Lögberg - 26.03.1942, Page 1

Lögberg - 26.03.1942, Page 1
55. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. MARZ, 1942 NÚMER 13 Flytur ræðu um Rússland Dr. Anna Louise Strong, ame- rísk kon* að uppruna, en gift rússneskum landbúnaðarsérfræð- ing, flutti ræðu í Women’s Canadian Club á Fort Garry hótelinu á laugardaginn var; hún sagðist vera sannfærð um það, að Rússar myndi litla sem enga tilraun gera til tæss að loknu stríði, að beita áróðursstarfsemi til 'útbreiðslu kommúnismans með öðrum þjóðum; þeim væri fyrst af öllu umhugað um það, að búa að sínu, og halda áfram i næði umbótaviðleitni sinni. Dr. Strong lét þess getið, að um þess- ar mundir væri i vesturhluta Rússlands, pólskur, vel æfður her, er næmi 100,000. “Fyrir hvað er þessi her geymdur?” spurði Dr. Strong; hún svaraði sér sjálf á þessa leið: “Að sjálf- sögðu er þessi pólski her ætlað- ur til innrásar á Pólland.” Flugárás á brezka hafnarborg Nazistar hafa ekki gert skæðai flugárásir á brezkar borgir síðan síðastl. maí, en á þriðjudagsnótt- ina vörpuðu þeir sprengjum i kilukkustund á borg við suð- austurströnd Englands og ollu allmiklu tjóni. Ekki er talið liklegt að Þjóðverjar muni hefja á ný næturárásir i eins stórum stíl og fvrir ári síðan; þeir eru of önnum kafnir á austur-víg- stöðvunum, en með þessari árás oru þeir sennilega að gefa Bret- um til kynna, að ennþá sé Bret- land ekki óhult fyrir sprengju- flugvélum þeirra. Queen’s Canadian Fund Sjóður sá, sem undir nafni þessu gengur, hefir bækistöðvar út um alt brezka veldið, og er úr honum veitt fé til líknar þvi fólki, sem orðið hefir harðast leikið af völdum sprengjuárása úr lofti; hefir sjóður þessi þegar unnið ómietanlegt gagn; en mik- il nauðsyn er á, að sjóðurinn stæklti, iþví telja má víst, að kröfurnar um aukin fjárframlög fari vaxandi jafnt og þétt. Margt smátt gerir eilt stórt; smátillögin draga sig saman. Tillög sendist Royal Trusl Gompany, 105 St. James St., Montreal, eða útibúum þess í öll- um helztu horgum landsins. Liberalar vinna aukakosningar Síðastliðinn mánudag fóru fram fjórar aukakosningar til ifylkisþingsins í Quebec, og lauk þeim öllum með ákveðnum sigri fyrir Liberalflokkinn undir for- ustu Adelard Godbout. Á móti frambjóðendum Liberala sóttu i kjördæmum þessum öllum, á- hangendur Union Nationale, eða flokksins, sem Duplessis fyrrupi forsætisráðherra sællar minning- ar eitt sinn stofnaði; töpuðu þeir allir að einum undanskildum, tryggingarfé sinu. Ellefu óvinaskipum sökt Á mánudaginn smugu 4 brezk- ir kafbátar upp að strönd ítaliu þrátt fyrir tundurdufl og aðrar neðansjávargildrur. Þar fundu þeir ítalska skipalest, sem var á leið til Lybiu með flutning og liðsauka fyrir Rommel. Þeim tókst að sökkva 11 skipum; tvö af þeim voru kafbátar. Bnezku kafbátarnir komust til baka til stöðva sinna heilu og höldnu. ATSÓKN GEGN BURMA Að þvi er síðustu fregnir herma, hafa Japanir hert mjög á sökn sinni í Burma; einkum standa yfir mannskæðar orust- ur eitthvað um 'sjö mílur suður af Toungoo, en sú borg hefir mikilvæga, hernaðarlega þýð- ingu; hafa á stöðvum þessum illvígar loftárásir verið daglega háðar, og hafa Japanir tapað margfalt fleiri loftförum en hin- ar sameinuðu þjóðir, er vörn- inni halda uppi. FRÁ LYBIU Síðustu ifregnir þaðan herma, að í aðsigi muni vera sókn all- mikil af hálfu Þjóðverja austur þar; er líklegt talið, að þrátt fyr- ir stórkostliegt skipatjón í Mið- jarðarhafinu, muni Þjóðverjum og ítölum engu að síður hafa lánast, að koma auknum her- styrk inn á Lybiu. Kafbálar Bandaríkjanna Sökkva Sex Japönskum Skipum Samkvæmt fregnuin frá Wash- ington á þriðjudaginn, söktu amerdskir kafbátar sex japönsk- um skipum i námunda við jap- anska landhelgi; fimm þessara skipa voru allstór kaupför, en eitt þeirra herskip miðlungs- stærðar. Merkur stjórnmálaforingi látinn J. S. Woodsworth Eins og frá ler skýrt á öðrum stað hér í blaðinu, lézt hinn mik- ilhæfi foringi C.C.F. flokksins, og þingmaður fyrir Mið-Winni- peg kjördæmið hið nyrðra, i Vancouver-borg síðastl. laugar- dag. Islenzk 10 farþega flugvél örn Johnson flugmaður, fram- kvæmdarstjóri Flugfélags Islands hefir fest kaup á stórri farþega- flugvél í Ameríku, fyrir félagið. Tók örn við vélinni í gær. Blaðamenn voru í gær kvadd- ir á fund Bergs G. Gíslasonar, formanns Flugfélagsins og Sig- urðar Jónssonar flugmanns. Skýrðu þeir frá að borist hefði skeyti um þessi flugvélakaup frá Erni, en hann dvelur nú í New York. Flugvélin er tveggja hreyfla “Beechcraft”-vél og getur tiekið alt að 10 farþega á styttri flug- leiðum. Vélin er lítið eitt not- uð, en örn kemst svo að orði i skeyti sínu, að flugvélin sé hin ákjósanliegasta. ókleift var að festa kaup á nýrri ífugvél, þar sem verð er komið upp úr öllu valdi sökum ófriðarins og sívax- andi dýrtíðar. Um verð á þessari flugvél er ekki hægt að segja að svo stöddu, en gera má ráð fyrir, að það verði nokkuð hátt, að minsta kosti á okkar mælikvarða. Á 1 klst. til Akureyrar Flugvél þessi verður aðallega notuð í ferðum milli Reykjavík- ur og Akureyrar og væntir félag- ið, að innan skamms bætist við viðkomustaðir á Austurlandi og Suð-Austurlandi. Venjulegur flughraði vélarinn- ar ler um 315 km. á klukku- stund. Mun ferðin milli Akur- eyrar og Reykjavíkur taka um 1 klukkustund. Hraði flugvéla þeirra, sem félagið á nú, er miklu minni, sem kunnugt er, eða um 185 km. á klukkustund. Vélar af þessari tiegund, sem hin nýja íslenzka vél hafa mikið verið notaðar til farþegaflugs i Kanada og víðar og gefist mjög vel. —Erfitt er að svo komnu að lýsa iflugvélnni Þó skal þess getið, að flugvélin er svo að segja eingöngu smíðuð úr málmi og er gert ráð fyrir sætum fyrir alt að 10 farþega, ef um styttri flug er, að ræða. Hreyflar eru smíð- aðir af sömu vierksmiðju og þeir sem fyrir eru, en eru lítið eitl stærri. Þrjár flugvélar Það er ekki nokkur vafi á, að framtíðarsamgöngur hér á landi munu byggjast á fluginu. Flug- Reykjavík er skuldlaus bœr Skuldlausar eignir um 27 miljónir króna Fimtudaginn 8. janúar var fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæj- ar afgreidd í bæjarstjórninni. Bjarni Benediktsson borgar- stjóri gerði grein fyrir fjárhags- afkomu bæjarins í ítarlegri ræðu, sem bæjarbúar hefðu allir átl að heyra. Það kom i ljós, að fjárhagur bæjarirts hefi.r batnað svo mikið síðustu tvö ár, að skuldir bæjarsjóðs eru að heita má úr sögunni. Skuldalusar eignir bæjarsjóðs voru í árslok 1939 samtals kr. 20,994,000. En i árslok 1940 voru eignirnar orðnar kr. 23,- 405,000, og munu nú vera ná- lega 27 miljónir króna. í árslok 1939 voru skuldir bæjarins kr. 7,405,000. Af því voru lausaskuldir kr. 3,590,000. En tveimur árum síðar voru skuldirnar kr. 5,700,000, en kr. 1,700,000 greitt af skuldunum á þessu tímabili. Upp í skuldirn- ar á bæjarsjóður nú um áramót- in i reiðufé kr. 3,400,000, en hjá ríkissjóði um eina miljón, sem er meðal annars hluti bæjarsjóð.s af stríðsgróðaskatti, loftvarna- kostnaði o. fl. og töluvert fé hjá brezku stjórninni, 2—300 þús. Skuldir bæjarsjóðs umfram reiðufé og tryggar kröfur eru því nú um ein milión. en 700 þús. krónur af skúldunum eru við sjóði bæjarins, svo eftir eru þá einar 300 þúsund krónur. Skuldabréfalánið, sem bærinn tók í fyrra, er var hið fyrsta hagstæða innanlandslán, er hér hefir verið tekið, vildi borgar- stjóri ekki hreyfa við, því að það væri, sagði hann, grundvöll- ur að heilbrigðum verðbréfavið- skiftum í landinu, en reiðufé bæjarins skyldi notað sem rekst- ursfé. — (Mbl. 25. jan.). HREINN ÁGÓÐI $224,986 Samkvæmt skýrslu, siem fylk- isféhirðir, Hon. Stuart S. Gar- son, hefir lagt fram í Manitoba þinginu, nam hreinn rekstrar- ágóði Manitoba raforku sam- bandsins, $224,986 fyrir árið, sem leið; er þetta hærri ágóði, en stofnun þessi hefir nokkru sinni áður haft af starfrækslu sinni á leinu ári. félag íslands mun nú brátt hafa 3 flugvélar í gangi. Samgöngu- bæturnar, sem þessar flugvélar wita, verða ómetanlegar. Það er ekkert ölmusufé, sem ménn löggja í fyrirtæki eins og Flug- félag íslands. Hvernig sem. tím- arnir verða, sem framundan eru, getur ekki hjá því farið, að slík félög geri sitt mikla gagn. Fáa dreymdi um, þegar Eim- skipafélag fslands var stofnað, aö það ætti eftir að verða þvílíkt risa- og þjóðþrifafyrirtæki, sem raun er nú orðin á. Nú er ann- að óskabarn þjóðarinnar að fæð- ast. Það mun dafna og þrosk- ast og verða “vel að inanni” eins og “stóri bróðir.” En þegar minst er á Flugfélag íslands má ekki gleyma áhuga- mönnunum, sem lagt hafa fram mikla vinnu og sýnt óþrjótandi áhuga fyrir að koma upp örugg- um flugsamgöngum hér á landi. Mun síðar koma i ljós, hve starf þeirra hefir verið og er mikils- vert.—(Mbl. 2. janúar). Cripps á Indlandi Sir Stafford Cripps er nú kom- inn til Indlands og situr daglega á ráðstefnum með indverskum leiðtogum. Hann býst við að dvelja á Indlandi um tveggja vikna tíma; á þeim tíma vonast hann til að ráðstefnur hans beri >ann árangur, að indverska jjóðin muni taka frjálsan og fullkominn þátt í stríðssókninni við hlið Bretlands, Rússlands, Kina og Bandarikjanna. Aldurstakmark til Herþjónustu Hækkað úr 21 Árs Aldri til 30 Ára Forsætisráðherrann, Mr. King, gerði heyrinkunnugt í sam- bandsþinginu á þriðjudaginn, að aldurstakmark til herþjónustu í Canada yrði frá 21 árs aldri til 30 ára aldurs; gildir þetta um einhleypa menn og ekkjumenn. Stjórnin getur að vild, fært menn úr einni stöðu í aðra, ef svo býð- ur við að horfa, og slíkt er nauð- synlegt talið vegna stríðssókn- arinnar. Menn, sem vinna að búnaðarframleiðslu, mega ekki skifta um starf nema ineð fengnu leyfi hlutaðeigandi stjórn- arvalda. Frá Rússlandi Allar fregnir þaðan bera það með sér, að sókn hinna rúss- nesku hersveita miðar greiðlega áfram svo að segja á öllum víg- stöðvum; leinkum er mælt, að Rússar hafi unnið allverulega á í grend við Leningrad, og jafnvel endurnumið borgina Novgorod, þú sú frétt sé enn ekki opinber- lega staðfest. Frá Moskva er símað á þriðjudaginn, að þess sjáist nú nokkur merki, að Hitler muni hafa bæzt allmikill lið- styrkur, og að þess megi vænta, að hann hefji áður en langt um líður hina margumræddu vor- sókn sína eftir að vegir taka að batna. Nú ler það vitað, að Hitler hafi fyrir skemstu lagt mjög að stjórnum Rúmeníu og Ungverja- lands í þá átt, að fá frá þeim þjóðum aukinn liðsstvrk til sóknar gegn Rússum BILJÓN DOLLARA GJÖF Sambandsþing hefir afgreitt frá þriðju umræðu frumvarp stjórnarinnar um biljón dollara virði af vörum, sem gjöf til Bret- lands hins mikla. Allir þing- flokkar voru á leinu máli um nytsemi þessarar stórfenglegu gjafar. Krossfeátingin Á aftökustaðnum var óróasamt, af ópum og háreysti nóg. En sakamanns andlit heilagt og hreint bar himneska mildi og ró, því sálin af kærleik og fegurð var full, og friður í hjartanu bjó. En svipuhögg dundu úr hermanna hóp og háðung og brígslyrði með. Svo flettu þeir klæðum hinn fátæka mann og festu hann nakinn á tréð. —Að dauðasök fyndist hjá leiðtoga lýðs, það landstjórinn gat ekki séð. Þeir reistu á jörðu hinn rammgjörva kross, hið rómverska píningartól, sem breyttist í kraftsins og kærleikans tákn, því Kristur er mannanna sól, er flytur oss blessun og fögnuð í sál og færir oss gleðileg jól. —Hið rómverska stórveldi’, er reisti þann kross, í rústum nú burtnumið er, en sannleikans ríki hins saklausa manns með sigri um jörðina fer. Hann konungur rómverskra keisara var og kórónu himnsins ber. Einar M. Jónasson. —(Eimreiðin). Hauát Fálát og köld rís foldin mót nýjum degi og framandi á þessum hnetti dagurinn vaknar. Hann horfir á jörðina kvíðinn, eins og hann eigi þar einskis framar að vænta af því, er hann saknar. Því höfin seilast óraveg eftir þeim skeljum, sem áður voru leikföng glaðværra barna, og austan um heiðar fer haustið grátt fyrir éljum, og himininn sortnar að baki fjarlægra stjarna. Og stálgráir drekar af stálgráu hafi snúa. —Það er stormur í lofti og framandi véladynur. Og óttaslegnir himinsins fuglar fljúga, en fölt til moldar laufskrúð garðanna hrynur. Og jörðin sjálf er gripin geigvænum ótta, sem gangi henni örlög lífsins til hjarta. Hún flýgur áfram á einmanalegum flótta. án athvarfs og hvíldar, sinn veg út í nóttina svarta. Svo týndist í fyrnsku, sem helgisögn, horfin í móðu, sá heimur, sem eitt sinn var leikvöllur sólskins og blóma. Þó lögðum við þaðan upp, og álengdar stóðu ungir, prúðbúnir dagar í heillandi ljóma. En smátt varð alt, er við fengum úr býtum borið á borð við mikilleik þess, er sál okkar dreymdi, er lögðum við ungir leið okkar út í vorið, og lífið tærast og ferskast um hjörtun streymdi. Og hugurinn spyr: Hvort vorum það við, sem brugðumst þeim vængjuðu draumum, sem aldrei flugu til baka? Svo fátt er eftir til vitnis um verk, er við hugðumst að vinna, Guði til dýrðar. En hvern er að saka? Vor bernska tók við heimi, sem var að hrynja, og hennar framtíð skein í blóði og tárum. Og bráðum eignast önnur kynslóð til minja um æsku sína, veröld flakandi’ í sárum. Hví lagði vor kynslóð á sig örlögin hörðu? Hví unnum vér ei sjálfum oss þeirrar gleði, að búa sáttir saman að þessari jörðu unz sál vors stutta lífs er hnigin að beði? Hví máttum vér ei byrðar hvers annars bera og böli hvers annars í fögnuð og gleði snúa? Nei, þetta er ekki sú veröld, sem átti að vera! Það var ekki þetta mannkyn, sem hér átti’ að búa! Og þó er það máske í angist og umkomuleysi, sem okkur mannanna börnum, er lífið kærast. Því stíga bænir um frið yfir hallir og hreysi, frá hjörtum, sem þjást, og mállausum trega bærast. Og kallar ei sérhver nótt eftir nýjum degi? I nekt sinni á jörðin draum um foldina græna. Og myndum vér beygja vor kné til ákalls ef eigi yrði neins vænst af þeim himni, sem knýr oss til bæna? Og mun þá ei aftur lífið öðlast þann ljóma, sem leiftraði forðum í augum glaðværra barna, , og jörðin okkar var athvarf sólskins og blóma og æfi hennar var skemtiferð meðal stjarna? Og æskan, sem loks fær okkar sögu í hendur, mun einhverntíma spyrja í fávizku sinni: “Hver botnar í því öllu, sem hérna stendur? Var einu sinni barist í veröld minni?” Tómas Guðmundsson. —(“Norræn Jól”)

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.