Lögberg - 25.08.1938, Síða 2

Lögberg - 25.08.1938, Síða 2
2 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. ÁGÚST 1938. Minningarorð um Arnfríði Jónsdóttur og Baldvin Jónsson landnámshjón og frumherja að Kirkjubæ i Breiðwvík (Hnausa, Man.) Með fáum orðum skal hér getið hjónanna á Kirkjubæ í Breiðuvík, sem mjög eru tengd við sögu bygð- arinnar, sem þannig er nefnd, á vesturströnd Winnipægvat'ns, er um- hverfið venjulega nefnt Hnausa- bygð, eftir samnefndu þorpi og hendur, umgengni öll fágæt fyrir mynd. Foreldrar Arnfríðar voru Jón Árnason bóndi á Finnsstöðum í Köldukinn og Sigurbjörg kona hans Sigurðardóttir; Arnfríður var fædd 15. apríl 1849; þann 13. maí 1873, Arnfríður Jónsdóttir og Baldvin J ónsson pósthúsáritan, en frá landnámstíð, hefir bygðin verið nefnd Breiðuvik- urbygð, og er það sannnefni um þessa fögru sveit, og viðeigandi að hið forna heiti haldist lifandi i hug- um manna, þótt að landnámsöldin sé gengin um garð. — Kirkjubæjarhjónin, sem nú eru bæði í val fallin, voru tilheyrandi hinni fyrstu fylkingu íslenzkra land- nema. Að heiman komu þau árið 1878, i blóma lifs síns og hófu bar- áttu frumherjanna. Kirkjubær í Breiðuvík stendur á fögrum völlum í fyrgreindri bygð. Mikil rækt hef- ir verið við það lögð að prýða heim- ilið og alt umihverfi þess. I allra fyrstu landnámstíð nam Benedikt Jónsson þar land, en fluttist brátt í burtu, og settist að á Akri, sunnan- vert við Gimli. Er Benedikf nú löngu látinn, en ekkja hans, háöldr- uð, Anna Torfadóttir, er enn á lífi, til heimilis á Betel. Baldvin og Arn- fríður nefndu heimilið Kirkjubæ. Árið 1906 var bygð kirkja á landi þeirra. Atti kirkjan, málefni henn- ar og velferðarmál mnhverfisins jafnan ágætt styrktarfólk, trúfast og óskift þar sem að þau voru, og má hið sama segja um börn þeirra. Aldurhnigin og lasin að heilsu báru þau heill og heiður safnaðar síns fyrir brjósti, og báru þau mál á- samt ástvinunum og öllum hjart- fólgnum hugðarefnum á bænarörm- um upp til Guðs. Landnámsheimilin mörg hver, urðu þegar frá fyrstu landnámstíð, ljóshús — vitar, er lýstu út frá sér yfir dimmu og dreifingu landnema- lífsins. Meðan að félagslif var fá- þætt og lítt skipulagt, var blessun heimilanna og áhrif þeirra inn á við og út á við, gróandinn í hinu unga og endurreista, íslenzka þjóðlífi, sem tendraði blys og breiddi ljós yfir bygðir. Heimilið á Kirkjubæ varð fljótt eitt slíkt heimili, sem gott var heim að sækja og affara- sælt að kynnast. Var þar oft gest- kvæmt og fjölment, ekki eingöngu af því að héimilið var gisti- og griðastaður vegfarenda, heldur sér- ílagi af því, að húsbændur, börn þeirra og heimafólk, ytri bragur heimilisins og andi þess var heil brigður og hressandi svo að vegfar- andinn fór endurhrestur og glaðari leiðar sinnar. Sinn stóra þátt átti húsfreyjan í þessu, en maður henn- ar og börn tóku þar höndum saman, og ágætlega hefir þar jafnan verið á haldið af hálfu yngri hjónanna, Jóns bónda og Kristínar konu hans, listræni og hagkvæmni haldast þar í giftist hún Baldvin Jónssyni Ein- arssonar frá Svartárkoti í Bárðar- dal. Baldvin og Arnfríður fluttu til Vesturheims frá Ytra-Gili í Eyjafirði árið 1878. Þau komu til Nýja ÍSlands um veturnætur það ár, og settust að á Kirkjubæ. Þar bjuggu ]?au með sæmd og prýði til haustsins 1910, eða í 32 ár, en þá tóku þau Jón sonur þeirra og Kristín kona hans við búinu. Siðan hafa þau búið þar blómabúi, og hjá þeim nutu eldri hjónin áhyggju- lausrar og góðrar elli. Þar andað- ist Arnfríður 4. dag maímánaðar H937-— • Regnskúrir sorgarinnar komu yfir Kirkjubæjar-hjónin ekki síður en aðra. Liðu þau átakanlegan missir barna sinna. Á íslandi mistu þau efnilega dóttur, er Laufey hét. Arið 1883 mistu þau þrjá unga sonu: Jón, Vilhjálm og Eystein; dóu sveinarnir 14., 15. og 16. jan- úar, úr skæðri barnaveiki. Börn þeirra á lífi eru: Jón Vilsteinn, bóndi á Kirkjubæ, kvæntur Kristínu Kristjónsdóttur Finnssonar. Sigrún, gift Einari Guðmundssyni Martin, bónda á Litla-Garði í Breiðuvík. Laufey, gift Eiríki Jónssyni Austmann, l>úa við Leslie, Sask. Eygerður, heima á Kirkjubæ. Pál, bróðurson Baldvins, ólu þau upp frá barnæsku til þroskaaldurs. Við útför Arnfríðar var að því vikið hve sigursæl að hún hefði ver- ið í lífsbaráttunni, að hún “lét þrek- ið þrífla stýristaumana,’’ þótt hið innra blæddu sár. Trúin á helga handleiðslu Guðs, gaf henni jafn- vægi og öryggi, var hjálp hennar um langa æfi, unz hún aldurhnigin og þreytt lagðist til hinztu hvildar. Henni voru lánaðir miklir go hald- góðir hæfileikar. Hún var vel greind, lítt slökkvandi lestrar-' og fróðleiksþrá átti hún, og útþrá and- ans er fann þörf á að fylgjast með öllu þvi, sem var að ske; karkakter styrkur og drenglyndi gjörði hana hjartfólgna öllum þeim, er la^rðu að þekkja hana vel. Dómgreind henn- ar var mjög glögg, en styrkur vilj- ans mun hafa verið áberandi ein- kenni í skapgerð hennar. Hún mat hið fagra og sanna, hvar sem að það birtist, sýndi það sig í vali vina og trúfesti við þá er hún batt vinsemd við, án tillits tli lífs eða trúarskoð- ana, eða annarar afstöðu þeirra. — Samfylgd Kirkjubæjarhjónanna varð óvenju löng, nærfelt full 64 ár. Útför Arnfriðar fór fram frá heimilinu á Kirkjubæ og stutt kveðjuathöfn í kirkju Breiðuvikur- safnaðar að viðstöddum öllum nán- ustu ástvinum og miklum mann- fjölda, þann 7. maí. Var dagurinn bjartur og fagur vordagur með hlý- indi i íofti, er á táknrænan hátt lagði blessandi hendur yfir minningu elskandi móður og góðrar konu, er hér var af innilegum kærleika kvödd.— ♦ Baldvin Jónsson bóndi á Kirkju- bæ var fæddur 13. maí 1851, að Svartárkoti i Bárðardal. Foreklrar hans voru Jón Einarsson og Stein- unn Jónsdóttir. Er ættin komin frá alsherjarætt Ingólfs Arnarsonar, er bjó að Arnarhváli við Reykjavík. Er ættin ágæt, og inn í hana flétt- ast saman stórættir Norðlendinga, Vestfirðinga og Austfirðinga. Varð ættin fjölmenn mjög í Suður-Þing- eyjarsýslu á siðari tímum. Var Baldvin náskyldur Jóni Sigurðssyni á Gautlöndum, Halldóri Jónssyni bankagjaldkera í Reykjavík og Bardals-systkinum hér vestra, svo að fáeinir séu til nefndjr. — Foreldrar Baldvins bjuggu fvrst í Svartárkoti, mun Einar faðir Jóns en afi Baldvins, þar fyrst búið hafa. Svcf fluttu foreldrar hans að björg- um í Köldukinn, þar dó Steinunn móðir Baldvins. Mun heimilið þá hafa verið leyst upp. Fáum árum siðar, réðst Jón faðir Baldvins til Brazilíuferðar, ásamt Jóni syni sín- um, þá unglingsmanni að aldri. — Félagar þeirra feðga í þessari æfin- týraför voru Jónas Hállgrímsson, faðir Hermanns búfræðings og skólastjóra og þteirra systkina og Jónas Friðfinnsson. Fóru þeir fé- lagar utan frá Akureyri i öndverð- um júlímánuði 1863. Jón, faðir Baldvins, dó eftir 6 ára dvöl í Brazilíu. Jón bróðir Baldvins kvæntist spánskri konu, tók sér upp ættarnafnið Ármann, en hvarf brátt úr sögu íslendinga í Brazilíu. Er hann talinn að hafa dáið milli 1880 —83, að því er frá greinir í hinni fróðlegu bók Þorsteins Þ. Þor- steinssonar skálds, “Æfintýrið frá íslandi til Brazilíu,” sjá bls. 165— 169, o. s. frv. Baldvin fóstraðist upp hjá frænd- fólki sínu. Tuttugu og tveggja ára gamall giftist hann Arnfríði Jóns- dóttur sem fyr er greint. Varði samfylgd þeirra i 64 ár. Hann var aðeins 27 ára er hann kom að heim- an og íhóf landnemastarf sitt. Stóð hann því eldri mönnum betur að vígi í hinni erfiðu baráttu, sem framundan var og beið þeirra. — Honum auðnaðist að inna af hendi fruimbyggjans stóra starf. í því naut hann, ‘sem að framan er að vikið, styrktar sinnar ágætu konu, en einnig naut hann aðstoðar Jóns sonar síns, er aldrei fór að heiman, og ávalt var þróttmikill samverka- maður. Er aldur færðist yfir Baldvin og þreyta fullorðinsáranna sótti hann heim, gat hann ókvíðinn lagt störf sin og ábyrgð til hliðar, og fengið þau syni sínum í hendur. Honum féll í hlut sú ljúfa reynsla að mega á allgóðum aldri losna við erjur og ábyrgð af starfrækslu bú- skaparins; en njóta ellinnar á- hyggjulaus og glaður, þvi að það var bjart yfir æfikvöldi öldruðu hjónanna á Kirkjubæ og aftanfrið- ur ljúfur og hlýr rikti, eftir dáðrík- an starfsdag er á undan var geng- inn. — En byrði sú, sem fylgir langri æfigöngu legst með vaxandi þunga á herðar hins þreytta vegfar- anda. Sú byrði var sérilagi þung á síðasta æfiári Baldvins. Varð hinzti róðurinn þungur, elnaði hon- um sótt, unz ljúf og kærkomin hvíld fékst.— Hinztu skiljanlegu orðin hans voru orðin úr sálminum “Vertu Guð faðír, faðir minn, o. s. frv.”; mun hann barn að aldri hafa numið þau við móðurkné, urðu þau honum veganseti að hinzta miði.— Baldvin var mikill maður-að valí- arsýn, karlmannlegur og íturvaxinn fram til hinztu ára. Silfurhvítt hár hans og skegg gjörði 'hann tígu- legan ásýndum. Hann var skemt- inn og viðræðugóður og gaman við hann að mæla, gamanið var græzku- laust, en viðræðufjör hans lífgaði og létti annir dagsins. Þó mun lund hans hafa verið viðkvæm og hann tilfinningamaður, og næmur fyrir, og gekk reynsla lífsins nærri honum. Víst mátti kalla hann ötulann athafnamann, er vann verk sín með dugnaði og hagsýni; góðan félagsmann, er stóð framarlega í fylkingu samherja sinna, glæsilegan mann í framgöngu, er leiddi að sér athygli við fyrstu kynningu, og reyndist vel samferðafólki sínu, og góðan föður, er unni börnum sín- um og afkomendum og þráði gengi og gæfu allra þeirra, er Guð hafði gefið honum til að elska og annast. Baldvin naut ágætrar umönnunar tengdadóttur sinnar og Miss Guð- rúnar Finnson systur hennar, er stundaði hann i sjúkdómi hans. Hann andaðist þann 28. mai ár- degis, en útförin fór fram þqnn 31. s. m. að fjölmenni viðstöddu. ♦ Fyrsta kynslóð islenzkra land- nema er fallin í val, önnur kynslóð er nú að verða öldruð, þriðja kyn- slóðin er komin til starfs, hin f jórða er að vaxa upp— ört snúast hjólin áfram, og fljótt fennir í sporin, er fyrst voru gengin, en minningin um vort elzta fólk lifir enn: minningin um óskólagengið alþýðufólk en þó sannmentað í mörgum tílfellum — fólk, er átti mikinn þrótt sér í sál, fólk er bar þess lifandi mdtki, að “Sá er beztur sálargróður, sem að vex í skauti móður,” fólk, sem bar aðalsmerki íslenzks anda og skap- gerðar, fólk er kom, sá og sigraði. í þeim hópi voru hjónin á Kirkju- bæ. Sigurður Ólafsson. “Sjálfsbjargarhvötin í hættu,, Þannig er fyrirsögn fyrir rit- stjórnargrein i Nýja Dagblaðinu, sem gefið er út i Reykjavik 26. maí síðastl. Er þar sýnt fram’ á hvílík hætta starfi af ofmiklum mann- flutningi i bæjina, því þar sé aðal- orsök atvinnuleysisins og kreppunn- ar að miklu leyti. — Höfundurinn getur þess, að fyrr- um íhafi þeir einir notið styrks til framfæris, sem ekki gátu unmð fyrir sér og sínum. Þá hafi engir leitað styrks fyr en öll sund v ,ru lokuð til bjargræðis; þá þótti það mjög lítiLmannlegt og niðrandi að leita sveitarstyrks, og að láta ílytja sig á sveit sína, eins og þá var !ítt Nú er þessu breytt, eins og mörgu öðru, heima á gamla landinu. Nú á hver maður þar framfærslurétt, þar sem hann hefir heimili, eins og hér í landi. Menn geta því valið sér stað, þar sem þeir vilja verða þurfamenn. Afleiðingin af þessu segir höf. greinarinnar að sé þessi: “Nú eru mörg ung og vinnufær hjón, sem eiga eitt eða tvö börn, á fátækraframfæri. Fjölmargir ein- hleypir menn eru i atvinnubóta- vinnu, sem er raunar ekkert annað en fátækraframfæri. Ungir menn bíða bókstaflega eftir því að komast á fátækraframfæri 1 stað þess að nota þá mörgu möguleika sem þeim bjóðast til að bjarga sér á annan hátt. Þeim finst bærinn skyldugur til að sjá fyrir sér. — Það mætti nefna mörg dæmi, sem sýna, að nrargt af þessu fólki hefir látið góð tækifæri ónotuð, til að bjarga sér á annan hátt. Með undanlátssemi við þetta fólk, hefir bærinn stefnt fjárhag sínum og siðferðislegum þrótt og sjálfsbjargarviðleitni unga fólksins i voða. Með því að ala upp sjálfsbjargarvöntun, værugirni og úrræðaleysi,. hjá talsverðum hluta unga fólksins, er beinlínis stefnt að því að grafa grunninn undan traust- ustu stoðum sjálfsbjargarviðleitni dugnaðar og framtakssemi. — Mun ríkisstjórnin og sérstaklega forsætisráðherra taka þessi mál til rækilegrar íhugunar.”------- Svona er það nú heima á gamla landinu; en hér i landi er það stór- um verra. Hér kom kreppan fyr á, og hér hefir atvinnuleysið verið stöðugra. Þeir munu ekki vera svo ýkja margir heima, sem ekki hafa haft atvinnu einhvern hluta af ár- inu, þótt það hafi ekki nægt þeim til framfæris alt árið. — Það lítur svo út sem höfundur greinarinnar telji atvinnubótavinnuna óþarfa, því tækifærin hafi verið nægileg, ef þau hefðu verið notuð. Hér er þessu ólíkt farið. Hér var og er vinnuskortur í bæjunum, en það var sama sem ekkert gert að því af stjórnarvöldunum að bæta úr því. Hér hefir verið lítið um fram- kvæmdir til atvinnubóta alt að síð- ustu árum, og þá voru strákarnir búnir að gleyma vinnubrögðum, og vildu ekki tiota tækifærin þótt þau byðust. Hér var byrjað á matar- gjöfum og peningastyrk, sem að- eins gaf þeim atvinnu, sem höfðu það til umsjónar og útbýtingar. Fyrir aldrað fólk og fjölskyldur er slíkt auðvitað nauðsynlegt, og þvi nær eini vegurinn. En fyrir unga og hrausta menn er það neyðarúr- ræði, og í flestum tilfellum óþarft. Það eru ótal verkefni til, sem ekki verða notuð til hlitar vegna þess að menn fást ekki til að vinna. I vor hafa verið rúm 4000 ein- hleypir menn í Winnipeg, sem bær- inn hefir fætt og lagt allar nauð- synjar. Á sama tírna hefir bændur víða vantað vinnumenn, en þeir hafa ekkj fengist. Að leita þeirra í stór- bæjunum er ekki til neins. Svörin eru oftast þessi: Það er svo erfitt að vinaa hjá bændum, Vinnutíminn langur, engir frítímar eða skemt- anir. Kaupið svo lágt að það er ekki við það unandi, 20—25 dalir hæzt á mánuði. Okkur líður miklu betur hér með fátækrastyrk. Eg átti tal við tvo handverksmenn í Winnipeg fyrir skömmu. Eg þekti þá ibáða frá fyrri tið, sem dugnað- anmenn og vel vinnufæra. Eg spurði þá hvort þeir hefðu nú enga vinnu. Svörin voru þau sömu hjá báðum: “Það mætíi nú líklega fá nokkra vinnu. Eg hefi ekkert leit- að eftir henni. Það borgar sig ekki nú að taka vinnu nema að hún sé stöðug fyrir langan tíma og vel borguð. Maður missir þá fátækra- styrkinn, og það er súningasamt að fá hann aftur.”— Þessu líkur mun vera hug^tnar- háttur magra. Þeir eru orðnir svo vanir aðgerðaleysinu að þeir vilja ekki vinna. Hafa engan metnað til að bjarga sér sjálfir. Það er enginn efi á því að stór hluti af þessum rhönnum gæti feng- ið vinnu, ef þeir leituðu eftir henni. Enda aldraðir menn mundu víða geta fengið vinnu úti á landi, við að hjálpa til -við heimilisstörf þar sem bóndinn er einn um þau. Hátt kaup er að vísu ekki hægt að borga fyrir slíka vinnu, en þá er maður þó frjáls að sínu, þótt lítið sé, og ekki þurfamaður. Eg þekki allmarga lausamenn. sem hafa stöðuga vinnu árið um kring. Þeir taka hátt kaup þegar það býðst en þess á milli, það sem i boði er; en hugsa meira um að halda vinnunni en háa kaupinu. Þessir menn vilja vinna og fá líka næga vinnu. Margir sveitamenn, sem ekki eru búandi leita nú austur eða norður í námuhéröðin. Þar fá þeir hærra kaup en bændur geta borgað, því það er arðsöm vinna að grafa gull og gersemar úr jörðu, en þó aðeins á færi auðmanna, vegna tilkostnað- ar. — Þangað skyldi maður ætla að stórbfejamenn sæktu í atvinnu- leit; en svo er ekki. Eg var stadd- ur í einu þessu námuþorpi um tima í sumar, og spurði hvort ekki kæmi þangað fjöldi af Winnipegmönnum í atvinnuleit. Mér var sagt að þeir væru fáir, og flestir þeirra hættu vinnunni eftir stuttan tíma, eða væru “lagðir af”; þeir þættu þrótt- litlir og þeim þætti vinnan erfið. Þetta er eðlilegt um menn, sem eru óvanir vinnu. Þeir verða þollausir og óánægðir, og leiðist vinnan. Þa ðer sorglegast að sjá unga fólkið alast upp í stórbæjunum. Það má ganga að því vísu að stór hluti af því hefir aldrei tækifæri til að læra neinn verknað, sem að gagni mætti verða. Það eru nú 9 ár síðan kreppan byrjaði; á þeim tíma hefir fjöldi unglinga lökið skólalærdómi,. en eflaust hefir fátt af þeim fengið atvinnu. Þetta fólk er nærri að segja dæmt til að vera ósjálfbjarga. Það lærir ekkert verk að vinna, og þekkir ekki annað betra en að láta bæinn fæða sig iðjulausan. Fyr á árum streymdi unga fólkið úr sveitunum í stóribæina. Þá var var oftast nokkur atvinna, skóla- mentun á boðstólum, og skemtanir nógar. Nú er þetta breytt. Fáir fara nú í bæina, því vinna er þar ekki að fá. Skólagangan er nú orð- in dýrari en áður og ómögulegt að vinna fyrir sér í hjáverkum, eins og mörgum tókst áður. Nú er líka orðið svo margt um skólagengið fólk í bæjunum, að það er engu betur sett með að fá vinnu en aðrir. Þó er ein undantekning í þessa átt. Stúlkur utan úr sveitum geta ein- lægt fengið atvinnu í Winnipeg. Það er spurt svo mikið eftir þeim sem vinnukonum í hús efnaðra manna. Eg hefi spurt hvernig á þessu stæði, hvort ekki væri nóg til af ungum stúlkum í bænum ? Mér hefir verið svarað því, að þær væru að vísu nógu margar, en að þær vildu ekki vinna í vistum. Og svo þætti húsfreyjum þær fákunnandi og tómlátari við verk sín en sveita- stúlkur. ITvað satt er í þessu, veit eg ekki, en svo mikið er víst, að það gengur greiðlega fyrir sveita- stúlkur, að fá vinnu í húsum í Winnipeg. Enginn skyldi nú ætla að þetta ólag sé alt fólkinu að kenna. Krepp- an er aðalorsökin, og að henni eru mörg rök. Hiún hefir lagt undir sig flest lönd, en misjafnlega hafa menn varist henni. Stjórnftrvöldin hér i landi munu hafa lagt eins mik- ið í sölurnar eins og flestir aðrir, til að afstýra henni, og fáir munu hafa liðið mjög mikinn skort í stórbæj- unum. En þeir háu herrar gættu þess ekki að fleira mætti að gagni verða en matargjafir og peningar. Sú hjálpin sem mest þörf var á, var aukin atvinna, en því var lítið sint á byrjun og ekki nóg til þessa. Eg get ekki verið samdóma grein- arhöfundinum íslenzka, að atvinnu- bótavinna sé litlu betri en beinn sveitarstyrkur. Fyrst og fremst ætti að vera hægt að gjöra nauð- synlegar umbætur á þann hátt fyrir lægra en ella, og enda þótt sú vinna væri til lítilla nota, þá heldur hún þó fólkinu við vinnuna. Vinnan æfir starfskrafta fólksins og það lærir að meta gagnsemi hennar til að framfleyta sér og sínum. Á þann hátt hefði styrkveitingin gert miklu meira gagn en hún hefir gert. Eg sé nú af nýkomnum blöðum, að sambandsstjórnin muni ha'fa í hyggju að breyta stefnu í þessu máli og leggja meiri stund á að halda mönnum til vinnu. Nú eru talin rúm 4000 einhleypra manna á styrk í Winnipeg. 700 menn af þessum hóp voru sendir í þreski- vinnu fyrir skömmu, og verða að vonum fleiri sendir bráðlega. Nú er líka bannað að veita þeim styrk, sem ekki vilja þiggja vinnu. Má því ætla að þeim fækki nokkuð í bænum meðan á þreskingunni stendur. En hvað tekur svo við? Fara þessir menn allir á bæjarstyrk aftur? Víða vantar menn við vetr- arvinnu í sveitum, en ekki geta bændur borgað 2 dali á dag fyrir slika vinnu eins og við þreskingu. En sömu laun mundu þeir vilja hafa.— Það ætti nú að vera hlutverk stjórnarinnar að útvega þessum mönnum vetrarvinnu, með hæfileg- KAUPIÐ AVALT LUMBER hj& THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.