Lögberg - 26.12.1940, Síða 2
LÖGBERG, FIMTUDAGiNN 26. DESEMBER, 1940
Rödd úr
Borgarfirði
syðra
Stóra-Kroppi 8. nóv. 1940.
Kæri ritstjðri
Einar P. Jónsson,—
Eins og meðfylgjandi fréttabréf ber
með sér, er það skrifað i flýti. Urðu
því á. þvf ýms smiðalýti bæði með orða_
lag og stafsetningu, en eg vona samt
að þú útskúfir þvi samt ekki fyrir þá
galla, en stærstu misfellur bið eg ykk-
ur að laga I hendl án þess að aðalefni
raskist.
Eg má ekki láta það ðgert að þakka
þér sem bezt fyrir sendingu Lögbergs.
sem eg fæ með beztu skilum, Vona eg
að það og alt, sem ritað er á íslenzka
tungu I ykkar landi megi lifa sem
lengst.
Með kærri. bróðurkveðju til þfn og
þökk fyrir alt þar á meðal mörg þln
snjöllu kvæði.
Kristleifur porsteinsson.
•
Borgart'irði
ó. nóv. 1940.
Kæru Vestmenn,
heilir og sælirl
Beztu þakkir fyrir allar ykkar
vinarkveðjur. Nú er, eftir okkar
tímatali næstum hálfur mánuður
af vetri, en veðráttan bendir ekk-
ert í þá átt að svo sé. f dag er
himininn heiður, stillilegur og
ekki skurmað á polli, eftir okkar
löngu nótt. Þessu lík hefir veðr-
átta verið síðastaliðnar sex vik-
ur. Fjöldi blómjurta standa enn
með fullu lifi í skrúðgörðum
þeim, sem vel hafa verið hirtir.
Svona hefir veðráttan farið vel
með okkur Borgfirðinga þetta
haust. Og það má segja næstum
alla landsmenn. f erindi, sem
Jón Eyþórsson veðurfræðingur
flutti í útvarpið í gærkveldi,
taldi hann að hin sama veður-
hlíða næði yfir mikinn hluta
landsins. Þó var eitthvað kald-
ara á Hornströndum, eftir því
sem Jóni sagðist frá. Lýsti hann
því að frá Reykjavík gengi fólk
á fjöll þar sem hið fegursta við-
sýni væri helzt að finna, til þess
að njóta hinnar beztu hressingar
og heilsubótar. Fólk á öllum
aldri tekur nú þátt í slíkuin
fjallagöngum, alt frá sjötiu og
fimm ára gamalmennum niður
til fjögra ára barna. En Reykja-
víkurfólk, sem er á léttasta
skeiði, fer nú skíðaferðir á
Langjökul, þvi snjór er nú að
eins á hæztu jökulhungum.
Fyrstu dagana af september í
haust var svo mikill hriðarbylur
á Kaldadal að bílar, sem þar
voru þá á ferð, fengu hrakfarir
og aftursnúning. Nú fyrir fá-
um dögum fóru kennarar og
nemendur frá Reykholtsskóla
skemtiferð um Kaldadal til Þing-
valla. Var þá heiður himinn .og
logn dag og nótt. Var farið frá
Reykholti að morgni dags og
komið heim að kveldi. Sá ferða-
fólkið ljóma íslenzkrar fjalla-
auðnar í allri sinni dýrð. Verða
slikar fjallaferðir ógleymanlegar
íslenzkri æsku. f sumar voru
flestir dagar með öðrum svip og
líka minnilegir. Vorið hlýju-
laust með járnköldum helliskúr-
um, svo gróðri miðaði hægt.
Fyrri hluta júlí bvrjaði þó slátt-
ur og komu þá nokkrir þerris-
dagar. Náðu þá flestir bændur
nokkru inn af laufgrænni töðu.
Kin frá miðjum júli hélzt hér
næstum óslitinn óþerrir til slátt-
arloka. Ekki sá til sólar dag
eftir dag, frá morgni til kvölds.
Koldimm þoka huldi alt loftið og
svifaði um holt og hæðir, en
annað veifið hvolfdi hún sér
niður á jafnsléttu og lyfti sér
ekki þaðan aftur fyr en hún
hafði ýrt vatni yfir alla jörð.
Endrum og sinnum létti til í bili,
en aldrei nema dag og dag i
senn. En þá fáu daga, sem
þokan rýmdi var loftið svo kalt
að frost var á fjöllum um nætur
og stundum fraus í lágsveitum í
ágústmánuði og er það mjög fá-
títt hér i Borgarfirði. Það mátti
furðu gegna að i svona veðurlagi
varð grassretta að lokuin í góðu
meðallagi, en með nýtingu heyja
var öðru máli að gegna. Þau
hröktust viku eftir viku, og voru
svo hirt hálf-vot að lokum. Hey-
fengur varð þó nálægt meðallagi
að vöxtum, en auðsætt er að
mikið af notagildi heyja hefir
farið meira og minna forgörðum
fyrir langvarandi óþurka. Ekki
verður þess þó vart að skorið
sé af heyjuin, á máli gamalla
sveitabænda, en i þess stað er
efnatap heyjanna bætt upp með
sildarméli.
Garðaávextir brugðust hér að
meira og minna leyti. í upp-
sveitum héraðsins eyðilagðist
kartöfluuppskera með öllu sök-
um næturfrosta.
Veiði i áin og vötnum hefir
gefið ýmsum er hana stunda
góðar tekjur. Laxgengið í Hvítá
bregst aldrei með öllu, en þeim,
sem stunda þar netjaveiði gaf
hún arð í ininna lagi meðfram
vegna þess að flóð voru í ánni
fram eftir veiðitímanum. b'lestar
veiðiár héraðsins eru Ieigðar til
stangaveiði og sækja kaupstaða-
búar það fast að dvelja við árn-
ar á sumrin með það fyrir aug-
um að veiða lax á stangir oftar
þó fremur til ánægju en arðs.
Einjiver fimasti veiðimaður í
Borgarfirði og þótt viðar væri
leitað er Björn Blöndal bóndi í
Laugarhól, nýbýli milli Bæjar
og Langholts. Síðari hluta ágúst
mánaðar dró hann 250 laxa á
stöng úr Hvítá, fyrir Langholts-
Iandi, en Björn á þá jörð. Marg-
ir þeir sem næstir búa Arnar-
vatnsheiði stunda þar silungs-
veiðar oft með góðum áraxigri,
ekki sízt nú síðan öll matvara
margfaldaðist í verði. Kaup-
staðabúar sækja lika ineir og
meir á heiðar að sumarlagi til
þess að losna við fjölmennið i
bili. Eru þá veiðistangir jafnan
í förinni.
Fuglaveiðar, einkum rjúpna,
voru hér um eitt skeið ekki lítil
tekjulind, en sem er nú að mestu
þorrin. Um þetta leyti árs fóru
áður fyr fjöll og hálsar að verða
hvitflekkóttir af rjúpum, en nú
þykir það i frásögur færandi ef
smalar og leitarinenn s^já eina og
eina rjúpu. Er hún nú líka al-
friðuð samkvæmt skipun stjórn-
arvalda, með það fyrir augum
að henni kynni með þvi móti
fremur að fjölga. Geta þess
margir. til að hinir mildu vetur,
sem nú hafa verið hér óslitið um
svo tugi ára, eigi sinn þátt í því
að rjúpan er lögst hér frá.
Refir una sér hér betur en
rjúpan, það er að segja hinir
viltu refir. Þótt þeim sé lógað
árlega i tugatali sér ekki högg á
vatni. Höggva þeir oft skarð í
vorlömbin á fjallajörðunum og
þó er það lítill hluti refa, sem
leggst á sauðfé.
Fjárkláði, bráðapest og vanki
hjuggu áður fyr oft stórt skarð
í fjáreign bænda, en það voru
smámunir móti því tjóni, sem af
mæðiveikinni leiðir. Nú er
mæðiveikin næstum ein um hit-
una og veldur meira tjóni en
allir aðrir sauðfjársjúkdómar
gerðu samanlagt meðan þeir
voru í algleymingi. Nú og á
undanfarandi árum er svo að
segja hvert gimbrarlamb, sem
lifir, sett á vetur með það fyrir
augum að viðhalda því broti sem
enn er eftir af sauðfjárstofnin-
um. Hjá sumum dugar sú við-
koma ekki til þess að viðhalda
stofninum. Eru þ\d sumir bænd-
ur sem harðast eru Ieiknir af
þessum vágesti vonlitlir með það
að geta framvegis risið undir
þeim kostnaði, sem slík fjáreign
hefir í för með sér. Hinir eru
þó fleiri, sem vilja róa móti
straumi í þeirri von að plága
þessi dvíni með tíð og tíma.
Þess sjást þó ennþá lítil merki.
Allir eru sammála um það, að
miklu meira fé farist af völdum
mæðiveikinnar í ár heldur en i
fyrra. Nokkur hluti þess tær-
ist upp í afréttum en fleira mun
þó vera sem nýtist að nokkru.
Sjúkar ær koma líka oft með
góða dilka, þótt þær séu sjálfar
lítils eða einskisvirði. Margir
hafa tekið upp þá nýbreytni, að
láta gimbrar fá á fyrsta ári. Með
góðu fóðri gefa þær ótrúlega
væna dilka. Síðastliðin þrjú
sumur hafa dilkar reynst óvenju
vel, og nú í haust er verð á
þeim hátt að krónulagi, en ís-
lenzk króna er líka létt á metum
neina ef vera kynni til þess að
greiða með henni áfallnar skuldir.
Á landkostajörðum hafa dilkar
jafnað sig upp með 50 krónum,
en það eru aðeins hrútlömb, því
með gimbrarlömbunum er reynt
að viðhalda þeim fjárstofni, sem
enn er við lýði.
Nú er öll útlend matvara, þar
með talið kaffi og sykur, skömt-
uð úr hnefa. Verða ríkir jafnt
og snauðir að beygja sig fyrir
þeim ákvæðum. En þótt það geti
ekki talist neinn sultarskamtur,
enn sem koinið er, reyna sveita-
barndur að lifa sem mest af því
sem búin gefa af sér. Nautpen-
ingi og hrossuin hefir mikið
ijiilgað á síðastliðnum árum.
Eru því stórgripir lagðir í búin
og lika er mikið af hrossum selt
til slátrunar við sjávarsíðu, því
sauðfé fullna'gir að litlu Ieyti
eftirspurninni.
Notkun fjallagrasa fer nú óð-
um í vöxt, einkum í efribygðum
héraðsins. Sannfærist fólk bet-
ur og betur um hið mikla og
heilnæma gildi þeirra bæði til
næringar og matarbóta. Einkuin
eru það húsfreyjur og heimasæt-
ur sem ríða í hópum til heiða
þar sem þessi góðu grös biða
eftir þvi að þau séu virt viðlits.
Ungir bændur, gamalmenni og
liðléttingar á ýmsum aldri slæð-
astlíka með i þessar ferðir, sem
þykja margra hluta vegna eftir-
sóknarverðar. Blíðar vornætur á
heiðum uppi sem eru bjartar
eins og dagur gleymast seint
þeim, sem þær hafa lifað.
Gróðurhús við hveri og laugar
eru hér á ellefu bæjum. Rækt-
aðir eru tómatar í þeim öllum.
Spretta þeir víðast ágætlega en
alstaðar sæmilega. Má heita að
öll þessi. gróðurþús gefi stóran
arð að frádregnum verkalaunmji
sem eru líka nokkuð mikil.
Tómatar eru eftirsótt vara og
seljast háu verði. Hjá Jóhannesi
Erlendssyni bónda á Sturlu-
reykjum var reynd tvísáning í
n,okkurn hluta gróðurhússins.
Fyrri uppskerunni var lokið
síðari hluta ágúst mánaðar og
þá sett á nýjan leik. Nú er
þessi síðari sáning að skila
nokkuð þroskuðum tómötum,
sem eiga þó enn eftir að fá sinn
rauða lit en til þess þurfa þeir
sólarljós stund og stund, en nú
er það farið að verða hér af
mjög skornum skamti þótt veðr-
ið sé blítt og bjart.
Refabúin, sem þutu upp eins
og haugagorkúlur og áttu að
hjálpa landsmönnum, með öðru
fleiru, til velgengni, eru í beinni
andstöðu við gróðurhúsin. Hlað-
ast nú skuldabaggar, sem þyngj*
ast ár frá ári á flesta, sem ætl-
uðu að gera sér þessi illdýri,
refina, að fóþúfu. Hafa þó sum-
ir, sem með þau bú eiga, góða
viðreisnarvon, en aðrir enga.
Þetta ár má heita að hafi ver-
ið algerð kyrstaða með húsa-
byggingar og jarðabætur eru
líka ríðast í smáum stíl, saman-
borið við umbætur síðustu ára.
Tmibur fæst nú aðeins frá Ame-
ríku og er því ekkert heimatak
að flytja það til landsins, enda
er flutningskostnaðurinn fá-
heyrður og öJlum einstaklingum
ókleift að reisa hús af svo dýru
efni. Síðasta íbúðarhúsið, sem
reist hefir verið í uppsveitum
héraðsins er á Rauðsgili í Hálsa-
sveit. Það komst undir þak i
fyrra sumar, en var svo fullgert
síðastliðinn vetur. Á Rauðsgili
búa Guðbjörn Oddson frá Dag-
verðarnesi í Skorradal og kona
hams Steinunn Þoþsteinsdóttir
frá Húsafelli. Guðbjörn er mik-
ill hagleiksmaður og hefir hann
unnið að öllu leyti að smíði
hússins.
Á héraðsskólanum í Reykholti
eru nú eitt hundrað nemendur.
Eru það bæði piltar og stúlkur
úr flestuin sýslum landsins. Auk
bóknáms er kend þar handa-
vinna í ýmsum greinum, smíð-
ar, liókband og fjölbreyttur
heimilisiðnaður kvenna. Smíða-
kennarar eru þar Magnús Jak-
obsson frá Varmalæk nú bóndi
á Snældubeinsstöðum og Guð-
mundur Frímann bróðir Jó-
hanns Frímanns skólastjóra.
Bókband kennir Bjarni Árnason
frá Brennistöðum í Flókadal og
söng kennir Bjarni Bjarnason
bóndi á Skáney. Þar i Reyk-
holti hefir líka verið undan-
farna daga æfður fjórtán manna
karlakórsflokkur undir stjórn
Björns Jakobssonar á Stóra-
Kroppi. Skólastjóri og kona
hans, sem er systir Gunnars
Pálssonar söngvara, syngja bæði
ágætlega og styðja að eflingu
sönglistarinnar. f Reykholti er
líka mikið og gott bókasafn.
Við það bókasafn, sem skólinn
hefir aukið smátt og.smátt hefir
alt hið mikla og fjölskrúðuga
bókasafn, sem Tryggvi heitinn
Þórhallsson átti, verið keypt
handa skólanum. Má því ætla
að mentagyðjan sé að ná góðri
fótfestu i Reykholti, enda er
hún þar ekkert nýr gestur. Nú
er unnið þar af kappi og ineð
miklum tilkostnaði við fram-
ræslu og byggingu mikils garðs,
sem nefndur verður Snorra-
garður. Efst í þeim garði á
myndastytta sú að gnæfa, sem
Norðmenn hafa látið gera af
Snorra Sturlusyni og gefið
Reykholti. Á hún að öllu for-
fallalausu að afhjúpast í Reyk-
holti 21. sept. 1941, en þá verða
liðin 7 hundruð ár frá banadegi
Snorra Sturlusonar. En svo er
eftir að vita hvort myndastytt-
an keinst hingað til lands fyrir
þann tíma, nú situr hún ennþá
kyr í Noregi.
Hvanneyrarskólinn er sú
mentastofnun, sem að líkindum
skiftir mestu máli fyrir bænda-
efni landsins. Bóndastaða hefir
ekki þótt eftirsóknarverð nú á
siðustu árum samanborið við
ýmsar aðrar atvinnugreinar. Nú
er þó svo að sjá sem nokkur
breyting sé að verða í þeim efn-
um. Nú i haust sóttu eitt
hundrað nemendur um inntöku
í Hvanneyrarskóla. Skólinn
starfar í tveim deildum og eru
þrjátíu nemendur í hvorri deild.
Urðu því sjötíu umsækjendur
frá að hverfa að þessu sinni.
Slíkt hefir ekki skeð þar áður.
Skólastjórinn á Hvanneyri er
Runólfiir Sveinsson, Skaftfell-
ingur að kyni. Er hann nýgiftur
Valgerði Halldórsdóttur, skóla-
stjóra á Hvanneyri Vilhjálms-
sonar. Halldór stýrði bænda-
skólanuin á Hvanneyri í rúm
þrjátíu ár, og var að allra dómi
skörungur og einhver glæsileg-
asti héraðshöfðingi ineðan hann
lifði. Nú eru fleiri og færri
bændur í öllum sveitum þessa
héraðs sem numið hafa búfræði
á Hvanneyri í þau fimtíu ár,
sem skóli þessi hefir starfað.
Þá skal getið hér ýmsra
rnanna, sein látist hafa á þeim
tveim missirum frá þvj eg skrif-
aði síðast. Lít eg þá fyrst yfir
Borgarfjarðarsýslu og fer sveit
úr sveit. Síðastliðinn vetur dó
í Reykjavík, eftir uppskurð, Ást-
ríður Jónsd. frá Stórási í Hálsa-
sveit 69 ára gömul. Ástríður
átti Bjarna Daðason bónda á
Uppsölum í Hálsasveit, sem lát-
inn er fyrir mörgum árum. Voru
þau vel efnum búin og mikil
sæmdarhjón.
Á Hömrum í Reykholtsdal dó
Páll Sigurðsson 55 ára. Hann
var þvínær sjónlaus alla æfi og
mjög vanþroska að likamsburð-
um, en hafði eðllsgreind, sem
gat lítið þroskast vegna þess að
alt útsýni skorti bæði fyrir augu
og anda. Fáir veittu þessuin
veikburða manni athygii, enda
vildi hann fela sig og ekki verða
á almannafæri, þar sem hann
fór á mls við svo margt, sem
öðrum var gefið. Sveið honum
sárt að vera örkumla maður alla
æfi og orti raunavisu um sín
köldu kjör. Með þessari einu
stöku sagði hann alla sina æfi-
sögu í stórum dráttum.
Sjaldan lengi hátt eg hlæ,
helzt til gleðisnauður,
iðjulaus á rúmi ræ,
rétt að segja dauður.
Faðir Páls, Sigurður Helgason
bóndi á Refsstöðum og siðar á
Hömrum, sá um þennan sjúka
son alla hans æfi. Sigurður er
nú 83 ára, ern, léttur á fæti og
vinnufær.
Guðrún Sveinsdóttir á Lundi
í Lundareykjadal lézt í sumar.
Guðrún var ekkja eftir Sigurð
Jónsson prest á Lundi, sem lát-
inn er fyrir fáum árum. Voru
þau hjón gestrisin og vinsæl.
Faðir Guðrúnar var Sveinn
Sveinsson prests Níelssonar
Gróa Símonardóttir kona
Hjartar Hanssonar bónda á
Grjóteyri í Andakíl dó í sumar.
Þau áttu mörg og mannvænleg
börn. Bræður Gróu voru Teit-
ur á Grimsstöðum og Símon í
Einarsnesi báðir á lífi, en hættir
búskap.
Nýlátin er Helga ólafsdóttir á
Varmalæk komin nær áttræðu.
Hún var annara hjú alla æfi og
á Varmalæk í síðastliðin 52 ár.
Þar hafði hún trygt sér dvalar-
stað í ellinni ineð langri og
trúrri þjónustu, og þótt hún
væri ekki tengd fólki þar nein-
um ættböndum, var hún þó
metin þar sem hún væri einn
hlekkurinn í því sifjaliði sem á
Varmalæk hefir búið alt þetta
tímabil. Var henni búin vegleg
útför sem hinsti þakkarvottur
fyrir þann einhug er hún sýndi
í því að láta gott eitt af sér
leiða.
Runólfur Arason bóndi á
Hálsum í Skorradal dó í Reykja-
vík í sumar. Krabbamein í
maga varð honum að bana.
Runólfur var einn af duglegustu
umbótamönnum þessa héraðs.
Beitti hann með einhug og vilja-
festu öllum þeim kröftum, sem
hann hafði yfir að ráða til þess
að auka verðmæti jarðar sinnar
með grasrækt og byggingum.
Kona Runólfs var Ingibjörg Pét-
ursdóttir frá Ytri-Skeljabrekku.
Þau áttu mörg börn og er margt
af sonum þeirra afkastamiklir
hagleiksmenn.
Tveir aldraðir menn, sem á
yngri árum ólu aldur sinn hér
í uppsveitum Borgarfjarðar, hafa
látist á Akranesi í sumar, ólafur
Hannesson, um eitt skeið kend-
ur við Húsafell og Þjóðbjörn
Björnsson, alinn upp í Deildar-
tungu, en síðar um langt skeið
bóndi á Neðra-Skarði i Leirár-
sveit.
Guðný Erlingsdóttir frá
Kirkjubóli í Hvítársíðu andað-
ist á heimili Halldóru dóttur
sinnar, Hallkelsstöðum, síðastlið-
inn vetur. Guðný var kona
Sigurðar Sigurðssonar frá Efsta-
bæ, Vigfússonar. Bjuggu þau
hjón um langt skeið á Þorvalds-
stöðum í Hvítársíðu og áttu
mörg börn. Guðný var mynd-
arkona og hraustbygð alla æfi
þar til í vetur að krabbamein
varð henni að liftjóni er hún
var á nitugasta aldursári. Meðal
systkina Guðnýjar eru Jón á
Kolslæk og Nikhildur á Hallkels-
stöðum, sem bæði eru á níræðis-
aldri en hraust og nokkuð
vinnufær.
Jón Helgason frá Ásbjarnar-
stöðum, bróðir Halldórs skálds,
varð bráðkvaddur i Borgarnesi
síðastliðið sumar. Jón var
prýðilega skáldmæltur og þjóð-
hagi. Fyrir mörgum árum
festist hann í mótorvél og misti
fótinn eftir það slys. úr því
neytti hann sín ekki á faralds-
fæti en tók að stunda úrsmíðar,
sem honum fórust vel úr hendi
eins og hvað annað, sem hailn
lagði fyrir sig.
Hjálmar Guðmundsson bóndi
á Háafelli í Hvítársiðu dó i
haust úr lungnabólgu. Foreldrar
Hjálmars voru Guðmundur Sig-
urðsson og Helga Hjálmarsdótt-
ir sem bjuggu til hárrar elli á
Kolsstöðum í Hvítársíðu. Bræð-
ur Hjálmars voru Sigurður
bóndi á Kolsstöðum, Kolbeinn
bóndi í Stórási og Jakob á Húsa-
felli. Hjálmar átti Hróðnýju
Þorvaldsdóttur frá Norðurreykj-
um og lifir hún mann sinn á-
samt tveim sonum.
Þá vil eg að síðustu minnast
eins aldraðs bónda úr Mýra-
sýslu, sem lézt síðastliðinn vet-
ur. Það er Sveinn Níelsson frá
Grímsstöðum, bróðir séra Har-
alds Nielssonar og Hallgríms á
Grímsstöðum. Sveinn bjó lengi
á Lambastöðum á Mýrum, en
þar áður dvaldi hann nokkur ár
í Ameríku. Siðustu árin var
hann í Borgarnesi. Hann var
bæði greindur og velmetinn og
mátti teljast í flokki merkustu
manna í Borgarfirði.
Það skal tekið frarn að þessi
mannalát, sem hér eru talin,
eru gripin eftir minni sam-
stundis og eg rita þessar línur,
svo hér koma að líkindum ekki
öll kurl til grafar. f þeim sveit-
um héraðsins, sem fjærst mér
liggja getur líka eitt og annað
skeð, sem berst ekki mér til
eyrna.
Eg gat þess í minu síðasta
Lögbergs-bréfi að Kristján Jóns-
son, grafreitsvörður í Duluth,
hefði sent Norðdælingum nokk-
urn hluta bókasafns síns að
gjöf ásamt 500 dala ávísun á
danskan banka. Kristján er
fæddur á Sveinatungu í Norður-
árdal, og þar bjuggu þá foreldr-
ar hans, Jón Jónsson og Kristín
Pétursdóttir frá Norðtungu,
systir Hjálms alþingismanns í
Norðtungu og síðar á Hamri.
Gjöf þessa sendi Kristján mér
og kom eg henni fyrir hans orð
i hendur Norðdæla, sem sendu
Kristjáni aftur málverk af feg-
ursta hluta Norðurárdals. Sið-
astliðið vor sendi Kristján enn
á ný til mín 500 dala ávísun
sem hann bað mig færa Norð-
dælum til viðbótar hinni fyrri
gjöf. Lætur hann það fylgja
sem uppbót á bókagjafir sínar,
til styrktar lestrarifélagi sveitar-
iilnar. Kristján er mörgum
kunnur fyrir veglyndi og stór-
mannlega rausn. Hann er einn
af fleirum, sem hefir sent mér
vinarkveðjur í ýmsum myndum
vestan yfir hafið. Verða þær
aldrei þakkaðar sem vert er. Ef
til vill hafa aldrei fleiri vinar-
kveðjur verið fluttar hingað
vestan um haf heldur en þetta
síðastliðna sumar. Nefni eg til
þeirra mála Vestur-íslendingana
fjóra, Gunnar ritstjóra Björnson,
Soffonías Þorkelsson og þá góð-
vini mína Árna Eggertsson og
Ásmund Jóhannsson. Allir
þessir þjóðkunnu menn létu til
sín heyra í útvarpið í Reykja-
vík og færðu íslendingum
margar og hlýjar kveðjur vestan
yfir hafið. Svo litu þeir Árni
og Ásmundur, ásaint konum
sínum, heim til mín og þakka
eg þeim hérmeð fyrir það. Þá
má geta þess að séra Jakob
Jónsson hefir flutt nokkur fróð-
leg og bráðskemtileg erindi í
útvarpið þar sem hann hefir
gefið hlustendum kost á því að
fræðast um fjölmargt að vest-
an, sem þeim var áður hulið.
Lika hefir mér veizt sú ánægja
að tala við hann heima hjá mér.
Séra Jakob verður nú að líkind-
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hj4
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551