Lögberg - 19.03.1942, Síða 6

Lögberg - 19.03.1942, Síða 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. MARZ, 1942 A SKARÐSHEIÐUM Á efstu brún skarðsheiðarinnar lét Dale Linden hina lafmóðu hesta sína nema staðar og stökk stirðlega niður af vagnsætinu. Þéttur furuskógurinn, sem eina erfiða míluna af ann- ari hafði svo þrálátlega teygt úr sér framan í hestana, er þeir með örðugleikum klifa sig áfram upp eftir ógreiðum veginum, tók nú snögglega enda þarna á hinni litlu hásléttu skarðsins, þótt hann þekti svo aftur snarbratta hlíðina fram undan svo langt sem auga eygði niður og út á Idaho-sléttuna. Linden teygði úr baki og handleggjum, greip af sér svitablettaðan strítukolls hring- barða-hattinn og brá fingrum gegnum gisna grálokkana, nú þvínær alhvíta, er féllu niður um eyru honum og enni. Hann var stör- vaxinn maður, við aldur og boginn um herðar eftir harðsótta og langa lífsbaráttu við jafnt sólríka sem svalaþrungna háfjallanáttúruna. Andlit hans var dökkbrúnt af sífeldri útivist og stórskorið, augun daufblá og þreytuleg undir ljósleitum brúnum, og litlaust yfirvarar- skeggið lafði niður um munnvik honum báðu megin. Hann sneri sér nú við, brá hönd sem skygni um brúnir og leit gegn upprennandi morgunsól niður um hinn víðfeðma Wyoming- dal, er inn í volduga háröð Klettafjallanna hjúfraði sig eins og djúp heiðarlaut, sem hann hafði nú með vagn sinn og hesta rétt klifrast upp úr. Skógi þakin og snarbrött fjallshlíðin blasti við augum hans af skarðsbrúninni, alt niður í dalsbotninn langt fram undan, þar sem dvín- andi húmskugginn enn lá yfir, en á marg- kvíslað og lygnt dalsfljótið glitraði sem silfur- þræði, og endurspeglaði í djúpi sínu sem í skuggsjá sólgljáandi himingeiminn hið efra. í fjarlægðinni, við vesturenda dalsins, reis hver sviprík hæðaröðin af annari og myndaði bylgjóttar fjallshlíðar, þar sem hinn dimm- úðgi og tilkomumikli skógargróður hvarf upp að fannþöktum fjallahnjúkunum, er aftur hurfu svo upp í hágeim árdegisljómans. Linden sneri sér nú aftur frá þessari djúpu og dýrðlegu skuggsjármynd og gekk áleiðis að bjálkahúsi, er við veginn stóð. Alt hið litia flatlendi háskarðsins lá umhverfis hús þetta, þar sem fjósi þess, hlöðu og hrossakví var fyrir komið í námunda hvað við anuað, því hér var miðstöð póstvagna og farangurslesta sem samkvæmt reglubundinni ferðaáætlan lögðu leið sína þarna um yfir fjöllin. Hér hvíldu keyrslumennirnir hesta sína eða skiftu um þá þegar færð var slæm að vetrarlagi; hér mættu póstvagnarnir frá járnbrautarstöðinm i austri hinum, er vestan úr dölunum komu til að skiftast á flutningi og farþegum. Hver sá maður, er um veginn fór, hinkraði hér við, þótt ekki væri nema til að heyra nýjustu frétt- irnar, því um þetta skarð lá eini færi vegurinn milli dalsins og hinnar víðáttumiklu veraldar þar fyrir utan. Er Linden nálgaðist húsið opnuðust dvrnar og maður á tveimur hækjum beið hans þar. “Hello, Billy,” sagði Linden. “Hi, Dale,” svaraði hækjumaðurinn og kall- aði svo enn um öxl sér: “Adele, komdu með kaffið.” “Eg hefi ekki tíma til að tefja neitt,” sagði Linden og sveigði höfði í átt til forugra hest- hófanna og útataðs vagns síns. “Vegar ófærðin tefur mig alt of mikið. Eg verð að halda tafar- laust áfram, eigi eg að ná járnbrautarstöðinni áður en lestin kemur þangað.” “Ó, láttu ekki svona,” sagði Billy. “Kaffið er alveg til reiðu. Undir eins og eg heyrði þig koma með stóryrðarausi út af færðinni þarna neðan veginn, sagði eg Adele að laga kaffið i skyndi.” Þeir hlóu nú báðir. “Ferðamaðurinn verð- ur að þylja hæðunum þarna meiningu sína, eigi hann að komast nokkuð áfram,” sagði Linden. “Það hefir hlotið að rigna hér efra í alla nótt.” “Já, það segir þú satt.” Billy vék sér stirðlega til hliðar, er dökkhærð, grannvaxin ung stúlka kom fram í dyrnar með kaffikönnu og bolla í höndum. Hún setti bollana á efstu dyratröppuna og fylti þá með ilmríku, heitu kaffinu. “Adele,” sagði Linden, “það er að togna úr þér, stúlka mín.” “Eg býst við því. Hvenær er von á Joan heim aftur,” “Eg er nú einmitt þessa stundina á hraðri ferð niður að járnbrautarstöðinni til að mæta henni.” Ofurlitlum titringskipp brá fyrir í öðru munnviki hinnar ungu Adele. “Heppnir. vefst um sumt fólk,” sagði hún í kergjutón, og leit til föður síns. “Mér þætti vænt um að geta klifrast niður af þessum háheiðum ein- stöku sinnum og heimsótt ókunna staði,” bætti hún við um leið og hún sneri aftur inn í hús- ið og skelti hurðinni aftur á eftir sér. “Þetta er fyrsta sinnið, tvö seinustu árin, sem Joan hefir farið austur til Salt Lake,” sagði Linden eins og í ofsökunartón. “Hún hugðist þurfa að kaupa ýmislegt. Þú veizt hvernig það er með þessa unglinga.” “Unglinga, ha? Hvað gömul er Joan nú að verða?” “Nítján í næsta mánuði, september. Nei, tuttugu ára.” Billy sötraði kaffið sitt. “Adele er tuttugu og tveggja. Joan líkist móður sinni alt af m'eir óg meir. Hár hennar er eins, og sami augna- liturinn. Hún fer nú líklega að gifta sig ein- hvern næsta daginn. Hvað er að segja um hana og Ivan Bole?” sagði Billy. Linden ypti öxlum. “Það virðist ekki nema rétt eðlilegt, að þau tengist böndum. Þau ólust upp frá barnæsku á sama staðnum.” Hann hinkraði við eitt andartak og bætti svo við: “Ivan er geðugur piltur.” “Vissulega.” Billy skotraði augum tii hjarðbóndans. “Eg heyri sagt hann hafi feng- ið smáþóknun frá stjórninni, eins og freist- ingar-bita, til þess hann gengi í samning um að selja henni alt hey sitt til fóðurs handa elgsdýra-hjörðinni hér niðri á jafnsléttu í vet- ur.” “Það hlýtur að vera enn einn af dagdraum- um Ivans. Hví, í fyrsta lagi, skyldi Ivan vilja aðhafast slíka heimsku, þar sem hjarðbænd- urnir taka líka hvort sem er alt hans hey. Og hvers vegna, í öðru lagi, skyldi stjórnin vilja ala þessi elgsdýr? Hið eina skynsamlega væri, að slátra þeim öllum. Við þurfum heysins við og bithagans líka. Þetta er hjarðland, Billy, en ekki einhvers konar dýragarður.” Billy hagræddi sér á hækjunum. “Ojá, eg skil þetta nú ekki. En maður verður að taka atvikunum eins og þau gerast; fjölgandi hjarð- verum efnaðra dundursdrengja, sívaxandx straum þessara þarna ferðalanga sér til skemt- unar, sem gaman þykir að hafa elgsdýrin altaf hér fyrir augum sér, alveg eins og þeir væri í Guiasteinsgarðinum. Eg þori að veðja um það, að vegna þess kaupa þeir líka alt heyið af Ivan.” “Þá er víst ráðlegast að við flytjum á brott héðan, það segi eg. Annað hvort er þetta dundurdrengja dalur eða hjarðbændanna land.” Linden setti frá sér tóman bollann og stóð upp af tröppunni, er hann hafði tylt sér á. “En hvað sem annars er um þetta að segja, þá verð eg að komast áleiðis, eigi eg að ná að lestinni í tæka tíð.” “Ó, seztu niður stundarkorn, Dale, svo við getum rætt ögn nánar um daginn og veginn. Þú kemur ekki svo oft upp hingað nú á dög- um.” “Eg vildi feginn geta hinkrað lengur við, Billy, en má það ekki. Eg verð að komast niður þarna að lestinni.” “Stattu þá stundarkorn hér við á heim- leiðinni.” “Það væri ágætt.” Linden sneri á burtu, veifaði losaralegri hönd og gekk hratt yfir til hesta sinna. Aftur af vagninum kastaði hann út dragkeðju, steig upp á töngina framan við vagnskassann, sem hann hallaðist upp að með strengda tauma í hönd, er hann hóf niður- förina út að járnbrautarstöðinni. ' “Nú er eg komin heim!” Joan stökk úr hárri dagvagnströppunni niður á plankatröð stöðvarinnar, setti frá sér báðar töskurnar, er hún hélt á, og hljóp á móti föður sínum. “Pabbi!” Hún greip um háls honum og þrýsti kossi á báðar kinnar hans og varir. “Ó, en hvað mér þykir vænt um að vera komin heim!” Smá gleðitár glitruðu í bláu augunum hennar, er hún slepti handtaki sínu á honum og leit upp til háfjallanna, sem hann hafði nú rétt komið niður af, til að sækja hana. “Eg er komin heim!” endurtók hún. Joan steig eitt skref aftur á bak. “Líttu á mig,” hrópaði hún. Faðir hennar tók af sér strítukollshattinn og leit vandræðalega á dótturina. “Jæja,” sagði hann í uppgerðar kæruleysistón, “hið eina sem eg fæ sagt, er það, að þú lítur býsna—” Hann þagnaði og rýndi gaumgæfi- lega í andlit henni. “Heyrðu,” sagði hann í háværum ergelsistón, “þú hefir látið mála þig eins og einhverja Indíána drusludrós.” Joan lét handleggina síga með hægð. “Þér geðjast það ekki?” “Geðjast það!” “En það er bara ofurlítil roða-móða, eins og — á öðru fólki.” “Öðru fólki! Joan, þú lítur út eins og — tildurstáta. Þegar við komum heim nær þú þér í sápu og vatn—” “Hæ-hó, hvaða þýðingu hefir alt þetta?” Kevrslumaður póstvagnsins, Jeff Welch, langur og slánalegur, nálgaðist þau glottandi út undjr eyru. Hann staðnæmdist gegnt Joan og hallaði höfði. “Til hvers gagns eru þessir hlutir?” “Til að klæðast þeim,” svaraði Joan og hló. “Undir vanalegum fötum eða utan yfir?” “Nú, Jeff, eg hélt að svona búningur gæti komið að góðu haldi við nautasmölunina!” “Sjáðu andlit hennar,” sagði Linden með hryllingssvip. “Eg var rétt að hafa orð á því við hana, að hún líktist drusludrós.” Jeff klóraði hökubrodd sinn. “Jæja, hug- myndin er ekki svo afleit, Dale. Hví vera að venja hingað aðsókn tildurslýðsins að austan, þegar við getum sjálfir alið hann upp hérna i dalnum okkar?” “Vagninn er tæmdur,” kallaði einhver. Iæstarþjónarnir voru að loka flutningsvagna hurðum, en póstpokarnir og eitthvað af varn- ingskössum voru í hrúgu á stöðvarpallinum. Eimvélarstjórinn var að snúa henni við á hring- sporinu í því skyni að halda á stað með lest- ina aftur til baka austur á leið. Þegar Jeff nú sneri burtu aftur til að hirða póstflutninginn, gekk til hans ungur maður gráklæddur og hatt- laus. “Get eg fengið far með póstvagninum upp í dalinn?” spurði hann. Jeff nam staðar og leit á manninn. “Komst þú hingað núna með lestinni?” “Já.” “Nokkur farangur?” “Nei.” Jeff vritist undra þetta. “Þú ekki með neinn farangur?” “Engan farangur. Eg er laus og slippur.” “Jæja, eg skal segja þér, að alt er undir því komið hversu þungur póstflutningurinn er. Vegurinn upp um skarðið er afarslæmur sem stendur. En komdu með mér, til að yfirvega póstpokana!” Þeir lögðu þegar á stað út eftir pallinum áleiðis þangað sem varningshrúgan lá. “Eg þarf að gæta að því, Joan, hvort nokk- ur sending til mín kom með lestinni,” sagði Linden. Hann gekk svo inn í.litla stöðvarhúsið, en Joan sá þá Jeff og unga manninn gráklædda nálgast aftur. “Heyrðu, Joan,” sagði Jeff, “þessi ungi maður er frá Chicago, hann heitir Arnold, og vill komast upp í dalinn, en eg hefi of þungt hlass allareiðu, og get ekki bætt honum á. Hann vill komast —” Jeff hikaði við og kink- aði til Joan — “út í dundursver. Eitthvert dundara heimkynni. Eg sagði honum að þið gætið kannske létt honum för upp að Bar M. Hann hefir engan farangur.” “Ja, eg veit það nú ekki,” sagði Joan eins og hálfhikandi. “Pabbi heldur að hann hafi kannske fengið einhvern flutning með lestinni. Hversu mikinn, það segir til—” Hún leit á unga manninn. Hann var hár og herðabreiður, með úfið hár og horfði nú góðlyndislega til hennar. “En eg held við getum — eg er viss um —” Hún leit út eftir pallinum. “Þarna kemur pabbi.” Linden kom nú til þeirra. “Pabbi,” sagði Joan, “þetta er Mr. —” “Arnold, Philip Arnold,” bætti ungi mað- urinn við og sneri sér að Linden. “Eg reyndi að fá far með póstvagninum, en var nú að hugsa —” “Eg hafði of mikinn farangur,” greip Jeff fram í eins og til frekari skýringar. Linden leit með óánægjusvip á Philip, “Eg hefi líka of þungan flutning,” sagði hann, leit á Joan og bætti við: “Keyrðu vagninum upp að vörubyrginu þarna. Eg þarf að taka þar út kassa með kornskurðarvélapörtum í.” “Mér þykir þetta mjög leitt,” sagði Joan og leit yfir til vörubyrgisins. “Ef til vill gætið þér hjálpað pabba við að koma vélarpörtunum út í vagninn?” “Það er ágæt hugmynd,” sagði Philip. “Þökk fyrir — bendinguna.” Hann gekk yfir að byrginu, en Joan kom afturenda vagnkassans fyrir upp við það sam- kvæmt beiðni föður síns. “Ef til vill gæti eg rétt yður hjálparhönd við að koma þessu út í vagninn?” mælti Philip. Linden leit fyrirlitlega til hans. “Þú gætir óhreinkað á þér hendurnar, eða fengið á þær rispu. Nei — eg þakka.” “Eg get varist því,” svaraði Philip og lagði hönd á kassann. “Ýtið honum nær mérsagði hann svo. Linden hikaði sig eitt augnablik, en lagði þá öxl að kassanum og þeir hjálpuðust þannig að við að velta honum varlega á hlið- ina. “Einu sinni enn,” sagði Philip. Þéir settu kassann aftur upp á endann og veltu hon- um enn á hliðina, mjökuðu honum svo áfram þumlung af þumlungi þann spottann, sem eftir var að vagninum og niður í hann. Philip rétti svo út hendurnar. “Sjáið nú til, eg fékk enga rispu á þær, og jafnvel enga óhreinkubletti.” Svo bjóst hann til að fara sína leið. “Staldrið við eina mínútu,” sagði Joan. Philip nam staðar, en hún leit til föður síns og sagði um leið: “Hann hjálpaði þér við að koma þunga kassanum út í vagninn, pabbi.” Svo leit hún aftur til Philips og sagði enn: “Við léttum yður förina.” “Linden leit stirðlega við. “Komdu þá upp í vagninn,” urraði hann. Philip stökk niður af stöðvarpallinum og fór upp í afturenda vagnsins. Þar settist hann á vélparta-kassann. 1 tvær klukkustundir keyrðu þau áleiðis upp eftir brattalitlum og hrjóstrugum vegin- um. En þegar skógiklædd fjallshlíðin reis snarbrött fram undan þeim eins og veggur, nam Linden staðar framan við skriflislegt og stormi lúð timburhús. Joan sneri sér gagnvart Philip og mælti: “Þetta er O’Briens hressingarstöðin. Hér er framreidd hraðbúin skyndihressing. Viljið þér fylgjast hér inn með okkur?” “Eg hefði ekkert ógeð á dálitlum bita,” sagði Philip. Svo stökk hann út úr vagninum og fylgdist á eftir þeim inn í húsið. Þar inn- an veggja var algeng verzlunarbúð ásamt póst- afgreiðslu og skyndibita-langborði. Þar keyptu þau sér kaffi og tvær samfeldar brauðsneiðar með saltkjötsflísum og smjöri á milli til smekkbætis. Þegar þau komu aftur út eftir hressing- una, sagði Linden: “Þér er bezt, Joan, að sitja líka þarna aftur í vagninum. Það er mikil for á veginum fram undan, og þegar hestarnir fara að skriðka til í aurleðjunni slettist hún upp um þig alla. Þar sem þú hefir nú þetta nýmóðins þing á andlitinu—” “Góði pabbi! Hér er eg nú að koma heim—” “Jæja-þá, elsku barnið,” sagði Linden hlæjandi. Hann lagði handlegg þvert um axlir hennar, þrýsti henni innilega að sér, og kysti hana blíðlega á ennið. Annar Kapítuli Þau fóru svo öll upp á vagninn, Linden í sætið en Joan og Philip komu sér fyrir á kassanum, þar sem seturúm var svona rétt nógu breitt fyrir tvo farþega. Er Linden svo keyrði út á veginn litu þau hvort til annars með bros um varir. “Það var vissulega vel gert af yður að út- vega mér þetta far,” sagði Philip. “Verði það yður að góðu. Eg vona að yður geðjist dalurinn okkar.” “Er hann fallegur?” “Það finst mér. En svo er hann auðvitað heimaból mitt, og mér myndi líklega þykja unaðslegur hvaða staður er væri, þar sem eg hefði alla æfina átt heima. Mér væri sama þótt eg færi aldrei út héðan aftur.” “Eg vildi feginn geta hugsað þannig um einhvern verustað minn.” “Ef til vill lærist yður það. Eg býst við þér dveljið hér í dalnum fram í lok dundurs- vera árstíðarinnar. Þeirra er nú ekki langt að bíða.” “Það veit eg nú ekki, og hefi enga fasta íerða-áætlan Eg var bara að reika um í Chicago mér til hressingar, kom þá að járn- brautarstöð, fór um borð í lestina þar og er nú svo kominn hingað.” Joan leit framan í hann. “Eruð þér að gera spaug að mér?” “Alls ekki. Verkið sem eg var við gekk eitthvað erfiðlega, svo eg fór út til að fá mér frískt loft. Þetta var klukkan fimm að morgni, er eg rakst á stöðina, og duttu þá í hug lesta- ferðir, svo eg afréð þegar að fara eitthvað burtu með járnbrautinni. Næsta lestin var á vesturleið.” “Það skil eg. En samt sem áður er þetta langt úr vanaleið. Maður verður að skifta um lestir á svo langri ferð. Hvernig í ósköpunum rákust þér — hingað?” “Yður finst kannske nú aftur að eg geri spaug að yður.” “Nei, það finst mér ekki.” “Jæja þá. Eg yfirvegaði uppdrátt, er hékk á vegg stöðvarinnar, og tók þar eftir járn- brautargrein, sem hér endaði. Mér virtist því að hér myndi ákjósanlegur staður til að' lenda í ” Svipurinn á andliti Joan lýsti undrunar- kend. “Þér hljótið — þér hljótið að vera — reikull í ráði.” “Vitskertur, meinið þér.” “Eg bið afsökunar,” sagði Joan. “En eg er því óvön, að ræða við fólk, sem tekur sér far á járnbrautarlest vegna þess það rekst á stöðvarhús og kemur svo jafnvel berhöfðað alla leið hingað, af því það yfirvegaði brautar- uppdrátt á skrifstofuvegg. Þegar við hérna ætlum að ferðast eitthvað, bollaleggjum við um það svo árum — eða að minsta kosti mán- uðum saman. Og úr helmingi þeirra ráða- gerða verður svo kannske aldrei neitt.” “Og eg er ekki heldur því vanur að hitta fvrir fólk yður líkt.” Joan leit í gaupnir sér, er hún svaraði: “Við hér hljótum að virðast yður undarlegt fólk.” “Nei. Það er nú einmitt alt öðru nær. Eg er því óvanur, Miss Linden, að hitta fyrir fólk, sem er með fullu ráði.” “Miss Linden,” sagði Joan; “Miss Linden.” “Er það ekki hið rétta nafn yðar?” “Ójú, það geri eg ráð fyrri, en það er í fyrsta sinni á æfi minni, sem eg hefi heyrt það nefnt. Ef nokkur hér heyrði yður ávarpa mig þannig, myndi hann hlæja að því. Eg heiti Joan.”

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.