Lögberg - 13.06.1940, Síða 8

Lögberg - 13.06.1940, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. JÚNÍ 1940 Drykkurinn hvernig sem viðrar 5c Cr borg og bygð A/.4 TREIÐSLUBÓK Kvenfélaga Fyrsta lúterska safn- aðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld- sted, 525 Dominion St. Verð: $1.00. Burðargjald 5c. ♦ ♦ ♦ Heklu-fundur í kveld (fimtu- daginn). + + + Mr. Barney Benson, B.Sc., lagði af stað austur til Montreal á miðvikudaginn í vikunni sem leið. Herbergi og fæði fæst nú þegar að 749 Winnipeg Ave., örskamt frá Almenna sjúkrahúsinu; is- lenzkir húsráðendur. Góð aðbúð og sanngjarnt verð. Sími 88 645. -♦• ♦ -♦- Mr. S. Sigvaldason frá Baldur var staddur í borginni í lok fyrri viku, ásamt dóttur sinni. Þeir Mr. G. G. Johnson og Mr. A. M. Freeman frá Gypsumville, hafa dvalið í borginni nokkra undanfarna daga. ♦ ♦ ♦ Mr. Valdi Hillman frá Moun- tain, N. Dak., kom til borgar- innar i vikunni sem leið til þess að leita sér lækninga við sjón- depru; hann er um þessar mund- ir á Almenna spítalanum undir umsjá Dr. Kristjáns J. Aust- mann. ♦ ♦ ♦ It may ruin you financially to drive your car without proper Automobile Insurance protection. Rates and particulars gladly furnished. We can also arrange the financing of automobiles being purchased. Consult us for rates. J. J. SWASON & CO„ LTD., 308 Avenue Building Phone 26 821 ♦ ♦ ♦ Dr. Ófeigur ófeigssón frá Reykjavík, er dvaldi hér um hríð sem styrkþegi Canadasjóðs, og er vinmargur frá dvöl sinni á þess- um slóðum, er nýlega kominn til New York, en hygst að fara þaðan til Roche’ster, Minn., þar sem hann ætlar að kynna sér nýjustu læknisfræðilegar upp- götvanir um hríð; hvort hann kemur hingað er enn eigi vitað, þó víst sé að hann hafi það i hyggju. Upplýsingar um komu Dr. ófeigs, lét ræðismaður Dana og fs'lendinga, Grettir Leo Jó- hannson Lögbergi góðfúslega í té. MIRAGLE YEAST Bakar brauð á 5 tímum. Borðíð það heilsunnar vegna. Gott ger fyrir bruggun. Framleitt hjá DYSON’S LTD. WIXNIPEG MANITOBA Kennarastaða Kennari óskast fyrir l’rey-skóla- hérað. No. 890, í Argylebvgð. Umsækjendur gjöri svo vel að senda allar upplýsingar viðvíkj- andi méntun, reynslu og laun- um til A. A. Sveinsson. ' / Sec.-Treas. Box 5, Glenboro, Man. Þann 7. júní voru þau John Johnson og María Anderson gef- in saman í hjónaband af séra S. S. Christopherson í Church- bridge. Framtíðarheimili þeirra verður þar í grendinni. ♦ ♦ ♦ Miss Ruth Benson, sem dvaldi í borginni hálfsmánaðartima hjá móður sinni, Mrs. B. S. Benson, lagði af stað austur til Ottawa á Iaugardagskvöldið, þar sem hún gegnir skrifstofustarfi í þágu sambandsstjórnarinnar. ♦ ♦ ♦ MIKKISVA RÐASJÓDUR K. N. JÚLÍUSAR Áður auðlýst $225.75 S. Sigvaldason, Baldur 1.00 S. S. Anderson. Piney 1.00 Bogi Péturson, Wynyard 1.00 Alls . $228.75 ♦ ♦ ♦ Laugardaginn 8. júní, voru þau Sidney Adrian Atwood, frá Sioux Lookout, Ont. og Margaret Guðríður Johnson frá Transcona, gefin saman í hjónaband, af séra Rúnólfi Marteinssyni, að 493 Lipton St. Brúðhjónin fóru samdægurs til heimilis síns í Sioux Lookout. ♦ ♦ ♦ Sýningu leiksins .4 heimleið. sem auglýst var hér í blaðinu að leikinn yrði i Selkirk þann 13. þ. m„ varð að fresta vegna ófyrirsjáanlegra ástæðna. En í þess stað verður leikur þessi sýndur í Selkirk þann 17. á sama stað og sama tima þá að kveld- inu. 1 ♦ ♦ ♦ Séra Haraldur Sigmar frá Mountain, N. Dak„ kom til borg- arinnar um miðja fyrri viku, til þess að sækja tengdaforeldra sína, séra N. S. Thorláksson og frú Thorláksson, sem dvalið hafa her í borginni síðan í haust er leið. ♦ ♦ ♦ Einar Martin, bóndi í Hnausa- bygð, lézt að heimili sínu síðast- liðinn mánudagsmorgun, tæpra sextíu ára að aldri; hann var fæddur í Riverton. Einar var greindarmaður og framúrskar- andi söngelskur; hann lætur eft- ir sig konu. Sigrúnu Baldvins- dóttur frá Kirkjubæ í Breiðuvík, ásamt sex mannvænlegum börn- um; bróðir Einars á lifi, er Gunnlaugur, búsettur í grend við Hnausa. útför Einars fór fram í gær undir umsjá Bardals. Séra Sigurður ólafsson jarðsöng. ♦ ♦ ♦ Fulltrúar Gimli lúterska safn- aðar hafa afráðið að halda skemtisamkomu í kirkjunni mánudaginn 17. júní, kl. 8.30 e. h. Ræðu flytur Mrs. Jóhanna Thorvardarson frá Árborg. Einn- ig til skemtunar verður söngur og samsöngur, upplestrar, o. fl. Inngangur, eins og gerist við slíkar samkomur, er aðeins 25c. ♦ ♦ ♦ Leiknum um fsland, sem aug- lýst var að útvarpað yrði frá CJOR stöðinni í Vancouver 19. maí, hefir verið frestað fyrir ó- ákveðinn tíma, vegna banns, sem Canadian Broadcasting Corpora- tion hefir sett á allar upplýsing- ar viðvíkjandi skandinavisku löndunum, vegna stríðsins. Þetta útvarp er í dramatísku formi. Efni í leik þennan hefir viðað að sér Mrs. Morris Irwin, New Westminster, B.C. og fjallar leikurinn um landnám fslands, lifnaðarháttu, stjórnarfyrirkomu- lag, þrek og kjark þjóðarinnar á öllum tírpum og fleira, Hve- nær sem levfi fæst, verður þetta auglýst aftur í íslenzku blöð- unum. j PIANO RECITAL | by the pupils of THELMA GUTTORMSON, A.T.C.M., L.R.S.M. THURSDAY EVENING, JUNE 20TJI í Recital Hall, Music & Arts Bldg. Admission 25c - - 8:15 o’clock o^ I f i i i ) í i i John Gilbert Jónasson og Élizabeth Dorothea Lenchuk voru gefin saman í hjónaband laugardaginn, 8. júní, af séra Bjarna A. Bjarnason. Athöfnin fór fram á heimili foreldra brúðarinnar, Mr. og Mrs. Sachara Lenchuk, í grend við Gimli. Brúðguminn er starfsmaður hjá Birks-Dingwall félaginu hér i borg. Heimili hinna ungu hjóna verður í St. Vital, Man. ♦ ♦ ♦ Þann 4. júni voru Laurie Niel Goodman og Alpha Málfríður Halldórsson gefin saman í hjónaband af séra Carli J. Olson. Hjónavígslan fór fram á heim- ili Mr. og Mrs. Laurie Johnson að Mozart, að viðstöddu fjöl- menni. Brúðguminn er sonur Skúla Goodman, sem er búsett- ur í Wynyard, en brúðurin er dóttir Þórviðar Halldórsson. sem er sonur Magnúsar Halldórsson og ólafar konu hans, sem lengi bjuggu í Hallson bygðinni í N. Dakota. Brúðhjónin óku i bíl til Winnipeg, Morris og annara staða í Manitoba. Þau verða búsett í Wynyard framvegis. Þau voru sem bjartur vormorg- un og giftingardagurinn var hinn indælasti. Hugheilar og hjart- anlegar blessunaróskir fylgja þessum fallegu brúðhjónum á hraut. ♦ ♦ ♦ SUMARHEIMILI BARNA AÐ HNAUSUM verður opnað í byrjun júlí. Eins og allir vita þarf á svoleiðis stað margt til skemtunar og dægra- styttingar fyrir börnin. Sérstak- lega þegar rigningadagar eru, og þau geta ekki verið úti, verða þau wrrslasöm, nema eitthvað sé til að draga athygli þeirra og skemta þeim. Eitt af því sem þau ærslasöm, nema eitthvað sé bráðnauðsynlegt að hafa gramo- phone á staðnum. óefað eru margir, sem eiga gramophone og hljómplötur, sem ekki eru í brúki nú, þegar allir nota út- varp, og væri það sönn vinar- gjöf ef einhver vildi gefa heim- ilinu slíkt nauðsynjatæki. Ef einhver sem á gramophone og ber svo hlýjan hug til heimilisins að vilja styrkja það, má sima 89 407, til Mrs. P. S. Pálsson, að 796 Banning St„ Winnipeg. ♦ ♦ ♦ ÚTISKEMTUN Miðvikudaginn 19. júní næst- komandi efnir kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar til “Garden Party’’ sem ákveðið er að fari fram á flötinni sunnan vert við kirkj- una, byrjar kl. 2.30 e. h. og verð- ur haldið áfram fram eftir kveldinu. Hrifandi skemtanir verða hafðar um hönd um kl. 4 e. h. og um kl. 9 að kveldinu. Margskonar veitingar verða til sölu, svo sem: kaffi með brauði, skyr og rjómi, svaladrykkir, ís- i*lómi og candy, og sjá konur félagsins um hvert fyrir sig.— Gefst fólki þarna gott tækifæri að hittd kunningjana í næði, njóta sumarblíðunnar, og um leið að gleðja kvenfélagskonurn- ar ineð því að styðja það góða málefni sem þær vinna að. Enginn aðgangur seldur, nllir velkomnir! Munið stund og stað. (Verði veður ekki hagstætt þennan dag, fer samkoman fram í neðri sal kirkjunnar á sama tíma). ♦ ♦ ♦ Á miðvikudagskvöldið þann 5. þ. m„ voru gefin saman í hjónaband í Sambandskirkjunni her í borginni, þau Mr. Arin- björn Gerard Bardal og Miss Rose Halldórsson. Séra Philip Pétursson gifti. Mr. Hafsteinn Jónasson söng einsöngslag að Jokinni hjónavígsluathöfn, en við hljóðfærið var Gunnar Erlends- son; kirkjan var snyrtilega skrýdd biómum. Brúðguminn er sonur þeirra A. S. Bardal útfararstjóra og frú Margrétar Bardal, en brúð- urin dóttir Jóns Halldórssonar fyrrurrj í Riverton, og frú Önnu Halldórsson, sem nú eiga heima i þessari borg. Svaramenn brúð- hjónanna voru Mr. Harald John- son og Miss Agnes Bardal. Veg- leg og fjölmenn brúðkaupsveizla var setin að heimili þeirra Mr. og Mrs. Björgvin Stefánsson, 740 Banning Street, þar sem hvorki skorti gleði né góðan fagnað. Einar P. Jónsson mælti nokkur orð fyrir minni brúðar- innar, en séra Philip mintist brúðgumans með nokkrum hlý- yrðum. Ungu hjónin fóru brúð- för sína suður í Bandaríki Framtíðarheimili þeirra verður í Bardal Block, Winnipeg. ♦ ♦ ♦ Mr. og Mrs. Sigurður Sigurðs- son frá Oak View, Man„ dvelja ,í borginni þessa dagana ásamt börnum sínum. ♦ ♦ ♦ Mr. Sigtryggúr Sigurjónsson frá Edmonton, kom til borgar- innar á föstudaginn í heimsókn til foreldra sinna, Mr. og Mrs. Sigurbjöm Sigurjónsson; hann mun dveljast hér um slóðir að minsta kosti fram í lok yfir- standandi viku. ♦ ♦ ♦ FERMING f SELKIRK Hér birtast nöfn tólf ung- menna, sem staðfestu skírnar- heit sitt við fjölmenna guðsþjón- ustu í kirkju Selkirksafnaðar, síðastliðinn sunnudag, 9. júní, kl. 2 e. h. Á þeim degi voru rétt fimmtíu og eitt ár liðin frá stofnun safnaðarins. Eleanor Edna Erlendson Ingibjörg Elísabet Alda Goodman Nina Margaret Johnson Steinunn Laura Pearl Stefanson Olive Jóhanna Valgerður Thorwaldson Gordon Lorne Dalman Victor Helgi Maxon Carl Frederickson Midford Lawrence Einar Thorwaldur Peterson Walter Gordon Stefanson Franklin Wilbert Thorsteinson Gordon Walter Walterson. —V. J. Eylands. Messuboð FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA Sérn Valdimar J. Eylands Heimili: 776 Victor Street. Sími 29 017. Sunnudaginn 16. júní: Guðsþjónusta á ensku kl. 11 f. h.; sunnudagsskóli kl. 12.15; íslenzk guðsþjónusta kl. 7 e. h. ♦ ♦ ♦ MESSUR i ARGYLE Sunnudaginn 16. júní: Baldur, kl. 11 f. h. Brú, kl. 2 e. h„ ferming, alt- arisganga og heiðingjatrú- boðsoffur. Grund, kl. 4 e. h. Glenboro, kl. 7 e. h. E. H. Fáfnis. ♦ ♦ ♦ VATNABYGÐIR Kl. 11 f. h„ ensk messa i Mozart; annan sunnudag, 23. júní, verður messað í Grandy og Wynyard. Jakob Jónsson. ♦ ♦ ♦ LÚTERSKA PRESTAKALLIÐ í VATNABYGÐUM Séra Carl .1. Olson, B.A., B.D. prestur Heimili: Mclnnes and Ken, Wynyard, Sask. Sunnudaginn 16. júní: Westside kl. 11 f. h. Foam Lake kl. 3 e. h. Leslie kl. 7.30 e. h. Allir boðnir og velkomnir- ♦ ♦ ♦ Sunnudaginn 16. júní messar séra H. Sigmar í kirkju Vídalíns- safnaðar kl. 11 f. h. (íslenzk messa), í Brown, Man. kl. 2.30 e. h. (íslenzk messa) og í Péturs- söfnuði við Svold, N. D„ kl. 8 e. h. (ensk messa). ♦ ♦ ♦ GIMLl PRESTAKALL Sunnudaginn 16. júní: Betel, mórgunmessa; Gimli, dslenzk messa kl. 7 e. h.; sunnu- dagsskóli Gimli safnaðar kl. 1.30 e. h. DÁNARDÆGUR Sunnudaginn 2. júní andaðist Björg Pétursson á heimili sínu í Fjallabygð, norður af Milton, N. I)„ el'tir langvarandi heilsu- leysi. Björg sál. fæddist 31. maí 1863 í Mjóanesi í Suður-Múla- sýslu á fslandi. Foreldrar henn- ar voru Magnús Vilhjálmsson og Guðrún Jónsdóttir. Björg gilt- ist fyrri manni sínum, Niels Veum á íslandi, og koin með honum til Ameríku og til N. Dak. árið 1888. Hann dó snenrma á árum hér i bygð. Þau eignuð- ust 6 börn en af þeim lifa nú aðeins tvö, Jón og Guðrún, sem bæði eru búsett í California. Árið 1899 giftist Björg í ann- að sinn, þá Haraldi Péturssyni bónda, i Fjallabygð. Bjuggu þau þar stóru myndarbúi, þar til Haraldur dó í hárri elli fyrir fá- um árum. Var heimili þeirra vinsælt og mikilsvirt, eins og þau sjálf, fyrir sakir gestrisni, greiðasemi og margra kosta. Þau eignuðust þrjú börn, Oscar, 'heima; Helgu (Mrs. Thorstein- son), Duluth, Minn.; Magneu (Mrs. Swanlaw), Milton, N.D. Auk þess tóku þau stúlku til fósturs, sem heitir Ragna og er heima. Þar að auki hafði Har- aldur áður tekið til fósturs Svöfu (Mrs. ögmundson) nú í Blaine, Wash. og Thorleif Thorleifsson í Botteneau, N.D. Jarðarför Bjargar fór fram þriðjudaginn 4. júní frá heim- ilinu og kirkju Fjallasafnaðar. Séra H. Sigmar jarðsöng. Fjöldi fylgdi hinni látnu til grafar. Björg sál. var góð, mikilhæf og vel gefin kona. Naut hún mikilla vinsælda, enda var hún gestrisin, hjálpsöm og félagslynd. ♦ Mánudaginn 27. maí andaðist Kristján Jónsson á heimili dótt- ur sinnar og tengdasonar í grend við Milton, N. Dak„ N. D. eftir langvarandi heilsubilun. Kristján sál. fæddist í Þingeyjarsýslu á fslandi 2. apríl 1870. Foreldrar hans voru Jón Björnsson frá Stóru-Laugum í Reykjadal í Þingeyjarsýslu og ólína Andrés- dóttir. Kristján sál. var ná- skyldur nafna sínum Kristjáni Jónssyni, hinu velþekta skáldi í Þingeyjarsýslu, sem dó á svo ungum aldri. Kristján kom frá fsljandi 1891. Hefir hann búið mikið af tíman- um siðan í N. Dak„ oftast í grend við Hallson og Svold, N. D. Hann giftist Stefaníu Friðrikku Stefánsdóttur. Þau eignuðust 4 börn, sem öll eru á lífi, tvö i N. Dak. og tvö í Manitoba. Þau hjón skildu fyrir allmörgum ár- um og hefir Stefanía síðan átt heimilisfang i Manitoba. Kristján sál. var mjög söng- hneigður og söngelskur maður, en líka Ijóðelskur. Hann var kurteis og vingjarnlegur í fram- komu ávalt, og vildi æfinlega varast sem mest að meiða til- finningar samferðafólksins. Kristján var jarðsunginn frá kirkju Péturssafnaðar við Svold, N. I)„ fimtudaginn 30. maí. Margir nágrannar og kunningjar fylgdu honum til grafar, auk skyldmennahópsins. Séra H. Sigmar jarðsöng. ♦ Sunnudaginn 26. maí urðu þau Mr. og Mrs. Leo Hillman, Moun- tain, N. D. fyrir þeirri sáru sorg að missa 7 vikna gamlan einka- son sinn. Hann dó á sjúkrahúsi í Grand Forks, þar sem foreldri hans voru að leita honum lækn- inga. Barnið smáa var jarðsung- ið frá kirkju Víkursafnaðar í Mountain, þriðjudaginn 28. maí. Fjölmenni fylgdi barninu til grafar. Séra H. Sigmar jarðsöng í Elmo í Kansas hefir fundist steingervingur af flugu, sem verið hefir mjög sjaldgæf. Dr. Carpentier, prófessor við Har- vard háskóla álítur, að fluga þessi hafi í lifanda lífi verið 75 cm. á lengd, og telur hann að hún hafi lifað fyrir 150 miljón- um ára síðan. Minniát BETEL í erfðaskrám yðar Jakob f. Bjarna»on TRANSFBR Annaat srreiíSIega um alt, aem a8 flutningrum lýtur, sm&um eBa stðrum. Hvergi sanngjarnara ver8. Heimili: 591 SHERBURN ST. Siml 35 909 PETERS0N BROS. verzla með ís og Við Box 46 GIMLI, MAN. The Watch Shop Diamonds - Watches - Jewelry Agents for BULOVA Watches Marriage I.icenses Issued THORLAKSON & BALDWIN Watchmakers and JeweXlers 699 SARGENT AVE., WPG. TU þess að tryggja yður skjóta afgreiðslu Skulu8 þér ávalt kalla upp SARGENT TAXI FRED BUCKLE, Manager Light Delivery Truck PHONE 34 555 - 34 557 SARGENT and AGNES KAUPIÐ AVALT LUMBER hja THE EMPIRE SASH & DOOR C0. LTD. HENRY AVENUE and ARCYLE STREET Winnipeg, IVIan. - Phone 95 551 “Á Heimleið” Sjónleikur í fjórum þáttum úr samnefndri sögu eftir Guðrúnu Lárusdóttur, snúið í leikrit af syni hennar Lárusi Sigurbjörnssyni, verður sýndur á eftirfylgjandi stöðum: SELKIRK, MAN„ 17. JÚNÍ MOUNTAIN, N. DAK„ 14. JÚNl Byrjar klukkan 8 Inngangur 50c Þessi leikur er undir umsjón Kvenfélags Ársdalssafn. IM3

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.