Lögberg - 27.11.1941, Blaðsíða 7
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 27* NÓVEMBER, 1941
t
Vancouver
Samkomuerindi
efiir séra Rúnólf Marteinsson,
“þá hugsjónir íæðast fer hitamagn
um önd,
þá hugsjónir rætast fer þrumurödd
um lönd.
Pví gæt þess vel sem göfgast hjá
þér finst
og glæddu vel þann neista sem
liggur inst.”
GuOm GuOm.
Flesitir þeirra, sem hér koma
saman í kvöld eiga heima í
einni stærstu, athafnaríkustu og
unaðslegustu borg Canada. Að-
eins tvær borgir eru mannfleiri
en hún í þessu landi: Montreal
og Toronto. Hvað er að baki?
Hver “vann hér svo að með
orku?” Fyrst og fremst sá, sem
skapaði lög og láð og myndaði
hér eina hina dásamlegustu höfn
jarðarinnar. Hér hvílir hún,
na^gilega djúp fyrir stærstu skip
veraldarinnar, í skauti fjalla að
norðan en fagurra hæða að
sunnan. Við mynni hennar
heldur Stanley Park, lystigarð-
urinn útbúinn af Guðs hendi,
vörð, mynnið djúpt og óyggj-
andi, en vel varið af landi hversu
íturborið sem skipið er.
En enginn veit, hve margar
árþúsundir Burrard Inlet baðaði
sig í sólskininu, svalaði sér i úð-
anum, áður en nokkur mann-
legur fótur steig á þessa grund
eða hve mörg árhundruð sáu
barkarbáta Squmaish Indíán-
anna liða áfram eftir þessum
vötnurn án þess nokkrar stór-
stigar framfarir ættu sér hér
istað. Til þess að það gæti orðið,
þurfti hitamagn að fara um önd
einhvers manns, hitamagn, sem
hugsjónir höfðu kveikt. Má
vera að þér segið engan einn
mann færan til að orka slikum
frainkvæmdum, til þess þyrfti
marga menn að verki. Ekki
dettur mér í hug að neita þörf
samverkamanna í öllum mikl-
um athöfnum mannkynsins; en
hitt vil eg staðhæfa, að hugsjón-
ir fæðast ávalt fyrst hjá ein-
hverjum einum manni, en hann
aflar sér samverkamanna til þess
að færa hugsjónina i mynd
veruleikans. Siðbótin fæddist i
sálu fátæks munks sem kvald-
ist af sálarangist i klefa sínum.
Columbus fékk þá hugmynd, að
jorðin væri hnöttótt og þess-
vegna væri óhætt að sigla í öfuga
átt, eftir þvi sem menn vissu þá,
til að ná Indlandi. Um alt þetta
land ferðuðust menn, með hug-
sjónir, sem höfðu ylað sálum
þeifra. fmyndunaraflið varpaði
bjarma yfir hugsanir þeirra og
knúði viljakraft þeirra til dáð-
ríkrar orku og hugrakkrar fórn-
fýsi. Áður en þeir vissu, hvað
breið þessi hcimsálfa er, leituðu
þessir hugsjónamenn, hver eftir
annan, að hinu mikla hafi, sem
þeir töldu vist að lægi fyrir
vestan hana. Ueir ferðuðust ó-
trauðir, eftir ám sem þeir höfðu
aldrei séð, gegnum dimma skóga
og geigvænlegt fjallaland, sem
þeir vissu engin deili á. Á þenn-
an hátt fann Alexander Mc-
Kenzie fljótið mikla, sem enn
ber hans nafn og ferðaðist eftir
því alla leið til Norðuríshafs, ár-
ið 1789. Annað þrekvirki og
miklu meira vann hann, er hann
fyrstur hvitra manna í Canada
náði ströndum Kyrrahafsins,
landveg að austan, árið 1793, 6g
sá loks hafið mikla, sem Cham-
plain, LaVerandry og Henry
Hudson ásamt fjölda annara
landkönnunarmanna h a f ð i
dreymt um, og þeir höfðu leitast
við að finna. Hér voru æfin-
týramenn að verki, sem sáu i
anda unaðsrík afrek. Hitamagn
andans gaf þeim hvötina, og þeg-
ar draumurinn rættist og hug-
sjónin varð að veruleik fór
“þrumurödd um löndl”
Á engap hátt þykist eg vel að
mér í sögu þessarar borgar, en
svo mikið hefi eg í hana skygnst,
að eg veit að hér liafa margir
ótrauðir hugsjónamenn verið að
verki. ‘óefað voru einnig óæðri
hvatir á sveimi. Menn voru ó-
fullkomnir hér eins og annars-
staðar; en um hitt er eg sann-
færður, að hér lifði mikið af hug-
rekki, fórnfýsi, drenglyndi.
Árið 1728 fór Rússakeisari
fyrir alvöru að hugsa um að
færa út ríki sitt í norðaustur
hluta Asíu og flytja það yfir
sundið þangað sem nú er Alaska.
í þvi skyni sendi hann út af
örkinni danskan inann, Vitus
Bering og rússneskan mann,
Chirikoff. Fundu þeir Bering-
sundið og námu Alaska fyrir
Rússland. Þá fór Spánverjum,
sem drotnuðu yfir miklum hluta
Suður-Ameríku og öllum suður-
hluta Norður-Ameriku ekki að
lítast á blikuna. Þeir urðu
hræddir um að Rússar yrðu
þeim hættulegir. Þessvegna
varð það, að árið 1774 sendu
þeir nokkur skip undir stjórn
Don Juan Perez og Don Estevan
Martinez norður að ströndum
þess lands, sem nú nefnist Brit-
ish Columbia. Þeir fundu bæði
Queen Charlotte og Vancouver
eyjarnar og slóu eign sinni á
þær í nafni Spánar. Tveimur
árum seinna ákvað konungur
Englands að senda hinn frægu
ferðamann, Captain James Cook,
norður í þessi höf. Hann stofn-
setti verzlunarstað við Nootka
Sound á Vancouver-eyjunni í
marz, 1778, og kannaði strönd-
ina að nokkrum mun. Með þvi
var komin snurða á samkomu-
lagið milli Breta og Spánverja,
en þeir höfðu ráðstefnu með sér
og gerðu,' 1790, samning sem
nefnist “Nootka Convention.”
Með þessum samningi afsöluðu
Spánverjar sér öllu tilkalli til
þessa lands hér um slóðir og
eftirlótu það Bretum. Nokkur
‘töf varð á því, að þeir uppfyltu
samninginn, en að því kom þó,
að þeir hurfu héðan algerlega.
Á þessu tímabili, eftir að
Bretar og Spánverjar höfðu sam-
ið, en áður en hinir siðarnefndu
voru með öllu horfnir héðan.
kemur Vancouver ofurlítið inn
í myndina. Sólríkan sumardag
árið 1791 horfðu Squamish
Indíánarnir, sem hér dvöldu þá,
út á English Bay og sáu furðu-
Iega sjón. Fram hjá Point Grey
og inn í flóann sáu þeir fara eitt-
hvert óskapa ferlíkan. Þeir
höfðu aldrei séð stærra skip en
barkarbát, en hvað var þetta?
Þegar þeir horfðu á siglurnar
sýndist þeim helzt, að skógar-
trén hefðu verið rifin upp og
sett þar. Indíána mæðurnar
urðu hræddar og kölluðu á börn-
in sin til að flýja með þau upp
i Capilano Canyon. En forvitn-
in varð hræðslunni yfirsterkari
hjá ungu mönnunum. Þeir fóru,
hver og einn, að ná sér í fleytu
til þess að sltoða þetta furðu-
verk, en það var spánverskt skip,
Santa Saturnina, undir stjórn
Don Jose Maria Narvaez. Ein-
hvern veginn tókst hvítu mönn-
unum og Indíánunum að skilja
hlýleik hvers annars. Indíán-
arnir færðu Spánverjum vatn.
dýrakjöt og ávexti, en Spánverj-
arnir færðu hinum ýms áhöld
úr járni. Á maður að segja, að
þetta hafi verið upphaf verzlun-
ar i Vancouver? Þá hefir orðið
nokkur framför síðan. Árið
1791 kom þetta eina skip, en
árið 1940 voru 24,000 skipkom-
ur.
Eitt nafn er enn notað i Van-
couver, sem Narvaez landfesti
hér. Hann hélt, að hæðin milli
New Westminster og Vancouver
væri eyja og nefndi hana “Isla
del Langara,” en Langara-nafnið
kannist þér vel við. Hann sá
ekki Lions Gate og vissi þaraf-
leiðandi ekki um Burrard Inlet.
Næsta ár koin hingað sendi-
boði Englapds, Captain Van-
couver, og átti hann að taka
þetta land til eignar í nafni þjóð-
ar sinnar, samkvæmt samningn-
um við Spánverja. Hann kann-
aði mikið strendúr þessa fylkis,
sigldi inn um Lion’s Gate, fann
Burrard’s Inlet og gaf því nafn-
ið eftir enskum sjóliðsforingja.
Samt liðu mörg ár áður en
hér varð nokkur hvitra manna
bygð. Árið 1802 kom hingað.
ásarnt tveimur félögum sinurn
Englendingur að nafni John
Morton. Víst í félagi keyptu
þeir 550 ekrur af landi í vestur-
hluta Vancouver, eins og nú er,
og bygðu þeir fyrsta íveruhúsið,
bjálkahús, í þessari borg.
Nokkru seinna kom maður frá
Alberni og bygði Hastings myll-
una, sein að sögn enn stendur,
að sunnanverðu Burrard Inlet.
Umhverfis hana varð svo ofur-
lítil bygð sem nefnd var Gran-
ville eða Gastown. Þar koin
fyrsti skólinn og var hann opn-
aður 12. febrúar 1873 en kenn-
arinn var Miss Sweeny.
Það hefir orðið mér til mikill-
ar ánægju að kynnast lttillega
skjalaverði Vancouver-borgar,
Major J. S. Matthews, og hefii
hann sýnt mér mynd af þessum
fyrsta kennara ásamt öðrum
konum og mönnum, sem fremsL
hafa verið í flokki að byggja
upp göfugt mannfélag í þessari
borg. Hann hefir mikið gott
um það fólk að segja. Hann
hefir meðal annars sagt mér frá
bókasafni, sem stofnað var í
sambandi við fyrstu mylluna
sem sýnishorn af þeim and-
lega áhuga er rikti meðal þess-
ara frumherja. Einu sinni kom
upp eldur í þessu safni, og engu
varð bjargað nema einni bók,
sem kona ein gat náð í, en bókin
var um ísland.
Árið 1885 var C.P.R. fullger,
en endastöðin hér vestra vár í
Port Moody. Fólk hér fór þess
á leit við félagið að lengja
brautina. Van Horne, s'em var
einn æðsti embættismaður fé-
lagsins, kom hingað vestur,
skoðaði það, sem þá var. kallað
Coal Harbor (nú Vancouver-
höfnin). leizt afar vel á, afréð
að láta hér vera endastöðina, og
nefndi borgina, sem hann bjóst
við að risi hér upp, Vancouver.
Þetta gerðist árið 1886. En
þetta var örlagaþrungið ár fyrir
þetta mannfélag. Hinn 6. dag
apríl-mánaðar fékk það borgar-
réttindi, en 13. júní það sama
sumar kom upp eldur, sem eyði-
lagði því nær alla borgina. Sagt
er að 600—1000 hús hafi brunn-
ið, en um það hvað margir biðu
bana varð aldrei vissa. Hug-
rekki Vancouver-manna hefir
aldrei verið augljósara en þá.
Ekki var fyr búið að slökkya
eldinn, en tekið var til óspiltra
mála að reisa bæinn að nýju,
og áður en árið var liðið voru
komin upp heimili hér . fyrir
2500 manns. Til er mynd af
bæjarráðinu rétt eftir brunann
þar sem það situr á fundi úti
undir beru lofti,_ að baki þeirra
er tjald, en á tjaldburstinni
standa orðin “City Hall.” óbil-
aður og óbilandi kjarkur er þar
augljós. Þegar svo að fyrsta
járnbrautarllestin kom hingað,
23. maí árið 1887, voru skugg-
arnir horfnir en björt framtíð
blasti við.
Og nú! Hugrekki og hugsjón-
ir gáfu hitamagn þeim sem hér
lögðu hönd á verk, og þrumu-
rödd1 fór um lönd þegar hugsjón-
irnar rættust, sem sagði öllum
heimi frá Vancouvler. Árið 1881
var Vancouver ekki til í mann-
talsskýrslum Canada. Nú eru í
þessu umhverfi áreiðanlega 300,-
000 manns. Flokkar anda þöktu
forðum False Creek, en nú er á
bökkum þess alt í iði af stór-
stígum nútíðariðnaði. Þar sem
bjarndýrin þrömmuðu í frum-
skógi, ris nú hin dásainlega bæj-
arráðshöll, tilkomumikill minn-
isvarði samtaka og dugnaðar.
Risavaxnar umsýsluhallir svala
nú liöfði sínu “i himinblámans
fagurtærri lind” i stað laufa-
króna furutrjánna. Þar sem að
áður akrar huldu völl ólgandi
Þverá veltur yfir sanda,” var
sagt um landsvæði eitt á íslandi.
Hér er það öfugt. Á þessu svæði
hefir eyðimörkin orðið að aldin-
garði, að friðarheimkynni. Her-
virki voru engin reist, en nV?nn-
ing og framtakssemi gjörðu
garðinn frægan. f Vancouver er
nú fögur heimili á grænum hllð-
um og grundum, með dásam-
legum blómreitum og margvís-
legum trjám, með tign og prýði.
Hér eru 150 kirkjur, 100 lysti-
garðar, 75 opinberir skólar, 100
aðrir skólar, og kóróna allra
skólanna, háskóli British Colum-
bia. Árgyðja friðar og fram-
fara hefir unnið ummyndunar-
verk sitt í kyrþey, mannheimi
til aðdáunar.
“Hingað í sælunnar iSeit”
komu á sínum tima einnig fs-
lendingar, og hygg eg að sumir
þeirra hafi séð hér eitthvað sem
þeir könnuðust við, að eitthvað
í sálum þeirra hafi fundið til
skyldleika við það sem þeir
sjálfir áttu. Menn geyma mynd-
ir i sálum sínum. Sumar þeirra
blandast því sem fyrir er i sál-
arlifinu, svo þær verða nokkur
hluti af manninum sjálfum, og
hvert sem hann fer, flytur'hann
þessar myndir með sér. Allir
íslendingar kunna hin frægu
orð Stephans G. Stephanssonar:
“Þótt þú langförull legðir
sérhvert land undir fót,
bera hugur og hjarta
samt þins heimalandsmót.”
Eg veit, að vísu, að margt er
liér öðruvísi ien það sem menn
þektu á fslandi, en hér voru að
minsta kosti sjór og fjöll eins
og þar og eg veit, að mörgum
íslendingi fanst þeir hér vera
nær því að vera komnir heim
en þar sem þeir áður voru. Vil
eg því leggja þeim þessi orð i
munn í sambandi við höfn Van-
couver og umhVerfið hér:
“Fjallgirða fagra vík
fösturlands stöðvum lík,
vorsólin veki þig,
vorblómin þeki þig.”
(H. H.)
Því miður veit eg ekki, hvenær
fyrsti íslendingurinn settist að i
þessari borg, en alt það, sem
liðið er af þessari öld hafa þeir
dValið hér og óefað lengur. Ekki
dettur mér í hug, að líf þeirra
hér hafi verið laust við erfið-
lieika, en það vil eg segja, að
þrátt fyrir erfiðleika, hafa fs-
lendingar í Vancouver unað lífi
sínu. Loftslag og umhverfi hér
flytur mönnum töfrandi unað,
sem gerir tilfinningalandið bjart
eins og sólaruppkomu á sumar-
morgni.
Erum vér þá hér aðeins til
að njóta? Er vor leina köllun
aðeins sú að þiggja? Sjálfsagt
er að njóta og þiggja, á allan
þann hátt sem nauðsyn krefur
og er manndómi og drengsltap
samboðið. Það er rétt að þiggja
atvinnu, ef maður getur ekki
skapað hana sjálfur. Sömuleið-
is er rétt að nota á allan hátt,
eftir itrustu kröftum og bezta
viti öll þau tækifæri, sem mann-
félagið hefir hér að bjóða, til
þess að auka menningu vora og
göfgi. Þar vil eg nefna, meðal
annars enskt mál og allar þær
dásamlegu bókmentir, sem það
tungumál hefir framleitt. Eg
hefi heyrt fáfróða hrokagikki
segja, að enskan væri hrogna-
mál. Þvi íniður hafa sumir
menn svo smáar sálir, að þeir
geta, með engu múti hrósað einu
atriði nema að níða annað. Ensk
tunga heffr annað eðli og aðra
sál en sum önnur tungumál, en
með því er ekki sagt að hún
hafi enga sál. Tungumál það,
sem Shakespeare og Milton,
Tlennyson og Browning sömdu
sín ódauðlegu listaVerk á, er
ekki andlaust mál. Ensk tunga
er lykill að mörgu því heilbrigð-
asta og listfengasta, sein til er
i bókmentum mannkynsins.
En þó vér, að rétitu, viljum
njóta ríkulega af forðabúrum
annara hljótum vér að >eiga eitt-
kvað sjálfir, sem vér höfum
heilaga skyldu til að rækta. Sem
einstaklingar og félög leitumst
vér við að leysa þetta af hendi.
Meðal ísl'endinga í þessari borg
eru nú 5 félög, sem hafa verið
stofnuð í þessum tilgangi:
lestrarfélag, fslendingafélag,
kvenfélag, félag ungra kvenna
og söngflokkur. Eitt þeirra
veitir forstöðu þessari samkomu.
Aðal hlutverk þess félags, sem
er “Sólskin,”- er það að hlúa
að þeim sem bágt eiga. Enn-
fremur er það tilgangur þess-
arar samkomu að leggja dálítinn
eld á arin íslenzkrar þjóðrækni.
Ef það er satt að “jafnVel úr
hlekkjunum sjóða má sverð i
sannleiks og frelsisins þjónustu-
gerð,” hlýtur það að vera rétt.
að matur er mannsins megin, og
islenzkur matur vekur íslenzkan
smekk. f Winnipeg var jafnvel
talað um þjóðræknis-pönnukök-
ur. Eg hefi það líka fyrir satt,
að Sólskin hafi unnið mikið og
gott líknarstarf meðal fslend-
inga í þessari borg. En öll hafa
þessi félög það sameiginlegt að
leggja rækt við það sem vér ís-
lendingar eigum. Ekki vil eg
gera lítið úr þessu siem gert
hefir verið og sízt af öllu draga
úr því að við gerum meira.
Mér er sagt, að ekki séu allir
fslendingar í þessari borg sam-
mála um kirkju og kristindóm.
Á þessari samkomu, sem ætlast
er til að allir fslendingar hér um
slóðir sæki, er þess vænst, að eg
flytji ekki úein flokksmál, en
það er eitt, sem mér finst að
vér allir getum unnað og þá
unnið að ef kostur er á nokkr-
um framkvæmdum.
Eg drap á dýrð hins enska
máls, sem 'er nú sameign vor
og allra annara í þessu landi,
en það væri hinn löðurmannleg-
asti aumingjaháttur að hugsa,
að vér mættum ekki kunna nema
eitt tungumál. Allir menn í
öllum löndum heims ættu að
kunna að minsta kosti tvö
tungumáþ þvi það víkkar hinn
andléga sjóndeildarhring og örf-
ar skilning og umburðarlyndi
gagnvart öðrum þjóðum.
Eg vil mæla með því að þér,
eftir beztu kröftum, leggið rækt
við íslenzka tungu.
Hversvegna ættum vér að gera
það í þessu landi?
2. Af þvi að islenzkan er fag-
urt mál, en í því felst að það sé
hljómfagurt, sé gott verkfæri
listfengum anda og hafi að
geyma auð af orðatiltækjum,
sem eru smellin, hrifandi og vel
til þess fallin að ge^mast í
minni. Eitt islenzkt skáld,
Grimur Thomsen, segir um ann-
að íslenzkt skáld, Jónas Hall-
grímsson:
“Þú gast látið lækjarnið
i ljóðum þinum heyra,
sjávarnið og svanaklið,
sanda bárur keyra.”
íslenzk snildarskáld hafa leikið
sér að háttum og orðum. Fáum
mönnum er víst léttara að yrkja
en íslendingum. fslenzka málið
hefir verið þeim hentugt verk-
færi og þeir hafa fegrað og bætt
málið.
2. Málfræðilega hefir íslenzk
tunga ailmikið gildi. Hún er
merkur liður í hinu germanska
tungumálakerfi, ein af þremur
systrum, en þær eru: þýzka, is-
lenzka og engil-saxneska. Móðir
þeirra allra er go>tneskan. Mik-
ill fjöldi orða i íslenzku og engil-
saxnesku eru samstofna. f þvi
efni hefir hvorugt málið tekið til
láns frá hinu. En auk þess eru
hiit- miklu áhrif, sem dönsk
tunga, þá sama og íslenzkan,
hafði á enskuna þegar Danir
lögðu undir sig mikinn hluta
Englands. Eg er ekki alveg viss
um að nokkur heil opna sé til i
stórri enskri orðabók, svo að þar
sé ekki eitthvað minst á islenzk
orð.
3. Tungan geymir í sér steypt
mót íslenzkrar hugsunar. Tung-
an er því afar gott meðal til
sjálfsþekkingar. Tungan geyin-
ir mynd af íslendingnum og ef
nokkuð er af fstendingnum i mér
hlýt eg að finna eitthvað af þvi
í íslenzku máli, eins og þetta
ber með sér:
“Eg elska þig málið undurfríða
og undrandi krýp að lindum
þínum.
Eg hlýði á óminn bitra, blíða,
brimhljóð af sálaröldum min-
____ »>
um.
Eg trúi samt ekki á neinar
særingar eða fordæmingar í sam-
bandi við þetta mál. Eg vil, að
vér séum allir frjálsir og glaðir
menn, sem leita að þvi, sem
betur má fara á þessu sviði á-
samt öllum öðrum.
“Þvi gæt þess vel, sem göfgast
hjá þér finst
og glæddu vel þann neista sem
liggur inst.”
>. ■IIIM ..M ■ ■ ■l'!l
■!i»llllB:; ■IWIIIi«IIIMIIIil
printing...
aistincti^e and persuasn)e
f
UBLICITY tliat attracts and compels action on
the part of the customer is an important factor
in the development of business. Our years of experience
at printing and publishing is at your disposal. Let us
help you with your printing and advertising problems.
('The COLUMBIA PRESS LIMITED
695 Sargent Ave. WINNIPEG Phones 86 327 - 8
■ii:m;iiM:i'.«ii'.ii