Lögberg - 19.03.1942, Page 7

Lögberg - 19.03.1942, Page 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. MARZ, 1942 7 ywwwwwwwvywwvvwvvwwwwwwvvwvyyvv | \erzlunarskola I NÁMSSKEIÐ Það börgar sig fyrir yður að leita upplýsinga á skrifátofu Lögbergs, við- víkjandi námsskeiðum við beztu verzlunarskól- ana í Winnipeg . . . Veitið þessu athygli i nú þegar/ VAAMMAM*AAAAMAAAAAAAAM*AAAMMA*MWM*M/'' Loftur ríki Guttormsson Eftir Jóhann Sveinsson cand, mag. AUÐUR, ÁSTIR OG SKÁLDSKAPUR Flestir eða allir íslendingar, sem komnir eru til vits og ára, kannast við Loft ríka. En það er líka lítið meira en nafnið eitt, °o Það jafnvel hjá þeim, er bezl vita. í blámóðu aldanna hillir hann uppi, auðmanninn mikla, volduga höfðingjann og skáldið, sem kvað ekkaþrungin harmljóö og mansöngva til ástmeyjar sinn- ar, sem hann mátti ekki njóta. Ganga sögur miklar af auði Lofts og rausn, en flest, sem fyrri alda sagnaritarar herma frá æfi Lofts, eru munnmæii ein, enda ritað tveimur öldum eftir dauða hans. Eru allar þessar sagnir um Loft sundur- lausar og ónákvæmar og erfitt að hafa hald á þeim. Eigi að síður hafa nokkrir sannleiks- molar geymst í þeim, þótt margl sé þar málum blandað. Það mesta og elzta af því tagi er að hafa hjá Jóni Gisurarsyni á Núpi í Dýrafirði í ritgerð hans um siðaskiftin, tíirni á Skarðsá i Skarðsárannál og Jóni Egilssyni í Biskupsannálum. Nú síðast hefir dr. Jón Þorkelsson dregið saman það helzta, sem vitað verður um Loft í Kvæðasafni bmf. Annað er lítið vitað um æfi Lofts, nema það, sem ráða má aif annálum og fornbréfum. En slíkar heimildir eru jafpan magr- ar og sýna aðeins ytra borð mannsins, en ekki persónuleika hans eða skaphöfn, nema hvað endrum og eins kann að vera hægt að skygnast undir yfir- borðið og fylla í eyður stað- reyndanna. Vafalaust hefir Loftur verið mestur auðmaður á sinni tíð á íslandi. Jón Gissurarson lætur wjög af rausn hans og höfðings- skap. Sagt er að hann hafi haft um sig sveinahirð mikla og riðið jafnaðarlega með tuttugu sveina, að sjálfsögðu vopnaða, milli búa sinna. En jarðeignir voru mikl- ar og höfuðból mörg. “Einka hofgarð sinn hélt hann á Möðru- völlum” í Eyjafirði. Björn á Skarðsá segir í annálum sínum, að Loftur ætti áttalíu stórgarða, °g víst er um það, að hann átti geysimörg stórbýli. Skal hér aðeins nefna stórbýlin Möðru- velli og Lögmannshlíð í E^yja- iirði, Sjávarborg í Skagafirði, Másstaði og Ásgeirsá í Húna- vatnsþingi, Njarðvík og Ketils- staði á Austurlandi, Mörk og Efra-Dal undir Eyjafjöllum og Skarð. Staðarhól og Flatey fyrir austan. Auk þess hafði hann Sauðanesstað um stund að léni af Jóni Vilhjálmssyni Hóla- biskupi. Af gjafabréfi til laun- sona sinna og af skiftabréfinu eftir hann og konu hans, en bréf- in eru bæði prentuð í ísl. forn- Tiréfasafni, sézt hvílíkt feikna jarðagóss og lausafé hann átti. Þremur launsonum sínum gefur hann til sainans 9 hundruð hundraða í fasteign, en eftir lát þeirra hjóna fá skilgetnir 'synir hans IÍV2 hundrað hundraða i fasteign hvor, 2 hundruð hundr- aða i virðingarfjám og 72 hundr- uð i smjöri, en dætur hans tvær skilgetnar fengu hálfu minna en hræðurnir. Var því engin furða þótt hann hlyti viðurnefnið hinn Öki. Ríkur þýddi raunar í fornu máli voldugur, en Loftur fór ekki með meiri veraldleg völd en margir aðrir um hans daga. Að hkindum er því orðið “ríki” í merkingunni auðugur. Hitt er annað mál, auðnum fylgir ávalt vald, eins og sjá má á vorum dögum, enda hafa merkinga- skiftin í orðinu orðið þess vegna. En þrátt fyrir auð sinn varð hann ekki gæfumaður ineð öllu, að þvi er háttalykill hans sýnir og siðar verður vikið að, og sagnirnar segja, að hann hafi dá- ið í aumu koti, og verður einnig minst á það síðar. Jón Gissurarson getur þess, að Loftur hafi þjónað Noregskon- ungi með fjóra sveina (Eiriki af Pommern) og verið dubbaður til riddara af honum, og “færði eftir það fálka á blám feldi” og til- færir vísu eftir séra Ólaf Hall- dórsson á Stað í Steingrímsfirði, er lifði um og eftir aldamótin 1600: Færði hannt í feldi hlá fálkann hvíta skildi á. Hver inann af því hugsa má hans muni ekki ættin smá. Nú er það vitað, að Loftur hafði ekki fálka, heldur högg- orm í innsigli sínu. Skal nú vikið um siyn að því, sem sannsögulega er vitað um Loft. Hann var stórættaður í báðar ættir. Faðir hans, Gutt- ormur Ormsson, sonur Orms lög- manns Snorrasonar á Skarði, var kominn í beinan karllegg af hin- um fornu Skarðsverjum. i móð- urætt var hann kominn af hin- um nafnkunnu Möðruvellingum í Eyjafirði. Ekki er fæðingarár hans þekt, en varla er hann fæddur miklu eftir 1380, en þó líklega nokkru fyr. Heimildir benda til, að hann hafi verið utan 1403 og þar í kring. Árið 1406 getur hans aftur í bréfum. Síðan finst hans ekki getið þar fyr en 1414, og er líklegt, að hann hafi þá einnig verið er- lendis. Er trúlegt, að hann hafi í annaðhvort þetta skifti veriö við hirð Eiriks konungs af Pom- mern, sem þá var konungur yfir öllum Norðurlöndum. Á unga aldri var hann sveinn eða ráðs- maður auðugrar ekkju, Guðrún- ar Haraldsdóttur, er gaf honum Efra-Dal í þjónustulaun. Lofti tæmdust arfar miklir eftir for- eldra sína og frændur. Virðast margir frændur hans hafa látist um 1403, líklega í svarta dauða. Loftur mun lengstum hafa setið á Möðruvöllum, en líklega eitl- hvað á Skarði. Hann hefir ver- ið friðsamur og óhlutdeilinn og ekki auðgast á yfirgangi eins og þá var títt, en engum hefir þótt fýsilegt að leita á hann. Hirð-. stjóri var hann norðan og vestan á íslandi 1427, þegar Guðmund- ur Arason á Reykhólum fór með ránum og óeirðum um Húna- vatnsþing, og sýnist Loftur ekki hafa aðhafst að hnekkja yfir- gangi hans. Virðingar mikillar hefir Loftur notið, og þar sem hann er dómsmaður eða gjörn- ingsvottur, er hann efstur leik- manna og stundum á undan klerkum. Loftur kvæntist Ingi- björgu, dóttur Páls Þorvarðsson- ar á Eiðum, og gat með henni mikið fé, meðal annars sjálf- sagt höfuðbólið Eiða. Hann var vinur mikill Jóns Vilhjálmsson- ar biskups á Hólum, og var ráðs- maður Hólastaðar 1430 — 1431, en slíkt starf þótti þá hinn mesti vegsauki. Loftur og kona hans létust bæði árið 1432. Það, sem einkum hefir gert sagnirnar um æfi Lofts, eru ástir hans og Kristínar dóttur Odds lepps lögmanns, og við henni gat hann að minsta kosti þrjá sonu, Skúla, Sumarliða og Orm. (Stundum er og ólafur launson- ur hans talinn sonur Kristínar, en hann mun hafa átt annað móðerni). Um hitt er minna vitað, hvernig sambandi þeirra var háttað. Loftur orti til henn- ar háttlykil sinn hinn dýra, en litlar upplýsingar gefur hann um þetta. En sjálfsagt hefir Kristín og ást Lofts til hennar valdið til- urð kvæðisins, svo að íslenzkar bókmentir eiga henni þannig mikið að þakka, og óvíst er, að Loftur hefði annars mikið ort, þvi að engin önnur kvæði verða honum með vissu talin. Jón Gissurarson segir, að Loft- uV hafi búið með Kristínu á Möðruvöllum, þau hafi unnast í “líf og fjör, en máttu þó ei eign- ast, því að. þrimennings mein- bugir voru á með þeim.” Hann segir enn fremur, að Loftur hafi látið Kristínu kjósa sér mann, og hafi hún valið svein hans, er Höskuldur hét, og yrði Lofti þá að orði: “Kjörvilt varstu nú, Kristín. Eg meinta þú myndir kjósa mig.” Þá getur og Jón þess, að Loftur kvæði til Kristín- ar og sendi henni visur með allra handa bragarháttum, nokkrar i hvert sinn, er fundist hafi á honum dauðum. Björn á Skarðs- á segir, að Loftur “hélt frekt við” Kristinu Oddsdóttur “að konu sinni lifandi.” Hann segir og, að til Kristinar hafi hann ort háttalykil hinn dýra. f Eyjafirði hefir gengið einkennileg og fög- ur munnmælasögn, sem Pálmi Pálsson irlentaskólakennari hef- ir skrásett. Aðalefni hennar er þetta næsturn orðrétt: Loftur ríki fór endrum og sinnum skreiðarferðir suður á land eða í öðrum erindum, því að víða átti hann ítök og eignir. Var þá farinn Eyfirðingavegur eða Vatnahjallavegur. Lá vegur- inn upp úr vestanverðunr Eyja- fjarðardal. Lá leið hans þá fyrii ofan garð á Tjörnum, þar sem Kristín Oddsdóttir vinkona hans bjó með Höskuldi manni sínum. Var hann þá vanur að ríða heim, hvort sem hann fór suður eða norður um, og sat löngum á tali við Kristínu, en manni hennar þótti slíkt við of og mátti ekki ráða bót á þessu fyrir ríki Lofts og vilja konu sinnar. Einu sinni sem oftar var Lofts von að sunn- an. Það var snemma á túna- slætti. Einn morgun árla voru karlar að verki að Tjörnum. Sjá þeir lest mikla fara ofan í dal- inn og þykjast vita, að þar muni vera þeir Möðruvellingar. Kemur þá Höskuldi til hugar að leika á konu sina og “launa henni lambið gráa.” Gengur hann þegar inn að hvílunni, þar sem kona hans svaf, og vekur hana. Spyr hún hann þá, hvað sé um að vera, hvort Loftur væri sunnan kominn. “Hann er nú riðinn um garð með sveinum sínum og sendi þér enga kveðju,” svarar Höskuldur. En er hún heyrði þessa harmsögu, hné hún aftur í sænginni og var örend. Litlu síðar kemur Loftur og vill hitta Kristínu. En er hann frétti tíðindi þessi, hélt hann leiðar sinnar. Fékk alt þetta honum svo mikils, að hann komst eigi nema út fyrir Núpufellsá. Þar varð hann að stíga af hestinum, og báru sveinar hans hann dauð- vona heim á leið til Möðruvalla, en komust ekki lengra en í Fjósakot. Þar andaðist hann samdægurs. Það er auðséð, að þessi hugð- næma og angurblíða saga er sprottin upp af rómantík mið- aldanna. Á miðöldum fyr og síðar þekkjast áþekkar sagnir og má þar minna á sögnina um Tristan og ísold hina björtu, sem varð skáldum í Evrópu drjúgt yrkisefni, og er til kvæði um þá sögu á íslenzku (Tristrams- kvæði). En sjálfsagt geymir saga þessi, sem varðveitst hefir meðal afkomenda Lofts í Eyjafirði, mjög gömul munnmæli. Hún kemur lika vel heim við það, sem elztu sagnaritarar segja um Loft, en er fyllri. Björn á Skarðsá segir, að Loftur dæi í slæmu koti, sem er eflaust sama kotið og munnmælasögn þessi segir að verið hafi Fjósakot. Er það hjáleiga frá Möðruvöllum. Af orðum Jóns Gissurarsonar, þar sem hann segir, að vísurnar hafi fundist í treyjuermi Lofts að honuin látnum, má ætla að ekki hafi hann andast á sóttar- sæng og heldur hafi orðið snögt um hann. Líklegt er að Loftur hafi búið með Kristínu, þar sem hún ól honum svo‘ mörg börn, en Iík- legra er, að það hafi verJð á Skarði og hann hafi kynst henni vestan lands, þvi að þar var ætt hennar. En hins vegar eru líkur fyrir því, að hún hafi ilenst i Eyjafirði og búið þar með Hös- kuldi bónda sínum. I ættartöl- um er þess getið, að þau hafi búið á úlfá, sém er suður yfir af Tjörnum, hinum megin Eyja- fjarðarár. Getur hér verið mál- um blandað, og er líklegra, að þau hafi búið á Tjörnum, sem er miklu betri jörð. En Kristín var auðugra manna, og talið er, að Höskuldur ætti 2 hundruð hundraða, er hann féklt hennar, og hefir hann hlotið að vera góðrar ættar að fá svo ættstórr- ar konu, sem Kristín var. Hefir þess verið getið til, að bóndi hennar væri Höskuldur Runólfs- son á Bakka í öxnadal og í Gnúpufelli. Þessi Höskuldur er hinn mesti trúnaðarmaður barna Lofts. Loftur hefir lniið með Kristinu og átt með henni öll börnin, áður en hann kvæntist Ingibjörgu, enda virðast þau börn nokkru eldri en skilgetnu börnin. Að líkindum hefir þetta verið fyrir 1406 og er trúlegt, að Kristín hafi verið Höskuldi gefin, meðan hann dvaldist er- lendis. Hvers vegna kvæntist Loftur henni ekki? Ekki gat ætt né auður staðið í vegi fyrir hjónalbandi þeirra. Þau máttu teljast jafnborin. Jón Gissurar- son segir berum orðum, að þay væri þrímenningar. Ekki verð- ur sá skyldleiki nú sannaður og ekki heldui' afsannaður. Verður því að láta það liggja á milli hluta um sinn. Loftur segir sjálfur: Meinendur eru mundar mínir frændur og þínir. Það verður ekki öðruvísi skil- ið en frændur þeirra (ef til vill frændsemi þeirra?) stæðu á inóti ráðahagnum. En hvað skyldu frændur þeirra hafa haft á móti hjónabandi þeirra? Slík- ur ráðahagur var báðum ættun- um til trausts En ef þrimenn- ings meinbugir hafa verið með Lofti og Kristínu, þá er ekki ó- líklegt, að frændur beggja hafi sætt færi og gift Kristinu að Lofti fjarverandi, til að skirra frekari vandræðum. Að vísu voru barneignir þeirra Lofts saknæmar, en því var um að gera að stía þeim sundur áðui en enn ver færi. En um þetta verður ekkert fullyrt. Það er grunur minn, að háttlykillinn eða mikið af honum hefði aldrei kveðinn verið, ef þau Loftur og Kristín hefðu fyrirhafnarlaust hafnað í hjónasænginni. Mikið af háttalyklinum er auðsæilega ort eftir að hún er gift. En það er mjög sjaldgæft að fornu og nýju, að menn kvæðu um kon- ur sínar, og í riddarabókinentum miðaldanna mun það ekki þekkj- ast. Loftur ríki er frægasta skáld íslendinga á 15. öld og raunar um langt skeið einn af verald- legum skáldum* sem að nokkru getur, að undanteknum rímna- skáldum. Ekki hefir annað varð- veitst eftir hann en háttalykill sá, er hann orti um Kristinu. Raunar eru háttalyklarnir tveir, hinn skemmri og hinn meiri. Er örugt, að hann hefir ort hátta- lykil hinn skemmra, og raunar mjög líklegt, að hinn meiri sé einnig eftir, en hér verður, þeg- ar talað er um háttalykil Lofts, átt við hinn skemmra. Er kvæði þetta ort með ýmsum háttum. Er því mjög líklegt, að hann hafi sent henni kvæðið smám saman, eins og Jón Gissurarson segir. En hann telur, að visurnar eigi að vera tiu tigir. Nú þekkjast ekki nema níutíu vísur. Það er líka auðséð, að visurnar eru ekki allar ortar á sama tíma og eru því tækifærisljóð. f sumum þeirra leitast hann við að ná ást- um hennar. Berlega kemur fram í öðrum, að Kristín er gift, og sé Lofti lítill þokki á því. Yfir- leitt dáir hann Kristínu mjög og harmar að fá ekki að njóta hennar. Merkilegt er það, að Loftur yrkir ekki kvæði sitt undir léttum háttum, t. d. hátt- um dansa og helgikvæða. Dans- kvæði og helgikvæði með léttum háttum og næstum rímlaus, frumort og þýdd, flæddu þá yfir landið. Er hætt við, ef hin nýju útlendu áhrif hefðu við- námslaust fengið að ryðja sér til rúins, hefði íslenzk tunga og ljóðagerð aldrei borið barr sitt eftir það. En Loftur velur rekna fornhætti. Kvæði hans er að efni náskylt riddararómantík mið- aldanna, en byggingarlagið er alt ramm-íslenzkt. Hann er þvi merkilegur varði á leið íslenzkr- ar ljóðagerðar á myrkustu öld- um fslands. Enda þótt hann yrki um ástmey sina eru hæftirnir honum svo mikils virði, að hann hikar ekki við að gera sumar vísur sinar að næstum tómri endileysu til að ná dýrum og réttum hætti. Vitandi eða óaf- vitandi, líklega vitandi, kallar hann fram hætti fornskáldanna tii að leiða þá til sætis á virðu- legan bekk. Kvæði Lofts er injög misjafnt að gæðum. Mörg brot úr vísum eru gullfögur og spakleg, Minna er af heilsteyptum, góðum vís- um, þótt margar séu mætavel kveðnar. Frægus.t þeirra hefir þessi vísa orðið; Kyssumst, kærán, vissa, kemur ein stund, sú er meinar, sjáum við aldrei síðan sól af einum hóli. Meinendur eru mundar mínir frændur og þínir. öllum gangi þeim illa, sem okkur vilja skilja. Ivvæði Lofts sýna mann, er stendur föstum fótum í inn- lendri menningu með fornan menningararf að baki, hefir kynst erlendri menningu, en vill ekki kasta innlendum verðmæt- um fyrri útlent glingur. —ýJólablað Alþhl.) —Góði, vertu ekki að hæla þér fyrir hugrekki. Þú réttir upp hendurnar eins og hinir, þegar ræningjarnir réðust á okkur. Já, en eg krepti hnefana! • Hún:—Einu sinni sagðir þú, að eg væri þér allur heimurinn. Hann:—Eg hefi lært mikið i landafræði, síðan eg sagði það. • —Hefir þú heyrt þá nýjustu um Skotann? Hann var svo nískur, að hann tók orð sín aftur. PCINTING . . . is really a personal service Most customers have their own ideas and thoughts which they want expressed with the aid of printers type, ink and paper. We believe our service will please your fancy better than the average. You are invited to test it out. CCLLHEIA I I LU LIMITED PHONE 86 327 695 SARGENT AVENUE, WINNIPEG

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.