Lögberg - 26.12.1940, Page 8
8
LOUBEKG, FIMTUDAGINN 26. DESEMBIER, 1940
Hollasti heimilis-
drykkurinn.
SCIENCE BUILDING, MANITOBA UNIVERSITY
Or borg og bygð
MA TREIÐSLUBÓK
Kvenfélaga Fyrsta tliterska safn-
aðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723
Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Feld-
sted, 525 Dominion St. Verð:
$1.00. Burðargjald 5c.
* * *
Miss Valborg Nielsen, B.A.,
dóttir þeirra Mr. og Mrs. Charles
Nielsen, Ste. 19 Acadia Apts.,
kom til borgarinnar á sunnudag-
inn austan frá Ottawa til hálfs-
mánaðardvalar hjá foreldrum
sínum. Miss Nielsen hefir fasta
stöðu i Ottawa hjá samhands-
stjórninni. *
4- -f -f
Mr. Kári Oscar Hannesson,
sonur þeirra Mr. 'og Mrs. Krist-
ján Hannesson hér í borginni
kom hingað flugleiðis um helg-
ina í heimsókn til foreldra sinna
og svstkina; heimili hans hefir
til allmargra ára verið í Van-
couver.
H. BJARNASON
TRANSFER
Annast grelSleRa um alt, sem aC
flutningum lýtur, smflum eCa
stðrum. Hvergi sanngflarnara
verC.
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Sími 35 909
MESSA AÐ LUNDAR
Séra Bjarni A. Bjarnason
mtjssar væntanlega í Lundar
lútersku kirkju sunnudaginn 29.
des., kl. 2.30 e. h.
-f 4- -f
GlMLl PRESTAKALL
Nýársméssur 1. janúar:
Betel, morgunmessa; Glmli,
íslenzk messa kl. 3 e. h.
R. A. Bjarnason.
4- 4- 4-
LÚTERSKA KIRKJAN
í SELKIRK
Sunnud. 29. des.—íslenzk ára-
móta messa kl. 7 síðd. Allir
boðnir velkomnir.
S. ólafsson.
DÁNARFREGN
Stefán Sveinbjörnsson Swan-
son andaðist að heimili sínu í
Selkirk-bæ þann 12. des. árd.,
fullra 78 ára að aldri. Hann
kom ungur frá íslandi fyrir 60
árum síðan, dvaldi árum saman
í Winnipeg-borg og stundaði þar
ýinsa atvinnu. Árið 1889 giftist
hann Sigríði Bjarnadóttur, er
Jifir hann ásamt 5 börnum
þeirra:
Nina, heima hjá móður sinni.
Violct, Mrs. Stubbs, Wpg.
Ruth, kenslukona, heima.
Faith, Mrs. Osborne, Wpg.
Alexander, heima.
Auk þeirra syrgja hann 13
Hugheilar Jóla og Nýárs-óskir!
J. J. SIDATISON & COM LTD.
308 AVENUE BUILDING, WINNIPEG
SfMI 94 221
Aramótakveðjur
Nú stendur yfir sú árstíð, er hjörtun fyllast góð-
vild og þakklæti, og fólk nýtur hátíðanna í ríkum
mæli. Um leið' og vér á ný árnum yður heilla, elur
City Ifvdro j)á von í brjósti, að nýja árið verði
ávaxtaríkt og giftusamt.
CITY HYDRO
ÞAtí ER EIGN YtíAR — NOTIfí IIANA!
barnabörn og 2 barnabarnabörn.
Stefán hafði átt heima í Sel-
kirk um 40 ár. Hann var trú-
fastur meðlimur og stuðnings-
maður lúterska safnaðarins, en
gaf sig þess utan lítið að fé-
lagsmálum út á við, en inti
skyldur lífs síns gagnvart eigin-
konu, hörnum og heimili af
hendi með stakri trúmensku og
dygð, og voru heimilisböndin
djúp og innileg. Hann naut
trausts og virðingar samferða-
manna sinna, er honum kyntust,
fyrir áreiðanlegleik og skyldu-
rækni í hvívetna. Lengst æfi
sinnar naut hann góðrar heilsu.
Um áratugi vann hann á ishús-
um Selkirk-bæjar. útförin fór
fram frá heimilinu og lútersku
kirkjunni þann 15. des.
Sigurður ólafsson.
SEEDTIMEW
a/yecí
HARVEST-
By
Dr. K. W. Neatby ^
Diredor, Agricultural Department
North-West Linc Elevators Association
SOIL EROSION
The Agricultural Department
of The North-West Line Eleva-
tors Association has just pub-
lished a well-illustrated bulle-
tin dealing with the subject of
water erosion of soils. Its pur-
pose is to draw attention to a
problem which has, to a large
extent, been overlooked by the
general public. It has been easy
to arouse public interest in the
problem of soil drifting, and con-
trol practices have met with a
large measure of success.
Water erosion may be quite as
damaging as soil drifting on in-
dividual farms, but, since the
injury to the soil is often less
obvious, it is apt to be neglected.
The bulletin is well illustrated
and written in popular style. It
deals in a general way with the
causes of erosion, with the
losses suffered, and with con-
trol measures. It contains seven
excellent illustrations of fields
in the Prairie Provinces which
are suffering serious damage.
In addition, there are four pic-
tures generously supplied by
the United States Soil Conser-
vation Service.
Since this is the only pub-
lication of its kind in Canada,
it should be read by every
prairie farmer. All Junior Club
members and high school stu-
dents should secure copies, since
“they shall inherit the earth,” or
as much of it as is not washed
or blown away!
Copies may be obtained from
the nearest grain buyer of any
line elevator company associ-
ated with the work of this De-
partment, or by writing to the
Agricultural Department, the
North-West Line Elevators As-
sociation, Winnipeg.
We wish <all our readers a
Happy and Prosperous New
Year, and trust that it may bring
“peace in our time.”
Bertha von
Suttner og
friðarverðlaun
Nobels
Rétt um það leyti, sem
núverandi styrjöld braust
út, voru liðin 25 ár frá því
hin fræga skáldkona Bertha
von Suttner andaðist, og 50
ár frá því bók hennar
“Niður með vopnin” kom
út, bókin, sem festi nafnið
“Friðar-Bertha” við skáld-
konu þessa.
“Friðar-Bertha” fæddist í
Prag þ. 9. júní 1843. Hún var
dóttir Kinsky greifa, sem var
hershöfðingi, og í móðurætt var
hún skyld frelsisskáldinu mikla
Theodor Körner. Hún fékk á-
gætt uppeldi, sem sæmdi dóttur
greifa og hershöfðingja. Á unga
aldri var hún mjög dáð stúlka,
ekki aðeins vegna fríðleika síns,
en einnig vegna gáfna sinná og
mentunar.
Það var mjög snemma, sem
hin unga fegurðardrotning varð
fyrir skáldlegum, en um leið
raunalegum ástmaálum. Hún
trúlofaðist Adolf prins af Witt-
genstein, sem var jafnaldri
hennar. Hann er sagður sagð-
ur hafa verið eins ástúðlegur í
umgengni eins og hún og hafði
einnig áhuga fyrir hljómlist. Á
ferð til Ameriku dó hann skyndi-
lega um borð í skipinu og var
líkinu hent útbyrðis.
Eftir margra ára sorg yfir
hinu skyndilega fráfalli prins-
ins, trúlofaðist hin unga greifa-
dóttir á ný. Foreldrar hennar
voru mjög á móti þessari trú-
lofun, en þrátt fyrir mótbárur
þeirra, fékk hún og Grindaccar
von Suttner vilja sínum fram-
gengt og giftust þau, enda þótt
að framtíðarhorfur þeirra væru
ekki glæsilegar.
Til þess að losna við ættingja
sína, fluttu þau búferlum til
Kákasus. Eftir mikla erfið-
leika hepnaðist þeim að ná i
atvinnu. Suttner starfaði sem
húsasmíðameistari, en hún veitti
kenslu í málum og hljóðfæra-
slætti. Til þess að fá aukatekj-
ur fóru þau bæði að skrifa,
hann einkanlega smásögur með
þáttum úr lífinu í Kákasus, og
hún það sem maður nú myndi
kalla “ekta kvennaskáldsögur.”
Ritstörf þeirra urðu svo arð-
söm, að þau gátu snúið aftur
heim, og lifað þar eins og stöðu
þeirra sæmdi. Hún sökti sér nú
niður í að kanna nýtízku heim-
spekilegar bókmentir, og varð
sanntrúuð á öryggi framfaranna,
eins og sézt líka í bók hennar,
“Framfarafyrirlestrar á vorum
timum.” Þar sézt hin • inikla
hrifning hennar af hinum verk-
fræðilegu framförum — en
reynsla þessarar hálfrar aldar
hefir sýnt að hún hefir verið of
bjartsýn.
Að hin ímyndaða framtíð, sem
hún sá, mundi reynast sönn, var
hún altaf viss um. En alvarleg-
ustu fyrirstöðuna sá hún einnig,
og það var stríðið. Til þess að
vinna sem mest gegn styrjöld
um, stofnaði hún bæði austur
rískt og alþjóða friðarfélag, en
starfsemi þeirra fékk mikinn
stuðning af þvi, hve vel bók
hennar, “Niður með vopnin
var tekið, þegar hún kom út árið
1889. Hún vai* þýdd á mörg
tungumál og aðeins á þýzku
kom hún út í fjörutíu útgáfum,
þangað til nazistar bönnuðu
hana.
Það sézt greinilega að aðal-
persónan í bókinni “Niður með
vopnin” er rithöfundurinn sjálf-
ur, þótt hún hafi breytt um
nafn og heiti þar Martha í stað-
inn fyrir Bertha. í upphafi bók-
arinnar er hún mjög óstýrilát
ung stúlka af tignum ættum,
greifa- og herforingjadóttir, og
er þess vegna svo hugfangin af
sögum um afreksverk í hernaði,
að henni finst það mesta ógæfa
að vera ekki karlmaður, og geta
framkvæmt afreksverk fyrir
keisarann og föðuriandið. Af
hinum frægu kvenmönnum ver-
aldarsögunnar hefir hún inestar
mætur á Jeanne d’Arc. En strax
í fyrsta samkvæminu sem hún
tekur þátt í vaknar þó hið kven-
lega eðii hennar, þegar hún sér
þar laglegan liðsforingja, sein
einnig verður mjög hrifinn af
henni. Þau giftast nú og verða
hamingjusamir foreldrar lítils
drengs. Þegar ófriðurinn við
Sardiníu brýst út, er faðirinn ný-
búinn að gera son sinn að lið-
þjálfa. Hrifning hinnar ungu
konu af Jeanne d’Arc fer nú að
hverfa: Hún hatar nú stríðið,
sem hún í æsku sinni var vanin
á að elska, vegna þess að það
íekur Æiginmann hennar frá
henm og stofnar honum í lífs-
hættu. Þegar hann svo fellur á
vígvellinum eykst hatur hennar
á striðinu og hugur hennar
snýst öndverður móti hinum
hernaðarlegu erfikenningum for-
eldranna, mannfélaginu og föð-
urlandinu. Eftir að hafa verið
ekkja í nokkur ár, hittir hún
fjörutíu ára gamlan liðsforingja
af prússneskum ættum, sem hún
verður mjög hrifin af. Þau
giftast svo, þrátt fyrir mótbárur
frá föður hennar. Stuttu seinna
er hinum nýgifta manni skipað
að taka þátt í stríðinu við Dan-
mörku. Þaðan kemst hann þó
óskaddaður, en varla er hann
kominn aftur heim, þegar prúss-
nesk-austurriska stríðið brýst út
árið 1866. Nú líður langur tími
og Martha heyrir ekkert frá
manni sinum. Að lokum fer
hún sjálf út á vígvöllinn sem
hjúkrunarkona, en er send heim
sem sjúklingur, örvingluð af
öllum þeim hörmungum, sem
hún hefir orðið fyrir. Maður
hennar kemur samt einnig ó-
skaddaður úr þessari herför og
nú alkominn, vegna þess að nú
gat hann gengið úr hernum, en
það gat hann ekki áður án þess
að grunur vaknaði um, að hann
hefði, aðeins gifst hinni ungu
ekkju peninga hennar vegna.
Hjónin setjast nú að í París, en
þar eru þau tekin höndum í
stríðinu 1870. Þau upplifa um-
sátrina og hertökuna, sem kostar
mann hennar lífið, vegna þess
að hann var af prússneskum
ættum, var hann grunaður urn
njósnarstarfsemi og tekinn af
lífi . . .
Þetta eru aðaldrættirnir í við-
burðunum í þessari skáldsögu.
Þó að hana að vísu skorti til-
breytingar í mannlýsingum, sem
er nú krafist af skáldsagnarit-
höfundum, og þó að samtölin Séu
frekar eins og skrifuð heldur en
töluð, er bókin samt öll skemti-
leg vegna þess, hve þar er lýst
mörgum mönnum frá fyrverandi
höfðingjatímum, spennandi
vegna hins skáldlega efnis og
hinna miklu viðburða og áhrifa-
mikil vegna vægðarlausrar lýs-
ingar á ógnum vígvallarins.
Bókin hafði mikil áhrif á einn
lesandanna, og það var Alfred
Nobel uppfinningamaðurinn, sem
fann upp dynamitið. Hann vissi
auðsjáanlega ekki fyrirfram til
hvers uppfinning hans mundi
verða notuð.—
Hann skrifaði Berthu von
Suttner:
“Eg hefi nýlokið við að lesa
bók yðar, sem er snildarverk.
Það er sagt að til séu 2000 tungu-
mál — þar af 1999 of mörg —
en það er vlst að það er ekki
eitt einasta, sem bók yðar ætti
ekki að vera þýdd á, lesin og
dáð.”
Og fór síðan að lýsa friðar-
verðlaunum sínum, sem nú eru
orðin heimsfræg:
“Eg vildi gjarnan við arf-
leiðslu gefa part af auðæfum
mínum, sem friðarverðlaun og
ætti að veita þau fimta hvert ár,
við skulum segja sex sinnum
(því ef það hepnast ekki á 30
árum að endurbæta hina núver-
andi stjórnarhætti, þá inunum
við hreint og beint verða aftur
villimenn) handa þeim, sem
hefir unnið mest í þágu friðarins
í Evrópu.”
Þau 30 ár eru nú löngu liðin
og friðarverðlaunin eru enn við
lýði, þó að það land, sem hefir
brent snildarverk Berthu von
Suttner, hafi stranglega bannað
borgurum sínum að taka á móti
fé úr sjóðnum sem hinn sænski
aðdáandi bókarinnar setti á
stofn.
(Lauslega þýtt).
—Lesbók Mbl.
Minniál BETEL
í
erfðaskrám yðar
Til þess að tryggja yður
skjóta afgreiðslu
SkuluB J>ér ávalt kalla upp
SARGENT
TAXI
AND TRANSFER
FRED BUCKLE, Manager
PHONE
34 555 - 34 557
SAROENT and AQNES
FARSÆLT
ÁR
Til vina og viðskiftamanna nær og fjæi
S. O. BJERRING
Canadian Stamp Co.
WINNIPEG, MAN.
For Fall and WinterWeather
Heat Your House With
HEAT GLOW BRIQUETTES SASKATCHEWAN LIGNITE WILDFIRE DRUMHELLER
WESTERN GEM
WINNECO COKE
MCCURDY SUPPLY CO. LTD.
BUILDERS SUPPLIES AND COAL
Phones 23 811 -23 812
1034 ARLINGTON STREET