Lögberg - 03.11.1938, Blaðsíða 2

Lögberg - 03.11.1938, Blaðsíða 2
/ LÖGBERG, FIMTUDAGrlNN 3. NÓVEMBER, 1938 Heilög reiði og hófstilling Spámenn bera stundum eldingar á tungu sinni. íí>á segja þeir viÖ ná- unga sína: “Verið í andanum brenn- andi,” þ. e. a. s. verið ríkir af vax- andi áhuga. Hins vegar kunna þeir 0 að segja: “í rósemi skal yÖar styrk- ur vera. Náttúran er gagnauðug af and- stæðum og mannlífið sjálft sífeld bylgj uhreyfing. Það er sagt um spámenn Gyðinga og aðra leiðtoga þess kynbálks, að þeir hafi rifið klæði sin, reitt hár sitt og ausið ösku yfir höfuð sér, þegar þeim rann í skap. Þá var • “hinn brennandi andi” að verki. Norrænn andi hagar sér öðruvísi Hann er hógvær og spakvitur. Eg á ekki við berserksgang, sem er eða var nokkurskonar djöfulæði. Eg á við þann hugsvinna anda, sem skapaði Hávamál, Sólarljóð, Eddu- kviðurnar allar og Heimskringlu, ásamt fslendingasögum. Þeir hugir, sem þar áttu hlut að máli, voru í jafnvægi, sem speki hefir valdið, eða aðstoðað. Það verður eigi véfengt, að írum- herjar og forkólfar, sem beriast fyrir merkilegum málum og fram- kvæmdum, verða að vera skörungar sem sópar að. Áhuga þeirra má kalla heilaga reiði, t. d. skörungshátt Krists, þegar hann rak okrara út úr muster- inu með kaðalsvipu, af því að hann þoldi eigi, að “hinn rangláti Mam- mon” hefði helgidóminn fyrtir mauradyngju eða féþúfu. Samskonar vandlæting á enn full- an rétt á sér, þegar menn, sem kaila má með sanni glæpamenn, eru sett- ir eða látnir vera áfram í virðing- arstöðum. Þá á heilög reiði að láta til sín taka, annaðhvort með því að beita þrumum og eldingum tungunn- ar, eða þá svipu, sem sviður undan. Þegar svo her við, að stjórnend- ur lands eru valdir að slíku endemi, sökum flokks hlutdrægni, eða af þvi, að þeim er ekkert málefni heilagt, þá eiga þeir skilið, að um þá leiki eldur heilagrar reiði. sem brenni þeirn díla á baki og brjósti og á -enni.— Þvi að stundum verður eigi koin- ist hjá því, að drífa ilt út með íllu. Það gerði Þórhalli Ásgrímsson, þeg- ar hann rak spjótið í fótarmein sitt á Alþingi forðum — spjótið Skarp- héðinsnaut. En Þorgeir Ljósvetn- ingagoði ber klæði á vopnin, svo að segja — á Alþingi, þegar það lá viö borð, að mismunandi trúarskoðanir skiftu landslýðnum í tvo flokka, sem mundu berast á banaspjót. Þar kom til skjalanna samskonar andi hógværrar speki, sem stýrði pennum Heimskringlu-Snorra og Sturlu Þórðarson, sem rituðu svo óhlut- drægt um menn og viðburði og þá óróatíð, sem þeir höfðu við að stríða, að hvergi skeikar hlutleysi þeirra né sanngirni. Til dæmis um hugsvinnu Sturlu eru orð hans um er- Hann var bardagamaður, skyld- Flugumýrarbrennu, þar sem tengda- ur nddurum, sem fóru í krossferð- sonur hans beið bana, en Ingibjörg lr> tl! >ess aö verJa grof Drottins dóttir Sturlu gekk berfætt út úr eldinum í náttserk sínum. Sturla kveður þá svo að orði: “Spurðust þessi tíðindi víða og þóttu, sem var, einhver hin mestu, sem orðið hafa í voru landi, sem Guð fyrirgefi þeim, sem gerðu, af mikilli miskunn sinni.” Það ber sjaldan við, að höfundur Sturlungu reki höfuðið upp úr frá- sögninni. En þarna sér þó á enni göfugmennisins spaka, sem að kon- ungsdómi “orti betur en páfinn.” Það er fágætt, að spekingar sé skörungar. Sturlu skorti skör- ungsskap og þann skapsmunaeld, sem kveður upp refsidóm. Hann skildi, að sagnaritari er nokkurs- konar vefari, sem tekst á 'hendur að vefa úr þráðunum, sem örlaganorn- irnar hafa spunnið, og nefndur er í sögunum vefur Darraðar. Reiði herskárra manna verður sjaldan að aðalsmerki, því að hún er náskyld berserksgangi. Þó má kalla, að reiði Þrænda. sem brann yfir Hákoni Hlaðajarði dauðum, væri því næst heilög. Sú reiði staf- aði af því, að jarlinn tók göfgar konur frillutaki. Snorri segir frá þeirri heiftúð, sem Þrændir báru til jarlsins fyrir þær sakir, og bætir svo við frá sjálfum sér: “En hitt er satt að segja frá Há- koni jarli, að hann Hafði marga hluti til þess að vera höfðingi, fyrst kynkvislir stórar, þar með speki og kænleik atfara með ríkdóminum, röskleik í orrustum ok þar með hamingjuna at vega sigrinn ok drepa fjandmennina. Manna örv- astur var Hákon jarl við vini sina. En ina mestu óhamingju bar slíkr höfðingi til dánardægrs síns. En þat bar mest til er svá varð, at þá var sú tíð komin, at fyrirdæmask skyldi blótskaparinn og blótmenn- irnir en í staðinn koma heilög trú ok réttir siðir.” Speki-hugur hefir þá hamingju til brunns að bera, að orð hans geta lifað um aldir alda. Snorri inn- siglar Heimskringlu með þeim orð um um ofstopa hug, sem óð á bægsl unum fyrir iooo árum, er nú á dög- um eru jafn sönn og vel valin, sem þau voru, þegar þau voru sögð “Flokkr þessi, er Birkibeinar voru kallaðir, hafði saman samnask með f jölmenni miklu; var þat fólk hart ok lið heldr óspakt, fóru mjök geyst- ir ok rasandi, síðan þeir þótusk hafa styrk mikinn fjölmennis. Þeir höfðu í flokkinum fátt þeirra manna, er ráðagjörðarmenn væri, eða vanir væri stjórn lands eða laga, eða her at stýra; en þó at sumir kynni betr, þá vildi þó flokkurinn allr hafa þat, er sjálfum sýndisk; þóttust þeir öruggir af liðsfjölda sínum ok hreysti.” Það má segja um uppivöðsluflokka vorra tíma, að þeir eigi að vísu ráðagerðamenn — sem kunna að skara eld að sinni köku og hafa þeir múginn að forhleypi fyrir sér. Þeir þykjast eiga mikið undir liðs- f jölda sínum og höfðatölu. Á þeirri tölu er svokallað lýðræði bygt. En fjölmenni, sem er æst með lúðra- gangi, kafnar aldrei í mannviti. Eg tók þessi dæmi úr Sturlungu og Heimskringlu til að sýna nor- rænan anda í hátíðabúningi. Hátt- erni biskupanna ísleifs, Gissurar og heilags Jóns, sýnir, hvernig guðs trú og höfðingdómur geta tekið höndum saman og, fallist í faðma, þó að ofstopahugur sumra lands- manna sé á hinu leitinu að kveikja bálin. sem léku um Langahlíð og Flugumýri. En þó að vér dáumst að þessum höfðingjum, sem báru á herðum sér biskupaskrúðann og handgengnir voru göfugum hugsunarhætti, svo að þeir skiftu aldrei skapi sínu — viljum vér eigi missa sjónar af Meistara Jóni, sem sendi eldingar heilagrar reiði móti synd og f janda mannkynsins. Sá skörungur var svo handgeng- inn spámönnum guðs, og svo ná- skyldur hvernum, sem gýs, þegar honum gott þykir, að bókhneigður hugur fagnar honum eins og hann ZIGZAG 5 Orvals pappír í úrvals bók C 5' 2 Tegundir SVÖRT KAPA Hinn upprunalegi þ u n n i vindlinga pappír, sem flestir, er reykja “Roll Your Own” nota. BiSjiS um “ZIG-ZAG” Black Cover BLA KAPA "Egyptien” tlrvals, h v í t u r vindlinga pappír — brennur sjálfkrafa — og gerir vindl- ingana eins og þeir væri vafSir 1 verksmiSju. BiSjiS um “ZIG-ZAG” Blue Cover að taka hörðum tökum, því að þeir gangast eigi fyrir góðu. Ofstopinn í landi voru getur nú brosað í kampinn og verið ánægður. Ef hann rekur sig á lögregluþjón, fær hann ókeypis bílferð að Litla Hrauni og eldi þar, svo að hann fitnar — meðan réttlátir iðjumenn vinna svefnlitlir, svo að þeir eru fyrir vantrúarmönnum. Meistarinn í Skálholti gat eigi tekið þátt í þessháttar leiðangrum. En hann lét eigi undir höfuð leggj- ast, að reka Guðs réttar með því móti að vita aldarandann. Hann hafði vald á þrumum og eldingum tungunnar og hann beitti þeim fyrst og fremst, og þar næst mildum blæ fyrirgefningar — þegar þrumu- skúrin var búin að 'hreinsa loftið. Reiði getur aldrei orðið heilóg cða tígulegt nema andlega tiginbor- inn höfðingi beiti henni í þjónustu mikilvægs máls. Meistari Jón beitti henni gegn synd og óvini mannkyns- ins. Vér dáumst að snild hans í þeim hernaði. En vér dáumst eigi að árangrinum. Syndin verður aldrei yfirstígin með eldi, né óhappaverk hennar borguð með blóði. Hitt er annað mál, að glæpamenn, sem skaða einstaklinga og þjóðfé- lög, verða eigi bugaðir með speki ísleifs og Gussurar, né sætum söng Jóns biskups helga. Þá óhappa- menn, sem einskis svífast. verður grann'holda og hrukkóttir af lúa. Hvaða þýðingu mundi það hafa að bjóða landeyðunum á Litla Hrauni náðarmeðulin og senda þeim í þokkabót hreinlífar munnur til að búa um þá á kveldin — letimagana — þvo þeim um fæturna og þerra iljar þeirra með hárlokkunum, því- líkum, sem eitt sinn hrundu um fæt- ur lausnarans. Látum heilaga reiði gefa þeim iljastroku, og húðstroku hinum, sem Iétu byggja letigarðinn. Hér í landi hefir þrautseig bænda- stétt varið landið fyrir eyðingu, þegar hallæri og drepsóttir surfu að .lífinu. Þessháttar þolgæði og þrautseigla er djýrmæt þeim, sem eru nauðbeygðir til að sækja undir högg til náttúrunnar hvern spón og bita handa sér og sínum. Ekki tjá- ir að berjast við náttúruöflin með reiðihug. Varnaraðstaða bændanna gagnvart ofurefli náttúrunnar gerði fólkið þannig, að það sat á skapi sínu, því líkt sem jöklar bæla undir sig jarðeld, stundum svo lengi, að öldum skiftir. Hver einstaklingur herklæddist eftir föngum, út af fyrir sig, en þeif fylktu eigi liði til varnar og því síður til sóknar. “Tómlátur er mörlandinn,” sögðu Austmenn um íslendinga á sagnaöld. Og enn þá eru þeir seinir til við- bragða. Nú þegar útlendar öfga- stefnur herja landið, væri brýn þörf á vakandi áhuga, sem tæki möti ofstopahug, sem svífst einskis' í hernaði sínum, til þess að vinna sigra á stétt, sem er hvorki tortrygg né lygin að eðlisfari, og gerir þess- vegna ráð fyrir að loforðaríkur fagurgali *fari með sannindi — sá sem hefir hváftana tvo og bregður tungunni sínu sinni í hvorn, eftir því sem hagkvæmast er fyrir Marðarhugann, sem fitjar upp á trýnið — bak við hurð. Svo hörmulega hefir tekist til hér landi, að mikill hluti alþýðu hefir látið ósannsögli mata sig á froðu, vindi og snjó, — vinnulúin og svöng og þurfandi undirstöðu-matar. Og þó að skilningsglöggum mönnum virðist augljóst, að verið sé að draga þjóðina — alþýðuna a. m. k. — á tálar, hrekkur hún seint við til að beita heilagri reiði gegn afkomendum Loka og niðjum Leitis- Gróu, sem aldrei skortir áheyrn. Reiði getur því að eins kallast heilög, að hún hafi að baki sér eða sé tengd tiginbornum áhuga, þeim gem kýs að vernda dýrindis verð- mæti og keppist við að ná mikils- háttar takmarki. Mér er minnistæð litilmótleg reiði, sem blossaði upp norðan og neðan við bæjarvegg föður míns, þegar eg var að læra kverið. Svo bar við, að fáeinir menn komu úr kaupstað með vörusleða, hlaðna kornmat og skreið. Þeir áðu og gáfu hestum sínum hey og vatn. Einn bóndi, sem bjó við þjóðgötu og margan mann hafði hýst og saðningu gefið, brá á glens við ann- an bónda, fátækan mann og — matsáran, greip í harðfisk og gerði sig líklegan til að glefsa í fiskinn. Eigandinn þaut eða stökk upp á nef sér, flaug á náungann og skelti hon- um i frosinn hólinn og barði hann í andlitið. Þessi maður var reynd- ar hversdagsgæfur. En ef hann reiddist, vissi hann eigi sitt rjúkandi ráð. Þessi reiði og önnur eins heitir fólska. Þegar margir menn verða gripnir af henni, svo að þeir berjast með stólfótum, kolastykkjum eða hömrum, út af smámunum, sem jafngilda þorskhaus eða þunnildi, verður sú reiði, samanborin við heilaga reiði, eins og skessa and- spænis hefðarfrú. Tiginborinn áhugi, sá, sem ber fyrir brjósti þjóðarheill, kemst í mikinn vanda, þegar 'hann stendur andspænis margfaldaðri fólsku, sem óhlutvandir leiðtogar hafa æst upp. Þó að víðsýnn áhugi taki sér í munn spakmæli Sturlu og segi: '“'Guð fyrirgefi þeim sem gerðu glæpinn, af mikilli miskunn sinni” — verður eigi úr óhöppunum bætt, jafnvel þó að eilífðin sé kvödd til málanna. — “Guðunum liggur ekki á” — segir spekingur einn i austurálfu. En at- vinnuvegum þjóðar liggur ætíð á, að skynsamlega sé búið að þeim og listinni slikt hið sama. Greiða-bóndinn, sem reiði-bónd inn barði, stilti sig — eða hcfnum f éllust hendur; var þó vel að manni. Hann hefir ef til vill eigi vitað “hvaðan vjeðrið stóð á sig.” ís- lenzkir bændur hafa ef til vill eigi vitað, “hvaðan veðrið stóð,” þegar austan moldviðrið kom yfir land vort frá Svíþjóð köldu (Rússlandi) eftir styrjöldina miklu. Og þó átti nályktin, sem fylgdi veðrinu, að segja til, hvílík bölvun var á ferð- inni og blóðtaka. Hér í landi hefir tvöföld óáran gengið yfir þjóðina í mörg ár; óáran sú, sem virkur ofstopahugur ‘hefir verið valdur að, og óvirk undir- gefni, sem hefir liðið þennan ó- skunda, þó að hún hafi eigi leyft hann. Hér á landi hefir einn stjórn- andi tekið við málamyndarforystu af öðrum, en enginn þó haft þann skörungsskap til brunns að bera, sem getur tekið til svipu og reitt hana að uppivöðslu og strákskap — með afli heilagrar reiði. Þess vegna er “föðurláð vort orðið að háði” eða réttara sagt, að undri fyrir skrílæði eða þá það hátterni og framgöngu sem heimspekingurinn framdi, sá sem Hjálmar kvað um: “Með gleraugu gekk hann á skíðum, Gæfuleysið féll að síðum.” I sveitinni vantar vinnukraft hlaupadrengja og vaxinna manna. En atvinnuleysingj ar leika lausum 'hala í kapphlaupi. Þegar Helgi selseista bað Illuga frá Reykhólum um far, spurði Illug imælti: “Þat er góð íþrótt Helgi svaraði: “Eg em svá frár á fæti at engi hestur tekur mik á rás.” Illugi mælti: “Þat er góð íjþrótt þeim sem verður all-hræddur.” Menn, sem óttast atvinnuvegina, og þeir eru margir, ættu að ganga í skóla hjá Helga selseista og læra hræddra manna hraðhlaup. Svo bar við eitt sinn, að konung- urinn í Síam kom til Stórbretalands og var honum boðið að horfa á veð- reiðar. Hann þakkaði og mælti: “Eg hefi aldrei efast um, að einn hestur væri öðrum fóthvatari. En eg læt mig það engu skifta, hvað hann heitir eða hvernig hann er á litinn.” Bóndi, sem er svo lúinn í þurk- inum, að hann getur alls eigi hlaup- ið milli flekkja þó að nauðsyn krefji, lætur sig engu skifta um hlaupaiðkanir lærisveina Helga, sem bað Illuga frá Reykhólum um að fara til útlanda. En því er ver, að bóndinn er of lúinn til þess að í honum kvikni heilög reiði yfir mis- réttinum á landi voru. Skapgóður er Gunnar, en þó gat hann reiðst fyrir yðar hönd — sagði Bergþóra við syni sína. Einstaklinga Fjallkonunnar skort- ir átakanlega þann skapsmunahátt að geta reiðst fyrir hönd þjóðar- innar. Menn geta reiðst yfir sig og sína. En þó að þjóðinni sé mis- boðið, orkar sú athöfn á fárra hugi. Land vort er t. d. haft í bókment- unum að dritskeri þar sem höfundar ganga örna sinna, og þetta sker er haft til sýnis utanlands. Og fjöldi fólks gamnar sér að þesaum lestri — reiðilaust. Það er sagt um Þorlák biskup, að hann hafi aldrei hallmælt veðri. Biskupinn helgi hafði tamið skap sitt í aðra röndina, en á hinn bóg- inn var hann eigi svo háður sól og regni sem bændurnir eða sjómenn- irnir, sem eiga daglega í höggi við veðráttuna. Biskupinn sæli sat á friðstóli að því leyti. Ekkert fjall vofði yfir honum né brotsjór. En bóndanum er vorkunn, þó að honum renni í skap og blóti í sand og ösku uppivöðslu náttúrunnar, þegar ofviðri kemur yfir heyflekk hans um hásláttinn og feykir hon- um. Hann hafði áður nóg að bera, þar sem var sú byrði, er honum lá á herðum, að tilstuðlan yfirvaldanna — sveitar og ríkis. Það er rétt að fyrirgefa náttúr- unni ofbeldisverk. Hún hefir alls engin skilningarvit og er ábyrgðar- laus. En misendismönnum á ekki að líðast né fyrirgefast hverskonar athæfi. Þeirra orð og verk eiga að koma fyrir dómstól heilagrar reiði. Guðmundur Friðjónsson. —Vísir 2. okt. Dœmt málverk .... Hann kom inn, settist og mælti: “Eg heiti Brever og hefi gjört eftirlíkinguna af málverkinu “Sigurhrós sannleikans” sem hefii verið á sýningunni í Yelverton. Á- stæðan fyrir komu minni hingað er sú, að eg er óánægður með dóm yðar á málverkinu. Listdómari yðar virðist hafa misskilið tilefni mál- verksins. Hann segir — leyfið mér að lesa upp það sem hann ritar — t. d.: Á málverkinu f jærst til vinstri handar er St. Ágústínus og styður öðrum fæti á Indíána úr tré*) er liggur á jörðinni. Hversvegna að málarinn hefir dubbað St. Ágústínus upp með háan hatt og vatnsstígvél, og hversvegna hann hefir raðað skammbyssum á belti þessa helga manns, og auk þess stríðsexi Indí- ána, hefir ekki verið skýrt, en það er fremur broslegt. Sjáið þér nú til, þetta þykir mér alt of þungur dómur. Málverkið sýnir ekki St. Ágústínus, heldur hugmyndina um hin “Ótömdu öfl” er hafa fótinn á “mannvitinu”, sjáið þér til, en ekki merki tóbakssala. Hvernig í áranum að listdómara yðar fór að detta í 'hug að þetta væri St. Ágústínus er mér ráðgáta.” —Já, það er býsna óskiljanlegt. “Og leyfið mér enn fremur að vekja eftirtekt yðar á næstu máls- grein. — Þarsegirsvo: “Vér urð- um og eigi lítið forviða, er vér sáum örkina hans Nóa fljóta á vatninu og bómullarverksmiðju þar rétt hjá, og upp úr reykháfnum gusast feikn- in öll af hvítum reyk, sem breiðir sig um allan himininn á málverk- inu, en örkin er að berjast við að *)Útskorin trémynd, er á að sýna Indíána búinn til bardaga, er víða í Bándaríkjunum yfir búðardyrum tóbakssala. komast ofan um strompinn, en það er margsannað, að á þeim tíma voru engar bómullarverksmiðjur. Mal- arinn hefir ekki verið með öllurn mjalla.”— “Takið nú eftir! Mér gremst þessi ásökun! Hvað munduð þér segja ef þér hefðuð málað Babels- turninn og svo væri sagt að það væri bómullarverksmiðja, og skýin, sem klæða himinhvolfið væri reykur ? Bómullarverksmiðja, ha! ha!. Hann þekkir líklega ekki mikið til Biblíu- sögunnar, og þar sem hann segir að öskin sé að reyna að stinga sér ofan i strompinn, þá gleymir 'hann ástæð- unum fyrir því að hún rís upp á endann, sem er sú að það er mikill sjógangur, svo örkin tekur þungar dýfur, og eins og þér munið þá er þess getið í Gamla Testamentinu.” “Já, muni eg rétt, þá stendur þar eitthvað í þá átt.” “Þetta er nú ekki samt það lak- asta. Það mætti jafnvel sleppa þessu. En hvað segið þér um þetta ? Hlustið þér á: Til hægri handar ^ézt drengur íilnakinn, sem eftir líkum hefir verið að baða sig, og verið bjargað frá druknun af stór- um, gulum hundi. Vér vitum ekki hvernig þetta getur átt við “Sigur- hrós sannleikans,” en hitt sjáum vér, að- hundurinn er helmingi stærri en pilturinn, og að hundurinn hefir höfuð piltsins í kjaftinum, og pilt- urinn hefir höndurnar bundnar fyr- ir aftan bakið. — Að mála dreng, sem fer að baða sig með báðar hendur bundnar á bak aftur, og er bjargað af hundi, sem stingur upp í sig höfði hans, svo hann hafi betra hald með tönnunum, finst oss band- vitlaust.”— Yður hlýtur að afbjóða, er þér heyrið að það, sem listdómari yðar á hér við, er undurfögur eftirliking af kristnum píslarvott, sem ljón rifur í sundur og etur. Dýrið er enginn gulur hundur, og kristniboð- inn hefir ekki verið að synda og á- stæðan fyrir því að maðurinn er minni en ljónið er sú, að eg var neyddur til að mála hann svona lít- inn, svo hann kæmist með höfuðið í kjaftinn á ljóninu. Eg hefði lík- lega átt að mála ljónið á stærð við fíl, eða hvað? Eða tylla auglýs- ingu á kristniboðann, og geta þess að hann væri enginn drengur, sem hefði farið til að troða marvaða í vatninu, með bundnar hendur fyrir aftan bakið. Finst yður “þjóðvin- urinn" vera mjög uppörvandi fyrir unga listamenn? Nei, fjandinn hafi það.”— “Nei, það virðist ekki líklegt.”— “En hvað segið þér þá um þessa ádrepu. — “En það sem er sérstak- ast á “málverkinu” er þyrping næst manni. Gömul kerling með kola- kassa á höfðinu, er að rétta fáein- ar svartar pillur að danskvendi í ljósrauðum, nærksornum prjóna- fatnaði. Meðan þessu fer fram, stendur hjá þeim kvensnipt nokkur í kvenserk mjög tötraleg til fara, og veifar frá þeim flugum með hríslu. Kanarífugl situr á öxl henni og syngur í áttina til tveggja dreng- snáða hinumegin á málverkinu. Hvað þetta á að tákna vitum vér ekki, en aftur sézt því betur, að hnjáskeljarnar á danskvendinu eru innan fótar, og að kanarífuglinn sýnist hafa meiri áhuga fyrir að gleypa kolakassann heldur en syngja.” — “Hér er nú farið held- ur langt. Vitið þér hvað þessi fagra þyrping á að sýna? Gamla kerling- in — svo sem asninn nefnir hana — er hvorki meira eða minna en hernaðargyðjan sjálf, Minerfa, sem réttir ástargyðjunni fallbyssukúlur sem: merki þess að framtíðarstyrj öldum skuli linna og myndin, sem hann álitur á kvenserk er ímynd frelsisins og heldur á olíuviðar- grein í hendinni, en á öxlum hennar situr örn Bandaríkjanna, sem ógn- andi æpir heróp að féndum lands- KAUPIÐ AVALT LUMBER hjá THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD. HENRY AVENUE and ARGYLE STREET Winnipeg, Man. - Phone 95 551

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.