Lögberg - 25.08.1938, Qupperneq 8
LÖGBERCx, FIMTUDAGINN 18. AGÚST 1938
Látið kassa á
ís nú þegar
*
Ur borg og bygð
Mrs. Margaret Thompson frá
Athabaska, Alberta, var stödd í
borginni á tnánudagsmorguninn.
♦ ♦
Mrs. Inga Smith frá Long Beach,
Cal., kom til borgarinnar í byrjun
vikunnar.
♦ ♦
Mr. J. S. Gillis frá Brown, Man.,
var staddur í borginni fyrri part
yfirstandandi viku.
♦ ♦
Mr. Erlendur Guðmundsson
fræðimaður frá Gimli, dvaldi í borg-
inni fyrri part vikunnar.
♦ ♦
Þeir Oddur Ólafsson, M.L.A.,
Gísli Sigmundson verzlunarstjóri og
S. V. Sigurðsson útgerðarmaður,
komu til borgarinnar um miðja
fyrri viku úr skemtiferð norðan frá
Churchill.
♦ ♦
Mr. og Mrs. Hallgrímur Sigurðs-
son frá Foam Lake, Sask., komu til
borgarinnar í byrjun vikunnar, á-
samt Mrs. Talcott, fósturdóttur
sinni, og brugðu sér suður til ís-
lenzku bygðanna í North Dakota, í
heimsókn til ættingja og vina.
♦ ♦
Þann 20. þ. m. lézt að heimili
sínu, 626 Agnes Street hér í borg-
inni, ekkjan Anna Sigurðsson 83
ára að aldri, ættuð af Seyðisfirði í
Norður-Múlasýslu, væn kona og vel
látin. Hún lætur eftir sig fjögur
börn hér í álfu og eitt á íslandi
Útförin fór fram á miðvikudaginn
kl. 2 e. h. frá kirkju Samöands-
safnaðar undir umsjá Bardals.
SYLVIA THORSTEINSSON,
A.T.C.M.
Teacher of
Piano, Theory and
Group Singing
Studio: FIRST AVENUE
Gimli, Man.
Séra Haraldur Sigmar frá Moun-
tain, N. Dak., var staddur í borg-
ínni seinni part fyrri viku, ásamt
syni sinum.
♦ ♦
Mr. B. K. Björnson, dýralæknir
frá Fargo, N. Dak., var nýlega
staddur hér í borginni ásamt frú
sinni og tveimur börnum þeirra
hjóna. Fjölskylda þessi brá sér
norður til Gimli og ef til vill lengra
norður um Nýja ísland.
♦ ♦
Mr. Brynjólfur Árnason, fyrrum
kaupmaður er nýlega kominn hing-
að til borgar sunnan frá Nfitional
City, Cal. Hann brá sér norður til
Ashern í lok fyrri viku, en mun
því næst heilsa upp á vini sína í
Vatnabygðunum í Saskatchewan.
♦ ♦
Dr. B. J. Brandson er nýkominn
heiim úr nokkurra daga ferðalagi
ásamt frú sinni, suður um Banada-
ríki. Fylgdu þau á veg systur Dr.
Brandson, Mrs. Surrey frá Hart-
ford, Conmecticut, er dvalið hafði
um hríð hér í borginni.
♦ ♦
Þeir Sveinn Thorvaldson kaup-
maður frá Riverton, Gísli Sigmund-
son verzlunanstjóri frá Hnausum
og Arthur Sigurð|Sson verzlunfer-
stjóri frá Árborg, voru staddir í
borginni á þiðjudaginn. Sátu þeir
hér fund Merchants’ Consolidated
heildsölufélagsins.
' ♦ ♦
Miðvikudaginn 17. ág'úst, voru
þau Edward Jefferson frá Selkirk,
Man. og Christine Tomasson frá
Hecla, Man., gefin saman i hjóna-
band af séra Rúnólfi Marteinssyni,
að 403 Lipton St. Heimili þeirra
verður að Hecla. — Brúðurin er
dóttir þeirra merkishjónanna Krist-
jáns útgerðarmanns á Reynistað í
Mikley og frú Sigþóru Thomasson.
Lögberg flytur ungu hjónunum
innilegar hamingjuóskir.
WEVEL C/iEE
Under management of former manager
MRS. RANNVEIG JOHNSON
Meals at All Hours — Coffee, Pancakes, Skyr
Cup Reading
I1JÓMLEIKAR
I NÝJA ÍSLANDI
Söngflokkar undr stjórn R. H. Ragnars hafa samkomur
i næstu viku á þessum stöðum:
Geysir, mánndaginn 29. ágúst
Riverton, miðvikudaginn 31. ágúst
Árborg, föstudaginn 2. september
Auk söngflokkanna verður margt annað til skemtunar
og dans á eftir. Veitingar seldar.
Aðgangur 35 cents
•
HLJÖMLEIKAR AÐ HNAUSUM
Laugardaginn 3. september, kl. 8.30 e. h.
Blandaður kór, um hundrað og tuttugu manns og barna-
söngflokkur hundrað barna. Kvæði flytur Lúðvik
Kristjánsson og fleira verður til skemtunar og svo dans.
Aðgangur 50 cents
Gr &W
OLD RYE
WHISKY
(Gamalt kornbrennivín)
GOODERHA M & WORTS, LIMITED
Stofnsett 1832
Elzta ÍSengiagerS t Canada
25 oz.....$2.15
40 oz. $3.25
»_________________________________________________________________________________________
This advertisemcnt it« not inserted by the Government Liquor Control Commisslon.
The Commission is not responsible for statements made as to quality or products advertised
G. T. stúkan “Skuld” er nú að
undirbúa tombólu til arðs fyrir
sjúkrasjóð sinn, sem haldin verður
3. október næstkomandi. Nákvæm-
ar auglýst síðar.
♦ ♦
Föstudaginn 12. ágúst voru þau
Harold Leo Jóhannson og Mary
Taylor, bæði frá Selkirk, Man. gef-
in saman í hjónaband af séra Rún-
ólfi Marteinssyni, að 493 Lipton
St. Heimili þeirra verður í Selkirk.
♦ ♦
Veitiff athygli!
Gullbrúðkaup þeirra Eiriks og
Ólafar Jóhannson verður haldið í
I.O.G.T. Hall í Árborg sunnudag-
inn 28. ágúst, kl. 3 e. h. Böm þeirra
hjóna bjóða þangað öllum ættingj-
um og vinum.
♦ ♦
Mánudaginn 15. þ. m., voru þau
George Elmer Donaldson frá St.
James, Man. og Ólína Sigrún Paul-
son til heimilis i Winnipeg, gefin
saman í hjónaband, af séra Rúnólfi
Marteinssyni, að 493 Lipton St.
Heimili þeirra verður í Winnipeg.
♦ ♦
Mrs. Thorbjöm Johnson frá
Seattle, Wash., sem dvalið hefir
undanfarna tvo mánuði á Gimli hjá
foreldrum sínurn, þeim Mr.. og Mrs.
Erlendur Guðmundsson, lagði af
stað heimleiðis á miðvikudaginn á-
samt tveimur bömum sínum.
♦ ♦
Þeir séra K. K. Ólafson, séra
Valdimar J. Eylands, séra Egill
Fáfnis og séra Guttormur Guttorms-
son litu inn á skrifstofu Lögbergs á
þriðjudagsmorguninn, nýkomnir frá
kirkjuvígslu og prestafundi í Mik!-
ey. Létu þeir mikið af fegurð eyj-
arinnar og ástúðlegum viðtökum
Mikleyinga.
♦ ♦
Mr. og Mrs. Eggert Feldsted eru
á ferðalagi vestur við Kyrrahaf um
þessar mundir. Meðal annars hafa
þau heimsótt í Los Angeles systur
Mr. Feldsteds og tengdabróður,
Mr. og Mrs.' C. V. Green. Þau Mr.
og Mrs. Feldsted eru nýkomin til
Seattle í heimsókn til systur Mrs.
Feldsted og tengdabróður, Rev. og
Mrs. S. O. Thbrlaksson. Einnig
hafa þau heimsótt þar Dr. Fred
Thorlaksson, augnlækni. Mr. og
Mrs. Feldsted munu koma heim1 í
byrjun septembermánaðar.
♦ ♦
The Jón Sigurdson Chapter,
I.O.D.E., is endeavouring to gather
old books and magazines for the
purpose of enstablishing libraries in
schools and communities at outly-
ing points. Any books or maga-
zines suitable for young people and
children both in English or Ice-
landic will be very gratefully re-
ceived.
Kindly telqihone:
Mrs. G. F. Jónasson 401 722
Mrs. B. S. Benson 87059 or
96327
♦ ♦
íslendingar í Gimlibæ og grend,
eru mintir á að veita athygli aug-
lýsingu frá Miss Sylvíu Thrsteins-
son, sem nú birtist hér í blaðinu.
Miss Thorsteinsson er ágætur
píariisti, er notið hefir víðtækrar
mentunar á sviði hljómlistarinnar.
Hún stundaði nám hjá Miss Evu
Clare í Winnipeg, og siðastliðið ár
sótti hún framhaldsnám i píanóspili
og hljómfræði í Torntoborg við hinn
fræga tónlistarskóla, Toronto Con-
servatory of Music. Þessu jafn-
framt hefir hún haft langa æfingu
við söngkenslu í barnaskólum. Miss
Thorsteinsson er nú byrjuð á hljóm-
listarkenslu á Gimli, og má víst
telja, að þeir landar, sem söngmenn-
ing unna í því umhverfi, færi sér
hina ágætu hæfileika hennar í nyt.
Messuboð
Fyráta Lúterska Kirkja
Séra Valdimar J. Eylands
prestur
Heimili 776 Victor Street
Sími 29 017
Sunnudaginn 28. ágúst
Enginn sunnudagsskóli.
Islenzk guðsþjónusta kl. 7 e. h.
♦ ♦
Áætlaðar messur um mánaða-
mótin:
28. ágúst—Hnausa kl. 11 árd.;
Víðir kl. 8.30 siðd.
4. sept.—Geysislcirkju kl. 11 árd.;
Árborg kl. 2 síðd.; Riverton kl. 8
síðd., ensk messa. ó'. Ó.
♦ ♦
Messa í Upham, N. Dak.
28. ágúst 1938.
Kvöldmessa á íslenzku, kl. 8.
E. H. Fáfnis.
♦ ♦
Messað verður að forfallalausu
að Oakview sunnudaginn 28. ágúst,
kl. 11 f. h. og kl. 3 í kirkju Betel
safnaðar sama dag. S. S. C.
♦ +
Séra K. K. Ólafson flytur guðs-
þjónustur sem fylgir í Vatnabygð-
unum í Sask. sunnudaginn 28.
ágúst:
Westside skóli kl. 11 f. h. (fljóti
tími).
Elfros kl. 2 e. h.
Wynyard (í United Ghurch) kl.
4 e. h.
Kandahar kl. 7.30 e. h.
Á Wiesitside skóla verður flutt
stutt prédikun bæði á islenzku og
ensku. Messurnar í Elfros og Wyn-
yard á íslenzku. Á ensku í Kanda-
har.
♦ ♦
Gimli prestakall
28. ágúst—Mikley, fermingar-
messa kl. 2 e. h. (B. A. B.) ; Betel,
morgunmessa (J. B..) ; Árnes, kl. 2!
e. h. (J. B.) ; Gimli, íslenzk messa,!
kl. 7 e. h. (J. B.).
4. sept. — Betel, morgunmessa;
Gimli, íslenzk messa, kl. 7 e. h.
B. A. Bjarnason.
♦ ♦
Vatnabygðir sunnudaginn 28. ágúst:
Kl. 2.30 e. h. (M.S.T.), messa í
Mozart Ferming. — Guðsþjónust-
an fer fram1 á ensku.
Jakob Jónsson.
Miss Ragna Johnson, B.A., dótt-
ir þeirra Mr. og Mrs. Gísli Johnson,
906 Banning Street, lagði af stað
austur til Toronto á laugardaginn
var í heimsókn til systur sinnar Mrs.
Hugh Robson. Frá Toronto fer
Ragna til Ruthger háskólans í New
Jersey til þess að heimsækja þar
bróður sinn Helga Johnson pró-
fessor; hún mun verða um þriggja
vikna tíma að heiman.
♦ ♦
Kæri ritstjóri:—
Viltu gjöra svo vel að leiðrétta
eftirfarandi villur, er urðu í kvæði
mínu “Minni íslands,” í síðasta
tölublaði Lögbergs:
í fyrstu ljóðlínu fyrsta erindis
stendur: Fjallendan, lesist Fjalla-
lendan, o. s. frv. í öðru erindi 6.
línu stendur: Bergið harða knýr,
lesist: gnýr. I fjórða erindi 1.
linu stendur: Heimur líkra fræða,
lesist: Heimur slíkra fræða; úr
sömu línu hefir fallið úr orð, og j
lesist því þessi lína öll: Heimur I
slíkra fræða fær heillað sál hvers
manns. Fyrsta lína síðasta erindis
lesist: Allra þinna barna jafnt
skjöldur ert og skjól; í sjöundu línu
í sama erindi stendur: Fjalllendan,
lesist Fjallalendan, o. s. frv.
/. H. Húnfjörff.
KENSLUBÆXUR!
Skólar eru nú rétt að byrja. Bg hefi á boðstólum
skólabækur fyrir alla bekki. Einnig hefi eg til sölu
stórt úrval af bókasafnsbókum, líklega um þúsund
bindi, sem seljast við alveg heyrilega lágu verði.
Þetta ætti fólk til sveita að nota sér.—
THE BETTliR ’OLE
548 ELLICE AVENUE
INGIBJÖRG SHEPLEY
Til borgarinnar kom á fimtudag-
inn 18. ágúst, Friðrik Alex. Stef-
ánsson. Fyrir rúmu ári var hann
sendur af Marshall-Wells Co., Ltd..
til Port Artihur. Hjá því félagi hef-
ir Stefánsson unnið í 15 ár hér í
bænum, en var sendur til fyrnefnds
bæjar til að vinna þar á skrifstofu.
Er nú að heimsækja föður sinn,
systur, frændur og vini, sem eru
víst margir. Mr. Stefánsson er hér
uppalinn, er sonur Finns Stefáns-
sonar, sem nú býr á 557 Furby St.
hér í borginni, vel þektur meðal
landa vorra og mætur borgari þessa
bæjar. Gerir Mr. Stefánsson ráð
fyrir að dvelja hér nokkra daga.
♦ ♦
Sunnudaginn 21. ágúst voru 23
börn frá Grandy-bygð fermd af
séra Jakob Jónssyni í íslenzku kirkj-
unni í Wynyard. Var messan mjög
fjölmenn, og tóku þeir læknarnir
Dr. Jón Bíldfell og Dr. Magrath
lit-kvikmynd af nokkrum hluta at-
hafnarinnar' og kirkjufólkinu, þeg-
ar komið var út úr kirkjunni.
Nöfn barnanna eru:
Bertel Valdimar Gillis
Jdhn Marion Sveinbjörnsson
Finnur Thorarinn Finnsson
Gordon Erlendur Finnsson
Kristjón Jóhannes Jóhannesson
Edwin August Gillis
Francis Olgeir Erickson
Eddie William Erickson
Einar Pétur Jóhannesson
Jónas Eyþór Jónasson
Hallgrímur Jón Thorlacius
Benedikt Hilmar Gillis
Dorothy Kristjana Gíslason
Valgerður Ásta Gillis
Thorey Elizabeth Gislason
Valgerður Elizabeth Gillis
Valdís Guðríður Gíslason
Marny Guðríður Sigfuson
Guðrún Violet Gillis
Anna Aurora Johnson
Anna Margrét Gillis
Guðrún Margrét Jónasson
Lillian Doris Gillis.
Á safnaðarfundi, sem haldinn var
í Mozart sunnudaginn 14. ágúst
endurnýjaði söfnuðurinn samþykt
sína um að vera áfram í kirkjusam-
bandi Vatnabygðanna og njóta
prestþjónustu séra Jakobs Jónsson-
ar.
ROLLER SKATING
Winnipeg Roller Rink
Every Evening, Wed., Sat.
Afternoon. Instructions Free
to Learners
LET US TEACH YOU
LANGSIDE AND PORTAGE
Phonc 30 838
Þjóðræknisfélagíslendinga
Forseti: DR. RÖGNV. PÉTURSSON,
45 Home Street.
Allir Islendingar I Ameriku ættu aö
heyra til pjóðræknisfélaginu. Ársgjald
(þar með fylgir Timarit félagsins) $1.00,
er sendist fjármálaritara Guðm. Levy,
251 Furby Street, Winnipeg.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annaat greiðlega um alt, »em að
flutningum lýtur, «m&um eða
stðrum. Hvergi flanngjarnara
rerð.
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Slml |g 909
GIMLI THEATRE
Thurs., Aug. 25—8.30 p.m.
Warner Baxter, Joan Bennet
in
“VOGUES OF 1938
•
Mon., Aug. 29—8.30 p.m. -
Gail Patrick, Akim Tamiroff,
Anna May Wong in
“DANGEROUS TO KNOW”
•
Thurs., S-ept. 1—8.30 p.m.
Ronald Colman, Madelaine
Carroll, Douglas Fairbanks Jr.
in
“TIIE PRISONER OF
ZENDA”
TU þess að tryggja yður
skjóta afgreiðslu
Skuluð þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
FRED BUCKLE, Manager
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT & AGNES
The BLUE OX
Meat Market
P. LAMOND, Prop.
Phone 30 000
For the Finest in
MEATS and VEGETABLES
Free, Prompt Delivery
592 ELLICE AVE.
Islenzkar tvíbökur
og brauð — margar tegundir
af kökum og sætabrauði
GEYSIR BAKERY
724 SARGENT AVE.
Phone 37 476
Sendum vörur heim.
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelrjr
Agents for BULOVA Watchefl
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers & Jewellert
69 9 SARGENT AVE„ WPG.
Wolseley Hotel
186 HIGGINS AVE.
(Beint á mðti C.P.R. stöðinni)
SlMI 91 079
Eina skandinaviska hóteliS
í borginni
RIGHAR LINDHOLM,
eigandi
Minniát BETEL
1
erfðaskrám yðar
Samkomur Jónasar Jónssonar
Undanfarandi tíma hofir fyrverandi dómsmálaráð-
\herra Jónas Jónsson alþingismaður verið á ferðalagi
um bygðir Islendinga í Vestur-Canada og er nú stadd-
ur vestur á Kyrrahafsströnd. Er hann væntanlegur
úr því ferðalagi hingað til bæjar um 5. sept. Heimsækir
hann þá íslenzku bygðirnar innan Manitoba og Norður-
Dakota. Flytur hann erindi á eftirfylgjandi stöðum
og tíma:
Lundar, Man......Þriðjudagskveld, 6. sept.
Hayland, Man.....Miðvikudagskveld, 7. sept.
Glenboro, Man.....Mánudagskvéld, 12. sept.
Brown, Man......Þriðjudagskveld, 13. sept.
Upham, N. Dak....Miðvikudagskveld, 14. sept.
Mountain, N. D...Fimtudagskveld, 15. sept.
Garðar, N. Ddk...Föstudagskveld, 16. sept.
Selkirk, Man....Laugardagskvöld, 17. sept.
Framhaldandi samkomuhöld auglýst í næstu blöðum.
Aðgangur að hinum sérstöku fyrirlestrasamkomum 35c
Stjórnarnefnd Þjóðræknisf élagsins.