Lögberg - 14.04.1938, Page 1
51. ÁRGrANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 14. APRLL, 1938
NÚMER 15
Marching On
By Rickard Beck.
Written for the 80th anniversary of the Methodist
Episcopal Church, Princeton, Minnesota.
(Tune: “Onward Christian Soldiers.”)
Not with roar of cannon,
Nor a sword in hand,
But with Love’s mild scepter
Will we rule the land.
Not with cruel bloodshed
Stain the fertile ground,
But in peaceful union
Labor, heaven-bound.
Hark! Like rushing waters
Comes the voice of yore:
Onward! Saints and martyrs
Trod our patli before.
To the sunlit vistas
Of the coming day
Like our noble sires,
March we on and pray,
Not for wealth nor power,
Nor the gleam of fame,
But for clearer vision
Of the distant aim.
Hark! Like rushing waters
Comes the voice of yore:
Onward! Saints and martyrs
Trod our path before.
Onward, brethren, upwárd!
Darkness folds its wings;
Dawn its golden mantle
On the hilltops flings.
In that morning glory
Smiles our Master’s face,
Saying: “I am with you
Till the last of days.”
Hark! Like rushing waters
Comes the voice of yore:
Onward! Saints and martyrs
Trod our path before.
(Kvæði þetta var orkt að tilmælum séra Sveinbjörns
Ólafssonar, þáverandi prests ofannefndrar kirkju í
Princeton, Minnesota, en hann er nú prestur í Morris,
Minnesota.—II öf.).
Vorsöngur
(Eftir Mary Fraser)
Litlu, vængjuðu vinir,
velkomnir séuð þið;
töfrandi sölusöngva
syngið um vorsins frið.
Ótal nótur þið eigið,
allar velkomnar þó,
yfir þagnbundinn anda
undan vetri og snjó.
Veifað er væng og goggi,
vakað við aflaföng:
fuglarnir verða að vinna—
vinna vi ðfleira en söng.
Bráðum í laufgum lundi
—ljúfasta starf það er—
tvö úndir heiðum himni
heimili byggja sér.
Morgunsöngvana sína
syngja hvem nýjan dag;
kvöldsöngvar himin heiðir
heyrast um sólarlag.
Hvílíkir unaðsómar
aldingarðstrjánum frá •
lífta um hljóðbært loftið—
Ljúft er að heyra þá.
Glaðlega enduróma
út fyrir klausturvöll,
draumrænir dýrðarsöngvar,
dulrænna tóna föll.
Páskarnir fögnuð flytja
friðþurfa, döprum heim;
fuglarnir, sál mín, syngja,
syng þú og gleðst með þeim.
Sig. Júl. Jóhannesson þýddi.
ATH.—Þetta kvæði birtist á ritstjórnarsíðu Free
Press síðastliðinn laugardag. Það er eftir konu, sem
heitir Mrs. A. M. Fraser. Þau lijón eiga nú heima í
Montreal, en voru um langt skeið í Winnipeg og stóðu
framarlega í öllum velgjörða- og líknarstörfum.
-Þýð.
Islenzkt söngútvarp
James Richardson & Sons Broad-
casting Co. hefir fengið barnasöng-
flokk þann, er R. H. Ragnar hefir
stjórnað s. 1. tvo vetur, til að gefa
hljómleika föstudaginn 22. april
n. k., kl. 8.05 e. h. Má heyra söng-
inn yfir þessar stöðvar félagsins:
CJRC, Winnipeg — CJGX, York-
ton — stuttbylgjustöðina CJRX og
e. t. v. yfir stöðina í Regina. Þessi
lög verða sungin:
“Látum af hárri heiðar brún”
“Nú er frost á Fróni”
Sólskríkjan
“ísland ögrum skorið”
“Vorhiminn”
“Nú er vetur úr bæ”
“Ei glóir æ á grænum lauki”
“Máninn hátt á himni skín”
“Sof þú, barn mitt”
“Bí, bí og blaka”
“Sofðu mín Sigrún”
“Hættu að gráta hringagná”
“Ólafur reið með björgum fram.”
—Flest þessi lög eru íslenzk þjóð-
lög og eru öll raddsett sérstaklega
fyrir þenna söngflokk af R‘. H.
Ragnar er einnig hefir samið piano-
undirspilið við þau. Ungfrú Lily
Bergson leikur á piano með flokku-
um. Ef Islendingar óska að heyra
meiri íslenzkan söng yfir útvarpið
í framtíðinni, ættu þeir að skrifa
CJRC Radio Station, Royal Alex-
andra Hotel, Winnipeg, að aflokn-
um söngnum og votta þeim þakklæti
sitt. Munið, að útvarpið er föstu-
dagskvöld 22. apríli kl. fimm mín-
útur eftir átta til kl. hálf níu (Win-
nipeg tími).
Fröken Halldóra
Bjarnadóttir heiðruð
með samsœti
Á föstudaginn var bauð frú
Kristjana Chiswell frá Gimli all-
mörgum konum til samsætis hér í
borginni í virðingarskyni við frk.
Halldóru Bjamadóttur, sem nú er
bráðum á förum heim til Islands;
var veizla þessi hin virðulegasta,
eins og jafnan tíðkast um það, er
frú Kristjana beitir sér fyrir; fóru
þar fram ræðuhöld nokkur, en aðal-
eindið flutti frú Kristjana sjálf
Eftirgreindar konur tóku þátt í
samsætinu:
Fröken H. Bjarnadóttir, Mrs. R.
Marteinsson, Mrs. R. Pétursson,
Miss Salome Halldórson, M.L.A.,
Mrs. B. J. Brandson, Mrs. F. John-
son, Mrs. P. Pétursson, Mrs. A. S.
Bardal, Mrs. L. Thomsen, Mrs. S.
Björnson, "^Árborg, Man., Mrs. B.
Thorpe, Mrs. O. Stephensen, Mrs.
G. Johnson, Mrs. A. C. Johnson,
Mrs B. S. Brynjólfson, Mrs. J. B.
Skaptason, Mrs. P. Bardal, sr., Mrs.
S. O. Bjerring, Mrs. L. E. Summers,
Mrs. A. Wathne, Mrs. J. Markus-
son, Mrs. P. S. Pálsson, Mrs. B. E.
Johnson, Mrs. S. Olafson, Árborg,
Man., Mrs. B. S. Benson, Mrs. L.
O. Chiswell, Gimli, Man.
Frá Islandi
Jón Baldvisnson, forseti
sameinaðs þings, látinn
Aðfaranótt þess 17. marz, s.l.,
lézt í Reykjavík, eftir allanga van-
heilsu, forseti sameinaðs þings, Jón
Baldvinsson, stofnandi og um langt
skeið fornmður Alþýðuflokksins á
Islandi.
Jón Baldvinsson var fæddur 20.
desembeir 1882 á 1 Strandsleljum i
Ögurhreppi. Foreldrar hans voru
Baldvin Jónsson bóndi þar og kona
hans Halldóra Sigurðardóttir.
Jón Baldvinsson lærði prentiðn á
Isafirði og Bessastöðum 1897 til
1901. Var hann prentari á Bessa-
stöðum 1901 til 1905. 1905—1908
stundaði hann prentiðn hér i
Reykjavík, lengst af i Gutenberg.
Á stofnfundi Alþýðusambands-
ins 12. marzJi9i6 var Jón Báldvins-
son kosinn ritari þess, sem fulltrúi
frá Hinu íslenzka prentarafélagi. Á
fyrsta þingi Alþýðusambandsins í
nóvember 1016 var hann kjörinn
Framh. á bls. 5
3 stór og rúmgóð herbergi til
leigu, ásamt eldhúsi, að 522 Sher-
brooke Street, við mjög sanngjöhiu
verði. Óskað er helzt eftir islenzkri
f jölskyldu.
Heimilisiðnaðarfél. heldur sinn
næsta fund að heimili Mrs. Ovida
Sveinsson, Ste. 2 Reliance Block,
480 Young St., á miðvikudagskveld-
ið 13. apríl, kl. 6.
Mr. J. T. Thorson, K.C., sam-
bandsþingmaður fyrir Selkirk kjör-
dæmið, kom til borgarinnar austan
frá Ottawa á mánudagsmoguninn,
og dvelur hér fram yfir páskafríið.
Mr. Bjöm Eggertsson kaupmaður
frá Cogar, Man., kom til borgarinn-
ar i lok fyrri viku með Ingibjörgu
konu sína til lækninga; var hún skor-
in upp af Dr. Thorláksson á Grace
sjúkrahúsinu, og er í góðum aftur-
bata. Með Mr. Eggertsson komu
einnig tveir tengdabræður hans, þeir
Jón og Guðmundur Jónssynir frá
Sleðbrjót.
Mr. J. K. Jónasson frá Vogar,
kom til borgarinnar á laugardaginn
var og dvelst hér um hálfsmánaðar-
tíma hjá sonum sinum. Synir hans
tveir, þeir Guðmundur og Snorri,
höfðu bmgðið sér norður til Vogar
seinni j)art fyrri viku, til þess að
sækja föður sinn. Mr. Jónasson,
þó freklega sé hálfáttræður að aldri,
er kátur og ern sem ungur væri.
Karlakór íslendinga í Winnipeg
heldur hljómleika miðvikud. þann
4. maí n. k. í lútersku kirkjunni á
Victor stræti. Mun kórinn syngja
átján valin lög og auk þess syngur
Mr. Paul Bardal, bæjarráðsiinaður,
einsöngva og Mr. Frank Thorolf-
son leikur piano solos. Verður sam-
koman auglýst í næstu blöðum. Að-
göngumiðar eru nú til sölu hjá öllum
karlakórsmönnura. Má vænta að al-
menningur sæki þessa samkomu, því
nú eru fleiri ár síðan karlakórinn
hefir haldið hér hljómleika.
“The- Crucifixion” (Krossfesting-
in) hið yndisfagra tónverk eftir J.
Stainer, verður sungið af hinum
eldri söngflokk safnaðarins, undir
stjórn herra Sigurbjörns Sigurðs-
sonar söngstjóra flokksins, í Fyrstu
lútesku kirkjunni, á föstudaginn
langa. Sólóistar við þetta tækifæri
eru þau frú Sigríður Olson og Paul
Bardal. Söngurinn byrjar klukkan
7 e. h., og allir eru velkomnir.
JON BJARNASON ACADEMY
GJAFIR:
D. H. Backman, Clarkleigh, Man.
$2.00; J. Goodman, Glenboro, Man.,
$2.00; Sig. Davidson, Edinburg,
N. D., $10.00; Mrs. Sig. Eiríksson,
Lundar, Man., $10.00.
Fyrir þessar gjafir vottast hér
með vinsamlegt þakklæti.
X. W. Melstcd,
gjaldkeri skólans.
Y. P. S. CONCERT
The Annual Spring Concert of
the Young Peoples’ Society of the
First Lutheran Church will be held
in the church parlors at 8.30 o’clock
011 Tuesday, April 19, 1938. An
interesting and varied programme
has been arranged with many mem-
bers taking part.
Tickets can be obtained from any
mernber of the Society. Admission
is 25 cents. Refreshments will be
served.
Remember the date, TUESDAY,
APRIL 19, 1938.
Mr. John Austmann er nýkominn
til borgarinnar, eftir nokkurra ára
dvöl í Los Angeles, Cal. Kona hans
og sonur komu að sunnan í síðast-
liðnum janúarmánuði.
Mrs. S. W. Sigurgeirsson frá
Hecla, Man., var stödd í borginni
í lok fyrri viku, ásamt Jóni syni
sínum.—
Junior Ladies Aid of the First
Lutheran Church, Victor St., are
auaking preparations for a Jubilee
Tea and Home Cooking Sale, to be
held in the Church Parlors, Wednes-
day, April 27, 1938.
för sinni. ____________
Mr. Ólafur N. Kárdal, tenór-
söngvari, söng í kirkjunni að Brú
í Argylesveit á ' þriðj udag'skveldið
við ágæta aðsókn og mikla hrifningu
af hálfu áheyrenda. Mr. Ragnar
H. Ragnar lék undir á piano. Mr.
Hafsteinn Jónasson var bílstjóri á
ferðalagi þessu; komu þessir þrí-
menningar heim á miðvikudags-
morguninn, og létu hið bezta yfir
ÍSLENDINGUR VINNUR
$1200 NAMSVERÐLAUN
Kornungur, islenzkur námsmað-
ur, Sigurður Melsted frá Garðar,
N. Dak., hefir nýlega hlotnast sú
sæmd, að vinna $1200 námsverð-
laun til jarðvegsrannsókna við
Rutgers háskólann í New Jersey rík-
inu; er hann sonur þeirra Benedikts
og Geirfríðar Melsted, sem búa í
grend við Garðarþorp og er með af-
brigðum duglegur og skyldurækinn
hvort heldur er við nám eða búnað-
arstörf heima fyrir. Systkini Sig-
urðar hafa öll gengið mentaveginn
og unnið sér þar hinn bezta orðstír.
Elzti bróðirinn, Bjöm, er útekrifað-
ur af School of Science í W'Tmpeton,
sem radio-verkfræðingUr; tveir
yngri bræður, Freeman og Alvin,
stunda nám við kennaraskóla í
Mayville; eldri systir Sigurðar,
Elin, er útskrifuð í hjúkrunarfræði
með ágætis einkunn af háskólanum i
Minnesota, en yngri systir, Sigrún,
hefir lokið kennararprófi með ágæt-
um vitnisburði í Oregon. Er það
gleðiefni mikið, er íslenzkum æsku-
lýð vegnar jafn vel á erfiðri menta-
1 braut og hér er raun á; verður slíkt
jafnan til fyrirmyndar talið.
Leikflokkur Árborgar
kemur til Wionipeg
Eins og auglýst er á öðrum stað
hér í blaðinu, sýnir leikflokkur Ár*
borgar sjónleikinn “Tengdamamma"
i Goodtemplarahúsinu hér í borg-
inni þann 5. maí næstkomandi, og
þarf ekki að efa að honum verði vel
tekið. Leikritið er ágætt, og leik-
endur fyrirtaks góðir; er þetta fyr-
ir löngu kunnugt og viðurkent;
mönnum stendur enn í fersku minni
sigur Árborgar leikflokksins í leik-
samkepni Manitobafylkis fyrir
nokkrum árum. Frú Hólmfriður
Danielson hefir æft flokkinn, og er
það út af fyrir sig næg trygging
fyrir því, að vel sé til alls vapdað;
er hún framúrskarandi listræn, og
sjálf ágæt leikkona. Leikendaskrá
er á þessa leið:
Tengdamamma—Sella Johnson
Þura—Thorbj örg Jónasosn
Rósa—Finna Carscadden
Sveinn—Sigm. E. Johannson
Jón—Sigurður Brandson
Signý—Herdis Eiriksson
Séra Guðmundur—Magnús Sig-
urðsson.
Ásta—Hólmfríður Danielson
Ari—Thor Fjeldsted.
Þessi ágæti leikflokkur verðskuld-
ar fylztu samúð 'ísJendin|gfe fyrir
það nytsama þjóðræknisstarf, sem
hann hefir int af hendi, og er þess
að vænta að húsfyllir verði á öllum
þeim stöðum, sem auglýst er að
hann sýni list sína.
ÞJ ÖÐARA TKVÆÐI
t AUSTURRIKI
Síðastliðinn sunnudag fór fram
þjóðaratkvæði í Austurríki að til-
hlutan Hilters um innliman þess í
Þýzkaland; var úrskurður þjóðar-
innar því nær einhljóða, þar sem
99.75 af hundraði greiddu atkvæði
með sameiningunni. Var úrslitum
tekið með feykilegum fögnuði í
Vínarborg og Berlín, eftir símfregn-
um að dæma.
STJÓRNARSKIFTl Á
FRAKKLANDI
Blum-stjórnin á Frakklandi varð
ekki ellidauð fremur en títt er uro
aðrar stjórnir þar í landi; hún ent-
ist að þessu sinni aðeins þrjár vik-
ur. Orsökin að falli hennar varð
sú, að efri málstofan synjaði for-
sætisráðherra um alræðisvald í f jár-
málum. Við stjórnartaumunum
hefir tekið Daladier, fýrrum stjórn-
arformaður og utanríkisráðherra.
Þögn
Þú meginafl þess myrkva, dulda
mikla þögn!
Þú liylur leiðir skapa og skulda
og skákar sögn.
Um hnattkerfanna himinvídd
þú heldur vörð,
af ímyndunar-afli prýdd,
á okkar jörS.
Hinn góSi guS í bláma býr,
á bak viS þig.
og örlaganna orku knýr
á alda stig.
Þú hefir aldrei orSiS gröm
né áleitin.
Þú ert um alla eilífð söm
og óráðin.
Úr miljón hnatta mold þú dregur
móður afl,
og alheiminn með augum vegur,
eins og tafl.
Þú hávaðanum grefur gröf
um grátna nótt,
og eftir stutta stundar töf
er stilt 0g hljótt.
Eg leikfang var sem lítið peð
í lífsins urð;
nú leggur þögn mig lágt á beð
og lokar hurð.
J. S. frá Kaldbak.