Lögberg - 03.11.1938, Side 4

Lögberg - 03.11.1938, Side 4
I LÖGrBERGr, FIMTUDAGINN , 3. NÓVEMBER, 1938 Hogfaerg QefiO út hvern íimtudag af I H K COLUMBIA. P R E 8 8 L I M I T K D 69 5 Sargent Avenue Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN, Editor: EINAR P. JÓNSSON VerO »3.00 um árið — Boryist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The > Columbia Prees, Limited, 695 Sargent Avenue. Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Við þjóðveginn i. Bændasamtökin í Saskatchewan og Manitoba hafa nýverið haklið ársfundi sína í Saskatoon og Brandon; bar á hvorttveggja staðnum, eins og vænta mátti, eitt og annað íhyglisvert á góma; aðstæður bænda hafa víða verið' örðugar; hafa stuðlað að því og haldist í hendur óviðráðanleg og óhagstæð náttúruöfl annarsvegar, en skortur á raun- hæfri skipulagningu viðvíkjandi afurðasölu hinsvegar; hefir það í hinu síðarnefnda til- felli valdið mkilu um, hve þokusálum stóriðj- unnar eystra svnist hafa orðið örugt, ef ekki öldungis um megn, að átta sig á þeim aðstæð- um, sem bændur í dreifbýli Sléttufylkjanna einkum og sérílagi eru háðir. Þessu til sönn- unar þykir hlýða að vitnað sé í nýleg ummæli Mr. Hepburns, þar sem hann kveinar og kvartar yfir því, að Ontario-kussa sé í þann veginn að verða þurmjólka eða jafnvel stein- geld af því að tæma sig sýknt og heilagt ofan í bændaveslingana þarna vestur á sléttunum. Mr. Hepburn stendur ekki einn uppi með þessa skoðun gagnvart Vesturlandinu; hlið- stæður þessu er hugsjónaheimur Mr. Dup- lessis í Quebec og ýmsra annara einsýnna, pólitískra afturkreistinga austan Vatnanna Miklu. Sakir hins fáránlega misskilnings af hálfu þeirra, sem í pólitískum efnum ráða ríkjum austanlands, á réttmætum kröfum bú- enda í Sléttufylkjunum var það, að á Saska- toon fundinum varð það að ráði, að nefnd yrði sett tii þess að athuga skilyrðin fyrir því, að Vesturfylkin segði sig úr lögum við Austur-Canada og setti á fót sérstætt ríki innan takmarka veldisheildarinnar brezku; lengra var ekki gengið að sinni; vænta má að alllangt verði umliðið, er nefnd þessi lýk- ur starfi og leggur fram tillögur sínar; er þá og ekki óhugsandi, að augu þeirra eystra, að minsta kosti sumra hverra, hafi opnast, er þeir horfast í augu við yfirvofandi aðskilnað eða upplausn fylkjasambandsins, og að þeir kunni að líta vitund sanngjarnari augum á málin; tíminn leiðir það að sjálfsögðti í ljós. Um það verður ekki deilt, að hagur bænda sé þröngur, og kröfur þeirra til um- bóta réttmætar; hitt hlýtur samt að orka tví- mælis, hvort aðskilnaður eða upplausn þjóð- einingarinnar geti skoðast spor í úrlausnar- átt. Hafa þeir menn, sem aðskilnaði tjást blyntir, gert sér grein fyrir því, hve víðtækra hlunninda þeir hafa notið undir vernd yfir- stjórnar fylkjasambandsins! A tímabilinu frá 1931—1937, veitti sambandsstjórn Sléttu- fylkjunum styrk, sem hljóp upp á hvorki meira né minna en $170,000,000; helming þessarar upphæðar lagði sambandsstjórn fram sem óafturkallanlegan styrk, en hinn helmingurinn var lánaður stjórnum hinna einstöku fylkja sem atvinnuleysis- og atvinnu- bótastyrkur; af upphæð þessar féllu $90,000,- 000 í hlut Saskatchewanfylkis, enda var þörf- in þar mest. tJr hvaða átt hefði mátt hlið- stæðrar f járhæðar vænta, ef fylkjasambandið var rofið? Slík spurning er eigi aðeins rétt- lætanleg heldur beinlínis sjálfsögð. Ekki verður talið líklegt, að Sléttufylkin segi sig úr lögum við Austur-Canada, þó aldrei sé í rauninni takandi fyrir neitt; að minsta kosti er tæplegast unt að vænta full- kominnar og æskilegrar þjóðeiningar meðan viss stétt þjóðarinnar, hin virðulega bænda- stétt, er sárar leikin en aðrar stéttir félags- heildarinnar.— Á ársfundi bændasamtakanna í Mani- toba, sem haldinn var í Brandon, fékk aðskiln- aðarmálið engan byr; sá fundur tjáði sig ein- dregið hlyntan lágmarksverði á hveiti, og af- greiddi fundarsamþykt, er í þá átt gekk, að skora á vestan þingmenn og sambandsstjórn, að beita sér fyrir lækkun tolla á akuryrkju- áhöldum; voru erindrekar þeirrar skoðunar, að bændur fengi ekki fyr rétt við, en kostnað- ur við afurðaframleiðsluna yrði lækkaður til verulegra muna; ránsverð búnaðaráhalda og lágvirði afurða, hefði aðeins einn endi; gjald- þrot og viðskiftahrun. — Á Brandon fundinum var staddur annar aðalritstjóri dagbl. Winnipeg Free Press, Mr. Ferguson, og flutti ræðu um utanríkismál og viðhorfið í Norðurálfunni; fórust honum meðal annars orð á þá leið, að Munich-fund- urinn, sem afhenti Hitler Sudetenland á kostnað Czechoslóvakíu hefði með því í raun og veru líka veitt Þjóðbandalaginu nábjarg- irnar; samþjóðlegt öryggi væri úr sögunni um ófyrirsjáanlegan tíma; vígvarnaæðið margfaldað — í nafni friðarins, en friðurinn sjálfur ótryggari og óvissari en nokkru sinni áður; nú hokraði hver í sínu horni þrunginn af tortryggni til nábúans. Mr. Ferguson kvaðst þeirrar skoðunar, að ekki væri það ó- tímabæ'rt fyrir canadisku þjóðina að glöggva sig á því, hvort stefna hennar í utanríkismál- um ætti ávalt og á öllum tímum að falla í sama farveg og stefna brezkra stjórnarvalda félli í þann og þann svipinn; canadiska þjóðin þyrfti og ætti að hugsa fyrir sig sjálf engu síður með tilliti til vígvarna en á öðrum svið- um; enda ætti hún ekki annars úrkosta, en byggja varnir sínar ein út af fyrir sig, því um samþjóðlegt öryggi væri ekki lengur að ræða; Munich-samningurinn hefði engu síður náð að minsta kosti óbeinlínis til canadisku þjóðarinnar en annara þjóða, að því leyti sem Canada enn teldist til hins vanmáttka þjóð- bandalags.— Afgreidd var á fundinum tillaga, er að því laut, að sambandsþing setti á fót nefnd, er það hlutverk hefði með höndum, að undir- búa allsherjarlöggjöf um uppskerutrygging- ar. II. Hinn nýdubbaði foringi afturhaldsflokks- ins, Dr. Manion, hefir verið á visitazíuferð um Vesturlandið; hann kom við í Brandon og flutti þar ræðu til hjartastyrkingar frambjóð- anda afturhaldsliðsins við aukakosninguna, sem þar fer fram hinn 14. yfirstandandi mán- aðar; fundir þessir hafa að sögn verið allvel sóttir, enda vafalaust mörgum leikið forvitni á að líta eftirmann Mr. Bennetts augum og fá að hlusta á væntanlegan gleðiboðskap hans; allmikill hluti af ræðu Dr. Manions f jall aði um atvinnuleysismálin, og að því er við- kom örlæti í loforðum, fetaði hann furðu vel í fótspor fyrirrennara síns, þó hann ekki til- tæki það alveg upp á hár hvenær hver vinnu- fær hendi yrði komin að vinnu. Dr. Manion lýsti fullum trúnaði af sinni hálfu viðvíkjandi ríkisjárnbrautunum og hét þeim fylstu vernd eftir að hann kæmist til valda, sem hann, þó skrítið sé, sýndist ekki daga í efa. 1 Vestur- landinu líðst það heldur engum átölulaust, að mæla með járnbrautareinokun.— Þann 23. október síðastliðinn voru liðin þrjú ár síðan Liberalflokkurinn undir forustu Mr. Kings tók við völdum í Ottawa; sé fullr- ar sanngirni gætt, og fult tillit tekið til allrar aðstöðu, munu skoðanir verða lítt skiftar um það, að þjóðinni hafi skilað viðunanlega á- fram út úr Bennett-kreppunni, þó hægt hafi að vísu farið; viðskifti þjóðarinnar út á við, vegna hagkvæmilegra samninga við erlend ríki, hafa tekið veruleg risastig; viðskifta- veltan út á við, hefir orðið á þremur síðustu árum nærri því tveimur biljónum hærri en hún var á þremur síð'ustu stjórnarárum Mr. Bennetts; mest hefir viðskiftaaukningin orð- ið við brezka veldið og Bandaríkin.— Atvinnuleysið í Canada er enn harla til- finnanlegt; þó er tala atvinnuleysingja því nær miljón manna lægri en hún ‘var fyrir þremur árum. Verkamálaráðherrann, Mr. Iiogers, hefir getið sér alþjóðarorðstír fyrir árvekni í embætti og margháttaða hug- kvæmni; hefir hann látið sig miklu skifta hag- kvæma uppfræðslu agskulýðsins með Youth Training námsskeiðum víðsvegar um landið, er komið hafa þegar að ómetanlegu gagni. Á fjárhagstímabilinií 1935-1936, nam tekju hallinn $162,000,000, en á þinginu í fyrra var sá tekjuhalli kominn niður í aðeins $13,000,- 000. Búskapur, sem þannig gengur, miðar ó~ mótmælanlega í rétta átt. Og þrátt fyrir þetta hefir engin stjóm önnur í þessu landi orðið að leggja aðra eins feikna f járhæð fram til styrktar almenningi vegna uppskerubrests eins og Kingstjórnin tvö síðustu árin hefir gert. Við allar þær aukakosningar, sem fram hafa farið.til sambandsþings síðan 1935, hef- ir Kingstjórnin gengið sigrandi af hólmi, og meira að segja bætt við þingstyrk sinn einu sæti við kosninguna í Victoria, er alla jafna hafði reynst eitt hið öruggasta afturhalds vígi. r r Fjórar aukakosningar verða haldnar þann 14. þ. m. Þrjú þess- ara kjördæma áttu íhaldsfulltrúa á þingi. Montreal-Cartier kjördæm- ið var í Liberal-dálki og verður þaÖ vafalaust einnig eftir þann 14. — Dr. Manion leítar kosningar í Lon- don-kjördæmi, og hefir Liberal- flokkurinn ákveðið að láta hann þar afskiftalausan. Hver verða úrslitin í Brandon? Eins og nú horfir við, er það engan veginn ólíktlegt talið, að frambjóðandi Liberalflokksins, Mr. Matthews, beri sigur úr býtum; hann var einnig í kjöri við almennu kosningarnar 1935 og tapaði þá aðeins með 207 atkvæðum fyrir Col. Beaubier, eina Bennett-postulanum, sem kosningu náði í Manitoba i þeirri orrahríð, Col. Beaubier lézt í vor sem leið, og nú er það sonur hans, sem leitar kosningar í .Bran- don undir merkjum kyrstöðuaflanna þann 14. yfirstandandi mánaðar. Ræðuhöld og ferðir Jónasar Jónssonar í Norður Dakota Eftir prófessor Richard Beck Ræðuhöld og ferðir Jónasar al- þingismanns Jónssonar í Norður Dakota voru enginn hversdagsvið- burður, því að slika gesti ber eigi að garði á degi hverjum, og fer þessvegna vel á þvi, að frá þeim sé sagt með nokkrum orðum í heild sinni. í fylgd með séra E. Fáfnis frá Glenboro kom Jónas alþingismaður til Upham siðdegis miðvikudaginn 14. september, og flutti fyrirlestur þar um kvöldið við ágæta aðsókn. Að honum loknum settust menr. að veitingum og voru margar ræður haldnar yfir borðum til hins góða gests frá íslandi. Tóku þar til máls þeir lögfræðingarnir Ásmundur Benson frá Bottineau og Nels G. Johnson frá Towner, Guðmundur héraðsdómari Grímson frá Rugby og frú harjs, og Stefán Einarsson í Upham, er einnig stýrði samsætinu. Þótti kvöldið hið ánægjulegasta í alla staði. Daginn eftir, þ. 1,. september, héldu íslendingar í Bottineau Jónasi alþingismanni miðdegisveislu, og flutti hann þar ræðu um íslenzk efni bæði á íslenzku og ensku. Ásmund- ur Benson var veizlustjóri, en Guð- mundur dómari kynti heiðursgest- inn. Var haldið þaðan til Mountain og flutti Jónas þar um kvöldið ítárlegt erindi um íslenzk atvinnumál og verklegar framfarir síðari ára. Á föstudaginn þ. 16. september, var farið með hann víðsvegar um ís- lezku bygðina í Pembina-héraði, staðnæmst á ýmsum helztu merkis- stöðum hennar, svo sem á landar- eign Stepháns G. Stephánssonar og heimsóttir nokkrir hinna elztu frum- herja bygðarinnar. Þá um kvöldið flutti Jónas, að Garðar, fyrirlestur um andlegt lif á íslandi. Var að- sókn góð bæði að Mountain og Garðar, þegar tekið er tillit til þess. að þetta var á miklum annatíma fyr- ir bygðarbúa. Ágætur rómur var gerður að fyrirlestrunum báður, en þeir voru haldnir undir umsjón Þjóðræknisdeildarinnar “Báran.” Dr. Richard Beck, vara-forseti Þjóðræknisfélagsins, skipaði for- sæti á báðum samkomunum og kynti fyrirlesarann; auk hans tók Guðmundur dómari til máls að Mountain, en að Garðar fluttu þeir stuttar ræður dr. Röngvaldur Pét- ursson, forseti Þjóðræknisfélagsins, og Gamalíel Þorleifsson, sem þakk- aði heimsóknina fyrir hönd bygðar- innar. Söngflokkar hennar sungu islenzka söngva á báðum samkom- unum undir stjórn Ragnars H. Ragnar söngkennara. I samkomu- lok voru rausnarlegar veitingar framreiddar á báðum stöðum. Á iaugardaginrr þ. 17. september héldu Islendingar i Langdon Jónasi alþingismanni miðdegisveislu, er Richard Árnason stýrði. George M. Pfice, borgarstjóri, bauð alþingis- manninn velkominn, en Guðmundur dómari kynti hann. Hélt Jónas síð- an stutta ræðu á íslenzku og ensku. Um kvöldið samdægurs var hann heiðursgestur og aðalræðumaður á ársfundi “The International Peace Garden Association,” er fulltrúar Canada-stjórnar, Manitobafylkis og Norður Dakota rikis sóttu. Var ræðu Jónasar þar mjög vel tekið og var hann kjörinn heiðursfélagi þessa merka menningarfélags. Næstu daga ferðaðist Jónas með þeim Guðmundi héraðsdómara og frú hans víðsvegar um vesturhluta Norður Dakota, en dvaldi lengst í Bismarck, höfuðstað rikisins; skoð- aði hann þar hinar helztu bygging- ar og stofnanir. William Langer rikisstjóri hélt bæði opinbera mið- degisveislu og heimboð Jónasi til heiðurs. Var P. O. Sathre, hæsta- réttardómari, veizlustjóri en Guð- mundur dómari kynti ræðumanninn. Flutti hann erindi á ensku um Is- land að fornu og nýju, sem féll í ágæta jörð hjá tilheyrendum, en þar var mannval mikið, því að margir helztu embættismanna og virðingar- manna ríkisins sátu veizluna. Þriðjudaginn þ. 20. september hélt Jónas aftur norður til Winni- peg, og var þá lokið Norður Dakota heimsókn 'háns að sinni. Leið hans lá þó, góðu heilli, þang- að aftur. Hann kom til Grand Forks þriðjudaginn þ. 11. október og hélt þar tvær ræður samdægurs. I kvöldveislu, sem blaðamensku- stúdentar ríkisháskólans í Norður Dakota (University of North Dak- ota) héldu honum til heiðurs, flutti hann stutta en snjalla ræðu á ensku, og kaus blaðamannafélag Háskól- ^ns hann heiðursfélaga sinn við það tækifæri. Dr. John C. West, for- seti Háskólans, bauð Jónas alþing- ismann velkominn fyrir hönd skól- ans, en Olger B. Burtness, fyrver- andi þjóðþingmaður, talaði fyrir hönd Grand Forks borgar. Prófessor G. Björn Björnson, háskólakennari í blaðamensku, var veizlustjóri, en dr. Richard Beck kynti alþingis- manninn. Siðar um kvöldið var hann heið- ursgestur og ræðumaður á samkomu íslendinga i Grand Forks, sem 60 manns sótti. Flutti hann þar prýð- isgott erindi á íslenzku og ensku um ísland nútíðarinnar, sem hinn besti rómur var gerður að. Undir borð- um, að lokinni ræðu lians, tóku þeir til máls Paul Johnson, skólanefnd- arformaður í East Grand Forks, G. Björn Bjömson háskólakennari, Sig. Björnson, skólaráðsmður í Grand Forks, og Haraldúr Ólafson kaup- maður frá Mountain. 9éra Hans B. Thorgrímsen stýrði íslénzkum söng, en dr. Richard Beck hafði samkomustjórn með höndum. Jónas alþingismaður notaði dvöl- ina í Grand Forks til að skoða borg- ina og þá sérstaklega til að kynnast ríkisháskólanum, sem honum þótti hinn myndarlegasti. Frá Grand Forks hélt hann siðdegis á miðviku- daginn þ. 12. október áleiðis til Boise, Idaho, til þess að kynna sér, fyrir hönd ríkistjórnar íslands. notkun hvera til hitunar á þeim slóðum. Var 'hinni eftirminnilegu komu hans til Norður Dakota þar með lokið, en hún mun mörgum minnisstæð, bæði vegna fræðandi fyrirlestra hans og alþýðlegrar framkomu hans. Við íslendingar þar í ríkinu höfum grætt mikið á komu hans. hún hefir tengt oss fastari böndum við ísland og hún hefir einnig orðið íslandi út á við til gagns og sæmdar. Dagblöðin og vikublöðin í Noið- ur Dakota, einkum hin fyrnefndu, fluttu ítarlegar fregnir af komu Jónasar alþingismanns og fyrir- lestrum hans, t. d. “Minot Ðaily News, “Bismarck Tribune” og “Grand Forks Herald”; hið síðast- nfenda, sem er annað stærsta og út- breiddasta blað ríkisins, flutti, auk margra greina um fyrirlestra hans, langa ritstjórnargrein og mjög vin- samlega í garð íslendinga. Auðsætt er þessvegna, að koma Jónasar al-1 þingismanns og fyrirlestrar hans i Norður Dakota hafa frætt fleiri en oss íslendinga um land vort og þjóð. Hafi hann kæra þökk fyrir kom- una! Frá 19. þingi Þjóðabandalagsins Eftir Guðlaug Rósinkrans Höfundur þessarar greinar Guð- laugur Rósinkrans yfirkennari, var meettur sem gestur á þingi Þjóða- bandalagsins, sem haldið var í Gen- eva í septembermánuði, á sama tíma sem striðshœttan vofði yfir Evrópu. Lýsir hann þinginu og vinnubrögð- um þess og ýmsum mönnum, er það sóttu. Oft hefir Þjóðabandalagið, á undanförnum árum verið nefnt i sambandi við deilur milli þjóða og önnur alþjóðamál. Mjög hafa kom- ið fram mismunandi skoðanir á Þjóðabandalaginu og gildi þess. Mest hefir áliti þess hrakað siðustu árin og sérstaklega eftir Abessiníu- stríðið. — “Þjóðabandalagið er steindauð stofnun,” eða eitthvað á þá leið, eru ummæli, sem ekki er ó- algengt að heyra. Ofmælt er að vísu að það sé “steindauð stofnun,” þótt það dyljist engum, að þýðing Þjóðabandalagsins á stjórnmála- svikinu og til þess að vernda frið- inn í heiminum sé mjög þverrandi. I júlímánuði síðastliðnum fékk eg boð frá Þjóðabandalaginu um að koma til Genf í septembermánuði í haust, til þess, ásamt fleiri boðs- gestum, að vera viðstaddur Þjóða- bandalagsþingið, sem jafnan kemur saman í september og kynnast þar starfsemi bandalagsins. Tók eg þessu ágæta boði auðvitað með þökkum, þar eð eg taldi það myndi verða fróðlegt að kynnast Þjóða- bandalaginu nokkuð frá fyrstu hendi. Þjóðabandalagið greiddi allan ferðakostnað fram og aftur, ásamt þriggja vikna dvöl í Genf. Boðsgestir Þjóðabandalagsins voru að þessu sinni 36 frá 35 þjóð- um. Tveir frá Bretlandi. Það hef- ir verið siður Þjóðabandalagsins nokkur undanfarin ár, að bjóða fólki víðsvegar að úr heiminum til Genf á meðan á Þjóðabandalags- þingunum hefir staðið, svo gestirnir fái tækifæri til þess að kynnast sem bezt starfsemi bandalagsins. Var þetta í fyrsta sinn, sem nokkrum Islendingi hefir verið boðið. Þeir sem boðnir voru, voru flestir áhrifa- menn í einhverjum félögum, sem vinna að samvinnu þjóða á milli. Flestir voru úr Þjóðabandalagsfé- lögunum, fáeinir frá alþjóðahjálp- arfélögum og nokkrir fulltrar sendi- sveita og utanríkisráðuneyta. Eg varð fyrir valinu frá íslandi, vegna starfs míns i Norræna félaginu í þágu norrænnar samvinnu. Að 'heiman fór eg í ágústmánað- arlok 0g kom til Genf 7. sept. Dag- inn eftir imættum við öll, sem boðin vorum, í hinni miklu höll Þjóða- handalagsins, sem án efa er ein stærsta og glæsilegasta höll, sem til er í Evrópu. Teikningu að höllinni gerðu 5 heimskunnir franskir, italskir og ungverskir húsameistarar. Bygging- in stóð yfir í 7 ár og var ekki lokið að fullu fyr en í fyrra, og kostaði 40 miljónir svissneskra franka, eða rúmlega 40 miljónir króna. Höllin stendur í stórum og fögr- ‘um garði rétt við Genfvatnið, með útsýni til Alpaf jallanna í suðvestri, þar sem hið fagra snæviþakta fjall, Mont Blanc, gnæfir hæst, logagylt í kvöldsólinni, í björtu veðri á kvöld- in. Það er dásamlegt útsýni. Borgin Genf liggur á mjög fögr- um stað við annan enda Genfvatns- ins og er vel bygð, með f jölda stórra og fallegra garða, sem prýða borg- ina ákaflega mikið. Þarna hittumst við 36 frá 35 þjóð- um. Sundurleitur hópur, hið ytra að minsta kosti. Við kyntum okkur hvert fyrir öðru og komust brátt að raun Aim, að hér vorum við saman komin frá 'hinum f jarskyldustu þjóðum. Það var Canadabúi og Kínverji, Suður-Afríkumaður og Tyrki, Ástralíubúi og Síammaður, Indverji og íslendingur o. s. frv. | Við spurðum hvert annað um lönd og þjóðir, atvinnulíf og stjórn- arfar, um heiti konunga, forseta og höfuðborga. Ekki mundi eg að höfuðborgin í Afganistan heitir Kabul og hefir 80 þúsund íbúa, og

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.