Lögberg - 18.11.1937, Side 4
4
LÖGrBERG, FIMTUDAGINN 18. NÓVEMBER 1937
Högfcerg
GefiO út hvern fimtudag af
T H E O O LU M BIA PRE 8 8 LIM1TED
695 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
VerO $3.00 um áriB — Boraist fyrirfram
The “Lögberg” ts printed and published by The
CoJumbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue,
Winnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
Einátaklingsfrelsið í hættu?
Enginn veit hvað átt hefir fyr en mist
hefir. 1 orðum þessum er falinn sígildur
sannleikur, er heimfæra má jafnt upp á ein-
staklinga sem heilar þjóð'ir.
Vér, sem Norður-Ameríku byggjum, höf-
um notið, og njótum í allríkum mæli enn,
flestra þeirra hlunninda, er lýðræðið jafnað-
arlegast veitir. Og þó það sé að vísu vitan-
lega margt, sem ekki er eins og það á að vera,
og eitt og annað gangi á tréfótum, þá erum
vér þó fleygir og frjálsir menn borið saman
við þá andlegu og einskorð'uðu áþján, sem við-
gengst með P1asista þjóðunum. Vér eigum
' því margra réttarfarslegra verðmæta að
gæta, er krefjast þess af oss að eigi sé sofið
á verðinum.
Ekki alls fyrir löngu gerðist sá atburður
í Montreal, er glögt bendir í Fasista átt, og
ætti að verða hverjum drenglunduð'um borg-
ara knýjandi hvöt til þess að vera á verði og
vaka yfir hugsjónum lýðræðis og mannrétt-
inda í þessu landi. Samkvæmt fyrirskipun
frá dómsmálaráðuneyti fylkisstjómarinnar í
Quebec, var ráðist inn á skrifstofu blaðs eins
í Montreal, er “La Clarte” nefnist; blaðið
gert upptækt fyrirvaralaust og skrifstofum
þess harðlokað; blað þetta var hlynt kommún-
istum, eða hallaðist að minsta kos'ti á sveif
vinstri manna, að því er skýrt er frá; þó er
þess ekki getið, að það hafi eggjað til æsinga
eður landráða; reynt hefir verið að réttlæta
tiltæki þetta með löggjöf, er Duplessis-stjóm-
in knúði fram á fylkisþinginu í vetur sem leið.
Annað nýstárlegt fyrirbrigði þarna austur í
kaþólskunni má telja það, að harðbannað hef-
ir verið að sýna í Quebec fagra og fræðandi
kvikmynd, er gerlýsir æfi rithöfundarins víð-
fræga, Emile Zola. Mynd þessi dregur fram
í dagsljósið sigur róttæks frjálshyggjumanns
yfir úreltri og steinrunninni einhyggju. Ekki
var nú syndin stærri en það.
Þann 22. október síðastliðmn var fundur
auglýstur í Montreal. Ræðumenn áttu að vera
þeir Tim Buck og Alfred Costes, franskur
, verkamannaleiðtogi. Varla hafði fundarboð-
ið fyr verið fest upp á götum Montrealborg-
ar, en 300 stúdentar frá háskólanum þyrptust
inn í ráðhús borgarinnar og kröfðust þess að
fundarhaldið yrði bannað; borgarstjóri kvað
engin lög vera fyrir hendi, er réttlætt gæti
slíkt bann; stúdentar brugðtist reiðir við og
höfðu í hótunum með að sprengja upp fund-
inn, ef hann á annað borð yrði leyfður. Um
elleftu stundu var fundarhaldið bannað; var
þetta nákvæmlega hliðstætt því, er í1asist-
sinnaðir stúdentar í Montreal gerðu málsvör-
um spánversku stjórnarinnar ókleift að túlka
mál sitt þar í borginni í fyrrahaust; menn
þessir komu hingað til Winnipeg og fengu hér
góða áheyrn, eins og vera bar.
Samkvæmt hinum nýju “lokunarlögum”
þeirra Quebec-manna, gengi það glæpi næst,
ef það þá ekki yrði blátt áfram talinn glæpur,
að hafa í fórum sínum bækur eftir þá Marx,
Bernard Shaw, John Strachey, og þar fram
eftir götunum.
Skoðanafrelsi innan vébanda hins brezka
veldis, er verndað með lögum og venjum, og
því aðeins takmarkað, að það brjóti í bága við
stjómarskrána og alment velsæmi. Róttæka
vinstrimenn má kjósa á þing, og þeir hafa að
sjálfsögðu fult málfrelsi í sölum hlutaðeig-
andi þinga. Afkáralega flónskulegt hlýtur
það því að teljast, að banna þeim öðrum frem-
ur rétt til opinberra fundarhalda á öðrum
stöðum.
Þessi fáu dæmi, sem hér hafa verið dreg-
in fram, taka af öll tvímæli um það, að alvar-
legur undirróður af hálfu Fasista sé á ferð
í þessU landi. Þeir menn allir, sem í einlægni
lýðræði unna, verða því að taka höndum sam-
an mannréttindum sínum til fylstu verndar,
áður en það er um seinan.
t
Dr. Björnson
Eftir Dr. Ross Mitchell.
Það er stundum meiri vandi að leysa af
hendi þau verk, sem “lítil” virðast vera en
hin, sem stærri sýnast.
Þegar eg var beðinn að þýða stutta grein,
er Dr. Ross Mitchelí hafði skrifað um stétt-
arbróður sinn l)r. Björnson, þá lofaði eg því
fafarlaust — og hugsunarlaust.—
En þegar eg las þessa “litlu'> grein, varð
mér það.fyrst ljóst hverju eg hafði lofað.
Að þýða grein Dr. Mitchells orðrétt eða
bókstaflega er engum manni mögulegt. Hitt
skal reynt að túlka sál og anda greinarinnar
eftir því, sem mér er unt.—Þýð.
# # #
“O.B.” er genginn. Aldrei framar sjá-
um vér hann sveifla höndum þannig að gleði-
geislar virðist stafa af hverjum fingri. Aldrei
framar heyrum vér liið hressandi ávarp hans:
“Hvað er nú um að veraf Hvað er nú
upp á teningnum!”
Dr. Björnson var einstakur í sinni röð.
Hann sameinaði þær tvær gáfur að vera bæði
veglyndur maður og fyndinn’með afbrigðum.
Þessi skóli — skólinn hans og skólinn
okkar — hefir tapað nokkru af sinni andlegu
hlýju og sínum sérstaka blæ við fráfall hans.
Á fundi, sem haldinn var í sögufélagi
Manitoba, sagði Dr. Björnson æskusögu sína
fvrir nálægt tveimur árum. Hann sagði frá
því þegar hánn kvaddi Island sem átta ára
gamall drengur; hann sagði frá undrun sinni,
þegar hann kom til Skotlands og sá gufulest
í fyrsta skifti. Hann sagði frá ferðinni yfir
Atlantshafið þar sem hann var með fjölda
samlanda sinna; og hann sagði frá því þegar
þeir komu að Winnipegvatni árið 1875.
Og hann sagði þessa sögu með svo miklu
lífi og fyndni að allir voru gagnteknir. Áheyr-
endurnir fundu það, að hér var sögð hin veru-
lega og sanna saga íslenzku þjóðarinnar.
Þar næst sagði hann frá námsárum sín-
um. Fyrsti kennarinn var faðir hans; þá gekk
hann á alþýðuskóla í Winnipeg og útskrifað-
ist að síðustu frá læknaskólanum í Manitoba
árið 1897.
Eftir að hann hafði stundað almennar
lækningar í fimm ár, fór hann til Evrópu og
Bretlands til framhaldsnáms ásamt Dr. B. J.
Brandson, en þeir voru vinir alla æfi.
Lengstan tíma af þessu framhaldsnámi
var hann í hospítali í Dýflinni á Irlandi, sem
Rotunda heitir; enda varð honum námið þar
notadýgst síðarmeir, því það hafði flestum
öðrum hospítölum meira orð á sér fyrir
kenslu í yfirsetufræði.
Þegar Dr. Björnson kom aftur til Winni-
peg var hann skipaður læknir við General
hospítalið í Winnipeg; fyrst var hann við
útideildina, þar næst við almennu deildina og
loksins var hann skipaður læknir við yfir-
setudeildina; þar var hann stöðugt prófessor
þangað til árið 1932; varð hann þá að hætta
sökum þess aldurstakmarks er hospítallögin
ákveða.
Hann hafði unnið hospítalinu ómetanlegt
gagn og var starf hans viðurkent með því að
skipa hann ráðleggjandi lækni í heiðursskyni.
Mesta og bezta verk hans í þarfir læknis-
fræðinnar var þó kenslan. Hann var aðstoðar-
prófessor, yfir prófessor og að síðustu heið-
ursprófessor í yfirsetufræði.
Dr. Björnson hafði hlotið lærdóm og æf-
ingu í skóla sem var íhaldssamur og kendi því
varfærni og fastheldni í yfirsetufræðinni;
vildi heldur halda því, sem reynt var og vel
hafði gefist, en að leggja út í hættur, sem
nýjung og dirfsku fylgja. En þótt heilbrigð
skynsemi og full alvara réði í kenslu hans,
hafði hann lag á því að haga þannig orðum
sínum og framkomu að nemendurnir urðu
allir að athygli og veltust um af hlátri.
Djúp og yfirgripsmikil lífsreynsla kom
honum að betra haldi við kensluna en þekking
sú, sem bóklestur einn saman veitir; fyrir-
lestrar hans í kenslustofunni voru hans eigin
andleg afkvæmi, sem báru svip hans og ein-
kenni.
Dr. Björnson var að eðlisfari gæddur
meiri hagsýni en hugsjónum og hann fékst
fremur lítið við ritstörf. Þó ritaði hann
nokkrar greinar í lækningarit, þar á meðal:
“Yfirlit yfir yfirsetufræði, sem birtist í
“Ijæknablaði Canada” í desembermánuði
1925; “Þegar hnakkinn snýr aftur í fæðingu”
sem prentað var í “Brezka læknablaðinu ”
25. febrúar 1933 og “Mishepnuð tangatök”
pfentað í Manitoba læknaritinu í október
1935.
Mikil eftirsókn var eftir Dr. Björnson
til þess að tala á keknafundum, og árið 1928
ferðaðist hann ásamt Dr. A. R. MacKinnon
og Dr. J. D. McEachern um Albertafylki, til
Greiðið atkvœði með breytingu
í bœjarráðshöllinni
Númer 1 atkvœði með
KILSHAW
Þýðir athafnir nú þegar!
þess að flytja fyrirlestra fyrir hönd
læknafélagsins í Canada. Voru þeir
fyrirlestrar ætlaðir til framhalds-
náms fyrir lækna úti á landsbygÖ-
inni.
Sá heiður sem honum fanst sér
hafa verið mestur veittur, var þegar
hann var kjörinn heiðursforseti
Lækna-stúdentafélagsins í Manitoba
árið 1931-32. Ræða sú, sem hann
flutti við skólasetningu í september
mánuði 1931 er flestum ógleymd
enn, sem hana heyrðu.
Sem læknir lét hann sér annara
um að afla sér vina en sjúklinga;
það var svo fjarri skapi hans að
berast á eða leita lofdýrðar, að fæst-
ir vissu um hans mörgu líknarverk.
Þegar Dr. Björnson var kvaddur
í síðasta sinn, leyndi það sér ekki
hversu 'marga vini hann hafði átt
og hversu hjartfólginn hann var öll-
um stéttum manna, því kirkjan rúm-
aði tæplega þá er þangað sóttu.
Þegar sagan að síðustu kallar þá
fram sem útskrifast hafa frá lækna-
skólanum í Manitoba, þá verður
valið sérstakt sæti meðal hinna
fremstu handa Ólafi Björnson —
þótt hann sjálfur hefði verið siðast-
ur allra til þess að sækjast eftir því.
Sig. Júl. Jóhannesson þýddi.
Dr. Guðbrandur Jónsson
skrifar um
Mannfagnað
Guðmundur Finnbogason:
Mannfagnaður. ísafoldar-
preHtsmiðja h. f., Reykja-
vík 1937. 190 bls.
Sá, sem þetta ritar var unglingur,
er hann man fyrst eftir dr. Guð-
mundi Finnbogasyni. Guðmundur
var þá ungur maður og nýkominn til
Reykjavíkur að loknu embættisprófi.
Það fylgdi honum einkennilegur,
nýr og hressandi blær, sem kom sér
heldur en ekki vel í mollu smábæjar-
holunnar, Reykjavík, því annað var
bærinn ekki um og eftir aldamótin.
Ei leyndi sér, að það var maður ný-
breytninnar, sem hafði skilað sér
heim, hann var fullur als þess, sem
hann hafði numið og séð annarstað-
ar, og svo þægilega laus við þann
keituþæfða peysuhátt sem þá var hér
landlægur, og er naumast horfinn
■með öllu enn. Dr. Guðmundur varð
þá þegar maður, sem allir vildu
heyra til, af þvi að hann var alt
öðruvísi, en þeir, sem fyrir voru.
Það var ekki svo að skilja, að hann
væri ekki íslenzkur í allri hugsun og
hætti, en hann var laus við þá þyngd,
sem oss er svo eðlileg, og hann sá
ekki öll íslenzk — og erlend — fyr-
irbrigði ofan úr afdölum, eins og þá
var gert hér heima, eða um Eyrar-
sund, eins og þá var ekki heldur
dæmalaust. í þá daga var Kaup-
mánnahöfn endimark veraldar í aug-
um margra hér, og Guðmundur var
einn af þeim fyrstu, sem komist
hafði beint í tæri við hinn mikla
heim, og hann var einn hinna fyrstu,
sem fluttu okkur áhrif þaðan milli-
liðalaust. Hann hafði haft kynni af
franskri menningu, og hann var svo
næmur fyrir öllu fögru, að hún
hafði þegar bitið á hann, en jafn-
framt svo fastur í því sem íslenzkt
er, að hvorttveggja hafði runnið
saman í honum í nýjan íslending
með Evrópusniði —- hann var i raun
réttri einn hinn fyrsti Evrópu-ls-
lendingur. Þetta er lykillinn að þeim
miklu vinsældum,, sem Guðmui^dur
þegar varð aðnjótandi — hann tal-
aði til okkar tungu Evrópu með ís-
lenzkum blæ. Og svona er dr. Guð-
mundur enn, þrátt fyrir langa hér-
vist, að hann er hvorttveggja í senn,
Evrópu-maður og íslendingur.
Málsnild dr. Guðmundar varð
þegar viðbrugðið, og það fór svo,
að hvergi þótti mælt, nema Guð-
mundur hefði talað. Það var von,
því að málsnildin er frábærlega mik-
il og ekki var myndauðgi og orð-
skrúð síðra. Slíku höfðu menn að
vísu átt að venjast hér áður sumum,
en það sem rak smiðshöggið á, var
hinn létti og lipri, fagri, franski
blær, sem á öllu tali hans var. Því
áttu menn ekki að venjast, '<ýS talað
væri létt og þó i alvöru; hér var
venja altaf að tala þungt og þreytu-
lega. Hvar sem mannfagnaður var,
var þar sókst eftir dr. Guðmundi,
hann var hrókur als fagnaðar, og
hann varð og er enn fremsti veizlu-
ræðumaður landsins.
Það hafa margir reynt að stæla
Guðmund síðan, en það hefir ekki
tekist, og mun ekki takast. Áhrif
þau, sem hann hefir haft, ekki aðeins
með ritum sínum, heldur einnig með
ræðum sinum, eru þó geysilega mik-
il; þau munu sjást eins lengi og
Heljarslóðarorusta segir spor Hanni.
bals hafa sést i snjónum. Málleikni
hans hefir kent mönnum fegurri
meðferð og betri nýtingu tungu
vorrar, svo að honum má meðal ann-
ars þakka aukna stnekkvísi í þeirri
grein.
Það er galli á töluðum orðum, að
þeirra sér sjaldan stað að loknu máli;
þau eru farin út i veður og vind.
Máltækið “gleymt er þá gleypt er”
sannast í fáum betur en ræðumönn-
um, og eg skal játa það, að þó eg
hafi heyrt margar ræður til dr. Guð-
mundar, þá hefi eg að visu notið
þeirra, meðan á stóð, en síðan hefi
eg gleymt þeim, og ekki munað hver
ræðusnillingur hann var fyrri en eg
heyrði til hans aftur. Það er mein,
að mæltu máli er svona farið, en það
vill svo vel til, að Guðmundur á vel-
flestar þær hinar mörgu ræður, sem
hann hefir flutt í mannfagnaði, og
þetta rit er úrval af slíkum ræðurn
hans.
Þegar maður hefir þær svona allar
undir í senn, verður manni fyrst
magn snildarinnar ljóst, og hvað
laginn Guðmundur er að finna ein-
mitt þann blæ í hvért skiftið, sem
við á, en þó er listin svo fast mótuð,
að þrátt fyrir mismunandi viðfangs-
efni er þetta safn samfeld heild.
Manni bregst það ekki að höf. er
skáld og hann er meira, hann er mál-
ari, svo eru myndirnar litauðgar og
lifandi, hann er hljómlistarmaður,
svo er málið hreimmikið — hann er
hagur á alt. Þá ljómar svo til af
hverri einustu ræðu hinn hárfíni
smekkur hans á íslenzkan skáldskap.
Það er aðeins um eitt, sem bókin
svíkur mann, það er eitt, sem vantar,
sem bók reyndar ekki megnar að
sýna, það er flutningurinn, sem er
frábær hjá dr. Guðmundi. Þó að
ræðurnar verði lesnar til ánægju og
gagns og séu listaverk, þegar maður
hefir þær á svötu og hvítu, eru þær
ekki það, sem. þær voru„ þegar mað-
ur heyrði þær, því þær skortir hér
lifandi líf leikandi tungutaks. Þær
eru snúnar úr mæltu máli upp í
fagrar bókmentir. Dr. Guðmundur
segir að vísu eitthvað, sem maður er
honum ósammála um, en það er ein-
mitt til marks um listagildið í þess-
um ræðum, að maður tekur naumast
eftir sl'íku, fyrir yfirburðunum, er
maður les.
Allar hafa þessar ræðu eitthvað
til síns ágætis, og setjist maður, eins
og gerist og gengur, við að finna
það, sem manni kynni að þykja sízt,
þá verður manni ekki kápan úr því
klæðinu, en það sýnir, að úrvalið er
gert af mikilli nærfærni. Svipað fer
auðvitað, er manni verður að leita
þess, sem manni þykir bezt, en þó
sækist það frekar, og hvergi þykir
mér höf. takast betur upp, en í ræð-
unum: “Björstjerne Björnsson” og
“Sextugur,” svo ólíkar sem þær eru.
Með þessari bók hefir íslenzkum
í)ókmentum áskotnast ný grein, sem
eykur á auð þeirra — og þó slær á
mann nokkrum óhug, vfegna þess, að
nú má búast við því, að annar hver
maður hér, sem ekki hefir komist
þegjandi um lífsleiðina, muni hér-
eftir vilja koma orðum sínuto á
framfæri, svo að ekki verði hann
síðri. Við það getur auðvitað hæg-
lega orðið ljót skella á bókmentum
vorum, en svo ljót getur hún aldrei
orðið, að ekki sé tilvinnandi að taka
þetta alt í kaupbæti, til þesS að ræð-
ur dr. Guðmundar megi geymast á
prenti.
Þá verður ekki svo við skilist, að
ekki sé minst á ytri frágang bókar-
innar. Að vísu er efnið aðalatriði,
en sagan af Bakkabræðrom, er þ •.ir
buðu biskupi rjómann í íláti, sem
var tiil annars ætlað, er sæmileg
kenning um gildi umbúðanna. í fám
orðum sagt: eg man ekki eftir að
hafa séð fallegri bók að ytri sýnum
og prentfrágangi; með þvi er mikið
sagt. Isaföldarprentsmiðja er ó-
neitankga að verða ein merkasta
stofnun hér á landi fyrir útgáfu-
starfsemi sína.
—Mbl. 17. okt.
Sturlunga
Oft og mikið hefi eg furðað mig
á því hvað fáir af þeim mönnum,
sem lesa íslendinga sögurnar lesa
og íhuga Sturlungu, er verður að
teljast með stórmerkustu bókum
heimsins og kannske áreiðanlegasta
allra fiornrita vorra. Ýmsar ástæður
hrinda mönnum frá lestri bókarinn-
ar — hvað hún er flókin að vissu
leyti og erfitt að átta sig á ölluta
þeim mönnum er þar kom frarn á
sjónarsviðið, hryðjuverk, og hvaða
sorgarsaga hún er. En þetta nægir
ekki að skýra þessa vanrækt, sem
hún hefir orðið fyrir. Því þessar
ástæður ættu, þó svo sé ekki, að
hvetja menn til að leggja sig niðúr
STYÐJIÐ
MR. PAUL BARDAL
ALLIR SEM EINN !
Mr. Paul Bardal, bæjarfull-
trúi, leitar endurkosnnigar til
bæjarstjórnar í 2. kjördeild á
föstudaginn þann 26. nóvem-
ber 1937.
íslendingar þurfa að eiga á-
hrifamenn í sem allra flestum
embættum og sýslunum. Mr.
Bardal hefir orðið þeim til
sæmdar í bæjarstjórninni, og
hann verðskuldar það fyllilega
að þeir veiti honum óskiftan
stuðning með því að greiða
honum forgangsatkvæði, og
merkja töluna (1) við 'nafn
hans á kjörlistanum.
MR. PAUL BARDAL
ALLIR SEM EINN !
COMMITTEE ROOM: SARGENT and WICTOR
For Information Phone 34 422
/