Lögberg - 12.06.1941, Qupperneq 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 12. JÚNl, 1941
Sœðið grœr
og vex
Ræða flutt á 60 ára afmælis-
hátíð Búnaðarfélags Arnar-
nesshrepps, að Reistará, i
Eyjafirði sunnudaginn 16.
júní 19i0.
"Og hann sagði: Svo er og um
guSsríki sem maður kasti sæði á
jörðina, og sofi og fari á fætur nðtt
og dag, og sæðið grær og vex, hann
veit eigi með hverjum hætti: af
sjálfri sér ber jörðin ávöxt, fyrst
stráið, þá axið, þá fult hveitikorn I
axinu. En er ávöxturinn er orðinn
þroskaður sendir hann þegar út
kornsigðina, þvl að uppskeran er
komin.”—Mark. 4, 26-29.
Guðsþjónusta vor í dag er með
nokkuð óvenjulegu móti. Ver
erum hér fyrst og fremst til þess
að minnast merkilegs þáttar í
athafnalíifi þessarar sveitar um
síðastliðin 60 ár.
Eg get imyndað mér, að ein-
hverjum virðist ef til vill, að
þetta hefði verið hægt, án þess
að byrja á þá leið, sem nú er
gert, með því að syngja sálma
og lyfta huga í hæð til guðs.
En samt ætla eg ekki með einu
orði að afsaka mig eða aðra, sem
því hafa ráðið, að eg stend hér
í umboði kirkjunnar við þetta
tækifæri. Eg veit, að þess þarf
í rauninni ekki og þvi siður, sem
betur er ihugað.
Aðeins skal eg geta þess, að
sumstaðar þar, sem lík hátíða-
höld og nú hér hjá oss hafa fram
farið hin seinustu ár, hefir ein-
mitt þótt hlýða að hefja þau
með þessum hætti. Og höfum
vér þannig fyrirmynd að þeirri
tilhögun sem hér hefir verið
valin.
En að öðru leyti vil eg reyna,
í sem styztu máli, að færa rök
fyrir þvi, hvers vegna eg álit
að vér’ eigum öllu fremur að
mætast í þökk og tilbeiðslu
frammi fyrir guði, slíka stund
sem þessa.
Þér heyrðuð eina af dæmisög-
um eða líkingum Meistarans
mikla um guðsríkið, en boðskap-
urinn um það er, eins og allir
vita, eitt aðal-efni kenningar
hans. Má glögt skilja, að þar
er átt við andlegt riki í þessu
lífi og öðru, sem byggist annars
vegar á tilveru, miskunn og
elsku Guðs, og hins vegar mögu-
leikum mannsins til þess að
þroskast að vilja hans og vaxa
stöðugt i því góða. En það er
mjög athyglisvert, hve oft Jesús
skýrir þessa æðstu hugsjón um
samfélag guðs og manns með
dæmum beint úr skauti náttúr-
unnar, eða af gróðri jarðar.
Hann líkir því við sáðmann-
inn, sem fór út að sá, og sæðið
féll í misjafnan jarðveg, sumt
við götuna, annað í grýtta jörð,
eða meðal þyrna, og loks sumt
þar, sem það gat börið góðan
ávöxt.
Hann líkir því við mustarðs-
kornið, sem er hverju sáðkorni
smærra, en þegar það er sprott-
ið, er þáð stærra en jurtirnar og
verður að tré, svo að fuglar him-
insins koma og hreiðra sig í
greinum þess (Sbr. Matt. 13).
Vér þreytumst ekki á þvi, að
virða fyrir oss þessar myndir og
dást að þeim. Og einkum ættu
þær að vera oss áþreifanlegar,
þegar vér sjálf reynum sanngildi
þeirra og sjáum þær verða að
veruleika í því lífi, sem vér lif-
um.
Á hverju vori fer íslenzki
bóndinn með hlutverk sáð-
mannsins i dæmisögunni. Og
þá getum vér líka öll séð litla
sáðkornið, serfl sáð er í jörðu,
en á fyrir sér að vaxa og þrosk-
ast og e. t. v. að verða að stóru
anb
DR. B.'J. BRANDSON
216-220 Medlcal Arts Bldg.
Cor. Qraham og Kennedy St».
Phone 21 834—Offlce tlmar 3-4.30
•
Helmill: 214 WAVERLEY ST.
Phone 403 288
Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK
SérfræBingur 1 eyrna, augna, nef
og hálssjúkdömum
216-220 Medlcal Arts Bldg.
Cor. Graham & Kennedy
ViötalsUmi — 11 tii 1 og 2 tll 6
Skrifstofuslml 22 261
Heimliiaslmt 401 >91
DR. A. V. JOHNSON
DentUt
•
606 SOMERSET BLDQ.
Telephone 88 124
Home Telephone 27 702
DR. K. J. AUSTMANN
612 MEDICAL ARTS. BLDO.
Stundar eingöngu Augma-
Eyma-, Nef- og Háls-
sjúkdúma.
DR. J. T. CRUISE, 313 Medical
Arts Bldg., lltur eftir ðllum
sjúklingum mlnum og reikning-
um 1 fjærveru minni.
Talslmi 23 917
Dr. S. J. Johannesson
806 BROADWAT
TaMmt 30 877
•
Víötalstími 3—6 e. h.
H. A. BERGMAN, K.C.
Islenzkur IðofrœtHngur
•
Skrlfstofa: Room 811 McArthur
Bullding, Portage Ave.
P.O. Box 1666
Phones 95 052 og 39 043
J. T. THORSON, K.C.
Ulmukur lögfræðinour
•
800 QREAT WEST PERM. Bldg
Phone 94 668
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDQ., WPEQ.
•
Fastelgnasalar. Lelgja hús. Út-
vega peningalán og eldsábyrgö,
bifreiöaábyrgð o. s. frv.
PHONE 26 821
A. S. BARDAL
848 SHERBROOOKE ST.
Selur llkklstur og annast um út-
farlr. Allur útbúnaöur sá besti
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legstelna.
Skrifstofu talslml 86 607
Heimilis talsfmi 501 562
ST. REGIS HOTEL
286 SMITH ST., WINNIPEO
•
pœoileour oo róleour bústaður
i mABbikl boroarinnar
Herbergi 32.00 og þar yflr; meö
baöklefa $2 00 og þar yfir.
Agætar máltlöir 40c—60c
Free Farkino for Oueeti
tré með forsælu og skjól fyrir
fugla himinsins.
Að vísu er hægt að komast
hjá því að taka eftir þessu. Það
undursamlega getur oft verið
furðu nærri oss, án þess að vér
gefum því mikinn gaum. Og
yfirleitt mun mörgum svo farið,
að þeir sjá aldrei dýrð Guðs eða
dásamleik lífsins í því, sem vér
köllum hversdagslega hluti.
En einmitt í einfaldleik þeirra
bendir Kristur oss tiðast á fyrir-
mynd þess ósýnilega og eilífa.
Það er áberandi einkenni á boð-
skap hans. Og e. t. v. líka eitt
hið fagmaðarríkasta. Því þannig
hjálpar hann oss til þess að
finna Guð og þreifa á návist
hans hvarvetna í umhverfi voru,
svo að “alt ytra og innra, er
augað sér, sem imgnd d-rottins
skin.”
Eg veit, að það er stundum
erfitt að eignast slíkt sjónarmið.
Aðstaða margra og æfikjör geta
varnað þess. En eg fullyrði, að
engum ætti það að vera auðveld-
ara en þeim, sem vinna dagleg
störf sín i nánu sambandi við
lífið sjálft, vöxt þess, viðgang og
þróun. Þeim, sem sjálfir eru
sáðmennirnir í bókstaflegri
merkingu og eiga alt sitt undir
þeim ávexti, sem jörðin gefur.
Engir ættu að hafa betri - skil-
yrði en einmitt þeir til þess að
veita viðtöku boðskapnum um
guðsriki, eins og hann er túlk-
aður í mörgum fegurstu og ó-
gleymanlegustu dæmisögum og
likingum Jesú Krists.
Og nú kem eg að þvi, góðir til-
heyrendur, sem eg vildi óska, að
vér öll festum vel i minni þenn-
an bjarta vorsins dag og gleymd-
um aldrei til fullnustu í störf-
um og annriki komandi ti.ma,
hvernig sem þeir verða.
En það er lexian, sem oss er
ætlað að læra af litlu sögunni,
sem eg valdi að sérstökum á-
varpsorðum þessa minningar-
stund. Mér sjálfum þykir hún
fegurst af öllu því, sem Meistar-
inn hefir um guðsriki sagt.
“Svo er um guðsríki scm mað-
ur kasti sæði á jörðina og sofi
og fari á fætur nótt og dag, og
sæðið grær og vex, hann veit
eigi með hverjum hætti: af
sjálfri sér ber jörðin ávöxt, fyrst
stráið, þá axið, þá fult hveiti-
korn á axinu. En er ávöxturinn
er þroskaður, sendir hann úl
kornsigðina, því að uppskeran
er komin.”
Mér er vist óhætt að fullyrða,
að svona einfalt og yndislega
hefir aldrei, fyr eða síðar, verið
sagt frá lífi þess manns, sem
byggir afkomu sína og sinna á
óhagganlegu lögmáli sáningar og
uppskeru.
Vér sjáum hann svo Ijóst fyr-
ir oss þennan stritandi og starf-
andi mann, sem ris upp í dögun
og kastar sæði á jörðina, von-
góður og bjartsýnn, fullur áhuga
og vinnugleði. Vér þekkjum
hann svo vel úr sögu þessarar
þjóðár, í fortið og nútið. Vér
vitum, að aðstaða hans var ekki
alt af jafn auðveld, að lif hans
var oft barátta við óblíð kjör og
ýmsa erfiðleika. En í þúsund
ár hefir islenzki bóndinn, þrátt
fyrir alt, trúað á hlutverk sitt og
skilið þýðingu þess. Og í þús-
und ár hefir þjóðin átt meira
komið undir starfi sáðmannsins
og ávöxtum iðju hans en allra
annara. Þetta eru viðurkend
sannindi og eins hitt, að islenzk
menning hefir hvergi dafnað
eins og þróast á umliðnum öld-
um og einmitt í skjóli þessa
starfs.' Það er því engin furða
þó að þeir, sem sveitirnar byggja,
væru sér þess meðvitandi, að
þáttur þeirra í örlögum þjóðar
sinnar er hreint ekki svo litill.
Enda kennir þeirrar tilfinningar
allviða. Orð Jónasar Hallgrims-
sonar i kvæðinu fagra standa
enn í fullu gildi, er hann segir:
‘‘bóndi er bústólpi —
bú er landstólpi —
þvi skal hann virður vel.”
Þrátt fyrir nýja tíma og breytt
viðhorf i ýmsu, hefir þetta mal
ekki raskast.
Fjöldamörg vandamál hafa
risið á þessum vettvangi og sum
þeirra erfið og fórleyst. Það er
öllum kunnugt, að enda þótt
miklar framfarir hafi átt sér
stað á síðustu áratugum i búnaði
landsmanna, hefir jafnhliða að
þessari atvinnugrein þrengt á
marga vegu. Og hirði eg ekki
að ræða það eða skýra nánar.
En samt er það svo, að bóndinn
er ennþá virður vel, og starf
hans talið til mikilla nytja. Og
undarlega margir sem vegna að-
stöðu sinnar búa að öðru, þrá
innst inni sveitalifið, og unað
þess, eða a. m. k. einhverja
snertingu við það, sem grær og
vex.
Um það vitna m. m. gróður-
blettirnir, blóma- og trjáreitirnir
mörgu og fögru, sem ni'i fjölgar
með ári hverju við steinlögð
stræti kaupstaðanna. Nú heyrir
það sjálfsagt til undantekningar,
ef lengur er hægt að tala um þá,
“sem telja sér lítinn yndisarð að
annast blómgaðan jurtagarð.”
Eg veit, að það er varhugavert
að dæma einni stétt þjóðfélags-
ins betri hlut en annari. Þýðing
þess, sem vér störfum að, fer
auðvitað ekki fyrst og fremsl
eftir því, hvað það er, heldur
hinu, hvernig það er rækt eða af
hendi leyst. En fyrir oss, sem
verkið vinnum, hefir það alveg
ómetnlegt gildi, að það sjálft
veiti oss sem mesta fullnægingu.
Og að þvi leyti segi eg alveg
hiklaust, að hlutskifti þeirra,
sem rækta landð, yrkja jörðina,
sé gott. Það, sem þannig er
borið úr býtum efnislega, er ekki
alt af svo ýkja eftirsóknarvert.
Það er mannlegt, að hugsa líka
um þá hlið. En það starf, sem
byggist eingöngu á þvi, vantar
göfgi og fegurð.
í fornöld var sumstaðar litið á
sáningu akuryrkjumannsins sem
heilaga athöfn, er hefði stór-
vægjlegt trúargildi. Eins og vér
fnunum lika úr biblíusögunum,
að frumgróðinn af ávexti jarð-
arinnar var borinn sem fórn
fram fyrir guð.
Eg held, að enn sá einmitt
talsvert eftir af þeim hugsunar-
hætti, er þessum siðvenjum réð
í öndverðu. Það er viss helgi,
sem hvilir enn yfir störfum
sáðmannsins og þeirra, sem með
honum vinna að ræktun lands-
ins umfram það, sem einkennir
flest önnur störf. Og eg held
líka, að þess vegna finni sál
mannsins meiri fullnægingu og
fögnuð í þeim en svo viða ann-
arrsstaðar, þar sem hann leitar
sér brauðs og “erfiðar í sveita
sins andlitis.”
Þetta er i rauninni ofur skilj-
anlegt. f insta eðli hvers ein-
asta andlega heilbrigðs manns
er fólgin meira eða minna dulin
þrá þess að ganga í lið með líf-
inu sjálfu, styðja það að ein-
hverju leyti til vaxtar og þroska.
Þessi hvöt kemur víða fram, en
það er sjálfsagt ekki ofmælt, að
hvergi nýtur hún sin betur en i
störfum þeirra, sem “hjálpa guði
til að skapa,” eins og Þórhallur
biskup á eitt sinn að hafa komist
að orði um hlutverk bóndans.
Eg tel það heppilegt, að vér,
sem flest eignumst þenna skiln-
ing og vinnum i þessum anda
störf vor. En þá má oss aðeins
ekki gleymast þetta, sem Meist-
arinn segir i likingunni fögru
um sæðið, sem grær og vex,
sæðið, sem maður kastar á jörð-
ina i trú á frjómátt þess og vaxt-
armöguleika, og uppsker síðan
sem fullvaxinn ávöxt, er gefur
honum öll þau laun erfiðis hans
og vinnu.
“Sæðið grær og vex, hann veit
eigi með hverjum hætti,” stend-
ur í sögunni.
Er það ekki svo, að um þetta
atriði, sem er hið veigamesta,
riki oftast furðuleg þögn?
Vér lítum yfir það, sem vér
höfum skapað, og sjá, það er
harla gott! Vér tölum um það,
sem vér höfum afrekað á þessu
sviði, ræktað og prýtt.
En hver gaf oss landið, sem
vér byggjum, landið, sem að visu
#
"Attack” by A. Brenner, noted English designer, one of the British
War Posters now on view in the Winnipeg Art Gallery. The collection
of over 100 posters lent by the National Gallery of Canada, shows
the designs in use in Great Britain at the present time. This intensely
interesting show eloses on June 30 and is open free.
“agar oss strangt með sin ís-
köldu él,” en geymir í skauti
sínu svo óendanlega mikla mögu-
leika gróðurs og vaxtar fyrir oss
og börn vor? Landið, sem a
hverju- vori breytist i nóttlausa
veröld og opnar oss dýrðarheima
ósnortinnar fegurðar og heill-
andi dásemda?
Landið friðsæla og fagra, sem
vér elskum öll og viljum svo
gjarna hjálpast að til að gera
enn byggilegra og betra? Hver
lét grösin gróa og jörðina skrýð-
ast skrúði vallarins, áður en
nokkur mannsihönd kom þar
nærri? Hver gefur sáðkorninu
smæsta þenna undramátt, að
vaxa í djúpri dauðakyrð moldar-
innar og þroskast sem sjálfstæð
lífsvera upp í ljósið og ylinn,
unz það nær vaxtarhæð hins
fullkomna og algera?
Fornaldarmaðurinn, sem sáði
korninu í heilagri tilbeiðslu
frammi fyrir guði og fórnaði
honum af ávexti jarðarinnar, átti
svarið við þessum spurningum.
Oss getur fundist að hann hafi
farið barnalega og einfeldnislega
aí? ráði sinu. Og vér tökum
ekki upp óbreytta háttu hans.
En vér ættum samt að muna
það, sem hann hafði hugboð um
fyrir þúsundum ára, að guð
einn gefur vöxtinn, ræður öllu
lífi, að “án hans gæzku aldrei
sprytti rós,” eins og Matthías
kvað.
Eg held, að samtið vor þyrfti
að læra þá lexíu af nýju, læra
hana betur.
Það er gott að hafa hæfilegt
sjálfstraust og vanmeta ekki eig-
in krafta. En það er jafn hættu-
Iegt að byggja eingöngu á sínuiU
eigin afrekum. Það er áberandi
einkenni í sögu þjóðanna, eiU'
mitt hina siðustu áratugi.
Eftir þvi, sem hin ytri menii'
ing hefir aukist, tök mannsins a
efninu orðið sterkari, hefir hann
smám saman sett sjálfan sig
sín verk meir og meir í Guðs
stað. Og enginn þarf að efast
um, að þar er undirrót þess
mikla böls, sem nú ógnar heim'
inum svo átakanlega.
Mennirnir hafa hætt að trúa *
lífið í hendi guðs, hætt að vera
sér þess meðvitandi, að hann er
upphafið og endirinn, “faðir °fl
vinur alls sem er,” og að
honum ættu þeir að skapa nýja”
heim og betri. Trúin á efnið of?
tæknina hefir komið i staðinn-
Það er sú trú, sem nú hefir fenp'
ið það hlutverk að fara evðand'
eldi haturs og tortimingar urn
löndin. Vér horfum í fjarska 11
þann hildarleik og vonum þess
og biðjum, að hann færist aldre1
hingað, í kyrð og friðsælu is'
lenzkra stranda og dala.
En gefum þá guði það setú
guðs er. Elskum, byggjum o£
treystum á landið í hans varð'
veizlu og vernd, minnug þess, a^
það er hann, líf af hans lífi, sem
lætur hið smæsta sáðkorn gróa
og vaxa. Að vér sköpum efcfceW
nema með honum, studd af hans
mætti, náð og miskunn. Að véf
erum ekkert án hans, eins °£
stendoir i lofsöng þjóðarinnar-
“Vér deyjum, ef þú ert ei ifó
það og líf, sem lyftir oss duftif111
frá.”
Margra Ara óviójafnanleg afrek, hafa veitt Massey.
Harris Bindurum vióurkenningu, sem ekki verður kom-
ist fram úr. Hinn nýi No. 16 Bindari ber að öllu vitni
þeirri reynslu, sem Massey-Harris verkfæri hafa i starfs-
hæfni og sparnaði. Grindin öll rambyggilega tengd, og
heldur öllum pörtum i nákvæmu samræmi. Inniluktir
gírar og rykheld hólf fyrir alla parta, tryggja góða
endingu. No. 14 Power Take-off Bindari, innifelur alla
viðurkenda Massey-Harris sórkosti, að viðbættum power
take-off kostum.
Fáið fnllar upplýainuar hjá umboOsmanni yðar
eða skrifið nœsta Massey-Harris útibúi.
MASSEY-HARRIS CO.
Limlted
| Toronto Montreal Moncton WinnApeg Brandon Regina Saskatoon |
Swift Current Yorkton Calgary Edmonton Vancouver