Lögberg - 20.10.1938, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. OKTÓBER, 1938
7
Hendurnar eru
Esaús en röddin
Jakobs
Þegar eg hafÖi lesið grein kunn-
ingja míns Mr. S. GuSmundssonar
í Lögb. 29. sept. datt mér í hug smá-
sama, sem eg las fyrir löngu síðan.
Efni hennar var á þessa leiÖ: Bóndi
nokkur hafÖi mist föður sinn, sem
hann unni hugástum, og setti að
honum ógleði mikla og hugarangur.
Skömmu síðar var hann á gangi á
þjóSveginum, fann hann þá vasa-
spegil, sem einhver ferÖamaÖur
hafði tapað. Speglar vpru þá ó-
þektir á þeim slóðum. Bóndi leit í
spegilinn og þóttist hann þar sjá
föður sinn. FærÖist þá ósjálfrátt
bros á andlit bónda, og maÖurinn í
speglinum brosti einnig. Bóndi var
hjátrúarfullur á þeirrar tiÖar vísu.
Hélt hann aÖ spegillinn væri guöleg
opinberun, sem drottinn sendi hon-
um til að láta hann vita að faðir
hans væri vef haldinn i himnaríki.
Bóndi stakk speglinum í barm sinn.
Þegar hann kom heim hafði hann
tekið aftur gleði sína og lék nú á als
oddi. Og kona hans gladdist yfir
þessum skapbrigðum bónda síns.
Engum sýndi bóndi spegilinn en
laumaðist til að líta í hann þegar
enginn sá til. Svo bar það til eitt
kvöld að konan tók eftir þvi að mað-
ur hennar var að pukrast með eitt-
hvað sem hann flýtti sér að stinga
í barm sinn, er hún kom inn. Hún
lét ekki á neinu bera, en settist við
sauma sína. Bóndi virti hana fyrir
sér og öruggur um það að hún hefði
nokkurs orðið vísari lagðist hann til
hvildar og sofnaði vært, eftir erfiði
dagsins. En konan náði speglinum
og sá þar konumynd. Leist henni
nú ekki á blikuna, því hún þóttist
sjá að bóndi væri sér ótrúr. Setti
að henni grát mikinn. Bóndi vakn-
ar við grát og kveinan konu sinnar,
en veit ekki hvað valda muni. Reyn-
ir hann að gera sig blíðan og spyr
u'tn orsökina. En konan hrynti hon-
um frá sér með illyrðum: “Þér ætti
ekki að ver ókunnugt um það, hvað
að mér gengur, þú ófyrirleitni svik-
ari, sem felur mynd annarar konu í
barmi þér, en lætur sem þá elsktr
mig. Aldrei hefði eg trúað þessu á
þig Pétur; að þú tækir aðra eins ó-
freskju fram yfir mig. Eg held
það,væri bezt fyrir þig að fara til
hennar en láta mig í friði!”
Þessu líkt fer Mr. S. Guðmunds-
syni, hann þekkir ekki myndina af
fréttaritaranum frá Edmonton eins
og hún birtist í spegli rökréttrar
hugsunar. ÞessvQgna grætur hann
svo beisklega í Lögb. 29. sept. Mr.
S. G. hefði átt að taka því heilræði
sem eg gaf honum í upphafi, að
skrifa aðeins um þau mál, sem hann
skilur eitthvað í, en ef hann vill
endilega skrifa um sjtórnmálin i
Alberta verður hann að vera við
þvi búinn að bera ábyrgð á orðum
sinum, og þýðir ekkert að barma sér
yfir því þó mér og öðrum þyki hann
litið vaxa af ritmenskunni.
II.
Mr. S. G. kvartar um að eg færi
engin rök fyrir því, sem eg hefi um
hann sagt sem fréttaritara. Um það
ætla eg ekki að þrátta. Lesendurnir
verða að dæma um það. Sjálfur
segist hann styðja alt með “óhrekj-
andi rókum” sem hann segir um
stjórnmálin í Alberta. O-jæja! Hér
er ofurlítið sýnishorn, tekið úr
Lögbergi u. ágúst.
“Allir skattar og útgjöld hafa
aukist, síðan þessi vandræðastjórn
komst til valda, svo ánauðarokið,
sem al’menningur er að sligast undir,
er nú þyngra en nokkru sinni áður í
sögu fylkisins. Stjórnin hefir svik-
ist um að borga jafnvel rentur á
lögmætum skuldum fylkisins, sem
nema fleiri hundruð þúsundum doll-
ara á ári, og sem alt af bætist við
höfuðstólinn árlega, svo skuldir
fylkisins fara óðum vaxandi. Samt
er forsætisráðherrann svo óskamm-
: I
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Amaranth, Man.............B. G. Kjartanson
Akra, N. Dakota.*........B. S. Thorvardson
Árborg, Man..................Elías Elíasson
Árnes, Man................Sumarliði Kárdal
Baldur, Man..................O. Anderson
Bantry, N. Dakota.......Einar J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash.........v.Arni Símonarson
Blaine, Wash...............Arni Simonarson
Bredenbury, Sask...............S. Loptson
Brown, Man. .............J. S. Gillis
Cavalier, N. Dakota......B. S. Thorvardson
Churchbridge, Sask..............S. Loptson
Cypress River, Man............O. Anderson
Dafoe, Sask...............J. G. Stephanson
Edinburg, N. Dak...........Páll B. Ólafsson
Edmonton, Alta................S. Guðmundson
Elfros, Sask......Mrs. J. H. Goodmundson
Foam Lake. Sask.........J. J. Sveinbjörnsson
Garðar, N. Dak.............Páll B. Ólafsson
Gerald, Sask....................C. Paulson
Geysir, Man..................Elías Elíasson
Gimli, Man...................F. O. Lyngdai
Glenboro, Man.................O. Anderson
Hallson, N. Dak............Páll B. Ólafsson
Hayland, P.O., Man.....Magnús Jóhannesson
, Hecla, Man..................Gunnar Tómasson
Hensel, N. Dakota............John Norman
Hnausa, Man...........................Elías Elíasson
Husavick, Man................F. O. Lyngdal
Ivanhoe, Minn.....................B. Jones
Kandahar, Sask............J. G. Stephanson
Langruth, Man........!.. . John Valdimarson
Leslie, Sask..................Jón Ólafsson
Lundar, Man...................Dan. Lindal
Markerville, Alta. ...........O. Sigurdson
Minneota, Minn....................B. Jones
Milton, N. Dak............Páll B. Ólafsson
Mountain, N. Dak. ........Páll B. Ólafsson
Mozart, Sask...........J. J. ‘Sveinbjörnsson
Oakview, Man............................Búi Thorlacius
Otto, Man. ......................Dan Lindal
Point Roberts, Wash...........S. J. Mýrda!
Red Deer, Alta...............O. Sigurdson *
Reykjavík, Man...............Árni Paulson
Riverton, Man.........................Björn Hjörleifsson
Seattle, WashJ................... j Middal
Selkirk, Man..............Xh. Thorsteinsson
Siglunes P.O., Man......Magnús Jóhannesson
Silver Bay, Man........................Búi Thorlacius
Svold, N. Dak............B. S. Thorvardson
Tantallon, Sask.............J. Kr.‘ Johnson
Upham, N. Dakota........Einar J. Breiðfjörð
Víðir, Man. .................Elías Elíasson
Vogar, Man..........................Magnús Jóhannesson
Westbourne, Man.........................Jón Valdimarssor.
Winnipegosis, Man.....Finnbogi Hjálmarssor, ^
Winnipeg Beadh...............F. O. Lyngdal
Wynyard, Sask.............J. G. Stephanson
feilinn að halda því fram að skuldir
fylkisins liafi ekki vaxið síðan hans
stjórn kdmst til valda. Líka hefir
stjórnin þrjózkast við að gjöra
nokkra samninga um frest og gjald-
daga á skuldum fylkisins, eins og
önnur fylki hafa gjört, sér til mik-
ils hagnaðar, bæði með lægri rentum
og svo afslætti á höfuðstól. Fyrir
þennan trassaskap stjórnarinnar er
alt lánstraust fylkisins eyðilagt. Alt
þetta ráðleysi hefir valdfð ómetan-
legu tapi fyrir almenning á öllum
sviðum. Alt, sem stjórnin, með
þessum hálaunuðu “expertum” sin-
um hefir hafst að, er að gefa út lög,
sem þeir sjálfir, eins og aljir aðrir,
vissu að voru ólögmæt, og gætu því
ekki öðlast gildi. Svo alt, sem þeir
' hafa aðhafst, hefir verið dæmt dautt
og ómerkt. Öll þessi skrípalæti
stjórnarinnar hafa kostað almerm-
| ing mörg hundruð þúsund dollara,
! og er líklegt að við það bætist enn
i rífleg upphæð, áður en fylkið getur
, losað sig við þennan loddara-flokk,
sem situr að völdum.”
Það verður gaman að sjá Mr
S. G. veiða upp úr ritgrauti sinum
“óhrekjandi rökin” fyrir einhverju
af þessum staðhæfinga spörðúm,
því það er >ekki á neins manns færi
nema hans sjálfs.
Í III.
Eg vil enn þakka Mr. S. G. þann
; góðvilja, sem hann sýnir mér með
i því að reyna að “upplýsa” mig í þvö
, sem er að gerast á stjórnmálasvið-
| inu í Alberta.. Jafnvel þó sumt af
uppfræðslunni minni mig á söguna
af karlinum, sem fór með son sinn
til prestsins, sem átti að búa dreng-
inn undir fermingu.
Prestur spurði drenginn meðal
i annars hvort hann vissi hve rnargir
dagar væri í vikunni? Jú, drengur
vissi það. En hve margir mánuðir
í árinu? Þá þagði drengurinn, en
karl faðir hans segir : “Þú ættir þó
að muna þetta, Gvendur, svo oft er
, eg búinn að segja þér: að það eru
j 12 mánuðir í árinu, og 12 tungl á
hverjum mánuði.”
IV. .
Mr. S. G. byrjar “upplýsingar”
sínar með því að segja, að það sé
hin “argasta vitleysa” að S. Cr.
hreyfingin í Alberta sé beint áfram-
hald þeirrar umbótahyggju, sem
fram kom í bændaflokknum. Jæja,
látum okkur nú sjá. Bændaflokk-
urinn var við völd í iij. ár. A síð-
asta stjórnar-tímabili hans myndað-
ist S. ,Cr. hreyfingin i Alberta
Bændafulltrúarnir “höfðu bæði
Major Douglas og Mr. Aberhart að
koma til Edmonton og skýra þetta
nýja stjórnarfyrirkomulag fyrir
stjórninni.” eins og Mr. S. G. svo
snildarlega kemst að orði. Bænda-
fulltrúrnir féllust ekki á uppástung-
ur Douglasar. Þeir treystu því að
flokkurinn væri sér samdóma og
mundi enn standa á bak við sig. Svo
var farið til kosninga, bændaflokk-
urinn kom engum manni að, en S.
Cr. fl. kornst til valda með yfir-
gnséfandi meirihluta, eða með öðr-
um orðuin bændafl. var sama sem
“þurkaður út” þó hinir fyrri fyrir-
liðar flokksins hafi getað hóað
saman einHverju fólki á það, sem
S. G. þóknast að kalla “alsherjar-
fund” og þó þeir hafi viðhaft “hörð
örð” og bannfært stjórnina, þá munu
fáiar óttast að henni stafi hætta af.
Miklu fremur munu menn brosa að
þessu “alsherjar” “bannfæringa”
masi fréttaritarans í Edmonton. Og
var það þá ekki umbótahyggja
fólksins, sem áður myndaði bænda-
flokkinn, en sem 1935 fylkti sér um
S. Cr. Ef fólkið hefði gert sig á-
nægt með kyrstöðu, hefði það falið
bændafulltrúunum að fara með
völdin, en ef það hefði verið búið
að tapa allri trú á það að umbætur
væri mögulegar mundi það hafa
kosið konservatíva eða liberala.
V.
Mér er ánægja að frétta það, að
mér beri svona vel saman við það,
sem þeir skrifa vestur þar.’ En þó
hefði eg fremur kosið að það kæmi
frá einhverjum öðrum heldur en Mr.
S. G., því eg hefi svo íitla trú á því
að hann sé fær um að gera saman-
burðinn. Eg man ekki til að eg hafi
talað um “vísindalega stefnuskrá.”
Og fyrst hann ekki skilur íslenzkuna
treysti eg ekki meir en svo við ensk-
treysti eg honum ekki meir en svo
við enskuna. Sjálfur hefi eg ekk-
ert séð af þessum “doðröntum” sem
hann talar um. Mér skilst að hann
sé að tala um nýútkomin rit en
“doðrant” þýðir “gömul bók” og á
þvi ekkert skylt við þetta umtals-
efni.
VI. '
Einnig minnist Mr. S. G. á nið-
urfærslu vaxtanna á fylkisskuldum,
virðist það vera hans heitasta áhuga-
mál, að fólkið fái að borga fulla
vexti; ummæli hans eru á þessa leið :
“Svo kemur Mr. Gíslason með þessa
aulalegu staðhæfingu um niður-
færslu stjórnarinnar á rentuní á op-
inberum skuldum fylkisins.” Þessa
athöfn stjórnarinnar telur Mr. S. G.
dauða, en sarút er hún svo lifandi,
að henni er ennþá framfylgt í Al-
berta. Stjórnin borgar ekki, og ætl-
ar ekki að borga, nema það, sem hún
sjálf ákvað, helming vaxtanna.
Síðan bendir Mr. S. G. á það að
félag í Toronto hafi höfðað mál út
af þessu og því hafi verið dæmdir
fullir vextir. Og Mr. S. G. er svo
mikið niðri fyrir, að hann hrópar
upp yfir sig: “Öll þessi lög hafa
verið dæmd dauð og ómerk----------
þorir nú Hr. Gíslason að halda þvi
1 frarn að þetta sé bara blaðalygar?”
Nei, mér hefir aldrei komið slíkt
til hugar. En Mr. S. G. skilur ekki
það, sem liann er að reyna að hafa
eftir mér. I mínum orðum felst
ekkert annað en það, að stjórnin
borgi aðeins heiming væxtanna- og á
meðan svo er, tel eg lögin lifandi, en
dóminn vera dauðan bókstaf. Til
þes^ að afsanna orð mín um þetta,
þarf Mr. S. G. að sýna fram á að
dóminum hafi verið fullnægt og
fullir vextir greiddir, en þetta mál
er ekki útkljáð enn. Eg vil taka
það fram, að hvað sem líður stjórn-
arskrá og dómstólum, þá álít eg
þessi lög (Alberta Provincial Sec-
urities Act) sanngjörn og réttlát og
mér finst að Alberta stjórninni beri
lieiður og þökk fyrir að semja þau
og framfylgja þeim. Það er fyrsta
alvarleg tilraun, sem gerð hefir ver-
ið af nokkurri stjórn í landinu, til
að losa um þau þrælatök, sem pen-
ingavaldið hefir náð á hálsi þjóðar-
innar.
VII.
Þá minnist Mr. S. G. á það, sem
hann kallart “The Press Act.”
Heldur hann auðsjáanlega að öll
þjóðin hafi skolfið af ótta út af
þessu “fasista tiltæki” og að skelf-
ingin hafi einnig náð suður um öll
Bandaríki. Og hann undrast stór-
lega að Mr. Gíslason skuli hafa get-
að sofið, meðan þjóðirnar gengu
gegnum þessar sáru raunir. Eftir
alt þetta dettur Mr. Gíslasyni í hug
að neita því, að “Caiíada þjóðin
yfirleitt” sé Jirædd við Social Credit,
Ja, fyr má pú vera aulaskapurinn.
Eg sá ýmislegt af því, sem blöðin
voru að bulla um þetta og fanst flest
af því vera nauða ómerkilegt, og út
í hött. Lög þessi fóru alls ekki fram
á neitt “Press Control” eða tak-
mörkun á prentfrelsi, eins og látið
var í veðri vaka. En Mr. S. G.
kemur með eina af sínum djúpvitru
athugunum í sambandi við þetta:
“Það var ekki auðvaldið, sem lét
mest til $ín heyra, .heldur voru það
verkamannasamtökin bæði i Canada
og Bandaríkjunum, og svo blöðin
sjálf.” Það er ekki neinn aulabrag-
ur á svona athugasemdum, karl
minn! En skyldi nú ekki auðvaldið
eiga “helztu dagblöð landsins.” Og
ef svo væri, er þá ekki eðlilegt að
raddir eigendanna komi þar fram?
Nei, ekki auðvaldið, heldur blöðin
sjálf.
VIII.
Að endingu vil eg taka upp eina
klausu enn úr þessu síðasta skrifi
Mr. S. G.: “Næst kemur S. Cr.
postulinn með þá uppgötvun: “Fylk-
ið hefir takmarkað stjórnarvald og
stjórnin hefir því ekki getað stjórn-
að eftir sinni vild.” (Þessi orð
haffii eg eftir Major Douglas, en
Mr. S. G. virðist ekki hafa skilið
það) ; því svo heldur hann áfram:
“Þarna sýnir Mr. Gíslason livað
WE'RE ALL NUTTY
HERE AND THERE
.By P. N. Britt_
FOR quite a while now, there has
been a lot of talk about “dunk-
ing.” It has even got into the
newspapers. Lots of folks think
“dunking” is disgusting, and they
don’t make any bones about it, even
when they are drinking soup or
something themselves. Maybe they
have never known that a big Chi-
cago restaurant had a gallery, for
admission to which a fee was charg-
ed, to sit and listen to folks drink-
ing soup at the tables downstairs.
Sometimes there’s just as much noise
made chewing Bill Wrigley’s sticks
as is made by the dunkers or soup-
ers. If noise annoys! As it seems
to do, if somebody else is making it.
Just now, it’s “dunking” that’s a
nuisance or a menace or something.
* * *
FOUR women were having an
argument about “dunking” down
at Saint Norbert the other after-
noon. It was while they were eating
hot dogs. A picture of a few dames
eating hot dogs seems to have a
shade on “dunking” or eating soup
sorta disorderly. But, they had quite
a discussion about “dunking,” for
which they blame university gradu-
ates very largely, for some reason
or other. And, they didn’t get any-
where with the argument. And they
let it go at that.
* * *
DOUGHNUT-DUNKING has been
approved by Emily Post, who is
to table manners what the Mar-
quis oL Queensbury was to boxing.
Informed that Mrs. Gertrude Bin-
ney Kay* had told Emerson College’s
class in social usages at Boston that
dunking is “all right at an informal
house party or a little snack after
theatre,” Mrs. Post laughed and
agreed.
“Any place that would have
doughnuts would be like a picnic
where you could do pretty much as
you pleased,” Mrs. Post said. “Of
course, you wouldn’t have doughnuts
at a formal dinner anyway.”
* * *
MRS. KAY has added that dunk-
ing was never correct under
any circumstances, “unless you
hold the doughnut between the
thumb and third finger of your right
hand.”
Mrs. Post opined, however. “It
doesn’t matter much how you hold
it. If you are going to dunk, you
are going to dunk. But dip it not
too far and soread it not too wide.”
' * * 5>
ABOUT five years after the world
war, in October. 1923, to be ex-
act, Lloyd George delivered an
address in Massey Hall, Toronto. He
told the audience that civilization
was facing destruction. “Are wars
done with,” he asked. “I wish to
God I could say ‘yes.’ ... I wish I
could . . . The next war might well
destroy civilization unless somebody
intervenes.” Well, Chamberlain in-
tervened, so old L.-G. ought to be
satisfied. But, the little Welshman
isn’t, and he just goes on talking.
* ♦ *
D.OWN in Ontario, they collect
more than twenty-eight millions,
directly from_ the motor traffic,
and they spend just a little more
than nine millions on the highways.
But, it enables Ontario to make cuts
on other taxes that are harder to
pay than the motor traffic taxes.
Hepburn uses his head, as it were,
and he doesn’t seerq to care what
anybody thinks about it. Some of
the other provinces would be get-
ting along a lot better if they could
manage to get hold of men of the
Hepburn type, maybe.
** * *
CANADA produces half the
world’s platinum. Mussolini
thought there was a lot of pla-
tinum in Ethiopia, one of the main
reasons he went after that country.
But, there’s no platinum to be found
there, so the Duco made a poor
guess.
* * *
AT Corinth, New York, last week,
a golf player swung a club that
'hit a ball that killed a cow. The
owner of the cow took a shovel and
an axe and destroyed the golf course
on his farm.
* * *
Here is a significant sign that ap-
peared outside a church in London:
“If your knees knock together,
kneel on them.”
* « »
It’s not so good in Belgium, either.
There are 150,000 more on relief
now than there were a year ago.
* * *
Lots of us still “roll our own”
cigarettes. And, since Premier De-
ladier, of France, has got into the
public eye, it is frequently noted
that he “rolls his own,” too.
* * *
GEORGE BERNARD SHAW, tall
and thin, is an avowed vege-
tarian. The late G. K. Chester-
ton, who was very stout and strong,
loved meat. One day these two
witty Englishmen met on the street.
Said Chesterton: “To look at you a
person would think that there was
a famine in England.” “And to look
at you,” replied Shaw, “he’d think
you were the cause of it.”
hann er illa upplýstur í Social
Credit kenningunni. Aberhart-
stjórnin heldur því fram að hvert
fylki sé fullveðja ríki, og að sam-
bandsstjórnin hafi engan lagalegan
rétt til að ónýta neitt af þeim laga-
ákvæðum, sem fylkisstjórnir eða
fylkisþingið afgreiði. Þetta er ein
snurðan, sem Mr. Gíslason þarf að
greiða úr.” Þarna er enga snurðu
að greiða nema á skilningsfærum
Mr. S. G. og því miður mun það
vera ómögulegt. Þó hann ekki viti
það sjálfur, þá eru þessi ummæli
hans “óhrekjandi” sönnun fyrir því,
að hann sjálfur er ekki aðeins “illa
upplýstur” í S. Cr. kenningunni,
heldur að hann hefir enga hugmynd
eða þá alranga, um það, hvað S. Cr.
kenningin er. Það kemur S. Cr.
kenningunni ekki lifandi vitund við
hvernig þeir, sem nú sitja við völd
i Alberta, kunna að líta á rikisrétt-
arstöðu fylkisins. S. Cr. kenning-
in tilheyrir hagfræði, en ekki rikis-
réttarfræði. Eg hefi áður bent Mr.
S. G. á það hvers eðlis væri frétta-
burður lians um stjórnmálin i Al-
berta; þetta hefir hann tekið illa
upp, í stað þess að gæta hins, að
“sá er vinur er til vamms segir.”
Hræðsla hans við S. Cr. virðist mér
ekki geta komið af öðru en þekking-
arleysi, ekkert orð, sem eg enn hefi
séð frá honum bendir til þess að
hann hafi reynt að kynna sér hana.
Og hann getur aldrei aukið alin við
hæð sína með því að flagga með orð
og hugtök, sem hann ekki skilur, og
háðsmerki og annað slíkt mikillæti
felur ekki þekkingarskortinn fyrir
þeim, sem betur vita. S. Cr. kenn-
ingin er umbótastefna, sem ætti að
vera athuguð með samúð af öllum,
sem umbótum unna, það er hægt að
mæla með henni og mót, en Mr. S.
G. er til hvorugs fær. Þessvegna
ætti hann að láta hana afskiftalausa,
og einnig þá, sem eru að reyna að
koma henni i framkvæmd, þangað til
hann hefir kynt sér hana svo, að
hann viti u'm hvað hann talar.
Mr. S. G. langar til að vita á
hverju eg byggi þau ummæli, að
S. Cr. eigi nú fleiri fylgjendur en
áður. Það er bygt á því, að sam-
tök eru nú hafin víða þar sem engin
voru áður, bvo sem í Quebecfylki,
þar höfðu S. Cr. sinnar sameigin-
legan fund fyrir skömmu og voru
þar mættir 3-4 hundruð fulltrúar.
Hjálmar Gíslason.
Ljúffengt skozkt Visky
Blandað og látið í flöskur í Canada undir beinu eftirliti eigendanna ADfllR & COMPANY
GLASGOW
hjá Gooderlham & Wlorts, Limited •
V::m\ .ÆKmm m 25 oz. Flaskan $2.40 40 oz. Flaskan $3.75
Að viðbœttum söluskatti ef nokkur er
This advertisement is not inserted by the Government Ldquor Control Commisslorí
The Commission is not responsible for statements made as to quality or products advertised