Lögberg - 10.03.1938, Side 2
2
LÖGBHRG, FIMTUDAGINN 10. MARZ, 1938
Rœða forseta
Við setningw 19. ársþings Þjóð-
rœknisfélags Isl. í Vesturheimi
22. febrúar 1938
HeiðruSu þingmenn
og gestir!
Það er orðinn viðtekinn siður hjá
oss í félagsskap vorum, við þing-
setningu ár hvert, að forseti skýri
frá því helzta sem gerst hefir í sögu
félagsskaparins og þá líka i stuttu
máli frá þeim atburðum, er í við-
tækari eða þrengri merkingu hafa
stutt að gengi hans eða verið honum
til tafar. Skal nú enn reynt að
fylgja þessum sið og skýra frá því
helzta sem féíagslega hefir á daga
vora drifið; því sem félagsstjórnin
hefir leitast við að gera eða látið ó-
gert af því sem henni var fyrir sett
á síðasta þingi.
Nú þegar vér setjum ársþing
þetta, hið nítjánda, er viðhorfið inn-
an hins canadiska þjóðlífs og út um
heim, svipað því sem það var fyrir
ári síðan, og almenningi engu hag-
stæðara yfirleitt. Hinu sama fer
fram og þá var að gerast, ófriði og
ósátt innhyrðis og út á við meðal
þjóða í austur og vesturlpndum, sem
enginn kann um að segja hvern enda
hefir. Æjtla eg ekki að segja þá
sögu, sem öllum er kunn og öllum
óhugðarefni. Þjóðbandalagið er að
engu orðið, hafi það þá nokkurn
tíma verið nokkuð, eða annað en
framhald hinnar gæfusnauðu friðar-
ráðstefnu þar . sem fjögur heims-
veldin réðu lofum og lögum meðan
þau gátu komið sér saman, en slitu
svo í sundur á milli sín þegar hags-
munavegirnir skildust. Eftir því
sem nú er á daginn komið, eru allar
líkur til að skoðánir þeirra senator-
anna Cabots og Borah hafi verið
réttar og Bandaríkjaþjóðinni verið
gæfa mikil, að eiga engan félagsskap
með þvi. Áreiðanlega réð lengi
fram eftir, á ráðstefnum þess, hlut-
drægni og hefnigirni, sem sýndi sig
í daufheyrslu við málstað minnihluta
þjóðernanna í nýríkjunum sem sett
voru á stofn, og skiftum þess við fá-
mennari þjóðirnar. Voru þá úr-
skurðirnir tíðum miðaðir við laun
eða refsingu eftir því hvernig á stóð.
Má þar til dæmis taka Transylvaníu
málið, Slésíumálið og Álandseyja
málið.
Nokkrir eru þó enn, sem halda
því fram að hefði Bandalagið náð að
eflast hefði það orðið friðnum til
eflingar og stutt lög og rétt í við-
skiftum milli þjóðanna. En öllu
frernur byggist skoðun sú á von en
vissu, eins og stofnað var til þess í
upphafi.
Þá má og virðast s,em einveldis-
stefna sú er með frekju og yfirgangi
hefir sótt fram á undanförnum árum
og gengur; eins og Ögmundur bóndi
Eyþjófsbani undir einu af þremur
nöfnum sem hún Ihefir valið sér,
eftir því á hvaða stað hún kemur
fram, hafi heldur vaxið fylgi á þessu
síðastliðna ári. Hrammana hefir
hún lagt upp á strendur þessarar
álfu, þar sem Brazilía varpaði um
koll lýðræðinu á síðastl. hausti en
hóf upp í þess stað einveldið. Að
visu má segja að mjótt sé beggja á
milli, í hinum latnesku löndum álfu
þessarar, og eigi langt spor stigið,
frá öðru til hins, þar sem lýðræðið
hefir aldrei annað verið en skuggi:
en þó má svo álíta, sem sporið hafi
fremur verið stigið aftur á bak en
áfram.
Ribbaldarikið mesta í Austurálf-
unni íhefir tekið upp þessa stefnu
og beitir henni nú hvað ákafast, og
hvarvetna þar sem vald þess nær
til.
Innan þjóðfélagsins hér og í ná-
grannaríki voru sunnan línunnar,
hefir stefna þessi rekið upp höfuðið
eða höfuðin, því hún er þríhöfða
eins og risarnir fornu, en þó lítt að
marki, enn sem koimið er.
Lýðríkin helztu, nú sem stendur,
eru Norðurlönd, fyrst og fremst, og
þá brezka ríkið og Bandarikin; það
eru með öðrum orðum ríki hinna
nordisku þjóða. Eimir eftir hjá
þeim af hinni fornu lífsskoðun,
trúnni á frelsi einstaklingsins, rétt-
inn að velja og íhafna, vera sinnar
“lukku smiður,” sem var meginþátt-
ur hinnar fomu siðspeki, en hlýta
ekki athafnabanni og ófrelsi, að vera
i engu sjálfráður um eigin kjör og
sýslan, og eiga hvorki kost á að
hugsa eða standa, eftir eigin ávísan.
Afdala karlinn og kerlingin réðu búi
sínu, afdalnum og geitahjörðinni, og
þegar forystu geitin “Gæfa” hvarí
'þeiim', þá sendu þau son sinn að leita
hennar og gafst vel, í stað þess að
fá forráð sín í hendur forsjár manni
er ráða skyldi “gæfu”-leit þeirra.
Það er þessi afstaða, þetta viðhorf
við lifinu, þessi lausn á vandamálun-
um, sem lagt hefir grundvöllinn að
lýðréttindunum og varðveitt þau
fram á þenna dag. Að fá öðrum al-
veldis umboð sitt að gæfuleitinni, er
nokkurn veginn hið sama og að
missa einstaklings eðli sitt, hætta
sjálfur að vera sjálfur. Þú, sem
það gerir, lifir ekki lengur, heldur
lifir hann í þér sem hið skilyrðis-
lausa vald hefir fengið til að steypa
upp hugsanir þínar og fyrirskipa þér
lífsins veg.
Mönnunum hefir verið líkt við
gras, og það er sönn líking. Þeir
eru “sem gras, er skjótt hverfur.”
Grasið grær, njóti það regns og sól-
ar, það þroskast, móðnar, útendir
æfiákvörðun sína. Sólin er heit,
regnið er svalt, en hitinn og kuldinn
næra það. En sé það fært á þann
stað þar sem sólin nær eigi til þess
með hinum steikjandi geislum sín-
um, undir skugga trjánna, þar sem
regndroparnir falla aflvana áf trjá-
greinunum niður á það, breytist
vöxtur þess. Það verður gelgju gult,
það missir allan lífrænan lit, verður
afllaust og nýtur hvorki eða neytir
krafta sinna.
Þessar andstæðu stefnur, einræði
og lýðræði eiga sína talsmenn hér i
álfu, en langflestir munu þó naumast
gera sér grein fyrir þeim. Barátta
þeirra um yfirdrotnan í mannfélag-
inu, eða öllu heldur hinn mikli upp-
ganur einvaldsstefnunnar á siðari
árum, og þá á þessu liðna ári, hefir
haft djúpar verkanir á atvinnu og
viðskiftalíf þjóðanna og orðið til
þess að sveigja það inn á óeðlilegar
brautir. Hefir þetta hamlað því að
nokkurt fullkomið jafnvægi hafi
komist á iðnað og framleiðslu er
stuðli að almennri vellíðan þótt iðn-
aður hafi verið rekinn í stórum stíl
að vísu. Framleiðslan hefir ekki
verið af réttu tagi til þess að skapa
aukin lífsþægindi eða til að bæta úr
skorti almennings. Iðnaður þessi
hefir að mestu leyti verið rekinn í
þarfir hernaðarmálanna. En af því
að hann hefir i svipinn bætt lítils-
háttar úr atvinnuþörf þjóðanna 'hef-
ir almenningur látið sér þetta vel
líka og með túlkun og tilhjálp
þeírra er hlut eiga að máli, gert sér
vonir um að þessi iðnrekstur sé fyr-
irboði hagsælli tíma; en í sannleika
er hann eigi annað en framhald
þeirra verka er gert hafa heiminn
snauðan og fært hörmung sína yfir
mannkynið. Alt það efni sem notað
er til þessarar framleiðslu er ónýtt
gert til lífsframfærslu manna. Og
það er mikið. Svo er gizkað á að
fitll 7o% af allri iðnframleiðslu síð-
astliðið ár hafi gengið til hemota
og mun þó ekki alt talið. Málmtekj-
an; gullið, silfrið, járnið, koparinn;
auðurinn, ,sem grafinn er úr fylgsn-
um jarðar, timbrið, ullin, — alt
þetta og svo fjölmargt fleira, er
haft til óhagnýtra hluta, á aðra
síðuna vegna þessa ofríkis anda
er heimtar af einstaklingnum skil-
yrðislausa uppgjöf á öllu skoðana og
athafnafrelsi og sett hefir sér það
takmark að leggja undir sig heiminn;
en á hina síðuna, af ótta við öryggis-
leysið og það að verða borinn ofur-
liði éf sjálfstæðið þarf að verja sig.
Hægra mun að kenna ráðið við
þessu öfugstreymi en að koma því í
framkvæmd. Iðnreksturinn hefir
verið of einhliða en hann verður að
miða til almennra nota og vera sem
f jölbreyttastur ef almenningur á að
geta haft lifibrauð sitt af honum;
einhæf framleiðsla útilokar megin
hluta alls vinnandi fólks, og þar af
leiðandi þrengir lífskjör þess á allan
hátt, og er því að mjög litlu leyti til
bóta. Það hafa verið fundnar upp
ýmiskonar nýjar kenningar er ráða
eigi bót á þessu með stójótum hætti
og öruggum, er eignast hafa sína
sögu á þessu ári; en dregist hefir
fram að þessu til umskiftanna svo
að mörguim hefir orðið helzt fyrir
að spyrja eins og Þorst. Erlingsson
kvað:
“Hvenær koma, kæri minn,
kakan þin og jólin.”
Kakan er ókomin og þá líka jólin.
Eins og yður er kunnugt,, er
fyrsti liðurinn í stefnuskrá félags-
skapar vors þessi: “Að stuðla að
: því af fremsta megni að Islendingar
! megi verða sem beztir borgarar í
i hérlendu þjóðlífi.” Var á þetta minst
á síðasta ársþingi og vil eg enn
minna á það. Með ýmsum hætti er
hægt að syna sig nýtan borgara eftir
almennuim mælikvarða, en í því efni
sem öðrum er það sérstaklega eitt,
sem auðkennir einstaklinginn sem
hinn ágætasta borgara, en það er
starf hans í þjóðfélaginu ef það er
af réttu tagi; — það eru áhrif þau
sem hann hefir á samtíð sína, og það
sem hann leggur henni til á andlega
og verklega vísu. Það gjald, er oss
auðfengið og vér vel að því komin.
“Gull og silfur eigum vér ekki,” og
það er jafnvel kannske svo ástatt
fyrir sumum að vér' eigum erfitt
með að svara hinuim venjulegu opin.
beru kröfum borgar og Sveita, en vér
eigum öll, einn sjóð, nægilegan
til þess að svara þessu öllu, |
sjóð, sem aldrei þrýtur en vex
þess meir sem af honum er tekið. |
ÚTBREIÐSLUMÁL
Allmörg mál voru nefndinni falin
af síðasta þingi og hefir verið reynt,
eftir því som ástæður hafa leyft að
gera þeim einhver skil.
Eins og að undanförnu eru út-
breiðslumálin aðal viðfangsefni fé-
lagsins. í eðli sínu hefðu þau átt
að vera auðsóttust og eiginlega úr
starfssögu félagsins fyrir löngu, þvi
ekkert er eðlilegra en að allir ís-
lendingar hér í álfu hefðu strax gef-
ið kost á því að ganga í félagið. En
svo hefir verið fært í þenna flokk
fleira en það eitt að auka félagatöl-
una. Öll kynning á Islandi og ís-
lenzkri þjóð, hefir verið flokkuð
undir þessurn lið, svo sem fyrir-
lestraferðir og fleira.
Á þessu siðastl. ári hefir félagatal-
an aukist að drjúgum mun. Félags-
deild hefir verið stofnuð að Moun-
tain, N.D., og eru hér staddir á þingi
fulltrúar hennar, er á sínum tíma
skýra frá útbreiðslustarfinu þar
syðra. Nokkrar fyrirlestraferðir
hafa verið famar í erindum fléags-
ins og eru þessar helztar að telja.
I júní kaus nefndin Þorvald Péturs-
son til þess að flytja erindi og
kveðju félagsins á allsherjar þjóð-
ræknisþingi Norðmanna er haldið
var í S.wift Current í júní. Var
erindi þetta birt i “Hkr.” nokkru síð-
ar. Þá hefir forseti félagsins heim-
NUGA-TONE STYRKIR
LIFFÆRIN
Séu líffæri yðar lömuð, eða þér kenn-
ið til elli, ættuð þér að fá yður NUGA-
TONE. pað hefir hjálpað mljónum
manna og kvenna I siðastliðin 45 ár.
NUGA-TONE er verulegur heilsu-
gjafi, er styrkir öll líffærin.
Alt lasburða fólk ætti að nota NUGA-
TONE. Fæst I lyfjabúðum; varist stæl-
ingar, Kaupið ekta NUGA-TONE.
Notið UGA-SOL við stíflu. petta
úrvals hægðalyf. 50c.
sótt tvær deildir, “Fjallkonan” í ^
Wlynyard qg “Brúin” í Selkirk og
Sjóður þessi er þjóðararfur vor, við-1 flutt hjá þdm erindi En lang af.
horf hinna norrænu þjóða, skoðun kastamestur hefir vara-forsetinn dr.
þeirra og utlegging a hfinu. Emn Rohard Beck yerið ejns Qg áöurj vis
fyrsti og stærsti þatturmn í nor- fyrir]estrahöld og ritgerSir er hann
rænni menningu er krafan um frelsi I hefjr samJð á ensku máli og birt í
og frjálsræði einstaklingsins. An j ýmsum tímaritum Veit eg að hann
þess frelsis nær emstakhngurinn gerir grdn f—r þessu starfi sínU;
ekki fullum þroska, hversu sem að, s-ðar á þinginU; og verSur j,á aS
honum er hlúð af hmum sterka arm-1 mak]egleikum >akkaS þaS
legg ríkisins. Honum fer eins og
grastorfunni sem færð er úr sól-
unni undir skugga trjánna.
Með þessum arfi getum vér gold-
ið vora æðstu borgara skyldu, ekki
SAMVINNUMAL
VID ISLAND
hafa að nokkru færst í aukana á
þessu ári. Eins og þingheimur mun
sízt eins og nú stendur og eg hefi j minnast stóð það til við síðastl. ára-
drepið á. Þar sem nú er um völdin ! mót félagsins, að hingað kæmi heim-
togast og um frelsið barist, þá látum ' an af ættjörðinni forseti “Sambands
áhrifa vorra gæta út frá voru arf-*J Norðlenzkra kvenna,” og ritstýra
genga sjónarmiði, að vernda ein-! kvennablaðsins “Hlín,” fröken Hall-
staklingsfrelsið, innan þeirra þjóð- dóra Bjamadóttir og ferðaðist hér
félaga sem vér búum með. Fyrst og
síðast metum allar stefnur eftir þeim
þroskameðölum, sem þær færa ein-
staklingnum, og látum það ekki um
oss spyrjast að oss sé svift af fótum
með neinum fagurmæluim eða flot-
gjöfum. Eigum engan þátt í undir-
málum eða launsvikum við frelsið,
því það er dýrmætast og hefir verið
dýrustu verði keypt af öllum eigum
mannkynsins. Hinni canadisku
þjóð, Bandaríkjaþjóðinni, er eigi
meiri styrkur að öðru, eigi sízt á
þessum tímum, en að hver einasti
einstaklingur leggist á eitt til að
varðveita mannréttindin innan þjóð-
lífsins.
# * #
Þá er að snúa sér að sjálfum fé-
lagsmálunum, og gerðum nefndar-
innar á síðastl. ári og hvarflar manni
þá fyrst í huga missir mætra og
góðra vina — félagssystkina — er
kvaddir hafa verið burt á þessu liðna
ári. Meðal þeirra eru þessir: Hall-
dór J. Egilsson í Swan River; Jón
Halldórsson í Langruth; frú Ólöf
Martha Skaptason Halldórsson í
Winnipeg; Philip Johnson að Lund-
ar; frú Hallfríður Sigurðsson að
Wynyard; Kristlaugur Andrésson,
Árborg; Joseph Stefánsson í Winni-
peg; Elías G. Jóhannsson að
Gimli; Ólafur læknir Björnsson í
Winnipeg; Gunnl. Ólafsson í Win-
nipeg; Magnús Hinriksson við
Churchbridge; Jón Janusson i Foam
Lake; Eyjólfur S. Guðmundsson í
Tacorna; Grímur Ólafsson við Ross,
Minn.; Jón Skúlason við Geysir;
Gunnar Henmannsson við Leslie;
Þorgeir Símonarson við Blaine;
Kristín Ásmundsson í Calgary;
Sigurður Oddleifsson í Winnipeg;
Runólfur Halldórsson í Selkirk;
Ámi Tómasson við Brown, Man.
Eftir þessa alla er skarð, suma
svo stórt, að það verður aldrei fylt í
íslenzku þjóðlífi vestan hafs. Með
þakklæti minnumst vér samvinnunn-
ar við þessa vini og velgerða þeirra í
garð íslenzkra mála, og vottum ætt-
ingjum þeirra og aðstandendum
innilegustu samúð vora og hluttekn-
ingu.
um bygðir íslendinga. Talaðist svo
til þá að félagið í sameiningu með
íslenzkum kvennasamböndum og fé-
lögurn tæki á móti þessum velkomna
gesti og ráðstafaði ferðum hennar.
Kaus þingið tvær konur í þessa mót-
tökunefnd, er munu leggja fram
skýrslu hér á þinginu.
Þá var þess farið á leit af stjórn
Islands við forseta félagsins, að
hann flytti þá beiðni stjórnarinnar
við félagið að stjórnin óskaði eftir
aðstoð þess og samvinnu um ís-
lenzka sýningu er verður sett á stofn
á alþjóðasýningunni í New York
1939. Ritaði rikisráðið félaginu
hréf þess efnis, er lagt verður fram
á sínum tíma, er mál þetta kemur
fyrir þing, til umræðu.
Þá var þess ennfremur farið á
leit við stjórnamefnd félagsins af
Landkynningar skrifstofu íslands,
að félagið aðstoðaði hana í því efni
að ná í sem mest'af því sem ritað
er í hérlend blöð rnn land og þjóð,
svo að auðveldara yrði að kynna sér
álit útlendra ferðamanna á landinu
og þjóðinni og hnekkja þeim ósann.
indum og leiðrétta þann misskilning
er þar kynni að koma fram. Yildi
eg mæla með því að þessari kvöð
yrði sérstakur gaumur gefinn. Það
myndi krefjast dálitils starfs en
lítilla peninga. Til eru félög bæði
hér í landi og í Bandaríkjunum, sem
nefnast “Clipping Bureaus” —
(Blaðklippufélög) sem hafa með
höndunn svona lagað verk, að safna
upplýsingum og blaða úrklippum um
sérstök mál fyrir litla þóknun. Er
mér sagt að þau setji 5C fyrri úr-
klippuna. — Verður væntanlega
skipuð néfnd í þetta mál, sem og
hin önnur er að samvinnumálinu
lúta, er þá gerir þinginu frekari
grein fyrir öllu saman.
Enn komst til tals, við fyrv. ráðh.
Jónas Jónsson á síðastl. surnri, að
Alþingi og stjórnarráðið myndi í
nálægri framtíð fara að athuga
möguleika á mannaskiftum milli ís-
lendinga austan og vestan hafsins.
Þá var og rætt um það hvort hann
myrtdi taka boði fálagsins ef til
kæmi að koma vestur hingað og
ferðast um meðal landa sinna hér.
Tók hann þessu ekki f jarri og mætti
svo fara að þessi ráð tækjust ef vel
væri á haldið. Gæti það orðið mikil!
styrkur þjóðræknismálum vorum og
orðið til að auka skilning frænda
vorra heima á þessum týndu kyn-
kvíslum í Israel.
OTGÁFUMÁL
hafa verið þau söimu sem ráð var
fyrir gert á síðasta þingi—“Tíma-
ritið” sem nú er fullprentað og
barnablaðið “Baldursbrá.” Hinir
sömu starfsmenn, og voru í fyrra,
hafa verið við bæði ritin, og þeir
sem unnið hafa að útgáfu Baldurs-
brár gefið verk sín að öllu leyti.
Verður lögð fram skýrsla síðar á
þinginu af ráðsmanni Baldursbrár,
Mr B.. E. Johnson.
MINJASAFN OG
MINNISVARDASJÓÐ UR
Fram að þinglokum í fyrra, hafði
sérstök milliþinganefnd mál þessi
með höndum en þá voru þau falin
stjórnarnefndinni. Um minnisvarða-
málið er það að segja, að því er lok-
ið hvað snertir Þjóðræknisfélagið.
Verkið er borgað og minnisvarðinn
afhentur Gimli-bæ. Ritari-féhirðir
minnisvarðanefndar mun gera loka-
skil fyrir þessu máli tímanlega á
þinginu.
Aftur á móti er minjasafnsmálinu
litlu framar komið eq var á síðasta
þingi. Tekið hefir verið á móti
nokkrum gjöfum og mun safnvörð-
ur gera grein fyrir þeim síðar. Ehn
er safnið ekki orðið það, að stjórn-
arnefndin hafi álitið tiltækilegt að
fara að búa um það á fjöllistasafni
bæjarins þar sem því er fyrirhugað-
ur staður í framtíðinni. Á það því
hér við sem svo margt annað, sem
með höndum er haft að “betur rná ef
duga skal,” ef safn þetta á að verða
það sem vér öll óskum eftir, fyrir-
rennurum vorum hér í landi til sáma
og góðrar minningar.
FR/EÐSLUMÁL
Fylgt hefir verið hinu sama fyrir-
komulagi 'með þau sem á undanförn-
um árum og nefndar frumvarpið
ætlaðist til er samþykt var á síðasta
þingi. Skólar hafa verið haldnir í
Winnipeg, að Mountain, N. D., í
Selkirk og víðar. Kennarar hafa
unnið kauplaust, en lítilfjörlegur
styrkur hefir verið veittur af félag-
inu til kenslubóka og húsaleigu.
Verður mál þetta betur skýrt síðar
af nefnd þeirri er kosin verður hér
á þinginu til þess að athuga það.
FJÁRMÁL
Frá f járhag félagsins þarf eg ekki
að skýra þvi féhirðir mun leggja
fram prentaða skýrslu yfir útgjöld
og eignir félagsins. Þó langar mdg
til að fara um það nokkrum orðum
og þá benda fyrst á það að þetta
síðastl. ár hefir að öllu samantöldu
verið hagstæðasta árið í sögu félags-
ins. Á þessu ári hafa safnast yfir
$2,ooo.cx> í auglýsingum í Tímarit-
ið fyrir framúrskarandi dugnað
auglýsinga safnendanna Jóns J.
Bíldfell og Ásm. P. Jóhannssonar.
Er upphæð þessi rúmum $200.00
meiri en í fyrra, Svo kemur Tíma-
ritið til að kosta félagið öllu minna
en í fyrra, þó það sé heilli örk
stærra. Að vísu er það félaginu
hagur að fá prentun þess gerða með
ári hverju, fyrir lægra og lægra verð,
en álitamál er það frá þjóðræknis-
legu sjónarmiði, hvort sá hagnaður
er að öllu leyti æskilegur, því verk-
sparnaðurinn kemur niður á íslenzku
blöðunum, sem árið um kring gefa
félagsskapnum dálkarúm og auglýs-
ingar, sem ef reiknað væri til verðs,
skiftir mörgum hundruðum dollara.
Þau hafa fært prentunartilboð sín
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Amaranth, Man..............B. G. Kjartanson
Akra, N. Dakota..........B. S. Thorvardson
Árborg, Man..............Tryggvi Ingjaldson
Árnes, Man.................Sumarliði Kárdal
Baldur, Man................... .0. Anderson
Bantry, N. Dakota.......Einar J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash...........Arni Símonarson
Blaine, Wash. .............Arni Símonarson
Bredenbury, Sask.................S. Loptson
Brown, Man.......................J. S. Gillis
Cavalier, N. Dakota......B. S. Thorvardson
Churchbridge, Sask...............S. Loptson
Cypress River, Man.........................O. Anderson
Dafoe, Sask..................J. G. Stephanson
Edinburg, N. Dakota.......Jónas S. Bergmann
Elfros, Sask.......Mrs. J. H. Goodmundson
Foam Lake, Sask..........J. J. Sveinbjörnsson
Garðar, N. Dakota.........Jónas S. Bergmann
Gerald, Sask.....................C. Paulson
Geysir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson
Gímli, Man.....................F. O. Lyngdal
Glenboro, Man.....................O. Anderson
Hallson, N. Dakota.......S. J. Hallgrímsson
Hayland, P.O., Man.........Magnús Jóhannesson
Hecla, Man.................Gunnar Tómasson
Hensel, N. Dakota.............John Norman
Husavick, Man. .............F. O. Lyngdal
Ivanhoe, Minn......................B. Jones
Kandahar, Sask.............J. G. Stephanson
Langruth, Man............................John Valdimarson
Leslie, Sask...................Jón Ólafsson
Lundar, Man.................Jón Halldórsson
Markerville, Alta. ............O. Sigurdson
Minneota, Minn.....................B. Jones
Mountain, N. Dak.......... .S. J. Hallgrímson
Mozart, Sask............J. J. Sveinbjörnsson
Oak Point, Man.................A. J. Skagfeld
Oakview, Man..................Búi Thorlacius
Otto, Man...................Jón Halldórsson
Point Roberts, Wash............S. J. Mýrdal
Red Deer, Alta................O. Sigurdson
Reykjavík, Man................Árni Paulson
Riverton, Man...........................Björn Hjörleifsson
Seattle, Wash. ................J. J. Middal
Selkirk, Man.............. Th. Thorsteinsson
Siglunes P.O., Man.........Magnús Jóhannesson
Silver Bay, Man..............Búi Thorlacius
Svold, N. Dak. ..........B. S. Thorvardson
Tantallon, Sask..............J. Kr. Johnson
Upham, N. Dakota........Einar J. Breiðfjörð
Víðir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson
Vogar, Man...............Magnús Jóhannesson
Westbourne, Man..........................Jón Valdimarsson
Winnipegosis, Man.....Finnbogi Hjálmarsson
Winnipeg Beadh...............F. O. Lyngdal
Wynyard, Sask..............J. G. Stephanson