Lögberg - 17.11.1938, Blaðsíða 4
4
LÖGBER/G, FIMTUDAGINN 17. NÓVEMBER, 1938
--------------- Högberg ----------------------------
GefiS flt hvern fimtudag af
THK COIiUMBIA PRESS, IAMITKI)
(195 Sargent Ave., Winnipeg, Manltoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBBRG, 69 5 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Editor: EINAR P. JÖNSSON
Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram
The ‘‘Lögberg” is printed and published by The Columbia Press,
Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
Héðan og handan
Ellefti nóvember er um garð genginn; dagurinn, sem
helgaður er minningunni um vopnahléið 1918, og hinum
mörgu og mætu sonum þessarar þjóðar og annara banda-
þjóða, er líf sitt létu í heimsstyrjöldinni miklu; þeim ægi-
legasta hildarleik, sem sögur fara af; að minning þeirra
sé í heiðri höfð, er borgaraleg skylda en engin dygð; þeir
létu líf sitt fyrir málstað, sem þeir töldu þess verðan að
fórna fyrir hverju sem var; málstað helgra mannréttinda;
málstað frelsisins á jarðríki; málstað kristninnar um
ævarandi bræðralag manna á meðal; málstað þess alls,
sem fórnandi væri blóði fyrir; það er ekki þeirra sök, þó
sá málstáður, sem þeir fórnuðu lífi fyrir hafi síðan verið
að vettugi virtur, og lægstu hvatir mannlegrar græðgi
fengið yfirhönd; þeir gengu dauðanum á hönd í þeirri
fullu vissu, að ekki hefði verið til einkis barist. En
hvernig horfa svo málin við í dag? Yfirvofandi blikur
og bakkar sýnast færa illu Jieilli alþjóð manna heim sann-
inn um það, að 11. nóvember 1918 hafi einungis táknað
tímabundið vopnahlé í stað varanlegs friðar.—
Að undirskrifuðu vopnahléi var tekið að semja um
frið, þó með því væri í raun og veru verið að semja um
nýjan ófrið. Versalasamningarnir voru ekki samningar
um framtíðarfrið; ekkert það musteri mannlegra athafna,
sem grundvallað er á hefndarhug, eins og þeir samningar
voru, getur í nokkru formi haft blessun í för með sér;
þar verður alt annað efst á baugi; hvort mannleg skamm-
sýni hafi nokkru sinni komist á hærra sjtig en hún komst
í Versölum meðan friðarsamningarnir voru á döfinni,
verður að minsta kosti ávalt álitamál. Hjálmar frá Bólu
var oft og einatt næsta markviss. Eftirgreindar ljóð-
línur hans má réttilega heimfæra upp á Versala-farganið:
‘ ‘ Halda þar daglegt hreppaþing
heimska, illgirni og svívirðing. ’ ’
Mannkynið er nú daglega að súpa seyðið af þvi
hvernig í pottinn var búið í Versölum að lokinni styrjöld.
Af liinum svonefndu friðarsamningum í Versölum,
eða liinu upprunalega formi þeirra, er nú hvorki eftir
tjándur né titur. Hitler sá um það. Og Þjóðbandalagið,
sakir sviksemi og fláttskapar guðfeðra sinna, flakir í sár-
um merglaust og máttarvana. Þarna er þá niður kominn
samanlagður árangur vitfirringarinnar í Versölum, sem
friða átti heiminn. Ekki var von að vel færi.
-t- -f ♦
Fyrir fáum dögum framdi unglingspiltur af Gyð-
ingaætt glæp í París; hann skaut á einn af embættis
mönnum þýzku sendisveitarinnar þar í borginni og særði
hann svo alvarlega að maðurinn lézt skömmu síðar; pilt-
urinn játaði þegar á sig sök og kvaðst hafa gripið til
þessa örþrifaráðs til þess að ná sér niðri á Hitler fyrir
það að hafa gert foreldra sína landræka úr Þýzkalandi;
pilturinn situr í varðhaldi og bíður dóms. Með atburð
þenna sem átyllu, hefja þeir Hitler og Goering svo brjál-
æðislegar árásir á Gyðinga í Þýzkalandi, að heimurinn
stendur á öndinni yfir, og er slíkt sízt að undra. Band-
óðum múgi er sigað á Gyðingahverfin í stórborgum
Þýzkalands, þar sem alt er brjálað og bramlað; híbýli
Gyðinga eru jöfnuð við jörðu, og svo gengið frá sölu-
búðum þeirra, að ekki stendur steinn yfir steini. Ofan á
alt þetta bætist svo það, að stjórnin krefst $400,000,000 í
skaðabætur af Gyðingum fyrir það, sem spellvirkjar henn-
ar höfðu fært úr lagi fyrir þeim. Þessi sálarfræði mun
vera einstæð í sögunni, og hvergi fyrirfinnanleg nema í
ríki Hitlers. En Hitler lét ekki staðar numið með þessu,
heldur bætti hann gráu ofan á svart með því að leggja
löghald á alt það fé, er Gyðingar áttu í bönkum á Þýzka-
landi; auk þess er krafist, að þeir láti tafarlaust reisa þau
hús af nýju, sem voru eyðilögð, og gera við öll önnur, og
þetta eiga þeir að borga úr eigin vasa eftir að búið er
að ræna þá hverjum skildingi. Hvað verðtir um þessa
menn! Því voru þeir ekki skotnir í stað þses að senda
þá í þúsundatali á vonarvöl ?
Allir menn eiga sameiginlegan fæðingarrétt; allir
sömu mold að móður. Gyðingar eru þar engin undan-
tekning. Ofsóknir Hitlers á hendur þeim, kóróna djöful-
æði allra alda.
Fá orð í fullri
meiningi
Verðmæti og langmæli eiga ekki
ávalt samleiS; ein einasta vísa get-
ur oft og einatt átt lífrænni tilveru-
rétt en loöin, aS nafni til rímstuSl-
uð lángavitleysa; stutt ávarp í ó-
bundnu máli, verður þráfaldlega á-
hrifameira en langur ræðulopi; fá-
yrt minningarorS um látinn vin
auðugri að huggun í sorg en slepju-
leg og innihaldslaus mærð. Og
venjulegast hitta þeir bezt í mark,
sem stilla orðum sínum í hóf, og
hnitmiða þau við tilgang og efni.
Þórliallur biskup Bjarnason var
fyrirmynd sinnar tíðar að því er
við kom ljósri og kjarnyrtri fram-
setning í óbundnu máli; sumar ó-
gleymanlegustu ritgerðir hans í
Kirkjublaðinu voru ekki nema
fjórir til fimm þumlungar, og með
þessum hætti varð liann flestum
markvissari; . mælgi var honum
hrein og bein viðurstygð. Þróttur
íslenzkunnar nýtur sín bezt í ineitl-
uðum kjarnyrðum; þar er öll af-
vötnun óþörf.
Með línum þessurn vill Lögberg
brýna það fyrir almenningi, að
greinar þær, sem þvi verða sendar,
erfiminningar og ritgerðir um önn-
ur efni, taki ekki að ófyrirsynju
upp rúm sakir ítrekaðra málaleng-
inga eða orðavafsturs, sem hvergi
hittir í mark.
Þrennar
ankakosningar
Á þriðjudaginn var fóru fram
aukakosningar til sambandsþings í
þremur kjördæmum; öll höfðu þau
kjördæmi sent íhaldsfulltrúa á þing
í almennu kosningunum 1935, og
gerði Dr. Manion sér háar hug-
myndir um það, að nú myndu úr-
slitin verða þau sömu; en hér fór á
annan veg. í Brandon kjördæmi,
sem átt hafði íhaldsfulltrúa á þingi
síðan 1930 gekk frambjóðandi
liberal-stefnunnar, Mr. J. E. Matt-
hews, sigrandi af hólmi með miklu
afli atkvæða umfram báða keppi-
nauta sína, þá Mr. Beaubier, fram-
bjóðanda ihaldsmanna og Mr.
Wood, er fram sótti undir merkj-
um C.C.F. flokksins. Dr. Manion
flutti ræðu í Brandon meðan á
kosningahríðinni stóð, og veittist
þunglega að Mr. King og ráðuneyti
hans fyrir fjárframlög til átvinnu-
leysingja í atvinnu stað; þetta hefir
auðsjáanlega ekki fallið í frjóva
jörð hjá kjósendum Brandon kjör-
dæmis, og þeir heldur hreint ekki
sennilega búnir að gleyma því er
viðgekst í hliðstæðum efnum meðan
Dr. Manion sat til hægri handar
Mr. Bennett í ráðuneyti hans frá
1930 til 1935; þá kvað nokkuð við
annan tón hjá Dr. Manion; þessu
er fólkið ekki enn búið að gleyma.
Rógur sá, er stjórnarandstæðingar
reyndu að smeygja inn hjá kjós-
endum í Brandon .kjördæmi um at-
hafnaleysi núverandi stjórnar, fann
ekki náð i augum kjósenda; þeir
fundu til þess að þeir ætti stjórn-
inni margt og mikilvægt upp að
unna, svo sem fyrirmælin um lág-
marksverð hveitis og viðskifta-
samning hennar við Bandaríkin
með meiru og fleiru.—
í London kjördæminu var Dr.
Manion kosinn til sambandsþings á
þriðjudaginn í harðsnúinni glímu
við Mr. Hall, er bauð sig fram af
hálfu C.C.F. Og í Waterloo South
náði frambjóðandi íhaldsmann, Mr.
Homuth kosningu með miklu afli
atkvæða. Þessi tvö kjördæmi hafa
um langt skeið talist með traustustu
varnarvirkjum afturhaldsfylking-
anna.
Framboð í 2.
kjördeild
Við bæjarstjórnarkosningarnar,:
sem fram fara i Winnipeg þann
25. þ. m., kýs 2. kjördeild þrjá
fulltrúa; úr nógu er þar að velja
engur síður en í borgarstjóraem-
bættið; hvernig til tekst um valið,
skiftir að sjálfsögðu meginmáli.
Mr. Victor G. Anderson leitar
kosningar í áminstri kjördeild;
hann hefir áður setið í bæjarstjórn,
og getið sér þar hinn bezta orðstír
sakir skyldurækni í starfi og frá-
bærs samvinnu þýðleiks; hann hefir
aldrei talið eftir sér nein þau spor,
sem hann hefir stigið í þjóustu
rettbræðra sinna, ög þau hafa verið
mörg. Mr. Anderson á það inni
hjá íslendingum, að þeir veiti hon-
um óskift fulltingi á kosningadag-
inn.
Þeir bæjarfultrúarnir C. Rhodes
Smith og Garnet Coulter, verð-
skulda báðir endurkosningu. Mr.
Sinith er enn ungur maður og lík-
legur til margvíslegra nytja í bæj-
arfélagi voru; hann er góður dreng-
ur og batnandi. prúður í fasi, en
þéttur á velli og þéttur í lund. Og
þó Mr. Coulter sé enginn sérlegur
áhlaupamaður, þá er hann þó lið-
tækur hvar sem er og hinn liollráð-
asti. önnur kjördeild yrði vel
sæmd af vali þessara þriggja
manna í bæjarstjórn.
Þrír í vali
Alt er þegar þrent er, segir gamla
máltækið. Kjósendur Winnipeg-
borgar hafa úr nógu að velja við
bæjarstjórnarkosningarnar í Win-
nipeg þann 25. þ. m., að því er
borgarstjóraefnum viðvíkur, því
þrir verða í kjöri. Keppinautarnir
eru þeir Mr. John Queen, núver-
andi borgarstjóri; Mr. Travers
Sweatman, K.C., og Mr. E. D.
Höneyman, K.C. Hefir Mr. Honey-
man átt um tíu ára skeið sæti í bæj-
arstjórn sem fulltrúi 1. kjördeildar,
og síðustu tvö árin gegnt formanns-
störfum í fjárhagsnefnd borgar-
ráðsins.
Gaman og alvara
Mr. S. Guðmundsson sendir mér
vinarkveðju í síðasta blaði Lögb.
Eg las með ánægju gamansemina í
fyrsta kaflanum, og einnig hans
vitra dóm þar sem hann gerir upp
á milli okkar, og er það víst að eg
hefði ekki getað neitt betra kosið
frá hans hendi. Skáldskapinn, sem
hann segist hafa “úr bréfum” skildi
eg ekki í fyrstu. En eg sé að hann
sver sig í ætt göfugra foreldra.
Andlega líkist hann mjög Gróu sál-
ugu á Leiti, en að yfirbragði og
vallarsýn fréttaritaranum frá Ed-
monton. Það var ekki laust við að
eg vorkendi “Mr. Gíslason” allar
þessar hrakfarir, en þar sem hann
aldrei hafði látið mig vita neitt um
það að hann hefði verið að trana
sér svona fram, hélt eg þó að við
værum góðkunningjar. Þá varð
mér það að orði, að þetta sé honum
bara fjandans mátulegt.
Á öðrum stað í Lögb. sá eg þess
getið að Mr. S. G. hefir í hyggju
að flytja frá Alberta. Vil eg óska
að ferðin gangi honum vel: að
hann “nefnilega verði ekki stuck”
þegar hann fer að “smögla” doð-
ranti sínum út úr Alberta. og hon-
um megi takast að fela sig í “þanka-
þoku” svo engin “vísindaleg stefnu-
skrá” eða annað “fargan” nái i
hann aftur. Og að hugarangur
hans út af illgresinu í Alberta þurk-
ist sem allra fyrst út og verð i“nil.”
Eg kveð hann með vinsemd og
beztu óskum.
Hjálmar Gíslason.
Á krossgötum
í dag er fyrsti vetrardagur. Hefir
sumarið reynst betra en á horfðist
um sinn. Vorgróður kom snemma,
enda veitti ekki af, eftir hina miklu
heyhrakninga á fyrra ári. Síld-
veiði byrjaði einnig snemma, og
fór vel af stað. En svo komu lang-
varandi vorkuldar og gróður eyði-
lagðist eða sölnaði að miklum mun,
og ógæftir og sjávarkuldar tóku
fyrir síldveiðar um langan tíma.
En tíðin batnaði er á leið sumar,
heyskaparnýting mun sjaldan hafa
verið jafn góð um alt land, og síld-
veiði varð mikil er til kom. Þá
hafa dilkar verið með vænsta móti,
er það talið stafa af því að lengi
sumar hafi sauðfé haft nýgræðing,
framan af á láglendi, en síðan færði
fénaður sig ofan í beitilönd, eftir
því sem kjarngresið spratt, en þetta
tók lengri tíma nú en endranær,
sakir kuldanna framan af sumri.
Verðlag er óhagstæðara á þessu ári
en hinu fyrra, en þar ráða önnur
skilyrði.
♦
Björn Blöndal löggæzlumaður var
staddur á Bíldudal við Arnarfjörð
7. þ. m. Skýrir hann frá því, að
þá hafi Arnarfjörður verið “fullur
af fiski,” en aðeins tveir bátar hafi
stundað þar veiðar. Voru það litlir,
opnir vélbátar, og veiði þeirra hvors
um sig um 400 af þorski á dag, en
meira báru bátarnir ekki. Veitt var
á linu, og gizkaði Björn á að lengd
hennar svaraði því, að fiskur væri
á þriðja hverjum öngli. Enn skýrði
Björn frá því, að einn daginn
hefðu fjórir drengir frá Bíldudal
róið með handfæri út undir Kol-
grafarhrygg, en hann er rétt utan
hafnarinnar, og fengu þeir sem
svaráði 15 krónu hlut. Einhvern-
tíma hefði notast betur að slikri
veiðisæld í Arnarfirði, en nú vant-
ar annaðhvort báta og önnur veiði-
færi ellegar framtak að bjarga sér,
nema hvorutveggja sé. Verðlag á
Sendið
Jólapantanir
yðar
snemma
SÝNIÐ Santa Claus uin-
hyggjusemi og yður
sjálfum líka með því að
gera kaup yðar SNEMMA.
Með þessum hætti trvgg-
ið þér yður fljóta af-
greiðslu, komist hjá jóla-
ösinni — og getið verið
vissir um að fá valið úr
fullkomnum vörubirgðum,
— og veitt sjálfum yður
nægilegt svigrúm til þess
að útvega yður jölabögla
og sjá um flutning þeirra.
Eaton’s Ilaust og Vetrar
verðskrá er full af uppá-
stungum um jólagjafir til
þess að gleðja unga og
aldna um jólahátíðina.
S e n d i ð pantanir yðar
snemma.
EATONS