Lögberg - 06.05.1937, Síða 3

Lögberg - 06.05.1937, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. MAÍ, 1937 um og kvenfélaginu, prýÖi heimilis síns, ágæt eiginkona og móÖir, og trygg öllum sínum vinum og vanda- mönnum. Þetta kvöld var hiÖ ánægjuleg- asta. — Guð blessi þessi silfurbrúð- hjón og láti hamingjusóHna halda áfram að skina á þau næsta aldar- fjórðunginn og til æfiloka. Carl J. Olson. “I helgum stein” Þetta er stuttur kafli úr frásögn hins sœnska landkónnuðar Sven Hedin, þar sem hann lýsir merki- legum einsetumunkum í Tíbet. Einn dag í stormi og snjókomu fór eg með nokkrum félögum mín- um i Klausturdalinn fyrir ofan Linga og Pesa að helli einum eða steinbyrgi við klettavegg einn, sem nefnt er Samdepuk. Þar sáum við hund vera að snuðra um. Þar var klausturhundurinn. Hann vissi að í hellinum var matarvon. En ef hann ætti að njóta þess vissi hann að hann þurfti að bíða lengi. Klettabyrgið haifði hvorki dyr né glugga. En inni í því var ofurlítil uppspretta. Niður við jörð var dá- lítil glufa í vegginn. í byrgi þessu var Lama einn múraður inni. Eigi var hann þar sem afbrotamaður að bæta fyrir af- glöp sín. Af frjálsum vilja hafði hann gengið í steininn, í einveruna og myrkrið. Hvað heitir hann? spurði eg. Hann hefir ekkert nafn, var svar- ið. Við köllum hann Lama Rin- pocke — hinn heilaga munk. —Hvaðan er hann? —Hann er fæddur í Ngor i Nakt- sang. —Á hann skyldfólk? —Það vitum við ekki. /Ettmenn hans vita ekki að hann er hér. —Hve lengi hefir hann verið múraður hér inni? —Þrjú ár! —Hve lengi verður hann þarna ? —Þangað til hann deyr. —Sér hann aldrei dagsljósið? —Nei. Hann hefir svarið þess dýran eið, að fara ekki úr steininum í lifanda lífi. —Hve gamall er hann? —Það veit eg ekki. Líklega um fertugt. —Hvað verður um hann ef hann veikist? —Þá annaðhvort deyr hann, ellegar hann hressist aftur. —Vitið þið aldrei hvernig honum líður? —Á hverjum degi er ýtt skál með Tsamba og dáltlu smjöri og tei inn til hans. Ef hann snertir ekki mat- inn í sex daga, þá gírum við ráð fyrir að hann sé dauður. Þá rjúf- um við byrgið. —Hefir það komið fyrir? —Já. Síðast fyrir þrem árum. Þá dó þar Lama einn, sem verið hafði í Steininum í 12 ár. Og fyrir 15 árum dó þarna einn, sem gekk tvítugur í Steininn og lifði þar í 40 ár. —Talar munkurinn sem ber hon- um matinn aldrei við hann? —Nei. Ef hann mælti orð af vör- um myndi hann leiða yfir sig eilífa glötun, og þriggja ára einsetan yrði honum að engu gagni. —Heyrir hann til okkar er við tölum sanian utan við múrinn? —Nei, múrinn er svo þykkur. Þegar þessi dularfulli Lama Rin- pocke kom til Linga fyrir þrem ár- um, bar hann fram það heit sitt, að ganga í eilíft myrkur til dauða- stundar. Af heilögum ritum munk anna varð það síðan ráðið, hvaða dag munkurinn ætti að múrast inni. Á þessum degi komu allir munk- arnir saman, til þess að fylgja hon- um til grafar. Þöglir og hátíðlegir, gengu munkarnir i sorgarfylking eftir dalnum, hægt og hægt, fet fyr- ir fet, eins og þeir vildu treina síð- ustu mínúturnar sem hinn ókunni einsetumaður fengi að njóta sólar- ljóss og lita. Hann vissi að hann var að yfirgefa heiminn, að hann myndi aldrei sjá f jöllin sem gnæfðu yfir gröf hans. Hann vissi, að INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS Amaranth, Man..............B. G. Kjartanson Akra, N. Dakota..........B. S. Thorvardson Árborg, Man..............Tryggvi Ingjaldson Árnes, Man................Sumarliði Kárdal Baldur, Man....................O. Anderson Bantry, N. Dakota........Einar J. Breiðfjörð Bellingham, Wash............Arni Símonarson Blaine, Wash. ..............Arni Símonarson Bredenbury, Sask.................S. Loptson Brovvn, Man. ....................J. S. Gillis Cavalier, N. Dakota......B. S. Thorvardson Churchbridge, Sask................ S. Loptson Cypress River, Man.............O. Anderson Dafoe, Sask.................J. G. Stephanson Edinburg, N. Dakota........Jónas S. Bergmann Elfros, Sask.......Mrs. J. H. Goodmundson Foam Lake, Sask..........J. J. Sveinbjörnsson Garðar, N. Dakota..........Jónas S. Bergmann Gerald, Sask.....................C. Paulson Geysir, Man.............Tryggvi Ingjaldssorí Gimli, Man....................F. O. Lyngdal Glenboro, Man..................O. Anderson Hallson, N. Dakota.......S. J. Hallgrímsson Hayland, P.O., Man........Magnús Jóhannesson Hecla, Man.................Gunnar Tómasson Hensel, N. Dakota..............John Norman Husavick, Man..................F. O. Lyngdal Hnausa, Man................................B. Marteinsson Ivanhoe, Minn......................B. Jones Kandalliar, Sask.............J. G. Stephanson Langruth, Man............................John Valdimarson Leslie, Sask...................Jón Ólafsson Lundar, Man..................Jón Halldórsson Markerville, Alta...............O. Sigurdson Minneota, Minn.....................B. Jones Mountain, N. Dak............S. J. Hallgrímson Mozart, Sask............J. J. Sveinbjörnsson Oak Point, Man................A. J. Skagfeld Oakview, Man..................Búi Thorlacius Otto, Man....................Jón Halldórsson Point Roberts, Wash.............S. J. Mýrdal Red Deer, Alta.................O. Sigurdson Reykjavík, Man.................Árni Paulson Riverton, Man..........................Björn Hjörleifsson Seattle, Wash. ................J. J. Middal Selkirk, Man..............Th. Thorsteinsson Siglunes P.O., Man......Magnús Jóhannesson Silver Bay, Man...............Búi Thorlacius Svold, N. Dak. ...........B, S. Thorvardson Tantallon, Sask...............J. Kr. Johnson Upham, N. Dakota........Einar J. Breiðfjörð Víðir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson Vogar, Man............................Magnús Jóhannesson Westbourne, Man..........................Jón Valdimarsson Winnipegosis, Man.......Finnbogi Hjálmarsson Winnipeg Beadh................F. O. Lyngdal Wynyard, Sask...............J. G. Stephanson steininum myndi hann deyja, yfir- gefinn af öllum. Dyrnar í byrgið stóðu opnar. Nokkrir nninkar gengu inn. Þeir lögðu pjötluteppi í eitt hornið og settu tvær guðamyndir upp á sillu. Að aflokinni helgiathöfn gengu þeir út. Stórum björgum er nú velt fyrir dyrnar, og þeim hlaðið fyrir dyra- opið i margföldum lögum. Fylt er allar holur þangað til hvergi er neitt ljósop að finna. Ljósið er sloknað fyrir honum fyrir fult og alt. Hann er einn. Aldrei oftar heyrir hann mannamál, nema hið innibyrgða bergmál sinnar eigin raddar. Og þegar hann segir fram bænir sínar, hlustar enginn á hann. Kalli hann, svarar honum enginn. Fyrir bræðrunum er hann lifandi grafinn — þegar dauður. Þeir gatiga þögulir til baka til klaustursins, og taka upp sín dag- legu störf. Einasta sambandið milli þeirra og hans er að þeir skuld- Itinda sig til þess að færa honum mat daglega. Fyrir okkur hina væri það þung- bært að þola að vera' einn dag í þessari myrkraholu. En Lama Rin- pocke verður þar þangað til hann deyr. Það fer hrollur um mann að hugsa til þessa hræðilega og þó að visu háleita vernkaðar. Er síðasti ljósgeislinn er sloknaður í byrginu, veit hann að þeir eru farnir frá hon- um. Hann veit, að sólin er í há- degisstað, en í einveru og niyrkri verður langt til kvöldsins. En hann veit ekki hvenær nóttin kemur, þvi nú er hann kominn í hið sífelda rnyrkur. ' Fyrsta nóttin líður. Hann vak- ir, þreifar fyrir sér til glufunnar i múrinn og réttir fram höndina eftir skálinni. Með krosslagðar fætur, og rósinkransinn í höndunum hallar hann sér upp að steinveggnum, hef ur upp bænir sínar og hugsar um tiíveruna. Dagurinn líður. Nýir dagar og nætur. Það haustar. | Hann heyrir ekki til regnskúranna. Veturinn gengur í garð, og kuldinn. Við fáum ei skilið hvernig hann get- ur lifað í þessum kulda. Engin hlý föt hefir hann, engan eld til að yla sér við. Dagana getur hann ekki talið. En að sumri finnur hann að eitt ár er liðið. Seinna gleymir hann því hve mörg ár eru liðin. Það einasta sem hann getur talið eru kúlurnar í talna- bandi hans, og bænir sinar um leið. Með hverju ári sem líður f jarlægist hann meira jarðneskar endurminn- ingar sínar, og smátt og smátt gleymir hann því, hvernig umhorfs er úti í sólinni. Tlveran í byrginu rennur út í eitt, verður augnablik eitt í samanburði við eilífðina. Einmana um nætur og ár leitar einsetumaðurinn að svörum við ráð- gátu tilveru og dauða. Hann þráir dauðann. Og einasta eftirvænting hans er að standa á tímamótum þeg- ar stundaglas hans rennur út. En dauðinn flýtir sér ekki, þegar hann er velkominn gestur. Ný ár líða. Endurminningar hins innimúraða einsetumanns um umheiminn fölna. Hann gleymir hinu eldrauða skini morgunroðans og bjarma sólarlags- ins. Og líti hann upp yfir sig, sér liann ekki annað en svartamyrkrið, enga blikandi stjörnu. Loks eftir niörg ár og löng er barið að dyrum i byrginu. Það er dauðinn sem kemur. Hann tekur gestinum opnum örmum, vininum, sem hann svo lengi hefir beðið eftir. Dauðinn stígur inn fyrir þröskuld- inn. Hinn blindi einsetumaður, sem arum saman hefir lifað í algerðu myrkri, sér nú ljósgeisla. Hann er dáinn. Hann hefir trúlega staðist prófraun sína. Eftir sex daga er byrgið rofið. Hetjan er færð í hvít líkklæði, og sett kóróna á höfuð henni. Hárið er langt og hvítt. Líkaminn þur og skorpinn. Munkurinn sem fyrir mannsaldri síðan fylgdu honum til grafar eru nú dánir. Nýir eru komnir í þeirra stað. Þeir bera hann á bálköst og logarnir taka við bráð sinni. Brátt er aðeins askan eftir. Hinn ókunni einsetumunkur er kominn i helgra tölu. Hann er laus við sálnaflakkið og horfinn í eilífa sælu ljósheima.—Lesb. Mbl. Ví,a'1t®lb ^GOOD HEALTH“ FOR OnLY4<fl DflY Hundruð Winnipegbúa el’la heilsu sina með þvi að éta VITA-KELP töflur, hina nýju málmefna fæðu. VITA-KELP ber mikinn árangur til lækningar taugabilun, gigt, bakverk, meltingarleysi, ónógri líkamsþyngd, nýrnaveiklun, svefn- leysi og mörgum fleiri kvillum, sem stafa frá skorti málmefna i likamanum. Fáið flösku i dag! Tryggið heilsu yðar fyrir 2 til. 4c á dag. Fæst f öllum lyfjabúðum eða póstfrítt hjá Runion’s Drug Store 541% ELLICE AVE. Winnipeg SÍMI 31 355 Verð: 200 töflur ............$1-50 350 töflur ..$2.25 1000 töflur .,$5.40 Business and Professional Cards Minningarorð Miss Una Herdís Eyjólfsson frá Hóli við Riverton, andaðist í Win- nipeg á Almenna sjúkrahúsinu nótt- ina milli þess 14. og 15. apríl. Sár- veik hafði hún verið flutt á sjúkra húsið ; lækningatilraun gerð, en and- aðist stuttu síðar. Una heitin var dóttir Þorsteins bónda Eyjólfsson- ar fyr bónda á Hóli, og látinnar konu hans, Lilju Halldórsdóttur; var hún tíunda í aldursröð þrettán barna þeirra. Una heitin var fædd 13. sept. 1899, ólst upp að Hóli. Átti um hríð við heilsuleysi að stríða. Fyrir tíu árum siðan fékk hún góða heilsu, og mun oftast síð- an hafa notið sæmilegrar heilsu. Hún veitti heimili foreldra sinna á- gæta þjónustu, er þau tóku að eld- ast, en eldri systkini að heiman far- in og sum hinna yngri sömuleiðis. Ljúf var samvinna hennar við bræður og systur og aldraða for- eldra. Hjúkraði hún af hagri mund öldruðum föður, er rúmfastur hefir verið hin siðari ár. Lilja móðir hennar andaðist á síðastliðnu sumri, eftir all-langt sjúkdómsstríð; naut hún ágætrar uinönnunar dætra sinna er heima voru. Una heitin var starf- andi meðlimur Bræðrasafnaðar í Riverton, og einnig starfandi í ýms- um félagsmálum umhverfisins. Við snögglegan dauða hennar er þungur harmur kveðinn að ástvinahópnum öllum: öldruðum föður, systrum og bræðrum, tengdasystkinum og stór- um hópi frændaliðs, er sakna sárt hinnar ljúfu, látnu stúlku, er var þeim öllum hjartfólgin og heimilinu á Hóli svo stór missir, sökum ljúfr- ar þjónustu, umhyggjusemi og fórn- fýsi, er einkendi hana of störf henn- ar. Við langvarandi sjúkdómsstríð hafði Una þjálfast og þroskast; átti örugga og bjarta trú, er gerði henni létt að gleyma sjálfri sér, í þjón- ustu annara. Útför hennar fór fram 19. apríl, frá heimili hennar og kirkju Bræðrasafnaðar að viðstöddu fjölmenni. Ensku blöðin fluttu fregnina um lát Unu heitinnar, en athygli skal að því leitt, að föður- nafn hennar þar var Egilsson, í stað hins rétt, Eyjólfsson. Sigurður Ólafsson. Hér í heimi er sorgin sára Söm um lífsins stig; Okkar hjartans undin blæðir Af að missa þig. Æ þitt var yndi hrddum, hrjáðum Hjálpar rétta mund; Alt það háa, göfga og góða Hið glaða dáði sprund. Ekki tjáir um að kvarta, Því alvalds höndin ræður; Þó bera sára sorg í brjósti Systur, faðir, bræður. PHYSICIANS and SURGEONS DR. B. J. BRANDSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Grahani og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 2-3 Heimili: 214 WAVERLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. B. H.OLSON Phones: 35 076 906 047 Consultation by Appointment Oniy Heimili: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba DR. ROBERT BLACK Sérfrœðingur f eyrna, augna, nef og hálssjúkdðmum. 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham & Kennedy Viðtalstími — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofusfmi — 22 251 Heimili — 401 991 Dr. Herbert J. Scott 306-7 BOYD BLDG. Stundar augna-, eyrna-, nef- og kverka-sjúkdðma Viðtalstími 2-5, by appointment Sfmi 80 745 Gleraugu útveguO PRESCRIPTIONS FILLED CAREFULLY Goodman Drugs COR. ELLICE & SHERBROOK Phone 34 403 We Deliver Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 22 866 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 Dr. S. J. Johannesson Viðtalstfmi 3-5 e. h. 218 SHERBURN ST. Sfmi 30 877 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœtcnar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEO BARRISTERS, SOLICITORS, ETC. H. A. BERGMAN, K.C. íslenzkur lögfrœðingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 PHONES 95 052 og 39 043 J. T. THORSON, K.C. íslenzkur lögfræöingur 800 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 94 668 BUSINESS CARDS Ákjósanlegur gististaður Fyrir Islandingal Vingjarnleg aðbúð. Sanngjarnt verð. Cornwall Hotel MAIN & RUPERT Sími 94 742 A.S. BARDAL 84 8 SHERBROOKE ST. Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina. Skrifstofu talsími: 86 607 Heimilis talsími: 501 562 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af 1 öllu tægi. PHONE 94 221 A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annast um fasteignir manna. Tekur að sér að ávaxta sparifé fólks. Selur eldsábyrgð og bif- reiða ábyrgðir. Skriflegum fyrir- spurnum svarað samstundis. Skrifst.s. 96 757—Heimas. 33 328 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG Pœgilegur og rólegur bústaður ( miðbiki borgarinnar. Herbergi $2.00 og þar yfir; með baðklefa $3.00 og þar yfir. Ágætar máltfðir 4 Oc—6 Oc Free Parking for Guests Samt er gleði í sorg að vita Sannleika af þeim, Að þín er sálin fleyga flogin Til fegri landa heim. Viðstaddur. INNLIMUN YUKON I BRITISH COLUMBIA Þær fregnir bárust landshornanna á milli á þriðjudaginn um það, að satnningar væri í undirbúningi milli fylkisstjórnarinnar i British Colum- bia og Sambandsstjórnarinnar, er í þá átt gengi, að Yukon verði inn- lirnað í British Columbia. Tíðindi þessi hafa vakið víðtæka athygli. íbúatala Yukon landsvæðisins nem- ur eitthvað um fjórutn þúsundum. Dagbókarblöð Reykvík- ings í landafræði, sem samin var i Persítt árið 1214, segir svo frá Eng- landi: Margt er merkilegt í þvi landi, m. a. það, að þar vex trjátegund ein, sem er með þeirri náttúru, að fuglar vaxa á greinum trjánna. Á haustin vaxa ávextir á trjárn þessum, sem í laginu eru svipaðir og rósir. I ávöxtum þessum eru fugl- arnir. Þegar ávöxtur þessi tekur að þroskast, þá höggva fuglarnir sig iít úr þeim með nefinu. Síðan handsama menn fuglana og ala þá til frálags í 2 ár. Þá eru þeir orðnir á stærð ’við aligæsir. Fuglar þessir eru aðalfæða landsmanna. Axel Munthje, hinn heimsfrægi höfundur San Michele, hefir selt amerisku kviktnyndafélagi réttinn til þess að gera kvikmyndir af sög- um sínum. Myndatakan byrjar inn- an skamms. Konur eiga fratnvegis ekki sæti í kviðdómum á Þýzkalandi. Ástæð- an er sú, að þar í landi er litið svo á, að kvenfólk eigi erfitt með að hugsa "logiskt,” og hætt við að til- finningarnar hlaupi með dómgreind- ina í gönur. Svíar nota neftóbak fyrir 17 miljónir króna á ári. Þeir munu nú vera mesta neftóbaksþjóð í heimi. Þ. e. a. s. ef reikna á neftóbaksbrúk- un á mann að meðaltali, verða Is- lendingar líklega drýgri. Kengúruungar eru ekki nema 10 sentimetrar á lengd er þeir fæðast. Og það merkilega er, að þá eru framlappirnar þroskaðri en aftur- lappirnar. Tyrkneska stjórnin hefir ákveðið, að allir bíógestir eigi að syngja þjóðsönginn á undan hverri mynda- sýningu.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.