Lögberg - 03.11.1938, Blaðsíða 6

Lögberg - 03.11.1938, Blaðsíða 6
G LÖGBFiBG, FIMTUDAGINN 3. NÓVEMBER, 1938 —GUÐSDÓMUR---; • ! Hann varð mjög alvarlegur, og enda á- hyggjufullur, er hann mintist á hana, og komst Gerald þá þegar allur á loft og var eigi trútt um að Edith findist fátt um að sjá hann meta herferðina meira en sig. Hún var því vönust, að vera höfð í fyrir- rúmi fyrir öllu öðru, og þótti því drjúgum miður, er samræðan snerist öll um herförina. Uað fóru að koma smá-hrukkur kringum munninn og á milli augnanna, sem virtust henda á, að ögn væri farið að koma í skapið, en Gerald var þá því miður svo sokkinn ofan í samræðurnar, að hann veitti þessu alls enga eftirtekt. Aðeins einu sinn þagnaði hann í svip. Hann hafði spurt ofurstann að einhverju, og sneri sér þá snögglega að glugganum, til þess að benda upp í fjöllin, og kom þá auga á Daníru, sem naumast sást bak við glugga tjaldið. Það var auðsætt, að hún var mjög hugs andi og hlusaði með mestu athygli á samræð- urnar. Aðeins eitt augnablik horfðust þau þá ó- sjálfrátt í augu, ungi liðsforinginn og hún, og fanst honum það augnaráð hennar snerta sig einhvern veginn mjög óþægilega, án þess liann gæti þó gert sér grein fyrir, hvað því olli, þar sem hún leit þegar niður aftur, og datt þá hvorki né draup af henni framar, en fyr. Ofurstinn svaraði spurningum unga liðsforingjans mjög rækilega, og samræðan varð æ f jörugri og f jörugri. Edith hlustaði enn á þá í fáeinar mínútur, en er samræðan laut einatt að sama efninu, var þolinmæðinni lokið, svo að hún stóð upp og mælti hálf-gremjulega: “Komdu Daníra! Og látum þá spjalla á- fram um þessar hernaðarsakir. Við trufl- um þá aðeins, ef við erum hér inni.,r Að svo mæltu greip hún í handlegginn á Daníru, og dró hana með sér inn í næsta her- bergi. Gerald horfði forviða á eftir þeim, og hafði auðsjáanlega engan grun um glæp þann, er hann hafði framið. Arlow fór á hinn bóginn að hlæja, og mælti: “Svona hafa þær það! Við höfum víst, algjörlega gleymt návist þeirra, og nú eru þær að sýna okkur, hve gaman þeim þyki að hernaðartalinu, eða hitt þó heldur, og er það að vísu engin furða. Þú ert kominn í ónáð hjá Edith, og verður því að jafna þetta síð- ar.” Það var sem Gerald fyndist eigi mikil ástæða til þess að hraða sér með það, og svar- aði hann því ofur-rólega: “Mér þykir það mjög illa farið, þar sem cg þóttist geta vænst þess, að Edith hefði á- huga á því að mér gengi sem bezt í þessari fyrstu herför minni.,, “Hún er ef til vill hraxld um að þér hafið hugann svo bundinn við herferðina, að þér gleymið sér,” mælti ofurstinn. “Edith mín iitla er að ýmsu leyti vönust því, að mikið sé látið eftir henni, enda er hún einkabarnið.’’ “Að öðru leyti gleður það mig,” mælti ofurstinn enn fremur, “hve ant þér er um köllun þína; en gleymdu því ekki, ungi vinur, að ungu stúlkurnar ætlast til þess að unnust- arnir hugsi fyrst um þær, þó að þær meti her- frægðina mikils.” Gerald kímdi ofurlítið. “Það er rétt sem þér segið,,, mælti hann, ' ‘að ef til vill ber heldur mikið á því, hverrar stéttar eg er; en þar sem Edith er hermanns- dóttir og heitmey hermanns, og býr hér rétt hjá ófriðarstöðvunum, þóttist eg geta vænst þess, að hún léti sig málefni þetta nokkru skifta. Vinstúlka hennar virtist veita sam- ræðum okkar.öllu meiri athygli.” ‘‘Eigið þér við Daníru? Getur verið — eg tók ekkert eftir því. ” “En hverra manna er Daníra þessi?” spurði Gerald. “Hún virðist vera af slav- neskum ættum og einkiennilega útlendings- leg á svipin.” “Það leynir sér ekki,” mælti ofurstinn, og hnyklaði brýrnar. “Rétt til getið, að hún er þeirrar þjóðar, sem vér eigum nú í höggi við; en hún var kornung, er hún kom á mitt heimili, og hefir að öllu leyti fengið sama uppeldi sem Edith og verið sem dóttir á heim- ili mínu, og eigi haft umgengni við aðra, og þó er hún enn alveg slavnesk í anda; eðlis- farið breytist hvorki með góðu né illu.” “En hvernig atvikaðist það, að þér tókuð hana til uppeldis? Gerðuð þér það af fúsu geði?” “Það er nú eins og það er tekið,” svar- aði ofurstinn. “Þegar eg fékk embætti mitt hér, var uppreisnin, sem þá var, í rénun, þó að smá-bardagar yrðu öðru hvoru uppi í f jall- lendinu. I eirium þessara smá-bardaga varð einn uppreisnarforinginn sár og var fluttur hing- að sem bandingi. Fáum dögum síðar kom kona hans hing- að, og með henni tvö börn þeirra hjóna, og var henni leyft að stunda hann, samkvæmt beiðni hennar.” Maðurinn andaðist af sárum og konan sýktist af hitaveiki, sem þá gekk allskæð í sjúkrahúsum vorum, og fylgdi því manni sín- um skömmu síðar í gröfina, svo að börnin, Daníra og bróðir hennar stóðu munaðarlaus í heiminum.” Enda þótt Gerald heíði áður að líkindum þótt litlu skifta hverra manna Daníra var, vakti þó saga ofurstans, um ætt hennar, at- hygli hans, svo að hann hlustaði á með mesta ahygli, er ofurstinn hélt áfram máli sínu á þessa leið: “Mér og liðsforingjum mínum kom sam- an um að það væri mannúðar- og heiðurs- skylda að annast uppeldi munaðarleysingj- anna og tók eg þau því á heimili mitt; en einn morgun, nokkrum vikum síðar, var drengur- inn horfinn?” “Var hann flúinn?” “Það hugðum vér fyrst,” svaraði ofurst- inn, “en seinna komumst vér að því, að frændur hans höfðu pumið hann á brott, og að líkindum hefðu örlög Daníru orðið söm, ef hún hefði eigi sofið í sama herberginu sem Edith. — Þeim hefir þótt það óvirðing að láta höfðingjasoninn vera í vorum vörzlum, en um telpuna gerði minna til, enda er kven- fólkið ekki í miklum metum hjá þeim.” “Og hún var svo áfram á heimili yðar?” “Já, eftir beinni ósk konurmar minnar sálugu, ” svaraði ofurstinn. “Mér var það strax þvert um geð, og reynslan hefir sýnt, að skoðun mín var rétt, því að þrátt fyrir alla umhyggjusemi og vináttu, þá er hún enn eftir öll þessi ár sami gesturinn hér á heimil- inu og enda jafn óviwveitt í vorn garð, eins og fyrsta daginn sem hún var hér, og ef eg vissi ekki að Eidith mín, með alla lífsgleðina og áhyggjuleysið, lætur ekkert ilt hafa áhrif á sig, þá hefði eg fyrir löngu bundið enda á vináttu þeirra.” “Mér er heldur ekkert um svona óskilj- anlegar manneskjur, ” greip Gerald fljótlega fram í. “Eg leit áðan í svip í augun á henni, og virtist mér þau sem næturdimman, rétt áður en óveðrið dynur yfir. — Edith virtist mér á hinn bóginn líkust björtum vordegi, en að vísu vordegi—með óstöðugu apríl-veðri.” Ofurstinn skellihló að samlíkingu þess- ari. “Þú hefir þá þegar tekið eftir því,” mælti hann. “ Já, hún er dutlungafull eins og apríl-dagur, regn og sólskin á sömu mínút- nnni! En eg get fullvissað þig um það, að sólskinið er yfirgnæfandi, takist þér aðeins að ginna það fram úr skýjunum. Flýttu þér nú að finna hana, svo að ekki verði neitt úr jæssum ágreiningi. Þið sættist víst bezt, ef þið eruð ein.” Að svo mæltu kvaddi ofurstinn tilvon- andi tengdason sinn vingjarnlega og gekk burt. Gerald hafði að vísu alls eigi hugkvæmst að hann þyrfti að biðja nokkurrar afsökunar, en svona greinilega bendingu gat hann þó eigi látið sem vind um eyru þjóða, enda sá hann og að það var satt, sem ofurstinn sagði, að óheppilegt væri að nokkurt ósamræmi kæmi þegar upp á milli þeirra. Ilann sneri því að hliðarherberginu, þar sem hann þóttist vita að ungu stúlkurnar myndu enn vera. Svo var sem koma hans kæmi eigi á ó- vænt, því að hann varð þess áskynja, að ein- hver þaut burt sem hræddur fugl, og sá ljós- leitan kjól hverfa inn um dyrnar á næsta herbergi. Auðsætt var þó, að flóttinn var eigi í al- vöru, því að auk kjólsins sást einnig smágjör fótur í dyrunum, og leyndi það sér því eigi að sá sem fótinn átti, stóð á hleri. Daníra var þar í herberginu og sneri Gerald því máli sínu að henni og mælti: “Mig langar til þess að tala við Edith nokkrar mínútur. Eg hélt að hún væri hérna ennþá. ” “Editili þefir höfuðverk og vill því vera ein. Hún getur því eigi hitt yður að máli fyr en sezt verður að borðum.” Meðan Daníra þuldi þetta, vék hún sér ögn til hliðar eins og hún byggist við, að liðs- foringinn myndi engu að síður brjótast inn, þar sem hann hlaut að hafa séð Edith, og skilja að þetta var aðeins í því skyni gjört að gjöra honum örðugra að öðlast fyrirgefn- ingu fyrir brot sín. Gerald leit og þangað sem Edith var, en teygði svo aðeins hermannlega úr sér og mælti: ‘ ‘ Þá bið eg yður að bera ungfrúnni kveðju mína.” Að svo mæltu gekk hann burt, án þess að líta við. Hann var naumast farinn út úr lierberg- inu er Edith kom inn aftur. 1 andliti hennar lýsti sér fremur undrun en gremja, og var sem hún skildi eigi ofaní- gjöfina. ‘ ‘ Hvað ? Er liann farinn ? ’ ’ kallaði hún reiðilega. “Hann hlaut þó að sjá að eg stóð hér rétt við dyrnar og beið hans. — En hann hefir líklega ekkert kært sig um að finna mig. ’ ’ Daníra ypti öxlum. ‘ ‘ Eg er hrædd um að þér veiti örðugt að “venja” þenna mann,” mælti hún. “Hann er ekkert barna-meðfæri; það var það sem hann var að sýna þér áðan.” Edith stappaði fætinum í gólfið eins og óþekt barn. . ‘ ‘ Það er sem eg sagði, ’ ’ mælti Edith, ‘ ‘ að hann vill gera sig viðurstyggilega herralegan. En það fór honum nú annars ekkert illa, því að hann var ári hermannlegur þegar hann gekk burt.” Um leið og hún sagði þetta, fór hún að reyna að herma eftir göngulagi Geralds, en gat þó eigi komið Daníru til að brosa minstu vitund. “Varaðu þig á þráinu í honum,” mælti hún blátt áfram og alvarlega. “Þér mun veita full-örðugt að vinna sigur á því. ” -f Það voru nú liðnar nálega þrjár vikur síðan hersveitin kom og allur þorri hermann- anna var þegar farinn til ófriðarstöðvanna, enda þótt liðsflokkur Geralds væri enn í Cattaro. Hann var því orðinn all-óþolinmóður þar sem hann og menn hans voru í bráðina í kastalanum, er gnæfði þar yfir borgina, og höfðu eigi annað að starfa en að gæta nokk- urra herfanga. Þð var létt vérk og gat hann því daglega setið tímunum saman hjá unnustu sinni og neytti hann þess auðvitað. Einn dag, snemma morguns, er þokan grúfði yfir f jöllunum og flóanum og fáir voru enn á ferli nema stöku skipstjórar og verka- menn, var Jörgen Moos á gangi í einkennis- búningi sínum. Hann hafði náð í einn af skipstjórunum og var eitthvað að reyna að tala við hann, en þar sern skipstjórinn skildi ekki annað tungu- mál en slavnesku, og bendingar urðu þýðing- arlitlar, gekk Jörgen burt í illu skapi, muldr- andi eitthvað um fábjána, er ekki skildu tyrolsku. En er hann gekk í þessum þönkum, heyr- ir hann alt í einu að sagt er: “Er eigi sem mér sýnist, að þarna gangi Jörgen Moos, minn ungi vinur?” Jörgen hrökk við og sér þá standa hjá sér mann einn, hávaxinn í munkabúningi. Maður þessi var alvarlegur á svip, og hrukkur komnar í andlit lionum, en þó var svipurinn fremur þýðlegur, augun hýr og góðleg og röddin einkar viðfeldin, er hann mælti: “Góðan daginn, Jörgen! Guðs friður fylgi þér!” Það lá við að Jörgen stykki í loft upp af kæti, en í stað þess hneigði hann sig virðu- lega og kysti á hönd munksins. ‘ ‘ Leonhard! Velæruverðugi f aðir! ’ ’ mælti hann. “Hverjum gat til hugar komið að þér væruð hér staddur? Eg hugði að þér væruð enn í Tyrol, í náttúrufegurðinni þar, sem kristnir menn aðrir.” “Nú, það verður varla sagt að eg sé kominn til heiðingja, þar sem fyrsti maður- inn, sem eg hitti hér í Cattaro er eitt af skriftabörnunum mínum,” svaraði munkur- inn brosandi. “Eg kom hingað í gær, og á að vera hér herprestur í stað Antons, sem eigi þolir loftslagið.” Það lifnaði heldur en ekki yfir Jörgen, er hann heyrði þetta. “Þér farið þá með oss?” mælti hann. “Guði sé lof, að þá er maður þó ekki eins einmana í þessari eyðimörku, sem þeir kalla Krívoscie, ekki fallegra en það nafn er, enda er þar ekkert nema grjót, ræningjaskríll og geitfénaður, en lítið um mat og því síður að nokkuð fáist sem unt er að væta kverkarnar í; og þó að maður leggist rólega til svefns að kvöldi, þá er sízt að vita nema maður vakni höfuðlaus að morgni.” “Sorglegt ástand, ef svo væri,” svaraði munkurinn. “En hvað ert þú annars að starfa hér í Cattaro, þar sem hersveitin kvað þegar löngu vera farin?” ‘ ‘ Gerald, eg og um fimmtíu manna, erum látnir vera hér í kastalanum fyrst um sinn, til þes’S að gæta nokkurra þorpara, sem tekn- ir hafa verið sem fangar. — Gerald er bál- vondur út af þessu, en hvað stoðar það?” “Gerald von Steinach?” spurði munkur- inn. “Eg hélt ekki að honum leiddist hér þar sem Arlow ofursti er kastalavörður eða setu- liðsstjóri.” “Mín skoðun er nú samt að hann kysi heldur að fást við vilimennina uppi í f jöllun- um,” svaraði Jörgen stuttlega. “Hvers vegna? Er unnusta hans ekki hér í borginni?” “Jú, það er hún,” svaraði Jörgen, “og trúlofuð eru þau, það er áreiðanlegt, en mér lízt samt ekkert á það.” Leonhard munki brá sýnilega er hann heyrði þetta. “Hvað er það, sem þér ekki lízt á? Lízt þér ekki á brúðina?” “Jú, það veit hamingjan!” svaraði Jörgen hrifinn. “Ungfrú Arlow er dugleg- asta stúlka, sí-kát og gamansöm. Hún er mér einnig mjög góð; og eg verð einatt að vera að segja henni sögur frá Tyrol, enda er hún borin þar og barnfædd. — Já, það er víst um það að hana lízt mér vel á.” “En hvað áttirðu þá við áðan?” spurði munkurinn. Jörgen varð hálf-vandræðalegur og fór að fikra eitthvað við hrokkna hérið á sér. “Eg veit það ekki gjörla,” svaraði hann loks. ‘ ‘ Gerald kyssir oft á hönd henni, færir henni blómsveiga og ríðúr eða ekur með henni. En væri hún unnustan mín, þá myndi eg nú hafa það nokkuð öðru vísi.” ♦ “Því get eg vel trúað, ” svaraði munkur- inn og kímdi ögn. “En barónar haga sér öðru vísi í þeim sökum.” “Hverju orði sannara, ” svaraði Jörgen, “ en sé maður í raun og veru ástfanginn mun þó skifta minstu hvort unnustinn er bóndi eða greifi, en sökin er, að Gerald er víst f jarska lítið ástfanginn. Sem sagt þá er eitt- hvað athugavert við það mál og væri vel ef þér gætuð lagfært þetta.” Munkurinn bandaði frá sér með hendinni og mælti: “Nei, Jörgen, það verða þau að jafna sjálf, og fer eg ekki að blanda mér í það. Þau kynnast betur og þá kemur ástin af sjálfu sér, enda er Gerald staðfastur í sér, og dreng- ur góður.” “ Já, það er hann og því miður um of,” skrapp fram úr Jörgen. “Honum hafa víst aldrei orðið nein heimsku-pör á, en það finst mér þó, að mönnum þurfi að verða; liitt er mjög óeðlilegt. ’ ’ ‘ ‘ Þu hefir fært sönnur á þá skoðun þína,” svaraði munkurinn, “enda eru nú gömlu foreldrarnir þínir milli vonar og ótta beima, sakir léttúðar þinnar, og beiddu mig því að gefa þér auga og minna þig á hverju þú hefðir heitið þeim er þú kvaddir þau. — En hvernig stendur á kúlunni, sem er þarna •á enninu á þér?” Jörgen greip um ennið, og þrýsti húfunni betur niður. ‘ ‘ Það er eigi þess vert að um það sé tal- að,” mælti Jörgen. “Þetta var rétt til gam- ans og til þess að týna ekki niður. —- Annars var það Bertel, sem upptökin átti, og sló mig hnefahögg, en fékk sex högg í staðinn, svo að hann ræður naumast aftur á mig næsta daginn.” “Þú ert óbetranlegur, Jörgen,” mælti munkurinn alvarlega, en lengra komst ekki hegningarræðan, því að í sömu svipan kom Gerald til þeirra og heilsaði munkinum glað- lega og hálf-forviða, þar sem hann átti hans enga von. Þeir spurðu nú hvor annan almæltra tíð- inda og þar sem munkurinn kvaðst ætla að fara á fund setuliðsstjórans til að heilsa hon- um, bauðst Gerald til að fylgja honum. Fyrst sneri Gerald sér þó að Jörgen og mælti: “Hefir verið beðið um múldýrin á þeim tíma, sem til var tekinn?” “Já, eftir hálftíma skulu þau vera við dyrnar á húsi ofurstans.” “Agætt! Eg ímynda mér að stúlkurnar verði þá einnig til.” Þeir fylgdust nú allir til heimilis ofur'st- ans og spjölluðu á leiðinni við munkinn. Þó að enn væri snemma morguns, voru þó allir komnir þar á fætur, og voru í óða önn að búa sig í skemtiför sem ráðgerð hafði verið kvöldið áður. Edith vra enn ein í rúminu, því á síðustu stundu hafði það dottið í hana að neita að vera í förinni. Henni leizt illa á veðrið, þótti vegurinn of langur, ferðin of örðug, og kvaðst því hvergi fara og var faðir hennar því að reyna að fá hana ofan af þessari fyrirekt hennar með liógværum fortölum. “Vertu nú skynsöm, barnið mitt,” mælti hann. “Hvað heldurðu að Gerald hugsi, ef þú situr heima? Hann hlýtur að halda að þér standi á sama um hann.” “Eins og honum um mig,” svaraði liún. ‘ ‘ Gott, þá erum við skilin. ’ ’

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.