa pilts, sem aðeins er 13 ára
gamall. Allan hefir frá byrjun
stundað nám i píanóspili hjá hr.
Ragnari H. Ragnar.
Eins og þegar hefir verið getið
um, verður Alþingishátíðar Kantata
Jóns tónksálds Friðfinnssonar sung-
in í Fyrstu lútersku kirkju að kveldi
þess 6. maí næstkomandi. í við-
bót við Kantötuna sjálfa verða einn.
ig sungin í einsöngvum og leikin af
hljóðfærasveit ýmis önnur tónverk
höfundar. Verður þvi áminst kvöld
einvörðungu helgað hr. Jóni Frið-
finnssyni.
Mr. Halldór Erlendsson bílasali
frá Árborg, var stadur í borginni
seinni part fyrri viku.
Ummæli um sýningu Skugga-
Sveins, er sýndur var af Leikfélagi
Sambandssafnaðar þann 15. og 16.
þ. m., verða að biða næsta blaðs.
SJALFVIRK UPPLÝSINGA-
STÖÐ.
Á Charing Cross, einni af neðan-
jarðar járnbrautarstöðvunum í Lon-
don, er sjálfvirk upplýsingastöð
Þú stillir inn nafnið á staðnum, sem
þú ætlar til, og út kemur leiðarvísir
um, hvernig auðveldast sé að kom-
ast þangað.