Lögberg - 19.03.1942, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. MARZ. 1942
3
Fréttabréf frá Ontario
“Viðar er Guð en í Görðum,”
sögðu Norðlendingar, þegar séra
Árni Helgason þrumaði reiði-
prédikanir sinar yfir höfði Álft-
nesinga á öndverðri 19. öld. Þá
sat gamli Satan í magt og miklu
veldi, enda hafði séra Árni hann
ætíð á oddinum þegar hann
þurfti að mýkja sinn forherta
söfnuð, sem þó voru áðens sauð-
meinlausir sjómenn.
Það hafa vitrir menn sagt, að
umhverfi og uppeldi skapi og
merki mjög lífsstarf manna, og
hefir það sýnt sig glögt á oss
íslendingum.
Af því ,að vér vorum margir
aldir upp við fiskiveiðar á Fróni,
staðnæmdumst viÍ5 margir við
tiskivötnin í Vestur-Canada, og
höfum kannað þeirra undirdjúp
svo rækilega, að 'þar er nú ekki
orðið um auðugan garð að gresja
lengur. Og nú eru fslendingar
farnir að fiska vestur við Kyrra-
haf og norður með Alaskaströnd-
um með góðum árangri, og aust-
ur við Atlantshaf; sækja þeir nú
fast fiskiveiðar með togurum
frá Boston. Og oft hafa þeir
sungið á sænum vísuna hans
Árna Eyjafjarðarskálds:
“Eg vildi að sjórinn yrði að
mjólk
°g undirdjúpin að skyri,
lfjöll og hálsar að floti og tólk
en Frónið að kúasméri.
uPPfyllist óskin mín:
öll vötn í hrennivin,
ákavít áin Rín,
eyjar í tóbaksskrín
°g Grimsey að grárri meri.”
Sigríður Bjarnadóttir Johnson
1864— 1941
Það hefir dregist lengur en skyldi að verða við tilmæl-
um harna þessarar góðu konu, að rita nokkur minningar-
orð um æíiferil hennar.
Mérg látlaus æfin lífsglaum fjær
sér leynir einatt, góð og fögur,
en guði er hún alteins kær,
þó engar fari af henni sögur.
Svo dylst oft lind und bergi blá
og bunar tárhrein skugga falin.
Þó veröld sjái ei vatnslind þá
í vitund guðs hver dropi’ er talinn.
(Stgr. Thorsteinsson).
Sigríður var fædd á Stóru-Ásgeirsá í Viðidal í Húna-
vatnssýslu á íslandi 22. marz 1864. Foreldrar hennar voru
Bjarni Helgason frá Gröf í sömu sýslu og Helga Jónasdóttir,
ættuð úr Eyjafirði. (Einhverra orsaka vegna hefir sú mis-
sögn slæðst inn í þessa árs Almanak Thorgeirsons, að Sig-
ríður hafi fæðst í Gröf, og að faðir hennar hafi verið Hall-
dórsson). Foreldrar hennar hjuggu lengst af á Hrappsstöð-
uni í Víðidal, þar til 1887 að þau brugðu búi og fór þá
Sigríður með móður sína og ygsta bróður sinn til Ameríku.
Faðir hennar og hin systkinin komu seinna, nema einn bróð-
ir, Trvggvi, sem seinna varð þingmaður lrá Húnavatnssýslu,
og dó á íslandi 1929. Systkinin, sem hingað fluttu voru:
ósk Johnson, nú ekkja eftir Þórð Johnson frá Akranesi, nú
til heimilis hjá fósturdóttur sinni að Linton, N. D.; séra
Jóhann Bjarnason, dáinn 18. jan. 1940; Helgi, bjó nærri
Addingham, Man., dáinn 1931; Bjarni, dáinn 10. apríl 1900;
Björn, bóndi nærri Víðir, Man.; Mrs. Thorbjörg Eyjólfsson
í Mountainbygð, N.D., ekkja Páls Eyjólfssonar, sem seinast
átti heima að Wynyard, Sask., ættaður úr Suður-Múlasýslu;
Sgurður, áður nefndur, til heimilis í San Diego, Calif.
Áður en Sigriður flutti til Vesturheims fór hún einn
vetur á kvennaskóla á Blönduósi í Húnavatnssýslu. Var
Þórdís Eggertsdóttir (seinna Mrs. Eldon) þá kennari þar, og
»rðu þær vinkonur upp frá því; sjálf varð Sigríður að vinna
fyrir kenslunni, og hefði fegin viljað halda áfram námi, því
það var hennar mesta unun; en erfiðar kringumstæður
heimilisins ollu því, að það gat ekki orðið.
Hún kom vestur um haf, eins og áður er sagt, 1887;
vann fyrst i Winnipeg, og giftist þar 27. sept. 1889, Guð-
mundi Jónssyni snikkara frá Elliðavatni nálægt Reykjavík,
föður Stefaníu leikkonu og Jóns gullsmiðs, er lengi bjó á
Mountain, N.D., og síðar i Rugfoy, N.D., nú vestur á Kyrra-
hafsströnd. Þessi tvö börn frá fyrra hjónabandi Guðmundar
og fyrri konu hans, önnu Stefánsdóttur prests að Viðvík í
Viðvíkursveit.—
Um haustið 1889 fluttust þau til Mountain, N.D.; næsta
sumar voru þau til heimilis á foújörð, sem undirritaður átti
í HalIsond>ygð og kyntist hann þeim þar fyrst vel og hélst
sá kunningsskapur ætíð síðan. Næst náðu þau í heimilisrétt
á foújörð í Svoldarfoygð, N.D. Seldu það svo eftir 6 ár, og
fluttu til Mountain í annað sinn. Voru þar í 9 ár. Þá fluttu
þau til Hallsonbygðar og bjuggu þar i 3 ár, síðan til Moun-
tain í þriðja sinn og dvöldu þar í 5 ár. Fluttu þá enn hurt
frá Mountain 1914 og norður til Canada, ásamt fleirum
héðan úr bygðinni; náðu i tvær bújarðir, heimilisrétt og
“pre-emption,” 10 mílur þaðan sem nú er bærinn Climax,
Sask. Bjuggu þar í 6% ár, fluttu þá enn á ný til Mountain
* hygðina, þar sem þau höfðu unað sér foezt, og hér dvöldu
þau þar til vegir þeirra skildust hérna megin grafar. 1. júní
Í926. Eftir það var Sgríður hjá börnum sínum á víxl um-
vafin ástríki og umönnun.
Þau Sigríður og Guðmundur eignuðust 9 foörn, mistu
tvö í æsku og það þriðja 19 ára að aldri, mjög efnilega
stúlku, sem Jensína hét, dáin 27. marz 1920. Þau sem eftir
En mikið harðræði þarf til að
fiska úti á vetrarís á vötnum í
Vestur-Canada og þar hafa eng-
ar þjóðir reynt að keppa við ís-
lendinga i því efni, og marga
góða geddu hafa þeir dregið á
land í 70 stiga frosti á Faren-
heit, þegar aðrar þjóðir hafa
setið inni við eldinn, og oft við
rýran kost.
Til gamans vil eg tilgreina
víkingshátt íslendinga í Vestur-
Canada með eftirfarandi smá-
sögu:
Veturinn 1926 var sérlega
veðurmildur, var eg þá staddur
vestur í St. Valfoorg í Sask. og
sá menn vera að flytja inn þang-
að hvítfisk til sölu með lágu
verði. Fékk eg þá flugu í höf-
uðið að kaupa vagnhlass af hvít.
fiski frá Waterhen vatni, sem
fiskimenn fluttu inn sjálfir, sitt
tonnið hver. Eg spurði þá hvort
þetta væri öll þeirra vetrarveiði,
og játuðu þeir því, og sögðust
aðeins mega hafa 7 net hver, og
fá eins mikið af sukker og keilu,
sem væri hið bezta fóður fyrir
srín og alifugla, og voru ánægðir
með veiði sína. En svo sögðu
þeir, að áður en skollinn sendi
íslendinga hingað vestur fyrir
nokkrum árum, var mikill fisk-
ur í Waterhen og Flattern vötn-
um, þó þau séu lítil, því í stað-
inn fyrir að hafa 7 net hver,
lögum samkvæmt, höfðu þeir
200 net, 50 faðma löng, og örógu
þau upp hvernig sem veður var,
og þeir höfðu einhvern “gikk”
eða “giggir”, sem þeir sendu
undir isinn og gátu með því fært
netin allan veturinn, og fiskuðu
ótrúleg feikn.
Og íslendingar hafa nú varla
haft svona mörg? spurði eg.
ó-jú, það höfðu þeir reyndar,
því þó þeir væru aðeins fjórir
eða fimm, þá höfðu þeir eina
10 Indíána, sem allir höfðu
veiðileyfi, og það gjörði 100 net,
en þeir höfðu helmingi fleiri net.
Og þegar þeir voru klagaðir,
seinni veturinn sem þeir fiskuðu
hér, fengu þeir einhvern pata
af för fiski-eftirlitsmanna, og
voru búnir að taka upp helming-
inn af netjum sínum, og þótt-
ust þurfa að hafa tvöfaldan
“stock” af netjum, svo þeir gætu
dregið ný net undir ísinn jafn-
óðum og hin gömlu slitnuðu, og
sluppu þeir alveg við sekt, og
fluttu hurtu alfarnir um vetur-
inn, enda voru þeir búnir að
tæma þessi vötn að mestu.
En þó að vatnadisin hafi heill-
að íslendinga hér i álfu, sem í
Norðurálfu, hefir skógardisin
ekki unnið ástir þeirra, og er þó
afarmikill auður í skaut hennar,
svo eg hygg að timburtekja þessa
lands sé önnur mesta auðlind
þess. Það kostar minna fé en
margur hyggur að draga auðæfi
úr skógum þessa lands, til að
mynda járnforautarbönö og
“cord”-við til pappírsgerðar. þvö
víða er gnægð af góðum við
nærri járnbraut í Norður Mani-
toba, og hefi eg séð menn draga
mikinn auð úr skógunum, og
hefi þó ekki viða farið, og vil eg
því vekja athygli íslendinga á
þessari atvinnugrein, því hún er
að öllu leyti við þeirra hæfi, hún
kostar hara dugnað og hagsýni;
viðurinn er til og markaður op-
inn fyrir hann.
Eg er nú staddur við vinnu í
einum “cord”-viðar flokk J.
Mattin félags, þeir eru að enda
við að flytja til vatns 7 þúsund
“cord” af “pulp”-við til pappirs-
myllunnar í Fort Francis, Ont.
Þeir, sem saga niður viðinn í
skóginum fá $2.50 fyrir corðið,
og Norðmenn saga vel 2 corð á
dag til jafnaðar, og það kostar
ekki meira en $1.00 að fiylja
corðið til árinnar, sem fleytir
ríðnum alveg til myllunnar í
Fort l’rancis, og taki stjórn vor
50 cent á corðið, sem viðarleyfi,
kemur corðið upp á $4.00, eða
Iitið meira, en pappírs myllan
borgar meira en 10 dollara fyrir
hvert corð af sprúsvið.
Nú hefir. þetta félag hér 8
viðartekju flokka í grend við
ána, sem rennur til Fort Francis,
og tekur í ár út, eftir því sem eg
kemst næst, 40 þúsund corð af
við til myllunnar; er það lagleg-
ur skildingur sem félagið tekur
inn þetta árið.
Þetta er enginn hégómi, það
getur hver maður séð sem vill,
viðurinn er nægur til, markað-
urinn líka, og nógir menn til að
fella hann og flytja til flóðs eða
járnbrauta, en framkvæmdar-
mennina vantar til að byrja að
vinna skógana. J. Mattin Co.
tekur 100 þúsund dala Victory
Bond árlega; hann getur það.
íslendingar ættu líka að geta
gert vel á skógarvinnu, ef þeir
aðeins snúa sér að henni og
kynna sér vel vinnuaðferð henn-
ar‘ —Ritað i Camp No. 8,
• Flander, Ont.
Sigurður Baldviusson.
i
lifa, talin eftir aldursröð eru: Anna Kristrún, gift óla
Bjarnasyni Dalsted, foúsett í Grand Forks, N.D.; Bjarni
Valtýr, kvongaður Málmfriði Kristjánsdóttur Halldórssonar,
búa nálægt Langdon, N.D.; óskar Tryggvi, kvongaður Elízu
Magnúsdóttur fsfeld (Brazilíufara), búa skamt frá Mozart,
Sask.; Guðrún Ingibjörg gift Victor Crowston frá Hailson-
bygð, eiga heima á Cando, N.D.; Sólveig Aldís gift Victor
Ásbjarnarsyni Slurlaugsson úr Svoldarbygð, formanni á
búnaðartilraunastöð ríkisins nærri Langdon, N.L.; Elín
Thorbjörg (Mrs. Nagel) til heimilis í Sacramento, Calif.
öll börn þeirra hjóna vel gefin og myndarleg. Sum af þeim
gædd góðum leikarahæfileikum.
Sigríður var bráðmyndarleg kona, bæði í sjón og á
velli; tíguleg í allri framkomu, gestrisin og glöð heim að
sækja, hvernig sem á stóð; skemtin í samræðum og hafði
ákveðnar skoðanir um öll þau almenn mál, sem hún hafði
kynt sér nokkuð til hlýtar, og gat varið mál sitt vel, ef svo
bar undir. Hún fylgdist undursamlega vel með stjórn-
málum, bæði hér og heima fyrir konu, sem hafði eins mikl-
um heimilisstörfum að gegna, en mestan áhuga bar hún
fyrir öllu, sem gerðist heima á gamla landinu, þvi þangað
stefndi hugurinn mest. Hún notaði allar mögulegar frí-
stundir til að auðga andann. Hún hafði unun af skáld-
skap, bæði í bundnu og óbundnu máli, en þó sérstaklega
öllu íslenzku af því tægi. Samt var hún umhyggjusöm hús-
móðr, ástrík móðir og fyrirmyndar eiginkona. Þetta vita
allir, sem þektu vel til, að ekki er oflof.
Þeir, sem þekkja nokkuð ítarlega til frumbýlingsáranna.
á þeim tima, sem Guðmundur og Sigríður voru að koma
upp þessum barnahóp, fara nærri um hversu mikla um-
hyggju og erfiði það útheimtir að sjá um alt, utan húss
og innan, þegar húsfaðirinn þurfti að vera í vinnu, oft og
tíðum svo langt frá heimilinu, að hann gat ekki komið
heim nema um helgar. Gegnuin alt þetta komst hún með
óbilandi kjarki og þrautseigju, þrátt fyrir fátækt og marga
flutninga aftur og fram, og svo heilsuleysi mannsins síns
síðustu 5 eða 6 ár æfi hans. En auðvitað voru þá börnin
þeirra farin að leggja þeim lið.
Sigriður Bjarnadóttir var einlæg trúkona á lúterska
vísú, þó hún væri ekki að flagga með það, fyrir hverjum
sem var, og aldrei heyrði eg hana hallmæla nokkrum þeim,
sem hún vissi að voru þó á öndverðum meið í þeim efnum,
en leitaðist við að lifa samkvæmt sinni trú.
Allir, sem þektu hana vel, munu minnast hennar með
hlýhug og þakklæti fyrir ánægjulega og góða samfylgd. Eg
á enga betri ósk til ykkar, barnanna hennar, en þá, að
minningin um hana og það sem hún lifði fyrir verði ykkur
leiðarvísir til æfiloka.
Því trú sem hennar flytur fjöll,
hún framtíð vígði spor sin öll.
Hún kveikti eld á arni nýjum,
svo auðnin bygðist vonum hlýjum,
hún vöggu nýrri valdi stað,
og vögguljóðið fyrsta kvað!
(Jakobína Johnson).
úr kvæði hennar til landnámskvenna á 50 ára afmæli ísl.
bygðarinnar í N. Dak.; Sigríður var ein af þeim.
Sigríður lézt að heimili dóttur sinnar, Mrs. Dalsted í
Grand Forks, 9. apríl 1941. Útfararathöfnin fór fram á
Mountain þann 19. sama mánaðar. Séra H. Sigmar flutti
kveðjuorð á bæði islenzku og ensku. Mrs. Sigmar söng
einsöng, “Hærra minn Guð til þin.” Miss Marian Hainilton
frá Langdon söng: “I Love to Tell the Story of Jesus and
His Love.” Mr. Jess Crowston söng: “The Old Rugged
Cross.” — Auk þess söng stór söngflokkur marga af hennar
uppáhaldssálmum. Hún hafði óskað þess að það yrði sung-
ið meira en vanalega við útför sina. Líkmenn voru Halldór
K. Halldórsson, H. J. Hallgrímson, Jón Sturlaugson, Kristján
og Jens synir Bjarna Johnson og Leonard Dalsted.
Thorl. Thorfinnson.
Gimli, Manitoba
Við hér á Gimli höfum gist
Um hálfrar aldar stand;
Hér lentu aðeins fáir fyrst,
Þeir féllu á sand og báðu Krist
Að gefa sér hér góða vist
Og gæða auðugt land.
Hallar sumri, kári kvein
Og kuldinn aukast vann.
Hér.fundust hús ei fyrir nein,
En fuglar sungu á viðargrein
Og dýrin ríktu ennþá ein
Um allan skógar rann.
Með landnema þor og þrótt
Og þrek er reynir á,
Þeir bygðu hús af bjálka gnótt,
Og býlin smá fjölguðu ótt;
Þeir veiddu fisk úr vatni hljótt
Er var þeim nærri hjá.
Engum gengur alt í vil,
Eflaust telja má.
Svo þá kom hér, þá sögn eg þyl,
Sótt og dauði um árabil;
Var og fátækt víst hér til
Er vildi fólkið þjá.
Áfram tíminn altaf rann
Og árin liðu hjá.
Þungt var ok á einvirkjann
að yrkja úr skógi reit stórann,
Og þrautseigjunni þurfti hann
Þráfalt taka á.
Nú mun Gimli nej'ð ei þjá;
Nú margt prýðir hann.
Rafurmagnið auðugt á,
Einnig skipin stór og smá,
Élli og sjúkrahælin há,
Hærri skóla rann.
Eftir liðin árin mörg
ítar munu sjá,
Að Gimli vex úr bæ í borg,
Breið og fögur sjást hér torg,
Yndið grær en eyðist sorg,
Auður safnast þá.
G. B. Jónsson,
(Betel) Gimli, Man.
Dxrtdor, Agrxetdlural Depariwunl
North-Weet Line Elevator* Association
FARMERS AND MAXIMUM
PRICE REGULATIONS
All of us are now subject to
regulations which would have
seemed imposible three years
ago. Undoubtedly we shall be
required to conform to many
more; and who will complain?
It is quite a job keeping posted
on regulations affecting lnisiness
transactions, and many farmers
must be uncertain as to their
own resposibilities when selling
tþeir own produce or buying
from others.
Farmers should know that
transactions between primary
producers of agricultural prod-
ucts, involving their own pro-
duce, are exemiit from price
ceiling regulations of the War-
time Frices and Trade Board.
Order No. 102 defines these ex-
emptions and, in ])art, reads as
follows:
“1 (a) sales, exchanges, or bar-
ters of hay, grain, seed,
seed potatoes, o n i o n
bulbs, farm implements
or repair parts, machin-
ery or repair parts, sacks,
fencing, l'ence p o s t s,
milk cans, stecklings,
nursery stock, cordwood,
fertilizers, bees, hee sup-
plies, livestock, meats,
poultry, poultry products,
farm-made dairy pro-
ducts, wool, hides and
other agricultural pro-
ducts and supplies;
“1 (b) c u s t o m-milling, seed
cleanings and other agri-
cultural services.”
\
V
The above provisions, however,
do not applv to sales, exchanges
or barters made for purposes of
resale. All resales of products
or articles are subject to max-
imum price regulations.
Innköllunarmenn LÖG6ERGS
Anuirauth, Man.........
Akra, N. Ilakota .......
Arborg, Man............
Árnes, Man.............
Baldur, Man..........
Bantry, N. Dakota ......
Bclllngham, Wasli.......
Blaine, Wash...........
Brovvn, Man............
Cavalier. N. Dakota ....
Cypress Rlver, Man.....
Dafoe, Sask............
Kdinburg, N. Dakota ..
Elfros, Sask...........
Foam Ijake, Sask.......
Garðar, N. Dakota .....
Gerald, Sask...........
Geysir, Man............
Gimli, Man.............
Glenboro, Man..........
liallson, N. Dakota ...
llayland P.O., Man.....
Hnausa, Man............
Husavick, Man..........
Ivanhoe, Minn..........
Kandahar, Sask.........
I,angruth, Man..........
DesUe, Sask............
Lundar, Man.............
Minneota, tfinii, ....„
Mountain, N. Dakota ..
Mozart, Sask...........
Otto, Man..............
Point Roberts, Wash. .
Reykjavík, Man.........
Riverton, Man..........
Seattle, Wash...........
Selklrk, Man...........
Sigliines P.O., Man.....
Svold, N. Dakota .......
Tantalion, Sask........
Upham, N. Dakota ....
VíSir, Man..............
Vogar, Man.............
Westboume, Man.........
Winnipeg Beach, Man.
Wynyard, Sask...........
...B. G. Kjartansou
...B. S. Thorvardson
.......Elías EUasson
...Magnús Einarsson
........O. Andcrson
....Elnar J. Brelðfjörð
....Ami Símonarson
....Arni Símonarson
..........J. S. GUUs
...B. S. Thorvaldson
........O. Anderson
.......S. S. Anderson
.....Páll B. Olafson
...Mrs. J. H. Goodman
.......S. S. Anderson
.....Páli B. Olafson
..........O. Paulson
........Elías EHasson
........O. N. Kárdal
........O. Anderson
.....Páll B. Olafson
Magnús Jóhannessou
.......EUas Elíasson
........O. N. Kárdal
...Miss Palina Bardal
.......S. S. Anderson
...John Valdimarson
.........Jón ólafsson,
..........Dan. Iiindal
Jfflas Palina Bardai
.....Páll B. Olafson
.......S. S. Andcrson
.........Dan. Ldndal
........S. J. Mýrdal
.........Ámi Paulson
.......Elías Elíasson
.........J. J. Middal
.........S. W. Nordal
.Magnús Jóhannesson
...B. S. Thorvardson
......J. Kr. Johnson
...Einar J. Breiðfjörð
........EUas Elíasson
..Magnús Jóhannesson
...Jón Valdlmarsson
.......O N. Kárdal
.......S. S. Anderson