Lögberg - 10.03.1938, Page 2

Lögberg - 10.03.1938, Page 2
2 LÖGBHRG, FIMTUDAGINN 10. MARZ, 1938 Rœða forseta Við setningw 19. ársþings Þjóð- rœknisfélags Isl. í Vesturheimi 22. febrúar 1938 HeiðruSu þingmenn og gestir! Það er orðinn viðtekinn siður hjá oss í félagsskap vorum, við þing- setningu ár hvert, að forseti skýri frá því helzta sem gerst hefir í sögu félagsskaparins og þá líka i stuttu máli frá þeim atburðum, er í við- tækari eða þrengri merkingu hafa stutt að gengi hans eða verið honum til tafar. Skal nú enn reynt að fylgja þessum sið og skýra frá því helzta sem féíagslega hefir á daga vora drifið; því sem félagsstjórnin hefir leitast við að gera eða látið ó- gert af því sem henni var fyrir sett á síðasta þingi. Nú þegar vér setjum ársþing þetta, hið nítjánda, er viðhorfið inn- an hins canadiska þjóðlífs og út um heim, svipað því sem það var fyrir ári síðan, og almenningi engu hag- stæðara yfirleitt. Hinu sama fer fram og þá var að gerast, ófriði og ósátt innhyrðis og út á við meðal þjóða í austur og vesturlpndum, sem enginn kann um að segja hvern enda hefir. Æjtla eg ekki að segja þá sögu, sem öllum er kunn og öllum óhugðarefni. Þjóðbandalagið er að engu orðið, hafi það þá nokkurn tíma verið nokkuð, eða annað en framhald hinnar gæfusnauðu friðar- ráðstefnu þar . sem fjögur heims- veldin réðu lofum og lögum meðan þau gátu komið sér saman, en slitu svo í sundur á milli sín þegar hags- munavegirnir skildust. Eftir því sem nú er á daginn komið, eru allar líkur til að skoðánir þeirra senator- anna Cabots og Borah hafi verið réttar og Bandaríkjaþjóðinni verið gæfa mikil, að eiga engan félagsskap með þvi. Áreiðanlega réð lengi fram eftir, á ráðstefnum þess, hlut- drægni og hefnigirni, sem sýndi sig í daufheyrslu við málstað minnihluta þjóðernanna í nýríkjunum sem sett voru á stofn, og skiftum þess við fá- mennari þjóðirnar. Voru þá úr- skurðirnir tíðum miðaðir við laun eða refsingu eftir því hvernig á stóð. Má þar til dæmis taka Transylvaníu málið, Slésíumálið og Álandseyja málið. Nokkrir eru þó enn, sem halda því fram að hefði Bandalagið náð að eflast hefði það orðið friðnum til eflingar og stutt lög og rétt í við- skiftum milli þjóðanna. En öllu frernur byggist skoðun sú á von en vissu, eins og stofnað var til þess í upphafi. Þá má og virðast s,em einveldis- stefna sú er með frekju og yfirgangi hefir sótt fram á undanförnum árum og gengur; eins og Ögmundur bóndi Eyþjófsbani undir einu af þremur nöfnum sem hún Ihefir valið sér, eftir því á hvaða stað hún kemur fram, hafi heldur vaxið fylgi á þessu síðastliðna ári. Hrammana hefir hún lagt upp á strendur þessarar álfu, þar sem Brazilía varpaði um koll lýðræðinu á síðastl. hausti en hóf upp í þess stað einveldið. Að visu má segja að mjótt sé beggja á milli, í hinum latnesku löndum álfu þessarar, og eigi langt spor stigið, frá öðru til hins, þar sem lýðræðið hefir aldrei annað verið en skuggi: en þó má svo álíta, sem sporið hafi fremur verið stigið aftur á bak en áfram. Ribbaldarikið mesta í Austurálf- unni íhefir tekið upp þessa stefnu og beitir henni nú hvað ákafast, og hvarvetna þar sem vald þess nær til. Innan þjóðfélagsins hér og í ná- grannaríki voru sunnan línunnar, hefir stefna þessi rekið upp höfuðið eða höfuðin, því hún er þríhöfða eins og risarnir fornu, en þó lítt að marki, enn sem koimið er. Lýðríkin helztu, nú sem stendur, eru Norðurlönd, fyrst og fremst, og þá brezka ríkið og Bandarikin; það eru með öðrum orðum ríki hinna nordisku þjóða. Eimir eftir hjá þeim af hinni fornu lífsskoðun, trúnni á frelsi einstaklingsins, rétt- inn að velja og íhafna, vera sinnar “lukku smiður,” sem var meginþátt- ur hinnar fomu siðspeki, en hlýta ekki athafnabanni og ófrelsi, að vera i engu sjálfráður um eigin kjör og sýslan, og eiga hvorki kost á að hugsa eða standa, eftir eigin ávísan. Afdala karlinn og kerlingin réðu búi sínu, afdalnum og geitahjörðinni, og þegar forystu geitin “Gæfa” hvarí 'þeiim', þá sendu þau son sinn að leita hennar og gafst vel, í stað þess að fá forráð sín í hendur forsjár manni er ráða skyldi “gæfu”-leit þeirra. Það er þessi afstaða, þetta viðhorf við lifinu, þessi lausn á vandamálun- um, sem lagt hefir grundvöllinn að lýðréttindunum og varðveitt þau fram á þenna dag. Að fá öðrum al- veldis umboð sitt að gæfuleitinni, er nokkurn veginn hið sama og að missa einstaklings eðli sitt, hætta sjálfur að vera sjálfur. Þú, sem það gerir, lifir ekki lengur, heldur lifir hann í þér sem hið skilyrðis- lausa vald hefir fengið til að steypa upp hugsanir þínar og fyrirskipa þér lífsins veg. Mönnunum hefir verið líkt við gras, og það er sönn líking. Þeir eru “sem gras, er skjótt hverfur.” Grasið grær, njóti það regns og sól- ar, það þroskast, móðnar, útendir æfiákvörðun sína. Sólin er heit, regnið er svalt, en hitinn og kuldinn næra það. En sé það fært á þann stað þar sem sólin nær eigi til þess með hinum steikjandi geislum sín- um, undir skugga trjánna, þar sem regndroparnir falla aflvana áf trjá- greinunum niður á það, breytist vöxtur þess. Það verður gelgju gult, það missir allan lífrænan lit, verður afllaust og nýtur hvorki eða neytir krafta sinna. Þessar andstæðu stefnur, einræði og lýðræði eiga sína talsmenn hér i álfu, en langflestir munu þó naumast gera sér grein fyrir þeim. Barátta þeirra um yfirdrotnan í mannfélag- inu, eða öllu heldur hinn mikli upp- ganur einvaldsstefnunnar á siðari árum, og þá á þessu liðna ári, hefir haft djúpar verkanir á atvinnu og viðskiftalíf þjóðanna og orðið til þess að sveigja það inn á óeðlilegar brautir. Hefir þetta hamlað því að nokkurt fullkomið jafnvægi hafi komist á iðnað og framleiðslu er stuðli að almennri vellíðan þótt iðn- aður hafi verið rekinn í stórum stíl að vísu. Framleiðslan hefir ekki verið af réttu tagi til þess að skapa aukin lífsþægindi eða til að bæta úr skorti almennings. Iðnaður þessi hefir að mestu leyti verið rekinn í þarfir hernaðarmálanna. En af því að hann hefir i svipinn bætt lítils- háttar úr atvinnuþörf þjóðanna 'hef- ir almenningur látið sér þetta vel líka og með túlkun og tilhjálp þeírra er hlut eiga að máli, gert sér vonir um að þessi iðnrekstur sé fyr- irboði hagsælli tíma; en í sannleika er hann eigi annað en framhald þeirra verka er gert hafa heiminn snauðan og fært hörmung sína yfir mannkynið. Alt það efni sem notað er til þessarar framleiðslu er ónýtt gert til lífsframfærslu manna. Og það er mikið. Svo er gizkað á að fitll 7o% af allri iðnframleiðslu síð- astliðið ár hafi gengið til hemota og mun þó ekki alt talið. Málmtekj- an; gullið, silfrið, járnið, koparinn; auðurinn, ,sem grafinn er úr fylgsn- um jarðar, timbrið, ullin, — alt þetta og svo fjölmargt fleira, er haft til óhagnýtra hluta, á aðra síðuna vegna þessa ofríkis anda er heimtar af einstaklingnum skil- yrðislausa uppgjöf á öllu skoðana og athafnafrelsi og sett hefir sér það takmark að leggja undir sig heiminn; en á hina síðuna, af ótta við öryggis- leysið og það að verða borinn ofur- liði éf sjálfstæðið þarf að verja sig. Hægra mun að kenna ráðið við þessu öfugstreymi en að koma því í framkvæmd. Iðnreksturinn hefir verið of einhliða en hann verður að miða til almennra nota og vera sem f jölbreyttastur ef almenningur á að geta haft lifibrauð sitt af honum; einhæf framleiðsla útilokar megin hluta alls vinnandi fólks, og þar af leiðandi þrengir lífskjör þess á allan hátt, og er því að mjög litlu leyti til bóta. Það hafa verið fundnar upp ýmiskonar nýjar kenningar er ráða eigi bót á þessu með stójótum hætti og öruggum, er eignast hafa sína sögu á þessu ári; en dregist hefir fram að þessu til umskiftanna svo að mörguim hefir orðið helzt fyrir að spyrja eins og Þorst. Erlingsson kvað: “Hvenær koma, kæri minn, kakan þin og jólin.” Kakan er ókomin og þá líka jólin. Eins og yður er kunnugt,, er fyrsti liðurinn í stefnuskrá félags- skapar vors þessi: “Að stuðla að : því af fremsta megni að Islendingar ! megi verða sem beztir borgarar í i hérlendu þjóðlífi.” Var á þetta minst á síðasta ársþingi og vil eg enn minna á það. Með ýmsum hætti er hægt að syna sig nýtan borgara eftir almennuim mælikvarða, en í því efni sem öðrum er það sérstaklega eitt, sem auðkennir einstaklinginn sem hinn ágætasta borgara, en það er starf hans í þjóðfélaginu ef það er af réttu tagi; — það eru áhrif þau sem hann hefir á samtíð sína, og það sem hann leggur henni til á andlega og verklega vísu. Það gjald, er oss auðfengið og vér vel að því komin. “Gull og silfur eigum vér ekki,” og það er jafnvel kannske svo ástatt fyrir sumum að vér' eigum erfitt með að svara hinuim venjulegu opin. beru kröfum borgar og Sveita, en vér eigum öll, einn sjóð, nægilegan til þess að svara þessu öllu, | sjóð, sem aldrei þrýtur en vex þess meir sem af honum er tekið. | ÚTBREIÐSLUMÁL Allmörg mál voru nefndinni falin af síðasta þingi og hefir verið reynt, eftir því som ástæður hafa leyft að gera þeim einhver skil. Eins og að undanförnu eru út- breiðslumálin aðal viðfangsefni fé- lagsins. í eðli sínu hefðu þau átt að vera auðsóttust og eiginlega úr starfssögu félagsins fyrir löngu, þvi ekkert er eðlilegra en að allir ís- lendingar hér í álfu hefðu strax gef- ið kost á því að ganga í félagið. En svo hefir verið fært í þenna flokk fleira en það eitt að auka félagatöl- una. Öll kynning á Islandi og ís- lenzkri þjóð, hefir verið flokkuð undir þessurn lið, svo sem fyrir- lestraferðir og fleira. Á þessu siðastl. ári hefir félagatal- an aukist að drjúgum mun. Félags- deild hefir verið stofnuð að Moun- tain, N.D., og eru hér staddir á þingi fulltrúar hennar, er á sínum tíma skýra frá útbreiðslustarfinu þar syðra. Nokkrar fyrirlestraferðir hafa verið famar í erindum fléags- ins og eru þessar helztar að telja. I júní kaus nefndin Þorvald Péturs- son til þess að flytja erindi og kveðju félagsins á allsherjar þjóð- ræknisþingi Norðmanna er haldið var í S.wift Current í júní. Var erindi þetta birt i “Hkr.” nokkru síð- ar. Þá hefir forseti félagsins heim- NUGA-TONE STYRKIR LIFFÆRIN Séu líffæri yðar lömuð, eða þér kenn- ið til elli, ættuð þér að fá yður NUGA- TONE. pað hefir hjálpað mljónum manna og kvenna I siðastliðin 45 ár. NUGA-TONE er verulegur heilsu- gjafi, er styrkir öll líffærin. Alt lasburða fólk ætti að nota NUGA- TONE. Fæst I lyfjabúðum; varist stæl- ingar, Kaupið ekta NUGA-TONE. Notið UGA-SOL við stíflu. petta úrvals hægðalyf. 50c. sótt tvær deildir, “Fjallkonan” í ^ Wlynyard qg “Brúin” í Selkirk og Sjóður þessi er þjóðararfur vor, við-1 flutt hjá þdm erindi En lang af. horf hinna norrænu þjóða, skoðun kastamestur hefir vara-forsetinn dr. þeirra og utlegging a hfinu. Emn Rohard Beck yerið ejns Qg áöurj vis fyrsti og stærsti þatturmn í nor- fyrir]estrahöld og ritgerSir er hann rænni menningu er krafan um frelsi I hefjr samJð á ensku máli og birt í og frjálsræði einstaklingsins. An j ýmsum tímaritum Veit eg að hann þess frelsis nær emstakhngurinn gerir grdn f—r þessu starfi sínU; ekki fullum þroska, hversu sem að, s-ðar á þinginU; og verSur j,á aS honum er hlúð af hmum sterka arm-1 mak]egleikum >akkaS þaS legg ríkisins. Honum fer eins og grastorfunni sem færð er úr sól- unni undir skugga trjánna. Með þessum arfi getum vér gold- ið vora æðstu borgara skyldu, ekki SAMVINNUMAL VID ISLAND hafa að nokkru færst í aukana á þessu ári. Eins og þingheimur mun sízt eins og nú stendur og eg hefi j minnast stóð það til við síðastl. ára- drepið á. Þar sem nú er um völdin ! mót félagsins, að hingað kæmi heim- togast og um frelsið barist, þá látum ' an af ættjörðinni forseti “Sambands áhrifa vorra gæta út frá voru arf-*J Norðlenzkra kvenna,” og ritstýra genga sjónarmiði, að vernda ein-! kvennablaðsins “Hlín,” fröken Hall- staklingsfrelsið, innan þeirra þjóð- dóra Bjamadóttir og ferðaðist hér félaga sem vér búum með. Fyrst og síðast metum allar stefnur eftir þeim þroskameðölum, sem þær færa ein- staklingnum, og látum það ekki um oss spyrjast að oss sé svift af fótum með neinum fagurmæluim eða flot- gjöfum. Eigum engan þátt í undir- málum eða launsvikum við frelsið, því það er dýrmætast og hefir verið dýrustu verði keypt af öllum eigum mannkynsins. Hinni canadisku þjóð, Bandaríkjaþjóðinni, er eigi meiri styrkur að öðru, eigi sízt á þessum tímum, en að hver einasti einstaklingur leggist á eitt til að varðveita mannréttindin innan þjóð- lífsins. # * # Þá er að snúa sér að sjálfum fé- lagsmálunum, og gerðum nefndar- innar á síðastl. ári og hvarflar manni þá fyrst í huga missir mætra og góðra vina — félagssystkina — er kvaddir hafa verið burt á þessu liðna ári. Meðal þeirra eru þessir: Hall- dór J. Egilsson í Swan River; Jón Halldórsson í Langruth; frú Ólöf Martha Skaptason Halldórsson í Winnipeg; Philip Johnson að Lund- ar; frú Hallfríður Sigurðsson að Wynyard; Kristlaugur Andrésson, Árborg; Joseph Stefánsson í Winni- peg; Elías G. Jóhannsson að Gimli; Ólafur læknir Björnsson í Winnipeg; Gunnl. Ólafsson í Win- nipeg; Magnús Hinriksson við Churchbridge; Jón Janusson i Foam Lake; Eyjólfur S. Guðmundsson í Tacorna; Grímur Ólafsson við Ross, Minn.; Jón Skúlason við Geysir; Gunnar Henmannsson við Leslie; Þorgeir Símonarson við Blaine; Kristín Ásmundsson í Calgary; Sigurður Oddleifsson í Winnipeg; Runólfur Halldórsson í Selkirk; Ámi Tómasson við Brown, Man. Eftir þessa alla er skarð, suma svo stórt, að það verður aldrei fylt í íslenzku þjóðlífi vestan hafs. Með þakklæti minnumst vér samvinnunn- ar við þessa vini og velgerða þeirra í garð íslenzkra mála, og vottum ætt- ingjum þeirra og aðstandendum innilegustu samúð vora og hluttekn- ingu. um bygðir íslendinga. Talaðist svo til þá að félagið í sameiningu með íslenzkum kvennasamböndum og fé- lögurn tæki á móti þessum velkomna gesti og ráðstafaði ferðum hennar. Kaus þingið tvær konur í þessa mót- tökunefnd, er munu leggja fram skýrslu hér á þinginu. Þá var þess farið á leit af stjórn Islands við forseta félagsins, að hann flytti þá beiðni stjórnarinnar við félagið að stjórnin óskaði eftir aðstoð þess og samvinnu um ís- lenzka sýningu er verður sett á stofn á alþjóðasýningunni í New York 1939. Ritaði rikisráðið félaginu hréf þess efnis, er lagt verður fram á sínum tíma, er mál þetta kemur fyrir þing, til umræðu. Þá var þess ennfremur farið á leit við stjórnamefnd félagsins af Landkynningar skrifstofu íslands, að félagið aðstoðaði hana í því efni að ná í sem mest'af því sem ritað er í hérlend blöð rnn land og þjóð, svo að auðveldara yrði að kynna sér álit útlendra ferðamanna á landinu og þjóðinni og hnekkja þeim ósann. indum og leiðrétta þann misskilning er þar kynni að koma fram. Yildi eg mæla með því að þessari kvöð yrði sérstakur gaumur gefinn. Það myndi krefjast dálitils starfs en lítilla peninga. Til eru félög bæði hér í landi og í Bandaríkjunum, sem nefnast “Clipping Bureaus” — (Blaðklippufélög) sem hafa með höndunn svona lagað verk, að safna upplýsingum og blaða úrklippum um sérstök mál fyrir litla þóknun. Er mér sagt að þau setji 5C fyrri úr- klippuna. — Verður væntanlega skipuð néfnd í þetta mál, sem og hin önnur er að samvinnumálinu lúta, er þá gerir þinginu frekari grein fyrir öllu saman. Enn komst til tals, við fyrv. ráðh. Jónas Jónsson á síðastl. surnri, að Alþingi og stjórnarráðið myndi í nálægri framtíð fara að athuga möguleika á mannaskiftum milli ís- lendinga austan og vestan hafsins. Þá var og rætt um það hvort hann myrtdi taka boði fálagsins ef til kæmi að koma vestur hingað og ferðast um meðal landa sinna hér. Tók hann þessu ekki f jarri og mætti svo fara að þessi ráð tækjust ef vel væri á haldið. Gæti það orðið mikil! styrkur þjóðræknismálum vorum og orðið til að auka skilning frænda vorra heima á þessum týndu kyn- kvíslum í Israel. OTGÁFUMÁL hafa verið þau söimu sem ráð var fyrir gert á síðasta þingi—“Tíma- ritið” sem nú er fullprentað og barnablaðið “Baldursbrá.” Hinir sömu starfsmenn, og voru í fyrra, hafa verið við bæði ritin, og þeir sem unnið hafa að útgáfu Baldurs- brár gefið verk sín að öllu leyti. Verður lögð fram skýrsla síðar á þinginu af ráðsmanni Baldursbrár, Mr B.. E. Johnson. MINJASAFN OG MINNISVARDASJÓÐ UR Fram að þinglokum í fyrra, hafði sérstök milliþinganefnd mál þessi með höndum en þá voru þau falin stjórnarnefndinni. Um minnisvarða- málið er það að segja, að því er lok- ið hvað snertir Þjóðræknisfélagið. Verkið er borgað og minnisvarðinn afhentur Gimli-bæ. Ritari-féhirðir minnisvarðanefndar mun gera loka- skil fyrir þessu máli tímanlega á þinginu. Aftur á móti er minjasafnsmálinu litlu framar komið eq var á síðasta þingi. Tekið hefir verið á móti nokkrum gjöfum og mun safnvörð- ur gera grein fyrir þeim síðar. Ehn er safnið ekki orðið það, að stjórn- arnefndin hafi álitið tiltækilegt að fara að búa um það á fjöllistasafni bæjarins þar sem því er fyrirhugað- ur staður í framtíðinni. Á það því hér við sem svo margt annað, sem með höndum er haft að “betur rná ef duga skal,” ef safn þetta á að verða það sem vér öll óskum eftir, fyrir- rennurum vorum hér í landi til sáma og góðrar minningar. FR/EÐSLUMÁL Fylgt hefir verið hinu sama fyrir- komulagi 'með þau sem á undanförn- um árum og nefndar frumvarpið ætlaðist til er samþykt var á síðasta þingi. Skólar hafa verið haldnir í Winnipeg, að Mountain, N. D., í Selkirk og víðar. Kennarar hafa unnið kauplaust, en lítilfjörlegur styrkur hefir verið veittur af félag- inu til kenslubóka og húsaleigu. Verður mál þetta betur skýrt síðar af nefnd þeirri er kosin verður hér á þinginu til þess að athuga það. FJÁRMÁL Frá f járhag félagsins þarf eg ekki að skýra þvi féhirðir mun leggja fram prentaða skýrslu yfir útgjöld og eignir félagsins. Þó langar mdg til að fara um það nokkrum orðum og þá benda fyrst á það að þetta síðastl. ár hefir að öllu samantöldu verið hagstæðasta árið í sögu félags- ins. Á þessu ári hafa safnast yfir $2,ooo.cx> í auglýsingum í Tímarit- ið fyrir framúrskarandi dugnað auglýsinga safnendanna Jóns J. Bíldfell og Ásm. P. Jóhannssonar. Er upphæð þessi rúmum $200.00 meiri en í fyrra, Svo kemur Tíma- ritið til að kosta félagið öllu minna en í fyrra, þó það sé heilli örk stærra. Að vísu er það félaginu hagur að fá prentun þess gerða með ári hverju, fyrir lægra og lægra verð, en álitamál er það frá þjóðræknis- legu sjónarmiði, hvort sá hagnaður er að öllu leyti æskilegur, því verk- sparnaðurinn kemur niður á íslenzku blöðunum, sem árið um kring gefa félagsskapnum dálkarúm og auglýs- ingar, sem ef reiknað væri til verðs, skiftir mörgum hundruðum dollara. Þau hafa fært prentunartilboð sín INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS Amaranth, Man..............B. G. Kjartanson Akra, N. Dakota..........B. S. Thorvardson Árborg, Man..............Tryggvi Ingjaldson Árnes, Man.................Sumarliði Kárdal Baldur, Man................... .0. Anderson Bantry, N. Dakota.......Einar J. Breiðfjörð Bellingham, Wash...........Arni Símonarson Blaine, Wash. .............Arni Símonarson Bredenbury, Sask.................S. Loptson Brown, Man.......................J. S. Gillis Cavalier, N. Dakota......B. S. Thorvardson Churchbridge, Sask...............S. Loptson Cypress River, Man.........................O. Anderson Dafoe, Sask..................J. G. Stephanson Edinburg, N. Dakota.......Jónas S. Bergmann Elfros, Sask.......Mrs. J. H. Goodmundson Foam Lake, Sask..........J. J. Sveinbjörnsson Garðar, N. Dakota.........Jónas S. Bergmann Gerald, Sask.....................C. Paulson Geysir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson Gímli, Man.....................F. O. Lyngdal Glenboro, Man.....................O. Anderson Hallson, N. Dakota.......S. J. Hallgrímsson Hayland, P.O., Man.........Magnús Jóhannesson Hecla, Man.................Gunnar Tómasson Hensel, N. Dakota.............John Norman Husavick, Man. .............F. O. Lyngdal Ivanhoe, Minn......................B. Jones Kandahar, Sask.............J. G. Stephanson Langruth, Man............................John Valdimarson Leslie, Sask...................Jón Ólafsson Lundar, Man.................Jón Halldórsson Markerville, Alta. ............O. Sigurdson Minneota, Minn.....................B. Jones Mountain, N. Dak.......... .S. J. Hallgrímson Mozart, Sask............J. J. Sveinbjörnsson Oak Point, Man.................A. J. Skagfeld Oakview, Man..................Búi Thorlacius Otto, Man...................Jón Halldórsson Point Roberts, Wash............S. J. Mýrdal Red Deer, Alta................O. Sigurdson Reykjavík, Man................Árni Paulson Riverton, Man...........................Björn Hjörleifsson Seattle, Wash. ................J. J. Middal Selkirk, Man.............. Th. Thorsteinsson Siglunes P.O., Man.........Magnús Jóhannesson Silver Bay, Man..............Búi Thorlacius Svold, N. Dak. ..........B. S. Thorvardson Tantallon, Sask..............J. Kr. Johnson Upham, N. Dakota........Einar J. Breiðfjörð Víðir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson Vogar, Man...............Magnús Jóhannesson Westbourne, Man..........................Jón Valdimarsson Winnipegosis, Man.....Finnbogi Hjálmarsson Winnipeg Beadh...............F. O. Lyngdal Wynyard, Sask..............J. G. Stephanson

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.