Lögberg - 25.03.1937, Blaðsíða 1

Lögberg - 25.03.1937, Blaðsíða 1
50. ÁRGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 25. MARZ 1937 NÚMER 12 Átakanlega hörmulegur atburður; gas- sprenging veldur dauða 450 skólabarna Gullbrúðkaup Fjöldi ættingja og vina safnaðist saman í lútersku kirkjunni á Gimli, til að 'heiðra Christian P. Paulson bæjarstjóra og Thorbjörgu konu hans, á gullbrúðkaupsdegi þeirra, þ. ió. marz s.l. Samsætið, sem var hið myndarlegasta, hófst imeð því, að gullbrúðhjónin gengu brúðargang upp að háborði, meðan leikinn var “Wedding March’’ á píanó og fiólín. Tók þá séra Rúnólfur Marteins- son við stjórn samsætisins, og lét hann >fyrst alla viðstadda syngja brúðarsálminn, “Hve gott og fagurt og indælt er.” Bar svo sóknarprest- ur, séra Bjarni A. Bjarnason, fram bæn, en ávarpaði svo heiðursgestina nokkrum orðum, árnaði þeim ham- ingju og blessunar, og afhenti þeim svo, fyrir hönd boðsgestanna, gjaf- ir til minningar um þennan merkis- dag þeirra. Mr. Paulson afhenti •hann göngustaf; ber þessi stafur gullband letrað “C. P. Paulson.” Mrs. Paulson afhenti hann kaffi- borð, fagurt og vandað; þessu borði átti að fylgja "China tea set,” en þeir hlutir voru ókomnir í tíma fyrir samsætið, en voru henni gefnir undir eins og þeir komu til skila. Fyrir hönd sunnudagsskóla Gimli safnað- ar, afhenti sóknarpresturinn Mrs. Paulson einnig fagran blómvönd; eða, réttara sagt, voru blómin borin til hennar af einu yngsta barni sunnudagsskólans, Donnie Shaw. Einnig voru fram bornar aðrar fagr- ar og góðar gjafir, svo sem: Dýrind- is gull-úr, sem er gjöf til Mr. Paul- son frá “stúlkum hennar” (dóttur og barnabörnum) ; gull-næla (gold cameo broach), gjöf til Mrs. Paul- son frá “stúlkum.hennar (dóttur og barnabörnum) ; blóm frá kvenfélag- inu “Framsókn” á Gimli, sem for- seti Mrs. H. Benson afhenti; blóm frá Mrs. J. Júlíus, sem er systir Mrs. Paulson; og blóm frá Dísu og Thelmu Thorvaldson og Katrínu Kjernested. Auk þeirra, sem þegar nefndir hafa verið, tóku til máls í þessu sam- sæti, Mrs. E. L. Johnson frá Ár- borg, Capt. og Mrs. J. B. Skaptason, S. V. Sigurdson fiskikaupmaður, Sigfús Anderson, J. J. Bíldfell, A. S. Bardal, Mrs. C. O. L. Chiswell, Mrs. C. Tómasson (Reynistað, Mikley), F. O. Lyngdal. Allar báru ræðurnar vott um imikinn hlýhug til merkishjónanna, sem svo lengi og vel hafa búið saman og sem stutt hafa af áhuga og alefli kristindóms- og mannfélagsmál. Það var þ: 16. marz árið 1887, að séra Jón sál. Bjarnason gaf saman í heilagt hjónaband þau Christian P. Paulson og Thorbjörgu Kristjönu Kristjánsdóttur Kjernested frá Kjarna í Víðinesbygð. Fram að ár- inu 1906 áttu þau hjónin lengst af' heimili á Gimli. Fluttu svo til Win- nipeg, og lifðu þar þar til Mr. Paul- son tók að sér starf við fiskiklak i Selkirk, Man. Alt frá þeim tíma, og þar til 1931, var Mr. Paulson í þjónustu landstjórnarinnar, við ' klakið í Selkirk um sex ára tímabil, en 13 ár klakstjóri við Gull Harbor í Mikley. Árið 1931, eftir að hann hafði starfað lengi og af mikilli trú- mensku og frábærri nákvæmni, lagði Mr. Paulson niður embætti sitt, og þiggur verðskulduð eftirlaun. Lét hann þá byggja prýðilegt hús i Gimli bæ, og flutti í það 1. sept. 1931. Munu hin mætu gullbrúðhjón að öll- um líkindum þar búa þar til æfisól- in er til viðar runnin. Bæjarstjófi á Gimli hefir Mr. Paulson verið gagnsóknarlaust frá nóvember mánuði 1932, Fonmaður móttökunefndar var hann, er Tweedsmuir lávarður, landstjóri Canada, heiðraði Gimli-búa og hinn íslenzka ættstofn með heimsókn að Gimli, þ. 21. september s.l. Gullbrúðhjónin hafa ætíð gefið málefnum lúterskrar kirkju óskift fylgi og stuðning. Kristján Kjerne- steð, faðir Mrs. Paulson, var einn af^stofnendum Hins. evang. lúterska kirkjufélags íslendinga i Vestur- heimi árið 1885. Alt fran^á þennan dag, hefir dóttir hans haldið hátt á lofti hugsjónum þess félagsskapar, og haldið fast við lúterska trú, í orði og í verki. Hún mun hafa starfað mikið að stofnun sunnudagsskóla Grmli safnaðar, og einnig að stofn- un saínaðar kvenfélagsms “Fram- sókn.” Er hún nú heiðurstélagi kventélagsins, sem stoínaö var þ. 15. sept. 1892. Hún hefir ætíð verið sunnuclagsskóla kennari, og var um nokkur ar torstöoukona sunnudags- skoians a Gimli. i satnaöarraói og 1 djaknanefnd hetir hun lengi starl- að, og er hun nu vara-torseti Gimli safnaöar. Hún er songelsk einmg, og hettr ætió veriö 1 songtlokk satn- aoar síns. Auk þess, aö hun hetir startaö af lííi og sal tyrir Gintli sötnuð, hafa einntg íslenzku lútersku kirkjurnar í Winmpeg og Selkirk, og ekki sizt Mikleyjar sotnuður, notiö starfskrafta hennar. Margir inunu hafa kynst henm a kirkjuþingum, þvi þar hefir hun margsinms veriö erindreki. Hún var og í skólaraði Jóns Bjarnasonar skóla nokkur ár. Ekki er samt öll sagan sögð, því hér er aðeins minst a sum helztu atriðin í hinu umfangsmikla starfi þessarar mætu og lifsglöðu konu. Maður hennar hefir verið henni samhentur í öllu, og hún honutn, og hafa þau til samans unnið mikið og þarft verk söfnuðum sínum, vinum sínum og nágrönnum, mannfélaginu, og Guðs- riki til blessunar og eflingar. Börn þeirra hjónanna eru; Gor- don Axel Paulson, lögfræðingur í Winnipeg og Violet Kristjana, ekkja Ingintars heit. Ingaldsonar, fyrrum fylkisþingmanns í Manitoba. Stóðu þau Violet og Gordon fyrir hinu myndarlega gullbrúðkaupssamsæti, sem hér er um að ræða. Auk þess að margir tóku til máls í samsætinu, voru lesin skeyti frá fjarlægum ættingjum og vinum, er ekki gátu viðstaddir verið við þetta hátíðlega tækifæri. Samsætisstjóri, séra Rúnólfur, las upp sumt af þess- uirn heillaóskunt. Skeytin komu, meðal annars, frá eftirgreindu fólki: Séra og Mrs. B. B. Jónsson, D.D., séra og Mrs. Jóhann Bjarnason, Mrs. Guðný Paulson, ritstjóra Lög- bergs, Einari P. Jónssyni, Miss Val- borg Nielsen, Mrs. Jóhanna Eager, Mr. og Mrs. Clarence A. Júlíus og Mr. og Mrs. W. Crowe, öll til heim- ilis i Winnipeg; frá Mrs. Elínu Thiðriksson, Sandy Hook, Man.; Mr. og Mrs. Thordur Thordarson, Gimli; Dr. og Mrs. S. E. Björnson, Árborg; Mr. og Mrs. Sveinn Thor- valdson, Riverton; Christian Ing- aldson (dóttursonur), Pine Falls; Mr. og Mrs. Hans Einarsson, Gard- ar, N. D.; Miss Juliana Halldorson, Picklfe ake, Ont.; og Mrs. Ingibjörg Freemanson, Struthers, Ohio, U.S.A. Kaffið skenktu: Mrs. H. P. Tergesen, Mrs. J. Stevens, Mrs. C. O. L. Chiswell, Mrs. J. B. Skapta- son og Mrs. Flora Benson; söng og hljóðfæraslátt önnuðust Mrs. C. J. Stevens, Mrs. W. J. Wilkinson, Miss. Steina Sveinson og Miss Björg Guttormsson. Guð gefi heiðurshjónunum, Mr. 0g Mrs. C. P. Paulson, hamingju- sama og bjarta framtíð, alt til æfi- loka. B. A. B. Avarp Kæru íslendingar! Eg veit að það er til ntikils mælst —og mér er það ekki hugljúft—að biðja ykkur að sinna, að svo miklu leyti sem þið getið, beiðni minni unt styrk ykkar til sj óðsmyndunar út af 25 ára ríkisstjórnarafmæli Kristjáns konungs tíuna, þann 14. maí n.k., sem getið var um í Lögbergi fyrir tveimur vikum síðan. Sjóðurinn, hve stór eða srnár, sem hann verður, á að brúkast til að hjálpa, að ein- hverju leyti, öldruðu íslenzku og dönsku fólki hér, til þess að heim- sækja sína feðraslóð og með því íullnægja þess innilegustu löngun. Það er eru engar öfgar þótt eg fullyrði, að Kristján konungur tíundi og hin danska konungsfjöl- skylda, njóti nú meiri vinsælda og trausts hjá okkar islenzku þjóð heima, heldur en átti sér stað — við skulum segja fyrir einum 10 eða 12 árum — enda er konungurinn og ættfólk hans lítillátt og blátt áfram og ber hlýjan og samúðarríkan hug til allra þegna sinna. Væri því ekki göfugt að sýna i verki, ofurlítinn vott þess, að maður meti þá góðu kosti, með því að leggja ofurlitla upphæð i þennan sjóð, sem að kon- ungsins vilja er til þess ætlaður að hjálpa þeirn, sem bágt eiga? Hér er ekki verið að tala unt, hvort þeir tilheyra hans ríki eða ekki, aðeins um það hugsað að þeir rnáske geti fullnægt sinni kærustu löngun og von. Eg veit að eg í þessum orðum er að tala við brezka þegna, í flestölF um tilfellum, en finst að það ætti ekki að konta til greina hér. Hjálpin á að veitast brezkum þegnum af þjóðflokki vorum og er aðeins í sambandi við áðurgreindan atburð. Eg hefi skrifað nokkrum mér vel- viljuðum mönnum og beðið þá að hlynna að þessu verki með mér og veita móttöku því, sem fólk vildi leggja til. Eg set hér nöfn þeirra: Mrs. C. Chiswell, Gimli, Man. Mrs. C. P. Paulson, Gintli, Man. Tryggvi Ingjaldson, Árborg, Man. Joe Johnson, Vancouver, B.C. Mrs. H. L. Grey, Calgary, Alta. J. G. Stephanson, Kandahar, Sask. Björn Hjálmarson, Regina, Sask. Helgi Helgason, Foarn Lake, Sask. C. H. Laxdal, Mozart, Sask. L. J. HallgrímSson, Cypress River Valdemar Pijarnason, Langruth Klemens Johannson, Selkirk, Man. Joe Breckntan, Lundar, Man. Eg hefi þegar fengið ofurlitlar gjafir í þennan sjóð og hafa fylgt þeim hlý orð, sem, mér þykir mjög vænt um og þakka fyrir. Með sterkri von um hjálp ykkar er eg ykkar einlægur * A. C. Johnson, 907 Confederation Life Bldg. Winnipeg, Man. Til prestlausra safnaða Eftir því sem eg bezt veit, verð eg á lausum kjala frá 1. maí til 1. sept. Væri mér ljúft að starfa hjá prest- lausum, íslenzkúm og lúterskum söfnuðum þennan tírna með hvaða kjörum sem allir hlutaðeigendur gjöra sig ánægða með. Sérstaklega væri það tilhlökkunarefni fyrir mig að mega hemisækja söfnuði, sem eg liefi áður þjónað eða m.yndað. Það væri líka ánægjulegt að kanna ein- hverja ókunnuga stigu eða að end- urnýja vinabönd þar sem eg hefi heimsótt fólk áður. Ef að einhverjir söfnuðir vildu þiggja þjónustu mína á þessu kom- andi vori og sumri, þætti mér vænt um að fá skeyti frá þeim hið allra bráðasta. Með kærustu kveðju og með öll- um blessunaróskum, yðar ávalt Drotni, Carl J. Olson. 4J00 Eveline St. Selkirk, Man. Rausnarlegt heimboð Sunnudaginn 14. þ. m. var mér boðið, ásamt nokkrum göntlum Is- lendingum búsettum hér i bænum Winnipegosis i Manitoba, í afmælis- gildi sem haldið var að heimili hjón- anna Franklins E. Þorsteinssonar og konu hans Halldóru Jónsdóttur Collins. En afmælisbarnið var öld- ungurinn Eirikur Þorsteinsson faðir Franklins, sem þennan dag^varð 86 ára gamall. Eiríkur er fæddur árið 1851 að Klausturhólakoti í Grimsnesi í Ar- nessýslu. Gleggri upplýsingar um æfi þessa merka manns og afimælis- barns, sem eg leyfi mér að nefna hann við þetta tækifæri, er hægt að finna í Landnámsþáttum Islendinga frá Winnipegosis í Alkanaki O. S. Thorgeirssonar fyrir árið 1930, bls. 92, 4þætti 25. Þrátt fyrir það þó Eirikur hafi verið blindur á augum nærfelt f jórðung úr öld, sýnist hann að öðru leyti bera þennan háa aldur vel; hann hefir góða heyrn og minni, fylgist vel með fléstu sem hanúheyr- ir lesið og talað, ér fróður um bók- mentir þjóðar sinnar, talhreyfur og skemtilegur í viðræðum og dóm- greindur um menn og málefni og góðorður um alla menn. Hefir góða fótaferð og prjónar bæði sokka og vetlinga sér til dægrastyttingar. Gamli maðurinn Eiríkur hefir sagt mér frá þvi, að nú væri hugur sinn oftast heima á Islandi, bæði í vöku og svefni — heima á æskustöðvun- um í Grimsnesinu, þar sem hann er fæddur, og þar sem æskusporin liggja flest. Hvert fjall, háls, hæð, laut og lækur, væru sér í fersku minni og kærir vinir, eins og þau hefðu verið sér meðan hann bjó í nágrenni þeirra í æsku sinni. Svona er ættjarðartaugin sterk hjá mörg- um góðum manni og konu, að tím- inn og ellin geta ekki slitið hana. Heill og heiður sé hverjum þeim, sem helgar ættjörð sinni innilegustu endurminningar sínar þó þeir hafi búið svo tugum ára skiftir í annari heimsálfu. Þetta áminsta heimboð hjá Þorsteinssons hjónunum var í alla staði hið rafisnarlegasta. Að- standendur þess sýndu það í orði og verki að þeir vildu af allri alúð gleðja okkur gömlu karlana á sjö- tugs og áttræðis aldrinum og gera okkur stundina sem við áðum á heimili þeirra sem unaðslegasta. Meðan við neyttum höfðinglegra veitinga voru kveikt 86 ljós á borð- inu, sem áttu að tákna aldur afmæl- isbarnsins; sungnir voru nokkrir ættjarðarsöngvar og sálmavers sem vel áttu við þetta afmælisgildi. Þakklætisskuld okkar, sem sátum þetta afmælisgildi hjá Þorsteinssons hjóunum getum við goldið þeim bezt i því að muna lengi og þakklátlega eftir heiinboðinu hjá þeim á 86. af- mælisdaginn hans Eiriks Þorsteins- sonar. » Myndir voru teknar af afmælis- barninu og boðsgestunum. F. Hjálmarsson. WINNIPEG PIRATES WIN MILLENIAL TROPHY The Winnipeg Pirates won the Millennial trophy in the play-offs of the Icelandic Hockey league at Sel- kirk on Saturday night when they defeated Gimli in the final by a 4-0 scora. Previous to the title match, the Pirates took a 3-2 decision froim Sel- kirk, and Gimli swamped Arborg 6-1. All games were played on Saturday night. \ Sorgir mannanna eru með mörgum og mismunandi hátt- um. “Einum lífið arma breið- ir; öðrum dauðinn réttir hönd. ” —-- Á fimtudaginn þann 18. þ. m., gerðist sá óvenju harm- sögulegi atburður, að gas- sprenging varð í forkunnar vönduðum bamaskóla í New London í Texas ríki, er orsak- aði dauða 450 skólabarna eða jafnvel fleiri. Herlið var þeg- After the last match a dance was held in the Community hall and the trophy was presented to the Win- nipeg Pirates. The game between the Pirates and Selkirk was the best of the three. As the score indicates, the game was close all the way, with the Pirates finally winning in overtime. The first two periods were scoreless. In the third Skinner and Corrigal scored for Selkirk, while Sigurdson and A. Johanneson counted for the Pirates. J. Johanneson tallied the wínning goal after five minutes of overtime had been played. Harold Anderson led the Gimli team to their victory oVer Arborg with two goals. Greenberg, Evans, Joe Wilkinson and Jack Wilkinson scored one each, ' while Einarson scored the lone Arborg tally. In thefinal the Pirates scored one in each of the first two periods, and two in the final session on the Gimli teaim to win the championship. Swanson took a pass from Thomp- son for their first goal, and Brazier passed to Nicholl for the second. Brazier scored the third counter un- assisted, and Sigurdson wound up the scoring on another solo effort. IVinnipeg Pirates—Reid, Thomp- son, Marchard, A. Johanneson, Swanson, J. Johanneson, Brazier, Nicholl, Oddleifson, Stone. Selkirk—Poulter, Skinner, Lee, Oliver, Stephenson, Corrigal, West, Scheving, Sinnson, Goodman, Hend- rickson. Gimli — Valgardson, Greenberg, E. Valgardson, Evans, Einarson, Anderson, Jack Wilkinson, Joe Wilkinson, Solmundson, Eliason, Arnason. Arborg—Drabick, Cruk, Reed, J. Einarson, D. Einarson, Halldorson, Danielson, Johnson, Bornes, Kazi- nir, Gudmundson. A TK VÆÐAMIKILL ISLENDINGUR Magnús Hjálmarson, verkfræð- ingur, sonur Halldórs Hjálmarsson- ar og frú Margrétar Hjálmarsson, hefir með höndum yfirumsjón með einu allra umfangsmesta vatnsleiðslu fyrirtæki í heimi, og hefir umráð yfir nálægt tíu þúsund verkamönn- um. Er hér átt við virkjun Colorado árinnar, þannig, að veitt verði úr henni vatni til 13 stórborga í Suður Californíu, þar á meðal os Angeles. Magnús er fæddur í íslenzku bygð- inni í North Dakota þann 15. janúar 1894, og er útskrifaður í verkfræði af ríkisháskólanum í North Dak- Dakota; hann er bróðursonur Her- manns heitins Hjálmarssonar Her- mann, sem um langt skeið var bók- haldari Columbia Press, Ltd. Kona þessa mikilhæfa manns, er Elízabet dóttir Elísar heitins Thorvaldssonar frá Mountain. Bróðir hans, Bjöm, er búsettur í Cavalier, N. Dak. ar kvatt á vettvang til þess að gæta reglu. Forseti Banda- ríkjanna sendi hinum syrgjandi aðstandendum samúðarávarp, og slíkt liið sama gerði forsæt- isráðherrann í Canada. Þessi hörmulegi atburður er alveg einstæður í sögu Bandaríkja- þjóðarinnar. Hvert einasta mannlegt hjarta hlýtur að hrærast til samúð'ar með hin- um harmi lostnu. foreldrum og öðrum ástvinum hinna látnu ungmenna. HON. J. C. BOWEN skipaður fylkisstjóri í Alberta Á miðvikudaginn í vikuríni sem leið, lézt í Edmonton Hon. P. C. H. Primrose, fylkisstjóri í Alberta, eftir skammvinna sjúkdómslegu. \ arð fráfall hans valdandi þess, að fresta varð þingfundum unz eftir- maður hans væri valinn. Á þriðju- daginn var bárust þær fregnir frá Ottawa, að J. C. Bowen, fyrrum prestur og liberal þingmaður í AI- berta fylkisþinginu, hefði verið til þess skipaður að gegna fylkisstjóra- embættinu. MISS PEARL PALMASON Eins og getið var um í síðasta blaði, efnir Miss Palmason til fiðlu- hljómleika í Fyrstu lútersku kirkju á fimtudagskvöldið þann 1. apríl næstkomandi, með aðstoð Miss Snjólaugar Sigurðsson. Nokkru áður en Miss Pálmason lagðí af stað að austan, hélt hún hljómleika í Toronto, sem hún hlaut mikið lof fyrir af hálfu listdómenda. Um það er heldur ekki að villast, að hún sl komin á hátt stig í sinni fögru og gö>fugu list. Efnisval skemtiskrár verður vandað hið mesta; einungis leikin verk eftir klassiska snillinga. Vissara er fyrir fólk að tryggja sér aðgöngumiða í tæka tíð, því bú- ast má alveg vafalaust við húsfylli. Úr borg og bygð Séra Guðmundur Árnason frá Oak Point, var staddur í borginni í vikunni sem leið. Heklu-fundur í kvöld (fimtudag) klukkan 8. Junior Ladies Aid of the First Lutheran Church will hold their usual meeting on Tuesday, March, 3otlt, at 3 p.m. Frú María Björnsson frá Árborg, Man., var stödd í borginni i fyrri viku. ------- Samkoma sú, sem haldin var í Sambandskirkjunni til arðs fyrir sumarheimili islenzkra barna, var hin ánægjulegasta i alla staði; kirkj- an þéttskipuð og skemtiskrá prýði- leg. Erindi prófessor Kirkconnells hafði margvíslegan fróðleik til brunns að bera; ljóðalestur Gutt- orms skálds hrífandi, barnasöng- flokkurinn ágætur, fiðluspil frú Gyðu Johnson-Hurst einkent af tónþrótti og næmri túlkun; söngur frú Fríðu Jóhannesson mjúkur og aðlaðandi.* Frú María Rjörnsson frá Ár- borg setti samkomuna með prýði- legu inngangserindi og stjórnaði ltenni röggsamlega til enda. Kappræða þeirra Þorvaldar Pét- urssonar, Tryggva Oleson, Einars Árnasonar og Heimis Þorgrímsson- ar á síðasta Frónsfundi, þótti takast ágætlega, sem og fundurinn yfirleitt. Fjölmenni mikið viðstatt.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.