Lögberg - 11.01.1940, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. JANÚAR, 1940
ZÍSTANUM 5C
.ii!É!!l ^j|ll!ll!lll!ll!!l!llllllllllllllllllllll!!lll!l!lllllllllllllllllllllllllllllll!lllllllll!!lllll!ll!ll!llii..
0r borg og bygð
,|'i:iHM!lll!lllll!IHI!IIIIIIil!!lti!l!lll!IUIIIIHI<llll!iniilfll!inmilllltlllllllll!lll!ll!l!l!l!l!!lliai1ll!lim>^
Mrs. J. G. Stephansson frá
Kandahar, Sask., var stödd í
borginni í fyrri viku.
♦ ♦ ♦
Dr. Richard Beck prófessor frá
Grand Forks, N. Dak., var stadd-
ur í borginni í Iok fyrri viku og
sat fund í framkvæmdarnefnd
Þjóðræknisfélagsins.
■f ♦ ♦
ÁRSFUNDUR — Kvenfélag
Fyrsta lúterska safnaðar heldur
ársfund sinn í samkomusal
kirkjunnar, kl. 3 e. h. í dag
(fimtudag) þann 11. janúar.
■f -f ♦
Mr. S. E. Sigurðsson fram-
kvæmdarstjóri, frú hans og
dóttir, og Einar P. Jónsson og
frú, fóru norður til Mikleyjar á
sunnudagsniorguninn í bíl, og
komu heim aftur um kvöldið;
veðurbliða ríkti hvarvetna um
daginn, og ferðin að öllu hin á-
na>gjulegasta.
■f -f -f
Copy of Lord Tweedsmuir’s
letter to the Jon Sigurdsson
Chapter, I.O.D.E.:
“Thank you very much for
the gift of the Icelandic Soldiers’
Memorial Book, which I am
very glad to have. I have al-
ways had the deepest interest in
our Icelandic Canadians. I only
wish we had more of them.
Yours sincerely,
Tweedsmui-r.”
-f -f -f
Gefin voru saman í hjónaband
á mánudagskvöldið 8. jan. Þau
Sigurður Snidal frá Prince
Rupert, B.C. og Irene Christian-
son Dahlman frá Selkirk. Hjóna-
vígslan fór fram á heimili séra
Valdimars Eylands, 776 Vrictor
St., sem framkvæmdi athöfnina
í viðurvist nánustu ættingja.
Ungu hjónin leggja bráðlega af
stað vestur til Prince Rupert,
þar sem framtíðarheimili þeirra
verður.
-f -f -f
Á fundi, sem “íslendingadags”
nefndin hélt síðastliðinn sunnu-
dag, voru þessir settir i embætti:
Sveinn Pálmason, forseti; Stein-
dór Jakobsson, vara-forseti;
Davíð Björnsson, ritari; Jóh.
Sigurðson, vara-ritari; Jochum
Ásgeirsson, féhirðir; Geir Thor-
geirsson, vara-féhirðir. Auk þess-
ara eiga sæti í nefndinni: E. A.
ísfeld, séra P. M. Pétursson, Dr.
L. A. Sigurðsson, Th. S. Thor.
steinsson, Selkirk og Hannes
Kristjánsson, Gimli. Ennfremur
voru ritstjórar íslenzku blaðanna
kosnir heiðursmeðlimir nefnd-
arinnar.
ÆTTARTÖLUR
fyrir Islendinga semur |
GunnarÞorsteinsson i
P. O. Box 608
Reykjavík, Iceland
ISLENZK
heimilisiðnaðarverzlun
Selur allar tegundir af heima-
munum, ullarvörum, svo sem
sokka, sport vetlinga, trefla, vél_
band og einnig íslenzk flögg og
spil. — Sérstakur gaumur gefinn
pöntunum utan af landi.
Halldóra Thorsteinsson
PHONE 88 551
Heimili: 662 Simeoe St.
SAFNAÐARFUNDUR — Sam-
kvæmt ályktan síðasta fundar,
verður framhaldsfundur Fyrsta
lúterska safnaðar haldinn í
kirkjunni á þriðjudagskvöldið
þann 16. janúar 1940. Skorað
er á meðlimi safnaðarins, unga
sem aldna, að fjölmenna á fund-
inn. G. L. Johannson,
skrifari safnaðarins.
-f -f -f
Við jólaguðsþjónustur í Vatna-
bygðum var þess minst, að á að-
fangadag voru 125 ár liðin frá
þvi að Canada og Bandaríkin
sömdu frið sin á milli. Las séra
Jakob Jónsson upp boðskap frá
félagi þvi, sem vinnur að góðu
samkomulagi þjóða á milli, gegn-
um kirkjulega starfsemi. Var
þar hvatt til að minnast þessa
friðarsamnings með þakklæti til
Guðs, og með bæn og starfi til
eflingar heimsfriði.
-f -f -f
Birgir Halldórsson, sonur Mrs.
Ingibjargar Lindal, sem til
skamms tíma átti heima i Wyn_
yard, söng í útvarp frá Saskatoon
í vikunni sem leið. Birgir hefir
fallega rödd, og meðferð hans
bendir til þess, að hann sé efni
í söngsnilling. Hann er við nám
í Saskatoon, og lék kennari hans
undir við söng hans. Landar
hans vona, að hann eigi frama
fyrir höndum.
-f -f -f
Séra Carl J. Olson, prestur lút-
erska prestakallsins i Vatnabygð-
um kom til borgarinnar á laug-
ardaginn í síðastliðinni viku og
býst við að dvelja hér og í Sel-
kirk í tæpar þrjár vikur. Hann
flutti fimtán guðsþjónustur yfir
hátíðirnar og er nú að taka sér
stutta hvild eftir þá aflraun.
Hann lætur vel yfir starfi sínu
þar vestra og álitur horfurnar
ágætar bæði frá andlegu og fjár-
hagslegu sjónarmiði. Á meðan
hann dvelur hér eystra má kom-
ast í samband við hann annað-
hvort að 216 Queen Ave., Sel-
kirk, Man., talsími “Central” eða
607 Maryland St., Winnipeg,
Man., talsími 29 543.
Samkoma
Jóns Sigurðssonar
félagsins
Munið eftir samkomu Jón Sig-
urðsson Chapter, I.O.D.E., föstu-
daginn 2. febrúar, á Marlborough
hótelinu. Vandað verður til
samkomunnar af fremsta megni.
í einum sal verður spilað bridge,
í öðrum verður dansað, og i þeim
þriðja getur fólk setið og talað
saman. Skemtun verður bæði
fyrir yngri og eldri. Orchestra
leikur “modern and old time
dances.” Aðgangur aðeins 50c.
Jón Sigurðsson félagið hefir
ávalt starfað að þvi að Iiðsinna
íslenzkum hermönnum og fjöl-
skyldum þeirra. Nú hafa á ný
margir fslendingar innritast í
herinn. Verksvið félagsins hef-
ir því aukist að mun. Heiðurs-
gestir á þessari samkomu verða
allir þeir íslendingar, hermenn
eða hjúkrunarkonur er nú eru
í hernum. Þeir er geta tekið
því boði geri svo vel að tilkynna
annari hvorri af neðanskráðum
nefndarkonum.
Mrs. ./. R. Skaplason,
378 Maryland St.
Mrs. E. A. tsfeld,
668 Alverstone St.
Tilboð
óskast í að safna augiýsingum í prógram “fslendinga-
dagsins” fyrir næsta sumar. Að kaupa prógrammið
fyrir ákveðna upphæð og vera einráður um allar aug-
lýsingar, eða þá að safna auglýsingum fyrir vissar pró-
sentur. Tilboðið verður að vera komið inn fyrir 1.
febrúar n. k., til undirritaðs, sem gefur einnig aðrar
upplýsingar ef óskað er.
DAVtÐ BJÖRNSSON
Phone 80 524 eða 86 537
mmmmmmmwmmmm
Borgarabréf yðar,
Eignarbréf,
Vátryggingarskírteini, o.s. frv.
ERU VERÐMÆT—
GEYMIÐ ÞAU ÖRUGGLEGA!
• Þau eru trygg í öryggishólfi yðar í
bankanum; þér einir getið opnað það;
kostar innan við cent á dag. Látið útibús-
stjórann sýna yður hólfið.
THE ROYAL BANK
O F CANADA
Eignir yfir $800,000,000
Heklu-fundur í kveld (fimtu-
daginn).
♦ ♦ ♦
íslenzkur ekkjumaður í Win-
nipeg, óskar eftir miðaldra ráðs-
konu nú þegar. Góð aðbúð; létt
vinna. Upplýsingar á skrifstofu
Lögbergs.
■¥■¥■¥
Mr. Th. Ellison framkvæmdar-
stjóri frá Gimli, var staddur i
borginni í byrjun vikunnar.
¥ ¥ ¥
Nú er Toboggan Slide Mr. N.
Ottenson og þeirra feðga tekin
að fullu til starfa í River Park,
og þyrpist nú fólk þangað dag-
lega til þess að renna sér á sleð-
unum. Hollari útiskemtun í
grend við Winnipeg er naumast
hugsanleg.
M essuboð
'l>l|||lllllllllllllll!ll!l]|||||ll!l>lllll!llll!ll!l!llllllllllllll!lllllllllll!li!illllllll!!i!il!lll!llll!ll!lllll!ll!llll|l<’
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
Séra Valdimar J. Eylands
Heimili: 776 Victor Street.
Síini 29 017.
Sunnudaginn 14. janúar:
Guðsþjónusta á ensku kl. 11
f. h.; sunnudagsskóli kl. 12.15;
íslenzk guðsþjónusta kl. 7 e. h.
¥ ¥ ¥
Séra K. K. ólafsson flytur ís.
lenzka guðsþjónustu í Vancouver
sunnudaginn 21. janúar kl. 2
e. h. Þessi guðsþónusta verður
haldin í dönsku kirkjunni á
Burns stræti og Nítjándu götu.
Þeir, sem þetta lesa, eru beðnir
að útbreiða messuboðin.
¥ ¥ ¥
Messað í Bræðrasöfnuði i
Riverton sd. 14. jan., kl. 2.30
síðd. Samtal með fermingar-
ungmennum eftir inessu.
S. ólafsson.
¥ ¥ ¥
VA TNABYGÐIR
Sunnudaginn 14. janúar:
Kl. 11 f. h., sunnudagsskóli í
Wynyard; kl. 2 e. h., messa i
Wynyard — ræðuefni: Kristin-
dómur, heiinili, kirkja. — Þar
sem undirbúningur fermingar er
nú að hefjast, væri æskilegt, að
þeir foreldrar, sem hugsa til þess
að láta ferma börn sín, gefi sig
fram sem fyrst. Það skal tekið
fram, að framvegis verð eg
staddur í Kandahar, að öllu for-
fallalausu, frá hádegi og fram-
undir þann tíma, að lestin fer
austur, á hverjum laugardegi.
Jakoh Jónsson.
¥ ¥ ¥
SELKIRK LÚTERSKA KIRKJA
Sunnudaginn 14. janúar:
Kl. 11 að morgni, sunnudags-
skóli, bbilíuklassi, og lesið með
fermingarbörnum. — Kl. 7 að
kvöldi, íslenzk messa, séra Jó-
hann Bjarnason.
Ársfundur Selkirksafnaðar
fyrirhugaður í fundarsal safn-
aðarins, þriðjudaginn 16. janúar,
kl. 8 að kvöldi.
-f -f -f
GIMLI PRESTAKALL
Sunnudaginn 14. janúar:
14. jan.—Mikley, messa kl. 2
e. h.; 21. jan.—Betel, morgun-
messa, Gimli, íslenzk messa kl.
3 e. h. (ársfundur Gimli safnað-
ar eftir messu). Sunnudagsskóli
Gimli safnaðar kl. 1.30 e. h.
hvern sunnudag.
B. A. Bjarnason.
Hinn 2. desember síðastliðinn
voru gefin saman í Reykjavík á
íslandi Benjamín Einarsson og
Guðrún Johnson. Brúðguminn
dvaldi fyrir nokkruin árum hjá
systur sinni, Mrs. Jakob Jóns-
son í Wynyard, og stundaði um
skeið nám á verzlunarskóla í
Winnipeg. Brúðurin er fædd og
uppalin vestan hafs, systir Aðal-
bjargar Johnson, sem eitt sinn
vann við blaðið “Free Press” i
Winnipeg. — Hjónvaísglan var
framkvæmd af séra Friðrik pró-
fasti Hallgrímssyni, sem hafði
bæði skirt og fermt brúðina, er
hann var prestur hér fyrir vest-
an. — Allir vinir og kunningjar
ungu hjónanna vestan hafs óska
þeim hjartanlega til hamingju.
•
Látin er á heimili sínu á
Gimli þ. 5. janúar, Helga, kona
Júliusar J. Sólmundson, eftir
langt sjúkdómsstríð. Hún var
fædd þ. 5. júlí 1881 á Hafnar-
strönd í Skagafirði, dóttir hjón-
anna Jónatans Jónatanssonar og
Guðnjrjar Björnsdóttur. Með
bróður sínum Jóni Jónatanssyni
skáldi og konu hans önnu kom
hún árið 1901 frá íslandi og
settist að í Winnipeg. Þrem ár-
um síðar, eða 26. maí 1904, gift-
ust Júlíus og Helga, og hafa
síðan verið búsett á Gimli. Fimm
börn þeirra hjóna, öll á lífi, eru:
Lára Helga (Mrs. S. .1. Terge-
sen), kaupmannskona á Gimli;
Franz Júlíus, yfirkennari í Ár-
borg, Man., kona hans er Verna
Kristín Stefánsson; Guðný Guð-
rún (Mrs. Guðmundur Peter-
son), Gimli; Bára Isabel, hjúkr-
unarkona, ógift, var hjá móður
sinni alla sjúkdómsleguna, og
Oscar George, skólakennari,
Ginili, giftur Helen Benson.
Bróðir Helgu sál., Franz Jóna-
tansson, stundar tóurækt í
Málmey í Skagafirði; einnig á
fslandi er bróðir að nafni Björn,
og systir sem Björg heitir. Hin
Iátna var jarðsungin í gær (mið-
vikudag) frá heimilinu, og frá
Gimli lútersku kirkju, og lögð til
hinztu hvíldar í Gimli grafreit.
Séra Bjarni A. Bjarnason og séra
Sgurður ólafsson fluttu kveðju-
mál. Með Helgu sál. er gengin
grafarveg greind kona og góð
heimilismóðir, sem öðlast hafði
gott barnalán, óg komið þeim
vel til menta.
ÞAKKARORÐ
Með þessum linum viljum við
af hrærðu hjarta þakka öllu því
eðallynda fólki, mönnum og kon-
um, sem auðsýndu okkar elsku-
verðu dóttur, Ásrúnu Jónasson og
börnum hennar þá ríkulegu hlut-
tekningu, sem kom fram í marg-
víslegri aðstoð, þegar þann þunga
harm bar að höndum að þau
urðu að sjá á bak ástrikum og
íimhyggjusömum eiginmanni og
föður á bezta aldri. Aðeins
nokkrir af velgjörðafólkinu eru
hér nafngreindir: Mr. og Mrs.
Hafsteinn Jónasson, Winnipeg,
(bróðir hins látna); Mr. og Mrs.
Magnús Magnússon, St. Boniface;
Dr. B. J. Brandson, Ásmundur
P. Jóhannsson og synir hans
tveir, Grettir og Vilhjálmur; Mr.
og Mrs. Thorleifur Hansson og
Mr. og Mrs. Frans Hansson og
báðar íslenzku kirkjurnar. Ýms-
ir fleiri, íslenzkir og enskumæl-
andi, vitum við til að hafa bæði
með orði og atviki látið dýrmæta
hjálp í té. Kærleiksverkin í
þessu tilfelli og öðrum verða
ekki einungis þeim til góðs, sem
þau ná beinlínis til, heldur
gleðja þau líka allar rétthugs-
andi manneskjur, því þau opin-
bera guðseðli mannsins.
Drottinn blessi alt þetta góða
fólk og gefi því og öllum mönn.
um gott og happasælt nýtt ár.
Blaine, Wash.,
á nýársdag, 1940.
Dagbjört og Jakob
Vopnfjörð.
•
DÁNARFREGN:
VALDIMAR PÁLSSON
Fimtudagskvöldið 14. des. síð-
astliðinn lézt á heimili sínu að
Foam Lake, Sask. valmennið, hr.
Valdimar Pálsson og var jarð-
sunginn af séra Carl .1. Olson
þann 16. s. h. að viðstöddu fjöl-
menni.
Valdimar sálugi “var fæddur
14. marz 1860 í Bárðardal í Þing-
eyjarsýslu á íslandi. Hann ólst
upp hjá foreldrum sínum unz
hann, 17 ára að aldri, fluttist
vestur um haf, til Kanada. Kom
hann hingað, eins og margir
aðrir á þeim árum, til að leita
gæfunnar í hinum nýja heimi.
Hann settist að í Winnipegborg
og átti þar heima til 1906. Það
áé flutti hann til Vatnabygða og
tók heimilisréttarland í grend
við Leslie, Sask. Þar bjó hann
í tólf ár. Árið 1918 brá hann
búi og flutti til Foam Lake bæj-
ar og átti þar heima til dauða-
dags. Þó hann væri bóndi í
nokkur ár, var það ekki aðal
atvinna hans. Hann var múrari
og vann að þeirri iðn með stakri
trúmensku og dugnaði.
Á ungum aldri gekk hann að
eiga Kristínu Sigurðardóttur.
Þeim hjónum varð aðeins eins
sonar auðið. Heitir hann Páll
Pálsson og er búsettur í Leslie,
Sask. Kristín sál. lézt skömmu
eftir fæðingu þessa eina barns.
Um aldamótin gekk Valdimar að
eiga Kristínu Pálsdóttur, sem nú
er eftirlifandi ekkja hans. Þau
hjón eignuðust engin börn.
Valdimar var mikið gefinn fyrir
skáldskap og átti hann til þeirra
að telja. Föðurbróðir hans var
SigurbjöÆ Jóhannesson í Argyle I
bygð, sem var gott skáld. Eftir
því voru þau Valdimar sál. og
skáldkonan þjóðkunna í Seattle,
frú Jakobina Johnson, bræðra
hörn.
Valdimar var vel hagorður.
Þessa vísu gerði hann skömmu
fyrir andlátið:
“Þótt köld mig grðfin kalli
og hverfi sólarljós,
og mold á fjalir falli
og fölni lífsins rós,
sá mikli alheims andi,
sem ölIn gefur Iíf,
eg veit hann ver mig grandi,
eg veit hann er mín hlíf.”
Valdimar aðhyltist lúterska
trú alla sína æfi.
Blessuð sé minning hans!
—Carl J. Otson.
DÁNARFREGN:
Þriðjudaginn þann 12. desem-
ber s.l., andaðist að heimili sínu
í Blaine, Wash., frú Helga María
Guðmundsdóttir Benson. Hún
var fædd að Valdalæk á Vatns-
nesi í Húnavatnssýslu þann 14.
október árið 1852, hún kom til
Canada árið 1883 og ásamt Mr.
Benson sál. kom hún til Blaine
árið 1936 og bjuggu þau þar til
árið 1935 að Benedikt S. Benson
dó. — Mrs. Benson var hin
mesta dugnaðarkona og félags-
lynd með afbrigðum; hún tók
sérstaklega mikinn þátt í öllu
kirkjulegu starfi bæði kvenfé-
lagi, safnaðarmálum, og í mörg
ár var hún sunnudagsskólakenn-
ari í lútersku kirkjunni. — Hafia
lifa 5 sérstaklega myndarlegar
dætur, sem eru: Mrs. G. H.
Jenson, Calgary, Alberta; Mrs.
M. M. Siedel, Calgary, Alberta;
Mrs. M. McComber, Vancouver,
B.C.; Mrs. W. G. Hughes, Van-
couver, B.C. og Mrs. D. R. Col-
lette, Brainard, Minn., ásamt 11
barnabörnum.
Mrs. Benson var jarðsungin
frá Lútersku kirkjunni í Blaine,
föstudaginn 15. desember, að
viðstöddu fjölmenni. Séra Guðm.
P. Johnson talaði við líkbörur
hinnar látnu og jós hana moldu.
Blessuð sé minning hennar. \
Minniál BETEL
í
erfðaskrám yðar
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Agrents for BULOVA Watches
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers and Jewellera
699 SARGENT AVE., WPG.
Wolseley Hotel
186 HIGGINS AVE.
(Beint á móti C.P.R. stöBinni)
SIMI 91 079
Eina skandinaviska hóteliO
i borginni
RICHAR LINDHOLM,
eigandi
Jakob f. Bjarna»on
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem aS
flutningum Iýtur, smáum eSa
stórum Hvergi sanngjarnara
verS.
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Sfmi 35 909
Til þess að tryggja yður
skjóta afgreiðslu
SkuluS þér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
FRED BUCKLE, Manager
Light Delivery Truck
PHOIME
34 555 - 34 557
SARGENT and AGNES
For Good Fuel Values
ORDER
WILDFIRE LUMP .... $11.75 Per Ton
(DRUMHELLER)
BIGHORN SAUNDERS CREEK
(Saunders Area) LUMP $13.50 PerTon
CANMORE BRIQUETTES $13.75 PerTon
SEMET-SOLVAY COKE $15.50 PerTon
STOVE OR NUT
PHONES
23 811
23 812
URDY OUPPLY
' BUILDERS
'SUPPLIES
lO. Ltd.
fand COAL
LICENSE No. 51 1034 ARLINGTON ST.
/
i