Lögberg - 23.04.1936, Side 7
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 23. APRÍL, 1936
7
Sigurður Olafsson
A HELLULANIH
íslenzka þjóðin hefir litinn gaum
gefið hugvitsmönnum sínum á verk-
lega sviðinu. Þó hefir hún átt þá
marga snjalla og ötula, er int hafa
af höndum mörg og mikil störf af
snild og prýði.
Einn þessara ágætu manna er Sig.
urður Ólafsson hreppstjóri á Hellu-
landi i Skagafirði. Þykir mér hlýða
að hinir ungu iðnaðarmenn viti
nokkur deili á honum og störfum
hans.
Sigurður er fæddur io. júní 1856,
og er hann sonur hinna alkunnu
merkishjóna Ólafs Sigurðssonar
hreppstjóra og dannebr.m. i Ási i
Hegranesi og konu hans, Sigurlaug.
ar Gunnarsdóttur. Voru þau hjón-
in jafnan til fyrirmyndar í Skaga-
firði í búnaðarháttum á sinni tíð.
Sigurður kvæntist Önnu Jónsdóttur
prests í Reykholti 1878, bókhneigðri
gáfukonu. Tveir synir þeirra eru á
lífi: Jón vélfræðingur í Hrísey og
Ólafur ráðunautur á Hellulandi,
báðir þjóðkunnir athafnamenn.
Sigurður er enn vel ern og fylgist
með málefnum þjóðarinnar. Hann
hefir verið hreppstjóri i Rípurhreppi
í 53 ár og stundað búskap lengst af
á Hellulandi.
Vélfræði- og uppfindingagáfuna
hefir Sigurður eflaust hlotið í
vöggugjöf, enda hefir hugur hans
hneigst í þá átt alla æfi. í uppvext.
inum kyntist hann einnig ýmsum
vélum frekar en jafnaldrar hans, ]ivi
að Ási kom fyrsta vindmyllan, fyrsta
saumavélin og fyrsta prjónavélin,
sem til Skagafjarðar kom. 8 ára
gamall gerði Sigurður líkan (model)
að vindmyllunni, og nokkru síðar
eignaðist hann rennibekk, sem hann
notaði óspart við smíðar sínar. 15
ára fann hann upp fyrstu vél sína.
Var það lítill sleði, er rann þó á
hjólum, og sýndi hann vegalengdina
(í föðmum), sem hann var dreginn.
Á ungra aldri tók Sigurður að lesa
af kappi eðlisfræði Fischers og aðr-
ar slíkar bækur, er hann náði í. Urn
tvítugsaldur fór hann til Kaup-
mannahafnar og var þar eitt ár við
smíðar á vélaverkstæði. Þroskað-
ist hann mjög við þá för, þótt dvölin
væri ekki lengri en þetta.
Eftir utanförina var Sigurður
með allan hugann við að gera ýmsar
endurbætur á allskonar áhöldum og
starfsháttum og við að finna upp
ný tæki og vélar. Hann smíðaði
fyrstur manna fótsnúinn hverfi-
stein. Sparaðist við það snúnings-
maður og þótti mikil umbót. Þá
smíðaði hann smiðjublásu í stað
smiðjubelgs. Taðvélarnar endur-
bætti hann að miklum mun, og hafa
þær verið smíðaðar í samræmi við
breytingar hans síðan. Flóknasta
vél Sigurðar var skaftavélin. Var
hún sett í samband við hafaldastokk-
ana á venjulegum vefstól og réði
gangi þeirra, þannig að vefarinn
þurfti ekki að stíga nema á eitt skaft,
þótt ofið væri 8—12 eða jafnvel
16 skafta. Einnig smíðaði hann
vefstól, sem sjálfkrafa gerði skil,
skaut skyttu og færði sig, þegar
slagborðinu var slegið. Notaði Sig-
urður þenna kynja vefstól í mörg
ár. Þófaravél smíðaði hann, er
gekk fyrir vatnsafli; þæfði hún
margan heimaunninn dúk í Skaga-
firði, en var látin hætta að starfa,
þegar fullkomnar tóvinnuvélar voru ■
settar upp á Akureyri. Handtöng
eina, mjög sniðuga, til þess að klippa
með kamliatennur, fann Sigurður
upp og smiðaði eftir beiðni Sig-
mundar á Hóli í Eyjafirði. Gat Sig-
mundur búið til með tönginni á 12
dögum það sem áður þurfti 120 daga
til. En fyrir uppfindingu þessa tók
Sigurður einar 12 krónur.
Sigurður gerði ýmsar þarfar end.
urbætur á starfsháttum manna ’■
Skagafirði, sem svo aðrir hafa tekið
eftir. T. d: það, að nota trékjálka
og aktýgi við hestasleða í vetrar-
ferðum i stað tauganna og hnakks-
ins, sem áður var notað.
Lang þýðingarmesta uppfinding
Sigurðar er þó hin svokallaða
“rakstrarkona.” Er það létt og lip-
ur grind úr vír, sem sett er á ljái þá,
er slegíð er með á votengi. Tekur
grindin með sér alt grasið úr hverju
Ijáfari og sleppir því svo aftur >
múginn. Sparast við þetta raksti.r
að mjög miklu leyti. En slátturinn
er mjög litið erfiðari með þessu
móti. “Raktrarkona” Sigurðar
kostar aðeins 1 krónu, og laghentir
bændur geta búið hana til sjálfir.
En raunverulegt verðmæti þessa litla
áhalds fyrir landbúnaðinn verður
naumast talið í krónum. Bóndi
nokkur úr Þingeyjarsýslu skrifaði
Sigurði eftir að hafa notað“ rakstr-
arkonuna,” Sigurður; hún hefir
unnið mér og mínu búi 100—150 kr.
í sumar.” Annar bóndi skrifaði sama
haust á þá leið, að vegna tveggja
“rakstrarkvenna” hefði hann fengið
150 hestum meira af heyjum yfir
sumarið en ella.
“Rakstrarkona” Sigurðar er fyrir
löngu þekt um alt land og notuð á
langflestum bæjum, sem votengi
hafa, en þeir eru margir. Til eru
bændur, sem nota 5 “rakstrarkonur”
n’estanh luta heyskapartímans. Hef.
ir “rakstrarkona” Sigurðar verið
mörgum bóndanum ómetanlegt tæki
í fólkseklunni og dýrtíðinni, auk
þess sem hún hefir létt störf kven-
fólksins og gert mögulegt að heyja
á blautari engjum en ella.
Á efri árum sínum smíðaði Sig-
urður áveituvél. Var það stór
vatnssnígill, er gekk fyrir vindi og
hóf ca. 8000 hl. af vatni á kl.st. rúm-
an y2 metra. Var snígill þessi 36'
þuml. að þvermáli, en vindhjólið 16
fet og með 32 spjöldum. Sigurður
hefir staðið fyrir smíði á 7 drag-
ferjutni um æfina. Hann smíðaði
af eigin ramleik dálítinn vita á
Hegranestá. Hefir hann komið
mörgum sjómanni að góðu liði, og
var þessi viti Sigurðar nefndur
“Meyjaraugað.”
Eins og gefur að skilja hefir iiér
einungis verið hægt að nefna helztu
uppfindingar og endurbætur Sig-
urðar, og þær, sem frekast eru í
minnum hafðar. Sjálfsagt hefir
hann brotið heilann um ótalmargt
annað, sem sumpart er gleymt og
sumpart hefir ekki komist nen:a í
vitund Sigurðar sjálfs.
Lifskjör Sigurðar hafa jafnan
verið frekar erfið, eins og annara
alþýðumanna á íslandi. Þó hefir
hann jafnan “komist vel af” sem
kallað er, kostað syni sína til menta
og bygt vandað steinhús á óðali sínu,
Hellulandi.
Sigurður hefir starfað af óþreyt-
andi innri hvöt, Mikilli fórnfýsi og
óbilandi áhuga á því að bæta kjör
annara. Þessvegna nýtur hann nú
í elli sinni mikillar gleði af æfistarf_
inu og virðingar og trausts þeirra, er
þekkja hann.
Sveinbjörn Jónsson.
Timarit Iðnaðarmanna,
janúar, 1936.
Frá Edmonton
(15. apríl 1936)
Herra ritstjóri Lögbergs :—
Þá er veturinn genginn um garð,
og sólskin og sumar að koma í stað-
inn. öll náttúran er að vakna til
ljóssins og lífsins eftir hinn vetur-
langa blund sinn. I einstöku stað
er farið að sjá á hornið á hinum
fagurgræna sumarskrúða jarðar-
innar. Linviðirnir eru i óða önn
að útfylla laufknappa sína, svo þeir
geti sprengt af þeim vetrarumbúð-
irnar, og breitt svo út hin litfögru
laufblöð
mæli, í þeirri von að þá væri sigur-
inn unninn.
Fjórða frumvarpið, sem öðlast
gildi var um fylkisbankann., sem
stjórninni er gert heimilt að stoína.
Enginn stafur er til, sem neinn veit
um, um fyrirkomulag á þessum
banka eða starfssvið hans. Stjórn-
inni er falið á hendur að skipuleggja
það. Hefir þetta þing gefið stjórn-
inni meira vald í hendur, en nokk-
urn tíma hefir áður átt sér hér stað.
Sýnist mörgum það benda til ein-
ræðis, sem fjöldanum er sárilla við.
Hvernig fram úr öllu þessu greið-
ist, er nú eftir að sjá. Það virðist
mega heimfæra upp á Alberta-
stjórnina þessi vísuorð: “We don’t
know where we’re going, But we
are on our way.”
Nýlega ritaði hr. A. G. Thordar-
son að Amaranth, Man., grein, sem
birtist í Lögbergi og hann nefnir
“Athugasemd.” Er hann þar að
kvarta undan því, að eg skrifi ekki
hlutdrgnislaust um stjórnmálin í
Alberta. Hann segir að eg gangi
fram hjá mjög áríðandi acriðum,
sem eg hefði átt að geta um, og til-
færir hann því af þessum mjög ,mik_
ilsvarðandi atriðum: Fyrst: Hann
segir að Aberhart-stjórnin hafi bætt
fjárhag fylkisins siðan þeir komu
til valda. Þetta er ekki rétt. Fjár-
sin á móti sól og sumri. hagur fylgisins hefir aldrei staðic
Verzlunarmentun
Oumflýanleg nú á tímum!
Vaknandi viðskiftalíf krefst vaxandi vinnukrafts. Við-
skiftavenjur nútímans krefjast sérþekkingar á öllum
sviðum. Þessvegna er verzlunarmentun blátt áfram
óumflýjanleg. Enda er nú svo komið, að verzlunar-
skólanám er talið óhjákvæmilegt skilyrði fyrir atvinnu
við skrifstofu- og verzlunarstörf.
UNGIR PILTAR og UNGAR STÚLKUR, sem ætla
sér að ganga á verzlunarskóla (Business College) í
Winnipeg, ætfu að spyrjast fyrir á skrifstofu Lög-
bergs; það verður þeim til dr júgra hagsmuna.
Komið inn á skrifstofuna, eða skrifið
The Columbia Press Limited
TORONTO og SARGENT, WINNIPEG
Það má með sanni segja nú, að Al-
berta “beri með sóma réttnefnið”—
“Sunny Alberta.”
Þann 7. april útskrifuðust 38
hjúkrunarkonur við Royal Alex.
1 sjúkrahúsið hér í borginni, með
vanalegu hátíðahaldi, eftir þriggja
ára námskeið. I þeim hóp var ein
íslenzk stúlka, Miss Anne Moore,
I dóttir Mrs. L. Jósafatson, sem býr
hér i Edmonton.
I síðastliðinni viku voru hér á
ferðinni Mr. og Mrs. Inclriði Rein-
holt frá Meanook, Alberta. Voru
þau að heimsækja son sinn, Dick
j Reinholt og hans f jölskyldu, sem
hér eiga heima. Eru þau bæði ern
eftir aldri. Mr. Reinholt er spil-
andi kátur og ræðinn, hefir frá
mörgu að segja frá eldri tímum, “þá
! engin sorg var til, þegar allir áttu
ekkert og alt gekk þeim í vil,” eins
I og K.N. kemst að orði. Býr nú Mr.
i Reinholt góðu búi með sonum sinum
1 nálægt Meanook, Alberta.
The Canada Packers, Ltd., eru
byrjaðir að byggja hér “Packing
Plant”, sem á að kosta eina miljón
dollara, og búast þeir við að geta
, tekið til starfa í haust. Er þetta
1 fjórða slátrunarhússtöðin hér í Ed-
monton.
j Fylkisþinginu var slitið þann 7.
apríl. Er þetta fyrsta Social Credit
þing, sem hefir setið í Canada. io^
frumvörp voru gerð að lögum á
þessu þingi. Voru aðeins f jögur af
þeim frumvörpum, sem lutu nokk-
uð að stefnuskrá Social Credit sinna,
Voru það “The Recall Act”, sem eg
; hefi skýrt frá áður, “The Com-
pulsory Refunding Act,” þar sem
1 öllum þeim, sem eiga skuldabréf
I fylkisins, er skipað að framvisa þeim
I á skrifstofu stjórnarinnar og skifta
j þeim fyrir ný skuldabréf, sem ekki
j falli í gjalddaga fyr en eftir 35 ár.
| Ákvarðað er að þessi nýju skulda-
bréf kalli eftir miklu lægri vöxtum
ver en nu. Fylkisstjórnin hefir ætið
getað staðið i skilum og mætt öllum
skuldum sínum sem hafa fallið í
gjalddaga þar til nú. Það er sjálf-
sagt höfundi þessarar athugasemda
eins kunnugt eins og allri canadisku
þjóðinni, að Alberta-fylki gat ekki
borgað 3y2 miljón dollara, sem féllu
í gjalddaga 1. apríl. Stjórnin gat
aðeins borgað rentur, sem áfallnar
voru. Stjórnin hér hefir verið að
reyna til að fá lán í Ottawa, til að
mæta þéssari skuld, en það hefir
ekki tekist enn sem kornið er.
Annað atriðið, sem greinarhöf-
undurinn kemur með er það, tekj-
ur stjórnarinnar hafi aukist að mun
síðan núverandi stjórn kom til valda.
Þetta er einnig missögn.
Stjórnin gat ekki aukið tekjur
fylkisins nema með álögðum skött-
um og tollum, sem hún lagði fyrir
þingið, seinustu dagana, sem þingið
sat, með hinni illræmdu “Bond-
holders’ Budget,” þar sem skattar á
almenningi eru auknir og nýjum
sköttum og ýmsum tollum bætt við,
svo það eru litlar Iíkur til þess að
fólk geti risið undir öllum þeim á-
lögum. En með þessum álögum
gerir stjórnin ráð fyrir 3)/2 miljón
meiri tekjum í ár en í fyrra. Þetta
hefir þessi stjórn gert, sem var kosin
til að létta álögurnar á fylkisbúum,
samkvæmt stefnuskrá Social Credit
sinna. Mr. Magor hefir dyggilega
framkvæmt það verkefni, sem auð-
valdið í Austur-Canada sendi hann
hingð til að vinna.
Þriðja atriðið er að stjórnin sé að
fá lækkaðar rentur að miklum mun
frá því sem nú á sér stað. Eg skýri
f;á þessu “Refunding Plan" hér að
ofan, svo það gerist ekki þörf að
ræða það meira hér. Það er alveg
óvíst hvað stjórninni verður ágengt í
því málefni. Miklar likur til þess
. , að auðvaldið komi hér til sögunnar í
en þau gomlu. Hef.r Major Doug. Ia]mætti sínu Ef Alberta getur með
þessu móti fært niður í 2y2% réntur
| las bannfært þessa löggjöf, segir að
| þetta sé gildra, sem auðvaldið hafi
| sett fyrir Aberhart stjórnina, og
(þeir séu gengnir í hana. Þriðja
, frumvarpið er “The Social Credit
Measure A|ct” gerir þetta “Act”
stjórninni að skyldu að setja kon-
unglega nefnd (Royal Commission)
íltii
o<=>0 0 0 C=> 0 ŒZD O <=> O C=> O C
I... þess að athuga mögulegleika a
! því að stofnsett verði hér í Alberta
| Social Credit kerfi og undir hvaða
| fyrirkomulagi, og gaf þingið stjórn-
inni fult vald og frjálsar hendur til
j að hrinda þessu máli til fram-
kvæmda eins og hún áliti bezt. og
eins fljótt og möguleikar séu til þess.
Keniur þetta lagaákvæði nokkuð
flatt upp á marga, bæði Social
Credit sinna og aðra ; þeim hafði svo
oft verið sagt, að hér væri ekki urn
neina fvrirstöðu að ræða, aðeins
væri eitt nauðsynlegt. að Social
Credit sinnar kæmust til valda, og
það veitti fólkið þeim í ríkulegum
á öllum skuldabréfum sínum, þá er
ekki neitt því til fyrirstöðu að öll
fylkin i Canada geri það sama. Það
mun þeim herrum ekki lítast á.
Stjórnin á miklar þakkir skilið fyr_
ir að reyna að fá rentur lækkaðar.
Það mundi verða til mikils hagnaðar
fyrir fylkið. Eg vona að höfundur-
inn að “Athugasemd” sjái það nú.
að hann hafi haft rangar upplýsing-
ar á. þessum atriðum, sem hann taldi
að væru stjórninni hér svo mikil
meðmæli.
A. GuðmunJsson.
Eg hefi vakað og vonað,
og vonirnar brugðist mér oft,
að viðirnir vefðust laufi
og vængina bæri við loft.
Eg hefi hlustað og hlerað
og horft hvort eg fengi að sjá
gistivinina gömlu,
er gleðinnar hörpu slá.
Og loksins rann hlákan í hlaðið
sjálft hjarnið af klökkva grét,
er vorgyðjan settist að völdum
og veturinn þokaði um set.
AU lífið er hljómandi harpa,
sem huldunnar fingur slá;
alt ljóðið og lagið einn kliður,
sem logar af vaknandi þrá.
Páll Guðmundsson.
Sumarmál
Eg hefi við bitruna barist,
og bænir til drottins sent,
beðið um sól og sumar,
en samt hefir nætt og fent.
GEFINS
Blóma og matjurta frœ
ÚTVEGIÐ EINN NÝJAN KAUPANDA AÐ BLAÐ-
INU, EÐA BORGIÐ YÐAR EIGIÐ ASKRIFTAR-
GJALD FYRIRFRAM.
Fræið er nákvæmlega rannsakað og ábyrgst að öllu leyti
TAKIÐ ÞESSU KOSTABOÐI!
Hver gamall kaupandi, sem borgar blaðiS fyrirfram, $3.00 áskrift-
argjald til 1. janúar 1937, fær að velja 2 söfnin af þremur númerum,
1., 2. og 3 (í hverju safni eru ótal tegundir af fræi eins og auglýsingin
ber með sér).
Hver, sem sendir tvö endurnýjuð áskriftargjöld, $6.00 borgaða
fyrirfram, getur valið tvö söfnin af þremur, nr. 1., 2, og 3, og fær nr. 4
þar að auki.
Hver, sem útvegar einn nýjan kaupanda og sendir áskriftargjald
hans, $3.00, fær að velja tvö söfnin úr nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4 þar
að auki. Hinn nýi kaupandi fær einnig að veljá tvö söfnin nr. 1., 2. og
3., og fær nr. 4. þar að auki.
Allir pakkar sendir móttakanda að kostnaðarlausu.
No. 1 COLLECTION—Vegetables, 15 Packets
IiKIiTS, Detroit Dark Red. The best all round Beet. Sufficient
seed for 20 féet of row.
CABBAGE, Enkhuizen. Good all round variety. Packet will grow
1,000 lbs. of cabbage.
CARKOTS, Half T/ong Chantcnay. The best all round Carrot.
Enough seed for 40 to 50 feet of row.
CTTCUMBER, Early Fortune. Pickles, sweet or sour, add zest to
any meal. This packet will sow 10 to 12 hills.
LETTCCE. Grand Rapids. Loose Leaf variety. Cool, crisp, green
lettuce. This packet will sow 20 to 25 feet of row.
DETTTICE, Hanson, Head. Ready after the Leaf Lettuce.
ONION, Yellow Glohe Danvers. A splendid winter keeper.
ONION, White Portugal. A popular white onion for cooking or
pickles. Packet will sow T5 to 20 feet of drill.
PARSNIP, Ilalf Ijong Guemsey. Sufficient to sow 40 to 60 feet of
drill.
POIPKIN, Sugar. Packet will sow 10 to 15 hills.
RADISH, French Brealcfast. Cool, crisp, quick-growing variety.
This packet will sow 25 to 30 feet of drill.
TOMATO, Earliana. The standard early variety. This packet wlll
produce 75,to 100 plants.
TI’RNIT*. White Summer Table. Early, quick-growing. Packet
will sow 25 to 30 feet of drill.
FLOWER GARDEN, Surprise Flower Mixture. Easily grown
annual flowers blended for a succession of bloom.
SPAGHETTI, Malabar Melon or Angel’s Hair. Boil and cut off the
top and the edible contents resemble spaghetti.
No. 2 COLLECTION
SPENCER SWEET PEA COLLECTION
8—NEW REAI TIFFL SHADES—8
Regular full size packets. Best and newest shades in respective
color class. A worth-while saving buying two. See regular Sweet
Pea List also.
SEXTIOT QUEEN. Pure White. GEO. SHAWYER. Orange Pink.
Five and six blooms on a stem. WELCOME. DazDzling Scarlet.
WHAT .TOY. A Delightful Cream. MRS. A. SEARLES. Rich Pink
BEAUTY. Blush Pink. shading Orient Red.
SMILES. Salmon Shrimp Pink. REI) BOY. Rich Crimson.
No. 3 COLLECTION—Flowers, 15 Packets
EDGTNG BORDER MIXTURE. MATHIOLA. Evenlng scented
ASTERS, Queen of the Market, stocks.
the earliesl MIGNONETTE. Well balanced
BACHELOR S BUTTON. Many mixtured of the ola favorlte.
new shades. ^ ™
CALENDULA. New Art Shades. NASTURTIUM. Dwarf Tom
CALIFORNIA POPPY. New Thumb. You can never have
Prize Hybrids. to° many Nasturtiums.
CLARKIA. Novelty Mixture. PETUNIA. Choice Mixed Hy-
CIiIMBERS. Flowering climb- brids.
ing vines mixed. POPPY. Shirley. Delicate New
COSMOS. New Early Crowned Art ghaðes
and Crested.
EVERLASTINGS. Newest shades ZINNIA. Giant Dahlia Flowered.
mixe)j Newest Shades.
No. 4—ROOT CROP COLLECTION
Note The Ten Big Oversize Packets
BEETS, Half Long Blood (Large PARSNTPS. Early Short Round
Paclcet) (Large Packet)
CABBAGE, Enkhuizen (Large RADISH.......Freneh ... Breakfast
Packet) (Large Packet)
__________ , __ _ TURNTP, Purple Top Strap
CARROT, Chantenay Half Ijong Tx-af (I_arK6 Packet). The
(Large Packet) early .white summer table
ONION, Yellow Globe Danvers, turnip.
(Large Packet) TURNIP, Swede Canadian Gem
LETTUCE, Grand Rapids. This (Large Packet)
packet will sow 20 to 25 feet ONTON. White Piekling (Large
of row. Packet)
Sendið áskriftargjald yðar í dag
(Notið þennan seðil)
To THE COLUMBIA PRESS, LIMITED, Winn’peg, Man.
Sendi hér með $.........sem ( ) ára áskriftar-
gjald fyrir “Lögberg.” Sendið póst frítt söfnin Nos.:
Nafn .................................................
Heimilisfang .........................................
Fylki .................................................
i