Lögberg - 19.03.1942, Page 2
2
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 19. MARZ. 1942
Erindi
flult á afmælissamkomu Beteis
3. marz 1942, af Gissuri
Elíassyni.
Herra forseti,
Háttvirtu tilheyrendur:
Þegar eg var strákhnokki var
eg, eins <5g aðrir jafnaldrar míní
ir, áhugasamur meðlimur barna-
stúkunnar og á þeim tima, sem
eg var í alsherjar útbreiðslu-
nefndinni, dvaldi hjá foreldrum
minum gömul kona nokkurH er
Steinunn hét. Hún var að bíða
eftir að pláss losnaði á Betel. Eg
vissi harla litið um Betel þá,
varla hvað eða hvar það var. Nú
kom eg heim af stúkufundi eitt
sinn, og er varla kominn inn
fyrir dyrnar þegar eg heyrði
Steinunni vandræðast yfir því, að
hún hefði nýlega frétt, að alt
væri fult á Betel ennþá. Það er
óinögulegt að alt sé fult á Betel,
hugsaði eg. Það er óttalegt til
þess að vita, og eg aðgerðarlaus í
útbreiðslumálanefndinni. Hvar
er presturinn og æðstitemplar-
inn, ætli þeir séu fullir lika.
Síðan hefi eg fengið betri skiln-
ing á hvað átt er við með þeirri
afspurn að “alt sé fult á Betel,”
og þarafleiðandi hefir álit mitt á
heimilinu mikið hækkað eins
og heyra má af því, sem á eftir
kemur. Mér þykir vænt um
Betel, og þsesvegna lofaðist eg
til að flytja þetta erindi, og ykk-
ur þykir vænt um Betel, og þess-
vegna eruð þið hér samankomin.
Eins og þið hafið oft tekið
eftir, þá erum við þannig úr
garði gerð að þegar hlutirnir at-
vikast á þann hátt, sem okkur
fellur vel í skap, þá eru litlar lík-
ur til þess að við brjótum heil-
ann mikið um það hvort við eig-
um nokkuð tilkall til slíks happs
eða hvort við höfum nokkuð tii
þess unnið. Mér kom þetta til
hugar þegar eg fór að reyna að
átta mig á því hvernig það heíir
atvikast að eg ætti að stíga í
ræðustólinn alveg svona upp úr
tómu En úr því það eru ástæð-
ur til alls þá getur það ekki ann-
að verið en að samkomunefndin
hafi séð þessi þrjú gráu hér, sem
eg hefi að erfðum, og sem altaí
eru að koma mér í vanda úr því
þau eru álitin sámferða ellinni
ok spekinni. Þessum þremur
gráu hárum hefir mikið fjölgað
síðan eg fór að fást við
þennan ræðustúf og fór það vel
að hann þurfti ekki að vera
lengri. En svo þarf inaður ekki
að vera gamall tii þess að hugsa
um Betel ef.maður umgengst fs-
lendinga, og er glaður að vera
hér viðstaddur, þótt eg hafi ekk-
ert til þess heiðurs unnið annað
en að öðlast þrjú grá hár og
fasta sannfæringu fyrir ágæti
þess málefnis, sem þessi sam-
koma styður að.
Þessar árssamkomur Betels
eru ávalt vinsælar og vel sóttar,
eins og eðlilegt er. Þær gefa
almenningi gott tækifæri til að
kynnast sögu, starfi og skýrslum
elliheimilisins, endurnýja skyldu-
rækni sina við það og sannfær-
ast á ný að hér sé uin þá félags-
stofnun að ræða sem hafi hið
þarflegasta verk ineð höndum,
sem íslendnigar hafa náð tökum
á, og að þetta hlutverk sé leyst
af hendi með prýðilegum og
blessunarríkum árangri. Allir ís-
lendingar sem um það- hugsa
hljóta að bera Betels málefnið
fyrir brjósti og þeim hlýtur að
vera ant um að stofnunin fái
lengi að starfa af fylsta megni
eins og hún hefir gjört að und-
anförnu, þeim til gagns og þjóð-
inni til sóma. Eg veit að það er
mikið kappsmál fyrir þá að láta
engan skugga falla á starfrækslu-
svið heimilisins þótt víða sé
skuggsýnt yfir menningar- og
mannúðarfyrirtækjum nú sem
stendur. Ef fjárhags-skórinn
kreppir nú meir en áður, eins og
húast má við hann geri, þá verða
undirtektirnar að vera hlutfalls-
lega því ineiri og notadrýgri því
sízt er þörfin minni. Það þarf
ekki að óttast að þessu málefni
verði ekki æfinlega borgið, þvi
það hús, sem stendur á jafn-
góðum grúnni og Betel er, fær
staðist í gegnum storma lífsins
óhaggað.
Hefði þetta heimilí verið sjálfu
sér sundurþykt, er öldungis ó-
víst að það hefði verið eins rót-
fest og það nú er. En sem
betur fer, hefir það verið sú fé-
lagsstofnun, sem íslendingai
hvarvetna, án tillits til mannfé-
lagsstaða eða stétta eða triiar-
skoðana, gátu sameinast uin.
Þetta er nærri einsdœmi á
meðal Islendinga og kemur ef til
vill út af því, að við sjáum að
við verðum allir einhvern tíma
gamlir (ef við deyjum ekki fyr)
og að allir fari ekki í mann-
greinarálit, heldur eftir þvi hvað
mennirnir eru vel undir ellina
búnir, andlega heilsufarslega og
efnalega. Allir vita hve þessari
Þrenningar kröfu til þolanlegs
viðurværis í ellinni er nákvæm-
lega sint með áhrifum og hlunn-
indum Betels til allra þeirra er
rúmast þar. Já, þeim er ekki í
kot vísað gamalmennunum á
Betel og er það þörfin og hús-
rýmið sem ræður þar lögum, en
ekki hvort fólkið hafi einhvern-
tima verið “labbakútar” eða
“spenamenn.”
Ekki þarf að ítreka það hér, að
það sé heilög skylda æskunnar
og þeirra, sem í fullu fjöri
standa, að ábyrgjast þeim öldr-
uðu og ósjálfbjarga tryggingu i
ellinni. Það er ýmislegt, sem
mætti telja upp þessu til stað-
hæfingar, en þess gerist ekki
þörf hér og nú, því þar sem allir
eru sammála, spyr enginn að
röksemdum.
Þið eruð flest málkunnugri
sögu og starfi Betels en eg, því
þið hafið lengur fylgst með aðal
söguþræði þess. Það er ykkar
heiður að hafa látið ykkur varða
um öll opinber mál þess frá því
fyrsta. Að tala um þetta efni
frá þessari hlið væri eins barna-
legt ifyrir mig eins og að reyna
að kynna Jóni sagnfræðingi
þjóðarsögu íslands. í stað þess
að hreyfa mikið við aðal þræð-
inum langar mig að fara fram
hjá honum og minnast lítillega
á sumt, sem mér kemur til hug-
ar um Betel og ellina yfirleitt.
Það er tilmælst að þetta verði
tekið sem spaugileg alvara, eða
alvarlegt spaug, hvort sem ykk-
ur sýnist geðfeldara.
Það fyrsta, sem hugurinn stað-
næmist við er orðið Gimli, og
kemur manni strax til hugar, að
þetta sé vel kjörið nafn fyrir
þann stað, sem Betel stendur á,
eftir uppruna þess og þýðingu
að dæma. I fornri norrænni
goðafræði var Gimli, eins og þið
munið, bústaðarheiti það er goð-
in bjuggu og þar sem réttlátra
manna sálir sveimuðu um í hinni
eilífu sælu söngs og hörpuspils.
Staðarheitið i meðferð nútímans
hefir færst norður og niður, eins
og þið getið séð af landafræð-
inni, og er það nú borið frain
Gimli en ekki Gimle. Er sá
staður nú orðinn heimsfrægur
fyrir sitt “Summer Resort Busi-
ness,” holdugar hafmeyjar og
Business and Pri ofessional Cards
J. J. SWANSON & CO. LIMITED ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST„ WINNIPEG •
308 AVENUE BLDG, WPEG. • FaatelKiULsalar. Lelgja húa. Ot- vega penlngalán og eldsábyrgC, bifreiðaábyrgð o. s. frv. PHONE 2« 821 Pœpileffur og rólegur bú staóur i miöbiki borgarinnar Herhergi $2.00 og >ar yfir; maö baöklefa $3.00 og þar yfir. Agætar má.ltíöir 40c.—60c Free l'arking for Queutu
DR. B. J. BRANDSON 21S-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy 8tt. Phone 21 834—Oífice tlnrnr 3-4.30 DRS. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar •
• Heimili: 214 WAVERLEY 8T. Phone 403 288 Wlnnipeg, Manitoba 40« TORONTO GEN. TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 2« 545 WINNIPEG
Peningar til útláns j Office Phone Pp1' Phone s 87 292 72 409
Sölusamningar keyptir. Bújarðir til sölu. : í Ðr. L. A. Sigurdson
INTERNATIONAL LOAN COMPANY 304 TRUST & LOAN BLDG. Winnipeg | 109 MEDICAL ARTS BLDG. : Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment
EYOLFSON’S DRUG PARK RIVER, N.D. Islenzkur lyfsaU Fólk getur pantað meðul og annað með pósti. Fljöt afgreiðsla. DR. ROBERT BLACK Sérfræðlngur I eyrna, augna, nef og hálssjúkdúmum 216-220 Medical Artt Bldg. Cor. Graharn & Kennedy ViðtalSUml — 11 til 1 og 2 til 5 Skrifstofusími 22 251 HelmllUsIml 401 191
Arthur R. Birt, M.D. 605 MEDICAL ARTS BLDG. Winnipeg Lækningastofu-slmi 23 703 Heimilissími 46 341 SérfrœOlngur í öllu, er aO húOsjúkdómum lýtur Viðtalstlmi: 12-1 og 2.30 til 6 e. h. Dr. S. J. Johannesson 215 RUBY STREET (Beint suður af Banning) Talslmi 30 877 • Viðtalstími 3—5 e. h.
H. A. BERGMAN, K.C. DR. A. V. JOHNSON
Islenzkur lögfrasOingur Dentist
Skrlfstofa: Room 811 Mcíárthur •
Bulldlng, Portage Ave. »06 SOMERSET BLDG.
P.O. Box 1656 Telephone 88 124
Phones 95 062 og 39 043 Home Telephone 27 702
DR. A. BLONDAL Thorvaldson &
Physician & Surgeon Eggertson
LögfrœOingar
602 MEDICAL ARTS BLDG.
Sfmi 22 296 300 NANTON BLDG.
Heimili: 108 Chataway
Sími 61 023 Talslmi 97 024
Dr. P. H. T. Thorlakson A. S. BARDAL
848 SHERBROOOKE 8T
305 Medlcal Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Stt. Selur llkklstur og annast um út-
Phone 22 866 farlr. Allur útbúnaður sá beati.
Ennfremur selur hann allskonar
mlnnievarða og legstelna.
Rea. 114 GRENFELL BLVD. Skrifstofu talsimi 86 607
Phone «2 200 Heimills talstmi 501 5(2
hvítfisk. En gamla þýðingin
heldur sér, eins langt og mig
snertir, því hún hljóðar svo dá-
samlega vel upp á tilgang Betels.
Tökum þessa vísu úr Völuspá til
lihugunar.
Sal sér hon standa
sólu fegra,
gulli þakaðan,
á Gimlé;
þar skulu dyggvar
dróttir byggja
og um aldrdaga
yndis njóta.
Síðustu tvær hendingarnar heim-
færa ineð snildarleik hávamáls-
ins þá hugsjón, er við höfum um
öldungasetrið á Gimli:
Og um aldrdaga
yndis njóta.
Finst ykkur ekki eins og mér að
þessi orð eigi húsgengt á Betel.
Flestir telja þessa vísu orta
fyrir kristin áhrif og að Gim sé
dregið af táknkenningu Gim,
sem þýðir eldur eða logi, og að
lé stemmi við hlé, svo að saman-
sett þýði orðið orðið Gimlé eld-
hlé, eða í hlé við Surtarlogann
er eflaust átt vð upphaflega. Af
þessu mætti segja, að á Gimli sé
engin von á Surtarloga, og þess-
vegna engin þörf á vörnum gagn-
vart eldi. Annað er áreiðanlegt,
að í goðafræðinni var átt við
að staðurinn hafi heitið Gimlé,
en ekki salurinn sjálfur. Mér
kom þessi síðasta uppgötvun
sérlega vel, því nú þarf aðeins að
sýna að Betel sé nútímans tákn-
mynd af hinum tforna sal, þá
getur þessi samlíking átt við upp
á punkt og prik, og Betel og
Gimlé verið samastað'ar, þótt
annað sé úr goðafræðinni en hitt
kent við kristnina.
Ekki þarf lengra aftur í mann-
kynssöguna en til Abrahams hins
gamla. Á hans tíð var pláss í
Palestínu, sem kallað var Luz.
Á þessum stað, eða í grendinni,
dreymdi Jakob drauminn, eins
og þið munið, og skýrði staðinn
Betel, sem þýðir og líka hús
guðs. Það þarf ekki að fjöl-
ræða þetta meir, nema að segja,
að það heimili, sem við erum að
T minnast með þessari samkomu,
beri með sóma réttnefnið.
Þar er hörpuspil og söngur ís-
lenzkra ljóða og laga og þangað
koma söngdísir (ein er ógleym-
anleg, sem María Markan hét),
og fylla salinn með töfrandi
gyðjusöng og allir verða glaðir
og öllum Iíður vel. Finst ykkur
ekki að þetta geti verið svipað
þeirri dýrð, sem himinsælan
sjálf býður, eða hafið þið aðra
hugmynd um himnaríki en eg?
Þangað koma og líka ræðumenn,
og þá er maður ekki eins viss
um að þetta sé himnariki, eftir
alt saman. Stundum kasta allir
ellibelgnum lengst út í Winni-
pegvatn og dansa létt og liðugt
eins og engin nótt kæmi og for-
stöðukonan, Inga Johnson, brosir
yfir því hve mikið fjör og funi
kviknar i gömlum birkibeinum
hvenær sem hvásarvals nefndur
er. Mig skal ekki furða þótt
það sé eins erfitt að koinast inn
á Betel eins og fyrir lítinn úlf-
alda að smjúga i gegnum nálar-
augað, því aðsóknin er mikil en
plássið þröngt og takmarkað.
Þegar við hugsum alvarlega
um fólkið á Betel, verður okkur
stundum óvart á að hugsa um
það sem örmagna gamalmenni,
sem eiga ekki annað eftir en að
iðrast syndia sinna og bíða sendi-
herra dauðans. Ekki er hægt að
hrekja það, að eftir þvi, sem árin
fjölga eftir því færist lokaþátt-
ur æfinnar nær, en er það ekki
einmitt sá þátturinn, sem sögu-
ríkastur er. Fólkið er eins og
gott vín, það batnar með aldr-
inum og verður áhrifameira. Það
eru fjórar megin ástæður til þess
að almenningur kviðir ellinni,
og get eg ekki betur séð en að
þær séu allar sprottnar af hvað
fólkið er jarðbundið og undir-
orpið efnishyggju lögmáli. Fyrsta
ástæðan hygg eg sé sú, að ellin
gerir það ilt mögulegt að fylgjast
með straumhraða og þrasi hvers-
dags lífsins eða eiga fulla þátt-
töku i félagsmálum og annríki
þess önnur ástæðan er sú, og
er hún gildari en hinar, finst
mér, að hold og bein lýjast og
stirðna og lifskraftarnir minka
Jafnvel þessi ástæða er ekki svo
ægileg þegar tekið er til gíeina
að löngunin til að geta flogið
dofnar smám saman með aldr-
inum. Þriðja ástæðan, sem
stundum er framlögð, er sú, að
engin ánægja geti fylgt ellinni.
Þetta er óþarfur kvíðbogi, ef vel
er hirt um æskuna. Um síðustu
ástæðuna, sem er að aldurinn
færir manninn nær dauðans
dyrum, vil eg ekkert um segja,
því það er of viðkva&mt mál til
að flytja opinberiega, og verður
hver einstaklingur að friðast við
dauðann sjálfur, hvort sem hann
er ungur eða gamall.
Hvað sem aðrir kunna að
hugsa um ellina, get eg ekki bet-
ur séð, en að hún geti verið eins
fögur eins og kveldroðinn, sem
er litfegursta stund dagsins, (hér
er auðheyrt að átt er við hina
andlegu hlið mannsins, vona eg,
því það er sú hlið, sem eg vildi
helst ræða). Þegar fólk er orðið
gamalt, fer það í raun og veru
fyrst að lifa og teygja úr þvi
efni, sem það hefir ofið um
langa lífdaga. Þá losnar það
fyrst við þessa annríkis mæðu og
strit, sem áhyggjumanninum
fylgir, eins og skugginn hans.
Ekki má gleyma, að bogið þak
felur oft unga og lífsglaða sál.
Aldrað l'ólk ætti aldursins vegna
að skipa æðsta ses í mannheim-
inum, því það hefir útskrifast
með beztu einkunn úr reynslu-
skóla lífsins. Hverjir gætu ver-
ið betur til þess fallnir að vera
kennifeður þeirra, sem yngri og
óreyndari eru? Hver maður eða
kona, sem hafa náð sjötugsaldri,
áttu að fá prófessors nafnbót í
ofanálag við ellistyrkinn, þvi
hann er ekki svo mikill, að bæta
mætti vel við hann ofurlitlum
heiðri í uppbót. Aldurinn þrosk-
ar skilninginn á lífinu og verð-
mætum þess og það fólk, sem er
á Betels aldri er sannarlega vel
til þess fallið að geta lætt ein-
hverju listaverki undan tóskapn-
um, sem gæti verið komandi
kynslóðuin til leiðbeiningar, ynd-
is og fróðleiks.
Sumt af allra mestu listaverk-
um heimsins á liðnum öldum
hafa komið frá mönnum, sem
við hefðum sagt væru orðnir elli-
ærir. Þið hafið heyrt mikið um
Goethe, heimsfræga, klassiska
skáldið, lönguliðna. Hann var
hartnær áttatíu ára gamall þeg-
ar hann lauk við skáldverkið
fræga, “Faust.” Verdi, ítalski
tónsnillingurinn var rétt um
nírætt þegar hann kvaddi heim-
inn, og á fimm síðustu árunum
samdi hartn þessi undurfallegu
sönglög og óperur: Ottello, Fal-
staff, Ave Maria, Stabat Mater
og Te Deum. Ekki iná lást að
nefna í þessari tölu enska lista-
skáldið Tennyson.er orti sitt síð-
asta og e. t. v. fallegasta kvæði
“Crossing the Bar,” þegar hann
var 83 ára gamall. Ykkur kem-
ur sjálfsgat til hugar eitthvert
stórskáldið islenzka, er orti sitt
bezta kvæði undir kveld æfidags-
ins. Já, vissulega er háaldraður
maður sú mesta prýði, sem
heimurinn getur eignast, ef hinn
andlegi vísir tilveru hans hefir
aukist og þroskast við hvert ár.
“Svo lengi lærir sem lifir,” stend-
ur þar, og eftir því sem maður-
inn lærir og lifir lengur, eftir
því færist hann nær vitra manna
tölu. Ef æskan gæti vitað alt,
sem ellin býr yfir, væri skyn-
semin ugglaust á hærra menn-
ingarstigi en hún nii er.
Áður en eg lýk máli mínu, og
úr þvi eg fór að nefna á nafn
Goethe, Verdi og Tennyson, verð
eg að minnast á annað atriði.
Við hugsum oft og mikið um
það, sem mennirnir hafa fært
okkur, en lítið eða ekkert um
mennina sjálfa. Við horfum í
kringum okkur og sjáum alstað-
ar stórkostleg mannvirki og al-
staðar verklegar framfarir. Við
berum saman í huganum á með-
an hann er móttækilegur hin
misjöfnu lífskjör, endurbættu
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jeweiry
Agents for BULOVA Watche*
Marriage Dicenses issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakera and Jexoeller»
699 SARGENT AVE., WPQ.
lífsþæginda og hagsmunnlegar
umbætur nú og á landnámstið
íslendniga hér vestra. Okkur er
sagt, að á síðustu fimm áratug-
unum hfai átt sér stað meiri
framfarir en á fimm heilum öld-
um þar áður. Og þótt við trú-
um að breytingarnar séu gífur-
legar, getum við ekki verið að
öllu ásátt með að þetta séu fram-
farir, verulegar, á meðan þekk-
ingin eða þekkingarleysi á þeim
stjórnar þeim til eyðileggingar
mannfélaginu, en ekki til upp-
bygingar þvi. Og svo lengi sein
heimurinn nötrar eins og hrædd
skepna undir vængjaþyt “um-
bótanna” getur ekki verið um
framfarir að ræða. En eg ætlaði
að tala um alt annað. Þessum
uppfyndingum hefir flestum ver-
ið ætlað til góðrar notkunar, og
hugvitsmennirnir, eins og Edi-
son, Marconi og Wright eru stór-
menni í sinni röð fyrir það, sem
þeir lögðu heiminum til. Nöfn
þeirra og frægð eru virðulega
skráð og lofuð. Verkin lifa
mennina og mennirnir lifa í
yerkum þeirra; það er af þessu
séð. En það góða (og hér á eg
við hina hæglátu, islenzku frum-
byggja, sem nú á Betel eru). Það
góða er oft grafið með beinum
þeirra. Vegna þess að frægð
þeirra var ekki skráð í skýru
og skornu letri. Þeirra verk
voru engu siður nauðsynleg en
Edisonis eða Tennysons, þótt
máske væri vandaminni og stað-
bundnari. Hvar eru þeirra nöfn
að finna, eða eru þau glevmd?
Þeirra frami ætti að vera og er
okkur heiður, því með sínum
dygðum, trúmensku og dug,
skrifuðu þeir nöfn sin í hjörtu
allra þeirra, er kunna að lesa og
meta gæði, sem geymd eru í
þeim ótöldu handaverkum, sem
eftir þá liggja. Lengi megi verk
þeirra standa í minningu um
þá og til fyrirmyndar okkur,
sem á eftir komum.
Þessir menn og þessar konur
lifðu i gegnum einn æfintýra-
mesta mannsaldúrinn, sem fæðst
hefir í heiminn, og eg á enga
betri ósk þessu fólki til handa en
þá, að þær endurminningar, sem
það nú geymir um æfiferil sinn,
megi vera eins tær og ánægju-
legur eins og starfrækslutímabil
þess var trúverðugt og nota-
drjúgt.
Þetta er afmælissamkoma
Betels. Eg get ekki látið þetta
tækifæri sleppa úr greip minni,
án þess að árna heimilinu allrar
blessunar «á ókomnum árum.
Með ári hverju bætist við þakk-
lætisskuld íslendinga til for-
stöðufólks Betels og vildi eg hafa
æskt þess að vera því verki vax-
inn að geta þakkað þeim öllum
persónulega, eins og vera skyldi.
Eitt nafn er þó á vörum allra
viðstaddra, og þarf eg varla að
nefna það. Alt það, sem Dr.
Brandson hefir fyrir Betel gert,
verður ekki fljótlega talið upp,
og er óvíst að forsetanum væri
mikil þægð i, að byrjað væri á
þvi hér. Stundum held eg að
öll hans hugsun hafi verið til-
einkuð Betel og mig grunar að
hann hafi skorið upp margan
íslendinginn og komið honum til
heilsu bara til þess að geta látið
hann seinna meir njóta Betels.
Lengi megi Betel njóta Brand-
sons og starfskrafta hans!
Það verður bráðlega safnað
afmælisgjöfum ykkar til Betels.
Það eru minsta kosti þrjár á-
stæður til þess að við ættum að
láta þær vera eins riflegar og
okkur er unt; þannig getum við
sýnt Betel góða viðleitni og alúð,
forstöðunefndinni þakklæti og
virðingu og sjálfum okkur göf-
uga tryggingu fyrir ellinni, sem
læðist eins og þjófur að nóttu
á eftir okkur öllum, hvort sem
okkur likar betur eða ver.
Þakka ykkur fyrir ágæta á-
heyrn.