Lögberg - 13.10.1938, Side 2

Lögberg - 13.10.1938, Side 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. OKTÓBER 1938 t Vinnumenn við nám ÓlafdcUsskóli og Torfi Bjarnason Frásögn Guðmundar Bergssonar ♦♦♦♦♦ Ýtnsar greinar hafa birst í blöö- um um Torfa Bjarnason í Ólafsdal, var í tilefni af ioo ára afmæli hans nú fyrir skemstu. Þar hafa verið rak- in helztu æfiatriði og einkenni þessa merka framfaramanns. Guðjón Guðlaugsson fyrv. alþm. að Hliðarenda hér í bæ lét þess get- ið við mig, að hann hefði ekki, hvorki í greinum þeim, sem birtust í sambandi við þetta afmæli hans, né áður séð á prenti frásögn um upp- hafið að kenslustörfum Torfa. En því var hann kunnugur, og hér er frásögn Guðjóns um unglingaskól- ann að Hvoli, sem hefir verið merki- leg tilraun til að koma upp alþýðu- skóla í sveit. Guðmundur Bergsson póstfull- trúi var nemandi i Ólafsdal árin 1893—1895, og kennari þar í fjar- vist Torfa einn vetur nokkru síðar. Hefi eg átt viðtal við Guðmund um skólavist og kenslu í skýrði hann svo frá; mikil hey, að hægt væri að gefa inni alt að þvi 9 mánuði á árinu. Fyr sagði hann að á voru landi væri enginn tryggur með bústofn sinn. En með þeim miklu fyrningum sem hann hafði, gat hann altaf miðlað stórkostlega heyi handa miður stæð- um sveitungum sínum, þegar hart ári, og varð því á þann hátt bjargvættur sveitar sinnar. Þess vegna gat hann djarflega talað um heyásetning og horfelli, eins og hann líka óspart gerði. Hvernig var vinnutími í Ólafsdal? Vor og haust var vinnutiminn 8 klst., en 10 klst. um sláttinn. Aldrei var á það minst að menn snertu á vinnu á sunnudegi, nema brýn nauð- syn bæri til. Altaf var þetta 30--—40 manns í hei'mili, enda var fjölskyldan stór, börnin 9, og nemendur 12. En auk skólapiltanna var margt vinnufólk, bæði kaupafólk að sumr- inu og ársfólk. Eg kom að Ólafsdal vorið 1893. Þetta var einasti skólinn á landinu sem maður gat komist á ,án þess að þurfa að hafa nokkurt fé til að kosta námsdvöl sina. Eg hafði sótt til Vesturamtsins um inntöku í skól- Hvernig var svo kenslu og störf- um hagað að vetrinum? Bóklega kenslan stóð yfir frá 1. nóvember til aprilloka og var þann- Ólafsdal, og ! ‘S hálft árið. Þann timann áttu að vera kenslustundir og lestur til und- irbúnings kenslustunda 8. klst. á dag, en 4 klst. vinna við skepnuhirð- ingu og önnur heimilisstörf. Við skólapiltarnir vorum látnir skiftast á um störfin á veturna, vor- um t. d. eina vikuna í fjárhúsunum, ^ aðra i fjósinu og þá þriðju í hest- ann, og fekk veitingu fyrir því, sem húsunum. Auk þess áttum við oft kallað var. Var einn af þeim sex, ^ svo sem. eina klst. á dag að vinna sem komust í skólann það ár. Skól- að heimilisstörfum inni, við að inn tók 12 nemendur og voru sex í ; kemba, vefa, þæfa, flétta reipi og hvorri deild. Húsnæði í Ólafsdal þessháttar. leyfði ekki að þar væru fleiri nem- Við fjármensku og atSra skepnu- endur. hirðingu voru vinnumenn, sem voru Hvernig voíu móttökurnar i Ó1 - vandvirkir og vel að sér í þeim efn- afsdal? j um, og gátu leiðbeint okkur piltun Er við komum þangað nýsvein- ( um. En annars hafði Torfi vak- arnir tók Torfi og þaú bæði hjónin andi auga á öllu þvi, er gerðist á á móti okkur eins og við værum því sviði sem öðru. aldavinir þeirra. Það fyrsta sem hann sagði við okkur var, að við ættum að þúa sig. Við tókum strax til vinnunnar og fórum að vinna að jarðabótastörí- um. Vinnunni var að öllu leyti hagað eins og á fyrirmyndarbýli. Gekk Torfi sjálfur að venjulegum daglegum heimilisstörfum? Hann vann ekki að jarðabóta- störfum þau árin, sem eg var þar, En hann leit mjög vandlega eftir þeim öllum. Aðalvinna hans voru smíðarnar. Hann smiðaði öll bús- áhöld sem heiimilið þurfti, alt frá amboðum í plóga, herfi og kerrur. En auk þess kerfdi hann öllum skóla- piltum smíðar, þeim, sem með nokkru móti gátu lært það, og jafn- vel fleirum þeirra, en voru nokkur smiðsefni. Það var alveg furðulegt hve vel honum tókst að kenna ólag- virkum, mönnum að komast áfram við smíðarnar. Aktýgi gerði hann líka, svo hann var alt i senn, járn- smiður, trésmiður og söðlasmiður. Smíðarnar mun hann að einhverju leyti hafa lært meðan hann var í Skotlandi. Þátttaka hans í heyvinnunni var aðallega sú, að hann tók á móti hevi og kom fyrir í hlöðu og heystæði. Og þegar farið var að flytja hey- band heim að Ólafsdal utan úr Saurbæ, þá fór hann á milli með heybandið, frá Belgsárengjum og Múlabökkum.. Þetta var svo lang- ur heybandsvegur, að ekki urðu! framræslu og vatnsveitingum, þar Kenslustundir voru venjulega 4 á dag. Þá vetur sem eg var þar kendu þeir með Torfa, Hjörtur Snorrason síðar skólastjóri 0g Ellert Jóhannesson, er kendi okkur reikn- ing,- Torfi kendi mest í fyrirlestr- um. Urðum við að skrifa fyrir- lestra hans jafnframt, ef við gátum ekki fengið þá keypta hjá piltum, er verið höfðu í skólanum. Það var mikil fyrirhöfn fyrir okkur. En við töldum það ekki eftir okkur. Auk þess voru, samhliða fyrir- lestrunum, notaðar danskar bækur í kvikf járræktinni. Gátuð þið notfært ykkur dansk- ar bækur fyllilega? Það var nokkur kensla í dönsku, til þess að við gætum betur skilið kenslubækurnar. En danskan var ekki próffag. Hagfræði kendi Torfi í fyrir- lestrum, er hann samdi eftir sinni eigin lífsreynslu, svo og dönskum og enskum hagfræðibókum. ♦ Hvefnig voru burtfararprófin frá Ólafsdal ? Við tókum próf í hinum verklegu námsgreinum siðara haustið, sem eg var þar, og próf í því bóklega burt- fararvorið. Verklegt próf var tekið í þessum greinum: 1 jarðabótum. Voru nemendur látnir plægja og herfa á- kveðna skák og ganga frá henni að öllu leyti. Ennfremur var próf í farnar þetta nema 3 ferðir á dag, og það með því móti, að hann lét reiðingshestana brokka alla baka- leiðina, er þeir voru lausir. Mér skildist helzt að hann tæki sjálíur þennan heyflutning að sér vegna þess, að hann tryði vart öðrum til að hafa stjórn á honum. Þvi vand- farið var með hestana, þegar reka varð svo hratt sem hann þurfti að gera. Hve mikill var heyskapurinn i Ólafsdal ? Það man eg ekki glögt. En hægt er að gera sér það nokkuð í hug- arlund eftir áhöfn og ásetningi. Nautgripir voru 20, 20—30 hross og 450 fjár. En ásetning vildi Torfi hafa þann„að hann ætlaði 40 töðuhesta handa kúnni og 6 ærfóð- ur taldi hann í 40' hestum af góðu heyi. Hann vildi að hausti hafa svo skólum., án þess að hafa fengið þar sem nemandinn var látinn segja til um, það, hvernig ræsa skyldi land, hvernig leggja skurði, hvað djúpa o. s. frv., og hvernig veituskurði skyldi leggja. Þá var og próf í landmælingum og hallamælingum og átti nemandinn að sýna hve vel hann kynni að fara með verkfæri þau er notuð voru við þau störf og hvernig hann gæti unnið slik störf. Þá var sérstök einkunn gefin í búf járhirðingu og önnur í heyvinnu og verkstjórn. En engin próf voru beinlinis tekin þar, heldur gaf Torfi þær einkunnir eftir kynnum sínum af nemendum, svo og einkunnir fyrir reglusemi og ástundun við námið. Mér þykir það einkennilegt, bæt- ir G. B. við, að menn skuli á síðari árum hafa útskrifast úr búnaðár- Til Jónasar alþingismanns Jónssonar Við heimsókn hans til Islendimga í Vesturheimi, árið 1938. Vér fögnum þér, göfugi gestur; oss gleður þín koma hingað vestur, hér velkomin býður sinn bróður, hvert-barn vorrar hjartkæru móður, sem ætt sinni og uppruna kynnist, og Islands minnist. Þér svipar til feðranna forðum, í fáguðum spaklegum orðum, með samstilling vitsmuna og vilja þitt verksvið og köllun að skilja; í framsókn til forustu getinn, og fremstur metinn. Brt fremstur í framsókn til valda, því fegursta er velli mun halda af athöfnum mentaðra manna, svo megi það framtíðin sanna, að förlar ei fornhelgum dygðum í frónskum bygðum. Með aðferðum breyttum og bættum, til blessunar marghundrað þættum, er starf þit't á stjórnmálasviði, og stefna mót harðsnúnu liði. Með ráðsnild, sem byggist á rökum, og réttum tökum. Sú þjóð, sem á þvílíka drengi, er þrautseig og varðveitti lengi, sín dýrmætu óðul, þann anda, sem aldrei skal takast að granda, sem hatar öll kúgunar helsi, en heimtar frelsi. — — —— ‘ • Vér hyllum alt hugljúft, sem miðar til hamingju, sigurs og friðar, s(‘m tréyst getur bræðralags bandið við blessaða þjóðina og landið, sem varðveitir alt, sem vér unnum frá æsku, og kunnum. Því hvar sem vor leið kann að liggja, það land, sem vér kjósum að byggja, því verður ei haggað né hrundið, við heimalands þjóðina er bundið, hvert fyrirheit framtíðar vona frónskra sona. Hjörtur Brandsson. nokkra verklega kenslu. Fenguð þið beinlinis æfingu í verkstjórn í skólanum? Já. Við vorum látnir stjórna vinnuflokkum til skiftis, halda dag- bækur yfir það hvað hvér ynni lang- an tíma að hverju verki o. s. frv. ♦ Torfi var, eins og allir vita, ham- hleypa við hvaða verk sem hann vann. En hann var lika með af- brigðum góður verkstjóri. Hann var svo dagfarsgóður mað- ur, að ekki var hægt að kjósa séi það betra, sí spaugsamur og iðandi af fjöri og áhuga. En hann var aldei vinnuharður, að því leyti, að hann rak aldrei á eftir mönnum við vinnu. Og aldrei leiðbeindi hann okkur með þeim orðum' að við gæt- um særst af. Handleiðsla hans öll var fyrst og fremst föðurleg um- hyggja. Við skriftir var hann eins af- kastamikill og við önnur störf. Enda var það sá eini “luxus” sem hann leyfði sér, að hann hafði skrif- stofu, þar sem hann gat unnið í næði. Við undruðumst oft hve miklu hann gat komið í verk af bréfaskriftum. En hann fór að vísu á fætur á undan öðrum á heim- ilinu, og oft siðastur til hvilu. Það vakti og eftirtekt okkar pilt- anna, hve fljótur hann var að skifta um verk og klæðnað. Þó hann stundaði járnsmiðar daglega og önn- ur lík störf, var hann altaf snyrti- lega til fara utan smiðjunnar. Er gesti bar að garði, og það var oft, og hann var t. d. í smiðju, var hann á augnabliki þannig prúðbúinn, sem hann aldrei hefði komið í smiðj- una. Auk fyrirlestranna og alla sendi- bréfanna skrifaði hann mikið í blöð og tímarit. Það voru ásetingsmál og kaupfélagsmál er voru hans hugðarefni. Er kaupfélögin bárust í tal brýndi hann þetta fyrir okkur nemendun- um: Markmið kaupfélaganna er fyrst og fremst að útrýma skuldaverzpn, að viðskfitamennirnir séu skuld- lausir um áramót. En tvent þurfa kaupfélgasmenn að varast: Að blanda þessari starf- semi í stjórnmáladeilur, og að ætla sér nokkurntíma að græða á öðrum grundvelli en þeim, að þau reynist fremri kaupmönnum og verzlun þeirra. Þetta voru þær grundvallarreglur er hann liafði tileinkað sér i þeim málum. Ef eg ætti að skilgreina námið og námsdvölina, þá vil eg segja, að við Ólafsdalspiltar vorum þessi tvö ár, sem við vorum þar, vinnumenn við nám. Hann seldi húfuna og axla- höndin fyrir danska lestrarhók. Guðjón Guðlaugsson fyrverandi alþingismaður að Hlíðarenda er meðal þeirra manna, sem um langt árabil hafði náin kynni af Torfa í Ólafsdal. Eg heimsótti hann hér á dögunum til þess að fá hjá honum. frásögn um Torfa, því hann hafði gert mér aðvart um það, að þeir sem hefðu rakið æfistarf Torfa hefðu slept úr einum þætti, sem ekki mætti falla í gleymsku. Það var á árunum eftir að Torfi flutti í Ólafsdal, en áður en hann étofaði þar búnaðarskólann, að hann setti á fót unglingaskóla tvo vetur, segir Guðjón. Hann gat ekki látið tímann líða svo, að hann veitti ekki einhverja uppfræðslu. Hann var þannig gerður. Ilann þurfti að vinna eitthvað fyrir almenning. Og þess vegna kom hann'upp skóla — eða námskeið yrði slikt máske kallað nú. En Torfi bjó í Ólafsdal í 9 ár, áður en hann stofnaði þar skóla. Hann starfaði að unglingaskóla sínum veturna 1875 og 1876. Skól- inn var haldinn að Hvoli í Saurbæ. Sá staður þótti liggja betur við en Ólafsdalur, sem er afskektur í sveit- inni, en Hvoll er í miðri sveit. Þar bjó þá Indriði Gislason, son- ur Gísla Konráðssonar. Hann lagaði þar húsakynni fyrir skóla- haldið. Kenslan stóð yfir í 2 mán- uði siðari hluta vetrar. Eg var þar nemandi síðari veturinn, þá 17 ára gamall. Nemendur voru 16 í skólanum, og var skift í 4 bekki. Var raðað í bekkina eftir hæfileikum og prófum, en 3 próf voru haldin meðan á kensl • unni stóð. Lærisveinar þeir sem mest kvað að þarna voru Indriði Indriðason, sonur Indriða Gíslasonar, og Gísli ZIGZAG 5' Orvals pappír í úrvaís bók 5' SVÖRT KAPA Hinn upprunalegi þ u n n i vindlinga papplr, sem flestir, er reykja “Roll Your Own” notá. BiðjiS um( “ZIG-ZAG” Black Cover BLA KAPA “Egyptien’’ flrvals, h v í t u r vindlinga pappír — brennur sjálfkrafa — og gerir vind.l- ingana eins og þeir væri vafðir I verksmitSju. BiSjiS um “ZIG-ZAG” Blue Cover Einarsson, systursonur húsbóndans, síðar prestur í Hvammi í Norðurár- dal. Eg var í neðsta bekk til að byrja með, en 3. í efsta bekk þegar skól- anum lauk. Aðal kenslubókin var reiknings- bók Eiríks Briem. Kend var skrift eftir forskrift Torfa, íslenzka, og þeir sem lengst komust byrjuðu á dönsku. Eg hafði aldrei séð danska bók fyrri. En eg keypti mér þarna danska lestrarbók, Peter Hjorths Börneven. Hún var dýr. Piltur, sem eg þekti, þurfti í langferð um það leyti. Seldi eg honum húfuna mína, og var sama sem berhöfðaður eftir. Andvirði húfunnar fór í bókina. En það hrökk ekki. Félaga minn einn vantaði axlabönd. Eg átti’ ný axlabönd, 9g seldi þau, en fléttaði mér bönd úr uppröknuðu snæri í staðinn. Og þá gat eg eign- ast dönsku bókina. Torfi hélt okkur vel að náminu. Urðum við að sitja við allan dag- inn, nema hvað við fórum út um stund er kvölda tók, og glímdum. S.íðan byrjuðu málfundir. Við höfðum málfundi á hverju kvöldi. Torfi var á fundunum og eins húsbóndinn, Indriði. Þeir tóku báðir þátt í umræðunum. Er fram í sótti fanst Torfa að við þyrftum líka að æfa okkur í fundar- stjórn, og skiftumst við síðan á um það að vera fundarstjórar. Torfi leiðbeindi okkur í ræðu- menskunni. Eg hafði aldrei setið málfund fyr en þarna kom, með ræðum og fundarstjórn. Umræðuefni þessara funda voru um eitt og annað viðvíkjandi búnaði og daglegu lífi þeirra tíma, svo og fyrirspurnir sem við gerðum nem- endurnir til Torfa. Eitt sinn var umræðuefnið þetta, hvort betra væri fyrir unga menn að leggja stund á landbúnað eða sjó- mensku. Eg svaraði því fyrir mitt leyti eitthvað á þessa leið, að eg áleit gott að kunna hvort tveggja. Að stunda sveitavinnu um sumar- tímann og sjó þegar svo bæri undir á öðrum tímum árs. Torfa fanst eg svara þeirri spurningu vel, þó hann væri einkum hneigður fyrir búskapinn, þá væri það öllum gagn- legt að kunna að fara á sjó, þó ekki væri annað en fara út á árabát til þess að fá í soðið, þegar lítið væri um aðra björg. Það var annars ótrúlegt hve marg- víslegan fróðleik Torfi hafði jafn- an á reiðum höndum um alt er að búnaði, náttúruvisindum og þjóð- hagsfræði laut. En hann var ekki sérlega*sögufróður. Þarna á Hvols- skólanum hélt hann marga fyrir- lestra fyrir okkur. Þar á meðal talaði hann einu sinni um rafur- magn, sem var alveg óþekt fyrir- brigði hér á landi í þá daga. Vlðkynning almdnnings, og eink- um ungra manna, við Torfa sem kennara á þessum skóla, varð til þess að hann hafði fengið mikið og verð- skuldað álit sem uppfræðari og skólamaður áður en hann stofnaði skólann í Ólafsdal. Margir af pilt- ura þeim, sem voru hjá honum á Hvoli, komu á Ólafsdalsskókfnn. En eg var nágranni Torfa að kalla í mörg ár og kunnugur honum og skóla hans, og hafði því mikið tæki- færi til þess að dást að framfara- hug hans öllum og fjöri og ágætri skólastjórn. Og það sá eg oft, að þegar hann kom þangað sem menn voru við störf, þá var sem allir fylt- ust nýju lífi og fjöri. Hann var framúrskarandi verkstjóri, vann sjálfur af mikilli lægni og af því kappi, sem allir, er með honum voru, vildu taka þátt í. En glaðlyndið á dagfari öllu gat ekki verið betra. —Lesb. 4. sept. 1938. “Þankar um Stephan G. Stephansson og ljóðmœli hans” er fyrirsögn ritgerðar, sem Lögberg flytur 22. sept. þ. á., eftir T. J. Ole- son, skynugan lærdómsmann og rit- höfund af hinpi yngri kynslóð Mani- toba Islendinga, að mér er sagt. Er það góðra gjalda vert, og þjóðrækn- isspursmál þegar hinir uppvaxandi Vestur-íslendingar bæta því við mentun sína, að lesa “Andvökur” Stephans G. — fimm bækur, sem út eru komnar á meðal almennings, 1519 bls., og lesa og skilja svo ræki- lega: að að loknum lestri telja þeir sig fæci til að teikna lítt skeikula heildarmynd af skáldinu, og segja okkur hinum nákvæmlega frá hug- sjónastefnu skáldsins, víðfeðmi þess, bókmentaþekkingu, o. s. frv.; hvern- ig skáldið beitir viti og tilfinningu við ljóðagerðina, hvert kvæði sé bezt o. s. frv. Og ef einhver vill “prótestera” og draga í efa að dóm- urinn sé í alla staði réttur, þá er hin- um sania sagt, að “hann hafi bara ekki lesið Stephan.” Svona eiga hinir yngri menn að lesa og skilja Stephan — og yfir höfuð þessa fáu snillinga, sem verja lífinu til að bæta samtíð og framtíð. Eg er þakklátur þessum unga manni, fyrir þennan fjörsprett í Lögbergi; því þó að hann stígi þar nokkur ógætileg víxlspor á köflum, þá fer hann annað veifið á lýta- lausum kostum. Eg vil fara gætilega með hinn unga rithöfund, er auðsjáanlega er mannsefni, sem stendur til bóta. Það er ekki alveg sársaukalaust að eg segi honum með allri vinsemd, að eg dreg i efa, að hann hafi lesið og skilið Stephan G. nógu rækilega, til að gera sumar þær staðhæfingar sem er að finna i hinni áðurnefndu ritgerð hails. Rök fyrir þessari staðhæfingu er ritgerðin sjálf, og verð eg því til sönnunar að grípa þar niður á stöku stað, áður en eg lýk línum þessum. Mér detta nú í hug ummæli Dr. Helga Péturss, er hann lýsir “líf- tilraun” þessarar jarðar. Hann segir að framvindustefnurnar séu tvær í öllu lífj og öllum tilraunum til lífs, á þessari jörðu: “lífstefna” og “helstefna.” Helstefnu-tegund- irnar halda sér við á því, að spilla og eyðileggja lífstefnu-tegundirnar. Ef að þetta væri haft í huga, þegar um það er að ræða að draga upp myndir, lýsa og dæma stórmenni KAUPIÐ AVALT LUMBER hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVENUE and ApGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.