Lögberg - 25.03.1937, Blaðsíða 8
8
LÖGBBiRG, FIMTUDAGINN 25. MARZ 1937
Úr borg og bygð
Johann Einarsson og Minnie
Birch bæÖi til heimilis hér í borg-
inni voru gefin saman í hjónaband
af dr. Birni B. Jónssyni þann 21.
þ. m.
Mr. Arnór Árnason frá Oak
Point, Man., sem starfaÖ hefir eins
og aÖ undanförnu viÖ Manitoba-
þingiÖ, hélt heimleiðis á föstudag-
inn var. Mr. Árnason er sonur
Árna prófasts Böðvarssonar, er
lengi gegndi prestsembætti á ísa-
firði; hefir hann lagt gerva hönd á
margt hér í vesturvegi og er enn ern
sem ungur væri.
Þeir SigurÖur Sigurðsson frá
Gimli og Jón sonur hans voru stadd-
ir í borginni á föstudaginn var í
viÖskiftaerindum.
Notið tækifærið sem yður er boð-
ið í auglýsingu Thorlakson & Bald-
win. Gömul úr fyrir ný “Bulova.”
Mánaðarborganir teknar til greina,
hvort sem heimili þitt er í Winnipeg
eða út um landsbygðina. Ákveðið
verð fyrir gamla úrið og fullkomn-
ar upplýsingar gefnar bréflega, eí
óskað er, sapidægurs.
Prófessor Thorbergur Thorvalds-
son frá Saskatoon, kom til borgar-
innar síðastliðinn föstudag, ásamt
frú sinni. D\-aldi prófessorinn hér
fram á sunnudag, en frúin hélt
heimleiðis á þriðjudagskvöldið.
Mr. Guðmundur Fjeldsted, fyrr-
um þingmaður Gimli kjördæmis, var
staddur í borginni seinni part vik-
unnar sem leið.
Mr. Guttormur J. Guttonmsson
skáld, kom til borgarinnar í fyrri
viku, og skemti hér með upplestri
ljóða sinna.
Mr. Paul Bardal, bæjarfulltrúi,
kom heim austan frá Ottawa á laug-
ardagskvöldið var. Mr. Bardal er,
sem kunnugt er, forseti atvinnuleys-
isnefndarinnar, og hefir á því sviði
sem annarsstaðar, getið sér hinn
bezta orðstír fyrir skyldurækni og
dugnað. í Ottawa sat hann fund
ásamt Dr. Warriner borgarstjóra,
þar sem rætt var um sveita- og bæj-
arstjórnamál. Auk þess fór Mr.
Bardal til Hamilton, Toronto og
Detroit til þess að kynnast með eigin
augum starfrækslu og umsjón at-
vinnuleysismálanna þar, ,er hann
taldi að engu leyti taka því fram,
sem viðgengst hé. Ekki kvað Mr.
Bardal það sambærilegt, hve ástand-
ið austanlands væri betra en hér
vestra; munurinn væri auðsjáanlega
afar mikiU; þeir þar eystra hefði
yfir höfuð lítið af þeim örðugleik-
um að segja, er íbúar Sléttufylkj-
anna ætti í höggi við.
Mr. Bjarni Marteinsson bóndi við
Hnausa, Man., bróðir *iéra Rúnólfs
Marteinssonar, var skorinn upp við
innvortis meinsemd á Almenna
sjúkrahúsinu hér í borginni á þriðju-
daginn í vikunni sem leið. Líður
honum sæmilega að því er frézt hef-
ir.
Dr. Tweed verður í Árborg á
fimtudaginn þann 1. apríl næstkom-
andi.
Messuboð
Messa í kirkju Lundarsafnaðar á
páskadaginp kl. 3 e. h. Ekki kl. 2.30,
eins og áður var auglýst. — Séra
Jóhann Bjarnason væntanlega pré- |
dikar. Mælst er til að fólk f jöl- j
menni. Enskri messu, er átti að
verða að kvöldi, hefir verið frestað
til óákveðins tíma.
Messur í Wynyard:
Föstudaginn langa, kl. 2 e. h.—
ensk messa. Ræðuefni: Death.
Páskadaginn kl. 2 e. h. — íslenzk
messa. Mrs. S. Þorsteinsson syngur
einsöng. •
Jakob Jónsson.
Föstudaginn langa, 26. marz —
messa í Eyford kl. 2 e. h., messa í
messa i Eyford kl. 2 e. h., og í Hall-
son á ensku kl. 8.
Á páskadag messur í Vídalíns-
kirkju ásamt altarisgöngu kl. 11; i
Gardar kl. 2.30; í Mountain kl. 8
e. h. H. Sigmar.
Messur í Gimli prestakalli:
26. marz (föstud. langa) —
Betel, á venjulegum tíma.
28. marz (páskadag) — Betel,
á venjulegum tíma.
Víðines, kl. 2 e. h.
Gimli, kl. 2 e. h’. (islenzk)
4. apríl — Mikley, kl. 2 e. h.
Sunnudagssk. á Gimli, kl. 1.30
eftir hádegi.
Fermingarbörn á Gimli mæta á
heimili Mr. og Mrs. J. Josephson,
föstudaginn langa, 26. marz, kl. 4
eftir hádegi.
B. A. Bjarnason.
Hátíðarguðsþjónustur
í Selkirk
í vikunni helgu og á páskadaginn
verða þessar guðsþjónustur og fund-
ir haldnir:
Fimtudaginn 25. marz—
Kl. 8 siðdegis, kennarafundur á
heimili prestsins, 400 Eveline St.
Föstudaginn 26. marz—
Kl. 3 síðdegis, íslenzk guðsþjón-
usta; kl. 7.30 síðdegis. Ensk guðs-
þjónusta (sameiginleg) i kirkju
United Church að tilstilli Selkirk
prestafélagsins. Undirritaður pré-
dikar.
Sunnudaginn 28. marz (páskad.)—
11 árdegis, sunnudagsskóli
12:15 síðd., yngri söngflokkurinn
5 45 síðd., eldri söngflokkurinn
7 síðd., hátíðarguðsþjónusta á ís-
lenzku.
Allir eru boðnir og velkomnir.
Gjörum þessa heilögu tíð dýrðlega
með aðstoð Guðs Anda. Hinn kross-
festi og upprisni Drottinn er vor
eina sáluhjálparvon. Tignið hann
með nærveru yðar.
Vinsamlegast,
Carl J. Olson.
Messað verður, að öllu forfalla-
lausu, í kirkju Mikleyjarsafnaðar,
sunnudaginn þ. 4. apríl n.k., kl. 2
e. h. Fólk þar beðið að hafa þetta
hugfast, og láta tilkynning um þetta
berast sem allra viðast, svo messu-
sókn geti orðið sem bezt.
B. A. Bjarnason.
Hjónavígslur
Laugardaginn 20. marz, voru þau
Arthur James Phillips og Verna
Fredericka Henrickson, bæði til
heimilis í Winnipeg, gefin saman í
hjónaband af séra Rúnólfi Mar-
teinssyni, að 493 Lipton St. Heimili
þeirra verður í Winnipeg.
Laugardaginn 20. marz, voru þau
Stefán Ivor Thorsteinson og Agnes
Ketter, bæði til heimilis í Winnipeg,
gefin saman í hjónaband af séra
Rúnólfi Marteinssyni, að 493 Lipton
St. Mannmörg og rausnarleg veizla
var haldin á heimili foreldra brúð-
arinnar, að 17 Luxton Ave. Mr.
Thorsteinson hefir keypt búgarð í
grend við Lundar, Man., og þar
v.erður heimili brúðhjónanna.
POULTRY FARM
PRODUCE
f,36 SARGBINT AVE.
Sími 38 306
Fyrsta flokks alifuglakjöt
Hænsni .....17C pd. og upp
Ungir Tyrkjar iþcpd. ogupp
Alifuglar ..I7cpd. ogupp
Gæsir, endur og glæný egg
Fyrsta Lúterska Kirkja
Skírdagur:
Altarisgöngu guðsþjónusta (íslenzk) kl. 8 e. h.
Föstudagurinn langi:
Guðsþjónusta (helgisöngvar) kl. 7 e. h.
Páskadagur:
Ensk guðsþjónusta kl. 11 f. li.
íslenzk guðsþjónusta kl. 7 e. h.
Violin Recital
by
Pearl Palmason
at the Piano—SNJOLAUG SIGURDSON
Thursdy Evening, April lst, at 8:30 o’clock
FIRSX LUTHERAN CHURCH
Tickets—50c.
Dánarminning
Þann 12. febr. síðastliðinn andað-
ist að heimili (Arnórs) sonar síns,
konan Margrét Jónsdóttir Guð-
mundssonar Þorsteinssonar frá
Lönguhlíð í Eyjafirði. Móðir Mar-
grétar var Jóhanna Jónsdóttir Sig-
urðssonar frá Marbæli í Óslands-
hlíð í Skagaf jarðarsýslu.
Margrét heitin var fædd 8. febé.
Í853 og giftist 1881 á íslandi, eftir-
lifandi manni sínum, Halldóri Egils-
syni. Móðir Halldórs var Sigurveig
Jóhannesdóttir Kristjánssonar frá
Laxamýri i Þingeyjarsýslu, systir
Sigurjóns bónda á Laxamýri föður
Jóhanns skálds Sigurðjónssonar.
Þau Margrét og Halldór fluttu
frá Mosfelli í Húnavatnssýslu á ís-
landi til Ameríku árið 1887 og sett-
ust að í North Dakofa og bjuggu
þar, og lengst af í Mouse River-
bygð þar til vorið 1899, að þau fluttu
til Swan River og námu þar land,
sem þau lifðu á ávalt siðan.
Börn þeirra Halldórs og Margrét-
ar voru sex: Egilsína Sigurveig,
giftist Sæmundi Helgason, dáinn
fyrir nokkrum árum; Jón Jóhann,
tvigiftur, seinni kona hans af inn-
lendum ættum; Arnór Konráð gift-,
ur Þórunni Salórne Oliver frá Sel-
kirk; Helga Sigurrós, gift Jóhanni
Björnssyni; Kristján Halldór (dá-
inn) ; Jónas, giftur konu af norsk-
um ættum. Margrét heitin var höfð-
ingleg kona, bæði í raun og sjón,
um. Hún var greind vel og skýr í
tali; góð og umhyggjusöm móðir og
eiginkona.
Fyrir hér um bil 20 árum síðan
varð hún fyrir því þunga mótlæti,
að imfssa sjónina, og bar hún þá
löngu rökkursetu með stillingu og
rólyndi, sem henni var svo eiginlegt.
enda naut hún umhyggju, auk barna
sinna, Þórunnar konu Arnórs, sem
reyndist henni sem væri hún hennar
eigin dóttir Halldór maður henn-
ar las fyrir hana blöð og bækur, og
er heimili þeirra eitt af alt of fáum,
sem baldið hefir uppi vikulegum
húslestrum.
Auk f jögurra barna, sem eftir lifa
til að syrgja hina látnu merkiskonu,
eru 26 barnabörn og eitt barnabarna-
barn.
Útför hennar fór fram frá Sann-
Ojj^oiA ipt a
Liberal Allowance
|pn.fl^oun, ÖM fWatck
E4Sr CREDIT TERMS
NO EXTRA CHAR&E
THORLAKSON & BALDWIN
699 SARGENT AVE.
Winnipeg, Man.
Business Cards
Wellington Bakery
702 SARGENT AVE.
Eina tslenzka bakaríið I borginni.
Vörur sendar greiðlega heim.
Pantanir utan af landl skjótlega
afgreiddar.
Sími 37 652
Your New Neighborhood
Snak Shop
Try our Light Lunches
and Fish & Chips
Also—Nips, Hot^Dogs, Candies,
Tobaccos
We Serve Silex Coffee
Slip lnn
726% SARGENT AVE.
Alfatnaðir og vor yfirhafnir
þurhreinsuð fyrir ..........50c
Kjólar, þurhreinsaðir ........65c
2 fyrir ............... $1.25
ASgerðir af öllum tegundum.
Rex Tailors & Furriers
464 SHERBROOK STREET
Sími 36 201
HÚSGÖGN stoppuð
Legubekkir og stðlar endurbætt-
ir of fððraðir. Mjög sanngjarnt
verð. ókeypis kostnaðaráætlun.
GEO. R. MUTTON
546 ELLICE AVE.
Slmi 37 715
Bílar stoppaðir og fððraðir
B-B Luncheonette
After the show or dance, eat at
B & B
Lunches - Fish &iChips
464 SARGENT AVE.
For Delivcry Phone 25 905
Minniét BETEL
A
1
erfðaskrám yðar
einuðu kirkjunni í Swan River, und-
ir umsjón ensks prests.
Guð blessi minningu hennar, sem
mun verða kærust þeim, sem bezt
þektu hana.
8. marz, 1937. Vinur.
TIMARITIÐ “DVÖL”
Eg hefi verið beðinn að annast um
útsölu á þessu riti hér vestan hafs,
og voru mér send nokkur eintök af
fyrstu heftunum fyrir þetta -ár.
“Dvöl” á að koma út tvöfalt hefti
annan hvern mánuð, 6 hefti á ári,
alls 4JOO bls. Margar myndir prýða
og skýra ritið. Verðið er $2 ár-
gangurinn. Þeir, sem vilja gjörast
áskrifendur gjöri mér aðvart sem
fyrst.
Magnus Peterson
313 llORACE STREET
Noi-wood, Man., Canada
íslenzkar tvíbökur
og brauð — margar tegundir af
kökum og sætabrauði.
GEYSIR BAKERY
724 SARGENT AVE.
Sími 37'476
Sendum vörur heim.
SARGENT FLORISTS
PHONE 26 575
OTFARARBLÖM
GIFTINGASVEIGAR
og kveöjuspjöld við öll tœkifœri
Pantanir sendar heim
739 SARGENT AVE.
ROLLER SKATING
Winnipeé Roller Rink
Every evening, Wed„ Sat. After-
noon, instructions free to learners.
LET US TEACH YOU
LANGSIDE & PORTAGE
PH. 30 838
The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for BULOVA Watches Marriage Licenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers & Jewellers 699 SARGENT AVE„ WPG.
Jakob F. Bjarnason TRANSFER Annast greiðlega um alt, sem að ílutningum lýtur, smáum eða stðrum. Hvergi sanngjarnara verð. Heimili: 591 SHERBURN ST. Slmi 35 909
Peningar til láns út á heimili yðar, ræktaðar bújarðir og hús 1 bæjum. Internationai Loan Company 304 TRUST & LOAN BUILDING, WINNIPEG Slmi 92 334
Sendið nautgripi yðar á Brandon markaðinn og sannfærist að þar sé hagkvæmust verzlun. Peningar greiddir út I hönd. Brandon Packers, Ltd. 901 ASSINIBOINE AVE. Brandon, Man.
Wright & Wightman Skrau tmunasalar Vandaðar aðgerðir og áletranir' grafnar. Giftingaleyfisbréí af- greidd. Gamlir gullmunir keyptir. Pðstpantanir afgreiddar fljðtt og vel. 112 TENTH STREET Brandon, Man.
lsabel McCharles Florlst 618 PORTAGE AVE. Te og hressingarskáli; lesið t sand af prinsessu Nadjah og hjðlum hamingjunnar snúið. Slmi 36 809
Til þess að tryggja yður skjóta afgreiðslu Skuluð þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI FRED BUCKLE, Manager PHONE 34 555 - 34 557 SARGENT & AGNES
TAYLiORS HÆNUUNOAR $1.00 afsláttur á hundraðinu a£ titungu frá 18. marz til 29. marz. Marz, Apríl, Maí 100 50 White Leghorns $10.75 $5.90 Barred Rocks 12.75 6.90 ^Vyandottes 13.75 7.40 White Rocks, Reds .... 13.75 7.40 Opringtons, Minorcas 13.75 7.40 Pullet Chicks Jap-Sexed $25.00 fyrir hundraðið; 97% ábyrgstir, B.W.D. prðfaðir hðpar. PHONE 33 352 ALEX. TIYIOR HATGHERY 362 FURBY ST„ Winnipeg
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE BMPIRE SASH & DOOR OO., LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551
" ' " 1 1 —...... ■■ TZ^T p—iMi' —