Lögberg - 29.12.1938, Page 4
4
LÖG-BERG, FIMTUDAGINN 29. DESEMBER 1938
-------------- Högbers ----------------------------
GefiS út hvern fimtudag af
THE COIiUMBIA PRESS, UIMITEI)
«95 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjúrans: .
EDITOR LOGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Editor: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram
The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press,
Uimited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
“KERTALJÓS"
Bækur eru í vissum skilningi menn, eða það lífræn-
asta, sem með mönnunum býr; í þeim endurspeglast blæ-
brigði mannlegs vitundarlífs; sæla og sorg, beiskja og
blíð'streymi, hatur og ást; þetta nær að vísu ekki til
allra bóka, því sumar þeirra eru með öllu litlausar og
eiga ekkert erindi inn í bókaheiminn. En góðar bækur
eiga nákvæmlega sama erindið í mannheima og góðýr
menn; fegrunar hlutverk þeirra er eitt og hið sama.
1 jólavikunni barst oss í hendur bók, sem vakti milt
bergmál í sálu vorri, og bar til þess fleira en eitt; bókin
heitir “Kertaljós,” og er höfundur hennar “söngva-
svanurinn” vestur við Kyrrahafið, frú Jakobína John-
son.
Þessi undurfagra ljóð'abótk, sem Isafoldarprent-
smiðja í Reykjavík gaf út í íiaust, hefst á kvæði, sem
nefnist “Kertaljós.” Ein vísan er á þessa leið: i
“Og þó rafljósin
rjúfi myrkur
heillar heimsálfu
á helgri nóttu,
eru mór kærust
kertaljósin
góðra minninga.
—Gleðileg jól!
Kvæði þetta, eins og vísan bendir til, fjallar um hin
raunverulegu kertaljós; mörg hin kvæðin eru táknræn,
og lúta að þeim lýsigullum, börnum og blómum, er stráð
hafa björtustu geislunum á lífsferil skáldkonunnar; þetta
sannar eftirfarandi vísa:
‘ ‘ Þú gullna blóm, þá græna blað,
])ú gjöf frá lífsins lijarta-stað,
er lít eg inn í augað þitt
mér opnar drottinn veldi sitt,”
í kvæðinu “Þú leizt hann,” verður sömu undiröldunnar
vart:
“Þú sérð mig sitja hljóða
við sjúkrabeð um nætur.
— Þú hugsar “hvílík þreyta,”
• og ‘‘hve sú móðir grætur.”
• En eg finn enga þreytu,
ef aðeins myrkri rofar,
og morgun lífi lofar.”
Skóldlegt og bráðfagurt er kvæðið “Jú, eg hef áður
unnað.” Fyrsta erindið er ]>annig:—
“Jú, eg hef áður unnað — en aldrei svona heitt.
Eg veit ei veðrabrigði — og verð ei framar þreytt.
Jú, eg hef áður unnað, en aldrei svona heitt.”
Móðurástin, tárhrein og guðborin, á glæsilegan fulltrúa
á ljóðþingi Islendinga þar sem frú Jakobína er, — ein
af fáum!
Fyrir skömmu var frú Jakobína gestur Islands; hún
fluttist til Vesturheims barn að aldri og hafði þar af
leiðandi ekki vegna sjálfsreynslu af nqinum endurminn-
ingum að segja úr heimahögum; faðir hennar var skáld.
og þegar í bernsku við heimilisarininn í Argyle, mun
nærgætnislega hafa verið að skóldgáfu hennar hlúð; í
andanum mun skáldkonan í raun og veru hafa ávalt
verið annað veifið heima, — í Aðaldal uppruna síns;
við heimförina eru mörg hennar allra fegurstu ljóð
tengd.
Yndislegt er kvæðið “f landsýn”:
“Lít eg eldlegt aftanskin
á ókunnum stað.—
Fagnandi finn eg orð
og festi mynd á blað.
—En bjarmann og blikið,
birtir nokkur það!
‘‘Stíg eg fæti fyrsta sinn
“á feðrayna storð.”—
Söngþráin svífur að
þó eg sé enn um borð.
—En landtöku Ijóðs ])íns
lýsa nokkur orð?”
Seinasta kvæðið í “Kertaljósum” heitir “Milli
svefns og vöku.” Síðasta erindi |>ess varpar að vorri
hyggju skíra ljósi á undirtóninn í lífsskoðun skáldkon-
unnar, og þessvegna skal hér að því athygli leidd:
“öróðir dauðans er dulbúinn
vinur,
lykur dyrum og mig setur hljóða,
því eg sé að hver eldraun og átak
reyndist uppspretta varanlegs
gróða.
—Og að síðasta talan, sem tel eg,
verður trú rniín á sigur hins
góða.”
“Kertaljós” frú Jakobínu
auðga að miklu bókmentagarð
islenzku þjóðarinnar og út frá
þeim mun lengi lýsa “langra
kvelda jólaeldur.”
Þessi prýðilega bók kostar 1
skrautbandi $i.6o og fæst hjá
höfundinum frú Jakobínu John-
son, 2806 — W. 6oth Street,
Seattle, Was'h., U.S.A.
Fullveldisafmœlisins
minst í Kaupmannah.
Fullveldisafmælisins hefir ver-
ið minst í Danmörku á þann hátt
að flögg eru rnjög viða dregin á
stöng í Kaupmannahöfn, 300
manns komu í heimsókn til
Sveins Björnssonar sendiherra í
tilefni af deginum, þar á meðal
Stauning forsætisráðh. Sendi-
herranum barst fjöldi skeyta og
blóma.
ÞAÐ SEM
BLÖÐIN SÖGÐU
Öll Kaupmannahafnarblöðin
birta greinar um ísland í tilefni
af fullveldisafmælinu og eru
sammála um að færa þjóðinni
heillaóskir. Eru sumar greinarn-
ar mjög ítarlegar.
“Politiken” segir t. d. að þetta
sjálfstæðistírtiabil íslands hafi
verið hamingjutími fyrir landið
og sambandið milli Danmerkur
og íslands með fullum drengskap
á báðar hliðar. Með sambands-
lögunum hafi ísland hlotið rétt-
mætan sess við hlið hinna ann-
ara bræðraþjóða á Norðurlönd-
um.
“Social-Demokraten” segir, að
vináttan milli beggja ríkja sé nú
rneiri en nokkru sinni áður, og
þó að svo kynni að fara, að Is-
land á grundvelli sambandslag-
ans^ óskaði annars forms á sam-
bandinu vjð Danmörku f fram-
tíðinni, mundi þetta á engan hátt
hrófla við vináttu dönsku þjóð-
arsinnar til Islands.
“Berlingske Tidende” segir,
áð þessi 20 ár hafi verið stór-
kostlegt þróunarskeið fyrir þjóð-
ina, bæði í menningarlegu og
efnalegu tilliti og sambandið við
Danmörku hafi færst í það æski-
lega horf, að biturleika og mis-
skilningi hafi verið rutt á burt.
í sama streng tekur “National
Tidende” og segir, að ágreining-
ur fortíðarinnar sé að mestu úr
sögunni. Sjálf atburðaþróunin
hafi leitt það i ljós að engin á
stæða sé til að efast um stjórn-
málalega hæfileika íslendinga og
dugnað þeirra og þrautseigju.
íslendingar hafi fært sönnur á
hæfileika sína til þess að byggja
upp ríki og skapa stjórnmálaleg-
ar, menningarlegar og viðskifta-
legar stofnanir.
“Börsen” ræðir aðallega um
viðskifta- og atvinnuþróun lands-
ins á þessu tímabili.
Ýmsir nafnkendir menn færa
íslandi kveðjur og heillaóskir í
blöðunum, þar á meðal Arne
Möller, Munksgaard bókaútgef-
andi, Hendriksen landsþingsmað-
ur og Poul Reumert leikari.
—Alþbl. 2. des.
Þér getið ávalt fengið
peninga yðar til baka!
Þegar ])ér geymið peninga ySar á banka eru
þeir ávalt á tryggum staS — og þér getiS ávalt
tekið þá út, er þér æskiS. ByrjiS sparisjóSs
innlegg nú þegar viS næsta útibú og haldiS því
uppi meS fastri reglu.
THE ROYAL BANK
OF CANADA
Eignir yfir $800,000,000.
i WEST END F00D MARKET
Úrval af Tyrkjuin, Hænu-ungum, Gæsum og Öndum,
aÖ ógleymdu Hangikjötinu fræga og Rúllupylsunni
i búð vorp! Svo og Harðfiskur.
f
Pantanir1 utan af landi afgreiddar
Peningar fylgi pöntun
WEST END F00D MARKET
680 SARGENT AVE. - - - SÍMI 30 494
S. JAKOBSSON, eigandi
Kö tsí
HUDS0NS BAY
C/UVö/ H 15
Námsskeið!
Námsskeið!
Námsskeið!
Á öllum tímum kemur sparnaSur sér vel; þó ekki
livaS sízt þegar hart er í ári.—
ViS höfum til sölu námsskeiS viS lielztu verzl-
unarskóla (Business Colleges) borgarinnar. ÞaS
borgar sig fyrir ySur aS leita upplýsinga lijá
okkur tafarlaust.
n"ke Columbia Press Limited
1
SARGENT & TORONTO
Winnipeg, Man.