Lögberg - 29.12.1938, Side 7

Lögberg - 29.12.1938, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. DESEMBER 1938 Andrés Jónsson Skagfeld (Æfiminning) Anidrés Jónsson Skagfeld fæddist 28. marz áriÖ 1855 á Litla VatnsskarÖi í Laxárdal i Húnavatnssýslu. FaÖir hans,— Jón Arnórsson, bjó þar lengi og síÖar á Bessastöðum i Sæmund- arhlíÖ í Skagafirði. Móðir Andrésar hét Guðrún Jónsdóttir frá Hryggjum 'í Skagafirði. Andrés ólst upp með foreldr- um sínum j?ar til hann var sextán ára, eftir það var hann litið hjá þeim. Hafðist hann mest við i Skagafirði, en var oft á vetrum til sjóróðra suður við Faxaflóa; reri hann margar vertíðir í Garð- inum og var formaður á útvegi hins nafnkunna útvegsbónda Árna á Meiðastöðum. Árið 1878 giftist hann fyrri konu sinni, Kristínu Ingveldi Jónsdóttur, sem var ættuð af Höfðaströnd i Skagafiarðar- sýslu, og bjuggu þau þrjú ár á H ryggjum í Skagafirði. Vestur um haf fluttust þau árið 1883, en ári síðar dó hún. Þau, áttu tvö börn, sem hæði dóu í æsku. Kvæntist hann i annað sinn 1887 ekkjunni Steinunni Þórarinsdótt- ur frá Litla-Rreiðavíkurstekk i Reyðarfirði. Var hún ættuð af Fljótsdalshéraði og sömuleiðis fyrri maður hennar, Sigurbjörn Eyjólfsson, sem hafði- dáið skömmu eftir að þau komu vestur. Andrés nam land í Geysis- bygðinni í Nýja íslandi árið 1885, og nefndi bæ sinn Sól- heima. Þar bjó hann 15 ár. Þá fluttist hann til Selkirk og var þar eitt ár við verzlun í félagi við Jón H. Johnson, sem nú á heima í Vancouver. Að því liðnu fluttist hann til Gimli og vann þar um tíma sem verkstjóri við l>ry&gjubyggingu. — Árið 1902 fluttist hann vestur til Grunna- vatnsbygðar og nam þar land í annað sinn og bjó þar myndar- búi 20 ár. Steinunn? síðari kona Andrés- ar dó árið 1929; höfðu þau þá verið í hjónabandi 42 ár. Þau eignuðust níu börn, er komust á fullorðins ár, og eru nöfn þeirra þessi: Kristíú, kona Ólafs Tihorsteinssonar músíkkennara í grend við Gimli, dáin fyrir all- mörgum árum; Sigurbjörn Steinke, giftur Kristrúnu dóttur tsleifs Guðjónssonar fyrrum bónda á Markland, búsettur á Oak Point; Stefanía, gift Frið- finni Friðfinssyni, syni Jóns tónskálds Friðfinnssonar, til heimilis í Winnipeg; Valgerður, gift Hermanni Johnson (sonur fyrnefnds ísleifs) í Winnipeg; Stanley, giftur konu af norsk- um ættivm, Gladys að nafni, í Winnipeg; Jóhanna, gift Pétri Sveinssyni að Sandy Hook, Man.; Emelía, gift Otto Mathew á Oak Point; Clara, gift Guð- mundi Breckmann, á Oak Point; Dóra, gift Sigurði Mathew á Oak Point. Stjúpdóttir, Eyjólf- ina að nafni, alin upp hjá Andrési og móður sinni, er gift Vilbald Freeman, og eiga þau heima í Winnipeg. Þrjátiu og sex barnabörn Andrésar eru a lífi. Andrés var einn af tólf syst- kinum. Af þeim eru nú aðeins tvö á lífi: Steinunn, ekkja Jóns Péturssonar bónda í Nýja ís- landi, nú til heimilis hjá dóttur sinni og tengdasyni, Sigríði og Einari Einarssýni á Auðnum i grend við Gimli, og Sigurður bóndi í Rrautarholti í Skaga- firði, faðir Sigurðar Skagfields, söngmannsins nafnkunna. Andrés heitinn var dugnaðar- og athafnamaður, ör í skapi og skjótur til úrræða; hann var kappsa'imir og vildi ógjarnan láta hlut sinn, en var þó raun góður maður og hjálpsamur. — Hanú var gestrisinn og höfðing- lyndur og vildi jafnan standa framarlega í flokki um allar framkvæmdir. Hann var góðum hæfileikum gæddur og allvel skáldmæltur. Voru nokkur smá- kvæði eftir hann prentuð í is- lenzku blöðunum fyrir mörgum árum. Hann las mikið íslenzk ar bækur, einkum þó fræðibæk ur, og ræddi oft um efni þeirra. í stjórnmálum tók hann nokkurn þátt og fylgdi lengst af frjáls- iynda flokknum. Hann tók mik- inn þátt i kirkjumálastarfi, var meðlimur Sambandssafnaðarins á Oak Point frá stofnun hans og forseti han^i og oft fulltrúi hans á kirkjuþingum. Hann sótti og oft þjóðræknisþingin og tók drjúgan þátt i málum þar. t öllu félagsstarfi var hanti afar- áhugasamur og vildi sjá frarn gang hvers málefnis, sem hann iéði stuðning sinn. Alstaðar þar sem hann var, var hann einn af helztu forgöngumönnum ýmsra menningarlegra framkvæmda, svo sem stofnun lestrarfélaga og annara samtaka í mentunarátt- ina. — Yfir höfuð var hann stórhuga athafnamaður þó að kringumstæðurnar sniðu honum oft þröngan stakk. Frú Rakel Oddson F. 28. júní 1862 D. 6. des. 1938 Rakel heitin, ekkja Þorsteins Oddssonar, sem mangir muna, var ættuð úr Suður-Þingeyjar- sýslu eins og maður hennar. Áttu ?au hjón framan af heima í Sel- kirk; þar var Þorsteinn við verzlun. Fluttu þau þaðan ti! Winnipeg. Hér stundaði hann með miklu kappi og dugnaði fasteignasölu og bygging á stór hýsum, og komst í góð efni, en sem stríðið og kreppan rýrði mjög. Fluttu þau þá vestur á Strönd, til Los Angeles í Cali- forníu. Undu þau þar hag sín- um vel. Mun Þorsteinn hafa haldið áfram fasteignasölu þar til dauðadags. Sex börn Þorsteins og Rakel- ar eru á lífi. Þrjú eru til heim- ilis í Winnipeg; Leiíur, Ólöí (Mrs. Austman) og Rakel (Mrs. Jones), En þrjú eru búsett í Los Angeles: Clara (Mrs. Clark), Thori og Laura (Mrs. Greig). Ein systir Rakelar er í Selkirk, Ólöf, ekkja Gunnlaugs, bróður Þorsteins. Frú Rakel var mesta myndar- kona, góð og góðsöm; vildi öllum hjálpa og öllu góðu liðsinna. Manni s.inum traust stoð, börn- unum ágæt .móðir, vinum sínunr trúföst, óvinur engra. Hún var vel við búin dauða sínum. Vissi hvert hún flutti. Hún lifði í trú og trausti á frels- ara mannanna, Drotni Jesú Kristi, og hún kvaddi i nafni hans örugg um hlutskiftið góða, tilbúið af honum, þeim sem hon- um tilheyra. Þessvegna gat hún kvatt ástmenni sín, er um hana stóðu, með þessari beiðni: “Grát- ið mig ekki, -því nú fer eg þang- að, sem mér líður miklu betur.-’ Séra Octavíus var nýkominn til Los Angeles um það leyti, sem hún kvaddi. Hafði hann hugsað sér að heimsækja hana eins fljótt og ástæður leyfðu, þvi frá uppvaxtarárunum var hánn henni og fjölskyldunni vel kunn- ugur, enda var hann beðinn að stýra útfarar-guðsþjónustunni, undir eins og fjölskyldan frétti að hann væri staddur í borginni. Gerði hann það. Útförin fór fratn kl. 2 e. h.. ZIGZAG Orvals pappír í úrvals bók 2 Tegundir SVÖRT KAPA Hinn upprunalegi þunnl vindlinga pappir, sem flestir, er reykja “Roll Your Own” nota. BiÖjiS um “ZIG-ZAG” Black Cover BLA KÁPA "Egyptien’’ úrvals, h v 11 u r vindlinga pappir — brennur sjálfkrafa — og gerir vindl- ingana eins og þeir væri vafSir I verksmiSju. BiSjiS um “ZIG-ZAG” Blue Cover 10. des. frá Little Church of the Flowers í garðinum Forest Lazvn, að sögn einhverjum feg- ursta grafreitnum. Öllu er þar svo fyrir komið, að það minni á lífið — ekki á dauðann. í kirkjunni var kominn saman f jöld miltnns. Munu flestir hafa verið islenzkir. Athöfnin fór fram þar á ensku, en í garðinum á islenzku. Nú geymast jarðnesku leyfar frú Rakelar Oddson í Forest Lawn, fagra garðnium, við hlið manns hennar. Rlessuð sé minning þeirra. Gamall zhnur. Girls and golfers seem to have the same ambition—to go around in as little as possible. Með' Andrési Skagfeld er fallinn frá merkur landnáms- maður í tveimur 'íslenzkum bygð- um, einn af þeim islenzku kjark- mönnum, sem ruddu braut í ó- bygðunum í fleiri en einuimi skilningi. Hann náði háum aldri, varð rúmilega áttatíu og þriggja ára gamall. Hann var hraust- menni og heilsugóður fram undir það síðasta. Haun andaðist 21. júlí síðastliðinn og var jarðsett- ur á Oak Point tveimur dögum síðar, að viðstöddu miklu fjöl- menni. — Þannig fækkar hinum gömlu, islenzku landnámsmönnum hér vestra; en minningin um þá var- ir i þakklátum hugutn þeirra, sem eftir lifa og1 sem notið hafa góðs af starfi þeirra. Þeir lögðu grundvöllinn ; aðrir byggja ofan á hann. G. A. Á JOLUM EÐA ÖÐRUM TIMUM PURITY hveiti cr hezt fyrir ALLA bakmnga Purity matreiðslubókin — 200 blað- sfður af fróðleik um matreiðslu og bökun, bundin í lóreft — send hvei’d- um sem er fyrir 50c, póstgjald greitt. — Western Canada Plour Mills Co., Ltd., Winnipeg. PURITV FL'OUR Best for all yourBaking 'zkg, HATÍÐAKVEÐJUR STRUCTURAL & MECHANICAL REQUIREMENTS Structural Steel Steel Plate Work—Bolts, Rods Ocnamental Tronwork Grain Elevator Machinery Machinery Repairs Castings—Iron Steel Brass Aluminum HEATING EQUIPMENT “ Vulcan” All Steel Boilers H.R.T. Boilers Hot Water Tanks Domestic Stokers Commercial Ccrew Feed Stokers Overfeed Stokers Grates—Diagonal Bar Iierring Bone Rocking Non-Sifting VULCAM IROM WORKS LIMITED Winnipeq imManiioba . w—

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.