Lögberg - 31.10.1940, Blaðsíða 6

Lögberg - 31.10.1940, Blaðsíða 6
6 LÖGBKRG, FIMTUDAGINN 31. OKTÓBER, 1940 Sakleysið sigrar um síðir Þýtt úr enshu Hilary Hilton, greifafrú af Dayle, — fvrir fáum klukkutímum aðeins óbrotin Hilary Marbourne — sat nú við hlið manns síns í stórri og skrautlegri bifreið á leið frá London til Dayle herragarðsins. Greifinn stjórnaði bifreiðinni sjálfur. Hin fremur lympjulega liönd hans hélt um stýrishjólið með áberandi taugaóstyrk, sem ekki hafði verið jafnvel brúðinni sjálfri merkjanlegur meðan giftingar-athöfnin stóð yfir. “Það er andstyg'gilega heitt í dag,M urraði Dayle önuglega. Hann losaði aðra höndina, til að gaufa eitthvað við hálskraga sinn, og bifreiðin snerist á meðan hættulega úr réttri rás út á vegarbrúnina. Hilary varð hverft við. Og henni datt nú í hug, að Ronald hefði neytt heldur mik- ils af kampavíni. ” “Þetta varð næstum til |)ess, að við lentum niður í skurðinn,” sagði hún kulda- lega. “Lofið mér að setjast við lijólið. I»ér eruð — J>reyttur.” Yghlur á svip herti Dayle lávarður á bifreiðinni: • “Eg held varla að eg kæri mig um að láta konuna keyra með mig á sjálfan gift- ingardaginn, þakka þér fyrir. Það myndi líta svo út að eg væri sem fjötraður fangi við skrautvagnshjól yðar, væri það ekki? Eg vil, kæra mín, ekki segja neitt móðgunar- yrði — en þetta kuldalega drembnis-bros, sem verið hefir á andliti yðar í alian dag, gaúi skilist svo, sem þér væruð reglulegur fangavörður. ” Hún reiddist þessu ákaflega, og gleymdi alveg óttanum, sem hún hafði fundið til út af því að hann stjórnaði bifreiðinni. “Þér hafið enga heimild til a tala svona við mig. Eg lét yður skilja það greinilega, að eg myndi ekki látast bera ást í brjósti til yðar—” “Og að þér mvnduð aldrei bera kinnroða vegna móður yðar. Ó-já, eg mnnist þess!” svaraði hann og hló ruddalega. “Mér þykir )>að slæmt, en þér verðið að læra hvort- tveggja!” Gremja hennar snerist nú í ofsareiði. “Ronald! Hvemig vogið þér að segja þetta við mig!” Hann svaraði engu og henni virtist sem hann skammast sín fyrir geðvonskuna, er náð hefði sér niðri hjá honum. Hún virti hann nánar fyrir sér — herðabreiðan, meðal- mann á hæð, með slétt, pukurslegt andlit; fremur kjálkabreiðan og þunnhærðan — í stuttu máli mann helmingi eldri en hún sjálf, sem hún ekki elskaði, og sem hún hafði geng- ið að eiga auðs hans vegna. Ilugsanirnar drógust nú að föður henn- ar. Heilsu hans hafði hrakað upp á síð- kastið. Vegna þess að læknamir höfðu talið óhjákvæmilegt fyrir hann að taka sér langa ferð á hendur með skipi til útlanda, varð að flýta gifting hennar um þvínær f jórar vikur. Á síðustu stundu hafði hann talið sér ó- mögulegt að vera viðstaddur giftinguna og engar fortölur hennar gátu fengið hann til að hreyta þeim ásetningi sínum; fjarskyldur ættingi hafði leitt hana til brúðgumans og í þéttsetinni kirkjunni og blómum fyltum veizlustofum frændans var ekkert andlit að sjá, sem á föðurleifð hennay fékk mint. 3. Kapítuli. Þau voru nú á leið sinni út á Dayle setrið, til að eyða þar hveitibrauðsdögunum, J)ví meðan Sir Arthur var enn að Turnum, vildi Hilary ekki fara í ferðalag til útlanda. “Ronald,” sagði hún alt í einu, “það yrði ekki langt úr leið fyrir okkur að fara um að Turnum, væri það? Mig langar svo mikið til að koma heim — er líklega áhyggju- full föður míns vegna. En, hreinskilnislega sagt þá finst mér eins og eitthvað dragi mig beinlínis þangað.” “Já, við skulum fyrir alla muni gera J>að, og standa við nokkrar mínútur,” sagði Davle og var nú aftur orðinn alúðlegur. Ofurlítið framundan stóð leiðarpóstur við veginn og bt'nti til þorpsins, sem Hilary hafði ætíð litið á næstum eins og sitt eigið heimaból. En hér stanzaði lávarðurnn bif- reiðina. “Eg er hreint ekki viss um að við ætt- um að fara gegnum Jtorpið. Það hlýtur að vekja J)ar einhvern hlið, ef fólkið verður vart ferða okkar, og hverskonar fagnaðar- hót við okkur hér mvndi angra leignliðana að Dayle. Ef við skljum bifreiðina hér eftir, getum við gengið um skógargötuna heim að Turnum. ” Það var rétt að segja sloppið fram af vörum henní, að hann skyldi bíða sín Jjarna — láta sig eina hitta föður sinn. En hún óttaðist að það myndi angra hann á ný. Auk þess — þau voru ekki einsömul þarna. Upp að stólpanum framan við garðs- riðið hallaði sér maður, sem hún leit snögg- lega til — en svo aftur ósjálfrátt. Maður- inn var hávaxinn, og þótt yfirbragð hans væri l.jóst, hvíldi á honum eins og óljós út- lendingsblær, einhver kæruleysislegur prúð- mensku yndisþokki, sem greip athygli hennar ósjálfrátt og hélt því föstu. En það var ekki aðeins látbragð hans, er hreif hana; það var einnig eins og hún fyndi til hulins máttar, er frá honum streymdi, eitthvað karlmanidegt og ljúfrænt í senn. Þegar ska>r og staðfesturík augu hans mættu til- liti hennar, rétti hann skyndilega úr sér, eins og hann kannaðist við hana. Svo bað hann ljúfmannlega afsökunar og færði sig ögn um set, en hún klifraðist jafnskjótt léttilega yfir garðsriðið. Lávarðurinn fór þar einnig yfir á eftir henni. “Hver er hann, þessi snáði?” urraði Dayle. “Það veit eg ekki,” svaraði hún vand- ræðalega. Hún fann blóðið þjóta með ólg- andi ofsa um allar æðar sínar og til höfuðs- sér. “Það leit svo út, sem þið hefðuð kynst áður,” sagði Dayle þrályndislega. “Við höfum ekki kynst. Eg hefi aldrei séð hann fyrri en hér nú. ” “Þú hefir ef til vill gleymt honum.” “Ó-nei. Eg gæti ekki gleymt honum — engum væri mögulegt að gleyma svona manni. ” Svo upptekin var hún af sínum æstu og hraðstreymu hugsunum um þennan ókunna mann, að hún vissi ekkert hvað hún sagði. Vissi í sannleika varla af manninum, sem gekk með ólundarsvip við hlið henni. Hún hafði gleymt honum, gleymt afhöfninni, sem fyrir aðeins örfáum klukkustundum hafði tengt hana við hann; gleymt öllu nema manninum við garðsriðið, er horft hafði á hana með því augnaráði er krafðist hennar — hún sá það! — sem sinnar eigin. “Hilarv!” > Þau voru komin úr augsýn inn öftir skógargötunni, og maður hennar var að snúa andliti hennar gagnvart sér, þar sem þau stönzuðu; hann hafði gripið þana föstum tök- um og hún fahn á sér að varir hans myndi á næsta augnabliki hvíla á eigin vörum henn- ar. “Nei-nei!” Með ofsafengnum umbrotum sleit hún sig lausa frá honum. Hvað sem samningn- um leið, Jiá gat hún ekki þolað faðmlög hans. Andlit ókunna mannsins brosti henni enn við augum, og Ronald með drungalega, breiða andlitið og undirhyggju-blikuna í augunum, var að reyna að draga hulu á það fyrir henni. Hún fann á sér, að ef hann reyndi að halda henni nauðugri, myndi hún reka hnefann framan í hann. En svo fór hún að ná sönsunum aftur. Maðurinn við garðsriðið var henni ekkert. Ef hún hefði verið laus, þá ef til vill — en hún var ekki frjáls. Ilann hafði komið of seint. Þegar Ronald greip nú aftur um hand- legg henni, veitti hún enga mótstöðu og lok- aði augunum — þá linaði hiann alt í einu á takinu. “Einhver ósvífinn flækingur, geri eg ráð fyrir,” muldraði Dayle. Hún hélt hann væri enn að tala um manninn við garðsriðið, og beit á vör sér; en fótatak í skóginum vakti nú athygli henn- ar. Kvenmaður kom gangandi í hægðum sínum til þeirra frá Turnagerðinu. Há, grannvaxin kona, með sáraör á andiitinu, er aflöguðu það svo hún virtist bera á því einkennilegt hæðnisbros. Hún var svart- klædd og yfir kambinn í hári hennar var brugðið kniplingaskýlu. t annari hendi hélt bún á teikningabók. Þótt konan hefði nú augun á slóðinni, sem hún gekk eftir, vissi Hilary að hún hefði tekið eftir sér, ekki aðeins sem einhverri stvilku er reika væri um í skóginum, heldur litið sig moð áhuga sem sérstaka persónu, hennar sjálfrar vegna. Ef hún aðeins segði nú eitthvað! Rödd hennar, hugsaði Hilary, hlýtur að vera yndisleg — hæglát og tignar- leg, eins og göngulagið. Eða ríkilát eins og svipurinn á andlitinu. f röddinni hlyti að felast hljómfegurð og hógværð — vera rödd er hvíslað gæti leyndarmálum — og verið einnig skipandi rödd. En svo — í staðinn fyrir heillandi un- aðshljóm barst lienni til eyrna gargkend rudda-rödd. “Þér vitið J)að ef til vill ekki, frú, að þér gerið yður seka um átroðning.” Hin háværa og ruddalega rödd Ronalds virtist bergmála um allan skóginn. Aðkomukonan sneri sér við og horfði á Ronald eins og hún hefði aldrei séð hann áður, og svaraði: “Einmitt það! Þér eruð ef til vill eig- andinn?” “Eg er ekki eigandinn. En—” “Þér eruð þá—skógarvörðurinn hans?” Röddin bar með sér öll þau sérkenni, er Hilary hafði gert sér í hugarlund að hún hefði. Hún var hljómfögur og hógvær; en þegar hún tók ofan í við x-uddaskap Ronalds virtist hún harðneskjukend. Hiláry fann til þess með sjálfri sér, að hún gæti ekki afborið harðneskjuhljóminn — hún yrði að kalla aftur fram þýða rómblæinn. “Það er sannarlega ekkert við þetta að atliuga. Gerið svo vel að skoða sjálfa yður ekki sem fremjandi neinn átroðning,” sagði hún. Þótt undarlegt væri, fanst henni hún vera eins og lítil stúlka frammi fvrir að- komnu frúnni. “Skógurinn er eign föður míns, Sir Arthurs Marbourne. Eg er Hilary Marbourne — og þetta er Dayle lávarður.” “Þökk, Miss Marbourne. Eg er Mrs. Gondanza. ” Þýði hljómblærinn var nú aft- ur yfir rödd frúaxánnar; en nú var hann rofinn aftur. “ Þú ert ekki Hilary Marboume!” urr- aði Ronald. “Eg bið fyrirgefningar!” flýtti Hilary sér að segja, en afsökun hennar var beint að ókunnu frúnni. “Bg gleymdi — það er vissulega mjög heimskulegt af mér, en eg var búin að gleyma þessu. Eg hefði átt að segja Hilary Dayle. Við Dayle lávarður vorum gefin saman í hjónaband fyrir örstuttri stund nú í dag.” “En í blöðunum var sagt, að þið ættuð að giftast í næsta mánuði!” Segulmagnið var horfið frá Mrs. Gondanza. Svipur hennar var gjörbreyttur. Andlitið var ekki lengur íúlegt og með sjálfstraustsblæ, og augu hennar báru þess ljós merki að hún væri sem lostin og yfirbuguð kona. “Það átti að gerast í næsta mánuði — en við flýttum J>ví vegna þess að faðir minn—” “Okkar einkamál geta enga þýðing haft fyrir þessa frú,” greip Dayle fram í. Hann hefði leitt Hilary á burt með sér, en hún vatt sig af honum, því það sýndist eins og líða a'tlaði yfir Mrs. Gondanza. “Það virðist svo, Mrs. Gondana, sem yður líði eitthvað illa?” sagði Hilary. “Eg er bara ögn þreytt — ekki annað. Eg hefi gengið heldur langt. ” “Gerið svo vel að þiggja hjálp mína,” sagði Hilary. “Finst yður að þér gætuð gengið eins langt og til Turna? Það er ekki löng leið og þér getið hvílt yður þar—” “Nei, þakka yður fyrir! Eg næ mér aftur eftir augnablikshvíld. Eg held eg ætti að setjast á trjábolinn þarna yfir frá.” Hilary studdi hana yfir að trjábolnum. “E'rtu að koma?” kallaði Dayle óþolin- móðlega; en Hilary lét sem hún heyrði ekki til hans. “Þér eruð mjög væn við mig, kæra frú. En eg er hrædd um að hafa móðgað bónd- ann yðar — með því að sýna undrun mína á því — að hann sé yðar eiginmaður. ” “Það gerir ekki hið minsta til eða frá,” sagði Hilary. Orðin voru eins og hvert ánnað siðgæðisform, en hljómurinn í rödd hennar bar með sér að það var eins og hún hefði sagt: ‘ ‘ Eg ætla að framfylgja samn- ingum mínum við hann og að öðrn leyti skiftir mig Jxað engu hvort hann er móðg- aður eða ekki.” “Nú, jæja þá!” flýtti Mrs. Gondanza sér að segja, alveg eins og Hilary hefði látið tilfinningar sínar í 1jós upphátt í orðum, og bætti við: “Samt ættuð þér, kæra mín, ekki að láta hann bíða lengur. Eg hvíli mig hérna og þér þurfið ekki að hafa neinar á- hyggjur mín vegna. Það — það var svo fallega gert af yður að láta í ljós nokkrar áhyggjur út af mér. ” Mrs. Gondanza rétti henni hönd sína. Hilary greip í hana og gaf af sér ofurlitla hrygðarstunu um leið, eins og merki um að hún vildi gjarnan geta hinkrað við ögn leng- ur, en fann á sér að nú væri ætlast til að hún yfirgæfi svartklayldu konuna. Mrs. Gondanza festi augu á hinni yndis- legu dóttur sinni, er óðum fjarlægðist — og í djúpu augunum var nú skerandi angistar- svipur. “Gift! Og það honum!” Hún laut höfði á höndur sér og sat þannig hrevfingarlaus. Hún hafði sjáanlega ekkert hreyft sig úr þeim skorðum, þegar Philip Clemming eftir tuttugu mínútur fann hana Jiania. “Hilary gekk að hlið bónda síns þar sem haun beið hennar við garðsriðið. “Mér geðjast ekkert að kæruleysislegum kunningsskap við ókunnugt fólk,” mælti hann önuglega. “Þú kýst heldur ruddaskapinn?” Óafvitandi var Hilary að líkja eftir Mrs. Gondanza. Að þessu hló hann með ósviknum viðurkenningar-hreim í röddinni. “Eg sé að við ætlum að lenda í orða- sennu. Á móti því er ekkert að hafa, kæra mín. Mér geðjast vel að andríkum konum.” Dayle lávarður leit rannsakandi auga til hennar og mælti ennfremur: “Veiztu það, að þú ert að líkja eftir Jiessum kvenmanni! Þú stælir rödd hennar ; })ú lvftir augnabrúnunum til að líkjast glotti hennar. Og — það er einkennilegt — en þu ert vissulega fremur svipuð henni.” Hann sagði þetta auðheyrt með ásetn- ingi henni til óvirðingar, en Hilary lét sexn hún tæki ekki eftir fjandskapsorðum hans. “Og hví ekki? Ilún tylti yður áðan laglega á rétta hyllu. Eg gæti gert margt verra en að líkja eftir henni alla mínn daga.” 'Þau voni nú komin upp á tröðina, sem lá upp að framdyrunum á Turnum. Er þan stigu upp úr illa hirtu tröppunum, stóðu þau andspænis borðstofuglugganum; á honum miðjum var ferhyrnt blað fest í öll horn með heftiblaðsdreglum; á því stóð prentað: “Marbourne Tumar til sölu á uppboði. Messrs Brandburv hafa fengið umboð til að selja ofannefnt —” las Hilary. “Hvað annars í öllum bænum hefir þetta að þýða, Ronald?” spurði hún. “Eitthvert áform föður þíns. Þér er bezt að spvrja hann um það,” svaraði Dayle. Inni í forstofunni sat maður á gamalh eikarkistu og var að skrifa í minnisbók. Mvndskurðurinn á kistunni, liin máða prýði austræna. gólfdúksins, og ættarskjöldurinn 1 háa glugganum myndaði alt umhverfi það er við blasti, þar sem maðurinn með minnis- bókina var eini skugginn. Hilary leit til hans, en hann gaf henni engan gaum. Hún var rétt að því komin að ávarpa hann þegar afturdyrnar lukust upp og gamli þjónninn, þreyttur og hnugginn, stóð frammi fyrir henni. “Ó, Walters! Hver —?” “Eg geri ráð fyrir að þú viljir tala nokkur orð við föður þinn,” greip Dayle fram í fyrir henni. 4. K a p í t u l i. Hilary fann föður sinn í skotfæra-her- berginu sitjandi eins og örmagna í bríkur- stóli. “Ó, elsku stúlkan mín,” sagði liann í hálfum hljóðum. “Þú hefðir ekki átt að koma, Eg var að vona, að þú-mvndir ekki gera það. Og það líka á giftingardaginn þinn.” “En auðvitað varð eg að koma við hér og finna þig. Við erum á leið út til Dayle setursins. Giftingarathöfnin var ljómandi.” Auðséð var, að hann hlustaði ekkert á þetta, sem hxxn sagði honum. “Pabbi, hvað þýðir þessi tilkynning, sem límd er á borðstofu- gluggann. Og hvað er maðuriixn í ganginum að hafast að?” Sir Arthur strauk annari hendinni um augu sér. “Maðurinn í ganginum er aðstoðar- skrifari fógetans,” svaraði hann. “Tilkynn- iixgin á glugganum er lögboðin venja,, sem fógetaþjónninn hefir ekkert með að gera. Þetta þýðir aðeins það, að Brandburys fe- lagið hafi upphafið veðpantsréttinn og setli að selja Turna.” Hilary varð þungt um andardráttinn. Hún hafði enga hugmynd haft um, að svona báglega væri komið um hagi þeirra. “En eg get greitt xxr þessari vandræða- flækju. Ronald gerir mér það unt, sam- kvæmt samningunum. Það var einn hluti ráðagerðanna milli okkar. Þú ættir ekki, elsku pabbi, að vera með hugarangur út af Jxessu núna, rétt áður en þú leggur upp 1 ferðalag þetta.” “Eg ætla ekki að fara neitt burtu. Eg liefi engin efni á því.” “Ronald er íiérna, eg skal biðja liann að greiða fram úr þessu.” “Þú mátt vissulega ekki gera það,’ svaraði Sir Arthur og stóð upp úr stólnum. “Þú getur ekki, Hilary, farið að tala um peningasakir við eiginmanninn á giftingar- degi ykkar.” Þessi stórlætiskend gamla mannsins var átakanlega tengd hinu sorglega getuleysi hans. Að baki alls hæfileikaskorts hjá hon- um til að gera sér grein fyrir staðreyndum lífsins, leyndist sú afsökun í í huga hans að móðir hennar hefði eyðilagt líf lians. “ Jú, jú, við erum ekkert skáldsagna par; eg sagði þér J)að strax í byrjun. Ronald er kunnugt um tilfinningar mínar gagnvart honum. ” Hún var rétt í J)ann veginn að kalhx til hans, en þegar hún gekk að stofuhurðinni til að opna hana, kom Davle sjálfur inn 1 dyrnar. “Góðaxi daginn, Sir Arthur! Hvernifif líður yðurí” Dayle bar lítilsvii'ðing tengdaföður sínum, en öfundaði hann a höfðinglegu látbragði hans. “Hilary v£Jr yndisleg brúður. Það var afar leitt, að þer skyldið ekki vera viðstaddur til að sja hana.”

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.