Lögberg - 10.03.1938, Page 1

Lögberg - 10.03.1938, Page 1
51. ÁRGrANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 10. MARZ, 1938 NÚMER 10 MRS. laura goodman salverson Skáldkonunni íslenzlk-canadisku og víðkunnu, liefir nýverið hlotn- ast sú sæmd, að vera kjörinn að heiðursfélaga í “The French Academy of Arts” fyrir ritstörf sín. Um þessar rnundir er verið að þýða skáldsögu hennar “The Dark Weaver" á dönsku og frönsku; þrjár af sögum hennar voru þýddar á þessi tvö tungu- mál árið sem leið. Guðni frá Signýjarátöðum Þú hefir stigið stóra sporið, —Stundar-klæði lagt að jörðu— * Stigið út úr stríði liörðu, Stigið inn í friðsælt vorið. Nú má fróðleiks-elskur andi Óhindraður flugið þreyta, Svífa hærra, lengra leita, Leystur úr jarðar vista-bandi. Fátækt þig ei fjötra kunni Fót og hönd þó særði stritið. Andinn frjálsi, vilji og vitið Veg þér ruddu að fræða-brunni. Þótt mót lífsins ergi og önnum Oftast mættir huga beita, Við þig fróðleiks fangbrögð þreyta Fáum dugði skóla-mönnum. Margur vana og heimsku hlekkur Höggvinn var, og numin fræði Þar sem f jóss og f járhúss-næði Fyrsti var og efsti bekkur. Þar sem eilíf árdags-sunna Allri þoku og skýjum dreifir Hittumst frændur heilir, reifir Hinumegin tjaldsins þunna. Kristján S. Pálsson. Öreigarnir Sú eyðimörkin ömurlegusit finst þar örbyrgð skæðust bannar mat og lilýju. Hve feikna margir hafa henni kynst í lieimi dauðans bæð'i að fornu og nýju. Á ólánstímum öreig'anna leið er alkunnust og mest af lýðnum gengin. Um píslir, sorg og mestu mannkyns neyð og manntjónið á henni, fréttir enginn. Þar magnast böl og bjargráð stöðugt þver, því böðlar liervalds kúga daga og nætur. Svo liryggilegt nú heimsins ástand er að yfir mannkyns þrautum himinn grætur. Þeir valdsmennirnir valda slíkri neyð, er vinna það, sem engum mönnum sæmir. Þá enda tekur guðlaust glæpa skeið þau grimdar mannhrök réttvís herra dæmir. Sú alheims þrá eg vildi að væri ein að verja til þess fé og lífsins dögum, að bæta kjör og lækna lýða mein, sem líða nauð á mannlífs brunaflögum. V. J. Guttormsson. Mrs. J. B. Johnson frá Gimli, kom til borgarinnar á fostudaginn í fyrri viku^ og dvaldi hér fram á laugar- dagkveld. Félagsskapur sá, er Norwegian League nefnist, efnir til leiksýningar í Trinity Hall, beint á móti Tribune á fimtudaginn þann 24. þ. m., kl. 8 Leikurinn, sem sýndur verður er í 2 þáttum, og nefnist “A Poor Married Man.” Aðgöngumiðar kosta 25C, fást á skrifstofu Columbia Press, Ltd., 695 Sargent Ave., og við inn- ganginn, kveldið sem leiksýningin hefst. The Winnipeg Chamber Orchestra sem Mr. Frank pianokennari Thor- olfson stofnaði og stjórnay efnir til hljómleika í Fyrstu lútersku kirkju þriðjudaginn þann 22. þ. m., kl. 8.30 e. h. Til aðstoðar við þessa hljóm- leika verða Pearl Johnson, Irene Diehl og Bohdan Lechow. Mr. Thorolfson er ágætur sönglaga höf- undur og hljómsveitarstjóri, og má þvi ganga út frá því sem gefnu, að þessi samkoma hans verði f jölsótt. Arðinum af samkomu þessari verð- ur skift milli deildar No. 2 Kvenfé- lags Fyrsta lúterska safnaðar og h 1 j óms veitar innar. The Young People’s Society and the Bible Class of the First Lutheran Churah will hold a joint meeting iií* the church parlors 011 Monday next, March 14, at 8.30 o’clock. This meeting will be addressed by Mr. R. B. Graham, K.C., city police court magistrate on the subject “Lights and Shadows of the City Police Court.” Due to the fact that Mr. Graham has delighted several Win- nii>eg audiences with the same topic, the Society wishes to extend ai\ invitation to all members of thq church, young and old, to attend* this ípeeting. Refreshments will be served. 55. ársþing Stórstúku Manitoba, I.O.G.T. verður ahldið í G. T. hús- inum í Winniiæg 27.—28. apríl n.k. Mr. Fred Snowfield, lögfræðing- ur í Cavalier, og Miss Pauline Thor- vardson frá' Akra, N. Dak., komu til borgarinnar snöggva ferð i vik- uni sem leið. Junior Ladies’ Aid of the First Lutheran Church will hold their regular meeting in the Church Par- lors on Tuesday, March 15th, at 3 o’clock. í fyrstu línunni í fyrstu vísu kvæðisins, sem Lúðvík Kristjánsson flutti á Frónsmótinu síðasta; og birt var i Lögbergi í vikunni sem leið, féll úr eitt orð. Línan prentaðist þannig: “Mér hlotnast tign þenna hátíðisdag,” en átti að vera: “Mér hlotnast sý tign” o. s. frv. I __________ • The Jón Sigurðsson Chapter, I.O.D.E., will hold a ‘íBirthday Bridge” on Tuesday evening, March 15'th, at 3 o’clock, in the Federated Church parlors. The proceeds will be used towards the Jón Sigurðsson Ghapter Music Scholarship Fund. She Senior Ohoir of the First Lutheran Church will hold a St. Patrick's Tea in the Church Parlors on March iyth, at 8.15 p.m. (Thurs- day Eve). The following program will be rendered: Orchestra— Marvin Halderson Allan Halderson Bill Scott Bernard Thurston. Violin Solo ........Horace Boux Vocal Solo..........Jas. Duncan Reading ......Mable Thorgeirson Refreshments The proceeds of this Tea will be used towards the purchase of music for the Choir. Sigurður P. Sivertsen, vígslubiskup, prófessor 1 Hrunið hafa hærri eikur, en laufg- aðra tré sjaldan fallið. Þótt úthafið aðskilji álfurnar, fær það ekki stemt söknuðinum stigu þá góður maður fellur frá, hvoru megin hafs sem er. Austfirðingar, sem vestur hingað fluttust á öndverðri öld þessari, hafa oftsinnis minst með lotningu val- mennisins, kennimannsins kæra á Hofi i Vopnafirði. Þeir hér vestra,- sem unna kristni ættjarðar sinnar, mentamálum hennar og mannúðar- störfum, hafa borið hlýjan hug til kennarans og presta-foringjans í Reykjavík. Að honum látnum tala eg þó eigi fyrir annara hönd en sjálfs mín. Slík var okkar vinátta, að eg hlýt að leggja lítið blóm á leiði hans. Samvistum vorum við próf. S. P. Sivertsen aldrei annað en part úr sumri 1933. En löngu áður 'vorum við orðnir vinir fyrir bréfaskifti. Eru mér mörg í minni hans ástúð- legu bréf, og ekki sízt er bréfið mér kært, er hann reit mér eftir biskups- vígslu sína. Þar lagði hann svo bert á borðið sitt saklausa, trúaða, bæn- heita hjarta. Þegar eg kom til ís- lands var eg eigi fyr af skipsfjöl stiginn, en hann var kominn til móts við mig til að fylgja mér á Synódus og bjóða mér á prestastefnuna, er standa átti í Reykholti dagana næstu á eftir. Þann tíma, sem eg dvaldi í Reykjavík, vorum við próf. Sívert- sen mikið saman, bæði úti og inni, bæði á nóttu og degi. Mörgu i fari hans veitti eg þá eftirtekt og margt nytsamlegt lærði eg af honum. Ætti eg að segja í einu orði það, sem mér fanst einkenna hann mest, þá myndi eg velja til þess orðið prúffnwnska— kristileg prúðmenska. Hann var prúður maður bæði á sál og líkama. Sál hans var hrein og hugsanir hans allar fagrar. Hann var einlægur trúmaður og æðsta boðorð hans var boðorð kærleikans. Öllum mönnum lagði hann gott til i samræðum, og það eins þó þeir væri andstæðingar hans í skoðunum. Hann var víð- sýnn og lærður guðfræðingur. Hvort “nýtt” var það eður “gamalt” varð- aði minstu. Það eitt gilti, að það væri satt. Evangelískur kristindóm- ur, trúin á frelsarann, var honum fyrir öllu. I allri framkomu var próf. Sívert- sen hið mesta prúðmenni, hvort heldur í margmenni eður fámenni. Hann var hinn mesti snyrtimaður. Mér fanst helzt enginn maður á ís- landi vera jafn vel og smeklkega klæddur sem próf. Sívertsen, hvort setn var á mannfundum, á götum úti, eður í heiimiáhúsi. Alt í fari hans varð að vera hreint og fagurt. Það var innræti hans, hins hógværa, prúða manns. Einihver ógleymanlegasta stund æfi minnar er næturstund ein í Reykjavík sumarið 1933. Það var komið langt fram yfir miðnætti; en þó var svo bjart að lesa hefði mátt á bók. Veðurbliðan var óviðjafnanleg og sá friður á jörðu, sem engin orð FRÖKEN HALLDÓRA BJARNADÓTTIR Mynd þessi af frk. Halldóru Bjarnadóttur, birtist í stórblaðinu Minneapolis Tribune á laugardaginn var, ásamt ítarlegri ritgerð um starfsemi hennar í þágu íslenzks heimilisiðnaðar. Frk. Halldóra sýndi varning þann, er hún hafði með sér að heiiman í kvenfélaginu Hekla i Minneapolis, en í þessari viku flytur hún erindi um ísland og sýnir islenzkan heimilisiðnað í Minneota. Áminst ritgerð er eftir Anna Lou Tasker. fá lýst. Við próf. Sívertsen geng- um fram og aftur meðfram Tjörn- inni. Fuglaforeldrar sveimuðu með barnahópana sína hægt og sem í leiðslu um vatnið. Svanirnir stóðu fram með landi með höfuð undir væng og sváfu. Friðsælli, fegurri stund hefi eg aldrei átt á náttúrunn- ar barmi. Vinur minn og eg geng- um' og sem í leiðslu og töluðum um það eitt, sem báðum voru hugðmál helgust. Það er á slíkum stundum að “stöðvast tímans hála hjól, en hnýtast eilíf bönd.” Þetta atvik frá Tjörninni í Reykjavík sumarnóttina björtu er mér jartegn þess, að ein- hversstaðar i tilverunni fái eg að hitta vin minn aftur á ennþá yndis- legri stunö en þessi var. # # # Sigurður P. Sívertsen var fæddur i Höfn í Melasveit 2. okt. 1868. Foreldrar: Pétur Sívertsen og Stein - unn Þorgrímsdóttir. Stúdent úr Lærðaskólanum í Reykjavík 1889. Kandidat í guðfræði frá Kaup- mannahafnar-iháskóla 1895. Lær- dómsferill hans allur hinn glæsileg- asti og skólapróf hans með ágætum. Prestvígður 12. júní, 1898. Prestur að Hofi í Vopnafirði þar til 1911. Guðfræða-kennari við Háskóla ís- lands frá 1911 til 1936, varð þá að láta af emibætti sökum vanheilsu. Hugljúfi samverkamanna sinna og lærisveina. Kosinn vígslubiskup af prestum Skálholtsstiftis og vígður til þess embættis 21. júní 1931. ^ ar einn af stofnendum Prestafélags Is- lands og formaður þess i 12 ár og kjörinn heiðursforseti félagsins, er hann vegna heilsubilunar, ekki fékk lengur gegnt starfinu. Y’ar í Kirkju- ráði og i milliþinganefnd um fræðslumál þjóðarinnar. Eitthvert ágætasta starf hans var ritstjórn hans á Prestafélagsritinu 1919—‘34. Var rit það vafalaust veigamest allra tímarita á þeirri tíð á íslandi. Bæk. ur og rit liggja eftir hann. Tvö fylgirit með Árbókum Háskólans: Opinbcrunarrit Síðgyðingdómsins, 1920 og Samanburður Samstofna Guðspjallanna 1928. Finnn höfuð- játningar ev. lút. kirkju kom út 1925. Kenslubókin, Trúarbragðasaga Nýja testamentisins (1923), er samin af miklum lærdómi. Með samverka- manni sínum og vini próf. Ásmundi Guðmundssyni þýddi hann og gaf út Apokrýfar-bcckur Gamla-testament- isins. Auk þess átti hann þátt í út- gáfu Hundrað hugvekja og bókar- innar Heimilisguðrcekni. Eitthvert mesta verk próf. Sívertsens er hin nýja Hclgisiðabók ísl. þjóðkirkjunn- ar, sem hann ásamt próf. Ásm. Guð- mundssyni er aðal-höfundur að. árið 1898 kvæntist próf. S. P. Sívertsen Þórdísi Helgadóttur, lektors, Hálfdánarsonar, systur Jóns biskups. Hana misti hann eftir stutta sambúð. Hann andaðist í Reykjavík 9. febrúar s.l. Bjórn B. Jónsson. ÓGILDING LÖGGJAFAR Þann 4. þ. m. kvað hæztiréttur Canada upp samhljóða úrskurð um löggjöf Aberhart-stjórnarinnar, er lögð var fyrir liann til álits, og féll úrskurðurinn á þann veg, að lögin um takmörkun prentfrelsis, skatt- lögin á bankana, og löggjöfin um lánstraust fjdkisins, væri utan vald- sviðs fylkisþings og þar af leiðandi ógild. Ennfremur staðfesti hæzti- réttur það í einu hljóði, að sam- bandsstjórninni bæri til þess stjórn- skipuleg réttindi, að synja um fram- kvæmd fylkislöggjöf, er hún teldi í ósamræmi við stjórnarskrá landsins. Ennf remur úrskurðaði hæztiréttur það, að fylkisstjórar hefðu fult vald til þess að fresta undirskrift laga, er að þeirra áliti væri utan við vald- svið fylkisþinga. Líklegt þykir að úrskurði þessum verði áfríjað til leyndarráðs Breta. FLÓD I CALIFORNIURIKI Stórflóð hafa nýverið geysað i Los Angeles og öðrum stöðum í Californiu, er orsakað hafa feykilegt tjón. Er mælt að um 200 manns hafi látið líf sitt af völdum þess, auk þess sem eignatjón nemur mörg- um miljónum dala.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.