Lögberg - 14.04.1938, Síða 2

Lögberg - 14.04.1938, Síða 2
2 LÖGBESRG, FIMTUDAGINN 14. APRIL, 1938 “Hvernig ætli það fari?” Eg las eitt sinn sögu með þessari fyrirsögn. Dettur mér þessi spurn- ing í hug í sambandi viÖ framtiÖar- horfur kirkjufélagsins. Ýmsum virS- ist starfsemi þess nreÖ öörum hætti en var eitt sinn. Geta menn ýmsra orsaka, en þeir virðast ekki gera sér grein fyrir þeim breytingúm, sem eru nú hvaÖ tíðast að gerast oieðal vor. Þegar landar fyrst náðu hér land- festu, bygðu þeir sér svæði út af fyrir sig aÖ mestu á líkamlega og andlega vísu. Sem þjóÖflokkur ræktu þeir sérmál sín óskiftir að miklu leyti, og áhugi manna var mikill í kirkju- og mentamálum; í stjórnmálum áttu margir sameigin- legan áhuga. En því lengur sem menn bjuggu hér og kyntust hugs- unarhætti og tækifærum landsins, þess meiri breytingum tók og hugs- unarháttur þeirra; sumir tóku sig upp og fluttust á fjarlægar stöðvar eÖa tóku að dreifast hér og þar inn- an um menn af öðrum þjóÖflokkum. Fru’mstofninn hlaut - því að ganga saman, og menn sem eftir sátu sáu sitt óvænna að halda í horfinp eins og í byrjun. Og þótt menn skiftust ekki með burtflutningi, tóku hugir manna ýmsar stefnur frá því sem áður var, bæði í trúmálum, stjórnmálum o. fl. Fyrir nokkrum árurn. bar það við um kosningar í kjördæmi einu í Manitoba, að þingmannsefnið var kosiÖ af öllum íslenzkúm atkvæðis- bærum mönnum i kjördæminu, að undanteknum einum gömlum manni, sem ekki treysti sér til kosningar- staðarins. En seinna sveigðist hug- ur manna þessara í ýmsar áttir í stjórnmálum og svo mun vera enn. Það þarf því ekki að láta sig undra, þótt hnignunarmerki kunni að finnast í trúmálum; mun nær sanni, aÖ þar sé minni hugardreif- ing iheldur en í ýmsum öðrum mál- um. Svo er Guði fyrir þakkandi, aÖ vér eigum marga einlæga GuÖ-elsk- andi menn og konur, sem skilja hlut- verk sitt, og vilja gjarnan leggja á sig mikið, til stuðnings málefni Guðs. Ýms fyrirtæki, sem menn eitt sinn höfðu með höndum, eru nú úr sög- unni; lestrarfélögin eru nú svipur hjá sjón við það sem áður var; dag- blöðin eiga erfiðara uppdráttar með ári hverju, Vér sem þjóðflokkur erum teknir að “fjara út” i þjóðarhaf þessa lands; íslenzku nýlendurnar sumar eru úr sögunni að mestu. \7ér erum að hverfa smám saman sem heild, en erum dreifðir um alla þessa álfu og að verða þjóðlega innliðamir. Engum þarf að korna þetta á ó- vart; þaÖ er ekkert annað en það, sem ávalt hefir borið við, þar sem smáflokkar hafa tekið sér bólfestu meÖal þjóðar af öðrum stofni. Saga Norðmanna á Frakklandi, Italiu og víðar sýnfr þetta, Suma dreymir um árfamhaldandi samband við Island, en saga annara þjóðflokka neitar því með öllu. Það mun öllum ljóst, sem nokkuð þekkja til þeirra mála, eða vilja taka til greina vitnisburð sögunnar. Af þessu og af mörgum öðrum ástæðum hlýtur að leiða að félags- legri hnignun í sérmálum vorum á öllum sviðum. Þótt nú ástandið sé þannig, þarf enginn að efast um það, að oss er ætlað hlutverk eins og öðrum þjóð- arbrotum, sem. berast hingað. Og sem lúterskt kirkjufélag, ætti að vera létt fyrir oss að skilja á- kvörðun vora. Feður vorir og mæður fluttu með sér hingað lúterska trú og kenn- ingu. Það mikla andlega þrekvirki. sem þeir leystu af hendi er og verð- ur ógleymanlegur bautasteinn, og ó- mótmælanlegur vitnisburður um dýrmæti hins andlega fjársjóðs. Þetta mikla verðmæti hefir kirkjufélagið með höndum. Það er ákvörðun Guðs og tilgangur, að kirkjufélagið geymi þessa fjársjóðs svo að hann aldrei fyrirfarist. Mun kirkjufélagið megnugt að fara með þennan f jársjóð eins og til er ætlast? Eins og sakir standa, virðist fæst benda til þess að kirkjufélagið sé megnugt að standa straum af sér- málum sínum. Það gengur undir sama merki og er háð nákvæmlega sömu örlögum og aðrir efnangraðir .'smláflokkar, eins og hefir verið bent á. Smá-söfnuðir og safnaÖabrot til- heyrandi kirkjufélaginu eru hér og þar án nokkurrar verulegrar lið- veislu; kirkjurnar eru nú þegar teknar að hverfa úr eign Islendinga; samtök við menn af öðrum trúar- og þjóðflokki eiga sér nú stað. Eg er ekki að benda á þessi at- riði eins og þau væru nein sérleg sáluhjálpar hætta. En færum vér að bindast samtök. um með mönnum annara kirkju- deilda, kemur margt til greina; víj eg leyfa mér að benda sérstaklega á þrent. Með því að bindast samtökum með ólúterskum mönnum, göngum vér í beinni mótsetningu við tilgang- inn fyrir stofnun kirkjufélagsins. Stofnun kirkjufélagsins var gerð með það fyrir augum, að lúterska kirkjan hefir sérkenni, og yfirburði á sumum svæðum yfir aðrar kirkju- deildir. Það er af þessari ástæðu, að lúterska kirkjan vex hér í landi flestum kirkjudeildúm fremur, eða jafnvel öllum fremur, ef marka má kirkjuskýrslur, sem eru gefnar út af því opinbera. Ekki getur farið hjá því, að þegar lúterskir menn gera minnihluta sam- tök með öðrum trúflokkum, að hin lútersku einkenni hverfi úr sögunni að mestu. Þótt vér kysum. að ganga í sam- Dand við ólúterska menn, fremur en beita samtökum við trúarlega já- bræður vora, myndum vér þá á nokkurn hátt fremur tryggja and- lega framtíð og trúarlegar fram- kvæmdir? Eg sé enga ástæðu til að hakla það, Um þetta skal nú úttalað að sinni. Ef vér sem kirkjufélag finnum til þess, að vér getum ekki fremur en aðrir smáflokkar staðið af oss dragsúg og hið sviplega hvirfilvindi yfirstandandi tiðar, hvað er þá til ráða? Ef vér viljum nokkuð taka til greina aðferð stjómmálaflokka og trúmálaflokka yfirleitt, kemur það í ljós að menn bindast samtökum við þá sem standa næstir í trú og skoð- un. Annað ráð þekkja þeir ekki til þess að bjarga tilveru sinni. Það hefir verið bent á þessa leið i kirkjufélaginu, en ekkert orðið að framkvæmdum en sem komið er, eru orsakir þess helzt það, að málið er fremur lítið rætt eftir þörf; útlist- hnir eru aá skbrnum skamti, al- menningur hefir ekki aðgang að skilríkjum, sem gæti gefið réttan skilning á tilgangi málsins. Menn hafa í síðustu tíð ekki gert sér fulla grein fyrir þörfinni á heppilegri af- greiðslu í þessu efni. Deilur hafa engar orðið út af máli þessu, er það afar heppilegt i þessu eins og í öllu öðru; með bið og varfærni vinzt ljósari skilningur á þörf fyrir framkvæmd á einhvern hátt. Eg trúi ekki öðru en en að skoðun magra breytist við auknar upplýsingar og glöggari skilning á f ramtiðarhorfum kirkju félagsins. Sumir óttast, að ef menn gerðu samtök við lúterskar kirkjudeildir, þá væri fyrirgert einstaklingsfrelsi og fjáráðum. Þrjúhundruð ára saga kirkju vorrar hér í landi virð- ist alls ekki benda á það. Enda væi það óhugsanlegt hér, þar sem lýðveldisfyrirkomulag ræð- um lögum og lofum; enda leyfir engin kirkjudeild sér að sitja yfir einstaklings rétti manna, nema ef vera skyldi katólska kirkjan. Kirku- félög þau, sem skipa stærri heildir kirkju vorrar geta vel borið um það, hvort þau séu svift einstaklings-rétti sínum i einu eða öðru. Naumast mundi það leynast ef svo væri. Sambandið er gert af algerlega frjálsum vilja; menn geta sagt sig úr félagsskapnum eftir vild; engin pindaður til að leggja af mörkum um megn fram. Þannig er fyrirkomulagið í U.L. C.A. (United Lutheran Church of America). Eg er ekki að halda þeirri deild fram yfir allar aðrar deildir kirkju vorrar, þó eg minnist á hana; held- ur vegna þess, að það hefir verið mest rætt um hana. Lesið ummali annara og útilokið þjáningar 287 Garry Street, Winnipeg, Man. 14. marz, 1938 “Eg skrifa þetta bréf til þess aS láta í ljós ánægju mína yfir þeim árangri, sem notkun Uncle Ben’s Rheumatic Remedy hefir borió. Eg haf8i btiið við langvarandi þjftningar í höndum og hand- leggjum; nú hafa verkirnir þorrið a8 miklu leyti, og nú get eg krept hendurnar án óþæg- inda. YSar einlægur, Sam Dalman.” UNCLE BEN’S RHEUMATIC REMEDY and UNCLE BEN’S STOMACH REMEDY Fæst í öllum stærri !yfjabúöym. lfafi iyfMalinn þaö ekki, getilí |,ér ekrifaö ohh á yöar eigin mííli, ef |>ér viljiö. Sendiö oss $1.00 Viö Hendnm yöur 48 tiiflnr, pÖHtfrítt Hluntið á Uncle Bens Tal sérhverl laugardagskveld kl. 8:05 til 8:35 CJRC Winnipeg Uncle Ben’s Remedies, Ltd. BEP’T. I. 845 SOMEBSET Itl.!><;., tVlNNIPEG I reglugerð U.L.C.A. segir á þessa leið: “U.L.C.A. virðir í fylsta máta skipulag hvers kirkjufélags og starfrækslu þess innan sinna vé- banda, og forðast alt, sem geti kom- ið í bága við það.” “Hver^ kirkjufélag hefir fult vald og umrað yfir sérmálum sínum, nema þeim scm það ’sjálft felur U.L.C.A. til. framkvæmda, Gagnvart tungumála spursmálinu segir á þessa leið: “UL.C.A. heldur því fram sem grundvallaratriði, að guðsorð skuli prédikað á því máli, sem söfnuðir Ásgerður Josephsson (Æfiminning) 24. maí 1856—24. marz 1938 Getið var um andlát konu þessar- ar hér í blaðinu í vikunni sem leið, en eigi frá æfiatriðum hennar skýrt þá, sökum þess að komið var að útkomudegi blaðsins svo timi vanst eigi til. Skal nú getið helztu æfi- vorar standa ónotaðar, menn eru að skipast inn með öðrum kirkjuflokk- um, eða missa kirkjulegan áhuga með öllu. Kirkjufélagið virðist ekki megnugt að stemma stigu fyrir þessum viðburðum, eða bæta það, sem aflaga fer. Hvað eigum vér að gera? Tvær virðast leiðirnar; Að einangrast og pota út af fyrir okkur meðan auðið er, láta alt hólk- eða kirkjufélög eíga bezt með að skiljal Það er fúst til að liðsinna við þýðingar á bókum, sem kunna að reynast til uppbyggingar starf- inu af einu tungumáli á annað. Það er tilbúið að láta sérstakar nefndir fjalla um öll mál, sem snerta tungu- mál á einhvern hátt.” Eg Ihygg að það sem. hér er sagt, muni eiga sér stað i flestum eða öll- um lúterskimi kirkjufélagsheildum. Eg mætti ef til vill bæta við, með því að tilfæra orð P. H. Knubel, forseta U.L.C.A.: “Eg get sagt fyllilega, að ekki nokkurt kirkjufélag afsalar sér ein- staklings rétti sínum, þegar það gerir samtök við U.L-C.A. Vald þess og réttur helzt sá hinn sami rétt eins og hann var áður.” Mér skilst að réttur kirkjufélag- anna í sambandinu sé nákvæmlega sá sami og réttur safnaða og safn- aðarlima; söfnuðir geta sagt sig út kirkjufélagi hvenær sem. er, safn- aðarlimir geta það einnig að þvi er söfnuði áhrærir; fjárframlög eru af frjálsum vilja, eftir því sem efni og ástæður leyfa. Lagaleg pinding getur þar alls engin komið til greina. Menn hafa fult sjálfsvald að velja og hafna. Það teljast nú 168 lútersk kirkju- félög í Bandaríkjunum og Kanada, flest af þeim hafa gengið i sambönd í stærri eða minni deildir. U.L.C.A. smanstendur af 37 kirkjufélögum; hefir það aldrei borið við að eitt einasta kirkjufélag hafi sagt sig úr þeim félagsskap. Bágt á eg með að trúa því, að menn héldust til lengdar í því sam- bandi, ef þeim þætti einstaklings- réttur sinn fyrir borð borinn á ein- hvern ihátt, eða ef mönnum reyndist enginn áviningur af félagsskapn- um. Kirkjufélög þau, sem standa i U.L.C.A. eru misjöfn að stærð og þrótt; öll hafa þau verkefni hið sama og viðfangsefni og kirkjufé- lag vort. Þar liðsinna þeir sem eru megnugir þeim sem eru minni mátt- ar, án tillits til þjóðernis eða ann- arar afstöðu. Þótt stuðst sé við niðurjöfnunar fyrirkomulag til fjár- framlaga frá hverju kirkjufélagi, hljóta þó tillögin að miðast við þá blessun, sem Guð leggur mönnum i skaut, eins og tekið er fram í grein- argerð U.L.C.A. (“Our Church” bls. 85). “En margar hendur vinna létt verk.” Vér sem kirkjufélag höfum all- miklum kröftum yfir að ráða, en efnaleysi gerir oss ómögulegt að færa oss þá í nyt; vér erum ekki megnugir að gegna heimatrúboðs- skyldum vorum; mikið af fólki voru er án prestþjónustu; kirkjur ast að eigin vild; vissir söfnuðir geta notið fullrar prestsþjónustu, en vegna fjárskorts og reynsluleysis neyðast til að láta aðra sigla sinn eiginn sjó. Ef vér höldum áfram á þessa leið, þarf engann spámann til þess að segja fyrir um framtið vora; saga kirkjubræðra vorra um þrjú hundr- uð ár hér í landi gefur óbrigðula vísbendingu; þess vegna hafa flest kirkjufélögin gert með sér samband i smærri eða stærri deildum, en þau fáu, sem enn standa utan við öll víðtækari samb.nd, standa flest með litlum blóma, og sum eru í afturför. Og söfnuðir þeir, sem nú eiga við allgóð kjör að búa, munu eiga í vök að verjast, þegar tímar líða. Þannig hefir það reynst á liðnum árum. Ef vér á hinn bóginn vildum leita fyrir oss um’ ráð og dáð hjá þeim, sem eru oss reyndari og öflugri, án þess að leggja sérstaklings rétt vorn í hættu á nokkurn hátt, virðist það hyggilegt, eins og nú er ástatt hjá oss. Hygg eg það gæti orðið til mikillar blessunar. Upplýsingar um það efni ættu ómögulega að geta spilt á neinn hátt. Kirkjuþing næsta ætti að taka ákveðið spor í þá átt, og láta það mál alls ekki leggjast undir höfuð. , Menn, sem vilja sporna við því, taka á sig mikla ábyrgð. Samtök í fjármálum, stjórnmál- um og kirkjumálum er hrpp og hreyfing nútimans. Menn og þjóðir eru að kynnast og skipast í flokka; umlheimurinn er að minka, með auknum samgöngum og viðskifta- tækjum, en hleypidómar að hverfa. Þeir allir, sem gæta vilja bróður- skyldunnar^ kannast hver við ann- an, án tillits til lands eða þjóðernis. Þeir kannast við sameiginlegt fað- erni Guðs og sameiginlega frelsun í Drotni Jesú Kristi. Þetta er í fylsta samræmi við skilnaðarbæn frelsarans: Eg bið ekki einungis fyrir þess- um, heldur og fyrir þeim, sem trúa á mig fyrir orð þeirra, til þess að þeir og séu í okkur. Jóh. 17; 20. Vér megum ekki láta leggjast undir höfuð að leita allra hugsan- legra bjargráða, til viðgangs krist- inni trú og þekking. I því tilliti eru allir kristnir menn kennimenn Guðs. Þeir geta allir tekið til sín orð Hallgríms Péturs- sonar: “Þú Guðs kennimann, þenk um það; þar mun um síðir grenslast að, hvernig og hvað þú kendir; að lærisveifrum mun líka spurt, sem lét þitt gáleysí villast burt; hugsa glögt hvar við lendir.” s. s. c. atriða hennar, eftir frásögn þeirra, er til hennar þektu bezt þó eigi verði þau öll talin. Ásgerður Gunnlögsdóttir Josephs- son var fædd að Svínavatni í Húna- þingi 24. maí 1856 og skírð af séra Jóni Þórðarsyni presti á Auðkúlu. Foreldrar hennar voru hjónin Gunnlögur bóndi Björnsson á Svínavatni og Margrét Sigurðar- dóttir. Margrét var sunnlenzk að ætt, en Gunnlögur norðlenzkur, sonur merkishjónanna Björns Gunn. lögssoar söðlasmiðs og Ásgerðar Guðmundsdóttur er var orðlögð yfirsetukona á þeim timum og kvenval mikið. Hún- var systir Sig- urðar skálds Guðmundssonar á Heiði i Gönguskörðum í Skaga- f jarðarsýslu, þess er orti Varabálk afa þeirra séra Sigurðar í Vigur og Stefáns skólameistaa á Möðruvöll- um. Ellefu ára að aldri fluttist Gunn- ,'ögur, faðir Ásgerðar, með foreldr- um sínum vestur í Dalasýslu, og settust þau að á hinu forna höfuð- bóli Sauðafelli í Dölum. Með for- eldrum sínum var Gunnlögur þar til hann var fulltíða að aldri að hann flutti norður aftur á æsku- stöðvar sína rog settist að á Svína- vatni, kvæntist þar Margréti konu sinni, bjuggu þau þar í sveit í 17 ár og eignuðust 6 börn. Mistu þau 3 en þrjár dætur komust til fulltíða aldurs. Eftir þessa 17 ára dvöl í Húnavatnssýslu, fluttu þau Gunn- lögur sig aftur vestur í dali með þremur dætrum sínum er þá voru á lífi: Ásgerði, Ingibjörgu og Ingigerði. Ingibjörg, sem nú er dá- in, giftist Bjarna frá Höfða í Eyr- arsveit og bjuggu þau í Kötluholti. Hjá þeim andaðist Gunnlögur. Ingi- gerður giftist ekki, en flutti hingað vestur, og andaðist hér hjá Ásgerði systur sinni, er þá var vestur kom- in og búsett í Grunnavatnsbygð. Innan við tvítugt lærði Ásgerður ljósmóðurstörf hjá Hirti lækni Jóns- syni á Stykkishólmi. Að því búnu voru ihenni veittir Suður-dalir, — þrir hreppar — Haukadalur, Mið- dalur og Ilörðadalur til yfirsóknar, og gegndi hún því starfi þar í 30 ár. 29 ára að aldri griftist hún Jóseph bónda Jónssyni, JÓnssonar og Kristínar Sigurðardóttur og reistu þau bú að Geitastekk í Hörðadal. Eftir 14 ára sambúð misti Ásgerður mann sinn frá 7 börnum þeirra og hið áttunda aðeins ófætt. Jukust nú erfiðleikar hennar að mun. Mað- ur hennar var hinn mesti dugnaðar- maður, en nú varð hún ein að sjá fyrir búi og börnum. Barðist hún nú áfrani enn í 6 ár og gegndi jafn- framt ljósmóðurstörfunum, en að þeirn tíma liðnum flutti hún inn i Stykkisihólm og var þar í 2ýi ár, gegndi enn ljósmóðurstörfunum, en að því loknu varð hún að segja þeim af sér sökum þreytu óg van- heilsu. Færði hún sig þá til Reykja* víkur, dvaldi þar í 3 ár, en flutti svo þvinæst þaðan til Canada sum- arið 1912, með 3 börn sín, þá 56 ára að aldri. Var þá æfi farið að halla og heilsa og orka tekin að réna. Tvö börn hennar voru þá komin vestur á undan henni, Hólmfríður og Gunnlögur, er fluttu til Canada 1910 og settust að i Winnipeg; tvær dætur urðu eftir heima, Helga, er kom 8 árum seinna, og Ásgerður er staðnæmdist þar. Settist nú Ásgerð- ur að hjá börnumi sínum og dvaldi um 5 ára skeið í Winnipeg, en flutti sig þá til Hjartar sonar sins er num- ið hafði land við Otto, P. O., í Grunnavatnsbygð, og var hjá honum í 7 ár. Hvarf hún þá til baka aftur til Winnipeg og hefir síðan búið hjá börnum sínum tveimur, Höllu og Gunnlögi, hér i bæ þar til hún and- aðist á fimtudaginn var, 24. marz 1938, þá nær 82 ára að aldri. Síð- ustu 10 árin var heilsu hennar mjög hallað, og siðasta árið hafði hún tæpa fótavist og alls enga síðustu 3 vikurnar. Heilsubiluninni tók hún með hinu sama jafnaðargeði og öðru mótlæti er henni hafði að hönd- um borið yfir æfina treystandi því að eins og drottinn hafði varðveitt hana um liðna æfidaga, svo mundi hann og blessa hana og varðveita er INNKOLLUNAR-MENN LÖGBERGS Amaranth, Man................B. G. Kjartanson Akra, N. Dakota............B. S. Thorvardson Árborg, Man..............Tryggvi Ingjaldson Árnes, Man.................Sumarliði Kárdal Baldur, Man.....................O. Anderson Bantry, N. Dakota.......Einar J. Breiðfjörð Bellingham, Wash............Arni Símonarson Blaine, Wash. .............Arni Símonarson Bredenbury, Sask................S. Loptson Brown, Man. ....................J. S. Gillis Cavalier, N. Dakota......B. S. Thorvardson Churchbridge, Sask...............S. Loptson Cypress River, Man............. O. Anderson Dafoe, Sask................J. G. Stephanson Edinburg, N. Dakota.......Jónas S. Bergmann Elfros, Sask.......Mrs. J. H. Goodmundson Foam Lake, Sask.........J. J. Sveinbjörnsson Garðar, N. Dakota..........Jónas S. Bergmann Gerald, Sask.....................C. Paulson Geysir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson Gimli, Man.....................F. O. Lyngdai Glenboro, Man.....................O. Anderson Hallson, N. Dakota.......S. J. Hallgrimsson Hayland, P.O., Man........Magnús Jóhánnesson Hecla, Man.................Gunnar Tómasson Hensel, N. Dakota.............John Norman Husavick, Man................F. O. Lyngdal Ivanhoe, Minn..,...................B. Jones Kandahar, Sask..............J. G. Stephanson Langruth, Man............................John Valdimarson Leslie, Sask................... Jón Ólafsson Lundar, Man..................Jón Halldórsson Markerville, Alta. ............O. Sigurdson Minneota, Minn.....................B. Jones Mountain, N. Dak..........S. J. Hallgrimson Mozart, Sask............J. J. Sveinbjörnsson Oak Point, Man.................A. J. Skagfeld Oakview, Man..................Búi Thorlacius Otto, Man....................Jón Halldórsson Point Roberts, Wash............S. J. Mýrdal Red Deer, Alta................O. Sigurdson Reykjavík, Man<...............Árni Paulson Riverton, Man..........................Björn Hjörleifsson Seattle, Wash....................J. J. Middal Selkirk, Man.............................Th. Thorsteinsson Siglunes P.O., Man........Magnús Jóhannesson Silver Bay, Man..............Búi Thorlacius Svold, N. Dak............B. S. Thorvardson Tantallon, Sask..............J. Kr. Johnson Upham, N. Dakota........Einar J. Breiðfjörð Víðir, Man..............Tryggvi Ingjaldsson Vogar, Man...............Magnús Jóhannesson Westbourne, Man..........................Jón Valdimarssor. Winnipegosis, Man.....Finnbogi Hjálmarsson Winnipeg Beadh...............F. O. Lyngdal Wynyard, Sask...............J. G. Stephanson

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.