Lögberg - 24.03.1938, Blaðsíða 7
LÖ&BERG, FIMTUDAUÍNN 24. MAJRZ 1938
7
Hversvegna hafa Islend-
ingar allra manna
minstan skjald-
kirtil ?
Eg fékk nýlega léð tímaritiÖ
“Skírnir” (frá bókasafni “Fróns”),
hundraðasta og tíunda árg., — og
aftast í ritinu rakst eg á merkilega
ritgerð eftir próf. Níels Dungal (viÖ
háskólann i Rvík). Hann tók eftir
því við krufningar á líkum, að
skjaldkirtillinn var óvenjulega lítill
í íslendingum, og til þess að fá á-
reiðanlegar upplýsingar í þessu efni,
lét hann vega alla skjaldkirtla, og
var meðalþungi þeirra tæpl. 13
grömm (danskt pund er 500 gr.),
og var því niðurstaðan sú að íslend-
ar hafa minstan skjaldkirtir allra
þjóða. Næstir koma Japanar með
16.4 gr., Englendingar með 20.1 gr.;
Bandaríkjamenn með 28 gr., en
filestar Mið-Evrópuþjóðirnar með
frá 25 upp í 55 grömm.—Skjald-
kirtillinn er eitt af allra merkileg-
ustu líf færum líkamans ; hann liggur
framan á neðanverðu barkakýli og
stjórnar að miklu leyti efnabreytingu
líkamans, með því að gefa blóðinu
svokallað hormón. Læknarnir segja
að í engu liffæri sé eins mikið joð
eins og í skjaldkirtlinum.
Nú er hnúturinn leystur. íslend-
ingar hafa minstan skjaldkirtil
vegna þess að þeir hafa svo joð-
efna ríka fæðu, sem sé fiskinn og
aðrar tegundir dýra úr sjónum; en
landdýrin eru aftur á móti joð snauð
svo og jurtirnar; en sérstaklega er
það fiskurinn (í sjónum), sem er
joðefna rík fæða, og er það nú vís-
indalega sannað að sumar þær þjóð-
ir, sem aldrei neyta fiskjar; (eins
og sumstaðar í Mið-Evórpu, t. d.
við Alpafjöllin), fá óeðlilega gúla
framan á hálsinn, hörundið verður
hrukkótt og börnin verða þar þrá-
faldlega andlegir og líkamlegir
aumingjar, og stafar það af því, að
móðirin hefir ekki fengið neitt joð i
fæðurini um meðgö’ngutím&nn og
börnin ekki heldur i uppvextinum.
Stundum kemur fyrir þegar ofvöxt-
ur hleypur i skjaldkirtilinn, að hann
þrýstir svo að barkanum að sjúkl-
ingurinn kafnar, og er það vist ekki
fátitt hér í álfu, að “goitre” dragi
menn til dauða, en eg heyrði ekki
talað um þann sjúkdóm heima á
Fróni, enda hafa menn ekki þar neitt
af joðskorti að segja. Eg tek hér
lítinn kafla upp úr grein próf.
Dungals:
“Eftirtektarvert er það, að við
finnum hér minna iwn æðakölkun
við krufningar okkar en dæmi eru
til annarsstaðar. Eg hefi fært rök
að þvi að það standi í nánu orsaka-
sambandi við stærð skjaldkirtilsins,
nefnilega þannig, að nægilegt joð i
fæði okkar sé undirstaðan undir
góðri heilbrigði, hvað skjaldkirtil og
æðar snertir. Joð virðist nefnilega
verka á móti æðakölkun þannig, að
unt er að koma í veg fyrir hana í
dýra tilraunum, með því að gefa
nægilegt joð. Mér þykir því senni-
legt, að orsökin til þess hve æðakölk-
un er miklu sjaldséðari hér en ann-
arsstaðar, sé slú, að engjnn joð-
skortur er í fæðu okkar.”—
Það er einn réttur matar, sem eg
hefi saknað mest, síðan eg kom til
þessa lands; það er vel verkaður,
íslenzkur harðfiskur! Hann er lyst-
ugur og næringarmikill (af því að
hann er ósoðinn), handhægur að
grípa til jafnt í hitatíðinni sem á
öðrum tímumi árs og hefir auk þess
þann mikla kost að gefa tönnunum
góða æfingu. Tannpína heima á
Fróni færðist ekki í aukana fyr er.
að menn breyttu til um matarhæfi
(einkanlega í kaupstöðunum) mink-
uðu harðfiskáti og neyttu meir en
áður var útlendrar mjölvöru, að ó-
gleymdum margs konar sætindum,
sem þykir nú orðið sjálfsagt að
gefa börnunum si og æ. Það hafa
lítilsháttar tilraunir verið gerðar
með sölu á íslenzkum harðfiski hér
vestra, en þær tilraunir þyrftu að
halda áfram, og sjálfsagt að ekki
yrði sent hingað annað en fyrsta
flokks vara. Það er mjög líklegt
að vöruskifti gætu komið til greina.
Heimaþjóðina vanhagar um ávexti
t. d. sveskjur og epli (gætu líka ver-
ið þurkuð), sem Itvorttvfeggja er
afar holl fæða, og flýtir fyrir tæm-
ingu innýflanna, er nokkurs konar
hægðalyf, — en þorri almennings
virðist ekki gefa þessu mikinn gaum.
íslendingar þurfa líka að kaupa
kornvörur o. m. f 1., sem hér er
framleitt, en að heiman gætum við
fengið hraðfrystan fisk, hraðfryst
skyr, harðfisk og hákarl (hann væri
ágætur á “picnics”, lyktin ætti ekki
að kæfa neinn, ef hann væri borð-
aður utan húss!).
Próf. Dungal heldur því fram að
joð-efnið i fiskinum geri húð
manna litfríðari og endar grein sina
með þessurn orðum:
“Þegar kvenfólkið sannfærist um,
að það frikki af því að eta fisk, þá
trúi eg ekki að fiskist pf mikið við
ísland.”
Winnipeg 12. marz, 1938.
Stefán B. Kristjánsson.
Námsskeið fyrir
ungmenni
Islenzkum almenningi er þegar
kunnugt að nokkru um það, af um-
mælum íslenzku blaðanna, að haldin
hafi þegar verið á ýmsum stöðum
hér í fylkinu stutt námsskeið fyrir
ungmenni; frá augnamiði og til-
gangi þessarar mikilsvarðandi
kenslu, hefir frá Andrea Johnson,
forseti Bændakvenna samtakanna i
Manitoba, nýlega gert ítarlega
greinargerð í íslenzku blöðunum;
vék hún þar einkum að námsskeið-
inu, sem haldið var i Árborg frá 2.
nóvember til 17. desember síðastlið-
inn. Námsskeið þessi kallast á
ensku máli "Vocational Youth
Training” og eru kostuð af sam-
bands og fylkisstjórn.
Winnipegborg hefir þegar verið
svo lánsöm, að eiga innan vébanda
sinna mörg ungmennafélög, sem
beitt hafa sér fyrir því af kappi og
einlægni, að þessi kensla og það fé,
sem til hennar er varið, megi koma
að sem allra víðtækustum og heilla-
vænlegustu notum. En til þess að
svo verði, er óumflýjanlegt að þessi
stórþarfa kensla njóti stuðnings
skólaráðs og þeirra annara stofnana
í hverju héraði um sig, er öðrum
fremur láta sér ant um hagkvæma
mentun pilta og stúlkna á þessum
kreppu og atvinnuleysis tímum. 1
WJinnipeg eru nú allmörg “Voca-
tional Training Centres,” er starfa
svo að segja nótt sem nýtan dag, og
ættu að verða tekin til fyrirmyndar
í öðrum héruðum fylkisins. Öllu
hugsandi fólki er nú að verða það
æ ljósara með hverjum deginum sem
líður, hve afar mikið veltur á því,
að gerðar verði til þess raunhæfar
ráðstafanir, að tryggja æskulýð vor. |
um sem allra traustastan starfs-
grundvöll til þess að byggja framtíð
sína á, því mjög hefir reikullega
horfst til á því sviði undanfarin ár.
Námsskeiðið í Árborg er aðeins eitt,
lítið sýnishorn af því hverju má til
vegar koma í þessu efni, sé almenn-
ingur samtaka að fullu um gildi og
nytsenii málsins. í þessu tilfelli,
eins og reyndar á svo mörgum öðr-
um sviðum, hefir mikið á það skort,
að nauðsynleg samúð, og nauðsyn-
legur skilningur milli bæjarbúa og
þess fólks, er svéitirnar byggir, fengi
notið sín sem vera bar; þetta, ásamt
mörgu fleiru, verður að breytast til
batnaðar ef vel á að vera. Það nær
ekki nokkurri átt, að daufheyrst sé
lengur við réttmætum röddum æsk-
unnar; hún krefst þess að fá að
njóta heilbrigðs lífs, og hún á heimt-
ingu á að sVo megi verða, eins og
æska allra alda.—
Mikið veltúr á því að réttar og
nákvæmair upplýsingar um náms-
skeiðin og starfrækslu þeirra, sé
látryar hlutaðeigandi stjórnardeild-
um i té, því með þeim hætti einum
verður það líklegt, að knýja megi
frain æskilegar umbætur á starfs-
tilhöguninni i hinum ýmsu, mismun-
andi greinum.
Eg sat á fundi í Winnipeg dagana
2., 3- °& 5- marz> með forvígis-
mönnum þessa.rar viðtæku og nyt-
sömu hreyfingar þar í borginni; var
mér það mikið fagnaðarefni hve
fólk virtist gera sér glögga grein
fyrir mikilvægi málsins; hliðstæður
áhugi og hliðstæður skilningur þarf
að ná sér niðri í smáþorputn' vor-
um og sveitum, ef tilætlaður árang-
ur á að nást.
Hið íslenzka fólk, þó viðleitni
þess til sjálfsbjargar, hafi verið og
sé ýfirleiltt! sterk, hefir vitaskuld
ekki farið varlhluta af kreppunni og
atvinnuleysinu, fremur en aðrir
þjóðflokkar og þjóðflokkabrot i
þessu landi; en vegna meðfædds,
norræns metnaðar, og sögulegs vík-
inga uppruna, sættir það sig ógjarn-
an við skarðan hlut; það vill halda
áfram að ryðja sér braut, — glæsi-
lega manndómsbraut, eins og ís-
lenzku frumherjarnir i landi þessu
gerðu. En hvernig fram úr ræðst,
verður vitanlega að mestu leyti
undir einlægum og góðum sarntök-
um komið.
Fyrgreind námsskeið og tilraunir
eru án efa mikilvægt spor í áttina
til framtíðar umbóta á mentunar-
kerfi landsins’. Er því mjög æski-
legt að Islendingar láti ekkert það
ógert, er miðar að því að fyrir-
tæki þetta megi færa svo út kví-
arnar að það verði íslenzkum
æskulýð að sem allra víðtækustum:
notum; þá, en fyr ekki, er tilgang
inum náð.
Árborg 15. marz 1938.
Hólmfríður Danielson.
Fagnaðarsamsæti
var þcíim oldruðu heiðUrshjónum
Vigfúsi Þorvaldssyni og konu hans
Önnu Magnúsdóttur haldið 15. þ.
m., að heimili dóttur þeirra, Mrs.
George Jones, 1003 Banning St.
Samsæti þetta var til að samgleðj-
ast hinum aldraða öldung á nítugasta
afmæli hans og jafnframt. minnast
fimmtíu ára hjónabands afmælis
þessara heiðurhjóna, sem bar upp á
16. desember s.l.
Um kl. 8 að kvöldinu þ. 15. þ. m.,
söfnuðust saman vinir og ættingjar
hinna öldruðu heiðursgesta til að
árna þeim heilla og bLessunar, og tjá
þeim þakklæti sitt fyrir langa og
góða kynningu, samstarf og sam-
fylgd á leiðinni.
Mr. Jón J. Bildfell stýrði samsæt-
inu og fórst það að vanda skörulega.
Setti hann samsætið með snjallri
ræðu og mintist hins nýræða öld-
ungs með velvöldum orðum, ásamt
hans trygglyndu konu. Hann bað
heiðursgestunum allra heilla og ham-
ingju. Næst flutti séra Jóhann
Bjarnason bæn, og las nokkur vers
úr Jóhannesar guðspjalli. Að því
MORE people are getting ready to
go to work now than for a long
time past. They are getting
everything rounded up to enable
them—
To get out in the garden and get
things going and growing;
To get the question settled as to
where the will spend their vacation;
To get at the spring house-clean-
ing done as quickly as possible, and
get over with it;
To get enough time to play golf,
go out in the country, go to the races
and everywhere, and be in shape to
get the stuff in out of the garden
and the backyard all cleaned up be-
fore the coal man starts breaking in
when his season starts next fall.
That ought to cut down the list of
the unemployed.
» * *
THE world is large, when its
weary leagues
Two loving hearts divide;
But the world is small, when your
enemy is
Loose on the other side.
—O’Reilly.
* * *
POSTAL orders issued in England
last year weighed more than 250
tons. And the postal orders sent
to Ireland for sweepstake tickets
were enough to sink a battleship.
* » *
NOW that the Ontario stork derby
is settled, there will be a lot
more front page space available
for news of how Hitler, Mussolini
and Franco are getting ahead.
» * »
OUT in British Columbia they are
cojpplaining bitterly to the
Rowell Commission for National
and Provincial Peace or something.
They allege that 80,000 bums have
come to B.C. from Alberta and Sas-
katchewan. Sorta puts B.C. on the
bum.
loknu flutti G. E. Eyford stutt á- j
varp til heiðursgestanna; þakkaði
hann þeim í sinu nafni og gestanna,
fyrir alla þá alúð og góðvild er
allir mættu á þeirra gestrisna heimili.
Mintist hann hinna mörgu gleði-
stunda, er hann og margir aðrir
hefðu notið, í samræðum við níutíu
ára afmælisbarnið, sem þrátt fyrir
árin væri enn ungur í anda. Því næst
las hann upp kvæði, er skáldið hr.
Mjágnlús Markússon sendi hinum
öldruðu heiðursgestum. Að því
loknu afhenti hann heiðursgestun-
um, hinum níræða öldung mjög
vandaðan stól og Mrs. Þorvaldsson
fagran blómvönd, sem þakklætisvott
frá vinum þeirra og ættingjum. Þá
bað ræðumaður heiðursgestunum
heitla og hamingju og þakkaði þeim
fyrir langa og ljúfa viðkynningu.
Þá ávarpaði Mrs. Jónína Goodman
Mrs. Þorvaldsson mjög hlýjum og
vel völdum orðum. Mintist hún
löngu liðinni daga, og órjúfandi
vináttu þeirra frá æskuárum; hún
mintist og þess að það væri vel til
1 fallið að hún stæði við hlið Mrs.
Þorvaldsson við þetta tækifæri, því
fyrir fimtiu árum síðan hefði hún
staðið við hlið þessarar vinkonu
sinnar sem brúðarmeyja. — Það
var líka sannarlega ánægjuleg sjón
að sjá þessar öldruðu heiðurskonur
standa hlið við hlið eftir fimmtíu
ár.—
Milli ræðanna voru sungnir is-
lenzkir söngpiar undir forustu Mr.
J. Beck.
Mr. Magnús Þorvaldsson, sonur
heiðursgestanna þákkaði fyrir þá
hluttekningu og velvild, sem for-
eldrum sínum væri sýnd með þessu
alúðlega samsæti.
' Þá voru fram bornar rikmann-
legar Veitingar, sem hinar mann-
vænlegu dætur heiðursgestanna
stóðu fyrir. Eftir það skemtu menn
sér við söng og samræður, þar til
timi var kominn til heimferðar.
Samsætið var hið ánægjulegasta í
alla staði og nutu allir hinnar á-
nægjulegustu kveldstundar í þessum
góðvina hóp.
G. E. E.
* * * *
TIL MR. OG MRS. VIGFOS
THORVALDSSON
á 50 ára hjónabands afmæli þeirra,
16. desenibcr 1937.
Það sem, dygð og ástin ól
aldrei gildi týnir.
Hálfrar aldar sögu sól
CHICAGO woman wants a divorce
because her husband pushed her
away when she sought to caress
him during a poker game. Of course,
he meant nothing by it. But you
know how women are. Like as not
she’d have chirped out, “Oh, Henry,
if you had another ace you’d have
five, wouldn’t you?”
* * *
Gas masks are being made in Eng-
land, at the rate of 650,000 a week.
* * »
MILK and butter seem to sorta
work along together very
smoothly. When folks are all
het up over trying to get the price
of milk down, up goes the price of
butter. The cow may look silly,
but when she has the backing she’s
good.
* * *
IT is not so long since some of us
had to send our children to Ger-
many to finish their education
with the supermen they had over the
Rhine. The day Hitler grabbed Aus-
tria they had a big Swastika jolli-
fication down town, far as it is from
Germany. Their education was well
finished, apparently. They can send
Hitler the local papers containing
the Swastika celebration to let him
see how things are going along here.
* * *
IT was in 1902, 36 years ago, that
John Bain said of tobacco: “The
fact is, the moment a man takes
to a pipe he becomes a philosopher.
It’s the poor man’s friend. It calms
the mind, sooths the temper, makes
a man patient under difficulties. It
has made more good men, good hus-
bands, kind masters, indulgent fa-
thers, than any other blessed thing
in this universal earth.”
• • *
WHEN Peter Heenan parked in a
prohibited area in Toronto they
fined him two dollars. Being a
member of the governmen, he
should have been sent to jail.
Wf'RE ALL NUTTY
HERE AND THERE
---------By P. N. _____
samfylgd ykkar krýnir.
Þegar æfin öll er skráð,
alt sem mætt oss hefir,
tryggra vina verk og ráð
vinning æ&stan gefur.
Trausti höldur, mörg þó myrk
mæddi aldan þunga,
gildra feðra geð og styrk
geymdi sál og tunga.
Gegnttm marga myrka stund
mæðu lífs og sárin,
þín var góð og göfug hrund
geisla-skin við tárin.
Öldnu hjón með unga sál
enn, við stundar haginn;
Vina hjörtu, mund og mál
merkja þökk um daginn.
M. Markússon.
GEFINS
Blóma og matjurta frœ
OTVEGIÐ EINN NÝJAN KAUPANDA AÐ BLAÐ.
INU, EÐA BORGIÐ YÐAR EIGIÐ ÁSKRIFTAR-
GJALD FYRIRFRAM.
Frœið er nákvœmlega rannsakað og ábyrgst að öllu leyti
TAKIÐ ÞESSU K0STAB0ÐI!
Hver gama.ll kaupandi, sem borgar blaðiB fyrirfram, J3.00 áskrift-
argjald tii 1. janúar 1939, fær a8 velja 2 söfnin af þremur númerum,
1., 2. og 3 (I hverju safni eru ótal tegundir af fræi eins og auglýsingin
ber með sér).
Hver, sem sendir tvö endurnýjuS áskriftargjöld, f6.00 borgaða
fyrirfram, getur valið tvö söfnin af þremur, nr. 1., 2, og 3, og fær nr. 4
þar að auki.
Hver, sem útvegar einn nýjan kaupanda og sendir áskriftargjald
hans, $3.00, fær að velja tvö söfnin úr nr. 1., 2. og 3., og fær nr. 4 þar
að auki. Hinn nýi kaupandi fær einnig að velja tvö söfnin nr. 1., 2. og
3., og fær nr. 4. þar að auki.
Allir pakkar sendir mðttakanda að kostnaðarlausu.
No. 1 COLLECTION—Vegetables, 15 Packets
BEETS, Detroit Dark Red. The best all round Beet. Sufficient
seed for 20 feet of row.
CABBAGE, Knkhuizen. Good all round variety. Packet will grow
1,000 lbs. of cabbage.
CAKROTS, Half Dong Chantenay. The best all round Carrot.
Enough seed for 40 to 50 feet of row.
CKT.MHi:ií, Early Fortune. Plckles, sweet or sour, add zest to
any meal. This packet will sow 10 to 12 hills.
IÆTTUCE, Grand Rapids. Loose Leaf variety. Cool, crisp, green
lettuce. This packet will sow 20 to 25 feet of row.
LETTUCE, Hanson, Head. Ready after the Leaf Lettuce.
ONION, Yellow Globe Danvers. A splendid winter keeper.
ONION, Wliite Portngal. A popular white onion for cooklng or
pickles. Packet will sow 15 to 20 feet of drill.
PARSNIP, Ilalf Long Guernsey. Sufficient to sow 40 to 50 feet of
drill.
PUMPKIN. Sugar. Packet will sow 10 to 15 hills.
RADISH, Froneh Rreakfast. Cool, crisp, quick-growing variety
This packet will sow 25 to 30 feet of drill.
TOMATO, Earliana. The standard early variety. This packet will
produce 75 to 100 plants.
TURNIP. WTiite Sumnier Table. Early, quick-growing. Packet
will sow 25 to 30 feet of drill.
FLOWER GARDEN, Surprise Flower AHxture. Eaeily grown
annual flowers blended for a succession of bloom.
SPAGHETTT. Malabar Melon or Angel’s Hair. Boil and cut off the
top and the edible contents resemble spaghetti.
No. 2 COLLECTION
SPENCER SWEET PEA COLLECTION
8—NEW BEAUTIFUL SHADES—8
Regular full size packets. Best and newest shades in respective
color claes. A worth-while saving buying two. See regular Sweet
Pea List also.
SEXTETT • QUEEN. Pure White.
Five and six blooms on a stem.
WHAT >IOY. A Delightful Cream.
BEAUTY. Biush Pink.
SMILES. Salmon Shrimp Pink.
GEO. SHAWYER. Orange Pink.
WETvCOME. DazDzling Scarlet.
MRS. A. SEARLES. Rich Pink
shading Orient Red.
RED BOY. Rich Crimson.
No. 3 COLLECTION
EDGING BORDER MIXTURE.
ASTERS, Queen of the Market.
the earliest bloomers.
BACTIELOR’S BUTTON. Many
new shades.
CALENDULA. New Art Shades.
CALIFORNIA POPtf. New
Prize Hybrids.
CLARKIA. Novelty Mixture.
CLIMBERS. Flowering ciimb-
ing vines mlxed.
COSMOS. New Early Crowned
and Crested.
EVERIi.'VSTINGS. Newest shades
mixed.
-Flowers, 15 Packets
MATHIOLA. Evening scented
stocks.
MIGNONETTE. Well balanced
mixtured of the old favorite.
NASTURTIUM. Dwarf Tom
Thumb. You can never have
too many Nasturtiums.
PETUNIA. Choice Mixed Hy-
brids.
POPPY. Shirley. Delicate New
Art Shades.
ZINNIA. Giant Dahlia Flowered.
Newest Shades.
No 4— ROOT CROP COLLECTION
Note The Ten Big Oversize Packets
PARSNEPS, Early Short Round
BEETS, Hnlf Long Blood (Large
Packet)
CABBAGE, Enkhuizen (Large
Packet)
CARROT. Chantenay Haif Iiong
(Large Packet)
ONION, Yeiiow Globe Danvers,
(Large Packet)
LETTUCE. Grand Rapids. This
packet will sow 20 to 26 feet
of row.
(Large Packet)
RADISH, ....French ... Breakfast
(Large Packet)
TURNIP, Purple Top Strap
Leaf. (Large Packet). The
early white summer table
turnip.
TtTRNIP, Swede Canndian Gem
(Large Packet)
ONTON, White Piekling (Large
Packet),
Sendið áskriftargjald yðar í dag
(Notið þennan seðil)
To THE COLUMBIA PRESS, LIMITED, Winnipeg;, Man.
Sendi hér með $...........sem ( ) ára áskriftar-
gjald fyrir “Lögherg.” Sendið póst frítt söfnin Nos.:
Nafn ........................................................
Heimilisfang
Fyllri ......