Lögberg - 20.05.1937, Page 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. MAI, 1937
Úr borg og bygð
ARSLOKAHATW JÚNS
BJARNASONAR SKÓLA
Hún verður haldin í Fyrstu lút-
ersku kirkju á Victor St., föstudags-
kvöldiö í næstu viku (28. mai) og
hefst kl. 8 aÖ kvöldinu. Hún verÖur
meÖ svipuðum hætti og venjulega. í
fyrsta sinn verður aðalræðan flutt
af kvenmanni. ÞaÖ er Miss Salóme
Halldórson, sem um langt skeið var
kennari viÖ skólann og mörg hin
síðari ár yfirkennari. 1 fyrra sumar
var hún kosin á löggjafarþing
Manitobafylkis og er hún eina kon-
an, sem situr á því þingi. Mun
margan fýsa aÖ heyra boðskap henn-
ar. Allir eru velkomnir. Á öllum
síðari árum hafa samkomur þessar
verið vel sóttar. Tekið verður á
móti frjálsum gjöfum til skólans.
Ungmenni fermd i Fyrstu lút-
ersku kirkju á hvítasunnu:
Stúlkur—
Dorothy Louise Stephenson
Evelyn Grace Fridfinnson
Elaine Violet Gladys Felsted
Florence Laufey Fowler
Grace Evelyn Ruppel
Jean Gislason
Laufey Guðmundson
Magnea Gunnsteina Elín Johnson
Muriel Donna Bjornson
Rose Johnson
Drengir—
Alexander Hafsteinn Gillies
Eggert Stefánsson
Christian Harold Olafson
Harold Graharn Czerwinski
John Gordon Jonasson
Kenneth Hallgrímur Hallson
Leifur Thorsteinn Oddson
Páll Sigurberg Johannson
Rurik William Thorsteinson
Stefán Ólafur Lyngholt
Theodore Douglas Axford
Wilmar Herbert Finnbogason
Jack Edward Christian Hanneson
(fermdur 21. marz).
Lestrarfélagið í Árborg hélt ágæta
og fjölbreytta skemtisamkomu til
arðs fyrir bókasafn sitt á föstudags-
kveldið var, er var öllum til sæmd-
ar er að stóðu. Skiftist þar á ynd-
islegur ljóðalestur íslenzkra barna,
tvísöngur og kórsöngur ungra, ís-
lenzkra meyja.—
Guðmundur Grímsson dómari frá
Rugby, N. Dak., kom til borgarinn-
ar á mánudaginn, ásamt frú sinni,
syni og tengdadóttur, til þess að
hitta gamlan skólabróður Dr. Vil-
hjálm Stefánsson og sitja saimsæti
það, er honum var haldið á mánu-
dagskvöldið að tilstuðlan Þjóðrækn-
isfélagsins.
Mr. og Mrs. Sigurbjörn Sigur-
jónsson eru nýkomin til borgarinn-
ar sunnan frá Chicago, þar sem
þau dvöldu um hríð hjá Jóni syni
sínum.
Þeir Bjarni Thompson frá
Langruth og Arnór sonur hans, voru
staddir í borginni í byrjun vikunnar.
Mr. Björn B. Johnson frá Gimli
var staddur í borginni i byrjun yfir-
standandi viku.
Söngsamkomu þeirri, sem hald-
ast átti í Sambandskirkjunni á
þriðjudagskvöldið þann 18. þ. m.,
hefir verið «frestað til fimtudags-
kvölds þann 27. þ. m.
Leikurinn
Stígurinn yfir fjallið
verður sýndur í
HUSAVICK HALL, MAY 26
HNAUSA HALL, MAY 28
Veitingar seldar
Dans á eftir
Inngangur fyrir fullorðna, 35c
fyrir börn, 15c
I Ferming og altarisganga fór fram
I í Gimli söfnuði, á Hvitasunnudag,
þ. 16. maí. Börn, sem prestur safn-
I aðarins, séra Bjarni A. Bjarnason
| fermdi, eru:
Clara Margaret Einarson, Jóhanna
1 Flora Stevens, Ósk Steinunn Ein-
! arsson, Fjóla Josephine Svanlaug
| Johnson, Sigurveig Arason, Maria
I Josephson, Anna Jónína Lilja Árna-
son, Grace Sigurrós Jóhannesson,
'Lorna Magný Einarsson, Jóhann
Vilhjálmur Johnson, Marvin Sveinn
Sólmundson, Joseph Lorne Wilkin-
son, Walter John Wilkinson.
líeat ín llluid •
CLEANLINE55 OF PLANT ANÐ PRODUCT
DREWRY’S
Standard [ager
I
E5TABLISHED IÖ77
PHONE 57 2QI
Messuboð
Kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar heldur sina árlegu vor-útsolu
(Spring Bazaar)' á fimtudaginn
f>ann 20. þ. m. í samkomusal kirkj-
unnar frá kl. 2:30 e. h. til 10:30 um
kvöldið. Á boðstólum verður alls-
lags heimatilbúinn matur, kaffi og
hinar ágætustu veitingar.
Margvíslegar hannyrðavörur,
vandaðar og nytsamar, verða til
framboðs á þessari útsölu. Þarf
ekki að efa að almenningur styðji
gott málefni með því að fjölmenna
á útsöluna.
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
Guðsþjónustur í Fyrstu lútersku
j kirkju næsta sunnudag, 23. maí.
verða með venjulegum hætti: Ensk
imessa kl. 11 að morgni og íslenzk
messa kl. 7 að kvöldi.—Sunnudags-
skóli kl. 12.15.
Sambands kirkjan í Wynyard:
Miðvikudag ,19. maí, kl. 8 e. h.—
Ungmennafundur.
I Föstudag, 21. maí, kl. 8 e. h. —
Söngæfing.
Sunnudag, 23. maí, kl. 11 f. h.—
Sunnudagaskóli.
kl. 2 e. h.—Messa. Ræðuefni:
Brúðkaupið í Kana og áfengið.
Frú Inga Christianson, 566 Sim-
coe Street, lagði af stað vestur til
Seattle, Wash., á þriðjudagsmorg-
uninn var, þar sem hún hyggur á
dvöl um óákveðinn tíma. Hinir
mörgu vinir hennar hér í borg árna
henni fararheilla og ánægjulegrar
dvalar vestur á ströndjnni.
Guðsþjónusta í kirkju Konkordia
safnaðar á trinitatis sunnudag, 23.
þessa mán. Umræðuefni: “Vitnis-
burður kristins manns.”
Þau Gísli Johnson prentsmiðju-
stjóri og frú hans, brugðu sér
norður til Árnes síðastliðinn sunnu-
dag, þar sem frú Johnson flutti
erindi um kveldið, ásamt þeim frú
Björnsson frá Riverton og frú
Andreu Johnson frá Árborg.
í hátíð þeirri hinni mragbreyttu
og mikilfenglegu, er haldin var í
Winnipeg Auditorium í tilefni af
krýningu konungshjónanna brezku,
tóku Islendingar þátt sem hér segir:
í táknrænni skrautsýningu kom
fram á sjónarsvið.ið sem ímynd
Fjallkonunnar, írú Björg ísfeld;
Jónas Jónasson, B.A., táknaði Leif
Eiríksson hinn hepna, en Jochum
Ásgeirsson Thorfinn karlsefni.
Sex íslenzkar konur sungu ís-
lenzka söngva á hátíðinni og voru
þær þessar:
Mrs. Connie Jóhannesson, Mrs.
Linéoln Johnson, Mrs. A. Blöndal,
Mrs. G. Finnbogason, Mrs. Harald
Cervinski og Miss Mattie Halldor-
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, þ. 23. maí:
Betel, á venjulegum tíma,
Árnes, kl. 2 e. h.
Gimli, íslenzk messa, kl.‘ 7 e. h.
(Daylight Saving Time).
Messurnar á Betel og Gimli báð-
ar miðaðar við nýja timann, nefni-
lega “Daylight Saving Time,” en
messutími í Árnesi samkvæmt gamla
tímanum (Standard Time).
Sunnudagsskóli á Gimli kl. 1 ^30
eftri hádegi.
fí. A. Bjarnason.
Hjónavígslur
Fimtudaginn 13. maí, voru þau
Sigurður Onezime Roy og Vera
Kendall Lane, bæði frá/ Selkirk,
Man., gefin saman í hjónaband, af
séra Rúnólfi Marteinssyni, að 493
Lipton St. Heimili þeirra verður í
Selkirk.
Metnnalát
Látinn er að heimili sínu í Mikley,
þann 6. maí s.l., Kristmundur bóndi
Johnson, 74 ára gamall, áður lengi
búandi að Kirkjubóli þar á ey. Var
ættaður af Vesturlandi. Flutti til
Vesturheims 1893. Dugnaðarmaður
og drengur góður. Jarðarförin fór
fram frá kirkju Mikleyjarsafnaðar
þ. 14. maí. Séra Jóhann Bjarnason
jarðsöng----Hins látna manns verð-
ur, við tækifæri, getið nokkuru
frekar hér í blaðinu.—
son.
Mr. B. J. Lifman oddviti sveitar-
innar var staddur í borginni á
fimtudaginn í vikunni sem leið.
VEITIÐ ATHYGLI !
Karlakór íslendinga í Winnipeg
heldur hljómleika að Mountain,
North Dakota, mánudaginn 24. maí
n. k., undir umsjón lestrarfélagsins
“Austri” þar í bænum. Hefir flokk-
urinn vandað til þessarar samkomu
eftir 'föngum og syngur 16 kórlög
ný og gömul. Auk þess mun hinn
ágæti leikari og upplesari Ragnar
Stefánsson sýna stutt hlutverk úr
leikritinu “Skugga-Sveinn” (Grasa-
Guddu), gamall íslenzkur tvísöng-
ur, flokkur firmm manna með grín-
söngva og R. H. Ragnar leikur
“Moonlight Sonata” Beethovens.
Forseti, Guðm. Stefánsson
Söngstj., R. H. Ragnar
Pianisti, Gunnar Erlendsson.
Telja má víst að Islendingar í
Dakotabygðum fjölmenni á söng-
skemtan þessa sem þá er allra bezt
getur.
Þér getið aukið
við núverandi tekjur
Umboðsmenn ðskast til þess að
selja legsteina. Hundruð af þeim
seld I bygðarlagi yðar. Við
leggjum til sýnlshorn og segjum
fyrir um söluaðferðir. Skrifið
eftir upplýsingum til 695 Sargent
Ave., Winnipeg.
Sunnudaginn 23. maí verða guðsr
þjónustur sem fylgir, í prestakalli
séra H. Sigmar:
Kl. 11 f. h., guðsþjónusta á
Garðar. Við þá guðsþjónustu mæta
þeir sem geta, úr fyrsta fermingar-
hópi séra F. J. Bergmanns sál., 4
Garðar. Var sá hópur fermdur
fyrir réttuim 50 árum í vor. Er
þessi hátíðisguðsþjónusta haldin i
sambandi við það 50 ára afmæli.
Kl. 8 að kveldi — Baccalaureate
Service í Víkurkirkju að Moun-
tain. Nemendurnir, sem útskrifast
nú úr efsta bekk miðskólans á
Mountain verða þar heiðursgestir.
Allir velkomnir. Messan fer fram á
ensku máli.
Dr. Ófeigur J. Ófeigsson lagði af
stað áleiðis til Islands í dag, ásamt
frú sinni. Hefir Dr. Ófeigsson ný-
verið 'fengið veitingu fyrir aðstoðar-
læknisembætti í lyf-læknisfræði við
Landsspítalann í Reykjavík. Góð-
hugur og hamingjuóskir fjölda
Vestur-Islendinga fylgja þessum
ágætu hjónum úr hlaði.
Miðvikudagskveldið 12. mai varð
Björn Guðmundssón Swanson bráð-
kvaddur á heimili sínu í Cavalier.
Hafði hann verið við góða heilsu
fram að síðustu stundu, að því er
séð varð. Bjöm sál. var nærri 72
ára að aldri. Konu sína, Guðfinnu
Finnsd. Bjarnason hafði hann mist
fyrir 19 árum síðan, en 3 börn
þeirra hjóna, sonur og tvær dætur,
eru á lífi og hafa ávalt átt heimili
hjá föður sínum. Foreldrar Björns
sál. voru Guðmundur Sveinsson og
Lilja Oddsdóttir, er búið höfðu á
Hvalsá í Hrútafirði á íslandi.
Björn var hæglátur maður, góð-
gjarn, greiðugur og vinsæll. Studdi
hann félagsskap landa sinna meðan
ástæður voru til. Hann var meðlim-
ur í Vidalínssöfnuði.
Jarðarförin fór fram mánudag-
inn 17. maí, frá heimili hans í Cav-
alier og Vídalínskirkju. Séra H.
Sigmar jarðsöng.
FRA WYNYARD
Föstudagskv. 7. þ. m. var stofn-
að söngfélag við Sambands kirkj-
una hér í bænum. Er það nú þegar
all fjölment og búist við fleirum á
næstunni. Mikill meirihluti er ungt
fólk. Forseti var kosinn Miss
Esther Johnson, ritari Miss Lenora
Axdal, iféhirðir Miss Doris Hall-
grímsson. Söngstjóri verður Mrs.
Sigríður Thorsteinsson, hin góð-
kunna söngkona, sem verið hefir ó-
þreytandi að aðstoða við messur og
samkomur, bæði meðal Islendinga
og annara, þar sem þörf hefir verið
á. Mr. Herbert Johnson hefir tekið
að sér organistastarfið i sumar, í
stað Miss Ólafar Axdal, sem verið
hefir organisti undanfarin ár, og
gegnt starfinu af mikilli alúð, en
óskaði að vera ekki við það bundin
í sumar.
SAMKOMA A GIMLI.
til arðs fyrir hið fyrirhugaða sum-
arheimili barna, verður haldin í
Parish Hall föstudagskvéldið 21.
þ. m. undir umsjá 'forstöðukvenna *
Kvennasambandsins hins Sameinaða
Kirkjufélags Islendinga í Vestur-
heimi. Margt verður þar til skemt-
ana, þar á meðal ræða um frelsið,
er Miss Salome Halldórson, M.L.A.
flytur — stuttur leikur: samtölin
hafa Miss Matth. Rennessy og H.
Oddleifsson; söngleikur (úr The
Showboat) Moonlight on the Missi-
ssippi undir stjórn Mrs. H. F. Dan-
íelsson; Duette Mssrs. Hermann og
Thor Fjeldsted og að síðustu dans.
P'yrir dansinum spilar The Arborg
Orchestra.
Samkomunni stýrir forseti Sam-
bandsins Mrs. (Dr.) S. E. Björns-
son. Hafið þetta kvöld í minni og
fjölmennið á þessa samkomu.
—Heimilisnefndin.
TIL SÖLU
Ágætt hús (bungalow) í þorpinu
Amiaranth, Man., fæst þegar til
kaups. Húsið er 20x22 fet, sterk-
bygt og í góðu ásigkomulagi. Sem-
ents gangstétt fyrir framan og að
baki. Samstætt hesthús og bílaskúr.
Hesthúsið nægir fyrir tvö hestapör.
Góður brunnur með pumpu og
gnægð ágæts vatns.
Hús þetta kostaði núverandi eig-
anda $2,000, en fæst nú keypt fyrir
$500 út í hönd.
Upplýsingar veitir W. C. Pool,
care of T. Eaton Co., Ltd., Winni-
peg, Man.
Minniát BETEL
í
erfSaakrám yðar
Business Cards
Your New Neighborhood
Snak Shop
Try our Light Lunches
and Fish & Chips
Also—Nips, Hot Dogs, Candies,
Tobaccos
We Serve Silex Coffee
Slip lnn
726% SARGENT AVE.
HCSGÖGN stoppuð
Legubekkir og stölar endurbætt-
ir of föðraðir. Mjög sanngjarnt
verð. ókeypis kostnaðaráætlun.
GEO. R. MUTTON
546 ELLICE AVE.
Slmi 37 715
Bílar stoppaðir og fóðraðir
MEN’S CLUB
A síðasta furjdi Karlaklúbbs
Fyrsta lúterska safnaðar, voru eftir-
greindir menn. kosnir í 'framkvæmd-
arstjóm:
Norman Bergman, forseti
Ásgeir Bardal, vara-forseti
John S. Gillies
J. G. Johnson
Chris. Hjalmarson.
Bredenbury 11. maí
Vorið sem1 af er hefir verið frem-
ur kalt og með afbrgiðum þurt. Þ.
10. var afspyrnu rok með mold-
ryki, en um kvöldið kom skúr góð
og nokkuð alrnenn, brá jörð litum
og er nú orðin mikið græn og öll-
um gróðri fer vel fram; og fénaður
unir vel hag sínum.
Mr. J. K. Jónasson frá Vogar,
Man., dvaldi í borginni nokkra
daga í vikunni sem leið. Kom hann
til borgarinnar með þeim sonum
sínum Guðmundi forstjóra og
Snorra verzlunarmanni, er brugðið
höfðu sér norður til Vogar í heim-
sókn til foreldra sinna og systkina.
ÞAKKIR
Þakklæti og virðingu vil eg votta
öllum þeim, sem aðstoðuðu mig
peningalega og á annan hátt í veik-
indum mínum, og studdu að því að
eg gæti náð iheilsu á ný.
Þessa góðvild bið eg Guð að end-
urgjalda öllum 1 jær og nær.
Gerða Christopherson,
Bredenbury, Sask.
Síðastliðinn mánudag lézt hér í
borginni eftir langvarandi vanheilsu
frú Ólöf Martha Halldórsson, kona
Dr. Magnúsar B. Halldórssonar, 57
ára að aldri. Hún lætur eftir sig,
auk manns síns, þrjú börn. Hin
látna, mæta kona, var dóttir séra
Magnúsar heitins Skaptasonar. Út-
förin fer fram frá Sambandskirkj-
unni í dag, fimtudag þann 20. maí,
kl. 2 e. h.
íslenzkar tvíbökur
og brauð — margar tegundir af
kökum og sætabrauöl.
GEYSIR BAKERY
724 SARGENT AVE.
Sími 37 476
Sendum vörur heim.
SARGENT FLORISTS
PHONE 26 575
ÚTFARARBLÓM
GIFTINGASVEIGAR
og kveðjuspjöld við öll tækifœri
Pantanir sendar heim
739 SARGENT AVE.
ROLLER SKATING
Winnipeé Roller Rink
Every evening, Wed., Sat. After-
noon, instructions free to learners.
LET US TEACH YOU
LANGSIDE & PORTAGE
PH. 30 838
Tbe Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Agents for BULOVA Watches
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers & Jewellert
69 9 SARGENT AVE., WPG.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem aC
flutningum lýtur, sm&um eCa
stórum. Hvergi sanngjarnara
rerC.
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Sími 35 909
Alfatnaðir og vor yfirhafnir
þurhreinsuö fyrir ..........50c
Kjólar, þurhreinsaöir ........65c
2 fyrir .................$1.25
Aögeröir af öllum tegundum.
Rex Tailors & Furriers
464 SHERBROOK STREET
Sfmi 36 201
SPECIAL
MOTHERS’ day bouquets
from $1.00 up
PLANTS, $1.00 up
lsabel McCharles
Florist
618 PORTAGE AVE.
Sími 36 809
Til þess að tryggja yður
skjóta afgreiðslu
Skuluð þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
FRED BUCKLE, Manager
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT& AGNES
DO.MINION APPROYED CHICK8
June Prices 50 100 Pullets
White Deghorns ...$5.25 $ 9.75 $21.60
Barred Ttocks 10.75 20.00
Black Minorcas 10.75 21.50
White Wyandottes .. 6.25 11.75 21.50
White Rocks 11.75 20.00
.1 uly Í2.00 per 100 less.
'XX White Beghorns 6.75 12.00 22.50
XXX Barred Rocks .. 7.25 14.00 22.50
Ontario, Sa«k. and Man. B.W.D. Tested
riocks. Immediate Delivery C.O.D., 100%
Alive. Heavy Breed Cockerels, $7 per 100.
PHONE 33 352
ALEX. TAYLDR HATGHERY
362 FURBY ST., Winnipeg
Islenzka Bakaríið
702 SARGENT AVE.
Eina Islenzka bakarllð 1 borginni.
Pantanir utan af landi skjótlega
afgreiddar.
Sími 37 652
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SA9H & DOOR COM LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551